Lögberg - 22.06.1922, Blaðsíða 3
LÖGB9BBG, FIMTUDAGIMN
22. JÚNÍ 1922
t
Sérstök deild í blaðinu
SOLSKIN
Fyrir börn og unglinga |
milUHIHIIimBHDBIlllHllll
■iDiHumun
VIRGILÍUS.
Saga frá fyrstu tíð kristninnar í Róm.
1=
PRIÐJI KAPITULI.
Frelsi og áþján.
“Frelsi — hann hefir gefið mér frelsi!” hróp-
aði Seyd, reisti sig upp við olnboga í rúminu, sem
hann hafði verið lagður í, pg fómaði höndum til
himins í innilegri gleði. “Hann hefir keypt mig—
hann hefir gefið mér frelsi, — honum vil eg þjóna
— og fyrir hann vil eg deyja.”
“Stiltu þig,” sagði Mahala um leið og hún bar
bolla með svaladrykk að vörum hans, og horfði á
hann meðan hann drakk áfergislega úr honum.
Svo tók hún við bollanum affcir og mælti:
“Eg þekki einn þræl, sem skuldaði velgjörðamanni
sínum, er var enmþá göfugri en velgjörðamaður
þinn, miklu meira en þú gjörir, en hann gleymdi
fyrst skuldinni, og svo afneitaði hann velgjörða-
manninum.”
“'það er ómögulegt,” hrópaði eyðimerkurmað-
urinn. “Enginn maður hefir skuldað meira en eg
gjöri, og enginn maður hefir nokkum tíma fundið
veglyndari vin; enginn þræll hefir verið keyptur
dýrara verði, og sá vesalingur, sem gleymdi slíkri
velgjörð, væri ekki þess verður að bera manns-
nafn.”
“Hlustaðu á orð mín,” sagði Mahala, “því þau
eru sannleikur. pað var einu sinni þræll, sem
Iþjónaði miskunnarlausum herra, er hvorki þekti
vorkunnsemi né vægð. Að vísu kom það stundum
fyrir, að hann veitti þrælum sínum af binum góðu
gjöfum lífsins í ríkum mæli, en það varð æfinlega
til að gjöra þá ófarsælli eftir á og æfikjör þeirra
erfiðari. pú hefir heyrt ,að það er siður Róm-
verja, að setja kórónu á höfuð þeirra ógæfusömu
fanga, sem leiddir eru fram til sölu við alment upp-
boð. Sumir af þrælum þessa manns höfðu ávalt
kórónur á höfði, eins og til þess að ögra þeim út af
hinu vesallega ástandi þeirra, því fyrir öllum lá,
þegar þrældómsárum þeirra var lokið, að hníga
fyrir hendi harðstjórans. Allir þeir, sem honum
þjónuðu, hnigu fyrir hendi hans að síðustu; laun
þau, sem sá harðstjóri galt, var dauði.”
“Eg er hissa á, að þeir skyldu þola slíkt of-
beldi,” sagði Seyd; “að þeir skyldu ekki rísa upp á
móti honum og berjast fyrir frelsi sínu.”
“Vald laganna var á hans hlið,” sagði Mahala,
“og þeir áttu engan kost á að losna undan þrælkun
hans; margir þeirra—flestir þeirra lærðu í blindni
sinni og trúgirni að elska hlekkina, sem fjötruðu
þá, og þeir þjónuðu húsbónda sínum af fúsum vilja
og drektu umhugsuninni um dauðann í skemtunum
líðandi stundar. , 1
“En einn var sá, er sá hið aumkunarverða á-
stand þeirra—sem sá og aumkaðist yfir eymd
þeirra. Hann var mikill og hann var auSugur, og
það var hann einn, sem gat borgað lausnargjaldið,
— lausnargjaldið mikla, sem krafist var. Hann
kom úr dýrð sinni, og gjörðist fátækur til þess að
þeir mættu njóta frelsisins; hann greiddi lausnar-
gjaldið fyrir þá, ekki í gulli, perlum eða dýrum
steinum. pað kostaði meira að frelsa sálir þeirra.
