Lögberg - 02.03.1922, Page 8
Bls. 8
LÖGBEKG, FIMTUDAGINN 2. MARZ 1922.
Or Bænum.
t *
•í* ♦
Mr. Freeman Freemanson frá
Hnausa P.O., Man., kom til borg-
arinnar snogga ferð síðastl. föstu-
dag.
íslenzk vinnukona óskast í árs-
vist á ágætt heimili út í sveit;
kaup gott, en fremur lítið að
gjöra. Lysthafendur snúi sér til
C. B. Júlíusar að 1288 Downing
Street, Winnipeg, sími A5132.
pau hjónin Snæbjörn G. Páls-
son og kona hans Guðrún Páls-
son, sem heima eiga að 752 Bever-
ley Str., hér í Winnipeg, urðu
fyrir þeirri sorg að missa dóttur
sína Archibella Jónína Pálsson,
rúmlega fjögra ára gamla. Vildi
það til á þann hátt að stúlkan hafði
farið á fætur snemma morguns á
undan foreldrum sínum, náði í
eldspýtur og kveikti í náttklæð-
um sínum og var mjög 'brunnin
þegar að var komið. petta sorg-
lega slys vildi til á laugardaginn
18. þ. m., en stúlkan lézt 26. á
sjúkrahúsi bæjarins eftir átta
daga legu þar.
Leikfélag ísl. í Winnipeg hef-
ir að sögn í hyggju að leika hinn
góðfræga sjónleik “pjónninn á
heimilinu” eftir C. W. Kennedy í
íslenzkri þýðing eftir Dr. Sig.
Júl. Jóhannesson. Væntanlega
verður leikurinn sýndur hér í
bænum snemma í Apríl og síðan
farið um bygðir íslendinga með
hann.
Afmæli kvenfélagsins.
Kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar
hefir ákveðið að minnast 35 ára
afmælis félagsins með samicomu
þriðjudagskvöldið 7. marz í fund-
arsal kirkjunnar á Victor St., og
bjóða því félagskonur öllum safn-
aðar-systrum sínum og þeim
konum, sem eru hlyntar þeirra
kirkjulega félagsskap, að vera
með sér þetta kvöld.
Munu félagskonur reyna af
fremsta megni að gera stundina
ánægjulega og óska eftir að sem
flestar komi.
Land til leigu.
200 ekur af landi, eða jafnvel
meira, (griparæktarland) fæst til
ábúðar nœr sem vera vill. Ágætt
íbúðarhús ásamt peningshúsum.
Landið alt er inngirt. Viðhald á
landinu og góð umgengni, eru
fyrstu skilyrðin, sem eigandi
krefst. Engrar peningaborgunar
Ikrafist. Efnalítið fólk, er komast
vill úr borginni út í sveit, getur
ekki fengið betra tækifæri. —
Upplýsingar á skrifstofu Lög-
bergs.
15. febrúar voru gefin saman
í hjónaband þau Hehbert Bald-
winson og Valdheiður Olive
Eastman, bæði frá Riverton.
Hjónavígsluna framkvæmdi dr.
Björn B. Jónsson á heimili sínu,
774 Victor St.
Til sölu á Beverley stræti, rétt
við Wellington Ave., 75 feta lóð
með 10 herbergja húsi á. Minna
hús tekið í skiftum. Sími N 7524.
Sagt er að um 150',000 manns
hafi sótt “carnival” skemtunina,
sem haldin var hér í foæ í síðastl.
mánuði. pegar allur kostnaður
var borgaður kvað forstöðunefnd-
in hafa átt eftir í sjóði um $1,500.
