Lögberg - 05.08.1920, Síða 4
BU. 4
LOGBSJtG, FIMTUDAGINN 5 ÁGírST 1920
?
gToglmg
Gefið út hvern Fimtudag af The Col- j
umbia Press, Ltd.,jCor. William Ave. & 1
Sherbrook Str., Winnipeg, Man.
TALSIMI: GARUY 41« og 417
Jón J. Bfldfell, Editor
Utanáskrift til blaðsins:
THE 60LUMBI/\ PfjESS, Ltd., Box 3172, Winnipeg,
Utan&skrift ritstjórans:
EDITOR LOCBERC, Box 3172 Wlnnipeg, tyan.
Forsætisráðherra skifti Canada.
1 langa tíð hefir Iþað legið í loftinu, að Sir
Lobert Borden forsætisráðherra, mundi sökum
heilsubrests leggja niður forsætisráðherraem-
bættið. En menn voru farnir að halda, að af
þessu yrði ekki, og að Sir Robert Borden mundi
sitja við stýrið þar til þing yrði leyst upp, og
meira að segja, að hann mundi leiða lið sitt
ti.1 pólitiskrar sóknar við næstu landskosningar
i Canada, og ekki sízt þegar það fréttist, að
hann eftir tiltölulega stuttan hvíldartíma væri
kominn hress og heill til höfuðstaðarins.
En sú spá manna fór eins og svo margar
aðrar, að hún rættist ekki, því á flokksfundi í
júlí sáðastl., lýsti Sir Robert yfir því, að hann
treysti sér ekki lengur að halda áfram hinni
erviðu og ábyrgðarmiklu forsætisráðherra
stöðu, því þó heilsa sín væri þolandi, þá mundi
sækja í sama horfið áður en nokkurn varði, og
sagðist hafa ásett sér að hætta, og því yrði að
velja eftirmann sinn nú þegar.
Sagt er, að Sir Robert hafi verið svo á-
kveðinn að þessu sinni, að enginn þeirra, sem
viðstaddir voru, sá til nokkurs að fara fram á
við hann að breyta því áformi, sem hann hafði
tekið. Það var því ekki um annað áð gera, en
taka þetta til greina, og lá því fyrir að kjósa
eða réttara sagt velja eftirmann hans! Slíkt
þurfti nú heldur ekki að horfa til neinna vand-
ræða, því fleiri voru þar sem fúsir voru til að
fylla þetta embætti, en fengið gátu.
Það voru að eins þrír menn, sem verulega
komu til greina í þessu sambandi, þeir Sir
Thomas White, fvrverandi fjármála ráðherra
Canada, Sir Henry Drayton, núverandi fjár-
málaráðherra Canada og Hon. Arthur Meighen,
innanríkisráðherra.
Vér vitum ekki hvernig á því stendur, að
Sir Thomas MTiite neitaði að taka við þessu
embætti, eða hví Sir Henry Drayton hafði lít-
inn eða en'gan stuðning, þegar til valsins kom;
vér vitum að eins, að Sir Robert Borden til-
kvnti heilum hópi af blaðamönnum, sem ó-
þreyjufullir biðu eftir úrslitum þessum, að þeir
skyldu fá að vita um forsætisráðherravalið
snemma dags, en það kom ekki fyr en einni
stundu fyrir miðna-tti á miðvikudaginn næstan
eftir flokksfund, þá var þeim tilkynt, að Hon.
Arthur Meighen va>ri valinn til þess að taka að
sér forsætis ráðherra embættið í Canada, yngsti
maðurinn af þeim þremur, sem um var að ræða
og maðurinn, sem hefir langminsta starfs-
málareynslu.
En ósanngjarnt væri að áfella þennan nýja
forsætisi ráðherra fvrir það, þó hann sé ungur
og eigi þar af leiðandi ekki vfir eins mikilli lífs-
reynslu eða starfsreynslu að ráða, eins og þeir,
sem eldri eru. Vér búumst við að samverka-
menn hans hafi þekt hann og vitað vel hvað þeir
voru að gjöra.
