Lögberg - 31.03.1921, Side 1
SPEIRS-PARNELL BAKINGCO.
áLyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta vtrð sem verið
getur. R E Y N IÐ Þ AÐI
TALSlMI: Garry 2346 - WINNIPEG
Það er til myndasmiður
í borginni
W. W. ROBSON
490 Main St. - Garry 1320
34. ARGANC.UR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 31. MARZ 1921
NUMER 13
Helztu Viðburðir
Síðustu Viku
Canada.
Nýlega eru látnir 'þrír merkir
Winnipeg ‘borgarar, er um langan
aldur höfðu látið mikið trl sín
taka á sviði iðnaðar og viðskifta.
Menn þessir eru þeir Geo. F. Step-
"hens, stofnandi og forseti mál-
vörufélagsins nafnkunna; George
Bayne, aðalumsljónarmaður með
landeignum Hudsons Bay félagsins
og Augustuslh B. Sfcovel, meðeig-
andi í Stoyel prentfólaginu hér í
borginni, en ibróðir Jolhn Stovels,
■þingmanns í Manitobaþinginu fyr-
ir Winnipeg
Samibands þingið er nýtekið til
starfa eftir páskafríið, og ber þar
fátt til tíðinda, er lí frásögur sé
færandi. Gert er ráð fyrir að
Sir Henry Drayton fjármálaráð-
gjafi muni Ieggja fram fjárlaga-
bálkinn í byrjun naesta mánaðar,
og gera (þinginu reikningskap ráðs-
mensku sinnar. Fáir munu öf-
unda ráðigjafann af starfa þeim,
því að þ\1í er kunnugir mæla er
búist við stórkostlegum tekjúhalla,
sem örðugt muni verða að mæta.
Og þegar svo þar við bætist járn-
brautamála farganið, það er að
segja hi'Ó feykiilega tap Canadian
National brautanna, þá verður
ekki séð i fljótu ibragði ihvernig
farið skuli að við að fylla stjórn-
ar'bítina. Ymsir telja vafasamt
hvort stjórnin muni lifa það af
að koma fjárlögunum gegnum
íþingið og vúst er um það, að æði
erfitt mun Jiún eiga uppdrátítar í
iþví tiliti. pó munu fremur lik-
ur á að henni takist að lafa út tíma-
(bilið, enda neytir bún till þess allra
ráða, sem hugsanleg eru.
Frá Manitotba'fyllkinu, er einnig
fréttáfátft. pað þing einnig ný-
tekið til starfa eftir bátíðina. Fjár-
lögin lliggja þar nú til umræðu og
(hafa flestir útgjaldaliðir, þeir er
til atkvæðagreiðslu ihafa komið,
verið samþýktir ðbreyttir, eins og
stjórnin lagði þá fram. J. T.
Haig, forsprakki afturlhalds sjö-
menninganna, er stöðugt að reyna
að narta í stjórnina, en lítið hefir
íhonum unnist á til þessa, flestar
upptástungur Ihans orðið bonum til
binnar mestu hugar ihrel'lingar,
verið skornar niður hl'ífðarfaust.
Síðastliðkin mánudag bar Mr. Ha-
ig fram breytingartiliögu við
•fjáHlögin, er fal ií sér ávítun til
Norrisstjórnarinnar fyrir það, að
ihún Ihéldi reikningum símakerf-
isins, Manitoba Goverment Tele-
þhones, aðskildum frá fjárlaga-
'bálknum. Norris, stjórnarfor-
maöur og ráögjafar hans töldu til-
lögu þessa vera beina vantrausts-
yfirlýsingu á hendur stjórninni, er
til þess eins miðaði að koma stjórn-
inni frlá vðldum. Allmikið þjark
varð' um uppástunguna, en er til
atkvæðagreiðslunnar kpm fóru
svo leikar, að uppástungan var
feld með 31 afckvæði gegn 6, Alls
eru 7 menn í afturballdsflokknum
á þingi svo Mr. Haig hefir ekki
einu sinni verið þess megnugur
að 'balda saman óskiftri sinni hjörð.
Bandaríkin
Harding forseti hefir kvatt þing-
ið isaman binn 11. apríl n. k..
