Lögberg - 12.06.1924, Síða 3
LÖGBERG FIMTUDAGINN.
12. JÚNÍ 1924.
Bls. 9
H!H1!H:iH1H1H1^'ííHíIH1h'1,k||k!1HI1HI|H11H1KB3M1^MSI3^
SÓLSKIN
Fyrir börn og unglinga
§
SSIHIBIHlSlHIHjlH
íl!Hl[glgllHl[gllHi!HlglHl'HliHl!Hi!HlHiHllHlHlHiHHlHi!HfHHiH!H1,Hl!HlHlHl!Hl!Hl!Hl!HEHlH!HlHIHlHi!Hii^
UNDARLEGUR DRAUMUR
Þá er að segja frá Kára. Hann fór suður í
Keflavík og réði sig á fjögramannafar 'hjá gömlum
og gætnum formanni. Ekki var Kári lengi að læra
áarlagið og eftir stuttan tíma var hann orðinn ágæt-
ur sjómaður, enda iþótti formanninum mikið til hans
koma.
ipað var einn morgun, að formaðurinn reis
árla úr rekkju og fór út að gá til veðuns. Leit
honum vel á veðrið. pað var glaða tunglsljós og
hlíðalogn.
Þegar ihann kominn aftur ,‘heyrði hann að Kári
var að umla upp úr svefninu'm, Formaðurinn ýtti við
íhonum og Kári ihrökk upp með and'fælum.
“Þú varst að umla upp úr svefninum,” sagði
fonnaðurinn ‘'og (þessvegna vakti eg íþig. Eg er ætíð
vanur að vekja menn, ef þeir láta illa í svefni.”
“Og ihvað dreymdi þig?”
“Eg þóttist vera staddur í hrikalegu fjalli með
iháum hamrabeltum. Stóð eg þar á kletta brún, og
varð mér litið niður fyrir mig. Sá eg þá unga stúlku,
sem eg Iþekti, — það gildir einu hvað hún heitir.—
Hún hékk framan í hamrabeltinu og hélt isér dauða-
haldi í hríslu leina. Hún mændi til mín bænaraug-
um, einiá og hún vildi biðja mig að ihjálpa sér, en
ekki talaði hún neitt. Eg lagðist fram á klettabrún-
ina og ætlaði að hjálpa henni. Eg teygði úr mér
einis og mér var unt, en mér til skelfingar komst eg
að raun um, aðihandleggurinn á mér var of stutt-
ur. Og í því vaknaði eg. •— Og þú skalt ráða draum-
inn ef þú getur.”
“Ekki er mark að draumum,” sagði formaður-
inn með spekingssvip og hleypti íbrúnum. “En ef eg
ætti að ráða þennan draum, þá mundi ráðning anín
verða á þessa leið: Stúlkan er í vanda efödd ,og
hugur hennar ihvarflar til þín.”
“Það getur vel verið að ráðning þín sé rétt.”
Kári istrauk hendinnium ennið. Það hafði slegið
út um ihann köldum svita.
------o------
TVÖ LJÓÐABRÉF.
póra heyrði þrjú högg og gekk til dyra. Sig-
ríður á Moisfelli kom á móti henni í bæjardyrunum
og heilsaði/ henni alúðlega.
“Eg fékk ibréf frá honum Kára mínum, og dreng-
urinn, sevn kom með það, skildi þetta ibréf eftir hjá
mér. pað er til þín. Mér isýnist það vera höndin hans
Kára míns á því.” Og Sigríður rétti póru ibréfið.
Hún tók við því og stakk því í barminn.
“Þú kemur inn, Sigríður mín. Bið ætlum einmitt
að fara að drekka hádegiiskaffið.”
“Eg má nú ekki vera að standa 'lengi við,”
sagði Sigríður. En þó fór ihún inn með Þóru og
þáði kaffi.
pegar hún var farin læddist Þóra út í skemmu
og opnaði Ibrófið. pað var ljóðabréf frá Kára. Hann
sagði henni ferðasöguna sína og frá öllu, er á dag-
ana hafði drifið frá því er þau skildu. Og svo end-
aði bréfið 'með því, að hann játaði henni ást isína
og kvaddi Ihana með kærleikslþrá. Alt var sagt 1
ljóðum, og hann ‘hafði jafnvel iendað síðustu vísuna
með nafninu sínu.
