Lögberg - 18.11.1920, Blaðsíða 8
Bte. 8
LÖGBEIIG FIMTUAPíJINN 18. NOVEMBER 1920
BRÖ KIÐ
JMYAK
CRowH
SifniS umbiíÖanun og Coupons fyrir Premíur
Or borginni
P. N. Johnson kaupmaður frá
Mozart Sask. er staddur í bænum.
Mr. Björn Björnsson frá Víðir
I’. O. kom til borgarinnar snöggva
ferð á þriðjudaginn.
Mr. Sigurgeir pórðar.son frá
Cypress River, Man., er staddur í
borginni pessa dagana.
Mr. og Mrs. W. H. Paulson eru
að flytja ásamt yngstu dóttur
3inni, til Winnipeg og dvelja hér
vetrarlangt, og er það vinum
þeirra og kunningjum, sem þau
eiga hér marga, mikið gleðiefni.
Stúdentar
eru ámintir um að koma á fund
sem haldinn verður í Únitara saln-
um, laugardags kveldið þann 20.
nóv. n. k.
Til skemtunar verður meðal
annars kappræða: Ákveðið; að
vorpróf ættu að vera afnumin.
Meðmælendur Hr. A. Magnússon
og ungfrú pórðarson. Móti, Hr.
F. Frederickson og Miss. S. Hall-
dórsson.
Fundurinn byrjar stundvíslega
kl. 8,15. Góðar veitingar fyrir
stúdenta.
Mr. Snorri Pétursson frá Víðir
P. O. Man., kom til 'borgarinnar
á þriðjudagsmorguninn.
Mr. Jón Sigurðsson fyrrum
sveitaroddviti í Bifröst Man.,
kom til borgar fyrri part vikunn-
ar, með tvö vagnfermi af slátur-
gripum.
--------o---------
í síðustu viku kom Aðalbjörg
hjúkrunarkona Basdal, frá Wyn-
yard til bæjarins, veik af tauga-
veiki, er hún enn all þungt hald-
in, og liggur á sjúkrahúsi bæjar-
ins, með henni kom eða öllu held-
ur með hana, Björg Thorsteinson
hjúkrunarkona, og dvelurhér enn.
Jóns Sigurðssonar félagið I. 0.
D. E„ hefir ákveðið að hafa bazar
í Goodtemplara húsinu á Sargent
Ave., laugardaginn þann 4. des.
n. k„ frá kl. 2 síðdegis til kl. 11
að kveldi. Margt góðra muna
; verður þar á boðstólum, og auk
i þess fást keyptar á staðnum ágæt-
. ar veitingar, heimatilbúið kaffi-
brauð og annað goðgæti því um
líkt. Ágóðinn af sölunni rennur í
Minningarritssjóðinn, og ættu ís-
lendingar sannarlega að fjöl-
menna.
Mrs. Grímur Laxdal frá Árborg,
Man„ kom til borgarinnar um
miðja fyrri viku í kynnisför til
dætra sinna hér, þeirra Mrs. Árni
Eggertson (yngri) og Kristínar,
sem heima eiga í Sylvia Block
Mrs. Laxdal fer vestur í Leslie
i vikulokin, og býst við að dvelja
þar í vetur hjá börnum sínum
Mrs.. Bjarni Thorlacius og pórði
Laxdal.
Konur, sérstaklega meðlimir
Jóns Sigurðssonar félagsins, eru
émintar um að sækja vel “Shower’
sem haldin verður að heimili Mrs.
Thorp, 42 Purcell Ave„ næstkom-
andi laugardags kveld 'hinn 20. þ.
m. Tilgangurinn með “Shower”
þessum er sá, að safna saman
munum fyrir Bazar félagsins,
sem getið er um hér í blaðinu og
haldast á þann fjórða des. n. k.
Eins og kunnugt er, verður öllum
ágóðanum varið til útgáfu Minn-
ingarritsins um íslenzku hermenn-
ina, og er þess því að vænta, að
allir leggji lið sitt fram, málinu
til stuðnings.