Fregnir frá Wasbington telja
líklegt, að verndartoilla frumvarp
Fordneys, muni ekki ná fram að
ganga fyrst um sinn.
Frairukvæmdarstjóri Femsylvan-
iu j'árnbrautanna, befir gefið út
opin'bera tilkynning þess efnis að
laun állra -þeirra, er við brautirn-
ar vinna, jaifnt 'hærri sem lægri,
verði Jækkuð að mun.
Harding forseti Ihefir leitað á-
lits dóms og verkamlál'arláðuneyt-
isinis, í isamibandi við bænarskrá
frá slátrurum víðsvegar um land,
er fer fram á að núverandi kaup-
gjald verði ekki lækkað. Ófrétt er
enn um úrslitin.
Leon Crissinger, frá Marion 0-
hio, hefi.r verið 'skipaður umsjón-
armaður með peningaforða Banda-
ríkjaþjóðarinnar.
Ofsastormur geysaði yfir olíu-
héraðið í nánd við borgina Homer,
La, er varð mikilQa spella vald-
andi. Einn maður lét lifið, en
fjórir ihlutu meiðsll. Eignatjónið
er metið upp á 'hlálfa miljón dala.
Svertingi nokkur í Springfield,
Ohio, sikaut nýlega til bana lög-
negluþjón. út af tiltæki þassu
hlaúzt uppþot svo mikið, að stjórn-
in varð að kalla út iherlið til þeSs
að skakka ileikinn.
Ríkisritaradeild Ðandaríkj'anna
hefir tilkynt opinlberlega, <að
Bandaníkjaherinn í R/ínarhéruðun-
um taki engan þátt í fcoQTíheimtu
þeirri, sem Bretar og Frakkar
láti þar fara fram um þessar
mundir.
New Yonk Centra-1 járnbrautar-
félögin, er hafa á þjónustu sinni
4,350 sýsilunarmenn, tilkynna
launalækkun, er nái jafnt til allra,
og ennfremur að lagðar verði nið-
ur með öllu átta skrifstofur yfir-
umsjónarmanna.
Mr. Frierson, Solicitor GeneraJ,
hefir nú lýst því yfir, að úrskurð-
ur fyrrum dóntómálaráðherra
Palmers, 'um að brugga megi
tálmunarlauist eins mikið af öli og
WhJsky til lækninga og vera vill,
skuli standa ólbaggaður, svo fram.
arlega að fjármálaráðuneytlð
krefjist ekki ibreytinga í þessu til-
liti.
Harding forseti, hefir sient út
nýja áis'korun til þjóðarinnar um
að leggja af mörkum alt það fé,
er almenningur frekast megi missa
til Ihjiálpar öllum þeim miljónum
fólks, er liggur fyrir dauðáns dyr-
um í Kína sökum vistaskorfcs.
Tallsmenn verkalýðls þess, er við
sláturhús og kjöts'ölu vinnur og
Iborið Ihöfðu sig upp við forsetann
yfir tilraunum þeim, er gerðar
'höfðu verið af hálfu vinnuveit-
enda í því skyni að lækka kaup,
bafa fallist á að mæta á fundi með'
Davis verkamiálaritara og öðrum
emlbættismönnum þeirrar stjórnar-
deildar og reyna Ihv-ort eigi megi
koma miðilun á deilum'álin.
Sagt er að ýmsar smávægilegar
breytingar muni koma fyrir sam.
bandsiþingið innan skams, að því
er viðvíkur kosningalögnum. Með-
al annars er þar gert ráð fyrir að
kjörstaðir skuli opnaðir vera klukk-
an átta að morgninum í staðinn
fyrir klukkan sex. '
Allmargar konur hafa nú tekið
sæti í miðstjórn frjálslynda flok'ks-
ins I Canada, samkvæmt fregnum
írá Ottawa.
Til borgarinnar Calais á Frakk-
lamdi kom, nýlega állstór farmur
af ijautáhúðum. Er tollþjónar
tóku að skoða húðirnar og flettu
þeim sundur, fundu þeir 1200 pott-
fiöskur af canadisku Whiskey.
Maður að nafni Louis Macinnery
frá St. Stephen, N. B., hefir verið
tekinn fastur og sakaður um að
Ltifa sent hressinguna í laumi til
bandaríkja hafna oig svo þaðan
til Frakklands.