Hann gaf líf sitt fyrir þá týndu; já, hjartablóði
mannsins sonar var úthelt fyrir þá.”
“pú segir frá undarlegum hlutum,” mælti
Seyd. “Hverjir voru þessir þrælar, og hver var
sá, sem frelsaði þá?”
“Hverjir voru þessir þrælar? Hverjir voru
þessir þrælar?” hrópaði Mahala. “Eru ekki aUir
menn þrælar syndarinnar? Er ekki dauðinn óum-
flýjanlegt hlutskifti allra—dauðinn, sem er laun
syndarinnar? Nei, stynur ekki öll skepnan undir
áþján þeirri, sem á mönnum hvílir? Hví heimsæk-
ir sorgin heimili vor; hví missa limir líkamsþrótt
sinn, augað sjónina, hví hin ægilega holdsveiki?
Hví fellur duftið til jarðarinnar, eða hví er það,
sem sterkast er og fegurst, vafið líkklæðum? pað
er af því við erum reyrð viðjum syndarinnar, og
hinn óhagganlegi dómur réttlætisins er, að sálin,
sem syndgar, skuli deyja.”
“Er þetta þrældómurinn, sem þú talar um?”
spurði Seyd. “Ef svo er, þá ert þú, og eg, og allir
enn þá þrælar!”
“Lausnargjald hefir verið greitt fyrir okkur,”
svaraði Gyðingakonan í viknandi rómi, “lausnar-
gjald, sem er óendanlega miklú meira virði, en all-
ur heimsins auður. Einskis virði voru fórnir fá- j
kunnandsi fólks, fómir, sem mennirnir voru að
reyna að mýkja réttlætisdóma himinsins með.
Sonur Guðs sá úr dýrð sinni þræla jarðarinnar í
syndafjötrum og eymd. Hann aumkaðist yfir þá og
kom til að frelsa þá. ipú hefir séð bróður þinn í
synd gefa verðmætan gimstein þér til hjálpar.
Guðs sonur sté niður frá hásæti himinsins og úr
dýrð föðursins, og tók á sig þjóns mynd til þess að
þola spott manna, vera hrakinn og hrjáður, þyrni-
krýndur og krossfestur, svo syndaþrællinn yrði
frjáJs — svo sverð réttlætisins, sem var upp-
reitt, yrði slíðrað í hans eigin hjarta. Vilt þú þá,”
hélt Mahala áfram með enn meiri alvöru, “vera
þræll sá, sem afneitar hinum heilaga velgjörða-
manni þínum? Viltu ekki heldur segja með miklu
dýpri meiningu orðin, sem jafnvel nú titra á vörum
þér: Hann hefir keypt mig, hann hefir frelsað
mig; hann hefir brotið fjötur synda minna. Hon-
um vil eg þjóna, fyrir hann vil eg de/ja. Eg vil
krjúpa í auðmjúkri bæn að fótum frelsara míns,
Jesú Krists?”
“Eg vissi, að þú varst kristin,” hreytti Seyd
út úr sér, og lýsti sér bæði forvitni og fyrirlitning
í rödd hans. “pú ert ein úr flokki þeirra, sem allir
atyrða, — dýrkenda guðsins krossfesta. Eg hefi
hlustað á þig svona lengi, því eg vildi gjarnan
heyra af vörum þess er játar hina kristnu trú,
hvemig hún í raun og veru er.”
“Viltu heyra, hvað kristindómurinn í raun og
sannleika er?” spurði Mahala. “Að trúa því, að
eðli okkar sé spilt, og að við séum glötuð, það er
kristindómur. Að trúa á kærleiksgjöf hins deyj-
anda frelsara og setja alla okkar von á hans al-
fullkomnu fóm, það er kristindómur. Að hata
syndina, sem var orsök dauða hans, og forðast
hana eins og þú myndir flýja frá þrældómsoki, og
leita hjálpar og fyrirgefningar hjá honum, það er
kristindómur. Hvaða trúarbrögð kveða eins á-
kveðinn dauðadóm upp yfir syndinni eins og þessi ?
