Lögberg - 02.04.1925, Blaðsíða 8

Lögberg - 02.04.1925, Blaðsíða 8
Bla. 8 LöOBBRG, FEMTUL-iGINN 2. APRfL. 1925. Wonderland Theatre Fimtu,- Föstu- og Laugardag þessa viku MARY PICKFORD 'Dorothy Vernpn of Haddon Hair Mánudag, Þriðjudag og Miðvikudag næstu viku “IT IS THE LAW” Or Bænum. Látin þann 16 marz, í grend við Árnes P. O. Man., Mrs Marín Arn- fríður Anderson. Látinn á Betel, þann 26. marz, Baldvin Sveinbjarnarson, Aust- firðingur að ætt. Uppbúið herbergi til leigu, 563 Maryland st. rétt hjá Sargent. • Talsími B-3952. Þeir íslendingar er vilja komast í samband við íslendingafélagið í New York eru ]beðnir að snúa sér til forseta félagsins Tlhorarins Thorgríms'sonar, 5 Affate Court, Broioklyn, N- Y. eða skrifara Thor- stínu S. Jackson, 531 W. 122nd str. New York, talsími Morningside 5858. •' * M Orðið hefir að fresta fyrirlestri þeim, er hr. Einar H. Kvaran ætl- aði að flytja í Selkirk næstkom- andi föstudag ,sökum annarar samkomu, er auglýst hafði verið bar í bænum sama kveldið. Sunudaginn 5. apríl (Pálma- sunnudag) messar séVa H. Sig- mar í kirkjunni í Leslie kl. 3.15 e. h. Kj. 1 sama dag les hann með fermingahbörnum á heimili Mr. og Mrs. J. ólafsson í Leslie-bæ. Þetta er fólk beðið að athuga. Ungmennum, sem vilja vera með í fermingarundirbúningi þar, er boðið að innritast í deild þá Allir eru boðnir og velkomnir til guðs- þjónustu. íslendingadagsnefndin boðar til almenns fundar í neðri sal Good- tepmlarahússins, miðvikudagskv. 8. apríl kl. 8.. í umboði nefndarinnar, S. Gíslason. Þann 7. þ. m. verður haldin skemtisamkoma í Árborg, fjöl- breytt mjög. Flytur séra Jónas A Sigurðsson, forseti Þjóðræknisfé- lagsins þar ræðu. Auk þess skemt- ir unglingasöngflokkur undir stjórn Brynjólfs Þorlákssonar og margt fleira fer þar fram til skemtunar og fróðleiks. Landar góðir! Látið etkki hjá líða að fjölmenna á samkomu þessa. Munið eftir að leikurinn Skuggasveinn verður sýndur í Goodtemplararhúsinu dagana 6. og 7. þ. m. Hefir til leiksins ver- ið vand'að hið besta og þarf því ekki að efa að húsfyllir verði bæÖi kveldin. Mr. Chr. Johnson, tihsmiður, fé- lagi þeirra Goodman Bros. hér í borginni, vann fyrstu verðlaun í "Curling” samkepni, sem fram fór í sambandi við gestavikuna. Hlaut ha'nn tvo forkunnar fagra skraut- muni fyrir afrek sitt. Landinn er ekki við eina fjölina feldur. Sigr- ar hans eru ekki bundnir við neitt eitt viðfangsefni öðru fremur. Síðasti fundur Stúdentafélag.sins á þessu starfsári verður haldinn næsta laugardagskveld klukkan 8.30 í samkomusal Sambandskirkju Á þeim fundi verða heiðursgestir félagsins allir þeir íslenskir náms. menn og námsmeyjar, sem útskrif- ast í vor frá hinum ýmsu deildum háskólans, og kennaraskólanum. Verið er að undirfbúa hina breyti- legustu skemtun fyrir kvöldið- Fjölmennið, íslenskt námsfólk! hvort þið tilheyrið félaginu eða ekki. G. Eyjólfíson. ritari. ■ ... 