Lögberg - 13.08.1925, Síða 3

Lögberg - 13.08.1925, Síða 3
LÖGBERG FIMTUDAGINN, 13. ÁGÚST, 1925. B>« 8 Sérstök deild í blaðinu SOLSKIN Fyrir börn og unglinga rasagisasBaaisisMiasi^aakiisis^^ 85£Mi^i!agi3i§MBi8iaagii®MgBisiíaajS Æfintýri Nönnu. Loksins kom hann, afmælisdagurinn hennar Möggu litlu. Það var eins og hún hefði beðið eftir honum svo öldum iskifti. Eri nú var hann kominn. Það var ekki um að villast. Jæja, þið vitið nú það, að afmælisdagar hafa sitthvað fram yfir aðra daga. Þá ertu, barnið mitt, í einum svip orðin ári eldri, og svo færðu kökur með. afmælisbollanum; stundum er þá líka haft vina- boð, og þá fer ekki hjá því, að þú fáir einhverjar afmælisgjafir. Hún Magga litla fór ekki varhluta af neinu af þessu, því að hún “lék sér í skauti lukkunnar sem lamb í grænum ihaga.” Helsta afmælisgjöfin að þessu sinni var ljóm- andi falleg vaxbrúða, sem hún kallaði Nönnu, af því að hún var svo kurteis í allri framkomu sinni. Hún hafði fengið besta uppeldi, öll framganga hennar var yndisleg og kjólarnir hennar ljómuðu af öllum regnbogans litum. Næst-lbesta afmælisgjöfin var dáindis snotur rúmkarfa handa Nönnu. Þar vantaði ekkert á. Þar var stungin og troðin baðmullarábreiða, sængur- fötin voru óviðjafnamleg, en auðvitað voru þau ekki lifandi vitund of góð handa svo fínni frú, sem hún Nanna var. Að minsta kosti sagði hún það sjálf, frúin, henni fanst ekkert of gott handa sér hofróðunni sjálfri, því ef satt skal eegja, þá var Nanna, þrátt fyrir alla kurteisina og yndisleikann, frábær sét- gæðingur; hún áleit sig vera fegurstu og mestu brúðu í heimi. Jæja, afmælisdagurinn tók nú loksins (enda; boðsgestirnir fóru hver heim til sin og svo kom háttaitími. (Nanna 'va'r lögð’ í rúmið sitt, körfu- vögguna sína fallegu, og hún fór að sofa og alt var eins og það átti að vera. Jæja, en morguninn eftir rak ailla í rogastans; það var óttalegt, isem þá kom upp úr kafinu. Það var næstum ótrúlegt; menn gátu varla minst á það, þeir gláptu bara og hrópuðu hver ofan í annan: “Þetta ef dæmalaust.” “Hreint gengur yfir mig.” Aldrei hefi eg vitað dæmi til annars eins,” og þar fram eftir götunum. En svo var mál með vexti, að Nanna var öll á burtu úr rúminu sínu; hún hafði ekki einu sinni skilið eftir eina línu á blaði, til þess að láta vita hvernig á brottför hennar stæði, hurðin var lokuð, enda var hún ekki svo há, að hi^n hefði náð upp í snerilinn; ekki gat hún hafa farið þá leiðina. En það var satt — glugginn var opinn, en hún ihefði aldrei þorað að istökkva út um hann, og hví skyldi hún líka hafa verið sá auli! Upp um reykháfinn hafði hún áreiðanlega ekki farið. Það þurfti nú ekiki annað en að halda að hin fína frú Nanna hefði farið þá leiðina! Jæja, það var óttalega dularfult alt þetta! Vaxbrúðan var horfin og engin lifandi sái vissi, hvað af henni var orðið, nema frúin sjálf og önnur skepna til. Og hver haldið þið að það hafi verið? Enginn annar en hann meistari Joko, apaskrípið í næsta húsi. Hann hafði séð þegar komið var með Nönnu og óðara orðið