Suasta októlber andaðist að
heimili dottur sinnar, Hólmfríðar
Gifflason, Gerald, P. o. Sask.,
fekkjan Guðrún Jónatansdófctir, 79
ara gömul. Banamein hennar
\ar eilli-lasleik.
Tveir ræðumenn fyrir hönd Non-
Partizan Legaue voru nýlega á
ferð í Kansas og reyndu að tala í
Barton sveitinni. En eigi höfðu
þeir fyr ihafið mális, en að þeim
sótti skríll, er þreif þá ofan af
ræðupallinum, eg tjargaði báða
mennina og fiðraði. Fyrrum
senator J. Ralph Burton, var við-
■staddur og fékk iheldur eigi að
mælla.
J. Oigden Armour, framkvæmd-
ars'tjóri Armaur og Co., hefir lýst
yfir því að félag sitt verði fram-
vegis rekið á samvinnu grund-
velli, þannig að verkamenn harfi
jöfn réttindi til móts við eigendur
að þvi er kaupgjald og vinnuskil-
yrði snertir, og fái einnig vissa
hlutdei'ld i ársarðinum.
Innflutningsstjóri W. W. Hus-
band, er lí þann veginn að gera
'heyrin kunnar uppástungur
nolkkrar, er hann kveður að komia
muni í veg fyrir að fólk þyrpist
úr sveitunum og inn ií ‘bæina.
Harding fouseti hefir útnefnt
Col. Jonathan D. Wainwrilht, frá
New York til aðstoðarritara í her-
málaráðuneytinu.
Landsikjálfta ihefir orðið vart
30 milur súðaustur af Terre Haute
í Indiama ríkinu.
á
Skipið Somme er nýkomið til
Bandarikjanna með 1,609 Mk Banda
ríkja hermanna, er felllu á Frakk-
landi í heims'ófriðinum mikla.
FulItrúar frlá átfcatíu þjóðrækn-
isstofnunum í Bandaríkj'unum
héldu nýlega þing í þeim tilgangi
að tooma á með isér nánari sam-
vinnu.
Fudltrúar Vlðsvegar að úr Banda-
ríkjunum, héldu fund á Biltmore
hótelinu ií New York fyrir stoömmu,
með það martkmið fyrir augum að
ihlutast tiT um að alþjóðar þakklæti
verði látið í ljós við Wilson fyr-
vrandi forseta.
---------o-------
Bretland
Verkfa'll í kollanámum á Bret-
landi vofir yifir en á ný, það sem
nú ber á milli námaeigendanna og
námamanna er, að nlámiaeigendur
vilja iláta jiafna sakir að þvlí er
kaup snertir í hverju námahéraða
út af fyrir sig, eftir þeim ástæð-
um sem þá eru fyrir hendi, en
rámamenn vilja láta eitt yfir öll
n'ámahéruðin ganga, krefjast að
hvaða samningar sem gerðir verða,
r.ái yfir aillan kolanámuiðnað á
Bretlandi. petta segja náma-
eigendur að sé óhugsandi. Bú-
ist er því við verkfalli nú upp úr
mánaðamótunum.
Nefnd hefir brezka þingið á-
kveðið til þe»s að atihuga innflutn-
ingsbann á nautpeningi till Bret-
lands. Ekki hafa mennirnir
verið nefndir, en víst er talið að
mennirnir sem þá nefnd skipa
muni a'lilir verða óiháðir lí iþví máli.
Sir John Findlay, stjórnarfor-
maður fdá Nýjia Sjlálandi, sagði í
ræðu er Ihann hélt í Lundúnum
nýlega, að í Nýja Sjálandi væru
menn að Ihverfa frá þeirri hugmynd
að heppilegt væri eða jafnvel
gjörlegt, að mynda alslberjar þin'g
fyrir ibrezka ríkið. Kvað fóilk vera
farið að efals’t um að hægt yrði að
vernda sjálfstæði nýlendanna með
því fyriiikomulagi, og menn væru
ófáanlegir tiil þess að ganga í
nokkurt samband, sem gæti á nokk-
urn hátt veikt það, þó þeir á hinn
bóginn vi'Idu vinna að Ih'efll og
framförum brezkp veldisins, sem
sjáltfstæður hluti innan þess.