“Ó, að eg Ihefði fengið þetta Ijóðabréf fyr,” hugs-
aði póra. “En nú er það of seint.”
Og með tárin í augunum las hún aftur og aftur
tvær isíðustu vísurnar:
Þig að dylja þess er ei,
þér eg ann af hjarta,
þú ert vona minna, mey,
morgunstjarnan bjarta.
Einn eg kominn er á stjá.
ómar golukliður.
Kveður þig með kærleiksþrá
Kári Þórðar niður
“Hérna er bréf til þín, Kári.” Formaðurinn tók
bréf upp úr vasa sínum og rétti Kára.
Hann leit á bréfið og þekti ih'önd Þóru. Það var
stormur og brim. Kári gekk niður að sjó, settist
þar á stóran fjörustein og opnaði hréfið. pað var
Ijóaðbréf frá póru. Hún sagði hionum frá öllu því,
sem hún gat búiist við, að honum væri geðfelt að
vita. En svo endar hún ibréfið með því að tjá hon-
um, að bún sé öðrum fest og litla blómið fölnað,
sem hann hafi gefið henni.
pað var farið að dimma. Kári ,snéri sér undan
storminum og ihélt bréfinu fast við ibarm sér.
"Kaldur er stormurinn, sem blæs á bakið á mér”
hugsaði ihann. “Þó er kaldari stormurinn, sem næð-
ir nú um huga minn. iSjómennirnir voru að tala u’m
brimið áðan. Þetta kalla eg ekki brim! þeir ættu
að heyra brimhljóðið í brjósti mínu núna!”
Og við skímu deyjandi dagsins las hann aftur
tvær síðustu víisurnar:
Gæfu minnar isól er sest, —
eg segi þér það isem vini, —
af því að eg er öðrum feist:
Oddi Þorlákssyni.
i
Blómið á eg enn, isem þú,
upp í kletta sóttir,
þurt og fölnað það ,er nú. —
póra Baldvinsdóttir.
-----o------—
Páskahret.
Ellla vaknaði snemma á páskadagsmorguninn.
Hún hafði varla getað sofið um nóttina fyrir ferða-
hug. Hún átti að fá að fara með póru til kirkj-
unnar. pegar þær voru komnar út á hlaðið og búnar
að kveðja alt fólkið, þá mundi Ella eftir því, að hún
hafði ekki kvatt engilinn sinn. Hún hljóp því aftur
inn í baðstofuna, tók myndina ofan af þilinu og
kvaddi engilinn sinn með kossi. Svo hengdi hún
engilmyndina aftur upip á þilið og flýtti sér út.
Það mátti heita gott gangfæiri; það var aðeins
dálítil laUsamjöll. Sólin brunaði áfram í sigurdýrð
um heiðbláar ihiminbrautir, og jörðin var alihvít,
eins og engill í skínandi skrúða.
Þóra leiddi Ellu og lét hana lesa fallegan sálm,
sem hún Ihafði kent ihenni. Þær heyrðu skæran
klukknahljóm, þegar þær nálguðust prestsetrið.
Gengu þæir nú beina leið inn í kirkjuna.
Ella sat jhjá ‘Þóru |og hlustaði (hugfangin á
sönginn. Henni varð starsýnt á prestinn fyrir altar-
inu og kertaljósin. Svo steig presturinn í stólinn og
talaði um páskasólina, sem varpar björtum ljóma
niður í þennan dauðans skuggadal. Ella skildi að
vlsu ekki alt, sem hann ,sagði, en svo var 'hún þó
hrifin af guðsþjónuistunni og allri þessari dýrð, að
ihún var með tárin í augunum, þegar ihún kom út úr
kirkjunni.
póra og Ella fengu kaffi á prestsetrinu, og urðu
þær því fegnar, því að þeim var hálfkalt. Svo lögðu
þær af s'tað heimleiðis.
