Lögberg - 13.08.1925, Qupperneq 7
LÖGBERG FIMTUDAGINN,
13. ÁGÚST, 1925.
Bte. T
Undir íslenzkum fána.
Frá Noregsför glímumannanna
íslendingar munu verða þeás
varir, þá er þeir koma hingaS til
Noregs, að svo er sem þeir séu að
heimsækja skyldmenni sín. —
Þeim er alstaðar tekið með alúð
og gestrisni —> svo sem gömlum
kunningjum, sem lengi hafa verið
í burtu. Og þó að þess verði mjðg
vart í Reykjavík, að menn haldi
að Norðmenn tali fagurt, en
hyggi flátt, þá hefi eg aldrei orð-
ið þess var. Eg hefi rætt við ýmsa
menn, bændur, sjómenn, skóla-
menn, khupmenn, ritstjóra, og
stjórnmálamenn. ísland sjálfstætt,
að öllu leyti frjálst. Þess æskja
þeir allir. Til marks um það, hve
fjærri þeim er í þessum efnum all-
ur yfirgangur, má nefna, að grein
Árna Pálssonar í “Skírni” í fyrra
hefir alstaðar verið að góðu getið.
En því hefir gjarna'n verið hnýtt
við ummælin, að íslendingar þurfi
ekkert að óttast frá Norðmanr.a
hálfu. Ekki færri en þrír merkir
menn og áhrifamiklir Ihafa sagt
við mig: Eg mundi berjast ákaft
gegn pólitísku sambandi við ís-
land, þó að íslendingar byðu siíkt
samband. Sagan hefir sýnt það,
að pólitískt isamband yrði ekki til
annars en hins versta tjóns vin-
samlegri, andlegri samvinnu og
viðskiftum öllum.
Þa'ð gladdi mig strax, er eg
heyrði, að von væri hingað ís-
lenskrar glímusveitar. Ekkert gat
gefið Norðmönnum 'betri hugmynd
um atgervi íslendinga, þrótt
þeirra leikni, en einmitt flokkur
íslenskra glímumanna, ungra,
drengilegra og vasklegra. Eg vissi
a'ð sú heimsókn mundi hafa mikil
og góð áhrif á hugarþel Norð-
manna til vor íslendinga.
Nú eru glímumenninir komnir
og hafa þegar glímt í Björgvin, í
Harðangri, á Storð, í Haugasundi.
á Voss og í Osló. Alstaðar hefir
þeim verið dáð list þeirra og fram-
koma. Undir hinum unga' íslenska
fána hafa þeit gengið fram á leik-
sviðið — og undir honum hafa þeir
ihrópað íslenskt húrra fyrir frænd-
þjóðinni, að lokinni sýningu. Blöð.
in hafa öll skrifað jafn vinsamlega
— Og sum blátt áfram ekki vitað,
hver orð væru í málinu, er bnst
gætu lýst hrifninni. Þau hafa dáð
þróttinn, leiknina, harðfengina
og snarræðið. bg víðast hafa stað-
ið veislur og fagnaður að loknum
sýningum.
Mörg^ — eða jafnvel flest a'f
blöðunum hvetja þess eindregið,
að Norðmenn læri glímur. Er það
mjög á dagskrá í Björgvin nú að
fá íslenskan glímukennara og
stofna glímuflokk. Síðan skal sá
flokkur kenna öðrum Norðmönn-
um listina. En hvort úr þessu
verður, mun ekki verða afgert, fyr
en síðar I sumar.
Glímumennirnir komu til Voss
föstudaginn 5. júní. Kvöldið áður
höfðu þeir glímt í Haugasundi,
setið veislú fram yfir miðnætti og
síðan ferðast á sjó og landi það
sem eftir var nætur og fram til
hádegis. Og hér skyldu þeir glima
klukkan átta á föstuda'gskvöldið.
iSíðari hluta dags hitti eg þá
Jón Þorsteinsson, foringja farar-
innar, og glímukonunginn Sigurð
Greipsson. — Hvorugan manninn
Hafði eg séð áður, en nú hófst
fljótt kunningsskapur. Litust mér
mennirnir báðir drengilegir og
vasklegir. Þeir létu hið besta yfir
för sinni af viðtðkum öllum.
— Hér þurfið þið að glíma vel,
því að ihér eru íslendingar hátt
settir, sagði eg við Jón, þá er við
gengum upp í hlíðina og þeir voru
komnir lítið eitt á undan, Sigurð-
ur og Eskeland, skólastjóri, er
fagnaði gestum þessum, sem þjóð-
höfðingjar væru.
