Lögberg - 05.11.1925, Qupperneq 3
♦
LÖGBERG FIMTUDAGINN,
5. NÓVEMBER 1925.
BJ* 8
t
Sérstök deild í blaðinu
SÓLSKIN
Fyrir börn og unglinga
Peningamaðurinn.
Sammel rak geiturnar í hagann og gætti þeirra.
Hann stytti sér tímann með' því að tína .ber og éta
þau, og þegar íhann var saddur, lagðist hann niður í
skugga og sofnaði. Dg hann dreymdu um hesta og
reiðmenn, eða um Marianka, um föður sinn og silf-
urpeningana hans.
Já, þessir silfurpeningaf. Það var sagt að þeir
væru frá tíma; þrjátíu ára stríðsins og hefðu verið
eign eins eður annars hermanns. Peningarnir skifta
um eiganda, en menn geta aldrei séð á þeim í hverra
höndum þeir hafa verið, og þessvegna þekkir maður
ekki sögu þessara silfurpeninga. En það var þó víst,
að þar eð þeir voru frá stríðstímum, þá voru þeir
vanir' við að vera grafnir1 hiður í jörðina og liggja
þar. Og gamli Sammel fylgdi þessum vana, og lét þá
liggja í jörðunni, ekki í járnkistu, en { potti, því þeir
voru ekki dauðir, þeir aðeins sváfu og biðu þess, að
vakna. En eins og Holgeir danski, áttu þeir að sofa
eins lengi og mögulegt var, og vakna ekíki fyr en
dauðinn skipaði það. Þetta var Sammels eina sálu-
hjálplega trú, og Ihann innrætti syni sínum hana líka.
iOg áður en gamli maðurinn dó, sagði hann:
Það er bezt að þú grafir mig ofan í jörðina, en
fjársjóðinn getur þú grafið upp, þegar þú þarft
hans. Hann liggur- hjá stóra grenitrénu, tvö fet tíl*
austurs, fimm fet niðri í jörðinni.”
Ungi Sammel jarðsetti föður sinn og rannsak-
aði fjársjóðinn.
Það var alveg rétt. Þeir voru vel geymdir í
járnpotti, huldum steinum og tjörguðum að utan,
þar lágu þeir rólegir hver við annars hlið þessir
silfurdalir, með myndir af furstum og hershöfðingj-
um, sem einu sinni höfðu háð grimma íbardaga.
Ungi Sammel gat án blóðsúfchellinga háð sigursælt
stríð með þeim, en hann ákvað að láta þenna þunga
járnpott ofan í jorðina aftur, og samkvæmt ráðlegg-
ingu föður síns að kalla e!kki á hetjurnar fyr en
nauðsyn krefði.
Hann hélt áfram að gæta geitanna glaður og á-
nægður, stundum í nánd við sinh kæra fjársjóð, sem
lá geymdur Ihjá grenitrénu.
Grenitréð stóð nú ekki á hans eigin heldur á ná-
grannans jörð^ En þeir voru eins vel geymdir fyrir
því. Jörðin þar í nándinni var grýtt og ófrjó, svo
engum gat komið til hugar að plægja þar, og þó það
kæmi fyrir, var potturinn svo' djúpt niðri að engin
hætta var á að hann fyndist.
Alt hefði gengið vel, ef Marianka hefði ekki
verið.
Marianka var dóttir nágranna hans, ung og
jplleg stúlka, umkringd af ungu piltunum í sveitinni.
Sammel hefði helzt viljað grafa þenna fjársjóð
niður líka, svo afibrýðissamur var ihann, en hún elsk-
aði hann líka og gaf Ihonum aldrei ástæðu til af-
brýði.
Einn fagran dag kom faðir hennar til Sammels,
og spurði hann hvort hann vildi fá Marianke.
“Hve mikinn heimanmund fær hún?” spurði
Sammel. •
“Engan. Er ást þín svo sterk að þú spyr um
peninga? Eg á ekkert, og þó eg ætti eitthvað, mundi
eg nota þa,ð sjálfur.”
Sagimel bað um umhugsunartíma. En nú gerði
hjarta hans uppreist, og hann fann að thann gat ekki
lifað án Marianka.
Alt í einu duj;tu honum silfurpöningarnir í hug.