En nú kom upp svartur bakki í norðri, og þessi
sorti ileið yfir loftið með ótrúlegum Ihraða. Og nú
tók að bvestea. Stormurinn þyirlaði lausamjöllinni í
háaloft, og á svipstundu var komin grenjandi stór-
hríð. pað herti frostið, og nú tók að dimma af nóttu.
ipóra var orðin áttaívilt og vissi ekkert, hvað
hún var að fara, Hún Ihélt fast í ihöndina á Ellu og
reyndi að draga 'hana áfram, en Ella var orðin ör-
’magna og lagðist niður í snjóinn.
“!Mér er isVo kalt, og eg er svo þreytt,”’sagði
hún.
Þóra tók hana í fangið og bar hana nokkur skre£
<sn þá stökk hún niður í djúpan skafl og komst ekki
lengra. Hún gróf djúpa holu í skaflinn, fór síðan
niður í holuna með Ellu, og nú skefldi yfir þær.
Stórhríðin grenjaði yfir höfðinu á þeim, en þær
heyrðu varla veðurhljóðið. Þarna voru þær í ágætu
snjólhúsi, og það var miklu betra en að brjótast á-
fram í óveðrinu.
Þær lágu í faðmlögum og grétu báðar. Svo
fóru þær að syngja sálma og biðja algóðan guð að
hjálpa sér.
Nú fór smátt og smátt að draga af Ellu. Hún
var hætt að biðja, hætt að syngja. Hún var sofnuð
í fanginu á póru.
“Ella! elsku Ella mín,” hrópaði póra. “pú 'mátt
ekki isiofna. Vaknaðu! vaknaðu! “Hún varð sivo gagn-
tekin af isoirg og kvíða, að hún misti alla stjórn á
sjálfum sér. Hún hristi Ellu óþyrmil'ega og þrýsti
henni svö fast að brjósti Isér.
“Æi því varstu að vekja mig?” sagði Ella f
svefnrofunum. “Mig langar til að sofa. Mig dreymdi
svo fallegan draum.”
“Hvað dreymdi þig, elsku barnið mitt?” spurði
Þóra.
“Mig dreymdi að eg var úti í isnjó og kulda, og
það var svo di’mt. En þá kom hún mamma mín til
mín. Hún tók mig í fangið og flaug með mig upp
fyrir tunglið, upp fyrir sólina og upp fyrir stjörn-
urnar. Hún flaug með mig alveg upp í Paradís. Eg
sá guð og euglana. Mamma kysti mig og sagði að
við þyrftum aldrei að skilja framar. Og svo fóru
Englarnir að syngja. ó, eg var isvo glöð. En þá var
alt í einu tekið í fæturnar á 'mér og eg var dregin
niður fyrir stjöirnurnar, niður fyrir sólina og niður
fyrir tunglið. Og svo vaknaði eg Ihérna í kuldanum
og myrkrinu. — ó, guði sé lof! Hún mamma mín er
að koma aftur.” Ella þagnaði og söfnaði, ög vaknaði
ekki aftur ihér á jörðu.
Þóra rauf gat á snjóhúsið og gægðist út. það
var farið að skína, og veðrinu hafði ögn slotað.
Hún gri'lti í bæjarhús skamt fyrir ofan sig, og nú
Ihjó fyrir fjallinu.
“Þóra! póra!” var ihrópað í karlmannsróm.
“Já, Ihjálp! 'hjálp!” Ihrópaði Þóra á móti eins
hátt og Ihún hafði róm til. Aftur var íhrópað, og aft-
ur svaraði 'hún. Og nú kom maður og stefndi til
hennar. Hún lofaði guð hástöfum og ibraust upp úr
snjójhúsinu. Nú þekti Ihún manninn. Það var hann
Þórður á Mösfelli.
“Kömdu sæl! póra mín,” sagði pórður,
“Komdu sæll! pórður,” isvaraði Þóra. “Þú kem-
ur eins og engill mér til hjálpar.”
“Eg skildi við Hvam'msfeðga áðan hérna milli
bæjanna. Þeir eru líka að leita. En 'hvar er Ella
litla?” pórður skimaði í kring um sig.
