Lögberg - 07.05.1925, Side 1

Lögberg - 07.05.1925, Side 1
ttHftcf g. WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 7. MAÍ 1925 NÚMER 19 Skipar trúnaðarstöðu Canada. iSíðastliðinn föstudag'smorgun, lauk umræðunum i samíbandsþing- inu um fjárlagafrumvarpið. Geng- ið bafði verið útfrá því sem nokk- urn vegin gefnu, að stjórnin mundi ganga sigrandi af hólmi, en að hún fengi jafn mikinn meiri- hluta og raun varð á, mun hvorki hún sjálf, né heldur flokkur sá, er hún aðallega styðst við, hafa gert sér i hugarlund. Vantraustsyfirlýsing Sir Henry’s Drayton, var feld með 164 atkvæð- um gegn 48, en fjárlagafrumvarp stjórnarinnar samþykt með 123 ai- kvæðum gegn 86, eða 37 atkvæða meiri hiuta. iMeð fjárlagafrum- varpinu greiddu atkvæði 105 lib- eralar, 17 bændaflokks menn og 1 utan flokka, en á móti 46 íhalds- flokksmenn, 38 úr bændaflokkn- um, 1 verkaflokksþingmaður og 1 utan flokka. * * 'Samkvæmt fregnum frá Toronto hinn 1 .þ. m., er sáningu að heita má lokið í suðurhluta Ontario- fylkis og Qudbec. * * * Á fimtudagskvöldið i vikunni sem leið, lést af bifreiðarslysi á Andrew’s, Louis Pfrimmer lög- maður frá Winnipeg 32. ára að aldri. * * * Hon. R. J . Manion, sambands- þingmaður fyrir Fort William og Rainy River, flutti nýlega ræðu I Ottawa, þar sem hann fullyrti að íhaldsflokkurinn mundi vinna glæsilegan sigur í næstu kosning- um. Fyr má nú rota en dauðrota! * * * í síðastliðnum marz mánuði, voru fluttar út úr Canada bifreið- ar fyrir $2, 902,019. # * * Maður nokkur í Toronto borg, Matthew Patchett að nafni, nlu- tíu og fjögra ára gamall, er at- vinnulaus um þessar mundir og hefir leitað til hverrar vistráðn ingaskrifstofunnar á fætur ann- ari.. Kveðst gamli maðurinn með engu móti geta unað því, að verða öðrum til byrði meðan hann enn sé við bestu heilsu og fær í flest- an sjó. * * » Kínverksur kaupmaður, Joe Kar Kook, að Nelson B. C., var dæmdur í $300.00 sekt í fyrri viku fyrir að selja S. S. Sanders lögregluþjóni áfengi á ólöglegan hátt. * * * Eldur kom upp í sjúkrahúsinu að Herbert, Sask., aðfaranótt síð- astliðins sunnudags, er orsakaði $15.000 eignatjón. Tveir sjúkling- ar mundu hafa látið þar líf sitt, ef ekki hefði verið fyrri frábæran dugnað vökumannsins ,er óð feld og reyk og tókst að bjarga þeim. * * * Sir William Peterson, forstjóri Peterson’s eimskipafélagsins, seni stjórnin hefir gert samninga við í þeim tilgangi, að lækka farm- gjöld með skipum, er vörur flytja milli ibreskra og canadiskra hafn- staða, er staddur í Ottawa um þessar mundir og mun einhvern hinna næstu daga mæta fyrlr nefnd þeirri, er um farmgjalds- málið fjalíar í sambandsþinginu og láta í ljós skoðanir sínar í sam- 'bandi við þetta þýðingarmikla mál. * * * James Scott fasteignasali í Winnipeg, hefir nýlega selt lóð á suðaustur horninu -á Portage Avenue og Main Street, fyrir $500, 000. * * * St. Andrew’s Presbyterasöfnuð- urinn, að Hamilton, Bermuda, hef- ir neitað að ganga inn í kirkju- samlbandið canadiska, með 66 at- kvæðum gegn 6. * * * Þýskur maður, ibaron