Hvaða trúarbrögð gefa syndaranum jafn mikla
von og þessi? Hvaða trúarbrögð eru eins kær-
leiksrík, fylla hjörtun eins mikilli gleði og eíns
miklum friði og þessi? Guð er réttlátur, þess
vegna verða þeir seku að deyja. Guð er kærleik-
ur—það er hans vilji, að þeir seku lifi. Hann gaf
sinn eingetinn son til þess að taka út refsingu þá,
sem okkur bar, til þess að bæði réttlætinu og kær-
leikanum yrði fullnægt tafarlaust.”
“Og að hvaða gagni verður okkur þetta svo?”
spurði Arabinn. “Menn þjást enn þá, deyja enn
þá, nei, þeir syndga enn þá. Jafnvel *þó alt þetta,
sem þú hefir sagt, sé satt, hvaða breytingu hefir
það á kjör okkar?”
“Hvað er lífið heiðnu fólki?” spurði Mahala.
Mpað er leiksvið, þar sem sambland af gleði og
hrygð er sýnt, þar sem lestirnir bera oft hærri
hlutann og áþján er ríkjandi; þar sem erfitt er a?
koma auga á réttlæti guðs innan um hinar marg-
víslegu athafnir mannanna. En hvað er lífið hinu
kristna fólki? Stutt pílagrímsför, ferð til betri
heims, þar sem alt, jafnvel mótlætið, miðar til
góðs. Hinn kristni maður hefir verk að vinna,
þjónustu af hendi að inna; en hve ólík hún er þraól-
dómi syndarinnar. pað er verk kærleikans, þjón-
usta gleðinnar, óeigingjörn fórnfærsla lífsins hon-
um til handa, sem gaf okkur það.
“Og hvað er dauðinn þeim heiðnu?” hélt Ma-
hala áfram. “Annað hvort ægileg auðn, hræðileg
hyldýpisgjá, eða upphaf endalausrar tilveru, sem
enginn veit hvað er og allir hræðast þess vegna.
Hvað er dauðinn þeim, sem eru endurleystir í
Kristi? Hlið paradísar — innganga í ríki konungs
þess, sem þeir hafa þjónað, heimkoma á heimili föð-
urs, sem þeir hafa elskað, endir allra sorga, mót-
lætis og kvala, — upphaf ósegjanlegrar gleði, sem
aldrei tekur enda, gleði, sem ekkert auga hefir
séð og í einskis huga hefir komið, — síðasti fjötur
syndarinnar, sem brotinn er, frelsi, sæla og eilíf
gleði.”
pað var eins og bjarmi stafaði af andliti kon-
unnar, á meðan hún var að tala; eins og engill
klæddir í kvenbúning, hefði verið að segja frá sælu,
sem hann hefði sjálfur þekt, dýrð, sem hann hefði
sjálfur séð.
“En hjarta Arabans var ósnert. “pað er gott,
að þú skulir líta þannig á dauðann,” sagði hann
glottandi og í ertnisrómi. “pví það eru launin—
einu launin, sem þeir, er á hinn krossfesta trúa,
eiga von á. pér væri samt betra, á meðan þú ert
í húsi Rómverjans, að hafa þig hæga og láta sem
minst bera á þessum viltu trúarhugsunum þínum.
Að vera kristinn er glæpur, sem varðar lífláti.
Fangelsið, svipan, öxin, hefnd Rómverja og hatur
Gyðinga, er upphaf sælu þeirrar, sem þú sæ’kist
eftir. Leyndarmáli þínu er óhætt hjá mér, en eg
vil ráðleggja þér að treysta ekki fleirum fyrir því.
Ofsóknir hinna heiðnu munu fljótlega ^slökkva
neista þann, sem fáeinum veikbyðum manneskj-
um, er orðið hafa fyrir hrifningu, hefir tekist að
kveikja.”