Kaþólskir írar í Lundúnum sam-
þyktu á allsherjar fundi yfirlýs-
ingu, sem mótmælti ihirðisbréfi
Bourne ikardlínlála, eða þeim parti
þess, sem fordæmdi aðferðir Sinn
Fein manna á Irlandi. Yfirlýs-
ingin minnir Bourne kardínála á
að þó sumir kaþólikkar vilji fylgja
f.vrirskipunum kirkjunnar, að því
er til siðfræði og trúaratriða kem-
ur, þá verði engar skipanir kirkj-
unnar að því er veraldOeg máj
snertir teknar til greina.
Sir Henry Brittain, einn af þing-
mönnum Breta, sem undamfarandi
iefir verið að ferðast um pýzkaland
Austurríki og Zeoho-SIovakiu, er
nýkominn Iheim úr þeirri ferð og
lætur hann í ljósi þá fuQlvissu
8’na» að áður en langtum líði muní
P.ióðverjar niá sér aftur. “Eg
hefi farið um smábæina í Auistur-
Pi ússlandi, Bavariu og einnig um
stórfborgirnar, og Ihvar isem eg
kom’.,?at eg ekki annað en fullviss-
að sj’alfan mig um, ajð þessi þjóð
sem var svo voldug, eigi eftir að
verða enn voldugri en hún áður
var.
Sir James Craig, fjiármálaritari
flotadeildar Breta, sagði nýlega í
brezka þinginu að Bretar ættu 16
bryndreka sjófæra Og ti,l reiðu ef
á þyrfti að Ihalda, Frakkar ættu
fimm, Bandaiúkin sextán og Jap-
anar tólf. Hann sagði og að
Bretar ættu fjögur smærri her-
skip albúin, Japanar sex en Fratok-
ar og Bandadíkjamenn ættu eitt
hvor.
Á útflutningi frá írlandi og til
Bandaríkjanna ‘hefir borið undan-
farandi, og hafa ‘Sinn Fein leið-
togarnir tekið sig samam um að
htoppa hann, þeir Ihafa tilkynt um-
boðsmanni útflutninga i Listawell
héraðinu að ef hann innritaði menn
frá 16—40 ára aldurs til útflutn-
inga skyldi hann engu öðru fyr
týna en lífinu.
ókunugt fóik tók hús á leigu
sem staðið hafði aultt í Ferrestone
Road Hornsey á Englandi Og
flutti í það. í eldibúsinu setti það
matreiðslustó sina eins og siður
er tiil og aflaði sér toola til þesls að
elda við, en þegar að kolastykki
tók sig upp úr vélinni og þaut í
gegnum eldlhúsgluggan og mul-
braut hann, fór fóilíkinu ekki að
standa á sama og Ihélt að eitfchvert
sprengiefni hefði komist í kolin,
og henti því sem það 'hafði Mtið í
eldunarvélina, en það tók ekki
betra við, þegar það fylti hana
aftur, þá þuitu Ikolastykkin S mynd-
ir sem á veggjunum voru og aðra
muni sem í eldlhúsinu voru og
skemdi það. Henti það þá ödlum
kolunum út í garðinn fyrir utan
húsið, en þegar fóilkið var sofnað
nótitina eftir, vakftaði það við há-
vaða i stiga Ihúslsins og í gangi,
og fór að sjá 'hvað um væri að
•vera, sýndist því þá 'kOlastytokin
viera á ferðinni um gang hús'sins
og hoppa S stitganum. x Vitrum
mönnum og ilærðum var gjört að-
vart og beðnir að tooma Og ráða
gátuna, en það hefir ekki tekist
enn, þó ýmsir hafi reynt.
Bakari einn í Bromley Kent á
Englandi, réði unga istúlku til þese
að keyra út úr búð sinni á stríðs-
tímunumt. Að loknu stríðinu lét
bakarinn stúlkuna fara, en tóik í
hennar stað ihermann 'sem heim
kom úr stríðinu, ibdátit fór að bera
á óyndi í hestinum, hann fór að
hætta að eta og lagði af svo að
hætta varð við að brúka hann.