4 — Gjöf til Betel. f minningu Kristínar Joflins- ton frá systkynum hennar í Winnipeg ................. $50.00 Það er vonandi að fleiri verðt til að gefa til Betel í minningu um látna ástvini, því það er bæði fallegur og góður siður og um leið styrkir stofnunina, sem brýn þörf er á. Innilega þakkað fyrir, J. Jóhannesson féhirðir 675 McDermot, Wpg. FYRIRLESTUR. “Andarnir i varðhaldi" — Hverj ir eru þessir andar? Hvað og hv^r er þetta varðlhald? Hvenær pré- dikaði Kristur fyrir öndunum í varðhaldinu? Fór Kristur virki- lega niður í vítið? — Komið og neyrið hina meistaralegu skýringu þessa torskilda texta í kirkjunni nr. 603 Alverstone stræti, sunnu. daginn fimta apríl, klukkan sjö síð degis. Munið einnig eftir að sækja fyrirlesturinn á heimili undirrit- aðs 737 Alverstone, st. fimtudags- kveldið kl. 8. — Allir boðnir og velkomnir. Virðingarfylst, Davíð Guðbrandsson. Til sölu. Er indælt hús á ágætum stað í borinni; öll þægindi, sem nútíð- ar heimili fylgja. Góðir iskilmálar. Frekari upplýsingar gefur B. M. Long. 620 Alverstone st. SAMTININGUR. Vakirðu? Þú leitaðir auðnu í útlendum reit. Nú, ef til vill, siturðu hljóður. Verkanna þurfti þín vanrækta sveit. Vakirðu, liðhlaupi góður? Orð eru gagnslaus í ættjarðar garð, ef ekkert er framkvæmt í verki. Unz deilirðu henni þinn drengskap- ar arð, hún dárar þín iðrunarmerki. Tvenskonar œfi. Brims í róti berst oss á, bylgjur hóta köldum dauða, duggur brjótum dröngum hjá, dagar þrjóta á ströndum nauða. Er vor skjótast uppfylt þrá, einatt hljótum væga dóma, knerir fljóta á kyrrum sjá, við hvíldar njótum meðal blóma. Fuglinn. Þótt frjáls J>ú víða fljúgir kring, þig faðmi serhvcr ihlynur; mér heyrist titra af tilfinning töfrarödd þín, vinur. Von er þótt við missum móð, því margt er stríð í heimi, er saklaus fuglinn syngur ljóð sorgar blandin hreimi. Að oss streyma öldur kífs, undir blæða trega; ýmsir gleyma í önnum lífs því eina nauðsynlega. Ef ei þú hýsir aridans gróm, þig auðnu dísin metur, þér dýrmæt rísa af dái blóm, dagar Iýsa betur. ,Þú getur naumast glaðst til hálfs, þá gnauðin vetrar linna; um grænan völl þótt gangir frjáls þú grætur örlg hinna. R. J. Davíðsson. Mr. Grímur Laxdal frá Leslie, Sa»k., sem dvalið hefir um hríð norður í Árborg, hjá dóttur sinni og tengdasyni, Dr. og Mrs. Sveini E. Björnsson, kom til borgarinnar á þriðjudaginn. — Kvað hann lasleika meðal almennings þar í bygðinni allútbreiddan. Læknir- inn hafði legið rúmfastur í nokkra daga og sömuleiðis dóttir þeirra hjóna. Prestsmata. Á nokkrum undanförnum þing- um hefir vorið rætt um prests- mötu og afnám hennar eða að minsta kosti einhvern mælikvarða eða undirstððu, sem hægt væri að byggja á til sölu. En endalykt hef- ir orðið sama og engin önnur en sú sem verið hefir, að menn gætu ^engið keyptar þessar svonefndu prestsmötur fyrir þá helst það verð, sem svaraði til þess að höf- uðstóllinn eða verðið svaraði til þess að ársrentur af upphæðinni væru sem næst því sem eins árs prestsmata væri að krónutali. Undanfarin ár hefir smjörverð verið í verðlagsskránni 3.40—3.60 pr. kílóið. Þar sem því að væri t. d. 20 kg. smjör í prestsmötu (og það er á ýmsum jörðum) þá kost- aði prestsmata á þeim jörðum eft- ir þessari reglu 8—900 kr. En þetta er ranglátt vegna þess, að minsta kosti fram að síðasta jarðarmati, voru þessar prests- mötu-jarðir seldar fyrir nálega alveg sama verð og aðrar jarðir, kúgildin voru svo lítils