ástfanginn af henni. Svo var honum ekki boðið í veisluna og það erti hann og reitti til reiði. Þá gerði hann svo vel og klifr- aði upp í tré í garðinum og ^tekkur isvo þaðan inn um gluggann, inn í svefnherbergi Möggu, meðan allir voru í fasta svefni snemma um morguninn, og hvað sem Nanna sagði, þá nam hann hana á brott úr rúminu hennar yndislega og 'bjó henni ból í kolakörfunni. Hann lagði hana í — kolakörfuna! Þetta var nú árás, sem fáar vaxbrúður hefðu getað staðist en Nanna var nú engin kveif, hún hafði það af! Nokkrum stundum síðar fanst Nanna í kola- körfunni og var þá farið með hana til Möggu. Eins og þið megið nú nærri geta, þá fékk meist- ari Joko duglega ráðningu — hann var auðvitað flengdur, og eg held hann hafi átt það meira en * skilið. En þetta gerði Nönnu sama sem ekkert til, hún hafði miklu fremur gott af því en ilt, því að yrði henni á eftir þetta að verða helst til þóttafull og drembilát, þá voru yfirlætislausu ibrúðurnar vanar að kalla upp og segja: “Kolakarfa”! þá rankaði hún óðana við sér og oddurinn brotnaði af oflæti hennar Hjún hafði því gott af þessari lífsreynslu. Hvernig börnin geta Iœrt sögur Það voru einu sinni nokkur börn, sem léku “pantaleik,” og þeim kom saman um, að hvert jieirra sem ekki gæti leyst pant með sögu, skyldi verða að sitja hjá þegar hin færu að borða bláber og rjóma, án þess að fá nokkurn hlut af því. Nú var þar einn drengur, isem átti að segja sögu I staðinn fyrir pant, en hann mundi enga sögu. Þá fór hann til skóla- kennarans og sagði: “Góði skólakennari, gerðu svo vel og gefðu mér sögu, annars fæ eg ekki bláber og rjóma.” “Það er svo,” sagði skólakennarinn. “Hvað er 9 sinnum 7.” — “Það er engin saga,” sagði drengurinn. “ó-jú” sagði skólakennarinn; “það er ágæt saga, sem heitir margföldunartafla; vertu ánægður með hana, eg hefi enga aðra.” v Drengurinn fór nú að leita að sögum og kom nú til frænda síns, sem var hershö'fðingi. “HVað er þetta?” sagði hann; “vteistu hvað þýðir:' axilaðu byssu!” — “Það er engin saga,” sagði drengurinn. “Jú, það held eg,” sagði hershöfðinginn; “það er ágæt saga, sem heitir heræfingar. Vertu ánægður með hana, eg hefi enga aðra.” Nú fór drengurinn ennþá út og fcom til guðföð- ur síns, sem var ráðherra. — “Kæri guðfaðir, gefðu mér sögu, annar fæ eg ekki að borða »bláber og rjóma.” “Með mestu ánægju. Líttu hérna á, orð- una um hálsinn á mér. Það er Stanislás annar með kórónu og sverð.” — “En það er engin saga,” sagði drengurinn og var kjökrandi. “Jú, víst er það isaga,” sagði ráðherrann. “Það er virðingin. Vertu ánægður með hana; eg hefi enga aðra.” Dreng- , urinn kom nú til móðursystur sinnar, sem var ti^n- asta hirðkona til að klæða hertogafrúna. “Kæra móðursystir, gefðu mér sögu, annars fæ eg ekki bláber og rjóma að borða.” “Já, eg skal undir eins. Líttu hérna á lausa hárfléttinginn þann arna, sem eg vef upp á hnakkann á mér, það er eina sagan sem eg á.