Lögberg - 07.10.1920, Síða 5
LÓGBERG, FIMTUDAGINN 7. OKTÓBER, 1920.
flokka og stétta. FramtiSarhagur
borgara fylkisins er aö mínu áliti
mikið undir ví kominn, hvemig
undirtektir mál þetta nær, hvernig
það gengur að útvega bóndanum,
sem skortir rekstursfé til að vinna
land sitt, ódýrari peninga og betri
kjör en hann hingað til hefir átt
kost á.
Fyrir mitt leyti er eg bjartsýnn á
úrslit þessa máls, ■— er meira að
segja sannfærður að undirtektirnar
verða þær glæsilegustu. Saskat-
chewan fylki þarf að geta starfrækt
öll sín fyrirtæki með eigin fé. Þeir
peningar, sem nota þarf framfara-
málum fylkisins til stuðnings, eiga
ekki undir nokkrum kringumstæð-
um að fara út úr fylkinu sjálfu,
heldur vera í veltunni og ávaxtast
þar.
--------o--------
Gallar vorir.
Eftir H. C. Spurgeon.
Sá, sem hrósar sér af því, að
hann sé fullkominn, er fullkominn
í heimsku. Eg hefi farið víða um
lönd, en aldrei hefi eg hitt nokk-
urn fullkominn mann né galla-
lausan hest, og hitti víst aldrei
neinn slíkan fyr en tveir sunnu-
dagar verða í einni viku. pað er
ógerningur að fá hvítt mjöl úr
kolapoka eða nokkuð alfullkomið
úr mannlegu eðli. Sá, sem býst
við einhverju slíku, gæti alt eins
leitað sykurs í sjó úti.
“Hann er dáinn—hann var góð-
ur”, er gamalt orðtak. Vér eig-
um nú einu sinni aldrei að segja
nema gott eitt um framliðna menn
— en þeir, sem eru á lífi — ja,
þeir eru nú meira eða minna svert-
ir með hinum svarta tjörubursta;
það getum vér séð með hálfopnum
augum. í hverju höfði er veikur
staður og viðkvæmur og svartur
dropi í hverju hjarta. Engin rós
er án þyrna og hverjum degi fylg-
ir nótt. Á sjálfri sólunni eru
blettir og himininn heiðskír verð-
ur skýjum hulinn. Enginn er svo
vitur, að hann sé eigi nógu heimsk-
ur til að fylla. heila búð á “hé-
gómamarkaðinum.” Sjái eg ekki
húfuna fíflsins, þá heyri eg þó
bjöllurnar hringja. Ekkert sól-
skin er án skugga, svo finst held-
ur ekkert gott hjá manninum, svo,
að eigi sé það blandið einhverju
slæmu. peir, sem lögunum eiga
að stýra, hafa líka sína smágalla;
bæjarfógetarnir sjálfir eru ekki
einu sinni hreinir og beinir engl-
ar. Bezta vín er ekki án dreggj-
ar. Allir menn hafa ekki galla
sína ritaða á enni sér og það er
vel farið, því ef svo væri ekki, þá
myndi þurfa all-barðabreiða hatta.
pað er eins víst og það, að egg er
egg, að í hverju brjósti felst galli
af einhverju tagi. pað er ekki
hægt að segja fyrirfram, hvenær
syndir einhvers mans muni komn-
ar í Ijósmái, því að hérarnir
stökkva vanalega fram úr fyigsni
sínu, þegar minst varir. Fóthrum-
ur klár hnýtur oft ekki, þó hann
hlaupi spölkorn; en hnotgjarn er
hann og fóthrumur eins fyrir því,
svo að þeim, sem á honum situr,
er bert að gæta allrar varúðar.