Hugo von Knigge, ætlar að ferðast um Sléttu fylkin í sumar til þess að kynna sér ástand landibúnaðarins og skil- yrðin fyrir auknum fólksflutning- nm hingað til lands. * * * Nýlega er hafin vinna á stórrl -stjórnarkornhlöðu að Prince Ru- pert, B. C. , sem sagt er að verða muni fullger þann 1. nóvember næstkomandi. * * * Ýms helstu blöðin í Alberta, virðast þeirrar skoðunar, að fylk- iskosningar muni fara þar fram I náinni framtíð. Edmonton Bulle- tin (liberal), telur líklegt að Greenfield stjórnarformaður rjúfi þingið þá og þegar og efni til nýrra kosninga, einhverntíma milli 18. og 25. júlí. Fullyrðir téð blað, að stjórninni sé það kapps- mál, að fylkiskosningar verði um garð gengnar, áður en gengið verði til sambandskosninga, sem líklegt þyki að verða muni á önd- iverðu komanda hausti. Blaðið Cal- gary Albertan ,telur allmikinn á- greining eiga sér stað innan vð- banda Greenfield stjórnarinnar, einkum sé samkomulagið milll Brownlee’s dómsmálaráðgjafa og Hodleys, j4ðgjafa landbúnaðar- málanna, alt annað en æskilegt. Sama iblað telur einnig Mr. Green- field tilfinnanlega skorta hæfl- leika til stjómarforystu. * * * Hon. George P. Graham, járn- brautarmálaráðgjafi, lýsti því ný- !ega yfir í sambandsþinginu, að stjórnin mundi fara fram á að fa samþykta $200,000 fjárveitingu tii Hudsonsflóabrautarinnar. * * * Látinn er að Petersíburg, Flor ida, Dr. David Neeley, fyrrum sam'bandsþingmaður fyrir H,um- fboldt kjördæmið í Saskatchewan. * * * Hinn 4. þ. m. var vígð í Port Arkhur, ný rómversk-kaþólsk kirkja, er kostaði hundrað þús- und dali. Vígsluna fraihkvæmdi Scolard biskup frá Sault Ste Marie. Kári Frederickson. Hótelseigendur og ölgerðar- menn í British Ooluníbia, hafa krafist þess af dómsmálaráðgjaf- anum, Hon. A. M. Manion, að konum verði ‘bannaður aðgangur að her.bergjum þeim í hótelum fylkisins, þar sem fram fer sala öls í glösum. Bandaríkin. Nýlátinn er í Lundúnum John Singer Sargent, víðfrægasti mál- ari Bandaríkjanna, sextíu og níu ára að aldri. * * * Rannsóknin í máli senator Burton K. Wheeler frá Montana er nu lokið. Hefir þegar farið fram alllöng og flókin vitnaleiðsla. Mr. Wheeler var sakaður um að hafa veitt viðtöku ólöglegri lögmenns- þoknun fyrir að bera fram mál- efni eins skjólstæðings síns við innanríkisráðuneytið. Hefir sena- torinn nú verið sýknaður með öllu af ákæru þessari. * * * Landkönnunarmaðurinn Will- iam Beebe kveðst nýlega hafa fundið eldfjöll á Galapago,s-eyjun- um ,sem áður hafi verið óþekt með öllu. * * * Henry Ford hefir keypt 12,000 ekrir af landi með fram á einni í Georgia. * * * Bandaríkjastjórn hefir höfðað mál gegn Bethlehem stáliðnaðar- félaginu og krefst endurgreiðslu á fimtán miljónum dala, sem mælt er að stofnun þessi hafi dregið sér ranglega, með því að selja stjórn inni óhæfilega dýrt ýmsan varn- ing meðan á stríðinu stóð. * * * Varaforseti Bandaríkjanna, Charles G. Dawes, hefir enn á ný flutt hverj^ ræðuna á fætur ann- ari, gegn núgildandi þingsköpum efri málstofunnar, er hann telur vera orðin svo