Þóra benti ofan í snjióinn og fór að gráta.
pórður fann Ellu í snjónum, tók hana á vinstri
handlegginn og lét hana íhaliast upp að brjólsti sér.
isíðan rétti hann póru Ihægri höndina og leiddi hana
heim að Mosfelli.
iSigríður tók ástúðlega á móti ihenni, ,lét hana
hátta ofan í rúm og hitaði mjólk handa benni, en
Þórður fór suður að Hvammi til að segja tíðindin.
Það var nú orðið vel ratljóst, og er á daginn leið,
kom glaða sólskin.
'Eftir þrjá daga var Þóra orðin svo hröss, að
hún gat gengið ihei'm að Hvammi. Hún tók engil-
myndina ofan að þilinu og lagði íhana á brjóst Ellu,
þegar ihún var kistulögð.
Jarðarförin var furðu fjöfmenn, og gengu flestir
með tár í augum 'burt frá gröf þessa munaðarlausa
barns, er ‘hafði glatt isvo marga með isólskinsbrosi
sínu og sakleysisblíðu.
“Með klökkum huga kveðjum vér þessa litlu systur,
sagði presturinn í ræðunni, sem ihann flutti yfir
hennar. “Köld og dimm var síðasta nóttin, sem ihún
lifði hér á jörðu, en nú svífur ihún á vængjum
morgunroðams inn í eilífan dag. Nú er Ihún komin
heim til guðs.”
-------o------
SORGARFREGN.
“Konan frá Mosfelli er komin til viðtals,” sagði
isímamærin.
‘XJott”, sagði Kári og fór inn í klefann. Vertið-
in var á enda. Kári var kominn til Reykjavíkur og
’hafði ibeðið um móður sína til viðtals í símann. Nú
var ihún ko'min, og samtalið hófst. pað nægir að
heyra hvað Kári sagði;
“Halló! halló! Hver er þarna? Mamma. Sæl,
mamma mín! Eg ætla bara að láta ykkur vita að eg
er kominn tii Reykjavíkur. Eg ætla að dvelja hérna
um tíma til að fullkomna mig í sundi. Mér er isagt,
að það sé gott að synda hérna í sundlauginni. —
Hvernig er veðrið fyrir norðan? Sólskin? Er nokk-
uð að frétta? — Sorgarfregn? — Hvað segirðu? —
Ella? — Er hún dáin? — í páskahretinu ? >— Skil-
aðu kæru'm kveðjum. Vertu tsæl, elsku mamma!”
Ó, þesisi eilífi ys og þys! Svona eru þessar borg-
ir! Hvergi afdrep! Hvergi griðastaður fyrir þá,
sem þurfa að svala sér í tárum! Kári leit Ihvorki til
'hægri né vinstri. Hann ráfaði suður á mela, til
þess að geta hugsað og harmað í næði. “Eisku Ella
mín. Nú fæ eg aldrei framar að sjá þig í þessu lífi.
Hvað var það nú, sem þú sagðir við mig síðast, þeg-
ar eg kvaddi þig? Jú, nú man eg það. pú sagðist
ætla að Ibiðja guð að gefa mér gott veður á leiðinni
suður. Og eg fékk líka gott ferðaveður. Og svo kystir
iþú mig. Aldrei mun eg gleyma stóru, bláu sakleys-
iraugunum þínum. Nú ertu ekki óhappatalan leng-
ur. Þú ert sæl að fá að fara úr þessum heimi svona
saklaus og óspilt. Ó, að þú mættir birtast 'mér í
draumi!”
------o------
MÁRÍUERLAN.
Það var dýrðlegt vorkvöld. Kári stóð við skóla-
vörðuna og rendi augum yfir fjallalhringinn, fjólu-
'bláan, dimmbláan og eldrauðan. Svo leit hann yfir
borgina og út á sjóinn. Sólin var að ganga undir
bak við jökulinn og stafaði gullnum geislum á sjó-
inn.
“Fagurt er sólarlagið í Reykjavík,” hugsaði
Kári. “Ekki er ofsögum af jþví sagt.”
iHann mátti ekki hugsa til þesfi að faira að sofa.