>— Já, eg veit það. Hér þurfum
við að gera okkar besta — því að
hér gera' menn sér miklar vonir.
En nú er eg einmitt hálf kvíðinn.
Við höfum haft litla hvíld undan-
farið. Járnbrantarferðálagið fer
afleitlega með okkur og svo er
sjóferðin og svefnleysið, En við
höfum alstaðar gert okkar besta
— og fólkið hefir í raun og veru
verið hrifnara af glímunni en við
nokkurntíma gátum búist við.
•— Þá er eg og kona mín komum
inn í “Ungdomhallen”, kl. 8, var
hver bekkur þéttsetinn. Við hugð
umst því standa. En þá kallaði til
mín maður, sem eg þekti ekki:
— Það er rúm á instu bekkjun-
um, minsta kosti fyrir íslendinga!
Þá er þangað kom, lét Eskeland
rýma fyrir okkur. Habn aat þa»-
og horfði eftirvæntingaraugam á
tjaldið, sem Niels Bergslien hefir
málað á, eina' af hinum frægu
þjóðsagnamyndum sínum. Inni á
leiksviðinu heyrði eg íslensku tal-
aða — Og brátt var tjaldið dregið
upp. Stóð þá flokkur á Ieiksviðinu
djarfur, þróttlegur og drengilegur.
Fremstur var glímukonungurinn
og hóf ha'nn hátt hinn þrílita ís-
lenska fána. Kvað þá við lófatak
um allan salinn. Síðan tók Jón
Þorsteinsson að iskýra brögðin —
en flokkurinn sat aftast á svið-
inu, utan þeir, sem sýndu sókn og
vörn í hinum ýmsu brögðum. Svo
hófst glíman. Tveir og tveir gengu
fratn, tókust í hendur og glímdu
af kappi í eina mínútu, án tillits
til falls. Dundi salurinn af hrópum
Og lófataki — en á milli var sem
menn stæðu á öndinni. —
En voru glímumennirnir verðir
þessara góðu viðtakna? Því svara
eg óhikað játa'ndi. Eg sá glímt af
kappi í verstöðvum vestanlands
og eg sá oft glímt í Reykjavík. En
eg sá aldrei glímt jafn prúðmann-
lega, en þó kappsamlega sem
þarna — af svo mörgum mönnum.
Glíman va'r þarna líkamsmentun
á háu stigi. Mjög var fagnað af
áhorfendum, ef illa horfðist fyrir
gl'ímukonunginum. Ef honum lá
við falli, var klappað lof í lófa um
allan salinn. “Hann er avo tröll-
stór,” heyrði eg sagt fyrir aftan
mig. Mjög var dáð vörn Viggós
Nathanaelssonar. Hann er minst-
ur glímumannanna, en snildarlega
frækinn. Ætlaði fögnuðurinn
aldrei að t&ka enda, þá er honum
var slengt út í loftið, en fætur
komu fyrst niður. Glíma hans og
Þorsteins Kristjánssonar var sér-
staklega snildarleg — og ætla eg
þó ekki að lasta hina. Þeir glímdu
a'llir ágætlega. En eftirsjón þótti
mér að Þorgeiri Jónssyni. Hann
hafði meiðst svo í Haugasundi, að
hann gat ekki tekið þátt í glím-
unni þetta kvöld. Hann var njerk-
isiberi meðan glímt var.
Að glímunni lokinni hélt Lars
Eskeland ræðu. Va'r hún stutt, en
hlý og máttug. Var hann bæði há-
tíðlegur og svipmikill og var sem
þetta væri merkisdagur í lífi þessa
norska höfðingja. Var að lokinni
ræðu hrópað húrra fyrir glímu-
mönnunum og Islandi og síðajn
hrópuðu þeir íslenskt húrra' fyrir
Noregi og Norðmönnum. — Brá
Sigurður Greipsson fánanum yfir
hópinn, er tjaldið féll.
Þá er út kom, stóð hópur manna
á götunum, og umræðuefnið var
alstaðar hið sama. Sumstaðar voru
strákhnokkar teknir að glíma af
miklum móð. Seinna um kvöldið
gekk eg með Sigurði og Jóni um
bæinn. Og við heyrðum hvíslað:
Þetta eru íslendingar!
Og sjaldan hefir það orð lát.ð
svo vel í eyrum sem þetta kvöld.
Daginn eftir hélt flokkurinn á-
fram för sinni til Oslóar.
Glímumennirnir hafa' unnið
landi sínu og þjóð.gagn og iheiður.