Kötturinn Brandur situr ef til vill
ekki við mjólkurfötuna og lepur
úr henni rjómann rétt í þennan
svipinn; en láttu mjólkurbúrið
standa opið og þá verður þess
skamt að bíða, að þú sjáir að hann
geti stolið, engu síður en ketling-
urinn. pað er eldur í tinnunni,
hvað sem þér sýnist eða finst hún
vera köld; siáðu hana með stálinu
og þá skaltu sjá, hvort hún hefir
það ekki til. Allir geta að sönnu
ráðið þá gátu, en ekki eru allir
eins varkárir í því að hafa púðr-
ið sitt nógu langt frá neistanum.
Ef oss kæmi öllum til hugar, að
vér erum með ófullkomnum mönn-
um, þá myndum vér ekki vera eins
uppvægir ef vér verðum varir við
galia í fari vina vorra. Ait, sem
rotið er og fúið rifnar einhvern-
tima sundur og brotin ker geta
ekki verið vatnsheld. Sæll er sá
maður, sem ekki reiðir sig á hold
og bióð, hann verður aldrei fyrir
vonbrigðum. Beztu menn eru þó
aldrei nema menn, jafnvel ekki
þeir, sem eru beztir allra og hið
bezta vax bráðnar í eldinum. Góð-
ur er sá hestur, sem aldrei skeikar
i spori 0g góð er sú kona, sem
aldrei kveinar né kvartar. En
shkir hestar og slíkar konur eiga
hvergi heima nema í paradís flón-
anna, þar sem eplabúðingar vaxa
a trjanum. Hér í þessum vonda
heimi eru alt af kvistir í hinu
beinvaxna tré, og hversu vel sem
einhver hveitiakur er hreinsaður
þa er þar þó að minsta kosti ein-
hyer vitund af illgresi. Hinn var-
karasti ökumaður kollekur sig bó
stundum og hinn leiknasti mat-
reiðslusveinn missir stundum nið-
ur dropa, sem ekki næst aftur, og
góður plógmaður, — eg hefi sjálf-
ur komist að' sárri raun um það__
brýtur oft plóginn eða ristir
skakt plógfar. pað er heimska að
siíta sambandi við reyndan vin, af
því að hann hefir eibn galla eða
tvo, því að fyrir getur það komið,
að þú fargaðir eineygðri hænu og
keyptir þér alblinda hænu í stað-
inn. En þar sem vér erum nú all-
ir gallagripir, þá ættum vér að
vera mjög umburðarlyndir hver
við annan; vér búum allir í gler-
hýsum og ættum því að vara oss
á að kasta steinum hver í annan.
Hver er það, sem getur gert að
sér að hlæja ekki þegar steikara-
pannan segir við ketilinn: “En
hvað þú ert svartur!” Gallar
annara manna ættu að sýna oss ó-
fullkomleika sjálfra vor, því einn
sauðurinn er öðrum næsta líkur,
og hafi nágíanni minn stein í
auga sér, þá hefi eg hann vafa-
laust ílka í mínu auga. Vér eig-
um að hafa náunga vorn að skugg-
sjá, til þess að vér getum séð þar
Jýti sjálfra vor og hreinsa svo úr
voru fari þá galla, sem vér sjáum
hjá öðrum.
Eg get ekki liðið þá snyrtimenn
sem stinga nefinu inn í hvers
manns hús, til þess að þefa upp
galla þeirra og taka með sér
stækkunarger til þess að geta
fundið hina smæstu galla. Slíkir
og þvílíkir menn og konur ættu að
líta betur eftir heima hjá sér, svo
gæti farið, að þeir kæmu þá auga
á djöfulinn þar, sem þeir sízt
hefðu búist við. pað sem menn
nú út af lífinu vilja sjá, það sjá
menn MÍca að jafnaði eða þykjast
hafa séð það. Hvít kýr er hrafn-
svört, ef sá dutlungurinn dettur í
auga þér á annað borð. Ef vér
berum ilmvatn upp að vitum vor-
um til lengdar þá fer svo að lok-
um, að oss þykir það ilma illa.
