Lögberg - 02.03.1922, Side 4

Lögberg - 02.03.1922, Side 4
BU. 4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. MARZ 1922. Jögberg Gefið út hvem Fimtudag af The Col- umbia Preu, Ltd.,iCor. William Ave. & Sherbrook Str.. Winnipeg, Man. Talsimart N-6327 oÉ N-6328 Jón J. Bfldfell, Editor L/tináskrift til btaðsins: THE COIUMBIA PRESS, Ltd., Box 3)72. Winnipsg, Mat). Utanáskrift ritstjórans: EDiTOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, Man. The “Lögberg" is printed and published by The Columbla Press, Limited, in the Columbia Block, 853 to 867 Sherbrooke Street, Winnipeg, Manltoba. Ósannindi og illgirni. Sjálfsagt er að viðurkenna og meta, við- leitni allra manna til Iþess að bæta og færa á betri veg, það sem aflaga fer eða aflaga er, og það er á þann veg, og þann veg einn, að mönnum getur miðað áfram og uppávið. En það er jafn skvlt að fordæma og fyrirlíta, þeg- ar menn leggja sig fram til þess að sverta, illfrægja og afvegaleiða. ]>vá miður er til fjöldi fól'ks, sem virðist njóta sín bezt, vera næst sínu rétta eðli, þegar það getur látið sem mest af óhreinum, ljót- um og ósönnum hugsunum og orðum frá sér fara — orðum sem eru töluð í þeim eina til- gangi að afvegaleiða og blekkja. Mörg raunaleg dæmi um þenna löst mann- anna þekkjum vér, en vér minnumst ekki að hafa séð öllu ógeðslegri viðleitni í þá átt en fram kemur hjá ritstjóra, eða ritstjórum Heims'kringlu í grein er þeir nefna “Eftir hverju er að bíða?” og birtist í blaði þeirra 22. febrúar s. 1. 1 þéssari löngu grein eru ritstjórarnir að reyna að sýna fram á að Norrisstjórnin í Manitoba hafi unnið sér til óhelgi, að hún hvorki hafi, né heldur verðskuldi traust fylk- ishna og þeir telja upp átta staðhæfingar fyrir þessari staðhæfingu sinni. Ekkert er út á það að setja þótt vandað sé um við þá, sem með stjórnarvöldin fara þeg- ar ástæða er til þess, eða að þeir bregðast trausti því, sem þeim er trúað fyrir af kjós- endunum. Það er sjálfsagt og meira að segja skvlda þeirra, sem svo eru settir að þeim heri að vernda heill og heiður þjóðfé- iagsins, en það eru allir horgarar þjóðfélags- ins, eða ættu að vera. En það verður að vera gjört af einhverju ofurlitlu viti, til þess að það geti orðið að liði og það verður að vera ofurlítíll sannlei'ks eða sanngirnisneisti í því, til þess að það geti haft nokkur áhrif til góðs, eða sé samboðið heiðarlegum mönnum að láta frá sér fara. En ekkert af því er að finna í Heimskringlu greininni. Látum oss þá athnga ástæður ritstjór- anna. — 1. “Hún (Norrisstjórnin) situr við völd í trássi við kjósendurnar. ” Hvernig veit Heimskringla þetta?—Segj- um að Norrisstjórnin hefði sagt af sér þegar að hún fékk ekki ákveðinn meiri hluta við Jcosningarnar síðast og eins og hún ætlaði að gjöra og hefði gjört ef fylkisstjórinn hefði leyft það. Var þá nokkur sönnnn fyrir því að nokkur flokkurinn hefði náð því fylgi að hafa ákveðinn meiri hluta á þingi? Ef ekki, sem maður nokkurn veginn getur bygt upp á, eftir því sem hugarstefna fólks var um það levti, þá var-ekkert unnið, en stórfé sem kosn- ingar hafa æfinlega í för með sér kastað á glæ. Þetta sá fvlkisstjórinn og skildi, og þegar stjórnin bauð að leggja niður emhættið, neitaði hann að gefa henni samþykki sitt til nýrra kosninga og bað stjórnina að halda áfram. Það sem Heimskringla segir um þetta atriði, er því annað hvort bein vísvitandi ó- sannindi eða fáfræði í málinu, svo afskapleg að þeir vita ekki hvað þeir eru að fara með og er hvorttveggja jafn vítavert frá blaða- manna sjónarmiði. 