En íslendingar, sem til Noregs
koma, verða að gæta þess, að nota
sér ekki á óheiðarlegan hátt vel-
vild og vináttu Norðmanna. Eg
hefi því miður séð þess dæmi.
Maður gekk hér nýlega undir nafn-
inu “íslenskur prestur.” Sá var
hvorki landinu né íslenskri presta.
stétt til sóma. Nú eru það meðmæli
í Noregi að vera íslendingur. Eg
kom á samkomu í Evanger fyrir
fáum dögum, og fekk eg ekki að
borga inngangseyri — og ekki
heldur neinn greiðá — og var það
vegna þess, að Gullvág ritstjóri í
Björgvin kynti mig sem íslending.
Vlæri illa, ef 'áliti íslendinga hér í
Noregi yrði spilt af óhlutvöndum
mönnum.
Voss 8. júní 1925.
Guðmuúdur Gíslason Hagalín.
Morgunbl.
I '
Minningarsjóður
Torfa Bjarnasonar, skólastjóra
í Ólafsdal.
Á fundi, sem nokkrir nemend-
ur Torfa heit. Bjarnasonar, skóla-
sjóra í Ólafsdal héldu með sér hér
í Reykja, hinn io. júní til að ræða
um framkvæmdir [ á ákvörðun
þeirri, er nokkrir af nemendum
hans höfðu tekið við jarðarför
hans (\ júli 1915J, um að stofna
minningarsjóð, er beri nafn hans,
vorum\vér undirritaðir kosnir til
að koma málefn þessu í fram-
kvæmd.
Aðal tilgangur sjóðsins á að
vera sá, að styðja að starfsemi í:
sama anda og Torfi heitinn sýndi
í lifsstarfi sínu, sem sé að efla og
styðja íslenzkan landbúnað og ís-
Ienzka bændamenningu. Er því
tilætlanin sú, að verðlauna úr
sjóðnum, framúrskarandi dugnað
i búnaði, nýjungar, sem reynast
vel og geta orðið öðrum til fyrir-
myndar og landbúnaðinum til efl-
ingar, o. s. frv.
Nú með því að verkefni sjóSs-
ins verður afar víðtækt, ef hann
á að ná tilgangi sínum, jþá er aug-
ljóst, að fé það, sem þegar er
safnað, er svo lítið, að það getur
ekki komiS aS neinum verulegum
notum, fyr en seint og síðarmeir,
nema röggsamlega sé hafist handa
um fjársöfnun til sjóðsins sem
allra fyrst. Hugmynd frumkvöðla
þessa máls er sú, aS nefndur sjóSur
geti tekið til starfa eigi siðar en
árið 1938, á aldarafmæli Torfa
heitins.
Samkvæml framanskráðu leyf-
um vér oss því hérmeð vinsam-
legast aS mælast til þess viS nem-
endur Torfa iheitins, hvar sem
þeir dveljast, þá sem enn e ru á
lífi, að þeir leggi fram sinn skerf
til sjóðsins, hver eftir sínum efn-
um og ástæðum.og beiti sér auk
þess fyrir frekari fjársöfnun hjá
þeim öðrum, sem þeir álíta líklega
til að vilja heiðra minningu Torfa
heitins á sama hátt.
Alt fé, sem safnast í nefndan
sjóð, sendist meðundirrituðum
formanni nefndarinnar, fyrv. al-
þm. Guðjóni GuSlaugssyni, Rvik.
Þó geta þeir, sem búsettir eru í
Reykjavik og nágrenninu, og sem
vilja st^Sja umrætt málefni, snúið
sér til hvers af oss undirritaðra,
sem þeir kjósa, með framlög sín
til sjóðsins. Sama gildir einnig
fyrir þá, sem annarsstaðar eru bú-
settir, ef þeir kjósa það frekar en
að snúa hér til annara stofnenda,
þó nær þeim sé.
Vesturheimsblöðin, “Heims-
kringla” og “Lögberg” eru vin-
samlegast beSin að taka áskorun
þessa til birtingar.
Reykjavik, 14. júní 1925.
Guðjón Guðlaugsson, Guðm.
Bergsson, Jón Sigurðsson, Jón
Jónatansson, Metilsalem 'íStef-
ánsson.
------o— —
Spunavélar.
Jón Gestsson, bóndi í Villinga-
•holti í Flþa, þjóðhagasmiSur og
mesti völundur, hefir smíðað 12
spunavélar nú í vetur og siðastl.