“ “En það er engin saga,” sagði dreng- urinn stynjandi. “Jú, það held eg,” sagði móður- systirin, “og það sú allra fullkomnasta. Vertu á- nægður með hana; eg á enga aðra.” Nú hélt drengurinn áfram og fór til slátrara, sem seldi kjöt á torginu. “Geturðu gefið mér sögu?” sagði dregnurinn. “Velkomið,” sagði slátrarinn, ef eg get gert þér greiða með svo litlu Líttu á, hérna er svínslæri og tveir grísafætur. Eg hefi ekki annað til.” >— En það er engin saga.” — “Hvað er þetta?” sagði slátrarinn, “getur þú ekki notað fiesk?” Ennþá einu sirini hélt drengurinn áfram og kom til ólafar föðursystur sinnar, sem skrifaði bækur. Nú var hann viss um að fá góða sögu. Ólöf föðursystir var líka undir eins tilbúin -og gaf honum ( þykka bók með siðferðissögum handa skólabörnum. “En þetta eru engar sögur,” stundi drengurinn upp. “Hvað er þetta?” sagði Ólöf föðursystir. “Dugar það ekki. Það er rjóminn af vísdóminum; það er siðfræði.” Nú var aumingja drengurinn ráðalaus og fór til skóghöggvara, sem var að höggva við úti í skógi. “Kæri skóghöggvari, gefðu mér sögu, annars fæ eg ekki bláber og rjóma að borða.” — “Það held eg sé hægarleikur,” sagði hann, “hér vaxa sögur á hverjum kvisti.” Drengurinn fór nú út í skóginn og hvar sem hann horfði í kringum sig voru sögur á hverjum trjátoppi og hverri grein, þær héngu eins og körfur í greinunum. Einirunnarnir voru svo alþaktir fallegum frásögum, að berin sáust varla. Drengurínn fór að tína, og bráðum fékk hann fulla vasana; þegar ekki komst meira í þá, fór hann. að tína í peysuna sína, og þegar peysan var full, þá tók hann í fangið svo mikið sem hann gat. Nú, pað er undarlegt, hugsaði hann með sjálfum sér; þetta hefir frændi og guðfaðir, móðursystir og föður- systir og slátrarinn og skólakennarinn alls engan gruri um. “Já, sjáðu til,” sagði einirunnurinn, — hann var nú æfinlega svo meinyrtur — “það kemur nú af því, að þau hafa ’alt af verið södd og hefir því aldrei þurft að leiðast eftir bláberjum og rjóma.” — Enn skólameistarinn er nú svo magur,” sagði drengurinn. — “Og hann ér isaddur af sínum mikla lærdómi,” sagði einirunnurinn, og gaf svo olnboga- skot með þvössu broddunum sínum. Drengurinn fór nú heim með stóru söguíbyrð- ina sína, og svo fékk hann bláber og rjóma, og nú hafði hann nógar sögur allan liðlangan veturinn, og fram á vor. En nú skal eg segja ykkur, að það má fá sögur víða ánnarsstaðar en hjá einirunnunum. ið á honum, að hann hefði tekið við nokkru af hon- um. Kaupmaðurinn varð fokreiðuh út af því að hann skyldi svíkja sig svona í trygðum og kærði munkinn fyrir dómaranum. — Dómarinn svaraði: “Þú hefir verið of trúgjarn og einfaldur. Þú hefð- ir ekki átt að trúa svona í blindni manni þeim, sem ekki var þér kunnur að dánumensku. Það mun ekki ganga greitt að koma þessum slungna bragða- ref tSl að skila aftur með góðu fénu, fyrst honum var ekki fengið það í votta viðurvist. Eg skal samt reyna, hvort eg get bætt nokkuð úr þessu. Farðu nú aftur til hans og vertu mjúkur í máli við hann; en láttu ekki bera á því, að eg viti neitt af þessu: Komdu svo til min aftur á morgun um þetta leyti.” Kaupmaður fór og