Bjarta tunglsljósnótt gekk Sammel til greni-
trésins, gróf upp pottinn, taldi peningana og hugsaði
um, hvort hann mætti með aðstoð þeirra ganga inn
í hið kostbæra hjónaJband. Það væri synd og mink-
un á þenna hátt. Hann gróf þá enn dýpra niður og
sagði hátt: ‘'Hvernig sem alt gengur, læt eg þá
liggja kyrra. Eg hefi tvær hendur og hún hefir tvær
og með sameinuðum kröftum ættum við að geta
komist af.” \
Hann hugsaði ekki úm það, að grenitré geta
haft eyru, einkum þegar menn sitja uppi í þeim, og
faðir Mariðnku var sá, sem sat uppi r trénu.
Það leið nú nokkur tími, sem Sammel var að
Ihugsa sig um, og gæta fjársjóðs síns, svo Marianka
var orðjn föl og kinnfiskasogin af sorg.
Þá sá hann einn dag, að faðir Mariönku lét tína
saman all$ lausa steina á; akrinum og flytja þá að
grenitrénu. Þar gátu þeijr legið, þar gréri ekkert
hvort sem var.
Brátt safnaðist stór steinahrúga ofan á fjár-
sjöðinn hans Sammels. Fyrst varð hann hræddur,
en strax á eftir hugsaði hann: “Því betur eru pening-
arnir faldir, og fyrir mig er það bending þess, að eg
eigi ekki að eyða peningum mínum ástarinnar vegna.”
'Skömmu síðar kom faðir Maríönku og spurði
hvort Ihann vildi fá stúlkuna.
‘'Borgar þú Ibrúðkaupið?”
t “Já. Eg vil ekki vera ágjarn — ofurlítið græði
eg með köflum — ertu ánægður með hundrað gyllini
íil að byrja með?”
Sammel var ánægður og giftingin fór fram.
Um sama leyti stofnaði faðir Mariönku lítið
brennivínsbruggunarhús, en steínahrúgan undir
trérwu fór vaxandi.
Tengdasohurinn vissi ekki hvort hann átti að
gleðjast éða gremjast yfir þessari steinasöfnun
tengdaföður síns. En svo komst hann að þessari
niðuijstöðu: Fjársjóðurinn var vel geymdur undir
steinahrúgunni, en tengdafaðirinn þurfti enga vitn-
eskju að fá um hann. Það eina sem Sámmel var
hræddur úm, var, að tengdafaðirinn kynni einhvern
tíma að sjá -bláan loga yfir steinahrúgunni, eða heyra
undarlegt kvejn, sem oftast var tilfellið þar sem
peningar voru grafnir í jörð. Hann spurði því
tengdapabba einu sinni:
“Trúir þú því að andar séu til?”
“Já.”
“Trúir þú því, að fólgnir fjársjóðir séu til í
jörðu?”
“Noi, hver grefur nú fj'ársjóði í jörðu?” svaraðit
hinn gamli maður. “Fyr á tímum var það siður,
en nú ekki.”
iSammel varN ánægður. Gamli maðurinn vissi
ekkert um peningana hans. Sammel gat heldur ekki
náð í þá, því það tók tíma að flytja steinahauginn.
Penihgarnir urðu því að vera þadsem þeir voru, enda
þurfti Sammel þeirra ekki nú, því hvorugt ihjónanna
hlífði sér við\að vinna, og svo fengu þau árlega dá-
lítinn styrk frá tengdaföðurnum.
Hjónabandið var gæfuríkt og börnin stálpuðust
og þrifust vel.
Níunda hjónabandsárið þeirra segir Sammel
einn dag við konu sína:
“Eg var heimskingi, sem ekki vildi eiga þig án
peninga, þú ert trygg og iðin kona, og góð móðir
börnunum. Þú ert mér sannur fjársjóður og ein-
hvern tíma skal eg segja þér nokkuð, sem þú hefir
gaman af. Eg hefi leyndarmál frá æskuárum mín-
um.” /
Marianka varð hrædd. Leyndarmál frá æsku-
árum — það er ekki skemtilegt.
Faðir Mariönku var orðinn gamall. Tímum
saman sat Ihann á steinhaugnum og horfði á barna-
börnin, sem léku kringum hann.
“Börn,” sagði hann einu sinni, “hvernig ætli
ykkur líði þegar afi ykkar situr ekki lengur á verði
hér, og pabbi ykkar kastar steinunum frá trénu?”