ár, og eru þær mjög vandaðar aS
efni og smíöi, enda reynast þær
vel til notkunar, að dómi þeirra,
er þær nota, —
Það merkilega við smíði Jóns
í Villingaholti á spunavélunum, er
það, að hann hefiý, ásamt syni
sínum, Kristjáni, sem einnig.er
efni í þjóðhagasmið, gert mikils-
verðar endurbætur á þessum vél-
um, aS dómi þeirra manna er vit
hafa á þeim hlutum, og það svo
gagn-merkilegar umbætur, aS vert
er að veita þeim afhygli.
Spunavélar Jóns eru að mun
ódýrari en norðlenzku vélarnar,
sem mun helzt stafa af því, að
hann reiknar sér miklu lægri *dag-
laun en kaupstaða smiðir.
Það skilyrði hefir hann sett, að
pöntun sé skrifleg og fylgi kr.
100, fyrirframgreiðsla uppí vélar-
verðiS, sem hluti af efni, og til
tryggingar þvi, að vélarnar séu
teknar sem fyrst 46 smíði loknu;
afgreiðir svo vélafriar til kaup-|
enda eftir þeirri röð, sem greind j
skilriki koma í hans hendur.
Hverri vél fylgir: 2 gangar, I
spólur, tvinningarstó'll, sem bæði;
tvinnar og þrinnar band og þráð.j
Hesputré með teljara, 1 hespari, 51
hespur í einuj, skrúftöng og fl.l
smátæki, svo og leiðarvísir um
samsetning vélannna til þeirra, erj
þess óska.
Á stærri vélarnar, 25—30 þráSa.j
spinnúr vel æfSur spunamaður 12
til 15 pund af góðUm lopa á dagl
(10 tíma). Vélarnar má ‘stemma’
hvort heldur á fínasta þríband.eða
gróft band, snúðlint band eða snar-
asta þráð, og spinna svo traust og
slétt, að fáar konur munu spinna
eins vel á rokk, og spinna þó marg-
ar mjög vel. Oftast eru 6—8
bændur um hverja vél, og er þá
ekki meira en meðal rokkverð
hvers hluti í vélinni. Líka er mjög
heppilegt fyrir 'kvenfélög, aS fá
sér þessar vélar, og munu -þá kon-
urnar komast að raun um, aS þar
fá þter ábyggilega, duglega og af-
kastamikla vinnukonu við tóvinnu,
og áreiðanlega er það betra og
mannlegra fyilir okkur íslendinga
að vinna sem mest af okkar eigin
klæðum, úr okkar hlýju ullr held-
ur en kaupa dýra útlenda dúka,
endingarlitla og skjóllitla í okkar
kalda landi. Og með bættum
vinnutækjum, svo sem þessum vél-
um, verður mikið ágengt í þessu
efni.
Búnaðarsamband Suðurlands lét
mann, sem er kunnugur spunavél-
um, og vel æfSur spunamaður,
Sturla Jónsson bónda í Fljótshól-
um, skoða og reyna þessar endur-
bættu spunavélar Jóns i Villinga-
'holti, og hefir hann gefið sam-
bandinu skýrslu um endurbæt-
umar. Fer hér á eftir álit eða
vottorð Sturlu á vélunum:
“Eftir ósk Búnaðarsambands
Suöurlands hefi eg undirritaður
skoðaö og reynt handspunavél er
hr. Jón Gestsson í Villingaholti
hefir smíðað. Alt útlit og frá-
gangur vélarinnar er að öllu betri
en á öðrum samskonar vélum, er
eg hefi reynt, enda út af brugðið
á mörgum stöðum á smiði á henni,
sem eg tel til stórra bóta:
1. Umbúnaður á drifhjólinu er
traustari og betri, hjólstólpánn
stöSugri, sem orsakast af járn-
knappa, svo vélin getur ekki rugg-
aS til þá spunnið er.
2. Hjólin, sem vagninn gengur
á, eru með alt annari gerð. Sömu-
leiðis getur þvi vagninn ekki
hlaupið út af sporinu fþá hratt
er spunniðj, sem oft hefir viljað
til á hinum vélunum, og tel eg
þetta stóra endurbót.
3. Spunastillir þeim, er stjórn-
4r spunagrindinni, og hún^um leið
gerð einfaldari, verkar það, aS
niðurfærsla verður liðugri og þvi
betra að vinda upp á spólurnar,
því það er höfuðkostur við spun-
ann, að vel sé undið upp, þess
fljótari og betri tvinning og
hesping.
4. Takkar þeir, sem færSir eru
ti'l, eftir því sem bandið á að vera
stórt eða smátt, er i báöum hlið-
um á þessari vél. Getur því ekki
komið skekkja á vagriinn, sem
viljað hefir vera á hinum vélun-
um.