2. “Hún heldur sér við völd með því að snapa sér fylgi, á þingi frá mönnum úr and- stæðinara flokki sínum.” Náttúrlega er ekki snefill af sannleika eða viti til í þessari ákæru. — En segjum að svo væri — segjum að hún væri alveg sönn, sem hún ekki er. Finst ritstjórum Heimskringlu virki- iega að það væri, eða sé ástæða til fordæming ar að einhverjir aðrir en hennar eigin flokks- menn vilja veita henni að málum? Til hvers finst Heims-kringlu að þessir ýmsu flokka!-, sem eru á þinginu í Manitoha séu ? Finst henni að hver og einn þeirra sé þar til þess að efla hag síns eigin flokks — fylgja fram öllum málum sem hag hans auka, en á móti öllum málum, sém að einhverju leyti fara í bága við hagsmuni flokks þoss, sem þessi eða hinn til hevrir. Eða finst henni að þeir og hver einstakur meðlimur þeirra hafi verið til þings kosnir og séu á þing komnir til þess að veita þeim málum fylgi, sem miða fylki og fylkisbúum til upphyggingar og blessunar, án tillits til þess, hvaða stjórnmálaflokkur það er, sem stendur á hak við þetta, eða hitt málið? Sannleikurinn í máli þessu er sá, að stjórn- in í Manitoba hefir ekki reynt til þess að snapa sér neitt fylgi hjá móstöðuflokkum sínum í þinginu, en hefir hoðið þeim byrginn og ávalt verið reiðubúinn að leggja niður völdin ef á hefði þurft að halda. En á meðal andstæðinga- flokkanna eru menn, sem af frjálsilm vilja hafa stutt hana af því þeir álitu, að slíkt væri fylk- inu í heild sinni og sjálfum þeim fyrir beztu. 3. Að forseti Manitoha þingsins hefti fram- gang þeirra uppástunga sem geti valdið stjórn- inni falli, þó hann láti samkyns tillögur sem ekki fela í sér neina hættu fyrir stjórnina, ná fram að ganga. Þetta telja- ritstjórarnir að heri vott nm himinhrópandi yfirgang og óréttlæti af hálfu Norrisstjómarinnar, sem er eins langt frá marki sannleikans eins og menn sem taldir eru að vera með öllu viti geta komist. Yið slík mál hefir stjórnin sem heild, efcki minstu vitund að gjöra. Það er mál, sem að eins snertir þíngmann þann sem hlut á að máli og þing- forsetann Eða með öðrum orðum, það er skilningur tveggja manna á þingsköpum, en þó einkum þingforsetans, því úrskurður hans í flestum tilfellum stendur óhaggaður — altaf nema þegar honum er áfrýjað til þingsins og að ösfcra eins og naut í flagi, þó hann hafi gefið öðruvísi úrskurð um það hvað þingsköpin séu, heldur en þeirra mönnum sem ekkert skyn bera á þá hluti, gott þykir, það ber vott um sálará- stand sem er í meira lagi hágborið. 4. “Hún rekur landsölubrall við vildarvini sína, sem virðist gert til þes^ að auðga þá á kostnað sveitanna og fylkisins.” Hér slær í meira lagi út í hjá ritstjórum. Heimskringlu, því Norrisstjórnin hefir ekki veHð í neinu landsölu hralli, hvorki við vini sína eða aðra, að vísu seidi hún eftir að hún ■kom til valda land sem nokkru nam til þriggja manna ’ í Bandaríkjunum og þegar þeir gátu ekki borgað tók hún landið til haka — alt nema 160 ekrur, sem kaupandinn hefir haldið uppi borgunum á. Hin löndin eru nú eign fylkisins og til sölu þegar kaupandi býðst. Landið, sem vinir Heimskr. í Manitobaþinginu og hún sjálf nú í þessari makalausu grein sinni eru að flagga með, var alt selt af fyrirrennurum stjórnarinn- ar og vinum Heimskringlu til vildarvúna Roh- lin stjórnarinnar og mest af því var selt á ár- unum 1902—3. 