Lögberg - 02.12.1920, Síða 6

Lögberg - 02.12.1920, Síða 6
BU 8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2.DESEMBER 1920. Smásögur Eftir Slmlcspeare. III. Áðnr en þær lögðu af stað hafði Celia komist að þeirri niðurstöðu, að óviturlegt mundi vera að ferðast í skrautlegum klæðum. Þess vegna stakk hún upp á því að þær klæddust búningi sveitastúlkna. Rósalind kvað þó enn öruggara verða mundu ef önnur þeirra færi í karlmanns- föt- Félzt Celia þegar á uppústunguna, en með þvd að Itósahnd var nokkuð hærri vexti, varð það að ráði að hún skyldi á sig taka búning sveita- pilts; og skyldi þær segja öllum að þær væru systkini. Rósalind tók sér nafnið Ganymede, en Gelia nefndist Aliena. 1 dularklæðum þessum, með alt sitt skotsilf- ur og gimsteina að farareyri, lögðu prinsessurnar fögru upp í leiðangurinn mikla til Arden skógar- ins, sem lá langt fyrir utan lendur hertogans. Rósalind (eða Ganymede eins og hún nú nefndist), í ikarlmannsbúningnum einkennilega, sýndis liafa öðlast reglulegt karlmanns hug- rékki. Hin trygga vinátta, er Celia hafði sýnt, með því að yfirgiefa hirð föður síns og fylgja stallsystur sinni út á óvissu eyðimerkurinnar, 'kveykti í brjósti hins nýja bróður, Ganymede, enn sterkari löngun til að hughreysta og verja Alienu, sveitastúlkuna lundblíðu og ljúfu. Og þegar þær að lokum komu til Arden skógarins, mættu þær ekki lengur gestrisninni, er þeim hafði verið auðsýnd annarstaðar á hinni löngu för. Þær voru aðfram komnar af hungri og vissu heldur ekki hvar þær áttu höfði sínu að að halla. Ganymede, sem talað hafði kjark í systur sína að undanförnu með ljúfum og lífgandi orðum, varð nú að viðurkenna fyrir Celiu að hann væri orðin örmagna af þreytu, og gæti eigi annað, þótt það ef til vill kastaði skugga á hreysti-einkenni karlmanns-húningsins, en grátið eins og kona! Aliena kvað orku sína þrotna með öllu, en Gany- mede reyndi að telja sér trú um að það væri þó ávalt skylda mannsins, að hughreysta og verja hinn veikari og vanmáttugri, þess vegna safnaði hana saman kröftunum og lézt vera hvergi hræddur “Systir mín,” sagði hann. “Berðu þig eins vel og þu getur. För okkar er isenn á enda, við erum komin í Ai-den skóginn og náum til áfangastað- arins innan skamms.” En uppgerðar manndómur gat ekki bjargað > þeirn til lengdar, því þó þær væru að vísu komnar til Arden skógarins var fjarri því að þær hefðu tninstu hugmynd um hvar hertogann útlæga væri að finna. Þarna hefðu þær að líkindum soltið í hel, ef óvæntur atburður heíði eigi orðið þeim til bjargar. Meðan þær sátu í grasinu, úrvinda af þreytu, og vonlausar um hjálp, hittist svo á að hirðingi einn átti ferð um og gekk beint til þeirra. Ganymede reyndi að stæla karlmannsróm og niælti: “Hirðir, ef unt er að fá aðhlynning í eyðiskógi þessum fyrir ást og gull, þá vísaðu okk- ur í öhum hamingjubænum á einhvern þann stað, er við getum notið fæðu og hvíldar, systir mín er dauðþreytt og aðfram komin af hungri.” Maðurinn kvaðst að eins vera í þjónustu hjarðeigenda, að heimili húsbónda síns væri nm það leyti að verða selt, og þaðan því lítillar aðldynningar að vænta, en guðvelkomið væri þeim a3 fylgjast þangað með sér og njóta þess, sem í boði væri, ef