Hann Ihýmdi og Ihegndi niður höf-
uðið og vildi engann þýðaslt, og
snerti lhvo,rki fóður né vatn. Dýra-
læknar voru sóttir og gátu þeir
ekki séð að neitt gengi að ihonum.
Að síðustu var stúlkan sótt, ög
lifnaði þá yfir IhOnum sivo, að hann
reyndi að eta, en var svo aðfram
kominn að það hjálpaði honum
'eklki, heldur sprakik hjarta hans
af iharmi, út af þvlí að þurfa að
skilja við stúllkuna.
Singer saumavéla félagið, sem
er það stsestia í sinni röð i heimi,
'hefir að undanförnu að eins látið
vinna Ihálfan vinnulbíma við það
sem vanalegt er, eða áður var, nú
hefir það gert vinnufólki sínu til-
iboð, um að fana aftur að vinna
fu'Man tíma, með því móti að
vinnufólk félagsirts vilji sættia sig
við að kaupgjald þess verði sett
r.iður um 33 og einn þri'ðja %.
Vinnufólkið hefir enn ekki svarað
þessu tilboði.
í Rockdale héraðinu á Englandi
sátu hjón ei,n i.nni í 'húsi sínu kvöld
eitt og voru að lesa, eldur brann
glaðlega á arni í 'herlberginu og
þrjú börn ,siem þau áttu léku sér
?. gólfinu. Föður barn'anna 'hef-
ir vísit þótt iþaiu Ihafa of hátt því
hann ávítar þau og rak einu þeirra
utanundir, þessu reiddist móðirin
og sló annað þeirra kinnhest, en
föðurnum Tnislíkaði það svo mjög
að 'hann greip þrliðja harnið
kaistaði því í eldinn og mælti:
“Við rnættum eins vdl brenna
þetta.” Móðirin greip ibarnið úr
eíldinum eins fljótt og hún gat,
en ekki fyr en það var skaðskemt,
og kærði mann sinn fyrir tiltækið
og fékk hann sex mánaða fan'gelsi
fyrir.
I
Stúlka eln ung, sem iheima á í
Glamoxgansihire á Englandi,
veiktiist af 'brjóstveiki effcir jól í
vetur, og fór henni síhnignandi,
unz nú fyrir skömmu að fhún dó.
Var lítoið lagt til í stofu á 'heimili
foreldra hennar ,og þar lá það í
tvo daga. Á þriðja degi kom
grafariinn með kistu til þess að
láta líkið í, og fóru foreldrarnir
með hana og iljds inn í herbengið
sem líkið lá í og settu kistuna nið-
ur. en gengu með ljósið að Mk-
inu séttist þá stúlikan upp og
spurði hvar hún væri. pegar fað-
irinn sá það tók hann stúlkuna í
fang sér og bar hana inn í svefn-
herbergi móður sinnar, svo hún
yrði ekki vör við jarðarfarar við-
búnaðinn.
Miklar umræður og harðar, hafa
•crðið út úr aðflutningsbanni á
lifandi nautpeniingi frá Canada
til Bretlands nú undanfarandi, og
•hafa þær orðið svo ihvassar að
rnargir málsmefcandi ,mienn hafa
beinliínis sagt að, aðflutniinigsbann-
inu væri Ihaldið að eins til þess, að
halda uppi kjötiverði á Englandi
og fita kjöftsalla ilandsins og þá
isem nautarækt stunda,, á kostnað
fólks í borgum og bæjum.
Hon Manning Doherty landbún-
aðar ráðherra Ontario fylkis, sem
Ihefir verið yfir á Englandi undan-
farið, fullyrðir að aðflutnings-
'banniö verði afnumið að loknum
alríkis fundi, sem ákveðið er að
hald'a í júní n. k.
-------o------
Hvaðanœfa.
Her samherja 'hefir ákveðið að
taka til bráðalbirgða fleiri borgir í
Rínarlhéuðunuim, en getið var um í
síðasta Lögtoergii Enga mót-
spyrnu hafa pjóðverjar veitt til
þessa í nokkurri mynd.
Mælt er að Bols'hevikar á Rúss-
landi hafi ibælt niður uppréist þá,
er getið var um nýlega, náð aftur
halldi á virkjalborglnni Kronstadt
og látið taka af lífi alla þá herfor-
ingja, er við uppreistina voru
riðnir.