1 tólf ár verzluðu þessir vildarvinir Roh- lin stjórnarinnar — tólf veltiár, með þetta land, — seldu og stórgræddu, en notuðu féð sem þeir fengu fyrir landið, til þess að kaupa meira land af Roblin, en ekki til þess að borga fylkinu og þetta lét hann viðgangast í tólf ár, og svo við enda þess tímabils, þegar stríðið skall á, og erfiðleikarnir í verzlunarviðskiftum fóru að verða meiri, þá setur Roblin sjálfur á Morator- ium, til þess að vernda þessa menn og aðra, sem djarft höfðu teflt á tímum velgengninnar. 'Síðan hafa þessir menn komið árlega til Manitohastjórnarinnar og heðið um vægð með greiðslu á fé því, sem þeir hafa átt að greiða fylkinu, því þeir gátu hvorki selt land það sem þeir héldn sjálfir, né heldur innkallað vexti hjá þeim sem keypt höfðu af þeim, eða horgað skatta til sveitafélaganna, sem heimta áttu skatta af hinum seldu löndum. — Og synd Norrisstjórnarinnar liggur öll í því, að sýna þessum vildarvinum Ro'hlins og Heimskringlu vægð á tímum erfiðleikanna. Það er svo sem ekki að furða þó Heimskringla hríni! 5. “Að hag fylkisins sé að hera upp á sker, að þegar Roblinsstjómin hafi farið frá, þá hafi fylkisskuldin verið $25,000,000 en að hún sé nú $62,000,000, og að helmingurinn af þeirri skuld, sem er $31,000,000, sé óarðherandi. ” Eins og annað í þessar Heimskringlu grein eru þessar staðhæfingar blaðsins ósannar. Arð- herandi skuldir fylkisins, — það er skuldir sem fylkið þarf ekki að borga vexti á, eru $37,000,- (»00. En aftur á móti eru það 25,000,000, sem fylkið þarf að borga vexti á og liggja þeir pen- ingar aðallega í hyggingum fylkisins — bygg- ingum sem Rohlin stjórnin var byrjuð á og skildi við áður en þær voru fullgerðar og verð þeirra formlega komið inn í fylkisreikningana, og í akhrautum sem bygðar hafa verið í fylk- inu. — Og hvað miklum bríxlum sem Heims- kringla ber stjórnina, fyrir þær framkx-æmdir, þá getur hún aldrei til eilífðar sannfært hugs- andi menn um að þær framkvæmdir séu óþarf- ar, eða jafnvel að hægt hafi verið fyrir stjórn- ina að komast hjá þeim, eins og búið var að búa í pottinn þegar að hún tók við völdum. Heimskringla segir að hag Manitoba fylkis sé að 'bera upp á sker og er fróðegt að bera saman þann vitnisburð blaðsins við vitnisburð Babson hagfræðisstofunnar, sem er viðurkend um alt þetta land að vera sú ábyggilegasta serii til er, þegar um fjármál, eða f járhagslegt ástand er að ræða. Hagfræðisstofa þessi segir, að fjárhagslegt ástand Manitoba fylkis sé ekki að eins betra heldur en nokkurs annars fylkis í Canada, heldur sé það og betra en fjárhagslegt ástand nokkurs ríkis innan Bandaríkjanna, — Svo látum vér lesendurna ráða, upp úr hverju þeir leggja meira, því sem Bahson hagfræðis- stofan eða Heimskringla segir nm þessi mál. Þrjár fleiri ástæður telur Heimskringla upp, sem eiga að sanna hve eyðslusöm og óhæf Norriss.tjórnin sé, til þess að fara með stjórn- arvöldin í Manitoha, þar á meðal að stjórnin hafi ekki minst á atvinnulaust fólk í þingboð- skap sínum. — Með þessu orðatiltæki mun vera átt við hásætisræðuna. Það var leiðinlegt að Heimskringla skyldi ekki henda hlutaðeigandi valdsmönnum á það fyr, hvað standa ætti í há- sætisræðunni og hvað ekki. En Dixon hjálpaði upp á sakirnar eins og kunnugt er og kom því til leiðar að þingnefnd var sett í málið. Einn í þeirri nefnd var þingmaður frá Winniiæg, sem John Queen heitir, og sagði hann svo frá starfi sínu í þeirri nefnd á fjölmennum