5. HliÖarvængurinn, sem drif-
hjólið er fest við, er með stífum,
er því miklri tíraustari. Véíjn
haggast því ekki þó hart sé
spunniö. Sömuleiðis bómuásarn-
ir með alt annari gerð en áSur.
Þetta tel eg mikið endingarbetra.
6. Tvinningarstóllinn: takkarn-
ir úr járni, svo spólurnar festast
ekki, ('láta eftir), .slitnar síður
bandið þó hratt sé tvinnað, og
virarnir “strammaðir” með skrúf-
um. Slakna því ekki.
7. Hesputréð mikið vandaöra aö
öllum frágangi, og um leið mikið
sterkara en þau hesputré, sem not-
uð hafa verið með hinum vélun-
um.
Eg álit herra Jón Gestsson eiga
þakkir skilið fyrir sitt góða og
þarfa fyrirtæki, þar sem hann
er með þeim fyrstu hér á Suöur-
landi, er hafa tekiS áð sér þetta
verk, og þar til gert þess&r stór-
vægilegu endurbætur á vélunum.
Því eg álít, að hvert einasta heim-
ili á landinu þyrfti og ætti að hafa
aðgang að handspunavél, ef það
væri, þá mundi heimilis iðnaður-
inn ísl. vera betur á sig kominn
en hann er nú, og þá mundu færri
krónur hafa farið út úr landinu
fyrir útlendan fatnað, skjóllítinn
og endingarlítinn.
Sturla Jónsson,
frá Fljótshólum.
—Tíminn.
Island úti og inni.
Lýsing á Alþingi 1855.
Árið 1855 var þektur enskur
bókaútgefandi pg ríthöfundur,
Chanrbbers að nafni, á ferð hér á
landi. Hann dveldi um hríð í
Reykjavík og ferðaðist um ná-
lægar sveitir. Hann reit dálitla
•bók um ferö sína, og segir allvel
frá ýmsu er fyrir hann bar. Hann
lýsir alþingi á þennan hátt:
“Uppi á lofti í skólahúsinu fann
eg þessa smámynd af þingi, og eg
gat ekki annað en dáSst að því,
hve það var einfalt og óbrotið.
Þingmenn, um 25 að tölu, sátu í
hálfhring á stólum, og í miðjum
boganum voru tvö hækkuð sæti
fyrir stiptamtmann, sém konungs
fulltrúa, og forseta þingsins. Milli
þeirra, á veggnum bak við þá,
hékk mynd af hinum síðasta kon-
ungi.
Auk þess voru aS eins 2 eða 3
sæti í salnum, ætluö riturum
þingsins.
Sumir af löggjöfunum vöru
klæddir í óbrotnar vaðmálstreyj-j
ur og buxur eins og þeir væru
heima hjá sér. Allir höfðu þeir
einfaldan og viðkunnanlegan svip,
en það var enginn skortur á góðum
höfðum og gáfulegum andlitum
meðal þeirra.”
Svona kom Alþingi í þá daga
hinum enska ferðamanni fyrir
sjónir. Gaman væri, ef einhverj-
ir greindir og athugulir útlending-
ar vildu lýsa þinginu nú á dögum.
—Tíminn.
Lausavísur.
Jónas í Hróarsdal orti i róÖri
úti á Skagafiröi, í aftureldingu:
Veiði-tólin ólmast öll,
er á hjólum lýður.
Boðar sól á Fljóta-fjöll,
í felur njóla skriður.
Sami maður var að vorlagi í
harðindum í matarþröng. Var is
á Héraðsvötnum og tíS hörð. —
KvaS þá Jónas:
Bágt á eg með barna-kind,
bjargarsmátt er hreysi.
Sendi Drottinn sunnanvind
svo að vötnin leysi.
—Sagt er, að stuttu siðar hafi
komið hláka, Vötnin leyst, og Jó-
nas náð í silung.
Ein af allra siðustu visum Jóns
Ásgeirssonar á Þingeyrum, kveðin
á Blönduósi, er hann reiS þaðan
siöast:
Veröld þjál ei við mig er,
vekur sálarþrautir;
ferðir strjálast fyrir mér
Fróns um hálar brautir.
Veröld svona veltir sér,
vafin dularfjöðrum,
hún var kona hverflynt mér,
hvað sem hún reynist öörum.
—M orgbl.
Ferðalangar.
Nei, nú fer að verða nóg 'komið
af svo góöu. Út að skoða hverina!