Komið hefir til orða að bærinn
léti gera leikvelli mikla á svæð-
inu þar sem gamli sýningargarð-
urinn var hér norðvestur í ’bæn-
um. Sagt er að aðeins standi á
fjárveitingu frá bæjarrráði til
slíks fyrirtækis, en það mundi
kosta stórfé að undirbúa svæðið
til þess að það yrði fagurt og
þægilegt ti! leika. Vonandi líða
ekki langir tímar þangað til svo
þarflegt fyrirtæki nær fram að
ganga. pörf slíks leikvallar er
öllum bæjarbúum augljós.
pess var getið í síðasta blaði,
að kaup verkamanna bæjarins
hefði verið lækkað um sjö dali á
mánuði hvers einstaklings. pó
nær ekki þetta nema til þeirra er
kauphækkun fengu árið 1920 og
ibafa minst haft tuttugu og fimm
hundruð um árið. Sagt er að
þetta spari bænum um $115,000
á ári. En sá er hængurtá þessu
launalækkunarmáli, að jafnframt
því sem verið er að draga af laun-
um hinna láglaunaðri starfsþjóna
bæjarins, er kaup forstöðumanna
deilda hækkað að nokkrum mun,
svo alls nemur hátt á fimta þús-
und dala. Mælist það fremur
illa fyrir.
Allir eru á fleygiferð
með farangur og krakka mergð.
pví er ibezt að fóna Fúsa
ef flytja þarftu milli húsa,
honum er í flestu fært
því fáir hafa betur lært.
Sigfús Paulson.
488 Toronto Str., Tals. Sh. 2958.
Islands-minning.
Flutt á þingi pjóðræknisfélagsins
Island, sólrík eyjan,
ásýnd þín er skær,
flestra kosta freyjan,
finst oss ávalt kær;
yfir Atlantshafið
yndis-mynd þín skín;
gyltum rósum grafið
geymist minning þín.
Eins mun íslands málið,
ef þess gætum vér,
standa líkt og stálið,
er stappar tímans gler,
Yfir alda raðir
einum hug og sál
segjum, syngjum glaðir
sí-ungt feðra mál.
G. J.
KRISTJÁN JOHNSON, 142 May-
i fair Ave., Winnipeg, tekur að sér
fóðrun og stoppun á stólum og
legubekkjum og gerir við húsmuni.
af hvaða tegund sem er. Hann
býr einnig til hægindastóla, Dav-
j enports og Chesterfields af nýj-
ustu og beztu gerð. Vönduð vinna
j er ábyrgst og verðið ávalt sann-
| gjarnt. pér þurfið ekki annað en
senda Mr. Johnson línu eða kalla
bann upp í símanum, mun hann
þá samstundis gefa yður áætlun
um kostnaðinn, á þeim munum yð-
ar, sem þarfnast aðgerðar. Tal-
sími Mr. Johnsons er F.R. 4487.
Heimsböl!
Ótal farast menn á mis,
meinböl þar af leiðir,
heimsins aragrúa glys
gjálífs snara deyðir.
G. Jör.
Leiðréttingar
í grein R.K.G.S. “Grafara-söngur”
eru þessar: í 41. línu: hættulega
| fyrir hóflega; í 95. línu 4. dálki:
bitrari fyrir vitrari; og hjá höf-
undi féllu eftirfarandi orð úr í
síðasta dálkinum, 43. línu: að biðja
til Guðs um sannleikann.
hefir með höndum í mynd þessari,
Anna Q. Nilsson, sem sögð er að
vera íslenzk leikkona. — petta er
kvikmyndaleikur, sem borgar sig
að kynnast.
Fólk er 'beðið að festa í minni
auglýsinguna um “Heimkomuna”
leikinn heimsfræga sem sýndur
verður í samkomusal Sambands-
kirkjunnar dagana 7. og 8. þ. m.—
Ymsir beztu leikarar Vestur-ís-
iendinga svo sem hr. Árni Sigurðs-
son taka þátt í leik þessum. —
Fyllið húsið 'bæði kvöldin.
w
ONDERLAN
THEATRE
LESIÐ pETTA.
Kvæði þau, eftir séra Guðlaug
Guðmundsson, er kunna að birt-
ast smátt og smátt í Lögbergi, eru
fyrir mínar atgerðir og að hans
eigin vilja hingað komin vestur í
þeim tilgangi að vekja eftirtekt
manna.