þau vildu vera svo lítillát. Lögðu þau svo af stað með hinum ókunna hjarðgeymslu manni, en vissan um svona skjóta hjálp, fylti sálir þeirra nýju hugrekki- Keyptu þau svo bæði hús- ið og hjörðina af hjarðeiganda, en tóku hinn ó- kunna lífgjafa sinn í þjónustu sína. Húsið var einkar fallegt, þótt lítið væri að vísu, en gnægt góðra vista. Akváðu systkinin því að dvelja þar, unz fengið gætu vitneskju um í hverjum parti skógarins hertoginn útlægi hefðist við. Eftir að hafa notið góðrar hvíldar tóku ung- meyjamar dularkla>ddu að venjast svo vel hinum nýju lifnaðarháttum, að þeim fanst í raun og vern þær vera orðnar að hjarðsveini og hjarð- raey. Samt vaknaði sú hugsun hjá Ganyme, að einu sinni hefði hann þó verið sú hin sama Rósa- lind, er felt ihafði brennandi ástarhug til Or- laudo’s glímukappans unga, sem var sonur eins hine allra kærasta vinar föður hennar. Auðvit- að hugði Ganymede Orlando vera margar, marg- ar mílur í burtu, en honum óafvitandi með öllu, var hann nú einnig í Arden skóginum engu að síður. . Orlando var ýngsti sonur Sir Rowlands de Bois og hafði faðir hans rétt áður en hann dó, beðið elsta son sinn Oliver, að taka drenginn til fosturs og annast um uppeldi hans, samkvæmt venjum og göfgi ættarinnar. Oliver reyndist ó- verðugur þess trausts, sem faðirinn hafði borið íil hans, lét piltinn þræla heima, án þess að veita honum hið minsta tækifæri til skólamentunar. En hinir meðfæddu hæfileikar, sem Orlando hafði fengið í erfðir frá föður sínum, gerðu það að verkum, að þótt hann hefði farið á mis við ment- un og hlunnindi þau, sem henni eru samfara, bá bar framkoma hans vott um sanna göfugmensku og var eigi annað hægt að sjá, en hann hefði feng- íð hið ákjósanlegasta uppeldi. Oliver öfundaði bróður sinn svo mjög af kurteisi hans og snyrti- mensku, að hann að lokum afréð að koma honum fyrir kattarnöf. Til þess að hrrnda hermdai’verkinu í fram- kvæmd, kom hann því til leiðar að fólkið skoraði á ungmennið að glíma við heljarmenni það, er áður var um getið og lagt hafði margan gildan kappa að velli. Það var vegna hins illgjama bróður, að Or- lando hafði sagt við stúlkurnar áður, að hann óskaði sér dauða. En þegar vonir eldra bróðursins fuku út í veður og vind og Orlando gekk sigrandi af hólmi, varð fólska hans takmarkalaus með öllu og sór hann þess dýran eið að bera eld að kofanum, sem Orlando bjó í og brenna hann inni eins og mel- rakka í greni. Gamall maður sem verið hafði aldavinur Sir Rowlands og unni Orlando fyrir þá sök hve hann líktist föður sínum, hlýddi á ókvæð- isorð Olivers. Hinn aildni maður gekk í veg fyr- ir Orlando á heimleið hans frá hertogasetrinu og hrópaði til hans í ákafri geshræringu þessum orð- um: “Þú göfugi herra, minn ljúfi húsbóndi. Þú lifandi eftirmynd Sir Rowlands! Hví ert þú dygðugur, sterkur, hugprúður og hverja ánægju gazt þú haft af að yfirvinna hinn þjóðkunna glímukappa? Frægð þín hefir borist of snemma heim á undan þér.” Orlando vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið og spurði gamla manninn vingjamlega hvað all- ur slíkur orðastraumur táknaði. Sagði hið aldna góðmenni honum þá hvernig í öllu lægi, hve bróðir hans væri hamslaus af öfund eftir hann