“Eitt kvöldið tók hann skófluna sína og fór.
Fáum dögum síðar dó hann, og nú féll ársstyrk-
urinn niður, og ekkert var eftir nema brennijvíns-
gerðin, sem hætti bráðlega.
Þá hugsaði iSammel: “Það er heppni að eg á
fjárájóðinn. Nú skal eg gleðja Mariönku.”
Eina nótt í björtu tungsljósi gekk hann til trés-
ins, ruddi steinunum iburt og fór að grafa, þegar
hann loksins náði í pottinn og lyfti honum upp,
fanst honum hann afarléttur. Hann reif lokið af,
allir silfurpeningarnir voru horfnir —
En þar á móti —
1 þeirra stað láu nýir bankaseðlar í pottinum, og
þegar Sammel taldi þá, voru þeir að upphæðinni til
miklu meiri en gðmlu silfurpeningarnir. Og á botni
pottsins lá bréf, sem á var ritað:
“Kæri tengdasonur!
* F^rirgefðu að eg hefi kostað heimánmund dótt-
ur minnar með vöxtunum af þínum eigin peningum,
en eg vildi að þið væruð ibæði gæfurík. Sjálfan höf-
uðstólinn hefi eg sama sem ekki snert. í stað banka-
seðlanna gat eg látið bankabók í pottinn, en þú þekk-
ir þær líklega ekki, og hefðir máské eyðilagt hana í
reiði þinni. Tengdasonur, farðu að mínu dæmi,'og
láttu peningana vaxa, þeir vinna fyrir þér og toörn-
um þínum, og vertu ekki reiður við mig, eg hefi vilj-
að ykkur vel.”
“Ó, þú gamli refur, þú hefir reglulega gatobað
mig,” tautaði Sammel, en hann var ekki hið minsta
reiður.
Hann fylti holuna með steinum, en gekk heim
til konu sinnar með seðlana.
“Hér eru sparipeningarnir mínir,” sagði hann.
“Hamingjan góða! Hvaðan hefir þú fengið þá?”
“Þeir hafa verið Iánaðir öðrum, og nú hefi eg;
fengið þá aftur.”
Hann lét hana hafa þá skoðun, að heimanmund*
ur hennar hefði verið toorgaður af peningum föður
hennar.
En þeim, sem sækist eftir ríkri konu,
ráðlegg eg að snúa sér að elstu dóttur Sammels, fal-
leg og góð stúlka, sem peningar fylgja.
Lafði Melville.
Það var seint um kvöldið, þegar ungi maðurinn
losnaði við brúðkaupsgestina, yfirgaf dánssalinn,
gekk, upp þröngan stiga, barði hægt að dyrum nokkr-
um og gekk inn, að hann fleygði sér á kné frammi
fyrir konu sinni, sem sat og toeið hans hjá ofnipum
í sínum skrautlega torúðarbúnipgi. v
“Stattu nú upp,” sagði hún og rétti honum
hendi sína.
“Nei, nei,” sagði ungi maðurinn um leið og hann
þrýsti hendi hennar að vörum sínum, “nei, nei, láttu
Aig liggja svona, dragðu ekki hendina þína að þér,
því þá verð eg hræddur um að þú sért töframær, sem
flýir burt frá mér, og að alt þetta sé draumur.”
Fredric de la Tour hafði fulla ástæðu til að
efast um gæfu sína. Fyrir aðeins mánuði síðan
höfðu forlögin gert 'hann ríkan, gæfusaman og ó-
háðan, á þann hátt sem hann hafði aldrei dreymt
um. Hann var þrítugur, foreldralaus með mjög litl-
ar tekjur. Einn dag var það, þegar hann gekk eftir*
götujium í París, að skrautlegúr vagn nam staðar
rétt fyrir framan hann, og kona nokkur í vagnihum
stakk höfðinu út um dyrnar og toenti honum að koma
til sín.
Þjónninn kom, lét tröppuna falla niður og
bauð honum mjög kurteislega að setjast við hliðina
á skrautklæddu konunni, sem heilsaði honum með
indælu brosi. Varla var ihann seztur þegar vagninn
fór af stað.