fundi á snnnu- dagskvöldið var: “Eg sýndi stjórninni fram á, hvernig að hægt væri að hagnýta $750,000, svo þessir menn gætu haft atvinnu í atvinnuleysinu. En þá var farið að tala nm skuldasúpu og skattabyrð- íir.” Hér snéri John Queen sér sérstaklega að tilheyrendum sínum, sem voru aðgllega þess- ir 'vinnulausu menn og svo annað vinnufólk, skerpti raustina og sagði: “Eins og það komi ykkur nokkuð við, þó skuldirnar vaxi og skattarnir þyngist, þið þurfið aldrei að borga þá.” — Tvær af ástæðum Heimskringlu eru enn ótaldar og nennum vér ekki að eltast við þær, Þær eru hvort sem er ekki á meiri rökum hygð- ar, né af meira viti fram settar, en þær sem taldar hafa verið. Oss þykir í sannleika fyr- ir því, að þurfa að eyða miklu rúmi í hlaðinu, til þess að mótmæla öðrum eins illgirnis þvætt- ingi eins og þessi Heimskringlu grein er, frá upphafi til enda og oss þyikir leiðinlegt að þurfa að eiga orðastað við menn sem hafa svo litla sómatilfinningu, að þeir hera aðra eins lok- leysu á borð fyrir lesendur sína, eins og þessi umrædda grein er — þykir leiðinlegt að á með- al Islendinga í Vesturheimi skuli finnast menn í opinberri stöðu sem láta fleka sig út í að láta annað eins frá sér fara á prenti—leiðinlegt, að þurfa að segja eins og einn af ritstjórum Lög- íbergs sagði einn sinni um ritstjóra Heims- kringlu, sem þá var: “Að maður sem hýðnr sér að bera annað eins og þetta á borð fyrir til- heyrendur sína, ætti ekki að eiga heima í mann- legu félagi, heldur ætti hann að vera út á slétt- um að bíta gras með öðrum dýrum.” Það er skylda bín að spara. Maðurinn með sparis jóðsreikninginn þarf ekki . að sýta út af framtíðinni. Sparnaður, sem einbeittur vilji stendur á bak við, er ánægjulegur vani og heilbrigður. Sparisjóðisdeild í öllum útibúum vorum Æ* THE ROYAL BANK ™ OFOANADA Borsraður höfuðstóll og viðlagasj. $40,000.000 Allar eignir ................$483,000,000 Bókafregn. Benedikt Gröndal: Gamansögur, sagan af Jleljarslóðar orustu og Þórðar saga Geirmunds- sonar; Bókaverzlun Ársæls Árnasonar, Revkja- vík, 1921. “Eg els'ka þig hljómandi hlátur, það er gullstöfum Ijómandi letrað hvert blað í lífssögu þess, sem var glaður og kátur.” Guðm. Guðmundsosn. Alþjóðastefnur. Grein sú er hér fer á eftir, er útdráttur úr ritgerð all-langri, er fyrir skömmu ibirtist í Saturday Evning Post. Stærilátir sjálfbyrgingar sitja alt af á stefnum, þegar einhver aðkoinandi þarf að ná af þeim tali. En framikvæmdarstjórar við stóriðnaðar fyrirtæki eða verzlanir, sitja daginn át og daginn inn við skrifborð sín, ávalt reiðu- húnir til þess að sinna gestum og tala um nýjar viðskiftaleiðir. Smámennið ver mestum hluta dagsins í ráðagerðir um það, hvernig hann eigi að fara að þvá að gera “business”, um leið og hinn mi'kli maður gengur hreint til verks og fær vilja sínum framgengt. Því skýrar sem maðurinn hugsar, því fleira, sem hann veit með vissu, þess sjaldnar situr hann á lokuðum fundum. Honum er það altaf ljóst, að á slíkum stefnum er árvalt að ihitta þvaðrara og þvergirðinga, sem drepa dýrmætan tíma. I>ví miður verða alþjóðamál eigi tekin til meðferðar öðru vísi, en á 'þjóðfulltrúa stefnum. Því fleiri menn sem slíkar stefnur sækja, þess minni verður vonin um verulegan árangur, — hœttara við að kafni í málæði. Alþjóða stefnur eru að verða æ tíðari og tíðari. Áður en Washington stefnunni sleit, hafði verið boðað til hennar í Cannes og hin þriðja er í aðsigi, sú