úrelt, að við slíkt sé ekki lengur unandi. Hagfræðisskrifstofa Bandaríkja- stjórnar tilkynnir að fólkstala þjóðarinnar við síðustu áramót hafi verið 114,311,000. Alveg nýlega hefir landi vor, Kári Frederickson, verið skipaÖ- ur aðstoðar ríkisféhirðir (assist- ant Receiver-General) á fjármála- skrifstofu Canadastjórnar í borg- inni Toronto, seni er sú stærsta og umífangsmesta skrifstofá! af því tagi, sem til er í landinu, og er þaS stór heiður hverjum manni og ekki sízt fyrir mann, sem yngri er en allir aðrir, er slíkar stöður fylla i landinu. Með veitingarbréfi því, sem Mr. Frederickson meðtók frá ríkis- stjórninni, eða umboðsmanni henn- ar, fylgdi bréf frá aðstoðar fjár- málaráðherranum, þar sem hann fer mjög lofsamlegum orðum um starf Mr. Fredericiksonar, trú- mensku hans og reglusemi í starfi hans á liðnum árum, og getur þess, að stjórnin leggi þetta þýð- ingarmikla og vandasama verk í hendur hans, fullviss þess, að hann niuni leysa það af hendi með þeirri sömu vandvirkni og nákvæmni, sem hann hafi sýnt í öllu sínu starfi, síðan hann gekk í þjónustu stjórnarinnar. Mr. Frederickson gekk í þjón- ustu Canadastjórnar árið 1910, á fjármála skrifstofu hennar í Win- nipeg, og byrjaði eins og viðvan- ingur. Én naut brátt virðingar og tiltrú {æirra, sem hann vann með, því hann er bæði góðum hæfileik- um gæddur, ábyggilegur og sérlega vandvirkur; vann sig því brátt upp i eina trúnaðarstöðuna eftir aðra, þar til að hann var kallaður af stjórninni til Toronto, að gegna þýðingarmikilli stöðu t skrifstof- stofunni þar, fyrir nálega tveimur árttm síðan, og hefir nú verið gjörður að yfirmanni þeirrar skrif- stofu. Kári er þrjátíu og sjö ára gam- a'll. Fæddur árið 1888 í Glenboro i Manitoba, sonur Friðjóns heit. Fredericksottar og konu hans, nterkishjóna, sem flestir íslending- ar þekkja. Tuttugu og tveggja ára ára gamall gekk hann t þjón- ustu Canadastjórnar og er nú, eft- ir fimtán ára þjónustu, kominn í eitt ábyrgðar- og þýðingarmesta embættið, sem til er á því starfs- sviði stjórnarinnar, er hann hefir valið sér. Og er slíkt ekki að eins gleðiefni fyrir ættfólk hans, held- ur er það gleðiefni öllunt íslend- iugum, er ntenn úr þeirra hópi sækja frant og vinna sigur sökunt yfirburða sinna í satnkepninni við aðra þjóðflokka hér í landi. Unt Mr. Frederickson farast Uaðinu Toronto Globe svo orð í sambandi við þessa embættisveit- ingu: J‘Mr. Frederickson, sem hefir að eins dvalið stuttan tima í Toronto, hefir unnið sér traust og viríýingu fjármálamanna og ban'kastjóra i borginni, og er em- bættisveiting l]>essi 'hin ánægju- legasta.” Mr. Frederickson er giftur TJer- disi Jónsdóttur, dóttur Jóns bónda E’narsonar að Foam Lake, Sask., og fvrri konu hans Guðrúnar. Þau hjón eiga þrjú l>örn á lifi, tvo drengi og eina stúlku. I-ögberg óskar Mr. Frederick- son til lukku með hina virðulegu stöðu, er honum hefir hlotnast. íslendingar vinna sér til frœgðar. H Ijó Sf œraflokkur sunnudagsskóla Fyrsta lút. safnaðar í Winni- peg vinnur z>erðlaun. Undanfarna daga, hefir