Lögberg - 14.05.1925, Síða 1

Lögberg - 14.05.1925, Síða 1
38. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 14. MAÍ 1925 NÚMER 20 Kosningar í Saskatchewan. Fylkisstjórinn í Saskatchewan hefir rofið þing og fyrirskipað nýjar kosningar, sem fram eiga að fara 2. Júní n.k. Föstudaginn hinn 8. þ. m., vildi sá sorglegi atburður til í Los Angeles, Cal., að Wilmar Pétur Thorvaldsson lögreglu- þjónn, sonur Mr. og Mrs. Stígur Thorvaldson frá Akra, N. Dak. lenti i bifreiðarslysi og beið bana af. Var hann hinn mesti atgerfismaður og í blóma lífs, fæddur 19. júlí 1892. Er við fráfall hans þungur harmur kveðinn að hinum aldurhnignu foreldrum. Wilmar heitinn var systursonur Dr. O. Björnson Og Mrs. P. S. Bardal hér í borginni. Veglegt silfurbrúðkaup. með veizlu og dýrum gjöfum, var haldið þeim hjónum, Mr. og Mrs. Lýð Jónsson, í Lundi í Breiðuvík í Nýja íslandi, þ. 31. marz s.l. Fór samsætið fram í samkomusal þeirra Breiðvíkinga, sem er þægilegur til veizluhalda og afar rúmgóður; mun vera sem næst á sömu stærð og samkomusalur Riverton bæjar, en hann er talinn einhver stærsti fundarsalur, er sézt hefir utan stórbæja. Samsætið hófst nál. kl. 3 e. h. Veður var ágætt, en færi erfitt, snjó þá að leysa sem óðast, vatnselgur mikilj, og íslendfnga- fljót, er rennur bugðótt um norð- urbygðir Nýja íslands, farið að flæða yfir bakka sína. Allar smá- ár og lækir, sem varla sjást nema á vorin, alt fult af vatni, og vegir forblautir, þó vitanlega sé þeir, þegar þurt er orðið, stórum þetri en var til forna. Alt þetta hefir sjálfsagt dregið eitthvað úr að- sókn samsætisins. Samt sem áð- ur mun tala veizlugesta hafa verið talsvert á annað hundrað manns. Þau Ljýður bóndi Jónsson og kona hans, Helga Sveinsdóttir, komu af Islandi um 'síðastliðin aldamót. Muri L^ýður vera' ætt- aður frá Bálkastöðum í Hrúta- firði, en Helga kona hans er dótt- ir þeirra ihjóna, Sveins Árnasonar og Þorgerðar Jónsdóttur, er síðast bjuggu á Kleppi í Reykholtsdal í Borgarfirði. Þau hjón, foreldrar Helgu, fluttu og vestur. Eru nú bæði látin fyrir tiltölulega skömmu síðan. Voru síðustu árin á veg- um barna sinna og leið eins vel og á varð kosið. Börn þeirra, og systkini Helgu, eru þau Jóhannes Sveinsson smiður, nú til heimilis í Monrovia í Californíu; Ingibjörg, kona Magnúsar bónda og fiski- kaupmanns Magnússonar, á Byj- ólfsstöðum í Breiðuvík, og Gróa, kona Sveins bóndá Pálmasonar, á Winnipeg Beach. Hálfbróðir þeirra systkina og eldri en þau, er Jón bóndi Sigurðsson á Haukagili í Hvitársíðu, fyrrum alþingismað- ur Mýramanna. Veizlustjóri var Gísli kaupmað- ur Sigmundsson. Setti hann sam- sætið með skörulegri ræðu, skýrði frá tilefni samkvæmisins, bauð gesti velkomna og bað alla er að kæmust, að setjast að borðum. Afhenti hann því næst yfirráðin, í bili, presti Breiðuvíkursafnaðar, en í þeim söfnuði hafa silfurbrúð- hjónin verið frá því þau reistu bu í Lundi, og eru enn. Má segja, að Breiðuvíkursöfnuður, þó ekki sé hann stór, sé ágætlega skipað- ur. Með því ábyggilega og góða fólki teljast þau, Mr. og