metin. Af því leiðir það, að þessar jarðlr yrðu allra jarða dýrastar. Enn- fremur eru þessar upphæðir svo miklar að mörgum er ófært að leggja út í að kaupa prestsmöt- una í viðbót við jörðina. En hvernig eru þessar prestsmötur tilorðnar? Sennilegast á þann hátt að einhverjir þeir er öðrum fremur hafa haft ástæður efna- lega og einnig það fólk er viljað hefir ieggja sem mest í “Guðs- kistuna” hafa leyft það að prest- ar fengju leigu af nokkru af kú- gildúm af eignarjörðum þess um óákveðinn tíma á meðan prestar væru fátækir og engin launalög þá komin um laun handa þeim sem viðunanleg væru. Sé þetta rétt, sem líklegt er, þá sannast það með því að kirkjusjóður á ekki einu sinni kúgildin iog þá jafnframt það, að þetta prestsmötugjald er fclátt áfram ranglátt og er því að- eins ein af eldgömlu kreddunum og vitleysa, sem kirkjan heldur dauðahaldi í, sér til tjóns. Þar sem nú að svo stendur á að þess- ar prestsmötukvaðir eru víðsveg- ar um alt land, þá virtist. það eðli- legast að þingmenn flestir væru einhuga um það að koma þessu máli fyrir á heppilegan hátt. Það réttasta væri að afnema allar prestsmötur og gera ekki einu sinni tilkall til kúgilda og ætti kirkjusjóður að senda öllum þeim sem prestsmötu hafa goldið þakk- arávarp, ásamt skírteini um það að nú þyrftu þeir ekki oftar að greiða prestsmötu. Svona ætti það að verða.. En þar sem það er ekki víst að núverandi þingmenn séu svo miklir hlaupagarpar, að þeir treystist til þess svona alt í einu, þá yrði að virða það til Ibetri veg- ar þó þeir gætu það ekki. Hinsveg- ar vil eg leyfa mér hér með að skora á alla núverandi þingmenn að taka þetta mál til rækilegrar yfirvegunar og finna einhvern sanngjarnan og ákveðinn mæli- kvarða fyrir sölu á prestsmötunni en sanngjarnt þykir mér og mjög mörgum, sem eg hefi talað við það ekki vera, ef hlutaðeigéndur þurfa að fcorga meira en kúgildin. jan. 1925. Björn Guðmundsson. Lögrétta. Ánœgjuleg stund. Á miðvikudagskvöldið 25 marz höfðu stúkurnar “Skuld” og “Hekla” samkomu til þess að heiðra og fagna rithöfundi E. H. Kvaran og frú hans, sem reglu- systkinum og kærkomnum gestum heiman úr átthögum íslands. Samkoman hófst um kl. 9 og stóð til miðnættis með þeirri rausn og skörungskap, sem íslendingum einum er lagið, og var henni stýrt af stórtemplara Sumarliða Matt- hews, svo vel að sómi var að. Þá er heiðursgestirnir höfðu gengið til sætis, Ibað forseti alla að syngja “Hvað er svo glatt” en að því búnu hófust ræðuhöld. Eyrst var mælt fyrir minni heið- ursgestanna, og gerði það sr. Rún- ólfur Marteinsson. Flutti hann langt og snjalt erindi til þeirra hjóna, sem fann bergmál í hjört- um allra viðstaddra. Miss Ingi- björg Jóhannesson talaði nokkur orð til frú Kvaran og afhentf henni blómvönd frá stúkunum, sem vott um hlýhug þann er stúk- urnar bæru til hennar. iNæstur talaði G. í. Hjaltalln nokkur orð og flutti kvæði með hlýjum árnaðaróskum til hjón- anna. Að því loknu hóf Bjarni Magnússon máls og mintist margs í sambandi við bindindisstarfsemi E. H. Kvaran og þeirra hjóna, var gerður góður rómur að ræðu hans. Síðan söng söngflokkur templ- ara nokkur lög, íslensk, og fékk að launum