“Hann verður aldrei slöktur, hann deyr
aldrei,” svaraði Mahala innilega. “Kristindómur-
inn er eldur af himni, og hann er að breiðast út —
og hann hedur áfram að breiðast út, unz hann hefir
náð til yztu takmarka heims—unz hann hefir lýst
upp alla jörðina. Ætti tré skóarins eða stöngullinn
á akrinum að berjast á móti eldi, sem andi Guðs
sjálfs blæs að? Hvað mig snertir,” hélt Mahala
áfram og krosslagði hendurnar, “þá hefi eg enga
tilhneigingu til að dylja gleði mína eða von. Eg
vil játa Guð minn frammi fyrir öllum heiminum.
Eg hræðist ekki dauðann. Dagar mínir eru í hendi
Guðs. Hann veit hvenæif og á hvaða hátt síðasta
kallið kemur. Ef þú vilt gefa lífið út fyrir Virgilí-
us, sem frelsaði þig frá jarðneskri eyðileggingu,
ætti eg þá að gera minna fyrir frelsara minn og
drottin, sem úthelti blóði sínu mértil sáluhjálpar ?”
Dvergar.
Dvergar eru litlir vexti. Svo undur litlir, að
sumir þeirra eru ekki nema rúm tvö fet á hæð.
Um þetta litla fólk eru til margar sögur, bæði
munnmælasögur og svo er oft sagt frá þeim í forn-
sögum, svo sem Fornaldarsögum Norðurlanda.
Fyrrum héldu menn að dvergarnir ættu heima
í klettum og steinum, og leituðu menn oft á fund
þeirra, er þeir voru í vanda staddir, því þeir voru
svo ráðagóðir að þeim varð aldrei ráðafátt. peir
voru framúrskarandi smiðir. Smíðuðu sverð, sem
bitu á hvað sem var; skip, sem gátu kosið sér byr
hvert sem þau vildu sigla, og hringa, sem voru
fagurlega gerðir og þóttu hinar mestu gersimar.
Læknar voru þeir ágætir og gátu grætt flest
mein manna. peir þektu líka jurtir og steina og
gátu h^gnýtt sér hvorutveggja.
En slíkir dvergar lifðu í löngu liðinni tíð, og
er ef til vill eitthvað aukið við kunnáttu þeirra og
kyngi eins og hún lifir í sögunum.
En það hafa verið til dvergar, sem við höfum
iimu
sannar sögur af. T. d. Jeffrey Hudson, sem
Walter Scott segir frá í sögunni “Peveril of the
Peak.” Sá var aðeins 18 þuml. á hæð og seg-
ir sagan, að hann hafi verið gerður kunnugur Hen-
riettu Marion drotningu James I. á Englandi, á
þann hátt, að fram fyrir drotninguna var borin
villigalta smá-steik, með brauðskorpu utan um, og
þegar skorpan var opnuð, þá steig Jeffrey fram á
borðið í allri sinni dýrð og heilsaði drotningunni
og gestunum hæversklega. Drottningunni, sem
ekki átti von á slíku, þótti mikið til gersemi þess-
arar koma og tók dverginn í þjónustu sína.
Jeffrey þótti hugprúður, þó hann væri ekki
stór. Hann háði tvö einvígi, í annað sinn við kal-
kún en í hitt sinnið við gæsarsteggja, og bar sigur
úr býtum í bæði skiftin og hlaut “Sir” nafnbót fyr-
ir hreysti sína.
Hann var tvisvar sinnum fangi, og dó í varð-
haldi árið 1682.
Annar nafnfrægur dvergur var hinn pólski
Borulwaski. pegar hann var 15 ára gamall, var
hann 25 þumlungar á hæð. Var hann þá leiddur
fram fyrir Theressu keisarafrú, sem varð svo hrifin
af honum, að hún tók hann og setti í kjöltu sér og
spurði hvað hann hefði séð tilkomumest og falleg-
ast í Vínarborg.