Það er sagt, að þessi nýi forsætisráðherra
Canada sé mjög vel gefinn maður, einarður, á-
kveðinn og óvæginn, sérstaklega þegar hann á
í höggi við mótstöðumenn sína, og orð hefir
hann getið sér fyrir það, hve slingur hann sé
í orðasennu.
Hon. Arthur Meighen er að eins 45 ára
gamall og yngstur af öllum þeim, sem forsætis-
ráherrasæti hafa skipað í Canada og vér hyggj-
i;m í brezka ríkinu, að einum forsætisráðherra
Breta undanskildum, og hefir því þessi for-
sætisráðherra þrek sitt og lífsfjör á hæsta stigi,
ásamt starfsþreki og gáfum sér til aðstoðar í
hinni erviðu og vandasömu stöðu, er hann hefir
tekist á hendur.
Um framtíð hans sem stjórnarformanns
Canada er ekki gott að spá, en flest virðist
mæla með því, að hún verði ekki löng, því svo er
stjórn sú, sem hann tekur við (flestir ráðherr-
arnir eru þeir sömu og áður) orðin óvinsæl, að
kraftaverk mætti það kallast, ef hann gæti leitt
hana til sigurs við almennar kosningar, jafnvel
þó hann gengi til kosninga undir merkjum hins
nýja flokks með stóra nafninu, eða National
Liberal-Conservative flokksins, sem eins og
enn er komið málum, er að eins látalæti til þess
að láta fólk halda, að það séu fleiri en hinir
gömlu og ákveðnu afturhahjsseggir, conserva-
tives, sem skijii sér undir merki hans.
En vér teljum fremur ólíklegt, að Hon.
Arthur Meighen gjöri sér neina samsteypu að
góðu, þegar til lengdar lætur, því sagt er, að
hann sé ákveðinn fylgismaður íhalds&tefnu
eonservative flokksins og telji viðreisn hans
nauðsimlega.
Hon. Arthur Meighen fhitti sína fvrstu
opinberu ræðu, eftir að hann tók við forsætis-
ráðherrastöðunni, í Portage la Prairie, þar sem
Lann átti heima og rak málafærslustörf unz
fyrir tólf árum að hann var kosinn á þing.
---------0--------
Nýir leiðtogar.
Það eru meiri byltingatímar á yfirstand-
andi tíð í öllum skilningi, en verið hefir áður í
sögu þessarar ungu þjóðar.
í heimi starfsmálanna eru byltingar. Á
svæði kirkjunnar tala menn um breytingar, og
það sem skynsamlegt og nothæft þótti áður í
stjórnmálum, er iþjóðin nú orðin óánægð með.
Eitt af því eru leiðtogarnir. Þessi þjóð og
ílestar aðrar þjóðir sneru sér til hinna eldri og
reyndari manna með vandamál sín. Nú virð-
ist hún vera að hætta því, og leita til hinna
yngri manna.
I Ottawa eru nú þrír nýir leiðtogar, allir
ungir og fullir af lífsfjöri.
Hinn nýskipaði forsætisráðherra Canada,
Hon. Arthur Meighen, er 45 ára að eins. Leið-
togi frjálslynda flokksins, Hon. MacKenzie-
King, er að eins einu ári eldri, og Hon. T. A.
Crerar, leiðtogi bændaflokksins, 43 ára gamall.
gamall.
----,---o--------
Primary kosningamar í Minne-
sota.
Það er sérstaklega tvent, sem vakti eftir-
íekt manna á þeim.
Fyrst ósigur Nonpartizan League manna,
sem höfðu auðsjáanlega talið sér signr vísan í
Minnesota og sem setið hafa að völdum í ná-
grannaríki voru, Norður Dakota, undanfarandi
og héldu víst að orðstír sinn hefði svo heillað
íbúa Minnesota ríkis, að þeir mundu taka við
feér og boðskap sínum með opnum örmum.