Mrs. Lýður Jónsson. Lét séra Jóhann syngja sálminn: “Hve gott og fagurt og inndælt er”. Las því næst biblíukafla og mælti fram bænarorð. Var að því búnu sung- ið versið fagra: “Ó, lífsins faðir, láni krýn”. Fóru þá fram heilla- óskir, með handabandi, silfurbrúð- hjónunum til handa, af eins mörg- um veiszlugestum og til gátu náð. Tiil silfurbrúðkaupsins hafði ver- ið efnt af vinum og vandafólki þeirra Mr. og Mrs. Jónsson. Hafði sá veizluundirbúningur farið svo hljóðlega fram, að sjáJfir heiðurs- gestirnir, silfurbrúðjhjónin, höfðu enga hugmynd um samkvæmið, fyrri en Gisli kaupm. og aðrir vinir þeirra hjóna, komu að bjóða þeim og að flytja þau í veizlusal- inn. Gjafir dýrar og vandaðar, silf- urborðbúnað með 1 öllu tilheyr- andi, frá vinum, ættfólki og venzla- fólki þeirra hjóna, afhenti veiálu- stjóri ásamt $43.00 í silfri (1 25C. peningum); og frá börnum þeirra Mr. og Mrs. Jónsson, $25.00, einn- •g í 25 centa silfurpeningum. Börn þeirra eru tvö: Helgi, rúmlega tví- tugur, og Þorgerður, innan við tví- tugt, bæði ágætlega myndarleg. Peningagjafir og heillaóskir komu frá þeim hjónum, Mr. • og Mrs. Guðm. Bergman, og Mr. og Mrs. Jóni Guðmundsson, er búa í Geys- isbygð sunnanverðri ÓBifröst P. O). Hafði þeim verið boðið, en sökum illra vega ekki getað lagt í það að fara. Sömuleiðis kom og 'heillaósk og peningagjöf frá Mrs. Þorbjörgu Sigurðsson, frænku Mrs. Jónsson. Fagnaðarskeyti, er símað hafði verið frá Californíu, frá þeim Mr. og Mrs. Jóhannes Sveinsson, í Monrovia, las og forseti upp. Að því búnu las Mrs. M. Magnússon, systir silfurbrúðarinnar, upp heilla- óskaskeyti frá þeim Jóni H. John- son og Halldóri Daníelssyni, fyrr- um alþingismanni, er nú dvelur á Betel. Eru þeir báðir frændur þeirra silfurbrúðar og systkina hennar. Einnig las Mrs. Magn- ússon kvæði, er ort hafði Daníel frændi þeirra Halldórsson, á Oak Point. Birtist það væntanlega með þessari fregn í Lögbergi. • Lang-flest veizlufólk var úr Breiðuvík og þar í grend. Lengra að var þó nokkuð af fólki. ]>ar á meðal voru þau Mr. og Mrs. Sveinn Pálmason Jfrá Winnipeg Beach, og frá Árborg þau Mr. og Mrs. Jón M. Borgfjörð, og séra Jóhann Bjarnason og Stefanía dóttir hans. Það Árborgarfólk ferðaðist fernt saman í tvísætaðri kerru fdemocrat) með öflugu hestapari fyrir, er Jón Borgfjörð keyrði. Vegir austur af Árborg, með fljótinu, allir í kafi sökum áflæðis. Verður því að fara lang- ar leiðir úr vegi, norður og austur um engi og akra, þar sem vatn var minna, þó það væri samt víða milli knés og kviðar á hestunum. Gekk ferðalagið þó ágætlega. Bæði ak- týgi og annar útbúnaður dugði hið bezta, þó tekið væri stint i taugar með köflum, og komst Jón bóndi með samferðafólk sitt i veizlusal- inn á Hnausum stundarkorni áð- ur en samsætið hófst. Þegar gjafir höfðu verið fram bornar og heillaóskaskeyti lesin, ásamt kvæðinu, fóru fram veit- ingar, með þeirri rausn og smekk- vísi, sem alkunn er orðin í sam- sætum íslendinga hér vestan hafs. Skorti sízt góðan mannfagnað. Fór fram fjörugt og kurteist sam- tal undir