dynjandi lófaklapp a- heyrendanna, sem hann og átti skilið. Er vonandi að hann eigf eftir að láta okkur, sem söng unnum njóta fleiri glaðra og á- nægjulegra stunda áður en vetri lýkur og sumarannir byrja. Einn- ig lék Mr. E. Oddleifsson tvö lög, saxjaphone-solo svo ihverjum manni var ljúft að heyra. Þá stóð heiðursgesturinn E. H.' Kvaran upp og þakkaði með ræðu fyrir þann hlýja hug, er hann fyndi hjá öllum til þeirra hjón- anna. Mintist hann einnig á starf og baráttu reglubræðra okkar heima á íslandi, og hve erfiður væri róðurinn þegar stórveldin vildu ekki veita lítilmagnanum; en áfram mundi samt haldið. Þá flutti Egill H. Fáfnis kvæði og Miss JócEs Sigurðsson las upp fallegt kvæði, að foáðum var gerð- ur góður rómur og lófaklapp. Söng þá sðngflokkurinn "ó guð vors landö” og síðan allir “Eld- gamla ísafold”. Kom sér þá vel að konur höfðu haft íslenskan viðfoúnað í kjallaranum og buðu öllum til drykkju þ. e. a. s. kaffi og kræsingar. Þá er allir voru sestir sté GunnlaugUr Jóhannsson í stólinn og flutti forag mikinn E. TMlllS, J. B, THOBLEIfSSDN Við seljum úr, klukkur og ýmsa gul og silfur-muni, ódýrar en flestir aðrir. Allar vörur vandaðar og ábyrgðar. Vandað verk á öllum úr aðgerðum, klukkum og öðru sem handverki okkar tilheyrir. Thomas Jewelry Go. 666 Sargent Ave. Tals. B7489 EMIL JOHNSON 09 UHOMS Service Electric Rafmagns Oontracting — Alls- kyns rafmagnsáhðld seld og við þau gert — Seljum Moffat og McClary Eldavélar og höfum þær til sýnis á verkstæði voru. 524 Sargent Ave. (gamla John- sons byggingin við Young 9t Yerkst. B-1507. Heim. A-7286. orktan af ’Lúðvík Kristjánssyni um húsbrunann og viðgjörðina. Voru þar í nefndir allir þeir er að endurreisninni unnu log svo vel var foragurinn orktur og fluttar að menn hlógu uns tár komu í augun. Að skilnaði mælti Dr. B. B. Jónsson nokkur vel valin orð. Þá bað forseti alla að syngja þjóð- söng íslendinga, en að því loknu fóru allir iheim með minningar um ánægju og gleðiríka kvöldstund með óskatiörnum Islands. Viðstaddur. Heyrum sjaldnast málið okkar mjúka, mænir þráin yfir í feðra-land; bliknuð lauf og fokstrá víða fjúka, flökta um hjarn og eyðimerkur- sand. Og þótt sonu eigum vér og dætur, öðruvísi er þeirra tízku-dans,. Visnar greinar vilj’a ei festa rætur í viltum skógum þessa mikla lands. GamalmennL Lestrarfélagssamkoma í Arborg. Þann 20. þ. m-, hélt lestrarfé. lagið “Fróðleikshvöt’’ hina árlegu skemti-samkomu ®ína til styrktar félagsskapnum- Er nú félagsskapur þessi átján ára gamall- Eiríkur Jóhannsson er forgöngumaður fyrir stofnun þess og núverandi forseti- Stofnsafnið var fjórtán bækur. Nú telur fé- lagið um 500 foækur og um 60 meðlimi- Það er ummæli félags- manna, að fjör þess og lífsþróttur líkist lífi og æskufjöri meyjar, sem er átján ára að aldri. Vel sóttu menn isamkomu þessa. enda vel til hennar stofnað eftir vanda- SéraHjörtur J. Leo flutti er- indi um þjóðræknismál- Séra Jó. hann Bjarnason las stutta ferða- sðgu eftir W. L- Moody. Bæði voru erindi þessi uppbyggileg. Ung- lingafloíkkur lék á hljóðfæri og söngflokkur allstór söng, undir istjórn Brynjólfls Þorlákssonar. Þótti það hvorutveggja