er haldin skal innan skams í Genoa í þeim tilgangi að gera ráðstaf- anir í sambandi við fjárhags vandræði þau hin miklu, sem Norðurálfan á við að stríða. Allar þessar stefnur eru í rauninni til þess kvaddar saman, að fást ivið útrýmingu sama sjúkdómsins, þess sjúkdóms, er stríð nefnist. En hivers má svo vænta ? Það virðist ekki úr vegi að benda á, að hið l ina, sem Washington-stefnan kom til leiðar og verulegu máli skiftir, var takmörkun herskipa- smíða í tíu ár og niðurrif nokkurra gamalla herskipa, ásamt stöðvun á smíði ýmsra nýrra, er byrjað var að vinna við. En þegar til mála kom, að takmarka smíði neðansjávarháta og flug<véla, sem til manndrápa má nota, urðn sumir helztu varðmenn stríðsmusterisins óðir og uppvægir. Á því sviði mátti e'kki hrófla við neinu. 'Samt verður ekki með sanni sagt að Washington stefnan reyndist árangurslaus, því meginmál það, er hún tók til meðferðar — afvopnunarmýlið, verður héðan af aldrei svæft. Því verður haldið áfram án afláts, þar til yfir lýkur. — Mikið hefir verið um það talað, hvort Ame- ríka ætti e'kki að hlanpa undir bagga og lána Norðurálfuþjóðunum stórfé, í viðbót við eldri lán, í þeim tilgangi að hjálpa þeim ti þess að koma undir sig fótunum. Ýmsir leiðandi menn eru þessu hlyntir, en aðrir mótfallnir. Margir halda því fram, að fjárhags ástand Norðurálfunnar réttlæti ekki slíka lánveitingu. Það er ekki rétt. Ihúar Norðurálfu landanna, eru starfsamir yfirleitt og verðskulda fult traust. En foringjarnir sumir hverjir, eru ekki sem ákjósanlegastir, hernaður og her- frægð sýnist ávalt efst í huga þeirra. Eins lengi og Frakkar hafa 800,000 manna undir vopnum, ítalir 450,000, Pólland 450,000, Czecho Slóvakar 150,000 og þar fram eftir götunum, hlýtur Norðurálfan að skoðast fremur viðsjáll viðskiftavinur. Eins lengi og herflotar þjóð- anna, eftir Wsahington takmörkunina, eru stærri en þeir voru árið 1913, áður en hims- ófriðurinn síðasti hófst, þarf í raun og veru ekki við góðu að húast. Þess vegna mun það, að öllu athuguðu, bollara fyrir framtíð Banda- ríkjanna að sitja hjá og blanda sér sem allra minst inn í mál þeirra þjóða, er neitað hafa að la*ra af reynslunni. Þó er það síður en svo að Bandaríkja þjóðina skorti samhygð með þjóðum þeim austan haifsins, er hágast eiga og harðast hafa verið leiknar. Því til sönnunar nægir að henda á mannúðar og líknarstarfsemi hennar á Rússlandi og víðar. Að sjálfsögðu varðar það Aíneríku miklu, hvernig fram úr Norðurálfu málunum ræðst, en fullnaðarráðn- ing þeirra mála fæst aldrei, fyr en gagngerðu afnámi stríðstækja, hefir verið hrundið í fram- kvæmd. An þess', má húast við að næsta al- þjöðastefna, eða þá sú næst næsta, snúist upp í líkskoðunar-kviðdóm — Coroner’s jury. — Hláturinn er lækning margra meina og býr oft og einatt yfir voldugra afli til andlegra sóttvarna, en heilar postillur gyltar í sniðum. Islenzkt þjóðKf ihefir stundum verið helztí dapurt og einmanalegt, heimilin víða auðngri af gnátklökkvi en hlátri. Ljóðin hafa oft ver- ið þrungin af bölsýni, stundum jafnvel hein vantraustsyfirlýsing á lífinu sjálfn. All- mörg sólarljóða skáld hefir þjóðin þó átt, sem flæmt hafa vonleysis skuggana út í hafsauga. Einn af þeim skáldum, sem mest og bezt hefir skrifað hjartýni inn í þjóð vora, er Benedikt Gröndal. Gleðin var honum fyrir öllu, æfi- sigling hans öll sólarmegin Svörtulofta. Gleði og alvöruleysi eru tvö fjarskyld hug- tök, en því miður, hefir þeim langt of oft verið blandað saman. Gleðimaðurinn, idátramað- urinn, á iðuglega yfir að ráða heilbrigðari lífs- alvöru enn ihinn, sem kastar sér vonlaus í flet- ið og breiðir upip fyrir höfuð. 