borðum, eins og gerist í góðum veizlum, en sterkari drykk en kaffi varð fréttajútari yðar ekki var við, þrátt fyrir nokkurt drykkjuskapar orð, er samtíð vor hefir, því miður, á sig fengið. Væri ekkí úr vegi, að ungir menn legðu sig fram, að hrinda þessu drykkjuskaparorði af sanitíðinni, með því að temja sér reglusemi og vinna að sönnu bindindi, því enn mun það sem fyrri vera satt, að “hinir ungu eru timans herr- ar.” Er vist rúm fyrir slíka góða strafsemi ungra manna og ungra kvenna ekki síður, bæði hér í Nýja íslandi og út um allar bygðir vor íslendinga, svo vítt sem þær ná. Ræður í samsætinu héldu, auk veizlustjóra, þau séra Jóh. Bjarna- Jon, Bjarni Marteinsson, Mrs. Val- gerður Sigurðsson, Sveinn Pálma- son, Mrs. Pálmason, Magnús R. Magnússon, Mrs. Sigríður Mar- tin, Eiríkur Einarsson og Jakob Friman. Fyrir hönd Silfurbrúð- hjónanna svaraði Mrs. /Jónsson, sem er gáfuð kona og vel máli farin. Að öllum ræðunum var gerður góður rómur, eins og ger- ist í fagnaðarsamsætum. Einsöngva söng Þorsteinn Kárdál, ungur myndarmaður, Húnvetningur áð ætt, ekki fyrir löngu kominn að heiman. Hefir hann fagra söng- rödd og er efni í góðan söngmann. Á milli ræðanna voru einnig sungn- ir íslenzkir valdir söngvar, er all- ir samkvæmisgestir sungu. í ræðunum, er fluttar voru í veizlunni. kendi þess vináttuþels og hlýleika, er gott fólk jafnan nýtur. Þau Lýður Jónsson og kona hans hafa búið á fremur erfiðu skóglandi og hafa haft æðimikið af veikinda9tríði, eða höfðu um tíma, þó nú, sem betur fer, sé það í góðu horfi. Lýður er dugnaðar- maður, drengur góður og vandað- ur, og kona hans mikil myndar- kona og honum samhent í öllu. Njóta þau, að verðugu, vinsælda og virðingar í bygð sinni. Ekki geta þau rík talist, fremur en svo margir aðrir, en afkoma þeirra mun þó vera orðin bærileg, eða fremur góð að kalla má. Mun það vera einróma árnaðarósk bygðar- búa og vina allra, að þau hjón og börn þeirfa fái að njóta fagurrar framtíðar og bjartra æfidaga, ogí að dagsverkið, er unnið hefir ver- ið með trúmensku og góðri holl- ustu, megi verða þeim mun fagn-! aðarríkara og árangursmeira, því j lengra sem líður á daginn. Er vonandi, að því er þau 'hjón snert-j ir, að enn sé mikið eftir æfidags-j ins, og að því er börn þeirra á-j hrærir, svo myndarleg og skemti-j leg sem þau eru, og rétt að byrjaí æfistarfið, að þau fái orðið for-j eldrum sínum til mikillar ánægjui og blessunar og mörgum öðrum til nytsemi og heilla. Það er einlæg heillaósk og blessunar til þeirra Mr. og Mrs. Jónsson og barna þeirra, frá Breiðuvíkurbúum og öðrum vinum þeirra fjær og nær. Fréttaritari Lögb. TIL HELGU og LÝÐS. (á 25 ára giftingarafmæli þeirra, þ. 31. marz 1925.) Að líta yfir liðna braut, það löngum hugann hvilir við sjáum bæði sælu’ og þraut, sem að okkur féll i skaut, og skuggi enginn skýlir. Þvi oft er lifsins erfið leið, og angur hugann þjakar En sá, sem leggur líkn i neyð svo lýsi manndómssólin heið, þá okkur ekkert sakar. Og hvem þann mann oss heiðra ber, sem hefir þrautir unnið, og látið kærleiks