Aðferð Nonpartizan League manna við
þessar kosningar var sú, að velja þingmanna-
efni undir merkjum Repúblíkana, menn, sem
þeim voru trygðir, og reyna að ná meiri hluta
atkvæða Repúblíka flokksins á þann hátt.
En sú aðferð mishepnaðist í Minnesota.
Fylgismenn Repúblíka flokksins unnu sigur og
til ríkistjóra þar var valinn frá þeirra hálfu
.1. A. O. Preus með um 20,000 atkvæðum um-
fram ríkistjóraefni Nonpartizan League manna
Dr. Henrik Shipstead.
1 öðru lagi vakti það allmikla eftirtekt, að
Mr. Volstead, höfundur hinna svo kölluðu
Volsitead vínbannslaga í Bandaríkjunum,
skyldi falla eða ekki ná útnefningu sem þing-
mannsefni til Congress Bandaríkjanna.
Sá, sem bar hærri hlutann, heitir séra O. J.
Kvale, og það, sem einkennilegast er við þetta,
er, að séra O. J. Kvale er ákveðinn bindindis-
maður eins og Volstead var.
En sagt er að Mr. Volstead hafi komist í
ónáð hjá Nonpartizan League mönnum fyrir
það, að hann greiddi atkvæði eins og honum
sjálfum sýndist rétt að vera, en ekki eins og sá
flokkur vildi, þegar um það var að ræða að
Bandaríkjastjórn skilaði járnbrautum, sem hnn
hafði tekið í sínar hendur og starfrækt meðan á
stríðinu stóð, aftur til hinna fyrri eigenda.
--------------------o--------
íslendingadagurinn í Winnipeg.
Þessi hátíðisdagur Islendinga, Islendinga-
dagurinn, rann upp blíður og fagur og gaf öll-
um þeim hinum mörgu, sem til hans höfðu
hlakkað, von um dásamlegt veður. Og það varð
líka, allan daginn fram til kl. 6, þegar ský dró
upp á vesturlofti og hæga skúr gerði um kl. 7,
en þá var nokkru ólokið af íþróttum þeim, sem
fram áttu að fara.
Hátíð þessi, þjóðminningarhátíð Vestur-
íslendinga, er fólki voru ósegjanlega kær, sem
ekki er heldur að orsakalausu, því það er þá að
rifja upp fyrir sér í sérstökum skilningi endur-
minningarnar um æskustöðvar og æskulíf, um
ættfeður og ættmæður, sem þeir hafa máske
aldeij séð, en vita að lifa, eða lifðu með það í
huga, að gjöra skyldu sína svo lífið mætti verða
fegurra og auðugra fyrir þá að njóta.
Þessa. tilfinningu á Islendingadagurinn að
glæða. Fyrir þessum endurminningum á hann
að kenna ungum og gömlum að bera virðingu,
en forðast alt sem getur hnekt henni eða kastað
skugga á ánægju manna á þessum degi.
Sjálfsagt er það vilji allra, er fyrir þessu
hátíðarhaldi standa, að þetta megi verða, að alt
sé sem fulkomnast og sem bezt úr garði gjört
sem að honum lýtur.
1 þetta sinn mistókst þetta tilfinnanlega,
að því er samkomustaðinn snerti, hann var með
öllu óhæfur. Sýningargarðurinn gamli er svo
r.iðurníddur og óhirtur, að neyðarkostur var að
bjóða fólki þangað. Enda þykjumst vér vita,
að nefndin hafi valið þennan stað sökum þess,
að annað betra var ekki fáanlegt.
Annað, sem miður fór á hátíðinni, var, að
auglýst hafði verið að ræðuhöld ættu að byrja
kl. 3 e. h., en þau byrjuðu ekki fyr en kl. 4, og
jafnvel þá var svb mikil ókvrð og hávaði, að
oftlega heyrðist vart mannsins mál.
Ræðurnar, sem fluttar voru, verða væntan-
iega birtar hér í blaðinu við tækifæri.
Tvö kvæði ný: Minni íslands, eftir Þorska-
bít, og Minni Canada, eftir Guttorm J. Gutt-
ormsson, birtast í þessu blaði. Minni Vestur-
íslendinga, eftir Kristinn Stefánsson. sem
birtist í blaðinu, er tekið úr kvæðabók þess
liöf.