1 kvæðinu Gígjan, einu fegursta kvæði Gröndals, stendur þessi vísa: “Eg kný þig enn þá gígjan mín til gleði, hvað gagnar sífelt vein og táraflóð. Hvað gagnar mér að gráta það sem skeði, hvað gagnar mér að vekja sorgaróð. Ilvað gagnar mér að mana liðna daga úr myrku djúpi fram á tímans hyl? Eg veit að eilíf altaf liífir Saga og allar stundir nefnir dómsins til.” Það er ekkert örvæntingar-söngl ií Ijóðinu því arna! Gáfna fjölbreytni Gröndals, var því nær einstök; hann var hið ágætasta skáld, dráttlist- ar meistari og náttúrufræðingur. Yms verk hans eiga óefað margra alda líf framundan, •svo sem kviæði það, er þegar hefir nefnt verið og Fjallkonu myndin, en ekki skyldi mig undra þótt sagan af Heljarslóðarorustu og Þórðar saga Geirmundssonar, yrðu til þess að halda ' nafni höfundarins einna lengst á lofti. Það má vera danður maður, sem ekki hlær að lýs- ingunni á latínuprófi Þórðar og 'bardaganum, sem á öftir fylgdi milli skólastjórans og Ala- mala, þar sem annar hafði þorskhaus að vopni, en hinn gamla Arnesen —orðabókina latnesku. Hama má segja um upptalninguna í Ileljarslóð- arorustu á föngum til veizlu þeirrar hinnar miklu, er Austurríkis-keisari hélt Napoleoni, þar sem meðal annara rétta var á borðum, appelsínuhraukar frá Spanía; fílafætur frá Kap, kúasmér ofan úr Jórukleif; bláber frá Lunehurgerheiði og sauðaþykni norðan úr Svarfaðardal. Mér finst óviðeigandi að fara að prenta upp sýnishom úr sögum þessum, býst enda við að meginþorra fólks sé innihald þeirra kunnugt. En hitt þykir mér vert að henda á, að nú getnr hver sem vill eignast háð- ar þessar fágætu skopsögur í einni og sömu bók. Eg trúi því tæpast, að svo sé þröngt í bókaskápnuunm, víðsvegar um íslendinga- bvgðirnar vestrænu, að eigi megi takast að rýma til fyrir sögunni af Heljarslóðarorustu og Þórðar sögu Geirmundssonar. Eftirmáli höf. við 2. útgáfu af Heljarslóð- arorustu, er á þessa leið: “Stafsetning á hók þessari er með.ýmsu móti til þess að þóknast öll- um, sem aldrei koma sér saman.” Hr. Ársæll Árnason verðskuldar almenn- ings þökk fyrir útgáfuna, sem er í alla staði hin vandaðasta. Bókin kiostar í kápu $2,50 og fæst í bóka- verzlun Finns Jónssonar, 698 iSargent Ave., Winnipeg. E. P. J. Frá Gimli. “óró kenn eg sára og sæta, samt mér finst hún Ihjart- að Ibæta. Eftirþrá, sem að ei má neita unaðs ljúfa, en jþó svo svo heita.” —Tegner. Okkar allra aðal eftirþrá, frá vöggunni til grafarinnar, hér á jörðu, hinna vitru sem fávísu, er ein, og leitin eftir Ihenni er ein. Eftirþráin og leitin allra er eftir sælu, en sæla er að eins ein til, hún er sú: að elska og vera elsk- aður. Geta þá allir elskað og hver ein- stakur fengið það, að vera elskað- ur aftur? Já, í sannleka, ef að leitin og þráin ganga í rétta átt. Að elska mennina, eða einhvern einstakan, og vera elskaður aft- ur, er framúrskarandi unaður. En þeirri sælu fylgir þó jafnan, eins og skugginn fylgir mannin- um, einhver sársauki og kvíði fyr- ir missir. Eftir varanlegri og kvíðalausri sælu verður að leita lengra en eingöngu til samferða- manna okkar. Við verðum að hlusta á röddina, sem segir okk- ur: “Látum oss elska hann, jþví hann elskaði oss að fyrra bragði.”

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.