“Já, eg hefi fengið Ibréfið yðar,” sagði hún bros-
andi, “en þrátt fyrir afsökun yðar og neitun, vona
eg nú hiklaust að þér verðið til staðar við kvold-
skemtun mína. Þér fáið ekki að fara. Þér vitið
hve mikils eg met yður.”
“Mig?”
“Já, yður. En — hvað sé eg? Nú sé eg að mér
hefir skjátlast. Þér eruð svo líkur Lerun lögmanni
að misgrip mín eru fyrirgefanleg.‘ En hvað þér
hljótjð að hugsa um mig?”
Löngu áður en skýringin var á enda sögð, nam
vagninn staðar fyrir framan skrautlegt hús, og
Fredric gat ekki stilt sig um að rétta lafði Melville
ihendi sína og hjálpa ihenni ofan úr vagninum. Hann
gerði það með ánægju, þvj hún var yndislega fögur,
ung kona með dökk augu, fallegan hörundslit og
hvítar tennur. Það var því engin furða að hann
þáði með ánægju heimboð hennar, ekki aðeins þetta
kvöld, heldur einnig mörg önnur, og brátt varð hann
einn af hejmilisins sjálfboðnu gestum.
Þessi unga, ríka ekkja var umkringd af aðdá-
endum, en þeir voru smátt og smátt látnir fara og
sá sem hún valdi, var toinn ungi, látlausi umboðs-
maður. * ,
Stundum stóð Fredric fvrir framan spegilinn
sinn og athugaði sjálfan sig. Hann var ekki ljótur,
en fallegur vpr toann heldur ekki. Klæðnaður hans
var^látlaus, eins og vel átti yið hans litlu tekjur.
Hann var enginn yfirburða gáfumaður, svo að
hann varð að ætla, að hann væri elskaður sjálfs síns
vegna, eða þá að lafði Melville breytti í einbvers
konar blindni. því það var hún, sem fyrst mintist'á
að þau ættu að gifta sig.
Fredric vissi að hún var rík, en fyrst eftir gift-
inguna komst hann að því, að hann og hún áttu mikl-
ar jarðeignir í Burgundarskóginum í Normandi, hús
í Parjs og margar aðrar landeignir, sem hann hafði
aldrei heyrt nefndar.
Þetta var sem draumur fyrir unga manninn, sem
toeið þess hræddur að hann mundi alt í einu vakna.
Bæði borgarStjórinn og presturinn höfðu annast um
giftingu þeirra, en það var ekki nóg — hann vildi
ekki sleppa hendi konu sinnar né standa upp, vegna
hræðslunnar við það, að þá kynni þessi glapsýn að
hverfa.
“Stattu upp vinur minn,” sagði konan hans aft-
ur, “dragðu hægindastólinn hingað, og svo skulum
við spjalla saman. Það var einu sinni —”
“Já, þannig byrjá öll æfintýri,” greip Fredric
fram í fyrir henni.
“Hlustaðu nú á, vinur minn. Það var einu sinni •
ung stúlka, foreldrar hennar höfðu verið vel meg-
andi, en mistu alla eign sína sökum óheppilegs
gróðabralls. Þau tojuggu í Lyon, en vonuðu að ná
betri stöðu 1 París og fluttu þangað. En ekkert er
eiits erfitt eins og>að ná aftur glötuðum eigum, eða
að hljóta þá stöðu, sem maður ihefir eitt sinn mist.
Það fékk faðir ungu stúlkunnar að reyna. I fjógur
ár toarðist hann við fátæktina og eymdina og dó að
síðustu á sjúkrahúsi. Móðir hennar dó skömmu síð-
ar, og nú var unga stúlkan einmana — alveg ein-
mana. íHún átti ekkert til að lifa af, en talsverðar
skuldir hvíldu á henni í ’Lyon, sem hún gat ómögu-
lega Iborgað >— já, ef góð huidumær befði viljað
sinna mér, þá hefðí hún átt að koma nú, en engin
kom.
Árangurslaust leitaði hún sér að atvinnu^— ein-
mana í þessum sfcóra bæ fékk hún alls ekkert.
En hún varð að lifa — á nóttunni gat hún ekki
sofið sökum svengdar, já, Fredric, við komum beint
frá óhófssömu toorði, þar sem kampavínið streymdi,
við sitjum umkringd af öllu mögulegu skrauti, og þig
hlýtur að furða á því, að eg skúli draga upp jafn
aumkunarverða mynd fyrir þér, en hlustaðu nú á
mig: Sulturinn, þessi harði, áþreifanlegi sultur,
hann neyddi ungu stúlkuna til að toetla. Hún tók á
sig gamált sjal, vafði klút og þykkri tolæju um höf-
uðið, toeygði líkama^sinn saman og gekk út á götiftia.