Orð leikur á að Japanar muni
vera að einhverju leyti i samvinnu
við andistæðinga Soviet sftjórnar-
innar í Sílberíu.
Islhii greiifi, sendilherra Japana
á Frakklandi, hefir tilkynt fram.
kvæmdarstjórn þjóðasamibandsins,
að þjóð sín geti ekki orðið við
ikröfu Bandadíkjastjórn'arinnar í
sambandi við umboð á Yapeynni,
en telur líklegt að einlhvér til-
slökun getii fengist að því er
sr.ertir rétt til sæsímanna, en út
af þeim risu kröfur Bandaríkjanna.
Mr. Borras, forseti í Panama,
mótmælir stranglega únskurði
White, dómara I ihæsta rétti Banda-
ríkjanna, aið þvlí er viðkemur
landam'erkjalínu miL’li Costa Rica
og Panama.
Allmargir verzlunar og iðn-
málaforingjiar í Tokyo, ihafa sent
áskorun til Hardinigs fors'eta og
senaltors Borah, þess efnis að þeir
beiti sér fyrir að ‘henbúnaður verði
takmarkaður eins og frekast sé
kostur.
George Clancy, iborgarstjóri i
Limerick á írlandi og Michael O.
Callalhan fyrverandi borgarstjóri,
báðir nafinkendir lýðvaldssinnar,
voru nýlega iskotnir til bana á
heimilum smum, af grímubúnu'm
mönnum.
Gerbyltúngamenn háfa gert hvert
uppþotið á fætur öðru í Florence,
og Pisa héruðunum. En sam-
kvæmt fregnum fr'á Miloon, hafa
óeirðirnar nú verið bældar niður.
Almenn atkvæðagreiðsla fór
fraim í Silesiu um það á sunnudag-
inn var, hvorti þjóð sú vildi heldur
vera í framtíðarsamlbandi við
pýzkaland eða Pólland. Atikvæða-
greiðslan féll þannig, að mikill
meiri hluti félst á sameiningu
við pýzkaland. — Með pjóðverjum
greiddu atfcvæði 713,000 manns,
gegn 460,000, er kjósa viidu sam-
‘band við Pólland. Silesia er
áfar auðug af nlámuim og er pjóð-
verjum því feykimikíll fjárhags-
styrkur að sigrinum.
Frá íslandi.
Böðvar Bjarican, fór landveg ti'l
Reykjvíkur með isiíðasta pósti.
Fyrir þingið í vetur verður lagt
fram frumvarp um fasteigna-
banka, sem ihann hefir starfað að.
Verður honum að sjálfsögðu falin
forstaða slíkrar bankadeildar
enda sennilega etoki um annan
færari mann að gera.. Akureyring.
ar sjá á bak góðum dreng og glögg-
ur.
Nýlega er látinn Sigurður Jóns-
son frá Reynistað í Skagafirði, fað-
ir Jóns aliþingkmannls á Reyni-
stað. Sömuleiðis er nýlega lát-
inn Markús Kristjánsison, Krauna-
stöðum í S.pingeyjarsýslu. Báðir
voru orðnir gamlir menn.
Minningarlhátíð um séra Matt-
hías Jochumsson, var ihaTdið síð-
asltiliðið laugardagskvöld í Nýja
Bíó. Fodseti Bótomentafólagsins,
Dr. Jón porkelsson, setti ihátíðina.
pá var sungið: “ó, guð vors lands,’
en þvf næst töluðu þeir prófessor-
arnir Eiríkur Briem og Sigurður
Nordal og Einar H. Kivaran stoáld,
og að lokum var sunginn sálmur.
Mikið þót'ti til ræðumanna koma
og söngurinn hátiíðlegur, undir
stjórn Sigfú'sar Einarssonar.
Sigurður Christopherson látinn.
Á sunnudaginn var, 27. Marz, lézt að heimili sínu í Cres-
cent, B. C., bænda öldungurinn Sigurður Christopherson, sem
um mörg ár bjó rausnarbúi í Argyle-bygð, Man. — Líkið verð-
ur flutt austur og jarðsett í grafreit Frelsis-safnaðar, í hinni
fornu sveit hins látna. Hans verður nánar getið síðar.