I virðingarskyni við Símon raula
eg, um leið og eg send upp, með
kvæðalagi hans — flesum hnykk-
unum held eg að eg sé farinn að
ná — visu úr Þingrimunum:
Alt í brandi og báli er þar,
blóði randir litaðar,
brganar falla og brandshviSur,
berst þar allur þingheimur. —
Hér er margt furöulegt að sjá,
þegar maður fer að athuga það
Hverirnir eru margir, enginn
þeirra eins stór og þeir stærstu í
Haukadal, en þeir eru miklu
fegurri. Sumir senda frá sér
allmegna brennisteinsfýlu, í sum-
um er leðja, nokkrir bulla dálítið,
mest öskurhólshver svo nefndur,
spýtir vatninu upp undir manns-
hæð; í einum er vatnið blátt, líkt
---- . ------------------- -
og sterkt blásteinsvatn, í' öörum
grænt. S'kálarnar flestar einkenni-
lega fagrar, kisillinn víðasthvar
gulhvítur. Við náðum nokkrum
steinvölum, sem komist höfðu í
þá (Tiraungrýti); ef við brutum
þær i sundur sáum við að alt að
því sentimetíra þykt kísillag var
komið utan um þá. Eg sting nokkr-
um slíkum völum á mig til minja.
Eg brýt upp hrúSur — það eru
engin spellvirki, því vatnið græSir
fljótlega öll slík mein — þar sér
maður lag á lag ofan, fikt og ár
hringi í tré, nema þykkari.
Frárenslið, sem er raunar ekki
mikið, safnast saman i eitt og
myndar þar ofurlitinn foss, til að
sjá eins og væri hann úr mjólk.
Én “fossinn” er að mestu blekk-
ing, hann er mestmegnis stallar
hvítir af kisil og sýnist því vera
foss; vatnsrenslið er hverfandi
lítið. Undir “fossinum” er hylur,
tilvalinn til þess að baða sig úr,
þvi þar er vatniö orSið hæfilega
kalt. öðrumegin “fossins” er dá
litill hellisskúti, heitur. Þar get-
um við þurkað sokka og þess kon-
ar, sem blotnað hefir.
Á norðurleiðinni fórum við um
hjá Geysi, við! Halldór höfðum
raunar komið þar einu sinni áSur
endur fyrir löngu. Þar eru aö
visu stærri hverir, eins og áður
er getið, en nú finst okkur ekkert
til þeirra koma á móts við þessa.
Símon sýnír okkur bæli Eyvind-
ar. Það er i ofurlítilli hraungjá
skamt frá hverunum, hlaðið upp
í báða enda á gjánni og sést hleðsl-
an vel ennþá. Héðan hefir hann
séS vel til mannaferða og auSvelt
fyrir hann að 'komast út á hraun-
ið og þar örðugt að leita. Einn
hverinn er og kendur við Eyvind,
Eyvindarhver.
Rigningin er orðin minni, en i
hennar stað er komin dimm þoka.
Símon fer að svipast eftir hestun-
un allmikið. Þeir hafa fjarlægt
sig all-mikiö; hann finnur þá samt
en svo er þokan dimm, að hann
ætlar ekki aö finna kofann aftur,
og er hann þó nákunnugur hér.
Það er í fyrsta skifti á ferðinni
sem hestarnir hreyfa sig nokkuð.
Gróður er hér öllu minni en ann-
arstaðar þar sem við höfum áð, enj
svo er það líka brennisteinslyktin
frá hverunum og ef til vill líka
eitthvert slíkt bragð aS grasinuj
sem þeim geðjast ekti aö.
Símon kvartar undan því, að
það sé ekki laust við að stígvélin
meiði sig dálítið —1 “en hvað um
það, þaS er öllu óhætt þangað til
viö komum til bygða.” Rólyndið
alveg óbifanlegt. En Halldór læt-
ur hann samt ekki hafa frið fyr
en hann fer úr stígvélum og sokk-
um — það er fyrsta sinn sem hann
losar um, þau á" ferðalaginu— og
sjá, það eru komin ill fleiður aft-í
an á hælana á báðum fótum. Nú
er að taka upp ferSa-apptekið, og
býr Halldór um þetta með ihinnií
mestu nærgætni.
“Þú þarft nú ekki að vera í
vatnsstígvélunum í nótt;'hér skal
eg lána þér létta skó, ef þú þarftj
eitthvaö að hreyfa þig í kvöld. Þú
þarft ekki að vera i vatnsstígvél-
unum nema rétt á meðan þú ert
á hestbaki og þá ætti þetta ekki
að þrirfa áð ýfast upp.”