* ■ Þar stóð Ihún og rétti fram hendina, en hún var
fögur og hvít og gat komið uipp um hana, og vafði
því horninu af gamla sjalinu um hana. Hún stóð
þar sem ekki var mjög tojart, og þegar ung stúlka
gekk fram hjá, rétti hún* hendina út og bað um skild-
ing fyrir brauð, en ungar stúlkur í París hafa annað
að hugsa á kvöldin en að gefa fátækum peninga. Ef
gamall maður gekk fram hjá vogaði hún að toiðja um
hjálp, en ellin er oft köld og spör á peningum'—hann
gekk líká fram hjá. Kvöldið var kalt og ýætusaiht,
nóttin toyrjaði og lögregluþjónarnir fóru að líta eftir
götunum. Vesalings stúlkan, setn var svöng og
þreytt, vogaði loks að ibiðja ungan mann Um ölmusu,
hann stóð kyr, leitaði í vösum sínum, rétti henhi
pening og ætlaði svo að^halda áfrum.
1 sama bili lagði lögregluþjónninn þungu hend-
ina sína á öxl hennar og sagði: “Nú náði eg yður.*
Þér hafið betlað á götunni. Viljið þé* verða sam-
ferða til stöðvarinnar?” 1
Skyndilega snéri ungi maðurinn við, tók arm
Ibetlarans undir handlegg sinn, sem hann hélt að
væri gömul*kona, og sagði við lögregluþjóninn:
“Yður skjátlast, þessi gamla kona er ekki toetlari,
eg þekki hana vel.”
“En, herra minn, lögin banna alt betl á götum.”
“Eg endurtek að konan er gamall kunningi minn.
Mín góða kona, hvíslaði hann að mér — látið mig
fylgja yður yfir í næstu götu; takjð þér þessa franka
og leyfið mér að frelsa yður frá þessum þjón, sem
ofsækir yður.”
“Peningarnir runnu frá þinni ihendi í mína,”
sagði kona hans, “og þegar við gengum fram hjá
Ijóskerinu, sem eg áður hafði forðast, sá eg andlit
þitt.” \
“Mitt anrdlit?” spurði Fredric utan við sig af
undrun.
“Já, vinbr miún, það var líf mitt og máské mann-
orð mitt, sem þú frelsaðir á þenna hátt, þú gafst
lafði Melville 5 franka pening — þinni tilvonandi
konu.” /
“En hvernig er það mögulegt. Þú, sem ert svo
ung, svo fögur, svo rík — að þú hafir toetlað?”
“Já, eg hefi tekið á móti ölmusu, en aðeins einu
sinni, og það var frá þér. Daginn eftir útvegaði
gömul kona mér stöðu, sem eg þekti dálítið, sem her-'
bergisþernu ihjá gamalli heldri konu — systur lá-
varðar Melville. Hún varð hrifin af mér, annaðist
mig vel, og eftir það var farið með mig sem dóttur
hennar eða góða vinstúlku. N \
Við og við kom lávarðurinn, bróðir hennar á
h^imilið, hann talaði stundum við mig, og athugaði
mig nákvæmlega öðru hvoru — eg hugsaðl lítið um
þenna gamla, heldri mann, og varð þvj utan við mig
af undrun, þegar hann kom til mín einn dag, settist
við hlið mína og sagði: \
“Ungfrú Blanche, eg þekki æfisögu yðar, systir
mín hrósar yður mikið;'eg held þér séuð vel hugs-
andi og gætið velsæmis yðar. — Þér eruð ungar, þér
eruð'fagrar, viljið þér verða kona mín?”
“Kona yðar?” hvjslaði eg nálægt yfirliði af
undrun.
“Já, eg á miklar eignir, sem eg er neyddur til að
arfleiða hina slungnu fxændur mína að — systir
mín á nóg — viljið þér verða lafði Melville, og sýna.
að þér getið toorið auð og allsnægtir með sömu still-
ingunni og þér hafið borið fátækt og neyð? Eg er
bráðum 68 ára, er oft l^valinn af gigt, en vil síður
vera háður þjónum mínum. Viljið þér verða mín?”