staðið yfir hér i borginni hin árlega hljóntlistar samkepni Manjjoba- fylkis, og hafa íslendingar tekið í henni nokkurn þátt. Meðal þeirra, er reyndu með sér á sviði listarinnar, ber að minnast á bljóðfæraflokk sunnudagsskóla fyrsta lút. safnaðar, er hinn efni- legi landi vor, Mr. Stefán Sölva- son, stýrir og hefir æft. Flokkur þessi er skipaður ungmennum piltum og stúlkum, úr FyYsta lút. söfnuði, er varið hafa frítímum sínum í þjónustu hinnar helgu QÍs ar—sönglistarinnar. Flokkur þessi hin ungi, hefir aflað sér almennra vinsælda, hvar sem fólki voru hefir veizt kostur á að hlýða á hann, og hafa menn yfirleitt spáð honum fagurrar hamtíðar. Það hlýtur því að vekja almennan fögnuð vor á með- al, hve vel og giftusamlega honum tókst í samkepni þeirri, er hér um ræðir. Prófdómarinn lauk miklu lofs- orði á það, hve fögur blæbrigði einkendu meðferð flokksins á tón- verkum þeim, er hann lék, hve hljómfallið 'hefði verið ákveðiö og viðfangsefninu stranglega fylgt. í fimm atriðum hlaut flokk- urinn 9 stig af 10, sem var há- n.arkið; en í einu 44 af 50. Það er því ekki um að villast, að flokk- urinn hefir verið sérlega vel æfð- ur, á góðum kröftum á að skipa, og nýtur -tilsagnar ágæts leiðtoga. Er vonandi. að meðlimirnir haldi áfram að æfa sig af kappi og vinni fleiri og stærri sigra í framtíðinni. Uljóðfæraflokkar annara kirkna, er um verðlaunin keptu, voru frá St. Mattew's og St. James Ang- lican. því, að nokkrir leynisamningar eigi sér stað milli þjóðar sinnar og Rússa. • * • Soviet-stjórnin rússneska og Me*ico-stjórn hafa neitað að taka þátt í afvopnunarfundi þeim, er þjóðbandalagið hefir verið að undirbúa. • * * Um þessar mundir er í smíðum í París loftfar eitt mikið, sem fullyrt er að flogið geti viðstöðu- laust milli IJarísar og New York. Vegalengd sú er 5000 mílur. Loft- far þetta á að hafa 550 hestafla vél og flytja með sér 6000 lítra af gasolíu. Ráðgert er að fyrsta ferð- n hef jist seinni hluta næstkomand júnímánaðar. * • • Soviet-stjórnin rússneska, veit- ir hundrað og fimtíu þúsundum atvinnulausra manna, fjárstyrk af því opinbera um þessar mundir. Atvinnuleysi á Rússlandi, kvað stöðugt vera að fara í vöxt. • • • Stjórnarformaður ítala, Benito Mussolini, hefir krafist þess stranglega, að Jugo^Slavia láti samstundis niður falla allar stríðs hótanir gegn Búlgaríu, ella munl verra af hljótast. Fylgdu honum að málum í kröfu þessari sendi- herrar Bandaríkjanna, Breta, og Frakka í Belgrad. Er mælt að Jugo-Slavar hafi tekið áskoruninn vel og heitið því að‘gera sitt besta til þess að vernda friðinn. Fulltrúi Canada á aldarafmæli Norðmanna. F?á Islandi. Árnesingamót hefir nú verið auglýst, að halda ætti í Iðnó 18. þessa mánaðar. Er þetta þá fimta mótið, sem haldið verður hér á stuttum tíma. Áður hafa verið haldin Vestfirðinga-, Austfirð- inga-, Norðlendinga- og Þingev- ingamót. Virðist átthagaástin vera óvenjulega rík nú hjá þeim íb.