Nú fær Símon að sjá hvaö apó-
tekið hefir inni aS halda og þar
ó meðal glas með kanfórudropum.
“ÞaS hlaut að vera, að hel^.
maðurinn hefði látiS eitthvað með
til að hressa mann á,” segir hann
og lifnar allur við.
“Þú ætlar þó ekki að fara að
drekka þetta?” segi eg.
“Þetta?” segir Símon og svarar
ekki með ööru en því að hann
tekur tappanna úr glasinu og
dreypir vel á því. .
“Er það gott?”
“Gott? Eh-h” segir Símon, eft-
ir að hann hefir grett sig all
mikið. “Hvað um það, en hress-
andi er það.”
Mig langar til að verða aðnjót-
andi sömú hressingar og dreypti
á glasinu eins vel og Símon. í ein-
hverju ofboði renni eg þessu
niður. ]
“Vatn! Halldór! Fljótt! Kan-
díssykur, éitthvað! Fljótt! Eg
er að drepast!” <
Félogum mínum verður" fyrst
fyrir aS>hlæja, áður en þeir lið-
sinna mér. Sjálfum fanst mér
eins og Öskurhólshver væri að
steypast ofan í mig.
Þetta leið aS vísu fljótt hjá, i
kandíssykurinn mildaði brátt þaðj
mesta — og hressandi var það eft-
ir á. En hamingjan góða, þettaj
held eg að eg leiki ekk M)ftar!
Símon smjattar enn á bragðinu,
hinn ánægðasti. Viö gefum hon-
um glasið — eg sé ekkert eftir
þvi!—Margbl.
Um Islandsmál í dönskum blöðum.
Þess er getiö í grein í “National-
tidende”, að eins dætni muni vera,
hve fljótt hafi breyzt til batnaSar.
eins og hér á landi. Hér hafi veriS
um stökk aS ræSa frá illæri til góö-
æris. Nú sé kominn stöSugleiki á
viöskiftalífiö, og ríkiS muni sjá sér
fært aS ráSast í stór fyrirtæki, enda
fari hagur ríkisins batnandi. 1— í
blaöinu var einnig viötal viS Jón
forsætisráöherra Magnússon, og er
ítarlega, minst á Ræktunarsjóö Is-
lands og útvarpslögin. Forsætisráö-
herrann tjáöi sig samþykkan þvi, aö
ísland setti á ný sendiherraembætti
í Dafimörku, og kvaöst hann vona,
aö þétta næöi fram aö ganga á næsta
Alþingi.—Mbl.
Lausavísur.
Degi hallar, dýrSlegt er
daggarfall á túnum,
smalar allir hóa hér
hátt í fjallabrúnum.
Baldvin skáldi Jónatansson,
Þingeyingur.
í gamni viö mann, , sem hún var
samtíða:
Hjá Birni fæ eg bætur meins,
brjósti hægist mínu;
•hjá hinum næ eg ekki eins
ástarlagi finu.
Helga Kristjánsdóttir,
breiöfirzk.
Bjargar limum er spill-
ing var komin í!
pa6 var aS eins sár I öfclanum. En
þaö sýnir hve blóðeitrun getur fljött
grafiö um sig, ef ekki er Zam-Buk
tll verndar. Mrs. AL Harrison,
rilace-de-Armesý Kingstom, Ontaricf,
skrifar: ‘'Binu sinnt, er eg var aö
heimilisstörfum, meiddi eg mig I
öklanum. Liitunarefni úr sokknum
þrengdi sér inn f s&riS og eiturefnin
grófu um sig. Undir eins og eg tók aS
niota Zam-Buk, fór mér ati batna,
sviSinn hvarf og bl«6eitrunin varö
aS láta undan. þetta merka meSal
nam á brott bölguna og innan mjög
skamms tlma var sárlS algróiC.”
Noti6 Zam.Buk vi6 kláða, hrufum,
sprungumv brunaslárum, vöntum og
öSru sllku.
Maður, er blett haföi fengið á
mannorö sitt, tók sér sæti í kór:
Hörmung er aS heýra og sjá,
helg þegar syngjast versin,
aS æruleysis gæran grá
gisti insta sessinn.
Eignuö Skaröa-Gísla.
—Morgbl.
LAUSAVISUR.
Um Víðidal:
Föl þótt skrýði fregna rót,
fjalls í hlíða salnum,
himfnbliðan brosir mót
breiða Víðidalnum.
Ebenezer Árnason,
Húnvetningur.
Æfiskeiðið allir sjá
0
út að mestu runnið.