ljós frá sér lýsa þeim, sem eftir fer, frá hjartarótum runnið. Þvi er núna þessi stund til þakkar yikkur gefin, af þvi þið, á alla lund, ykkar hafið vaxtað pund og gengið göfug skrefin. Þó ei þið hafið aurasafn, — þið annað meira mátu, — eg veit að gróðinn verður jafn, þeim verðskulduðu fagurt nafn, og hinna’ er hærra sátu. Þið hafið aldarfjórðungs ferð fylgd hvers annars notið, og jafnframt gleði, mæðumergð mætt hefir af ýmsri gerð, en siðast sigur hlotið. Eg óska ykkar æfikvöld verði alt frá gleði runnið. Og þökk sé goldin þúsundföld — þetta séu ykkar gjöld — fyrir æfistarfið unnið. Eg volæði öllu vík á bug, og vísur þessar endi, með kveðju bezta’ og kæleikshug, þér, kæra frænka, sendi. Daníel HallMrsson. Hjartanlega þökkum við öllum þeim, frændum og vinum, sem sýndu okkur kærleiksríkan vott vináttu og velvildar á 25 ára gift- ingar afmæli okkar þann 31. marz síðastl., með því að halda okkur samsæti og gefa okkur -rausnar gjafir. Helga Jónsson. Lýðivr Jónsson Ný uppfynding. Jóhann \rigfússon, smiður í Wánnipeg, hefir fundið upp og fengið einkaleyfi fyrir útbúliaði til þess að stöðva glugga og halda þeim föstum, á hvaða 'hæð glugga- rammanna sem menn vilja, án þess að minsta hætta sé á því, að hann falli niður. Er þetta gjört með fjöður, sem fest er í gluggann sjálfan, sem fellur inn i gróp á járni, sem fest er í gluggakistuna að innan. Fjöðrin heldur glugg- anum föstum, en lætur þó svo mik- ið eftir, að maður getur ýtt hon- um upp og niður með hendinni eftir vild. Þessi uppfynding Jóhanns er hin þarfasta, því hún gjörir mönn- um ekki að eins hægan fyrir með að opna glugga í húsum sinum, heldur byggir hún með öllu fyrir hættu þá, sem af því getur stafað og hefir stafað, að gluggar falli niður eftir að þeir eru opnaðir og meiði fólk, og losar fólk lika við að vera sér úti um handhæga muni til þess að setja undir gluggana, til þess að halda þeirn opnum. Þessi uppfynding Jáþpnns er þörf i mesta máta, en það er ekki nóg, þvi hann þarf að geta kom- ið henni á framfæri, og til þess þarf fé, en Jóhann er fátækur daglaunamaður, og væri því fall- ega gjört, ef menn vildu létta und- ir með honum, svo honum gæti orðið eitthvað úr henni. Sala hlyti að verða mikil fyrir þenna glugga- stoppara, þvi hann getur ekki orð- ið dýr, og kostnaðurinn við að sttja hann á, hlyti að verða tiltölu- lega litill. u A” flokkur Taflfélagsins “Iceland”, í Winnipeg og District sem vann fyrstu verðlaun samkepninni. Mennirnir eru (standandi) frá vinstri til hægri: — Kristinn Pétursson, Agnar R. iMagnússon, Gilbert Árnason, Karl Thorláksson. Sitjandi:— Ólafur J. Ólafsson, séra Hjörtur J. Leó, Guðjón Kristjánsson. Or bænum. Mr. John Hjörleifsson frá Win- nipeg Beach var skorinn upp við kviðsliti á Almenna sjúkralhúsinu hér í borginni á fimtudaginn í vik- unni sem leið. Dr. B. J. Brandsson gerði uppskurðinn, sem hepnaðint ágætlega. Býst Mr. Hjörleifsson ekki við að dvelja lengur á sjúkra- húsinu, en svo sem vikutíma enn. Söngflokkur Goodtemplara, und- ir stjórn Halldórs Þórólfssonar, heldur