Miklu fegra hlutverk væri það, að
minsta kosti öðrum mönnum til
handa, ef veiðarar allra bresta
náungans legðu af stað með spor-
hunda sína til þess að leita uppi
mannkostina hjá honum. Sú
veiðiför mundi borga sig betur.
Og þá stæði enginn viðbúinn á
sléttum úti með heykvíslir til að
reka veiðarana burtu frá siínum
slóðum.
Að því er bresti sjálfra vor
snertir, þá þyrftum vér á stórri
töflu að halda til þess að geta
reiknað þá saman; en guði sé lof,
að vér vitum hvert vér eigum að
fara- með þá og hvernig vér eigum
að hagnýta oss þá. Guð elskar
oss, þrátt fyrir alla vora galla, ef
vér trúum á þann, sem hann sendi,
hans eingetinn son; þess vegna
megum vér eigi örvilnast, heldur
vona, að vér fáum að læra og lifa
°g jafnframt að vera til einhvers
gagns, áður en vér deyjum. pó
að ýskri í kerrunni, þá kemst hún
þó heim með hlassið á endanum,
og húðarklárinn getur talsvert
þjarkað enn, þótt hann sé hrumur
að fótum. pað er ekki vert fyrir
oss að leggja árar í bát og hafast
ekkert að af þeirri ástæðu, að vér
getum ekki gert alt, sem vér vilj-
um. Hvort sem menn hafa nú
bresti eða ekki, þá verður ekki hjá
því komist að plægja, og það verða
ófullkomnir menn að gera, annars
förum vér á mis við alla uppskeru
eftirkomandi árs. Jón má aldrei
vera lélegur plægjari, englarnir
koma ekki til þess að vinna verkið
fyrir hann, og þá er hann til
neyddur að ganga að því sjálfur.
Pví eg segi: Af stað með þig,
kunningi, áfram til starfa, nú
gengur það!” — Heimilisblaðið.
sínum, eignaðist Elín eina dóttur,
Sigríði konu Kristjáns Hannes-
sonar, sem hún lézt hjá og áður
hefir verið frá skýrt. Og hafa
þau góðu hjón með snild og prýði
verið hennar athvarf og ellistoð
fram að dauðastundu, hún aldrei
frá þeim vikið. Árið 1887 flutt-
ust þau hjónin, Ólafur og Elín,
hingað vestur ásamt dóttur sinni
Sigríði,- þá við aldur, og settust
að í Winnipeg. Ólafur andaðist
árið 1900 og þaða sama ár misti
Elín sjónina, því blind lifði hún
í 20 ár og rúmföst 7 síðustu ár
æfinnar, og var krabbameinsemd
í brjósti, sem þjáði hana tvö síð-
ustu árin og sleit að lokum veika
lífsþráðinn og færði hana frá
myrkrinu til ljóssins, frá þraut-
unum og langa lifsstríðinu til
sælu og hvíldar. Var jarðsungin
frá sínu gamla og góða heimili af
tveimur prestum, séra Rúnólfi
Marteinssyni og séra J. A. Sig-
urðssyni og hvílir í Brookside
grafreit þessarar borgar.
Elín sál. var vel greind kona,
fastheldin og stór í lund, sem
margar ættsystur hennar frá
gamla séra Bjarna verið hafa.
Sí-vinnandi meðan birta gafst.
Gerfiskona á velli og fríð sýnum
á yngri árum, há vexti og tein-
rétt, með hrafnsvart mikið hár og
dökk, skörp augu, þá eg man hana
fyrst.
pessi minningarorð eru rituð af
gömlum vin og samferðamanni í
þeim eina tilgangi, að skyldfólk
hennar, sem lífs er á íslandi,
kannist við lát hennar, ef fyrir
augu þeirra foer.
L. G.
Aðstoðarnefnd skóla-
ráðs Jóns Bjarna-
sonar skóla.