--------o--------
Nýtt meðal við holdsveiki.
Öldum saman hafa beztu læknar heimsins
lagt heilann í bleyti í þeim tilgangi að grafast
fyrir orsakir holdsveikinnar og reyna að finna
örugga lækningu gegn þessum hræðilega kvilla.
Samkvæmt nýútgefinni skýrslu frá Dr.
Bernard F. Carey, aðstoðar heilbrigðis um-
sjónarmanni Bandaríkjastjórnarinnar, er það
nú talið nokkui-n veginn víst, að ráðning gát-
nnnar sé fengin.
Þessi nýja lækninga-aðferð hefir reynd
verið á tveim ungum mönnum, er hafst hafa við
á holdsveikra spítalanum á Pekinese eynni.
Hefir lækningin reynst svo vel, að fullyrða má
að menn þessir verði innan skamms sendir heim
lieilir heilsu.
Dr. Carey segir, að við ítrekaðar athugan-
ir verði eigi betur séð, en að sjúklingar þessir
hafi hlotið fulla bót meina sinna. Meðalið er
chemulga olía — vökvi úr austur-indversku
plómutré.
Hlutaðeigandi sjúklingar halda því fram,
að aðferð þessi sé óbrigðul og fyrirbyggi með
öllu alla sýkingarhættu síðarmeir.
Fimm af frægustu læknum Bandaríkjanna
sitaja á rökstólum þessa dagana til þess að
kveða á um sannleiksgildi þessarar nýjungar í
heimi læknislistarinnar, og má briast við úr-
skurði þeirra livað af hverju.
Dr. Carey segir meðferð sjúklinga þeirra,
er lækna skal af holdsveiki á þenna hátt, vera
mjög svipaða því, er alment gerist, þegar um
er að ræða tæringarveikt fólk Sjúklingarnir
þurfa að hafa holla fæðu, gott loft og vera sem
allra mest riti í sólskini. Sé svo olía þessi, er
áður hefir nefnd verið, gefin holdsveikis-sjúk-
lingunum og ströngum heilbrigðisreglum að
öðru leyti fylgt, telur Dr. Carey öll líkindi á, að
fullkomin heilsubót fáist.
í þessum tveimur tilfellum \Tar sjúklingun-
um gefnir þrír skamtar á dag. Skamtamir voru
einskonar olíukúlur með þunnu hýði, því olían
sjálf er óaðgengileg á bragðið og orsakar
velgju.
Notaðir voru fimm dropar í fyrsta skamt-
inn, en auka mátti við skerfinn smátt og smátt
þar til svo var komið, að sjúklingamir þoldu vel
fjórtán dropa skamt án þess þeim yrði hið
minsta óglatt.
Reynist nýjung þessi ábyggileg, leysir hún
margan nauðlíðandi frá þungum þrautum, því
holdsveikin er ein af hörmulegustu plágum
mannkynsins.
--------o—--------
MINNI ISLANDS.
Æfinlega’ á Islendingadegi
innra finst oss líkt og heyra megi:
Ástar-rödd, sem alla
á oss sé að kalla
Island!—'heim til fjarða þinna’ og fjalla.
Eins og traustum töframætti dreginn
til þín svífur þá vor hugur feginn,
því að hjá þér heima
hugljúft er að dreyma
fortímann, sem flestir aldrei gleyma.
Vér þig munum, móðir, enn og dáum,
mynd er birtist þín, oss finst vér sjáum
gyðju’ í klæðum grænum
gnæfa hátt úr sænum
þvegnum svölum sumarmorgun-blænum.
Hvílík sýn,—hún sæluhrifning vekur,
seiðmagn hennar fanginn hugann tekur.
Horfa’ á land og hafið
huliðsrúnum grafið,
heiðisbláa hýjalíni vafið.