samsöng í Goodtemplara- húsinu fimtudaginn, 28 þ. m. Þeir Páll Bardal og Sigfús Halldórs frá Höfnum syngja einsöngva. Nánar auglýst síðar. Þetta verður síðasta samkoman, sem söngflokk- ur þessi stofnar til á yfirstand- andi árstíð. ada árið 1798; það hefir útibú í Winnipeg og selur vörur' sínar beint ti! bænda. The S. H. Bor- bridge Co. í Winnipeg, hefir nú gefið út nýja vérðskrá, sem send verður ókeypis ibændum. er senda félaginu nöfn sín og heimilis- fang. 2. þ. m. andaðist á iSt. Boneface sjúkrahúsinu hér í bænum Frank- Iin Bei’gen 19 ára að aldri sonur Jóhannesar Helgasonar fyrrum skipstjóra á Winnipeg-vatni og konu hans Elinborgar sál. Guð laugsdóttur Johnsons og þeirra hjóna, sem lengi voru búsett hér í Winnipeg. Banamein Franklins sál. var tæring. Hann var jarð- sunginn af dr. B. B. Jónssyni frá útfararstofu Bardals síðastliðinn þriðjudag. Skyldmenni þakka al- úðlega öllum þeim, sem viö útför- ina voru sladdir. Gefin saman í hjónaband laug- ardaginn hinn 9. þ. m., Eliníborg Steingrímsdóttir Thorarinsou 0g James E. Millar, frá St. Vital Hjónavígslan fór fram í St. Matt- hews kirkjunni og var hún fram- kvæmd af Rev. Robertson. Mr. Halldór Sigurðsson bygg- ingameistari, að 804 McDermot Ave., hefir nýlokið samningum um að byggja stóra og veglega kirkju hér í borginni. Heitir hún River- wiev Prestbyterian Church. Á hún að kosta yfir fjörutíu þúsund dali. Mr. Sigurðsson er þegar tekinn að undirbúa verkið. Er gott til þess að vita, er landar innvinna sér slíkt traust. ÞaTf ekki að efa að Halldór láti íslendinga sitja r'yrir atvinnu við byggingu þessa í sumar, sem kemur vafalaust vel. Samkvæmt símfregnum, fór far- þegjaskip Scandinavian — Ame- rican eimskipafélagsins, “United States” frá Oslo síðastliðinn laug ardag og er væntanlegt til Hali- fax mánudaginn hinn 18. þ. m. með fjölda ferðamanna. íslendingar í Winnieg eru mint- ir á bazaar þann, sem kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar heldur i funðarsal kirkjunnar þriðjudags- kvöldið og seinni part miðvikudagi og miðvikudagskvðldið í næstu viku, 19. og 20 maí. Þar verður seldur margskonar varningur og þar verður gleðskapur mikill. Mðvikudaginn, 6. maí, voru þau Thorarinn Pétursson frá Gimli, og Helga Halldórsson frá Akra, N. D. gefin saman í hjónaband að 493 Lipton St. af séra Rúnólfi Marteinssyni. Heimil. þeirra verð- ur að Gimli. Bændur, veititS athygfli auglýs- ingunni frá S. H. Borbridge Co., sem birtist í þessu blaði. Félag þetta býr til og verzlar með ak- týgi af fullkomnustu gerð. Fé- lagið var stofnað í Austur Can- Úrherbúðum sambands- “þingsins. Þess hefir áður verið getið, að fjárlagafrumvarp stjórnarinnar hefir verið samykt með 123 at- kvæðum gegn 86, eða 37 atkvæða meiri hluta. Seytján þingmenn úr bændaflokknum greiddu atkvæði á hlið stjórnarinnar, þar af níu úr Ontario-fylki. Þingið hefir því með allmiklum meiri hluta, fallist á istefnu núverandi stjórnar i fjármálum og mun óhætt mega fullyrða, að slíkt sé í beinu sam- ræmi við þjóðarviljann. Aðeins einn