Mrs. ELÍN TÓMASSON LÁTIN.
Eins og áður hefir verið frá
skýrt í íslenzku blöðunum hér
vestra, andaðist Eiín að heimili
dóttur-sinnar og tengadsonar, Mr.
og Mrs. Kr. Hannesson, að 852
Banning str. hér í Winnipeg, 25.
ágúst síðastliðinn. Var fædd seint
í ágústmán. 1830, hefir því staðið
rétt á níræðu, þá hún lézt. Elín
var Sæmundsdóttir, Olafssonar,
fædd á Einifelli í Stafholtstung-
um, þar sem foreldrar hennar
bjuggu. Móðir Elínar, kona Sæ-
mundar, var Ragnheiður Bjarna-
dóttir (á Bjargi), Bjarnarsonar
prests á Mælifelli, sem margt
manna er frá komið. Albróðir
Elínar var Bjarnhéðinn, faðir
Sæmundar læknis og frú Bríetar í
Reykjavík. Föður sinn misti hún
barn að aldri, 2 eða 3 ára. Eftir
það ólst hún upp til fullorðinsára
hjá Árna silfursmið Helgasyni á
Brekku í Norðurárdal, sem þeirra
stórmerku hjóna fósturdóttir, og
þaðan mun hún hafa gifst í fyrsta
sinn, en þrígift varð hún. Fyrsti
maður hennar var Guðmundur
Jónsson Oddssonar úr Stafholts-
tungum ættaður. Eftir fjögra ára
samvinnu misti hún hann og eign-
aðist tvær dætur, og dó önnur
fjögra mánaða gömul. Hin, Jór-
unn að nafni, náði fullorðinsaldri
og giftist Andrési söðlasmið,
bjuggu í Reykjavík, eru bæði dá-
in og eftirlétu eina dóttur barna,
sem Elín heitir og himilisfestu
hefir í Reykjavík. í annað sinn
giftist Elín Guðmundi Guðmunds-
syni pórðarsonar frá Eskiholti í
Borgarhreppi, vel gefnum manni
og hagorðum vel. Samvist þeirra
að eins fá ár og eignuðust ekkert
barn. 1 þriðja sinni giftist hún
Ólafi,Tómassyni, einnig frá Eski-
holti; hann var þá ekkjumað-
ur, átti áður Rósu systur Guð-
mundar miðmanns Elínar, og voru
þeir systkinasynir, Ólafur og Guð-
mundur. Með ólafi, síðasta manni
Hér birtast nöfn þess fólks, sem
beðiö er að vera í nefndinni og að-
stoSa skólaráðiS meS fjársöfnun.
Eg vil mælast til þess, að enginn
finni sig móðgaðan af þvi að hann
er hér nefndur. Þetta er ekki
skipun, heldur aSeins beiðni. Eg
var farinn af þingi áður en þessu
varS ráöstafaS. Ýmsa, sem hér
eru nefndir, hefi eg fundiS aS máli,
og þeir .hafa lofaS. Fleiri eru þaö,
sem ekki hafa áður veriö beönir, og
sumir þessara hafa jafnvel færst
undan. Ef þeir hafa samt verið
nefndir er þaS vegna þess aö eg
hefi ekki vitaö um aðra í þeirra
staö. Vinsamlega vil eg mælast til
að allir, sem ekki treysta sér til aö
vinna þetta verk, sem þeir hér eru
beðnir um, láti mig tafarlaust vita
um þaS, og mér væri stór þökk á
því, ef þeir vildu vera svo góöir aS
benda á annan í sinn staS.
Sumu ógætu starfsfólki hefi eg
slept í þetta sinn af því mér þótti
ekki rétt aö ofþyngja neinum meö
of miklu starfi ár eftir ár.
Sumir hafa veriS nefndir til
þessa starfs nokkur ár og frá þeim
aldrei komið svo mikiö sem stafur.
Óefað geta allir gjört eitthvaö.