Meðan sólin hækkar lofts í hæðum,
hjúpuð þoku silki-rósa slæðum,
milli blikubanda
bjarma-geislar standa,
ibrydda gulli blævæng heilags anda.
Ó, sú fegurð, ekkert meira færir
andagift og sálarlífið na*rir.
Það er hún, sem hefur
hafið þig og gefur
mögum þínum það sem listin krefur.
•Kominn frá þér kjami vor er bezti,
kraftmikið og heilnæmt veganesti.
Meðal margra þjóða
móðurarfinn góða
vér höfum sett á vöxtu þér til gróða.
AJlsstaðar, er íþróttir skal reyna,
orðstír miklast þinna prúðu sveina.
Sókn þó hörð sé hinna,
hljóta’ að lokum finna:
Synir íslands sigurkransinn vinna.
Hvar sem andlegt atgerfi skal sýna,
allssitaðar má líta niðja þína
fremsta’, í fræðum slinga,
fara prófs til þinga.
Guði’ sé lof hann gerði’ oss Islendinga.
Hlífi þér allar heilladísir góðar
hættum við og niðurlæging þjóðar.
Láti’ ei börn þín blanda
blóð sitt röngum anda,
Hafsins dóttir—Drotning Norðurlanda!
Þorskabítur.
--------o------—
MINNI CANADA.
Ó, Canada, kæra móðir,
við kveðjum oss hljóðs í dag
Og færum þér óð; þú hlýðir hljóð
á hátíðar Y’orrar brag.
Því erum við innlendir menn,
að Islands son þig fann
Og gaf oss þér; svo sem alkunnugt er,
þinn eiginmaður var hann.
Þú átt hina frægu Fálka
og fremdarverk þeirra öll.
Það eilífðarmál, sem á þín sál,
er íslenzkan gullin, snjöll.
Þú hugsar að alþjóðar hljómleik um
það, hversu þú værir stödd,
Ef rynni ei inn, í þjóðsöng þinn
sú þýðasta og fyrsta rödd.
Við segjum það ekki öðrum
til ámælis, langt frá því,
En metnað þarf, eins og styrk við starf,,
að stíga framaspor ný.
Og sómi vor er þinn sómi
og sómi þinn er vor,
Og jörðin er eydd og moldin meidd
sé misstigið nokkurt spor.
Við óskum einskis fremur
til arðs og gengis þér,
En börn þíu öll, jafn efld og snjöll,
þér orðstír geti jafnt sér.
Að helzt sé hugsjón þeirra,
sem hefja vilja sig,
Að komast hátt til að hefja’ alt lágt
og hátt, á æðra stig.
Gutt. J. Guttormsson.
--------o---------
MINNI VESTUR-ISLENDINGA.
Vaskleiks ykkar veruleg
vitnin eru sýnileg:
Akurlöndin eins og haf
undir sólar geisla-staf,
ung og frjó og efnis-sterk
iðju-handa kraftaverk. —
Sérhver ykkar bygging ber
— 'bjálka-kofinn horfinn er -
vott um hagsýnt hyggjuvit,
happa-gjöldin fyrir strit.
Hingað vestur hugsað er,
heima þegar slys að ber—
þegar hjálpar þarf í neyð,
þá er hingað brautin greið.
Og þá byrgði, yngda þjóð,
axlaðir móts við heima-þjóð.
Þarflegt var og þótti skylt,
þar var ekki málum spilt.
Ykkar hlýja hjartalag
hefir í sér vor og dag.
Alt af breikkar andans svið,
árdags-roða blasir við.
ÁY’alt lægir ofstopann
einlægnin við sannleikann.
Skoðun, hvers sem helzt ’ann er,
hafi’ ’ún birtu yfir sér
sálar-elds úr augum manns
eða bros af Y’örum hans,
friðland á níi orðið þar,
útlæg þar sem fyr hún var.
Ykkar ná þau áhrif til
auðlegðar frá ljósi, yl.
Heim um þennan liggja lönd
líka fyrir plógmanns hönd.
Eru þar og iðju-verð
efni næg í þroskans gerð.