gerði þetta, en fékk ekkert nema nógar skammir. Meðan þeir voru að rífast kemur þræll dómarans með þau skilaboð frá hús- bónda sínum, að hann biðji munkinn að koma heim til sín. Munkurinn kemur. Dómarinn tekur honum ofur vinsamlega leiðir hann inn í bestu stofuna og hafði svo mikið við hann, eins og hann væri mesti stórhöfðingi. Hann fór nú að tala við hann um hitt og þetta, sló honum innanum nóga gullhamra, og hældi hon- um svo mikið fyrir drengskap, speki og lærdóm, að hinn trúði honum eins og nýju neti. Loksins seg- ir dómarinn: “Eg gerði bdð eftir þér munkur minn, til að sýna þér, hvað eg trúi þér vel og ber mikla virðingu fyrir þér. *—Mér liggur mikið á, að feraðst burtu og verð eg nokkra mánuði að heiman. Eg trúi ekki þrælum mínum vel; og vildi því feginn eiga dýrgripi mina í vörslum annars eins manns og þú ert, sem allir lata svo vel af. Ef eg má mæða þig með því, og það tefur ekki önnur störf þín ofmikið, þá ætla eg aðra nótt að senda þér dýrgripi mína. En þetta má enginn lifandi maður vita;; þessvegna ætla eg að senda þér þá með þeim þræla minna, sem eg trúi best og láta eins og það sé gjöf.” Munkur- inn varð nú hýr í bragði og vinalegur, hneigði sig allann og beygði, þa>kkaði honum fyrir, hvað hann tryði' sér vel, sór og sárt við lagði, áð hann skyldi geyma gripina eins og sjáaldur auga síns; — síð- an kvaddi hann og var svo hjartaglaður með sjálf- um sér, eins og hann væri þegar búinn að ná veið— inni. Morguninn eftir kom kaupmaðurinn aftur og sagði frá hvað munkurinn hefði verið óvíkjandi. “Farðu nú einu sinni ennþá til hans,” sagð dómar- inn, “og ef hann lætur sig þá ekki, þá hótaðu honum að kæra hann fyrir mér. Eg ætla að vona, að þú þurfir ekki að hóta honum því oft.” Kaupmaður gjörir þetta. Þegar munkurinn heyrir dómarann nefndann fær hann honum óðara pyngjuna, því hann mátti ekki fyrir nokkurn mun missa traust hans, ef hann átíti að geta haft út úr honum dýrgripina. Um leið og hann fékk honum pyngjuna sagði hann hlæj- andi: “Á kunningi, þvi ætli þú farir ekki til dóm- arans! — Peningarnir þínir hafa verið vel geymdir hjá mér. Eg var rétt að gjöra að gamni mínu, til að sjá hvernig þér yrði við.” Kaupmaðurinn var of greindur til að taka þetta fyrir tómt gaman. Hann gekk til dómarans og þakkaði honum, góða liðveislu. Þegar líður að kveldi fer munkurinn að vonast eftir fjársjóðnum, eins og um var talað, en svo leið nóttin að þrællinn kom ekki frá dómaranum með dýrgripina. Það verður ekki frá því sagt hvað hon- um fanst langt, undir eins og dagur rann fór hann því heim til dótnarans: “Það var einasta erindið, “sagði ihann, “að vita hvernig á því stendur, að herra dómarinn hefir ekki sent þrælinn sinn til mín.” “Það kemur til af því,” svaraði dómarinn, “að ónefndur kaupmaður, hefir sagt mér, að þú værir argasti svikari og mun réttvísin hegna þér að mak- legleikum, ef þú verður ákærður í annað sinn fyrir slika þrælmensku.” Munkurinn hneigði sig auðmjúklega til jarðar og snautaði burtu þegjandi. TÓLF REGLUR HANDA BÖRNUM. 