góð skemt- un. Hér er nú söngðld mikil. Þrír mismunaridi flokkar ihafa tekið að sér að halda uppi .skemtunum. Fer skiftingin eftir aldri: börn, hálf- vaxnir unglingar og fullorðið fólk. iSöngflokkurinn undir stjórn Mr Þorlákssonar söng mörg falleg lög og vakti hugsanir og tilfinn- ingar mismunandi, eftir ásigkomu- lagi áheyranda. Það virðist mér aðal atriðið í samlbandi við allan pöng og sögu. Ræða eða rödd, sem ekki ikemur á hreyfing í hiiga á- heyranda, skilur þar af leiðandi tiltölulega lítið eftir hjá mönnum, þegar upp er staðið. Islensk lög voru aðallega isung. in í þetta isinn, þó voru nokkur undir enskum texta. Fanst mér verða all-lítið úr þeim “ensku tón- um” í samanburði við hinar draumrænu og hugfolíðu raddir Is- lands. Var það alls ekki sök þeirra er á héldu- Það má vel vera að þesfei ensku lög hafi sitt ágæti til að bera , en hivensdagsleg virðist mér tórihreyfing þeirra, og lítt hygg eg að þau foafi flutt áheyr. endunum. Um íslenbku lögin er öðru máli að gegna. Þar býr draumþrunginn, alvörugefinn, lítt skiljanlegur en þó ljúfur og laðandi andi, sem leiðir huga áheyrandans fram og aftur um hinar huldu leiðir ímynd unaraflsins, og seiðir upp ótal enáurminningar fortíðarinnar. Kom þetta fram, að mér virtist í einu lagi sérstaklega: “Eg hlýddl á nykursinis söngvaseið’’ etc. Eg LINGERIE BÚÐIN að 625 Sargent Ave. Þegar þér þurfiðað láta gera HEMSTICH- ING þá gleymið ekki að koma í nýju búð- inaáSargent. Alt verk gert fljótt og vel. Allskonarsaumar gerðir og þar fæst ýmis- leg sem kvenfólk þarfnast. Mrs. S, Gunnlaugsson, eigandi Tals. B 7327 Winnipeá Dantka Bakaríið Selur beztu vörur fyrir lægst verð. Pantonir afgreiddat bæöi fljótt og vel. Fjölbreytt úrval. ..Hrein og lipur viðskifti... Danish Baking Co. 631 Sargent Ave. Sím,i A-5638 NYJAR VORUBIRGDIR! Timbur, fjaiviður af öllum tegundum, geirettur og als- , konar aðrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar. Komið og sjáið vörur vorar. Vér erum ætíð glaðir að sýna þær þó ekkert sé keypt. The Empire Sash & DoorCo. Limited Office: 6th Floor Bank of Hamilton Chambers Yard: HENRY AVE. EAST. - - WINNIPEG, MAN. SIGMAR BR0S. 709 GreaA-West Perm. Bldg. 356 Main Street Selja hús, lóðir og bújarðir. Útvega lán og eldsábyrgð. Byggja fyrir þá. sem iþess óska. rnwne: I AUGLÝSIÐ 1 LÖGBERGI þóttist sjá, að söngstjóranum hafði tekist að blása í forjóst þeim sem sungu, hinum andlegu áhrif- um í ljóði þeslsu. Var það unun að heyra. Þá var og sungið lagið: “Þú blá- fjallageimur!” atc- Það lag held eg mætti kallast: “íslandfe lag.’’ Fátt mun láta bet. ur í íslensiku eyra En í iþetta sinn vakti lagið enga þægilega tilfinn- ingu í huga mér. Hinn háværi undirtónn, sem nú er forúkaður í samfoandi við lagið, gerir það að verkum, að áforif þess verða tals- vert önnur, en ella. Líklega er undirtónn þessi eða “Humming” eftir fyrirmæium tískunnar, því ekki hægt að ásaka neinn einstak- ann. Ekki er það ásetningur minn að reyna til að sitýfa hina gyltu cg köldu vængi tískunnar. Fleira var það í isamibandi við lag þetta, sem tókst miður í þetta sinn. — Annars fór 'skemtanin vel fram- Þess er eg fullvís, að isöngurinn