Séra Guðmundur varð að hætta
prestsverkum vegna sjóndepru og
er nú kominn til Reykjavíkur, og
býr að Laugaveg 27-a.
Hann á töluvert kvæðasafn, sem
óhætt er að fullyrða, að ekki
stendur langt að baki1 margra
annara ljóða og kvæða, er birst
hafa innan bókspjálda.
Hann er því miður ekki svo efn-
um búinn, að hann sjái sér fært
að kosta prentun ljóðanna, en
gæti kannske vænst að einhver
hér vestra vildi bjóða að taka að
sér safnið til prentunar eða út-
gáfu í bókarformi pess vegna
eru þessar línur birtar hér án
lengri formála eða útskýringa.
Með vinsemd,
pt. Winnipeg, 25. febr. 1922.
Guðbr. Jörundsson.
pað fólk sem gaman hefir af
fallegum kvikmyndum, ætti að
fara á Allen Ieikhúsið næstu daga
og horfa á “The Lotus Eater”,
þar sem John Barrymore kemst
hæst í leiklist sinni. Myndinni
er ^tjórnað af Marshall Neilan.
Annað vandamesta hlutverkið
Miðviku og Fimtudag
CBHWAf TEARLE
í
“The Fighter”
Fðstu og Laugardag
“Wet Gold”
a Romance under the 'Sea
Mánu og priðjudag
Thoma Meighan
í
“The City of Silent Men.”
; K0NUNGSK0MAN
! TIL ÍSLANDS 1921
Afráðið kvað nú vera, að strax
og snjó leysi iskuli byrjað á verki
við hinn mikla skóla, er reisa á
við Alverstone stræti hér í vestur-
bænum. í fyrra var það verk
boðið út og menn vonuðust fast-
lega eftir að við smíðina yrði unn-
ið í allan vetur, sem sannarlega
hefði komið sér vel í atvinnuleys-
inu, sem verið hefir og er enn.
Skólaráðið hafnaði þó öllum til-
boðum um framkvæmd verksins,
undir því yfirskyni að skólinn
yrði of dýr ef fylgt væri þeim
uppdráttum, er tilboðin voru
gerð eftir, eða um eina miljón
dala. Lét það því gera nýja upp-
drætti og breyta fyyirkomulagi
skólans að nokkrum mun, fella
burtu ýmislegt skraut og þægindi
er á fyrri uppdráttunum var gert
ráð fyrir. petta á að verða mið-
skóli, eða “Tecnical High Scool”,
sem hér er nefnt, og á að bera
nafn Daniel Mclntyre, þess er hér
hefir verið skólaumsjónarmaður í
heilan mannsaldur eða nær 40 ár.
Verðið kvað nú vera áætlað um
$800,000.
Ilreyfimyndin íslenzka verður sýnd á eftir-
töldum stöðum og tímum:
Gimli, miðvikudag 8. marz kl. 8.30 e. -h.
Riverton, föstudag 10. marz, tvær sýn-
ingar, sem byrja kl. 3 og 9.30 e.h.
Lundar, miðvikudag 15 marz, kl. 8.30 e. h.
Ashern, föstudag 17. marz, kl. 8.30 e. h.
Einnig verða tvær aðrar góðar myndir sýnd-
ar Góð Músík og dans eftir sýningu á öllum
stöðunum nema Gimli.
Inngangur fyrir fullorðna $1.00, börn 50c.
Ragnar Johnson frá Narrows,
F. P. Man., var á ferð í bænum í
vikunni í verzlunarerindum.
u
99
HEIMKOMAN
Hinn frægi sjónleikur H. Sudermans
verður sýndur í samkomusal Sambandssafnaðar
Þriðjudags- og Miðvikudags-
kveldið.7. og 8. Marz
Nýr salur, nýtt leiksvið og ný tjöld. Leikurinn í 4 þáttum.
Lærdómsríkur og spennandi frá upphafi til enda.