Sú frétt barst hingað norður í
síðustu viku, að séra Runólfur
Féldsted, sem tekið hafði að sér
prófessors stöðu við Simpson
College í Indianola í Iowa í
Bandaríkjunum lægi veikur, en
þegar blað vort er að fara í press-
una bárust þær gleðifregnir í
bréfi, er hann hefir sjálfur ritað,
að hann «é á góðum batavegi.
Glaðar stundir í Piney, Man.,
31. október 1920
Frú C. B. Johnson frá Argyle
hefir verið hér í bænum undan-
farna daga, að heilsa upp á vini
og kunningja.
Mr. A. fsfeld frá Winnipeg
Beach, kom til borgarinnar
snöggva ferð fyrri part vikunnar.
Jóhannes bóndi Sveinsson og
frú hans, frá Arnaud Man. voru á
ferð í bænum í vikunni sem leið.
Mr. og Mrs. Björn Hallson, sem
dvalið hafa undanfarin ár í St.
James, lögðu af stað ásamt tveim
dætrum sinum til San. Franzisco
síðastliðinn laugardag, þar sem
þau hafa ákveðið að setjast að
fyrst um sinn.
Mr. Vigfús porsteinsson frá
Lundar, Man„ sem verið hefir
um 'hríð undir læknishendi hér í
borginni, hvarf heimleiðis á laug-
ardaginn.
Mörgum munu þykja það góðar
fréttir, að kvæðabók Kristjáns N.
Júlíusar (K. N.) er nú nálþga
fullprentuð og er væntanleg á
bókamarkaðinn seint f þessum
mánuði, eða snemma í des. Bók-
in verður sérlega vönduð að öllum
ytri frágangi, en um innihald
bókarinnar er ekki tími að tala
hér, menn vita að þeir eiga von á
góðri skemtun, og við það megum
v'ér bæta list á háu stigi.
Bókin verður seld bæði bundin
og óbundin, en verð hennar verð-
ur auglýst síðar.
Bréf á skrifst ofu Lögbergs
eiga: Guðmundur E. Eyford, Jón
Jónsson Western St. (Victor?)
Winnipeg og Ásgeir Matthíasson
(Eggertsson).
Stúkan Skuld hefir ákveðið að
halda hlutaveltu 2. desember n.
k. Nánar auglýst síðar.
Kvenfélagið “Vonin” var frum-
kvöðull að gleðistundum þessum.
pað var að morgni þess 31. okt. að
Mr. G. Jóhannsson kom á heimili
okkar og sófcti okkur hjónin ásamt
börnunum og bauð okkur til mið-
dagsverðar. Fórum við svo öll
mð honum og neyttum þar ágætis
miðdagsverðar. Að honum lokn-
um var okkur tilkynt, að okkur
væri boðið í samkomuhús kvenfé-
lagsins að drekka kaffi þar með
nokkrum kunningjum, sem langaði
til að kveðja okkur, sökum þess að
við vorum að fara burt úr bygð-
inni. Urðum við sem náttúrlegt
var alveg forviða að heyra þessa
fregn. — Jæja, sögðu þau hjónin,
við verðum að flýta okkur. Svo
var keyrt með okkur þangað, og
var akandí fólk bæði á undan og
; eftir. pegar við komum að sam.
j komuhúsinu var þar margt fólk
| saman komið, já, flestallir íslend-
ingar þar í bygðinni, og sögðust
allir koma til að kveðja okkur.
Samt voru nokkrir, sem ekki gátu
komið, sem voru með í þessum fé-
iagsskap.
Við hjónin ásamt börnum okkar
viljum nú biðja Lögberg að flytja
l öllum þessum vinum okkar hlýj-
ustu vinakveðju, jneð beztu þökk-
um fyrir siðustu samfundi, líka
I f.vrir þann ljómandi fallega hlut
og peninga upphæð, sem okkur
i var gefið að skilnaði. Svo lengi
sem við lifum, munum við muna
j þessa stund.