Dvergurinn svaraði: “pað sem eg nú sé, svona
lítinn mann'í kjöltunni á jafn göfugri konu.”
Svar þetta gjörði dverginn mjög vinsælan.
Stanislaus II. tók miklu ástfóstri við dverginn
og tók hann með sér á fund Georgs III. Englakon-
ungs og var Borulwaski við hirðina á Englandi í
meir en 50 ár.
Dvergur þessi, sem á þroskaskeiði sínu var
þrjú fet og þrír þumlungar á hæð, átti systur, sem
náði honum tæplega í öxl. Borulwaski var fríður
sýnum, vél vaxinn og lærdómsmaður mikill. Hann
dó árið 1837.
Richard Gibbons og kona hans, sem uppi voru
á seytjándu öldinni, voru svo smá vexti, að bæði til
samans náðu þau ekki sjö fetum. pau voru list-
feng og máluðu bæði smáhluti og Gibbons kendi
dætrum James II. Englakonungs pentlist.
pegar þau giftust, var viðhöfn mikil og stóð
Henrietta Marion fyrir henni, Charles I. leiddi
brúðurina inn að altarinu, drotningin dró kostuleg-
an demantshring á hönd henni, en hirðskáldið Ed-
mund Walters orti brúðkaupskvæði.
Fleiri dverga mætti nefna, svo sem Piletas,
Coropas og Andromedu, sem voru öll undir tveimur
fetum á hæð og Piletas var svo léttur, að hann bar
lóð í-vasa sínum til þess að hann fyki ekki. pá má
og nefna Mehemed Selím, sem var í þjónustu Abdul
Hamid Tyrkjasoldáns; hann var tuttugu og átta
þumlunga á hæð, tungumála garpur mikill og söng-
fræðingur og tónskáld.
Einkennilegt er það, að flestir þessir dvergar
hafa orðið fjörgamlir.
---------o--------
GRÁNI.
Bóndi nokkur er eg eitt sinn hitti í heygarði
hans, átti gráan útigangshest, sem eg læt skrifar-
ann kalla Grána, þó hann héti nú reyndar öðru
nafni. pessi hestur var ákaflega garðsækinn,
bæði við eigandann og nágrannana, og faðir minn
var oft í vandræðum með að geyma heyanna fyrir
honum, því það var varla að nokkur garður stæði
fyrir Grána hversu hár sem var; var hann mesti
bragðarefur í tilbót. Eitt haust um veturnæturn-
ar sást hvern morguninn eftir annan að farið hafði
verið í garðinn hjá okkur og jetið drjúgum og vissi
enginn hver olli, því engin skepna var 1 nánd þegar
komið var á fætur, en faðir minn grunaði Grána.
Líka var gætt að því á kvöldin í vökulokin, hvort
ekki væri neitt í nánd, Gráni eða annað; en aldrei
sást þar bóla á neinu grunsömu. Svo tók faðii'
minn það til bragðs að vaka nótt og nótt og var
það þá allra undarlegast, að þær nætur kom engin
skepna, þó bæði væri farið í garðinn undan og eft-
ir, og lá við að föður minn færi að gruna, að hér
væri menn með í leiknum, því garðarnir voru líka
alstaðar svo háir, að varla var tiltök að einn hest
ur gæti brotist upp á þá, jafnvel ekki Gráni sjálf
ur, og nú voru auk þess settir staurar á garðana og
ýmsar aðrar torfærur þar sem veikast þótti fyrir,
og á morgnana sáust aldrei nein vegsummerki þess
á görðunum, að upp eða ofan hefði verið farið
neinsstaðar.