Honum þótti svo gaman að spóka tsig úti í vorblíð-
unni. Hann reikaði niður að höfninni og gekk með
sjónum, þangað til hann kom að istóru vörugeymslu-
ihúsi. Hann nam staðar við gaflinn á húlsinu og fór
að virða það fyrir 'sér. Varð ihonum þá litið upp í
einn iloftgluggann, og á lítinn fugl, sem barði
vængjunu'm í rúðurnar og vildi komast út. Hann
flögraði upp og niður, en fann hvergi smugu. Hann
leit bænaraugum til Kára, eins og hann vildi segja:
“Góði maður, ihjálpa þú mér!’
“Veslings ógæfusami fugll,” sagði Kári. “Eg
skyldi Ihjálpa þér ef eg gæti, en eg næ ekki til þín.”
IHann istóð þarna góða stund og var að brjóta
iheilann um, Ihvað hann ætti að taka til bragðs, til
þess að bjarga fuglinum. Honum datt í hug, að fara
til mannsins, sem geymdi lykilinn að ihúisinu, ög
biðja hann að opna dyrnar. tEn ihvar átti sá 'maður
heima? pað vi'ssi hann ekki, því Ihann var svo ó-
kunnugur í Iborginni. Hann fór að Ihugsa um, hvort
hann mundi geta náð í mann morguninn eftir, til
að opna húsið, en það var næsta ólíklegt, því að
hann ætlaði að fara með bátnum upp í Borgarnes,
og ibáturinn átti að leggja af stað svo snemma.
Nei, hann sá engin ráð tii að bjarga fuglinum.
Hann ráfaði burt frá húsinu í þungu skapi og var
alt af að Ihugsa um fuglinn. “Það getur ekki verið
guðs vilji, að iþeslsi veslings litli fugl verði hungur-
•morða, en það verður hann, ef enginn bjargar hon-
um.”
Hann fór að reyna að hrinda þessum Ihugsun-
um frá sér, en hann gat ekki gleymt fuglinum. í
Bama 'bili ivarð honum litið á stiga, sem reis upp við
hús þar skamt frá. Hann tók þetta sem bendingu
um það, að Ihann ætti að gera tilraun til að bjarga
fuglinu'm. Og í því tók hann stigann og reisti hann
upp við gaflinn á vörugeymsluhúsinu. Síðan gekk
hann upp stigann og gægðist inn í gluggann.
Jú, þarna kúrði fuglinn í gluggakistunni. pað
var fallegur, 'lltill, Iblágrár fugl, með langt stél.
Það var Máríuerla.
“Æ5, til hvers var eg að reisa upp iþennan stiga?”
bugsaði Kári. “Nú get eg ekki opnað gluggann”
Hann litaðist um og sá engann mann á götunni. Nú
voru góð ráð dýr. Hann mölvaði eina rúðuna með
hnefanum og tók máríuenluna í lófa sinn.
iMáríuerlan titraði af hræðslu. Kári lagði hana
snöggvast upp að vanga sínum og lét íhana svo á
hægri öxl sér. Par stóð Ihún eitt augnablik og rak
nefið í íeyrað á Kára, eins og Ihún væri að 'hvísla
einlhverju að ihonum. Svo tók hún viðbragð og flaug
upp í háaloft. ,
Kári tifaði niður stigann og þóttist iheppinn,
að enginn skyldi hafa iséð til isdn. En sem hann
var að stíga niður á götuna, þá köm einhver aftan
að honum og lagði höndina þungt á öxlina á honum.
Kári leit við og sá tvo lögreglumenn.
“Failleg er næturiðjan þín,” sagði annar þeirra ,
og tók utan um hægri höndina á Kára, en hinn tók
utan um þá ivinstri. Kári bað þá í öllum bænum að
sleppa sér, og fór að afsaka sig með því, að hann
hefði verið að bjarga litlum fugli, sem var lokaður
inni í húsinu, en þeir trúðu ekki einu orði af því,
sem Ihann sagði. ipeir leiddu hann á 'milli sín beina
leið upp í fangel'sið og lét hann lí skuggalegan
klefa.