frétti um glímuúrslitin og viðtökumar, sem hann hafði fengið hjá hertoganum, og hefði fólska hans magnast við það svo mjög, að hann hefði ákveðið að brenna hann inni næstu nótt. Bað gamli mað- urinn Orlando því að flýja á brott hið bráðasta og forða lífi sínu. Adam, svo hét gamli maðurinn, vissi að Orlando átti ekki grænan túskilding til í eigu sinni og tók því upp sjóð einn allgildan og sagði: “Hér hefi eg fimm hundmð krónur, sem eg dró saman af kaupi mínu á þeim áram, er eg þjónaði þínum ástkæra föður og ætlaði að geyma til elliáranna, er eg mætti eigi lengur afla mér daglegs brauðs. Þigg nú sjóð þenna. Sá, sem fæðir fuglana mun sjá mér borgið. Peningar þessir eru í skíra gulli, þeir em nú þín eign; leyf mér að gerast þjónn þinn. Þótt eg sé nú farinn að gerast gamlaður og hrukkóttur í framan, þykir mér líklegt að af starfi mínu megir þú eigi minna gagn hljóta, en þeirra sam yngri eru, þegar mikið liggur við.” “Góði gamli maður,” sagði Orlando frá sér numinn. “Alt það göfugasta í þjónustusemi for- tíðarinnar, kemur fram- hjá þér. Þú ert enginn tizkuskuggi yfirstandandi tíma. Við skulum verða samferðamenn, og áður en spariskilding- amir frá æskudögum þínum em upp etnir, skal eg hafa fundið einhverja þá atvinnu, sem nægi okk- ur báðum til lífsframfærslu. Framh. --------o-------- Henry Wadsworth Longfellow. Var fæddur 27. febrúar 1807, í bœnum Port- land í ríkinu Maine í Bandaríkjunum. Foreldrar hans voru efnuð og stór ættuð, og naut Longfellow því allrar umönnunar sem ástríkir foreldrar og efni þeirra gátu veitt. Æsku ár Longfellows, vora sérstaklega un- aðsrík, hann átti eins og sagt hefir verið ágæta foreldra, gott heimili og allsnægtir, en þetta átti að eins sinn þátt í æskugleði hins unga Long- fellow, það var þó npplag hans sem mest réð í þeim efnum. Hann var síglaður í viðmóti þegar í æsku, aldrei óánægður, og svo blíður í lund að hann þíddi kuldann úr hjörtum þeirra sem umgengust hann. Snemma hneigðist Longfellow til bóka, og var eirikennilegt að sjá þegar í byrjun mismuninn á honum að því er bokaval snerti, og Öðmm ungl- ingum á hans aldri. Það fyrsta sem Longfellow leitaði að í bóka- skápnum vora Ijóðabækur, einkum Ijóð ensku skáldanna, þau las hann, og lærði sumar ensku Ijóðabækuraar spjaldanna í milli. Af öðram bókum hélt hann mest upp á Sketch Book Washington Irvings, með hana gat hann isetið dag eftir dag, og marglesið án þess að þreytast. Þegar Longfellow fór að ganga í skóla komu (fram lærdómsgáfur hans. Hann var ágætur námsmaður, og gat sér svo góðan orðstír við há- skók þann sem hann las við, (Bowdoin háskól- ann í Branswick Maine) að umsjónarmenn þess skóla, buðu honum kennarastöðu í tunguimálum við skólann, ef hann vildi fara til Europu og full- komna sig í þeim útlendu málum sem um var að ræða. Þessu boði tók Longfellow, og fór til jEurou árið 1826. Hann fór fvrst til Frakklands, síðan til Gpánar og loks til Þýzkalands, og full- komnaði sig í tungumálum þeira þjóða. Eftir þriggja ára dvöl í Europu, hélt Long- fellow aftur heim til sín, og gjörðist tungumála- kennari við Bowdoin háskólann í Maine, og hélt þeirri stöðu með miklum orðstír í sjö ár. Árið 1831 giftist Longfellow stúlku sem