Svo tók faðir minn það ráð eina nótt að vaka í
myrkrinu, svo að ljósið gæti ekki orðið til leiðbein-
ingar ef menn skyldu eiga í hlut. Á þessu gat
Gráni ekki varað sig, því skömmu eftir að hann
var búinn að slökkva ljósið sér hann hvar Gráni
kemur lötrandi ofur hægt heim túnið. Faðir minn
fór þá upp á bæjarstund á gægjur, því honum var
forvitni á að sjá hvar klárinn legði að. Gráni var
þá kominn heim að fjósi og gekk þar rakleiðis að
litlu hliði, sem lá upp í garðinn. petta hafði föður
mínum allra sízt dottið í hug, því fyrst voru tvær
tröppur upp að ganga í hliðið og svo fyrst þver-
staur, sem féll inn í holur í hliðinu sína hvoru meg-
in, og þar ofan yfir annar staur þungur, sem gekk
inn í holu öðru megin en féll hinum megin niður í
djúpan klofa í garðsendanum. En þama lagði Gráni
að. Hann steig fyrst með framfótunum upp á
efri tröppuna, stakk svo höfðinu inn á milli staur-
anna við þann endann, sem var í klofanum og lyfti
staurnum upp sem hóglegast. Honum var nú létt
að klofa yfir neðri staurinn, en efri staurinn komst
varla upp úr klofanum og féll strax niður aftur,
þegar Gráni var kominn inn yfir og var þar þá alt
í sömu skorðum. Núj gaf faðir minn sig í ljós og
þaut Gráni þá þar út yfir garðinn, sem hann kom
að, og var allur á burt. Faðir minn bjó svo um
hliðið og sakaði ekki úr því. — S. G. í Dýrav.
DR.B J.BRANOSON
761 I/lndsay BalhHnff
Phone A 70*7
Offloe ttniar: I—?
RetmUl: 77« Viotor St.
i»hone: A 71Í2
WinnipoK, Man.
Dr. O. BJORNSON
701 IJndíuiy Buildlng
Offloe Phone: 7067
Offfice tlmar: 2—3
HelmUi: 764 Victor 8t.
Telephone: A 7386
Wlnnlpeg, Man.
DR. B. H. OLSON
701 Lindaay Bldg.
Ofíice: A 7067.
ViOtatattoi: 11—12 of 1.—6.80
10 Tiielma Apts., Ilomt Street.
Phone: Sheb. 582«.
WINNIPHJU. MAN.
Thos. H. Johnson
og
Hjalmar A. Berrman
lalennldr HgimlhnfM
Skritstofa Roorn 611 MoArttonr
BulidlnK, Por*a#e Are.
P. O. Box ÍHI
Phonea: A 684» OC «14«
W.
W. J. IJNDAI. * OO.
J. Llndal. J. H. Undal
B. SteSAnseon.
UigfræBtaear
1607 Union Truet Pld«. Wlarige#
>4 er elnnlg a8 finna 4 eftlrf|rt«l
andl tlmum og etöBum:
Lundai- — A hverjum m!iívtka4a#4.
Rlverton—Fyrsta oc »ri«)a ^
»ri«Judag hvers mtntter
Oli tli—Fyrsta og þrlOJa
vlkudac hvera mAnaSar
Dr- J. Stefánsson
600 Sterling Bank
Stundar augna, eyrna, nef og
kvericasjúkdóma. Er að hitta
kl. 10-12 f.h. og 2-5 e.h.
Tals. A3521. Heimili 627 Mc-
Millan Ave. Tals. F 2691
Dr. M.B. Halldorson
401 Boyd Buildln#
Cor. Portage Ave. oc Hdmonton
Stundar e4ratakl.ga berklaafki
oc aflra iungnaaJúkdOma. Br at!
flnna 4 ekrlfatofunnl kl. 11—
16 f.m. og kl. 6—4 c.m. Skrif-
stofu tals. A 3521. Helmlli 46
AHoway Ave Taialml: Shar-
brook 6168
Dr. Kr. J. Austmann
M.A. MD. LMCC
Wynyard, Sask.
DR. A BLONDAL
818 Somerset Bldg.
Stundar sérstaklega kvenna og
barna sjúkdóma.
Er að hitta frá kl. 10—12 f. h.
3 til 5 e. h.