Óskandi væri að enginn drægi sig í
hlé á þessu ári.
Á Iþví ríöur aö allir, sem ekki
treysta sér til aö takast þennan
starfa á hendur láti mig vita fljótt.
Skamt er til 15. nóv. og þá hefir
fjársöfnun vanalegast veriö um þaö
gö byrja.
Nöfnin eru þessi:
Minnesota.
St. Páls söfn:—Vigfús Anderson,
Minneota.
Vesturheims söfn; ,— Sigurbjörn
Hofteig, Cottonwood.
Lincoln söfn.: — P. V. Peterson,
Ivanhoe, North Dakota.
North Dakota.
Pembina söfn.: — G. V. Leifur,
Pemfoina.
Grafton, söfn: — Mrs. Sivertson.
Grafton.
Lúters söfn.: — Vigfús Jónsson,
GarSar.
Víkur söfn.: — M. F. Bjarnason,
Mountain.
Fjalla söfn.:—Th. J. Thorleifsson,
Milton.
Péturs söfn.: — Jón Hannesson,
Hallson.
Vídalíns söfn.:—iFriðrik Erlends-
son og Stígur Thorvaldson,
Akra.
Melanktons söfn.:—S. S. Einars-
son, Bantry, N.D.
Manitoba.
Fyrsta lút. söfn.:—Mrs. Hansína
Olson, Winnipeg.
Skjaldborgar söfn.: •— Thorbjörn
Tómasson, Winnipeg
Selkirk söfn.: — Stefán Benson,
Siguröur E. SigurSsson,
Selkirk.
VíSines söfn.: —• Jódís Sigurösson.
Húsavík.
Gimli söfn.:—Mrs. H. P. Tergesen,
Gimli.
Árnes söfn.: —• Bjarni Petursson,
Arnes.
BreiSuvíkur söfn.: — Mrs. Elín
Johnson og Mrs. Ingibjörg
Magnusson, Hnausa.
BræSra söfn.: — Mrs. GuSrún
Briem og Mrs. GuSrún Björns-
son, Vindheimum, Riverton.
Geysis söfn.:—SigurSur FriSfinns-
son, Geysir; GuSmundur Berg-
mann, Bifröst.
Mikleyjar söfn.:—Mrs. Þorbjörg
Paulson, Hecla.
Ardals söfn.: — Mrs. HiólmfríSur
Ingjaldsson, Framnes; Mrs.
GuSrún Reykdal, Arborg.
Viöir söfn.: — Magnús Jónasson,
ViSir.
Frelsis söfn.:—Sigurður Antonius-
soon, Baldur; F. S. Frederick-
son, Glenboro
Fríkirkju söfn.: — C. B. Jónsson,
Cypress.
Immanúels söfn. (Baldur) :—J. K.
Reykdal, Baldur.
Glenboro söfn.: — A. E. Johnson,
Glenboro.
Lundar söfn.: — séra Jón Jónsson
og GuSmundur Breckman, Lundar.
Grunnavatns söfn.:—Stefán Arna-
son, Otto; Philip Johnson,
Stony Hill.
Jóns Bjarnasonar söfn.:—Jóhann-
es Jónsson, Dog Creek.
Betaniu söfn.: — Siguröur Sigfús-
son, Oak View.
Betel söfn.; — Ólafur Thorlacius,
Dolly Bay.
Skálholts s.: — Arni Björnsson,
Reykjavík.
Hóla söfn.:—
HeröubreiSar söfn.: — Mrs. Anna
Baker og Bjarni Thompson,
Langruth.
Strandar söfn.: — Sveinn FriS-
björnsson, Amaranth.
Trinitatis söfn.: — Karl B. Thor-
kelsson, Langruíh.
Swran River söfn.:—Gunnar Helga-
son, Sw'an River.
Poplar Park söfn.: — Gestur Jó-
hannsson, Poplar Park.