þingmaður úr frjálslynda flókknum, greiddi atkvæði á móti frumvarpinu ,sem sé Francis N. Mc Crea, frá Austur-Quebec er sí og æ hefir verið mótfallinn lækk- un verðtolla. Eitt af því, sem einna mesta abhygli vakti við at- kvæðagreiðsluna var það að J. F. Jolhnson, ibændaflokks þingmaður fyrir Last Mountain kjördæmið í Saskatc'hewan, einn af mestu á- hrifamönnum flokksins, greiddi atkvæði með frumvai-pi stiórnar- innar ásamt stéttarbræðrum sín- um frá Ontario. Er afstaða hans ljós vottur þess, hve minsta kosti sumir leiðandi menn Vesturlands- ins, eru að snúast til fylgis við stjórnina. Aðvörun. Síðustu viku, sem umræðurnar um fjárlagafrumvarpið stóðu yfir gaf stjórnarformaður, Rt. Hon. W. L. MacKenzie King, þingmönnum þannig lagaða aðvörum:i— “Eg vil leyfa mér að tilkynna háttvirtum þingmönnum , að stjórnin tekur ekki í mál, að þing- ið sitji alt sumarið út og þrefi og þjarki um hitt og þetta, sem lítið kemur þjóðarbúskapnum við. Sjái stjórnin sér ekki fært, að knýja fram hin allra nauðsyn’egustu laganýmæli, mun eg ekki hika við að fara þess á leit við hans há- Sigurvegararnir í taflfélags samkepninni Agnar R. Magnússon vann Halldórssons bikarinn og gullpeninginn; Karl Thorláksson vann silfurpeninginn; Jón Bergmann vann eir- peninginn. göfgi landsstjórann, að Iiann rjúfi þing og efni tafarlaust til nýrra kosninga. Eg er viss um að þjóðin er mér sammála í þessu efni, og að hún mun krefjast þess, að núverandi stjórn verði endur kosin með það miklu afli atkvæða, að hún geti óhindruð veitt málefn- um almennings forystu. Stiórnin hefir átt afar erfitt aðstöðu, með lítinn meirihluta í neðrk málstof- unni og óvinveitt «er.ate. Samt sém áður hefir stjórninni hepnast svo vel ráðsmenskar.. að full á- stæða er fyrir þjóðina að fagna yfir Hændaflokkurinn klofnar Rétt áður en atkvæðagreiðslan um fjárlagafrumvarpið fór fram, flutti Thomas H. McConica, bændaflokksþingmaður frá Battle- ford í Saskatchewan ræðu, þar sem hann lýsti undrun sinni yfir því, að flokksbræður sínir skyldu ekki undantekningarlaust greiða atkvæði með f járlagafrumvarpinu. Auðvitað kvaðst hann hafa kosið, að lengra hefði verið gengið i því, að lækka verndartollana, en að öllu athuguðu væri þó drjúgur munur á stefnu núverandi stjórn- ar, eða hátollastefnu íhaldsflokks- ins, og þessvegna ætti stiórnin strangt tekið heimting á stuðn- ingi bænda og búalýðs. Var ræðu hans tekið með fögnuði miklum af hálfu þingmanna frjálslynda flokksins, sem og þeirra úr hópí bændanna ,er atkvæði greiddu á hlið stjórnarinnar. HALLDÓR HALLDÓRSSON, sem gaf fyrsta taflbikarinn FRA ÍSLANDI. Þórarinn Guðmundsson fiðlu- leikari hefir dalið eins og kunnugt er, erlendis um langt skeið. En nd fyrir stuttu er hann kominn til Hafnar frá Þýskalandi. Var hann um 9 mánaða tima í Leipzig og Hamborg, og hefir nú fengið stöðu við eitthvert stærsta leikhúsið í Leipzig. Er þetta því eftirtektar- verðara, sem þýskir listamenn era að streyma úr landi vegna atvinntr leysis. — Morgunbl.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.