Talsími A 4927
Heimili 806 Vicfcor Str.
Sími A 8180.
Arni Anderson,
ial. lðgmaðnr
í félagi við E. P.
Bkrtfifcofa: 801 Bloctrtc
way Chambaro.
Telophono A 818T
TmrwgiMflMMWW—
ARNI G. EGGERTSSON,
Islenzkur lögfrœttngur.
Hefir rétt til að flytja mál bcrtH
í Manitoba og Sarkatchewan.
Skrifstofa: Wynyaro, Saak.
Phone: Garry 2616
JenkinsShoeCo.
089 Notre Dame
Avenue
Vér leggjum eéretaka fthereiu 4 a>
■elje metm eftlr forekriftum Ueka*.
Hln bextu lyf. sem hægt er *« 64,
eru notuC elngöngu. pegar »ér konUB
me8 forekriftina tily vor, me*« M»
vera vian um fft rétt þaC sem lekftk-
inn tekur tH.
OOLiOLKUGH * OO.
Notre Dame Ave. og Sherbrook* M.
Phonee N 766»—761»
GlftlngalyfUbréf eeld
J. G. SNÆDAL,
TANNLŒKNIR
614 Somer8et Block
Cor. Portage Ave. eg Donald Streat
Taisími:. A 8889
DR. J. OLSON
Tannlæknir
6C2 Sterling Bank Bldg.
Talsími A 3521
Heimili: Tals. Sh. 3217
A. S. Bardal
846 Sherbrooke St.
Selur llkkiatui og annast um útfarir.
Allur útbúnaÖur sft bezti. En.frem-
ur selur hann alskonar minnievarða
og legateina. 9
Skrlíst. talníml N ée08
Heimllis talHÍriii N ««07
Vér geymum reiðhjél yflr v«4-
urinn og gorum þau eine og ný,
ef þess er óskað. Allar tegund-
ir af skautuon búnar til sam-
kvæmt pöntun. Áreiðanlegt
verk. Lirpur afgreiðsla.
EMPIRE CYCLE, CO.
641Notre Dame Ava.
DR. W. E. ANDERSON
307 Kennedy Bldg. Ph. A 7614
(gagnvart T. Eaton Co.)
Sérfræðingur í augna, eyrna,
nef og kverkasjúkdómum.
Viðtalstími: 9-12 f.h. 2-6 e.h.
Heimili 137 Sherbrooke Street,
Sími Sher. 3108
Verkatofu Tala:
A 8S8S
Bul T&la.:
AISI4
G. L Stephenson
PLUMBER
Allakonar rarmagnaAMUd, cvo setn
strsuj&rn vtm, allar tegundlr af
glösum og aflraka |kMUrk).
VERKSTOFI: 676 HDME STREET
Lafayette Studio
G. F. PENNY
I.Jósmyndnsiniður.
Sérfræölngur I aC taka hópmyndlr,
Giftlngamyndir og myndir af hell-
um bekkjum skólafðlks.
Phone: Sher. 4178
489 Portage Ave. Winnipeg
Giftinga og n,
Jarðarfara- Dlom
með litlum fyrirvara
Birch blómsali
616 Portege Ave. Tals. 726
ST JOHN 2 RH9G 3
Phones:
Office: N 6225. Heim.: A7§9«
Halldór Sigurðsson
General Contractor
308 Great Wect Permapent L—■
Bldg., S56 Main 8t.
I
J. J. Swanson & Co.
Verzla meS fastelignir. SJft. um
leigu á. hösum. Annast l&n og
eldsábyrgð o. fl.
808 Parts Building
Phones A 6349-A 6310
JOSEPH TAVLOR
LÖGTAKSMADUR
Helmilistals.: St. John 1844
Skrlfstofu-TaLs.: A 6557
Tekur lögtaki bæöi húsaleiguskuld^
vetskuldir, vlxlaskuldir. AfgrelClr a\
sem aö lögum lýtur.
Skriietofa 255 Main Streee