Winnipegosis söfn.:—Ágúst John-
son, Winnipegosis.
Saskatchswan
Lögbergs söfn.: — Gísli Egilsson.
Lögberg.
Konkordías söfn.: — Jón Gíslason,
Bredenfoury.
Þingvalla nýlendu söfn.:—Sigurð-
ur Jónsson, Churchbridge.
ísafoldar söfn:—Christian Paulson
Gerald.
Kristnes söfn.:—Thorlakur Björns-
son, Kristnes.
Sions söfn.:—Sigurður Sigurbjörns
son, Leslie.
Hallgríms söfn.:—Halldór J. Stef-
ansson, Hólar.
Elfros söfn.:—J. J. Sveinbjörnsson
Elfros.
Sléttu söfn.:—A. A. Johnson, Mo-
zart.
Immanuels söfn.: — Steingrímur
Johnson og Gunnar Jóhanns-
son, Wynyard.
Ágústíns söfn.:—Eiríkur Helgason,
Ivandahar.
Alberta
Markervillebygð: — Mrs. Kristin
Maxson, Markerville.
Edmonton söfn.: — Jón Jónsson,
Edmonton.
British Columbia
Vancouver söfn.: — Arni Freder-
ickson, Vancouver.
Crescent söfn.: — SigurSur Christ-
opherson, Crescent.
Washington.
Þrenningar söfn.:—Kolbeinn Sæ-
mundsson, Point Roberts.
Blaine söfn.:—Andrés Danielsson,
Blaine.
Hallgríms söfn.: — Hóseas Thor-
laksson, Seattle.
I VíkursöfnuSi aS Mountain, N.
Dak. voru svo rífleg samskot viS
guSsþjónustu, meir en $66, aS ekki
er ætlast til neinnar almennrar f jár-
söfnunar i þetta sinn; en nefndar-
maður er þar kosinn til aö gefa
þeim tækifæri til aö styrkja skól-
ann, sem ekki áttu þá kost á því.
Ennfremur er fjársöfnun lokiö i
þetta sinn í Ashern og Reykjavíkur
þygö. Vegna ókunnugleika, vissi
eg, því miSur, ekki hvern skyldi
nefna fyrir Hólasöfnuð.
Winnipeg, 1. okt. T920.
Rúnólfur Marteinsson
Frá Islandi.
fjölment samsæti 25. júlí á Brekku
í Fljótsdal, sem gerð var aftur að
föstu læknissetri í tíð Jónasar
læknis og þá reist þar sjúkraskýli
með læknisbústað. — Mæltu þeir
Halldór bóndi Stefánsson í Ham-
borg og Tryggvi ólafsson bóndi á
Víðivöllum fyrir minni heiðurs-
gestann og þakkaði Jónas læknir
með snjallri ræðu. Heiðurskonur
ýmsar stóðu fyrir samsæti þessu,
sem fór fram með mestu rausn og
prýði. — Héraðslæknirinn, ■ sem
þarna býr, ólafur ó. Lárusson,
var því miður eigi heima, þegar
samsætið var haldið. —
Stirð tíð og köld í fyrra mánuði.
Góð síðan upp úr mánaðamótum.
Samkomu átti að halda í Egils-
staða skógi 1. ágúst, en hún fórst
að miklu leyti fyrir sakir illveð-
urs. — Grasspretta góð á úthér-
aði, en léleg sumstaðar á upphér-
aði. Nýting góð síðastl. hálfan
I mánuð.—Hettusótt hefir gert vart
! við sig á 3 bæjum. Barst með
■ manni, sem kom frá Ameríku um
j Skotland, og hafði verið tæpan
; hálfan mánuð þaðan og norður á
Fjöll. Samgöngu varúð er höfð
við heimilin.
Væringja-skáli er nefndur skáli
sem A. V. Tulinius framkv.stjóri
hefir látið reisa skamt frá Lög-
bergi í Mosfellssveit í sumar. Er
hann einkum ætlaður Væringjum
og er þar rúm fyrir 30 drengi.