úuni Reykjavncur, sem ekki eru runnlr hér upp. TH0S. H. J0HNS0N, K.C. MISS HELGA PALSSON vinnur fyrstu verðlaun. í flokki hinna þroskaöri pianó- nemenda, vann Miss Helga Páls- son, dóttir Mr. og Mrs. Jónas I’álsson, fyrstu verðlaun, hlaut 168 stig af 200, sem var hámark- ið. Þetta eru ekki fyrstu verð- launin, sem Helga hefir unnið fyr- ir framúrskarandi listnæmi, — þún hefir unnið þau mörg áður og næg- ir í því efni að benda á, er hún 'hlaut gullmedalíuna og peninga- verðlaunin á hljómlistarsamkepn- inni, sem haklin var í Toronto-borg fyrir nokkrum árum, í sambandi viö sýninguna miklu, er fram- kvæmdarstjórn þjóðeignabrautanna —Canadian National Railways— stofnaði til. Keptu við það tæki- færi píanónemendur úr öllilm iylkjum Canada. Tíelga er framúrskarandi hæfi- leikum gædd, og er óskandi að henni veitist heilsa og aldur til frekari fullkomnunar í sinni fögru list. Talning atkvæða við prests- kosningu í Staðarprestakalli í Steingrímsfirði fór fram á föstu- daginn var. Séra Þorsteinn Jó- hannesson var kosinn með 179 at- kvæðum af 183, sem voru greidd. 1 Landeyjum hefir séra Jón J. Skagan verið kosinn nýlega með 107 atkvæðum, öllum, sem greidd voru við kosninguna. Gifford Pinehot ríkisstjóri í Pennsylvania, George Brid Grinn- ell náttúrufræðingur og Miss Martha Berry, stofnandi Berry skólans í Georgia, hafa verið sæmd heiðurspeningi Roosevelts fyrlr árið 1925. # * # Coolidge forseti flutti nýlega ræðu í Waslhington, þar sem hann lýsti því yfir, að núverandi höft um að hafa ranglega dregið sér opinbert fé. • • • Hinn 3. þ. m. lést í Washington Adeline Kelly 104 ára að aldri. * * * Ríkisþingið í Connecticut, hefii felt með miklu afli atkvæða frum- varp til laga, er fram á það fðr, að veita konum rétt til að elga sæti í kviðdómi. gegn fólksflutningi inn í landið væru bráðnauðsyn og jafnvel vafamál hvort ékki væri rétt, að gera þau drjúgum strangari. * * * Látinn er í New York, James W. MjcQueen, forseti Sloss-^Sheffield stáliðnaðarfélagsins. «* * # Þrír fyrverandi skrifstofustjórar borgarstjórnarinnar í Detroit Mich hafa verið teknir fastir og kærðir Hvaðanœfa. Látinn er nýlega í París, Dr. Al'bin Haller, nafnkunnur efna- fræðingur. » * • Við jarðarför Georghieff hers höfðingja, sem myrtur. var þanr. 14. apríl síðastliðinn, varð spreng- ing í dómkirkjunni í höfuðborg Búlgaríu, mörgum að bana og margir sættu meiri og minm t meiðslum. * * # * Stjórninni í Partúgal hefir tek ist að bæla niður uppreist, sem var að breiðast út í Lissabon. * # # Fjögur íhundruð uppreistar- menn í Búlgaríu hafa verið tekn- ir af Iífi. Er ástandið þar í landl að verða æ ískyggilegra, með hverjum degi er l.íður. * # # Sendiherra Japana í Banda- ríkjunum hefir opinberlega neitað í gær voru 25 ár liðin síðan Gísli Jónsson, fyrverandi hafn- sögumaður tók að sér vitarvarðar- stöðuna þar á staðnum. Minnast margir Hafnfirðingar þess með þakklæti, hve vel honum fórst það starf úr hendi, eins og önnur störf hans. Nú er hann fiskimatsmaður. Botnvörpungurinn ‘Dane’ kom inn í gærmorgun með 80 föt — Skipstjórinn veikur. “Rán” kom líka inn í gær með 60 föt. Morgunblaðið 4. apríl. Eins og