I Svo viljum við einnig nefna
Iþau hjónin, Mr. og Mrs. Ander-
1 aon, sem ekki gátu verið viðstödd
vegna þess að þau ætluðu að ferð-
ast burt fyrir tíma, en þau buðu
okkur til kvöldverðar og að skiln-
aði gáfu þau okkur $10 og báðu
i okkur að kaupa einhvern hlut til
ifflinja um sig, og ætlum við að
gjöra það. — Einnig viljum við
senda Mrs. Davidson okkar inni-
legustu þakkir fyrir hennar fram
úr skarandi framkomu í þessu
efni, sem öllu öðru frá því fyrst
að við kyntumst henni. — Nú er-
um við komin á okkar nýja heimili
og líður öllum vel, en ekki getum
við enn sagt hvernig það muni
ganga. Við vonm bara alt það
bezta.
Mr. og Mrs. Olafson.
419 Waughan Ave. Selkirk, Man.
uós
ÁBYGGILEG
—og-------AFLGJAFI
W
ONOERLAN
THEATRE
Vér ábyrgjumst yður varanlega og óslitna
ÞJONUSTU
TRADC MARK, RCGISTCRED
Athugið þetta
pláss í nœstu
viku.
)
i
í Vér æskjum virðingarfylst viðskifta jafnt fyrri VERK-
j SMIÐJUR sem HEIMILI. Tals. Main 9580. C0NTRACT
j DEPT. Umboðsmaður vor er reiðubúnn að finna yður að
j máliog gefa yður kostnaðaráællun.
Wiimipeg ElectricRailway Co.
Miðvikudag og Fimtudag
“The Perfect LoveF’
Eugiene 0’Brien
and HERBERT RAWLINSON
“The Kalva Ruby”
Föstndag og Laugardag
“The Miracle of Money”
a Hobart Henry Production
with an All-Star Cast.
Mánudag og priíjudag
May Ailison
j jT) • \ það blaðið sem er
i DOrglO ódýrast, stærst og
| bezt, L Ö G B E R G
Vikulokasala
Fáheyrð kjörkaup
SILKI HÁLSBINDI
Vanaverð $1. Niðursett 75c.
UNGLINGA VETRARHÚF-
UR, stærðir 6J/o til 6%
Vanav. $1.50. Niðursett 95c.
Afbragðs PEYSUR
Vanav. $7.50. Niðursett $5.50
Fádæma úrval af
ódýrum, en vönduðum
Vetrar Yfirfrökkum
White & Manahan,
Limited
500 Main St., Winnipeg
Skemtisamkoma verður haldin
í Skjaldborg á þriðjudagskvöldið
þann 23. þ. m„ byrjar kl. 8 e. h„
undir umsjón djáknanefndarinn-
ar, skemtun ma-rgbreytt og vönd-
uð. Veitingar á eftir.
Mr. Sveinn Thompson, aktýgja-
smiður frá Selkirk, var á ferð hér
í bænum í þessari viku.
SKEMTISKRÁ
Á djáknasamkomu 23. þ. m. í “Skjaldborg”.
1. Ávarp forseta. R. R.
2. Fíolin solo, A. Furney.
3. Ræða, Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
4. Piano solo, Miss. Ilelga Pálsson
5. Einsöngur, Mr. P. Pálmason
6. Framsögn, Mr. Friðrik (xuðmundsson
7. Einsöngur Miss. Fríða Jóhannsson
8. Afmælisdagur Önuu, 7 unglingar
9. Fíolín spil, Mr. A. Furney og 4 drengir
Veitingar. Aðgangur 35 cent.
God save the King og Eldgamla Isafold.
Lethbridge Imperial
DrurViheller Monarch
Pembina Peerless
íVlbei'ta’.s Kinest Domegtlc Fuel
CITY COAL COMPANY
(’o\itj)i;hatiox lu-’e huilding
Phones: N 723i1—A 2083
Jóli n í nánd
iiiitiiUHiiitiiuniiiiiiiiiitiiniiifliniifliiHiiiiiiHiiiiiitiio1'
OG þá fer fólk að hugsa til jólagjafanna, og í sambandi
við það viljum vér benda fólki á, að jafnframt því
sem vér bindum bækur í skrautband, þá einnig gerum
vér alt sem gyllingu viðkemur, t.d. setjum gylta stafi og
nöfn á bækur, handveski, peningabuddur, nótnabóka-
hylki, töskur eða hvernannan leðurvarning er fólkkynni
að kaupa ti! gjafa um jólin. Finnið oss að máli.