Séra Friðrik Friðriksson hefir
seinni hluta sumars verið boðinn
í prédikunar- og fyrirlestraferð
um Norðurland og er þar enn.
Blaðið íslendingur segir að hann
hafi prédikað þar “með postulleg-
um krafti og myndugleik.”
—Lögrétta.
(Eftir Vísi, 7.—12. sept.)
Einar Helgason garðyrkjustjóri
hefir ferðast um Austurland í
sumar, að tillhutun Hins íslenzka
garðlrkjufélags, til að leiðbeina
mönnum í garðrækt, og er nýlega
heim kominn. Vísir hefir hitt
hann að máli og lét hann vel af
ferðinni, sagði að garðrækt hefði
aukist að miklum mun þar eystra
hin síðari árin, matjurtarækt
miklu meiri nú í Suður-Múlasýslu
heldur en var fyrir ófriðinn, og í
Norðurmúlasýslu hefði hún tals-
vert aukist, en garðrækt væri þar
þó minni en í suðursýslunni af
eðlilegum ástæðum. Mörgum nýj-
um skrúðgörðum hefir verið kom-
ið upp bæði á Héraði og í Fjörð-
um Mest kveður að þeim í Seyð-
isfirði og Fljótsdal.
Jarðepli hefir landstjórnin lát-
ið rækt suður á Garðskaga í sum-
ar. Var sáð í eitthvað 20 dag-
sláttur og eru uppskeruhorfur
fremur góðar. Menn þeir, sem
gætt hafa garðanna í sumar hafa
borið upp mikið af þara og þangi
í hjáverkum og verður það notað
til áburðar næsta ár. Óvíða hag-
ar betur til jarðeplaræktar hér á
landi heldur en á Garðskaga og
þaðan hafa komið góð jarðepli. —
Ekkjan Guðrún Filippusdóttir
frá pingskálum á Rangárvöllum,
andaðist í dag, 10. spt. Hún var
systir ekkjunnar Margrétar Fil-
ippusdóttur á Eyrarbakka, sem
andaðist 7. þ.m.
Samband ísl. heimilisiðnaðarfé-
laga hefir ráðið ungfrú Halldóru
Bjarnadóttur á Akureyri fyrir
framkvæmdarstjóra sinn. — Ung-
frúin er nýkomin hingað til bæj-
arins og ætlar að tala um heimil-
isiðnað á morgun í Iðnó. — Hún
er mjög vel máli farin og hefir
brennandi áhuga á því iofsverða
fyrirtæki að efla og bæta heimil-
isiðnað hér á landi.
Af héraði er skrifað 15. ágúst—
Jónas Kristjánsson héraðslæknir
í Skagafirði, sem hér var áður hér-
aðslæknir í 10 ár, 1901—1911, var
hér á ferð í síðastl. mán. ásamt
konu og dóttur. pau hjónin hafa
eigi komið í Héraðið siðan þau
fluttust til Sauðárkróks vorið
1911. Nú héldu Héraðsbúar þeim
PURIty FLOUR
Húsmóðirin hefir
vissu fyrir
“MEIRA BRAUÐI
Og
BETRA BRAUÐT’
pURrry FL0Ú&
98Lbs.
ORandqm tOMO**'
Brúkið það í næstu bakning yðar
Margir íslendingar óskast til að læra meðferð bifreiða og
gas-dráttarvéla á Hémphill Motor Schools. Vér kennum yður
að taka í sundur vélar, setja þær saman aftur og stjórna bif-
reiðum, dráttarvélum og Stationery Engines. Einnig hvernig
fara skal með fiutninga-bifreiðar á götum borgarinnar, hvern-
ig gera skal við tires, hvernig fara skal að við Oxy-Acetylne
Welding, og Battery vinnu. Margir íslendingar sóttu Hemp-
hill Motor Schools síðastliðin vetur og hafa fengið hátt kaup í
sumar við stjórn dráttarvéla, fólks- og vöruflutnings bifreiða.