eftirfylgjandi bréf frá innflutningsmála ráðgjafanum ber með sér, hefir Canadastjórn kvatt hinn glæsilega landa vorn, Thos. H. Hohnson, fyrrum dómsmáía ráðgjafa Manitobafylkis, til þess að mæta fyrir sina og þjóð- arinnar hönd, á aldaraimæli Norð- manna i Randaríkjunum, því, er hátiðilegt skal haldið í St. Paul og Minneapolis, dagana frá 6- til 9. júní næstkomandi. Heiður sá. sem Mr. Johnson, og þjóðflokki vorum þar af leiðandi lika, er sýndur með útnefningu þessari, hlýtur að vekja almennan fögnuð meðal íslendinga vestán Jtafs, því þann mann vissum vér diápunnar verðastan. Var Mr. Johnson og sakir mælsku, glæsi- mensku og áhrifa í canadisku þjóð- lífi sjálfkjörinn merkisberi íslenzka þjóðstofnsins við hátíðahöld þau, cr nú hafa verið nefnd. Ottawa, Canada, 28. apríl 1925. Hon. T. H. Johnson, c-o Johnson and Bergman, Barristers, etc., N • Winnipeg, Man. Kæri Mr. Johnson, Sltjórninni hefir borist í hendur boðsbréf, frá nefnd þeirri, er ann- ast um undirbúning hátiðahalds þess, er Norðmenn í Bandaríkjun- um og Canada stofna til, ásamt sýningu, í tilefni af hundrað ára landnámsafmæli þeirra i Vestur- heimi, er haldið skal hátíðlegt dagana 6.—9. júni næstkomatidi. Hefi eg og félagar mínir í stjórn- inni tekið boðinu með þökkum. Skrifstofa innflutnings og ný- lendumálanna í Canada, hefir þeg- ar trygt sér stað á sýningarsvæð- inu, þar sem helztu auðlegðar- einkenni hinnar canadisku þjóðar skulu vera til sýnis, meðan á há- tíðarhaldinu stendur. og er oss ljúft að votta forstöðunefndinni samhug vorn. Við tækifæri sem þetta, er á- riðandi að áhrifamaður af nor- ræna stofninum, mæti fyrir Can- ada hönd. Og vér erum þeirrar skoðunar, að af þeim mönnum, sem fáanlegir kynnu að vera til fararinnar, séuð þér frábærlega vel faTlinn til að sækja téð hátíð- arhald fyrir vora hönd. Það mundi því fá oss ósegjan- legrar ánægju, ef þér á þessu hundrað ! ára landnáms - afmæli Norðmanna í Vesturheimi, vilduð mæta sem opinber fulltrúi hinnar canadisku þjóðar. Því skal við bætt, að stjórnar- ó.eild sú er vér veitum forystu, mun með ánægju greiða kostnað þann, er af för yðar myndi leiða. Yðar með virðingu, James A. Robb. Úrherbúðum sambands- þingsins. Eins og þegar hefir verið getið u.m, eru umræðurnaf um fjárlaga- frumvarp stjórnarinnar orðið all- miklu lengri en venja er til. Þaö er eins og að þingmönnunum, eða að minsta kosti þingmönnum f- haldsflokksins, sé það alveg ó- venjulegt kappsmál, að flytja sem flestar ræður og hafa þær sem allra lengstar, liklegast til að geta lesið þær úr þingtíðindunum við næstu kosningar. Yfir hundrað og þrjátíu þingmenn hafa tek- ið til máls og marglr þeirra talað sig dauða! Aðsókn að þingfundum hefir verið með lé- legra móti og má slíkt teljast iila farið og þjóð og þingi til lítils vegsauka. Nokkrar ræður sem veigur var í. Þótt bekkirnir væru fremur þunnskipaðir síðustu viku, þá voru þó fluttar tvær eða þrjár ræð ur, sem mikið kvað að. Á þriðju- daginn sló í brýnu með þeim Jo- seph Archambault, sem talinn er að vera einna mælskastur