1. Þurkaðu vel af fótunum á þér á dyraþerr- unni, áður en þú gengur inn í henbergin. Það eru aðeins sóðar, sem vaða inn í hrein hús með óhrein- indi á fótunum. 2. Skeltu ekki hurðinni í lás, ef þú hefir ekki svo bólgnar oif aumar hendur, að þú getir ekki lát- ið hana öðruvisi aftur. 3. Komdu ekki þjótandi í hendingskasti inn í herbergin, eins og þegar skotið er kúlu úr byssu. 4. Hrópaðu ekki og kallaðu, þegar þú vilt tala við einhvern í öðru herbergi. Vertu heldur svo viljugur, að ganga iiyi til hans. , 5. Vertu kurteis og vingjaralegur við alla, en einkanlega við þá, sem lægra eru settir í heiminum en þú. 6. Hjartagæði við fátæka og bágstadda er ham- ingjuvegur. 7. Vertu stundvís og áreiðanlegur “ibráðum” og “nærri því strax,” koma engum langt á leið. 8. Þvoðu þér jafnan áður en þú borðar, og áður en þú háttar. Það er bæði ljótit og óholt að éta og sofa með óhreinindin á sér, og isofir þú með þau, verður hörundið grátt og ljótt. 9. Borðaðu æfinlega, eins og þú sætir til borðs með kónginum sjálfum — þó þa$ sé heima hjá þér. 10. Vertu jafn kurteis og athugull heima við foreldra, systkini, frændfólk og vinnufólk, eins og þú ert annarstaðar við ókunnuga. 11. Vertu ekki með olnbogann á borðinu, ný hús þurfa engar aukastyttur. 12. Það er hugleyisi,- að þora ekki að játa bresti og yfiAjónir sínar. En það er ódrengilegt, að halda yfirsjónum systkina og félaga sinna á lofti. — Þegar sumarið er komið, skaltu fara snemma út á morgnana meðan döggin liggur á grasinu, og leita um alt túnið; þar liggja mörg þúsund af sög- um, eins og perlur.. Gaktu ofan að sjávarströnd- inni þegar svolitlar öldur vagga sér ofan á vatn- inu með sléttum böndum á milli sín — það eru isögur, skrifaðar með ibláum bókstöfum, þær skaltu lesa. Á haíistin skaltu hlusta á þytinn í furutrján- um — þau segja hetjusögur frá fornöldinni. — Leitaðu í lynginu, það veit ,ótrúlega mikið, og í gula laufinu, það veit ennþá meira; það eru ein- stæðingslegar, raunalegar sögur, skrifaðar með gulum og bleikrauðum bókstöfum. Þær gera mann hæglega hygginn og angurværann. Á veturna skaltu l$sa smágervu versin á gluggarúðunum, sem eru rituð með frostrósum, og stafa saman allar fallegu hélurósirnar, sem glitra eins og málverk á skógar- greinunum. Og þegar kemur fram á útmánuðina, skaltu skoða litarbreytingar kvöldroðans á skýjun- um í loftinu; þær ljóma sem gull. Það eru töfra- hallir sagnanna. Og á haustin og veturna skaltu lesa silfurritaðar sögur stjarnanna, þær eru há- fleygastar, bestar og hreinastar allra sagna í náttúrunni, af því að sjálfur guð hefir skrifað þær á háa, bláa næturhimininn. Börn mín! ó, ef þið visisuð, hvað hin mikla auðuga og fagra náttúra getur sagt ykkur. Miklu meira en eg get tálið upp! Hver klettur og steinn, tré, runni og smájurt, dýr- imí skóginum, fuglarnir í loftinu og fiskarnir í sjón- um — alt andar, finnur til, hugsar og talar á sinn hátt! Alt hefir það sögur að ségja. En hvað þið gætuð tínt í hjörtun og vasana og svunturnar ykk- ar af sögum, ef þið