Eg starði á Ihann, á langa og roagra líkamann
hans, kalda og alvarlega andlitið og hvössu augfin —
og andliti þínu, Fredric brá enn á ný fyrir hugskoÆ-
sjón mína, tolíðu alvarlegu augun þín, ungi beini
vöxturinn; eg heyrði góðu og hlýju röddina þína,
þegar þú hjálpaðir mér í vandræðum mínum. Eg
* elskaði þig, Fredric, þó eg hefði aðeins séð þig einu
sinni — og eg toað Melville lávarð um umilyigsunár-
tíma.
Marga fúíðaði á því, að eg greip ekki þessa ó-
s, skiljanlegu gæfu tveim höndum undir eins, en það
gerði lávarðinn enn ákafari.
(Framahald)
DR. B. J. BRANDSON
216-220 Medlcal Arts Bldg.
Graham ogf Kennedy Sts.
Cor.
Phone: A-1834
Office tlmar: ’2_3
Heimili: 776 Victor St.
Phbne: A-7122
Winnipeg, Manitoba.
Vér leggjum sérstaka áherzlu & aTS
selja metSul eftir forskriftum lækna.
Hin beztu lyf, sem hægt er- aS fá, eru
notuð eingöngu. pegar þér k’gmiS
með forskriftina til vor, megiS þér
vera viss um, a<5 fá 'rétt það sem
læknirinn tekur til.
COLCLEUGH & CO.
Notre Dame and Sherbrooke
Phones: N-7659—7650
Vér seljum Glftingaleyfisbréf
THOMAS H. JOHNSON
Og
H. A. BERGMAN
ísl. lögfræðingar.
Skrifstofa: Room 811 McArthijr
Building, Portage Ave.
P. O. Bok 1656
Phones: A-6849 og A-6840
DR 0. BJORNSON 216-220 Medicai Arts Bldg Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office tímar: 2—3. v Heimili: 764 Victor St. Phone: A-7586 Winnipeg, Manltoba.
DR. B. H. OLSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Oífice Hours: 3—5 1 Heimili: 921 Sherburne St. Winnipeg, Manitoba.
DR. J. STEFANSSON 216-220 Mcdical Arts Bldg Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Stundar augna, eyrna nef og kverka sjúkdðma.—Br að hitta kl. 10-12 f.h. og 2-5 e. h. Heimili: 373 River Ave. Tals.: F-2691
DR. A. BLONDAL 818 Somei-set Bldg. Stundar (sérstaklega Kvenna og Barna sjúkdóma. Br að hltta frá kl. 10-12 f. h. og 3—5 e. h. Office Phone: N-0410 Helmlli: 806 Victor St. Slmi: A-8180
DR. Kr. J. AUSTMANN 72J !4 Sargent Ave. Viðtalstimi: 4.30—6 e.h, Tals. B-6OO6 Heimill: 1338 Wolsley Ave. Simi: B-7288.
í DR. J. ÖLSON Tannlæknir 216-220 Medical Árts Bldg. Cor. Graham og Kehnedy Stfl. Phone: A-3Í521 Heimili: Tals. Sh. 3217
DR. G. J. SNÆDAL Ttmnlieknir 614 Somerset Bfock Cor. Portage Ave og Donald St. Talslmi) A-8889 1
l
DR. K. J. BACKMAN. Skin Specialist. 404 Avenue Blk., 265 Portage Ave. Office phone A-1091. Res. >— N-8538 Hours — 10—1 and 3—6.
Munið símanúmerið A 6483 og pantið meðöl yðar hjá oss.— Sendið pantanir samstundis. Vér afgreiðum forskrittlr með sanl- «yizkusemi og vörugæði eru óyggj- andi, enda höfum vér margra ára lærdómsrSca reynslu að baki. — Allar tegundlr lyfJa, vindlan, ls- rjómi, sætindl, ritföng, tóbak o.fl. McBurney’s Drug Store Cor. Arlington og Notre D»me
Giftinga- og Jarðarfara- v > Blóm með litlum fyrirvara BIRCH Blómsali 616 Portage Ave. Tíils.: B-720 St. John: 2, Ring 3
. A. S, BARDAL 848 (Sherbrooke St. Selur likkistur og ánnast um út- farir. Aliur útbúnaður §á bezbi. EnW fremur seíur hann allskonar minnisvarða og legsteina. t Sl?rifst. Talsínil: N-6607 - Ilelmilis Talsími: J-8302
W. J. Lindal. J. H. Lindal
B. Stefansson.
Islenzkir lögfræðingar.