Quebec- þingmannanna, og Rt. Hon. Art- hur Meighen, leiðtoga íhaldsflokks ins. Ræða Mr. Archambaults sner- ist um kærur þær, er Sir Arthur Gurrie fyrrum yfirforingi cana- diska hersins, bar fram'í haust er leið, 'þess efnis, að óhæfilega miklu fé hefði verið eytt við að fá menn til að ganga í herinn op eins til viðhalds hersins yfirleitt. Kvað Mr. Archambault kærum þessum þannig farið, að ekki væri unt að láta þær eins og vind um eyrun þjóta. Væru ikærurnar á rökum bygðar hlyti íhaldsflokkur- inn og þar af leiðandi núverandi leiðtogi hans, að bera ábyrgð á þeim, þar sem hann hefði um það leyti átt sæti í stjórninni. Mr. Meighen var augljóslega meinilla við, að kærur þessar skyldu koma. til umræðu af nýju, en tjáði sig þó hlyntan því, að þær yrðu tekn- ar til nákvæmrar yfirvegunan .— Mr. Arhcambault fór því næst nokkrum orðum um fjárlagafrum- varp stjórnarinnar og kvaðst ó- hikað mundu greiða því atkvæU. Fjárlagafrumvarpið minti sig á afstöðu Sir Wilfrid Lauriers til maður fyrir North Huron kjör- dæmið í Ontario, flutti alllanga ræðu í lok fyrri viku, er var lítið annað en skjall og fagurmæli um hans eigin flokk. Taldi hann báða gömlu flokkana úrelta og ómegn- uga Iþess, að veita málefnum þjóð- arinnar forstöðu, þótt innan vð- banda þeirra væru að sjálfsögðu að finna ýmsa þjóðnýta menn. Bændaflokknum væri stððugt að aukast fylgi, og mundu næstu kosningar leiða það í ljós, að hann yrði margfalt liðsterkari á þingí. Gömlu flokkarnir hefðu alla jafnt sýnt sinum unga framsóknarflokkl kala. ,en hinu mætti eigi gleyma, að í frjómold canadisks hugsjóna- þjóðernis og^ trúmálalegrar skift- Hfg væri rætur flokksins að finna ingar. hefðu Afturhaldsmenn í Ontario borið honum það á brýn, að hann vildi láta fransk-cana- diska, eða kaþólska flokkinn ráða lofum og lögum, um sama leyti og afturhaldsliðið í hans eigin fylki, Quebec ,hefði sakað hann um að hafa brugðist Frökkunum og ka- þólsku kirkjunni. Stefnu Sir. Wil- frids væri nákvæmlega fylgt í Og þær lægju djúpt. Forsætisráðgjafinn og þjóðar- einingin. f ræðu, sem W. J. Raymond þingmaður frá Brantford fluttl, mintist hann þess hve núverandi forsætisráðgjafi, Mr. King, hefði þegar leyst af hendi fagurt og , . . mikið starf í þarfir canadiskrar í^r_fr"^L',:LeLn4A'u W«elnlngar. Ení» ™ri )». fyrir, og sú stefna hefði ávalt reynst heillavænleg hinni cana- disku þjóð. Það út af fyrir sig, að gerbyltingamennirnir, er sæti , ættu á Jjingi, væru andvígir frum- viðurkent, að hann væri réttur maður á réttum stað. varpinu, mætti í rauninni skoðast sem fullnaðar sönnun þess, hve vel það væri úr garði gert og lik- legt til þjóðþrifa. Framtíð bændaflokksins S. W. Jaoobs frá Montreal, lagð! mikla áherslu á aukinn fólksflutn- ing til landsins. Enn væri víða að finna stór flæmi, gróðurþrung- in og arðvænleg, er biðu þess að hönd yrði lögð á plóginn. Canada ætti að Ibjóða alla velkomna öld- ungis án tillits til þjóðernislegs John W. King, bændaflokksþing- uppruna.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.