IKára þ<\tti æði ömmf.egt að kúra í jþessum
dimma klefa. “Hér hafa orðið skjót umskifti,” hugs-
aði íhann. Áðan var máríuerlan lokuð inni, en eg var
frjáls. Nú flýgur hún frjáls og glöð um geiminn,
en eg er lokaður inni, eins og fugl í 'búri.” Hann
fleygði sér upp í ihengirúm, sem var í klefanu'm, og
ætlaði að reyna að sofna, en honum kom ekki dúr
á auga, enda fanst honum nóttin vera lengi að líða.
Um morguninn vor dyrnar loksints opnaðar, og
fangavörðurinn kom með mjof.k og ibrauð Jhanda
honum. Hann drakk mjólkina, en hafði enga lyst á
brauðinu. Hann varð guðsfeginn, þegar lögreglu-
maðurinn kom og fór með hann inn í réttarsalinn.
Það var þó talsverð tilbreyting í því. Dómarinn sat I
, sæti sínu. Og nú byrjaði réttarhaldið.
( Framh.
Professional Cards
DR. B. J. BRANDSON 218-220 MKDIOAIj ARTS BIíDO. Oor. Grabam and Kennedy Sta. Phone: A-1834 Offlce tlmar: 2—3 Heímlll: 778 Vlctor St. Phone: A-7122 Winnlpeg, Manltoba THOMAS H. JOHNSON og H. A. BERGMANN isl. lögfræðingar Skrlfstofa: Rooni 811 Mo.Arthnr Bullding, Portage Ave. P. O. Boi 165« Phones: A-6849 og A-684*
DR. 0. BJORNSON 218-220 MEDIOAL ARTS BtDO. Cor. Graham and Kennedy Sta. Plione: A-1834 Offlce tlmar: 2—s Helmlll: 764 Vlctor St. Phone: A-7386 Wlnnipeg, Manltoba W. J. LINDAL, J. H. I.INDAL B. STEFANSSON Islenzklr lögfræðlngar 3 Home Investment Bullding 468 Main Street. Tals.: A 4963 Peir hafa einnig skrlfstofur a8 Lundar, Riverton, Glmll og Plney og eru þar a6 hitta á eftirfylgj- andi timum: Lundar: annan hvern mlðvtkudag Rlv6rton: Eyrsta fimtudag. Gimliá Fyrsta mlðvikudag Plney: þrl5Ja föstudag 1 hverjum mánu8i
DR. B. H. OLSON 216-220 MEDICAD ARTS BIiDG. Cor. Graliam and Kennedy Sts. Phone: A-1834 OlTIce Hours: 3 to 5 Hchnili: 723 Alverstone St. Winnipeg, Manitoba
ARNI ANDERSON ísl. lögmaður í félagi við E. P. Garland Skrifst.: 801 Electric Rail- way Ghambers Talsími: A-21«7
DR J. STEFANSSON 216-220 MEDICAI, ARTS BEDG. Cor. Graham and Kennedy Sts. Stundar augna, eyrna. nef og kverka sjúkdðma.—Er a6 hitta kl. 10-12 f.b. og 2-5 e.h. Talsími: A-1834. HeimUi: 373 Rivor Ave. Tals. F-2691.
A. G. EGGERTSSON LL.B. fsl. lögfræðmgur Hefir rétt til að flytja mál bæði í Man. og Sask. Skrifstofa: Wynyard, Sask.
DR. B. M. HALLDORSSON 401 Boyd Buiiding Oor. Portage Ave. og Edmonton Stundar sérstaklega berklasýkl og aSra lungnasjúkdðma. Er a6 finna á skrifstofunnl kl. 11—12 f.h. og 21—4 e.h. Sírni: A-3521. Heimili: 4 6 Allovay Ave. Tal- simi: B-3168.
[I|~ 1 1 II il lilll 1 II Pltlll Phons: Garry 261€ 1 JenkinsShoeCo. | 689 Notr* Danw Avenua
DR. A. BLONDAL 818 Somerset Bldg. Stundar sérataklega kvenna ©g barna sjúkdóma.