Nefndin sem ihér getost fyrir
töku auisturriskra barna hðlt funÖ
í fyrrakvöld og birti akýrsilu Jóns
Sveimbjörnssonar, er sendur hafði
verið til Vínarborgar að kynna
sér má'lið. Telur hann ékkert því
til fyrirstöðu, að ibörnin verði enn
send hingað. Nefndin skorar
á þá, sem Tofað hö.fðu að taka börn
Iþessi í fóstur, að segja tiil þess
fyrir annað kwld, hvort þeir væru
fúsir að veita ibörnunum viðtöku.
Búalst má við, að einlhverjir skor-
isti undan því, eins og nú standa
sakir, en iliklegt, að aðrir nýir gefi
sig fram í þeirra stað, ef nefndin
framlengir frestinn og skýrir mál-
ið á ný fyrir ibæjarbúum.
Berklaveikin er að verða einn
af okkar sikæðustu óvinum. Árlega
tekur hún fleiri eða færri, og það
fó'lk venjulega í tolláma lífsins.
Hlztu varnirnar gegn benni eru
heilsuhælin. pau gera tvent í
senn, að hj'álpa sýktum til heilsu
aftur og varna þvlí að Iheilbrigðir
sýkist. Hér á landi er að eins í
eitt hús að venda: ihcillsu'hælið
á Vifilstöðum. En að sækja
þangað er oft miklum erviðleikum
bundið, t. d. að vetrarlagi. Sjúkl-
ingar úr fjarlægum béruðum verða
oft að bíða vikum og mánuðum sam
an. Hve alvarlegar afleiðingar
sú bið eftir að toomast á hei'lsu-
hælið oft ihefir, um það 'hygg eg
ekki þurfi að fara mörgum orðum,
þar er flestum kunnuigt. Samband
norðlenskra kvenna ihefir því fyrir
notokru 'hafist handa til að vinna
að þvi, að reist verði hæli nyðra,
ogþegr safnað íþví skyni allmiklu
fé. Hér í Reykjavik hefir þessu
máli hingað til verið liftfll gaumur
gefinn, en nú hefir Bandalag
kvenna í Ihyggju að efna til s'kemt-
unar og renni ágóðinn af henni í
iberklahælissjóð ‘norðlenskra
kvenna. Vér efumst ekiki um, að
Reykvíkingar sýni þessu máli þá
góðvild að sækja iskemtunina og
leggja þannig Mtinn iskerf til þessa
nauðsynja fyrirtækis. M.
Síwstliðinn laugardag andaðist
Gunnar Jakob Jacobson á heimili
foreldra sinna Ihér í bænum.
Fann 'hafði l'engi 'legið sjúkur.
Síðastliðið Qaugardagskvöld datt
maður út af norðurgarinum hér
við Ihöfnina og druknaði. Hann
hét Guðmundur Salmonsson, frá
ísafirði, og var Iháseti á m. b. Kára
sem lá við norðurgarðinn, og var
maðurinn á leið úti bátinn er bann
druftonaði.
í fyrratovöld var aftakaveður á
ísafirði. Kom þar þá vélbátur
úr Hnifsdal, og þegar hann var í
sundunum utan við Tangann,
hvélfdi bonum fyrir vindkviðu, og
druknuðu þeir þrír sem á bonum
voru. Formaðurinn bét G*ð-
mundur Luðvig Guðmundistson, en
ófrétt um nöf hinna. Sama dag
druknuðu tveir menn í Álftafirði
við Djúp. peir voru og úr Hnifs-
dal, af véilbátnum Snarfara.
Frá Englandi ikom Leifur heppni
i gær en Ingólfur Arnarson í
morgun. Báðir fenigu mjög lítið
fyrir afla sinn og önnur iskrp ís-
lenzk, sem nú eru í Englandi, hafa
sélt fyrir sáraMtið.
Sex botnvörpskip, sem nýlega
eru bingað komin frá Englandi,
hætta öll veiðum að svo stöddu.
Atvinnuleysi eykst með hverjum
degi bér í íbænum.
í gær andaðiist Sigurður Jóns.
son, bókbindari, iá iheimili sinu
Lindargötu 1 B.
Landsverzlunin lækkar verð á
kdlum niður í 140 kr. torinið og
enn fremur verð á .steinolíu og
fleiri nauðsynjum, friá 1. marz, n.
komandi.