vilduð hlusta á þær. Þegar náttúran einhverntíma þagnar, og þið heyrið hana ekki tala lengur, þá er það vottur þess, að þið eruð orðin Igömul og gráhærð í sálinni. En því skyldu þið þurfa að geyma grá hár ‘í sálinni? Verið þið jafnan ung í anda, verið þið guðsbörn í hjartanu, þó þið verðið gömul og gráhærð, eins og hún amma ykkar. Þá heyrið þið náttúruna alt af tala, þá heyr- ið þið englana syngja guði lof í hæðunum, og þá verður ykkur aldrei kalt í sorgum og bágindum heimsins. — v i 1 ■ Hyggni dómarinn. Kaupmaður nokkur ætlaði (að ferðast erlendis; fékk hann þá förumunki einum, er hann hélt að væri vinur sinn, pýngju með 1000 zechinum og bað hann geyma fé þetta fyrir sig meðan hann væri burtu. Að ári liðnu kemur. kaupmaður heim aftur og biður hann að skila sér þeim. En munkurinn, sem ekki var nema tóm svikin, bar á móti því upp í opið geð- ' Professional Cards DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office tlmar: 2_3 Heimili: 776 Victor St. Phone: A-7122 Winnipeg, Manitoba. Vér leggjum sérstaka áherzlu á aC selja meSul eftir forskriftum lækna. Hin beztu lyf, sem hægt er aS fá. eru notuð eingöngu. pegar þér komiS me8 forskriftina til vor, megiS þér vera viss um, að fá rétt þaC sem læknirinn tekur til. COLCLEUGH & CO. Notre Dame and Sherbrooke Phones: N-7659—7650 Vér seljum Giftingaleyfisbréf THOMAS H. JOHNSON Og H. A. BERGMAN ísi. lögfræðijigar. Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P. O. Box 1656 Phones: A-6849 og A-6840 DR 0. BJORNSON 216-220 Mcdical Arts Bldg Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office tímar: 2—3. Heimili: 764 Victor St. Phone: A-7586 Winnipeg, Manitoba. DR. B. H. OLSON 216-220 Mcdical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office Hours: '3—5 Heimili: 921 Sherbume St. Winnlpe^, Manitoba. DR. J. STEFANSSON 216-220 IWodleal Arts Bldg Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1884 Stundar augna, eyrna nef og * kverka sjúkdðma.—Er áð hitta kl. 10-12 f.h. ^g 2-5 e. h. Heimíli: 373 River Ave. Tals.: F-2691 DR. A. BLONDAL 818 Somerset Bldg. Stundar sérstaklega Kvenna og Barna sjúkdóma. Er að httta frá kl. 10-12 f. h. og 3—5 e. h. Offioo Phonc: N-6410 Heimlli: 80’6 Victor St. Simi: A-8180 DR. Kr. J. AUSTMAN'N ' Viðtalstlmi: 7—8 e. b. Heimili: 1338 WoLsley Ave. Slmi: B-7288. DR. J. OLSON Tannlæknlr 216-220 Medical'. Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-3521 Heimili: Tals. Sh. 3217 DR. G. J. SNÆDAL Tannkeknir 614 Somerset Block Cor. Portage Ave og Donald St. Talsími: A-8889 Dr. H. F. THORLAKSON Þhóne 8 CRYSTAIj, n. dak. Staddur að Mountain á m&nud. kl. 10—11 f. h. Að Gardar fimtud. kl. 10-11 f. h. • Munið símanúmerið A 6483 og pantið meðöl yðar hjá oss.