í leiknum taka þátt Mr. John Tait, Mr. Árni Sigurðs-
son og fleiri, er stjórnað hefir og sagt til við æfingar.
Dyrnar opnar kl. 7.30' e.h.
Inngangur 50c,
MERKILEGT TILBOÐ
Til þess að sýna Winnipegt úum, hve mikið af
vinnu og peningum sparast með því að kaupa
Nýjustu Gas Eldavélina
Þá bjóðumst vér til að selja hana til
ókeypis 30 daga reynslu
og gefa yður sæmilegt verð fyrir hina gömlu.
Komið og skoðið THE LORAIN RANGE
Hún er alveg ný á markaðmm.
Applyance Department.
Winnipeg Electric Railway Co.
Notre Dame oé Albert St.. Winnipeé
Ástfríður Jóosdóttir.
ekkja,, lézt hinn 8. febrúar s. 1.
að Vogum, Man., 92 ára að aldri.
Hún var fædd í Kílsnesi á Mel-
rakkasléttu 2. september 1830.
Maður her.nar var Jón Jónasson,
bróðir Gísla, föður porsteins
Gíslasonar ritstjóra í Reykjavík.
pau hjón bjuggu lengst af á
pjófsstöðum í Núpasveit í Norður
pingeyjarsýslu. pau eignuðust sex
börn, sem öll lifðu til fullorðins
ára; þrjú eru dáin: Jónas, Ragn-
heiður og Helga, en þrjú eru á
lífi: Steinunn nú í Reykjavík, Jón,
við Stony Hill, Man. og Ólöf kona
Jóhannesar Jónssonar, Vogum,
Man.
Jón maður Ástríðar lézt 1896(?)
á Hrafnabjörgum 1 Jökulsárhlíð
hjá Ólöfu dóttur sinni og Jóh.
Jónssyni, sem þar bjuggu þá.
Ekkjan fluttist vestur um haf
rétt eftir aldamótin með Jónasi
syni sínum og konu hans, Maríu,
sem nú býr með börnum sínum
að Hayland, Man. Frá þeim
fluttist hún iskömmu síðar til Ólaf-
ar dóttur sinnar og manns hennar,
sem fluzt höfðu vestur litlu fyr
en hún, og 'hjá þeim dvaldi hún
það sem eftir var æfinnar.
Skömmu áður en hún kom til
Canada fatlaðist hún af beinlbroti,
og hafði litla fótaferð eftir það,
en var þó lengstaf við góða heilsu.
Ástfríður sál. var annálsfríð
kona og hélt sér vel fram á elliár.
Hún var tápmikil, þó að hún væri
fíngerð og ekki stór vexti, og hin
mesta dugnaðarkona. Hún var
vel greind, léttlynd og blíðlynd og
Ihugljúfi hvers sem þekti hana.
Adam porgrímsson.
Lögrétta er beðin að gera svo
vel að taka upp grein þessa. A.p.
Gjöf til Jóns Bjarnasonar skóla
frá Lincoln söfnuði í Minneota,
Minn. $10,25. Með þakklæti
fyrir gjöfina. — S. W. Melsted,
féhirðir skólans.
Samskot í styrktarsjóð Nat.
Lutheran Council til líknar og
viðreisnarstarfs í Norðurálfunni:
Frá Wynyard, Sask.:
D. N. H ................... $10,00
Miss. Jónína Eyólfsson..... 5,00
Rev. og Mrs. H. Sigmar, .... 5,00
Finnur Johnson.