Miss Potter hét, en hann naut ekki samvistar hennar lengi, því hún dó 1835, og minnist skáldið hennar í hinu gullfallega kvæði sínu “The Footsteps of Angles” (spor engilsins), sem hver einasti ung- lingur ætti að lesa- Bftir sjö ára dvöl við Bowdoin háskólann, var Longfellow boðin staða við Harward há- skóiann, átti liann að kenna þar sömu námsgrein- amar og hann kendi við Bowdoin, og tók hann þvx boði. Longfellow byrjaði að yrkja ljóð á námsárum sínum, en lítið kom út á prent eftir hann, að eins nokkur kvæði í United States Litterary Gazette. Fyrsta ljóðabók hans “The Voiees of the Night” kom út eftir að hann hafði verið tvö ár kennari við Harward. Það sama ár gaf hann út skáld- sögu sem beitir Hyperion. Árið 1824, gaf hann út annað bindi af Ijóðum “Ballads and Other Poems”, í því hefti var hið nafnfræga kvæði hans “The Wreck of the Hes- peras.” Árið 1843, giftist Longfellow aftur, Frances Appleton frá Boston, mjög vel mentaðri og á- gætri konu, og er sagt að hún sé söguhetjan í l>ók hans Hyperion. Mjög fór vel á með þeim hjónum og eignuðust þau fimm böm. En samfarir þeirra voru heldur ekki langar að eins 18 ár, og varð Longfellow þá fyrir því ægilega Hfsböli að missa hana í eldsvoða. Þetta sára aðkast fékk mikið á Longifellow °g ýarð honum lífið þungt, bæði sökum missins og eins var þá heilsan farin að bila, því hann var aldrei sterkbygður. En hann bar isig mjög vel og á kveldi æfi sinnar, þegar hár hans var orðið hvítt sem snjór, hélt hann áfram að vera rólegur og blíður eins og hann hafði verið, alla sína æfi. Hann dó í Chambridge Massachusetts 24. marz 1882. Lyndiseinkennum Longfellows er bezt lýst í kvæðum hans, sem undantekningarlaust era við- kvæm og hljómþýð. Af stærri kvæðum hans, era “Hiawatha” hið angurbMða og undur fallega Indíána kvæði og “Evangeline“ um útlegð Frakka frá Acadia bezt þekt. En af hinum styttri, telja margir, “The Village Blacksmith” með þeim beztu. Arið 1884, var brjóst standmynd af Long- fellow reist í reit þeim er beztu skáldum Breta er lielgaður í Westminster Abbey í Lundúnum til virðingar og minningar um einn þann ljóðhagasta mann sem á meðal enskumælandi þjóða hefir lif- að. Hér fylgir kvæðið Lífshvöt eftir Longfellow, í íslenzkri þýðingu eftir séra Matthías Jochums- son. --------o------- Lífshvöt. The Psalm of Life• Eftir Longfellow. -----o—------ Syng ei þetta sorgarefni, seg ei lífið tóman draum, vek þú dauða sál af svefni, sjóar-villum gef ei taum. Líf er vaka, gimsteinn gæða, guði vígt en eigi mold; aldrei sagði sjóli hæða: “sálin verði duft sem hold!” Hvorki lán né hrygðar-hagur heitir takmark Mfs um skeið, heldur það, að hver einn dagur hrifi’ oss lengra fram á íeið. Fleyg er tíð, en lengi lærist, lífæð vor er hermanns spil, bumbu-slögum ihjartað hrærist, hringir manni grafar til. Líf er nauðsyn, lát þig hvetja, líkst’ ei gauði, berstu djarft, vert’ ei sauður, heldur hetja, hníg ei dauður fyr en þarft! Treyst ei feigur framtíð þinni, fortíð eiga lát sinn val; hönd Guðs hneig, og haf í minni: henda fleyga nútíð skal. Allir miklir menn oss sýna, manndóms tign er unt að ná, og eiga þegar árin dvína ieftir spor við tímans sjá. — Spor sem viltum vegfaranda vísa braut um eyðisand, og sem frelsa frá að stranda farmann þann, sem berst, á land. Fram að starfa! fram til þarfa! flýjum aldrei skyldu-braut! Vinnum meira! verkum fleira! vinnum eins þó löng sé þraut! ---------o-------- Lögregludómari sem er dýravinur. 