Þar á ungt og aukið lið
af þeim gömlu að taka við,
er ykkar stríð um höpp og hag
hjúpar ykkar sólarlag.
Kristinn Stefánsson.
Almanak, árstíðir og
merkisdagar.
Hvítasunna er 3. stórhátið árs-
ins, og er stofnuö til minningar
um úthelling héijags Randa yfir
postulana. Hún er ávalt 50. dag-
urinn eftir páska, og kallast því
á grísku “Pentekoste” upphaflega
var hátíð þessi líka skímarhátíð,
og nafnið hvítasunna er komið af
því, að þeir sem skírðir voru, báru
fyrst á eftir hvítan klæðnað svo
sem (sakleysiism^rki. Hvítasunna
var haldin heilög þegar í fyrstu
kristni, og í lög leidd árið 305 á
kirkjufundi í Elvira á Spáni. Seint
á 12. öld var samþykt á kirkju-
fundi í Kostnitz, að halda skyldi
þríheilagt þessa hátíð og er það
siður en með páfatrúarmönnum og
sumum Lúteifstrúarmönnum, svo
sem t. d. Svíum. Á Islandi var
og haldið þríheilagt þangað til ár-
ið 1770 að einn dagurinn féll úr,
og með Bretum og fleirum er nú
heilagur. —Gyðiingar halda og
þessa hátíð hei'laga sem stórhátíð j
í minningu þess, að Móses átti
einmitt þá að hafa birt Gyðingum
tíu Iagaboðorð guðs. Hún er og
þar að auki uppskeruhátíð hjá
þeim, og eru þá musteri þeirra og
íbúðarhús prýdd með grænum
grqimum og blórrusveligum; eftiisr
þeim hafa og margir kristnir menn
tekiðl þann sið að prýða þannig
kirkjurnar þenna dag
Á miðöldunum var ýmisleg við-
höfn höfð í kirkjunum til að minna
menn á þýðingu hátíðarinnar.
“Eldtungurnar” voru gerðar
mönnum skiljanlegar með þvi, að
^áta eldneiista ^rigna niður úr
kirkjuhvelfiingunum; þar voru og
hengdar upp dúfur úr tré, til að
minna menn á að heilagur andi
hefði birst á dúfulíki, og stundum
voru jafnvel teknar hvítar dúfur
bundnir saman á þedm fæturnir
og þær svo látnar flökta innan
um kirkjuna, meðan á messugjörð
inni stóð. Um skemtanir var
ekki mikið um hvítasunnuleytið.
pó má þesfí geta, að í útlöndum
héldu menn víða dansleiký sem
nefndir voru ef|ö|r hátíðinni og
fóru mikið á fuglaveiðar, einkum
til að skjóta örnina, sem talinn er
hættulegastur fugl dúfunrti. í
stórborgum á pýzkalandi var og
sá siður, að slátrarar í hverri
borg hópuðu sig saman fyrstan í
hvítasunnu, tóku spikfeitan uxa,
sem þeir hlóðu dýrindis blómum
Þegar þér sendið
peninga til gamla
landsins
. ÍIIIBIIII
pessi banki ábyrgist pen-
inga sendihgar, hvort held-
ur sendar með pósti eða
með síma.
Peningar sendir til Bret-
lands, Frakklands, ítalíu,
Belgíu, Serbíu, Grikklands,
Danmerkur, Rumaniu, Sví-
þjóðar, Noregs eða Sviss-
lands.
Leitið upplýsinga hjá ráðs-
manni.
THE RQYAL BANK
Of CANADA
Höfst. og varsj. $35,000,000
Allar eignir $558.000,000
Auðvelt að spara*
Það er ósköp auðvelt að venja sig á að spara með því
að leggja til síðu vissa upphæð á Banka reglulega. i spari-
sjóðsdeild vorri er borgað 3% rentur, sem er bætt vú5
höfuðstólinn tvisvar á ári.
THE ÐOMINION BANK
NOTRE DAME BRANCH, W. H. HAMILTON, Manager.
SELKIRK BRANCH, • - • W. E. GORDON, Manager.