íslenlski mundi reynast einhver sterkasti þátturinn til þesls að halda við íslenlskri menning hér. lendis. Tungumál söngsinls sikilja yngri og eldri, sé það rétt fram iborið, og þótt prédikað isé fyrir komandi kynslóð forna frægð og sögur, hygg eg það taki lítið í hnjúkana, en með rödd söngsins er hægt að komast að hugsun og hjarta þeirra yngri, tsvo þeim verði Ijóst um verðmæti íslenskrar menningar, og að þeir læri að unna henni sem Isinni eigin. Ef frömuð- ir hinnar íslensku þjóðernishreyf- ingar hérlendis, fengju liðsafla söngsins í lið með sér, mundi á- rangurinn brátt koma í Ijós. Fátt mun hafa reynst frændum okkar, Niorðmönnum í Bandaríkjunum, meiri vegsauki en söngflokkurinn frægi, isem stofnaður var við Ólafs helga skólann. Hann ferð. aðist víða um Bandaríkin, og gat sér góðan -orðstír hvarvetna. Engin ástæða er fyrir íslend- inga að vera eftirbátar frænda sinna í þessu, ef eining og sam- tðk eru með. |Nú er veturinn sýnilega farinn að lina tökum sínum á náttúrunni. Þetta er annar dagur, sem kenn- ir verulegs hlýleika og stillu. Menn og iskepnur fagna yfir þvi að geta rétt sig úr hrukkunum og viðrað sig úti í ihinu hlýja vor sólskini, eftir hið þunga og ægi- lega vetrarfarg. Snjór var orðinn hér isvo djúpur, að þótti með fá- dæmum. En nú er hann á förum, og verður gleymdur áður en kem- ur næst snjór. S. S- C. Stoni: A415S 1*1. Myndaatofa WALTER’S PHOTO STUDIO Kristín Bjarnason oigandi Nseit vií Lycauac ' háaiC 290 Portage Ave. Winnipeg. Fáein eintök eru enn óseld af Ijóöaþýöingum Steingríms heitins Thorsteinssonar 1. bindi. Verð $2.00. Einnig Rökkur, II. eftir Axel Thorsteinsson, 50c heftið. Bæk- ur þessar fást hjá undirrituðum. Þórður Thorsteinsson, 552 Bannatyne Ave., Winnipeg. HARRY CREAMER Hagkvæmileg atger® á úrum, klukkum og gullstássl. SenditS oss í pósti þaB, sem þér þurfifi atS láta gera viB af þessum tegundum. VandaS verk. Fljót afgreiBsla. Og meBmæll, sé þeirra óskaB. VerB mjög sarnngjamt. 499 Notre Dame Ave. Slml: N-7873 Winnipag Eina litunarhúsið íslenzka í borginni Heirosækið ávalt Dubois L,imited Lita og hreinsa allar tegundir fata, svo þau Ifta út sem ný. Vér erum þeireinu í borginni er lita hattfjaðrir.— Lipur af- greiðsla. vönduð vinna. Eigendur: Árni Goodman, RagnarSwanson 276 Hargrav* St. Sími A3763 Winn peg Rit Þjóðræknisfélagsins Öllum þjóðræknum íslendingum ber að kaupa þaö. Þaö kostar að eins $1.00, en gjörir hvern, er kaupir, góðan off fróðan. Aöal útsölu þess hefir Arnljótur Björnsson Olson, 594 Alverstone str., Winnipeg. Útsölumenn í öðrum bygðum eru þessir: Björn B. Olson, Gimli. Björn S- Magnússon, Árnes. Guðrn. Ó. Einarsson Árborg. Th. J. Gíslason, Brown. Sigurður J. Magnússon, Piney. Miss Inga Isfeld, W.peg Beaoh. Árni Björnsson, Reykjavík. GuSmundur Jónsson, Vogar. Trausti ísfeld, Selkirk. Ágúst Eyjólfsson, Langruth. Ágúst Jónsson, Winnipegosis. G- J. Oleson, Glenboro. Jósef Davíðsson, Baldur. Sig. SigurSsson, Poplar Park. Sig. J. Vidal, Hriausa. Halldór Egilsson, Swan River. Olafur Thorlacius, Dolly Bay. Jón Halldórsson, Sinclair. Björn Þórðarson, Beckville. Þorb. Þorfoergsson, Saskatoon. Mrs. Halldóra Gíslason