1 ensku vikublaði er sagt frá því, að æðsti lögreglustjórinn í N. York hafi ekki alls fyrir löngu látið festa upp í öllum hesthúsum borg- arinnar auglýsing með fyrirsögninni “Bæn hests- ins,” sem hljóðar svo: “Til þín, herra minn og húsbóndi, kem eg með bæn mína. Gefðu mér fóður, og vatnaðu mér, þegar eg er þyrstur, og láttu mér í té, þegar erviði og striti dagsins er lokið, húsaskjól í þokkalegu hesthúsi. Talaðu við mig, því málrómur þinn örfar mig betur, heldur en taumhald og svipuhögg, og kendu mer að vinna af fúsum vilja og með sannri á- nægju. Sláðu ekki í mig, þegar vegurinn er upp í móti, og kiptu ekki of fast í taumama. Þó eg skilji þig ekki þegar í stað, þrífðu þá ekki óðara svipuna, gáðu heldur að, hvort taum- amir eru ekki í ólagi, og gaktu úr skugga um, hvort skeifan meiðir mig ekki, eða nagli liggur of nærri mér. Eti eg ekki fóðrið mitt, þá áttu að aðgæta í mér tennurnar, og stífðu ekki af mér taglið, því það er eina verjan mín á móti flugunum, sem kvelja mig svo og þjá. Gg þegar eg svo einn góðan veðurdag er orðin gamall og farinn, láttu mig þá ekki drepast úr hor, en dæmdu mig sjálfur og sláðu mig af, svo eg deyi þjáningalaust. Að lokum bið eg þig að fyrirgefa mér, að eg beini þessari bæn til þín í nafni þess, sem fæddist í peningshúsi. ” Það er sagt svo, að þessi bænaskrá hafi á- orkað meiru, en nokkurt lagaboð hefir hingað til komið til leiðar: Bæði ökumenn og hestasveinar hafa síðan sýnt hestum sínum miklu meiri nær- gætni en áður. Magnús Steplienseu —Dýravinurinn -----------------o-------- Grafskriftin• 1 kirkjugarði einum er gröf, er geymir síð- ustu leyfar ungrar og góðrar stúlku. 1 hvíta steininn, sem stendur á leiðinu, eru greypt eftirfarandi orð: —“Hér hvílir ung stúlka.— Leiksystkini hennar gáfu henni þenna vitnisburð: Yið átt- um hægra með að vera góð, þegar hún var hjá okkur.” Þetta er yndisleg grafskrift, og skiljanlegt er, að stúlkan hafi notið ástúðar og samfélags frelsara síns. Hugsaðu um það, liver áhrif þxí hefir á vini þína og félaga. Verða þeir betri og ástúðlegri við það, að vera með þér? Eða vekur þú illar tilhneigingar hjá þeim? Freistar þú þeirra til syndar? Mörg börn sem góð hafa verið að upplagi, hafa leiðst út í synd við það, að vera með slæmum félögum- Hvemig verður grafskriftin yfir þér? -------------------o--------- o fðu vina. (Vöggukvæði til litlu Gerðu H. Narfason fyr- ir hönd mömmu hennar). Kúrðu, sofðu kæra vina — komið sólarlag þreyttar guði þökkum fyrir þenna liðna dag. Sólar bjartir — sendiboðar sjálfum drotni frá — geslar mála rauðan roða rósakinnar á. Ástar-þíður aftanblærinn andar þér á brá, og veldur því, að ljósir lokkar leika til og frá. Svefns á vængjum svífðu vina, æ, sofna fyrir mig, í ljósum klæðum litlir englar, líða kringum þig. Þú ert sofnuð, sé eg glitra isamt, í auga tár yfir þinni vöggu veifi vængjum engill smár. 4. okt 1920. A. E. ísfeld

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.