pað var á laugardagskveldið
25. þ.m. um klukkan 8. Fólkið
streymdi úr öllum áttum að
srætishorni í suðurbænum, þar
til um fjörutíu manns var saman
komið, og hélt svo alt suður eft-
ir Langside St. Máninn sló yfir
það silfurgeislum, og snjórinn
glitraði með silfurhlæ — því það
var silfur-brúðkaupskveld þeirra
Mr. og Mrs. J. Carson. — pegar
heimilisfólkið var búið að átta
sig á þessari fjölmennu og ó-
væntu heimsókn, var tekið til
máls. Mrs. W. Lindal flutti
hjónunum lukku-óskir gestanna
og silfur-borðbúnað, er þeim
fylgdu. Margrét litla Pálsson
afhenti þeim um leið fagurrauðar
rósir, jafn margar sambúðarárum
þeirra. Mrs. Lindal fórst sérstak-
lega vel að láta í ljós það vinar-
þel og þá virðingu, er gestirnir
vildu sýna með heimsókninni. —
Hjónin svöruðu myndarlega hvort
um sig. Brúðarkakan, skrýdd á
viðeigandi hátt, var svo borin
fram, og áður en langt leið lagði
fram úr eldhúsinu sætan ilm, sem
íslendingum er sérlega kær, og
fylgdu honum von bráðar alls-
konar krásir og sætindi, þar til
undrast mátti yfir iðjusemi
þeirra, er fyrir stóðu. — Eftir
þfitta skemti fólk sér langt fram
á nótt með samtali, hljóðfæra-
slætti og söng. peir sem eru
vanir að koma á þetta heimili,
vita að 'þar er ekkert látið ógert
til að láta gestunum líða vel, og
var þetta kvöld engin undantekn-
ing. Líka mátti á öllu sjá, að
konur þær, er stóðu fyrir, höfðu
ekki sparað neitt til þess að gjöra
kveldið að öllu leyti sem ánægju-
legast.
Narvegian AmericanLine
Skip fara beint frá New York
til Bergen—Einnig beinar ferð-
ir frá Bergen til íslands.
Sigla frá New York
Bergensfjord .... 17. marz
Stavangerfjord .... 7. apr.
Bergensfjord .... 28. apr.
Stavangerfjord .... 19. maí
Ágætis útibúnaður á öllum far-
rúmum og nýtízkuskip
Frekari upplýsingar fást hjá
HOBE & CO. G.N.W.A.
319 2nd Ave., South
Minneapolis - Minn.
eða
P. M. DAHL,
Steam ship Agency
325 Logan Ave., Winnipeg
I A.LLEN THEATRE |
♦!♦
Byrjar Mánudaginn 6. Marz
The
Lotus Eater
Aðal leikendur.
ANNA Q. NIL550N
inHinaiiiaiiig
Mr. F. S. Frederickson frá
Glenboro, Man., kom til borgar-
ir.nar fyrri part vikunnar.
Á fundi, sem hluthafar Eim-
skipa félags íslands í vestilr heimi
héldu í Winnipeg 28. febr. voru
þeir Jón J. Bíldfeld og Ásmundur
P. Jóhannsson valdir til þess að
vera í vali við stjórnarnefndar
kosningu Eimsskipa félags íslands
á næsta árs fundi félagsins, sem
haldinn verður í Reykjavík siðari-
hluta júní mánaðar n. k.
T
f
T
T
T
T
T
❖
f
|f
♦
f
f
if
x
x
f
♦♦♦
f
x
f
x
f
f
x
f
f
♦♦♦
1! Undir E
1 I
■ stjorn
ff ■
■ Marshall 1
Neilan
I
■mmh
Ein af
fallegustu
leikkonum
er
■ ISLENZK
tflLHIIHIIIBIIIIHIIIIHIHBIIIII
Anna Q^Nilssoitff
og
JOHN BARRYMORE
Verð: Mat. 30c kveldin 50c. 1000 Sffiti ad kVGldÍ 35C
f
f
f
f
♦;♦
f
f
T
X
f
f
I
%
REGAL KOL
HIÐ GALLALAUSA ELDSNEYTI
MEÐ NIÐURSETTU VERÐI
Ti'l þess að gera mönnum Regal kol sem
kunnugust, höfum vér fært þau niÖur í
sama verð og Drumheller.
LUMP $13.75 STOVE $12.00
Engin óhreinindi — Ekkert gjall — mikill
hiti — Ekkert gas — enginn reykur.