708-709 Great-Wesb Perm. Bldg.
356 Main St. Tals.: A-4963 >
Pelr hafa einnlg skrifstofur að
Lundar, Riverton, Gimli og Plney
og eru þar að hitta á eftirfylgj-
and tlmum:
Lundar: annan hvern niiðylkudag
Riverton: Pyrsta fimtudag.
Gimli: Fyrsta miðvlkudag.
Piney: priðja föstudag
1 hver^um mánuði.
A. G. EGGERTSSON
fsl. lögfræðtngur
Hefir rétt til að flytja mál hæðl
I Manitoba og Saskatchewan.
Skrifstofa: Wynyard, Sask.
Selnasta mánudag I hverjum mán-
uði staddur I Churchbridge
J. J. SWANSON & CO.
Verzla með fasteignir. Sjá
um leigu á hösum. Annast
lán, eldsábyrgð o. fl.
611 Paris Bldg.
Phones: A-6349—A-6310
STEFAN SOLYASON
TEACHER -
of
PIANO
""Ste. 17 Emily Apts. Emily St.
KING GEORGE HOTEL
(Cor. King og Alexander)
Vér höfum tekið þetta ágæta
Hotel á leigu og veitum við-
skiftavinum öll nýtízku pæg-
indi. Skemtileg herbergi *il
. leigu, fyrir lengri eða skemri
tima, fyrir mjög sanngjarnt
verð. petta er eina hótelið 1
\nimipeg-borg, sem fslending-
ar stjóma.
TH. BJARNASON
Emil Johnson. A. Thomas
SERVXCE ELECTRIC
Rafmagns Oontracting — Alls-
kyns rafmagnsáliöld seld og við
pau gert — Seljum Moffat og
McClary Eldavélar og höfum
þær til sýnis á verkstæði voru.
524 SARGENT AVE.
(ganUa John^on’s byggingin við
Young Street., Winnipeg.
Verskst. 11-1507. Heim. A-7286
Verkst. Tals.:
A-8383
Hcima Tals.:
»-A-93fe4
G. L. STEPHENSON
, PLUMBER
Allskonar rafmagnsáhöld. svo sem
straujám, víra, allar tegundir af
glösum og aflvaka (batteries)
VERKSTOFA: 676 HOMfe ST.
Sími: A-4153. fsl. Myndastofa.
Walter’s Photo Studio
Kristín Bjamason, eigandi.
290 PORTAGE Ave., Winnipeg.
Næst bið Lyceum leikhftsið.
T
Islenzka bakaríið
Selur beztu vömr fyrir lægsta
verð. Pantanir afgreiddar bæðl
fljótt og vel. Fjölbreytt úrval.
Hrein og lipur viðskifti.
Bjarnason Baking Co.
676 SARGENT Ave> Winnipeg.
Phone: B-4298
JOSEPH TAYLOR
Lögtaksmaður
Heimatalsirfii: St. John 1844
Skrifrtoíu-Tals.: A-6557
Tekur lögtaki bæiði húsaileiguskuld-
■», veðskuldir og víxlaskuldir. — Aí-
yreiðir alt, sem að lögum lýtur.
Skrifstofa 255 Main St.
MRS. SWAINSOIJÍ
nð 627 SARGENT Ave., Winnipeg,
hefir óvalt fyrlrllHgjandl úrvals-
Wrgðir af nýtí/.ku kvetthötttim.
Ilún er elna ísL konan, sem sllka
verzlun rekur f Wlnnipe'g. fslend-
ingar, látið Mrs. Stvainson njóta
viðsktfta yðar.
LINGERIE VERZLUNIN
625 Sargent Ave.
pegar þér þurfið að láta gera HBM
^TITCHING, þá gleymiS ekki að
koma I nýju búðina á Sargent, Alt
verk gert fljútt og vel. Allskonar
satrmar gerðir og þar fæst ý-mislegt
sem kvenfólk þarfnast.
MRS. S. GUNNLACGSSON, Eigandl
Tals. B-7327.
Wtnniiieg