Drottinn leggur dóminn á,
Dagsverkið er unnið.
Jón á Skúfastöðum.
Hófagandur hlýða má
hraustum brandanjóti,
yfir sanda og isa blá
á Skjálfandafljóti.
Baldvin skáldi, Þingey.
Hö(f. var spurö ti! veöurs að
morgni dags, og svaraöi samstundis
meö visu þessari:
Litiö vægja vill oss frá
veöra óþægi svalinn,
mörgum ægir enn að sjá
yfir Bæjardalinn.
Helga Kristjánsdóttir,
breiöfizk.
1
i
i
i
l
1
Um mann, sem stamaði, en var
eitthvað að niöra höf.:
Stamið bráins-bólu-raft
baga náir mikið,
hann ætti aö fá sér annan kjaft,
ei sem þjáir tungpjhaft.
Helga Kristjánsdóttir,
breiöfizk.
Heimslistarvísa:
Elska jeg flóða- ötul -svín.
Elska jeg góöa hesta.
Elska jeg fljóðin ung og fín.
Blska jeg ljóð og brennivín.
1 Björn Friðrikss., Húnv.
Visa sú, ær hér birtist, var nýlega
kveðin á Norðurlandi:
í Laufási nú sezt er sól
og sólskinsdagar engir,
komnir eru í Bjarnar-ból
Bolse-vikka drengir.
Kona haföi fyrir orötak: “Fari
það hreina kolað”. Hafði hún v ða
farið og þótti vergjörn, en vísan er
kveöin í orðastað hennar:
Eg hefi sveina bataö böl
og burtu meinum skolaö,
en aldrei eina feld viö fjöl,"
“fari það hreina kolað!”
Gísli Gislason, Þverá, Skf.
Þessum brekkubrjóstum á
beztu gekk eg sporin,
þegar brá mér eintal á
indæl nótt á vorin.
Jón Þorsteinss., Arnarv.
í oröastaö annars 'manns:
Gróa sárin geta ei,
grána hár í skúfum;
lífs á bárum bilað fley
berst með árastúfum.
Guðlaugur Ásmundsson,
Fremstafelli, S.Þings.
Við mig hefir veröld flá
verið góð með sprettum.
Eg því kvarta ekki má
yfir hennar glettum.
Jón á iSkúfstöðum.
Kveðið um mann, sem flutti sig
búferlum:
Burtu hrókur flæmdist flár,
forláts tók á bænum;
þó að klókur þerði brár,
það voru krókódíla-tár.
Skarða-Gísli
Járnsmiður hafði eitthvað svik-
ið höf.:
Lastastarf ei leiðist þér
laust óþarfi niður;
klækjafarfinn á þér er
eins og skarfi fiður.
« Skarða-Gisli.
•
Tekið málstað Bakkusar:
Vínið glaða gerir menn,
girnda- skaðlegt vinum,
stjórna maður á því, — en
ekki það manninum.
Björn Friðriksson, Húnv.
I lóuleit.
Upp um móa oft eg fer,
yfir móa og keldur.
En eigi lóu augað sér
og ekki spóa heldur.
\ Breiðfirðingur.
Láttu vakka að landi Bakka,
lundur stakka, siglurakka'
leið óskakka. Þá skal þakka
þér, nær flakka eg heim til sprakka
Norðlensk vísa, en höfundur ó-
kunnur. Þar sem minst er á Bakka
í vísunni, er átt við Syðri-Bakka
við Eyjafjörð.
Illa fór hann Gvendur grey,
« þó gamalt hefði ’ann ketið.
Þeir eru til, sem þrífast ei,
þó þeir geti étið.
Borgfisk vísa.
Jl
KAUPIÐ Á HEIMAMARKAÐINUM-
Þér sparið peninga.
Lofið oss að sýna yður liin stórkostlegu
“Tire” kjörkaup, sem vér höfum á boðstólum.
Partridge “Quality” Tires eru seigari og end-
ast lengi, ódýrari en þér hafið nokkurn tíma
keypt Tires fyrir áður frá nokkru póstpantana-
húsi.
Sérhvert Partridge Tire er ábyrgst. Látið pen-
ingana vera í veltunni heima fyrir.
Seldir hjá
PARTRIDCE’OUALITY” 7íre-5S°p
W. T. Kilgour, Baldur, Man. Anderson Bros., Glenboro, Man.
T. Olafsson, Arborg, Man. K. Olafsson, Riverton, Man.
H. Sigurðsson, Arnes, Man. J. M. Tessier, Cypress River, Man.
Lundar Trading Co., Lundar, Man.