Œf)t Columbta $reöö Htb.
BÓKBANDSDEILDIN
William & Sherbrooke. Tals. N6327-8
Vörubirgðir sem ekki komu
í tœka tíð.
Mikið Af úrvals fataefnum, skozkum Tweeds, Worsteds
og Saxonie, sem áttu að vera hingað komin 1918, eru nú
að lokum fyrir hendi á vinnustofu vorri.
Eg bý til föt eftir máli úr Tweeds fyrir
$50.00 til $60.00 ................
en Worsted og Saxonie fatnaði fyrir
$60.00 til $70.00 hvern, og er þar inni-
falinn skattur til stjórnarinnar.
Eg hefi ekki mikið fyrirliggjandi af þessum tegundum,
svo þér ættuð að líta inn sem fyrst.
öll föt handsaumuð á vinnustofunni.
H. GUNN, K!œífsku''ðar!naður
277 GARRY STREET
SUNNAN VIÐ PORTAGE AVENUE
Phone A 6449
Sína Thompson hjúkrunarkona, (
jdóttir Mr. og Mrs. Sv. Thompson
í Selkirk, er hér hefir verið mörg
ár hjúkrunarkona við King George
sþítalann í Winnipeg, fór í vik-
unni sem leið suður til San Franc-
isco, þar sem ihún dvelur um tíma
unz hún fer til Hoholulu, þar sem
hún ætlar að stunda hjúkrunar-
störf framvegis. — önnur dóttir
þeirra hjóna, Guðrún, stundar nú
hjúkrunarstörf við King George
spítallann hér í borginni, og sú
þriðja, Ingibjörg, sem er heima
hjá foreldrum sínum sem stendur,
lasin, er líka að stunda hjúkrun-
arfræði.
Rúmgóð stofa með veggsvala
plássi og aðgangi að matreiðslu-
vél, er til leigu í Suite 12 Lanark
Block á Maryland street, rétt fyr-
ir sunnan Notre Dama Ave.
H j úkrunarkona
Mrs. Pálína Thordarson, sem
lært hefir yfirsetukonufræði, á
íslandi, og æfð við starfann í
mörg undanfarin ár, — er reiðu-
búin til að sinna hjúkrunarstarfi.
Talsími N. 7136— heimili no. 794
Victor Str. Winnipeg.
INOTID HIN FlXIiKO.MN'l
] VIi-C'ANADISKII FAUpEGA
SKIP TIl. OG FHA
I.lverpool, Glasgow, I.omlon
Soothhnmpton, Havre, Antwerp
Nolckur af skipum vorum:
Kmpress of Frmnce, 18.500 tons
Kmpress of líritain. 14,500 tons
Melita, 14,000 tons
Minneilosa, 14.000 tons
Metasama, 12,600 tons
Apply to .
Canadian Pacific Oeean Service
361 Main St.. WinnlpeK
ellegar
II. S. BARHAIi,
894 Sherbrooke St.
Gjafir
til Jóns Bjarnasonar skóla.
Kvennfél. Björk Lundar, $10,00
G. K. Breckmann Lundar
Man........................ $10,00
S. W. Melsted.
Gjaldkeri skólans.
Wonderland
Miðviku og fimtudaginn sýnir
Wonderland mynd, stórhrífandi
og mentandi um lífið í stórborg-
nokkurri í Bæheimi. Myndin heit-
ir “The Perfect Lover” og leikur
O’Brien aðalhlutverkið.
Föstu og laugardag verður
sýndur leikurinn “The Miracle of
Money” eftir Hoibart Henley, en
tvo fyrstu dagana í næstu viku
gefst almenningi kostur á að sjá
May Allison í leiknum “The Walk-
Off.”
KENNARA vantar fyrir ár við
Lone Spruce skóla, No. 1984. —
Kcnnari nefni mentastig og kaup
og kenslan byrji sem fyrst. —
James Johnson, sec.-treas.,
Amaranth, Man.
Fowler 0p4cal Co.
MMITKI)
(Áður Royal Optical Co.)