Er að hitta frá kl. 10—12 f. h.
o tn o e. n. Office Phone N-6410 Heimili 806 Victer Str. Siml A 8180. A. S. Bardal 84a Sherbrooke St. Selur líkkistui og annast um útfarir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfrem- ur selur Kann alskonar minnisvarða og legeteina. Skrifst. talsi.nl N á«08 HeimUlg talsfmi N 6307
DR. Kr. J. AUSTMANN 848 Somerset Blk. Viðtalstími T—8 e. h- Heimili 469 Simooe, * Office A-2737. res. B-7288-
EINA ÍSLENZKA Bifreiða-aðgerðarstöðin I borginni Hér þarf ekki a8 bíða von úr vltl. viti. Vinna 611 ábyrgst og leyst at henöi fljðtt og vel. J. A. Jóhannsson. 644 Burneil Street F. B-8164. A8 baki Sarg. Fire Hal
DR. J. OLSON Tannlæknir 216-220 MEDICAL ARTS BLDG. Cor. Grabam and Kennedy Ste. Talsími A 8621 Heimili: Tais. Sh. 3217
Dr. AMELIA J. AXFORD Ohiropractor 516 Avenue Blk., Winnipeg Phone: Office: N-8487 House: B-3465 Hours: 11-12, 2-6 Consultation free.
J. G. SNÆDAL Tannlæknir 614 Samerset Block Cor. Portage Ave. og Donald St. Talsími: A-8889
Vér leggjnm sérstaka álierzlu á aö selja meðul eftir forskriftuin lækna. Illn beztu lyf, sem hægt er að fá erti notuð eingöngu. . pegar þér komið með forskrliftum til vor megið þjer vera viss nm að fá rétt það seni lækn- irinn tekur til. COLCDEPGH & CO., Notre Dame and Slierbrooke Phones: N-7659—7650 Giftingaleyfisbréf geld ralsfmar: Skrifstofa: N-6225 Heimili: A-7996 HALLDÓR SIGIJRDSSON General Contractor 808 Great West. Perm. Lo&n Bldg. 356 Main St.
1 Munið Símanúmerið A 6483 ;> og pantið meðöl yðar hjá oss. — 1 Sendi6 pantanir samstundis. Vér ;! afgrei6um forskriftir með sam- ! vizkusemi og vörugæ6i eru ðyggj- ; andi, enda höfum vér magrra ára ; lærdðmsríka reynslu að baki. — I; Allar tegundir lyfja, vindlar, is- ; rjðmi, sætindi, ritföng, tóbak o. fl. McBURNEY’S Drug Store ;| Cor Arlington og Notre Dame Ave JOSEPH TAVLOR L0 gta ksmacur Helmilistals.: St. John 1844 Skrlfstofu-Tftls.: A 6557 Tekur lögtaki bæ8l húsalelgusknUH : ve'ðskuldir, vlxlaskuldlr. AfgreiCir ai : sem að lögum lýtur. Skritstofa 255 Maio Stm*«
J. J. SWANSON & CO. Verzla með fasteignir. Sjá um leigu á húsum. Annast lán, eldsábyrgð o. fl. 808 Paris Bldg. Phones. A-6349—A-6310 Wrksrofii Tftls.: Heima Tali. A-83S3 A-0384 G. L. STEPHENSON Plumber Allskonar rafmagnsáhöld, svo sem straujárn víra. alinr tegiindlr af glösuni og aflvaka (hntterles) ‘Yerkstofa: 676 Home St.
! [
Endurnýið Reiðhjólið! Irátið ekki lijá líða að encltir- nýjft reiðlijólið yðar, áðnr cn incstu annimar byrja. Koniið mcð |»að nú |>c}i:ap oí? látið Mr. Stehbins gefa yður kostnaðar áictlun. — Vandað vcrk ábyrgst. (Maðurinn sem allir kannast við) S. L. STEBBINS 634 Notre Dame, Wlnnlpeg
Giftinga og ii/ Jarðarfara- DIOm með litlum fyrirvara Birch hlómsali 616 Portage Ave. Tals. B720 ST IOHN 2 RING 3
!