— Sendið pantanir samstundis. Vér afgreiðum forskriftir með sam- vizkusemi og vörugæði eru ðyggj- andi, enda höfum vér margra ára lærdðmsríka reynslu að baki. — Allar tegundir lyíja, vindlan, Is- rjðml, sætindi, ritföng, tðbak o.fl. McBurney’s Drug Store Cor. Arlington og Notre Dame Giftinga- og Jarðarfara- Blóm með litlum fyrirvara BIRCH Blómsali 616 Portage Ave. Tals.: B-720 ( • St. John: 2, Ring 3 A. S. BARDAL 818 Sherbrooke St. Selur líkjdstur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Enn fremur selur hann allskonar mlnnisvarða og legsteina. Skrifst. Talsími: N-6607 Ileimilis TaLsími: J-8302 W. J. Lindal. J. H. Lindal B. Stefansson. Islcnzkir lögfræSingar. 708-709 Great-West, Perm. Bldg. 356 Main St. Tals.: A-4963 l>eir hafa einnig skrifstofur aB Lundar, Riverton, Gimli og Piney og eru þar aC hltta á. eftirfylgj- and tlmum: Lundar: annan hvern miðvikudag Riverton: Pyrsta fimtudag. Gimll: Fyrsta miCvikudag. Piney: priðja föstudag 1 hverjum m&nuðl. A. G. EGGERTSSON ísl. lögfræðingnr Hefir rétt til að flytja mál bæCl 1 Manitoba og Saskatchewan. Skrifstofa: Wynyard, Sask. Seinasta mánudag I hverjum mán- uði staddur 1 Churchbridge .1. J. SWANSON & CO. Verala með fasteignir. Sjá um leigu á húsum. Annast lán, eldsábyrgð o. fl. \ 611 Paris Bldg. Phones: A-C349—A-6310 STEFAN SOLVASON TEACHER of PIANO Ste. 17 Hhnily Apts. Emily St. KING GEORGE HOTEL (Cor. King og Alexander) Vér höfum tekið þetta ágæta. Hotel á leigu og veitum við- I skiftavinum öll nýtízku I>:eg- tndi. Skemtileg herbergi til leigu, fyrir lengri eða skemri tírna, fyrtr mjög sanngjarnt verð. petta er eina. hótelið í Winnipcg-borg, sem íslending- ar stjórna. TII. BJARNASON Emil Johnson. A. Thomas SERVIOE ELEOTRIC Rafmagns Oontracting — Alls- kyns rafmagnsáhöld seld og við þau gert — Seljum Moffat og McClary Eldavélar og höfiun þær til sýnis á verkstæðl vorn. 524 SARGENT AVE. (ganila Johnson’s byggingin við Young Stroet., Winnipeg. Verskst. B-Í507. Heim. A-7286 Verkst. Tals.: A-8383 Tleima Tals.: V A-9381 G. L. STEPHENSON PLUMBER Allskonar rafmagnsáliöld, svo sem stranjárn, víra, ailar tegnndtr af glösum og aflvaka (batteries) VERKSTOFA: 676 IIOME ST. Sími: A-4153. ísl. Myndastofa. Walter’s Photo Studio Kristín Bjarnason, eigandi. 290 PORTAGE Ave., Winnipeg. Næat bið Lyceum ieikhúsið. JOSEPH TAYLOR Lögtaksmaður Heimatalsímf: St. John 1844 Skrifstofu-Tals.: A-6557 Tekur lögtaki bæði hösaleiguskuld- ir, veðsltuldir og vlxlaskuldir. — Af- greiðir alt, sem að lögum lýtur. Skrifstofa 255 Main St. lslenzka bakaríið Selur lieztu vörur fyrir lægsta verð. Pantanlr afgreiddar bæðá fljótt og veL Fjölbreytt úrval. Hrein og lipúr viðskifti. Bjamason Baking Co. 676 SARGENT Ave. Wlnnlpeg. Phone: B-4298 MRS. SWAINSON að 627 SARGENT Ave., Winnliieg, hofir ávalt fyrlrlisjgjandi úrvals- Wrgðir af nýtízku kvenliöttum. Hún er eina ísl. konan, sem slíka verzlun rekur í Wtnnlpeg. Islernt- ingar, látið Mrs. Swalnson njóta viðskifta yðar. LINGERIE VERZLUNIN 6^5 Sargent Ave. þegar þér þurfið að láta gera HEM- STITCHING. ' þá gleymiði ekki *C koma i nýju búðina á Sargent. Alt verk gert fljétt ok vel. Allskonar saumar gerðir o« þar fæst ýmiSlegt, sem kvenfðlk þarfnast. MRS. S. GUNNLAUGSSON, Eignndi TaLs. 1Í7327. Winnipeg I

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.