Hafa nú flutt sig að 340
Portage Ave. fimm húsum
ves,tan við Hargrave St.,
næst við Chicago Floral
Co. Ef eitthvað er að aug-
um yðar eða gleraugun í ó-
lagi, þá skuluð þér koma
beint til
Fowler Optical Co.
LIMITED
340 PORTAGE AYE.
SÉRSTAKT MATARŒÐI EI
LENGUR NAUÐSYNLEGT
Gamla aðferðin, sem notuS var við
magaveikt fðlk, að l&ta það ekki
borða nema einstöku mat, er nú eig-
lnlega niður lögð i flestu tilliti og
hlýtur enga sðrstaka náð I augum
nútíðar lækna. Enda er það nú við-
urkent, að of mikil sýruðiga 1 mag-
anum veldur flestum kvillum, sem I
sambandi við meltinguna standa. —
Meltingarfærin eru I eðli sínu heil-
brigð og sterk, en sýran truflar og
særir magahimnuna og veldur þvl
að lokum meltingarleysi og stýflu.
— Bezta meðalið við slíku er að taka
eina teskeið eða fjðrar töflur af BI-
surated Magnesia í heitu vatni, sem
nemur sýruðlguna begar brótt og
lætur siðan meltingarfærin vinna
með fullri reglu. — Bisurated Magn-
esia frest hjá öllum lyfsölum og\ ætti
fivalt að vera tekin fram yfir, þegar
um er að ræða magakvilla. mjðik. cit-
rates, carbonates eða oxides. fetta
rfið eiga sjúklingar að nota I þrjftr
vikur til að byrja með og munu þeir
fljðtt verða varlr áhrifanna til betra.
Rutheiiiian Booksellers aml Publ.
Co„ Ltd„ 850 Maln St„ Winnipeg.
BIFKEIÐAR “TIRES”
(loodyear og Dominion Tires ætlð
4 reiðum höndutn: Getum út-
vegað tivaða tegund senri
Þér þarfnist.
Aðgerðiim og “Vuleanlzlug” sér-
stakur gaumur gefinti.
Battery1 aðgerðir og blfreiðar til-
búnar til reynsiu. geymdar
og þvegnar.
A0TO T’IRE VCLCANIZING CO.
809 Cumberland Ave.
Tals. Garcy 2767. Oplð dag og nðtt
Phone: Garry 2616
JeDkinsShoeCo.
639 Notre Dame
Avenue
MRS. SWAINSON, að 696 Sar
gent ave. hefir ávalt fyrirliggj-
andi úrvalsbirgðir af nýtizku
kvenhöttum.— Hún er eina ísl.
konan sem slíka verzlun rekur í
Canada. Islendingar látið Mrs.
Swainson njóta viðskifta yðar.
Talsími Sher. 1407.
n
SPARID 35%
PLÓGUM YÐAR
Sérstök kjörkaup á þrí og fjór bottom Lacross plógum
Vér vorum svo hepnir að kaupa inn nokkuð af þessum
plógum við sama verði og átti sér stað fyrir stríðið, en síðan
hefir þó $100 verið bætt við verðið á hverjum plógi annars-
staðar. Vér sendum þá hvert sem vera skal jafnskjótt og
pöntun kemur í vorar hendur.
$285.00 fyrir fjór-bottom, en $200.00 fyrir þrí-bottom.
Sendið hraðskeyti eða hringið upp N 1387
TRACTIONEERS Ltd.
445 MAIN STREET
WINNIPEG.
TO YOU
WHO ARE CONSIDERING
A RUSINESS TRAINING
Your selection of a College is an important step for you.
The Success Business College of Winnipeg, is a strong
reliable school, highly recommended by the Public and re-
cognized by employers for its thoroúghness and efficiency.
The indvidual attention of our 30 expert instructors places
our graduates in the superior, preferred list. Write for
free prospectus. Enroll at any time, day or evening
classes.
The
SUCCESS
RUSINESS COLLEGE, Ltd.
EDMONTON BLOCK—OPPOSITE BOYD BUILDING
CORNER PORTAGE AND EDMONTON
WINNIPEG, MANITOBA