Um Ynglinga héldur Mattihías
fornmenjavörður pórðanson fyrir-
lestur á morgun kl. 3. stundvís-
lega, fyrir AlþýðufræðsQu Stú-
%
dentafélagsins í Nýja Bíó.
Sagnfræðingar hafa upp á síð-
kastið, tálið, að Ynglingasaga, er
Snorri Sturluson sétur framan
við sögur Noregskonunga í Heims-
kringlu, væri miður sannsöguleg.
Sagan er nm ihina fornu konunga-
ætt Svía og Norðmanna, frá dögum
Óðins fra má daga Haraldar hár-
fagra. Hafa sænskir fornfræð-
ingar nú á Isíðustu árum, með
rannsóknum sinum fært sönnur á,
að sagan muni að rnestu leyti sðnn
og að konungar iþeir, er hún fja.ll-
ar um, hafi lifað á þeim tiima, er
hún segir. Hafa ‘haugar kon-
unganna sumra fundist eftir sög-
unum bæði í Svíþjóð og Noregi.
Má búast við, að( þessi fyrirlest-
ur verði hinn fróðilegasti, og með
sama rétiti og vant er að hvetja
menn til að lesa rit ihins fræga
sagnritara vons, Snorra Sturlu-
sonar, mlá einnig ihvetja menn til
að toynna sér hinar merkilegu
rannsóknir nútíðarmanna þar að
lútandi.
Miklar líkur eru til þess, að
þýzkur ibotnvörpungur hafi nýlega
farist úti fyrir Landeyjum. Skamt
frá Miðey hefir rekið sittihvað
smávegis af innviðum skips, að
þv íer ætlað er, og einn björgunar-
hringur hefir fundist, merktur
Island, Ge (?), en svo heitir þýzk-
ur botnvörpungur frá Gestemunda.
— Mjög er ihætt við, að skip þetta
hafi farist með aillri áhöfn.
Nýja Iskipið Eimskipafélagsins
mun væntarilega hlaupa af stokk-
unum 15. marz næsttoomandi.
porkell Pálsson.
porkell Pálsson, fyrv. óðalabóndi
í Flatatungu í Skagafirði varð bráð
kvaddur að heimili sinu Viðivöllum
í Skagafirði 20. sept. s.l.; var hann
hálf níræður að aldri, er hann lézt.
porkell sál. var einn af mestu
myndar- og höfðingsbændum í
Skagaifirði á sinni tíð. Hann var
maður góðum gáfum gæddur og
karlmenni mikið. Var hann mikill
á velli og hinn fyrirmannlegasti
ásýndum. Hann var örlyndur og
I stuttu máli sagt höfðingi hinn
mesti.
Hann minti með mörgu á íslenzka
bændahöfðingja fyrrum: mikill
fyrir sér, eigi meðalmaður í neinu.
“Hið ytra var hrufótt og stórt og
grýtt.” En inni fyrir var til mikil
hlýja og drengskapur.
Börn porkels og konu hans Ingi-
bjargar Gísladóttur frá ÍTata-
tungu, Stefánssonar, er enn lifir,
eru: porkell cand. mag. og Páll \
verzlunarmaður, báðir í Reýkja-
vík, Pálína kaupkona á Akureyri,
Anna kona Sigurjóns Bergvinsson-
ar í Brown, Man., og látin er frú
Guðný kona 'Sigtryggs timbur-
meistara Jónssonar á Akureyri,
en móðir þeirra Espholins bræðra,
og Gísli látínn. S. B.
Boð
Dorkasfélagið býður öllum
Winnipeg íslendingum til kvöld-
skemtunar i samtoomusal Fyrstu
lút. kirkju á horninu á Sherbrooke
og Bannatyne Ave. fimtudags-
kvöTdið kemur, 1. apríl kl. 8. e. h.
Ágætar skemtanir og veitingar
verða þar á íboðstólum hjá ungu
stúlkunum. > Inngangur ekki
seldur, an samstoot verða tekinn.
Landar góðir, munið eftir að fé-
lag þetta er að líta eftir þörfum
nauðstaóds ifólks vor á meðal, og
fjölmennið á þetta iboð þeirra.