Vor ókeypis atvinnuskrifstofa útvegar vinnu undireins að
loknu námi. parna er tækifærið fyrir fslendinga að læra alls-
konar vélfræði og búa sig undir að reka Garage atvinnu fyrir
eigin reikning. Skrifið eftir vorum nýja Catalog, eða heim-
sækið vorn Auto Gas Tractor School, 209 Pacific Ave. W.peg.
útibú að Regina, Saskatoon, Edmonton, Calgary, Vancouver,
Victoria, Toronto og Montreal. Stærsta kerfi í heimi af
Practical Trade Schools.
Tlie Fanious Manniquins of Basdail in "Cliu Chln Cliow"
Stofnsett 1883
THE HOME OF THE HEINTZMAN & CO. PIANO OG
VICTROLA
Þrjátíu og sjö ára afmæli
^McLean Hljóðfærabúðarinnar
Hátíðlegt haldið með opnun hinnar stóru, nýju
Piano-búðar og margstækkuðum Gramaphone
sýningarsölum.
Að fögrum útbúnaði og fullkomnum, stendur nú engin
slík verzlun framar þessari fyrirmyndar hljóðfæra-búð
Vesturlandsins, og aðeins fáar standa henni jafnfætis á
meginlandi Ameríku.
Stöðug og óumbreytánleg “absolute reliability” verzl-
unaraðferð, ásamt “one price” verzlunarfyrirkomulagi, og
alger útilokun á skrum-sölum, hefir bygt um þessa nafn- _
kunnu verzlun, sem VERNDAR hag viðskiftavina sinna og
veitir SANNA VIÐSKIFTA-LIPURÐ.
FULLKOMIN HLJÓÐFÆRABÚÐ
PIANOS, PLAYER-PIANOS, ORGANS, OG
‘EVERYTHING IN MUSIC”
Vöruforði, húsakynni, afgreiðslulipurð og úrval í hljóð-
færum, eiga engan sinn líka annarstaðar.
Kiiiiiing af Kæðnm
þeirra Pianos er
vér seljum.
Einka umbotSssala ð.
hinum heimsfrægu
HEINTZMAN & CO.
PIANOS, vekur sér-
stakt athygli 1 aCfertS
vorri vitS Piano sölu.
Piano sem allir geta
veitt sér seld hjá oss,
þé eigi önnur látin af
hendi en þau, sem
þrautreynd eru ati
gæðum.
SkrifitS eftir vertSskrá.
Notnadeildln og
deiltl hinna
smærri hljóðfæra.
Kennarar og atSrir
Þeir er sönglist uhna
geta ( fengtijiS |hjá Hss
nótnablöð og bækur
eftir vild. Einnig höf-
um vér fullkomi'tS úr-
val af öllum strengja
hljótSfærum til notk-
unnar í hljótSfæra-
flokkum, orchestra,
frá beztu verksmitSj-
um í Evrópu og Am-
, eriku.
Victor verðskrá send SkrifitS eftir Condens-
ókeypis þeim er æskja ed Catalog of Music.
Victrola
og Victor
Hljómplötur
þetta eru þær tvær
tegundir sem mest ber
á i heimi Gramo-
phonanna, og fást I
einkasölu í Victrola-
deild vorri ."Uqused”
Victor hljómplötur atS-
eins seldar, og úrval
vort þaB langstærsta
I Vestur-Canada.
Vér seljum á lágmarksverði alt árið um kring.
J?að borgar sig að skifta víð McLean hljóð-
færabúðina—nafnið er full trygging fyrir að
þér verðið ánægð.
329 PORTAGE AVE.,
‘The West’s Greatest Music House’
Dept. L.
WINNIPEG