Wynyard. Tömas Benjamínsson* Elfros. Sra J. A. Sigurðsson, Churchbr. Guðm. Ólafsson, Tantallon. Mrs. Anna Sigurbjörnss, Leslie. Jónas Stephensen, Mozart. Sig. Stefánsson, Kristnes. J. J. Húnford, Markerville. Mrs.C . H. Gíslason, Seattle. ’Halldór Sæmundsson, Blaine. Thor. Bjarnason, Pembina. Jónas S. Bergman, Gardar. Þorl. Þorfinnsson, Mountain. Jósef Einarsson, Hensel. J. K. Einarsson, Hallson. Kári B. Snyfeld, Chicago. J. É. Johnson, Minneota. útsölumenn, í þeim bygðarlojgum, Þörfin kallar fyrir fleiri afbragðs- sem hér eru ekki nefnd. Komið án tafar. A. B. O. A STR0NG RELIABLE BUSINESS SCHOOL D. F. FERGUSON Principal President It will pay you again and again to train in Winnipeg where employment is at its best and where you can attend the Success Business College whose graduates are given preference by thousands of employers and where you can step right from school into a good position as soon as your course is finished. The Success Business College, Winni- peg, is a strong, reliable school—its superior service has resulted in its annual enrollment greatly exceeding the combined yearly attendance of all other Business Colleges in the whole Province of Manitoba. Open all the year. Enroll at any time. Write for free prospectus. THE BUSINESS COLLEGE Limited 3SSyí PORTAGE AVE. — WINNIPEG, MAN. CANAOIAN PACIFIC Klmski paf arseðlar ódýrir mjög frá öllum stöBum 1 Eívröpu.— Sigllngar meB stuttu miili- bill, milll Liverpool, Glasgow og Canada. óvlðjafnanleg þjónusta. — Fljót ferð. tjrvals f:eða. Beztu þtegindi. UmboBsmenn Oanadian Factflo fél. mæta öllum Islenzkum farþegum I Lelth, fylgja þeim til Glasgow og gera þar fullnaBarráBstafanir. Vér hjálpum fólkl, sem ætlar til Hv röpu, til aB fá farbréf og annaB sllkv LeitiB frekari upplýsinga hjá um- boBsmanni vorum á staBnum, eBa skrifiB W. C. CASEÍY, General Agent 364 Maln St. Wlnnlpeg, Man. eBa H. S "ardal, Sherbrooke St. Wlnnipeg Mobile, Polarine Olía Gasolin. Red’sService Station Maryland og Sargent. PhoneBI900 A. BHMHAN, Prop. FKFH 8KRV1CB ON RtJNWAY . CCP AN DIFFEBENTIAL SBEAM Blómadeildin Nafnkunna Allar tegundir fegurstu blóma við hvaða tækifæri sem er, Pantanir afgreiddar tafarlauat Islenzka töluð í deildinni. Hringja má upp á sunnudög- um B 6151. Robinson’s Dept. Store, Winnipeg A. C. JOHNSON 907 Confederation I,lfe Bldg. WIN.MPI5G Annast um fasteigmr manna. Tekur að sér aÖ ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábyrgð og bif- reiða áibyrgðir. Skriflegum fyr- irspurnum svarað samstundis. Srifatofusíml: A-4263 Húseíml: B-332S King George Hotel (Cor. King & Alexander) Vér höfum tekið þetta ágseta Hotel á leigu og veitum rtö- skiftavinuin öll nýtízfcu þæg- indi. Skemtileg herbergi t£) leigu fyrir lengri efta afcemri tíma, fyrir mjög *&nngjarnt verð. petta er eina bótelK) ( borginni, sem fslendlngar stjórna. Th. Bjamanon, Mrs. Swainson, aS 627 Sargent Avenue, W.peg, hefir ával tyrirliggjandi úrvalabirgBir af nýtlzku kvanhöttum, Hún er eine Ul. konan aem sllka verzlun rekur I Winnipg. Islendingar, látiS Mra. Swain- aon njóta viðakifta 'ðar

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.