Vér seljum einnig ekta
DRUMHELLER og HARD KOL.
Vor ágæti útbúnaður gerir það að verkum, að
vér getum afgreitt pantanir á sama klukku-
tímanum og oss berast þær í hendur.
D. D. WOOD & Sons
Limited
Yard og Office: ROSS og ARLINGTON STREET
Tals. N 7308 Þrjú símasambönd
JA Sur-Shot "JV'eVérFails
“A SUR-SHOT” BOT and
WORM REMOVER
Eina meðalið er drepur Bots
í hestum. Sérfræðingar segja
að flest slík meðöl ihafi reynsi
gagnslítil. Aftur á móti ei
“Sur-Shot” óibrigðult.
Stærðir á $5 og $3, ásamt
áhaldi og leiðbeiningu.
Fáist það ekki í nágrenn-
inu, sendum vér yður það
gegn fyrirfram borgun.
FAIRVIEW CHEMICAL
COMPANY LIMITED ■
REGINA ,-«=•. SASK
ORIENTAL HOTEL
700 Main Street
Beint á móti Royal Alexandra
hótelinu. — Ágæt herbergi,
fyrlsta. flokks vörur og lip-
ur afgreiðsla.
Eina ísl. gistihúsið í borginni.
Th. Bjamason, eigandi.
MRS. SWAINSON, að «96 Sar-
gent ave. hefir ávalt fyrirHggJ-
[andi úrvalabirgðir af nýtitku
ikvenhöttum.— Hún «r aina fal.
Ikonan aem alíka verrlun rekur 1
Canada. lslendingar látið Mra.
Swainaon njóta viðakifta yðar.
Taisimi Sher. 1497.
Sigla með fárra daga mlllibili
TIL EVROPU
Empress of Britain 15,857 smAL
Empress of France 18,500 emál.
Minnedosa, 14,000 smálestir
Gorsican, 11,500 smálestir
Scandinavian 12,100 smáleatir
Sicilian, 7,350 smálestir.
Victorian, 11,000 smáleatir
Melita, 14,060 smálestir
Metagama, 12,600 smálestir
Scotian, 10,500 smálestir
Tunisian 10,600 smálestir
Pretorian, 7,000 smálestir
Empr. of Scotland, 25,000 smál.
Upplýsingar veitir
H. S. BARDAL
894 Sherbrooke Street
W. C. CASEY, General Agent
Allan, Ki’llam and McKay Bldg.
364 Main St., Winnipeg
• Can. Pac, Traffic Agents
YOUNG’S SERVICE
On Batteries er Iangábyggileg-
ust—Reynið hana. Umboðsmenn
í Manitoba fyrir EXIDE BATT-
ERIES og TIRES. Petta er
stærsta og fullkomnasta aðgerð-
arverkstofa í Vesturlandiu.—A-
byrgð vor fylgir öllu sem vér
gerum við og seljum.
F. C. Young. Liinited
309 Cumberland Ave. Winnipeg
Phones:
Office: N 6225. Heim.: A7996
Halldór Sigurðsson
General Contractor
308 Great Weet Permanent
Bldg., S56 Main St
I
KDREEN
Inniheldur enga fitu, olíu»
litunarefni, ellegar vínanda.
Notað að kveldi. Koreen
vinnur hægt, en ábyggilega
og sigrar ára vanrœkslu.það
er ekki venjulegt hármeðal.
Það er óbrigðult við kvillum í hársverðinum.
Verð $2 00, eða sent með pósti $2.25. Burðargjald borgað ef
5 flöskureru pantaðar í einu.
Koreen Sales Co., 2140 Broad St., Regína
Einkasalar fyrir Canada
Þessa viku
mánud. og þriðjud.
“Mrs. Bumpstead Leigh”
miðvikud. til Iaugard.
Winnipeg Rotary Club Minstrels
Næstu viku
“Ihe Blrds of
Paradise”