Lögberg - 28.01.1926, Blaðsíða 5

Lögberg - 28.01.1926, Blaðsíða 5
LÖGBEBG FIMTUDAGINN, 28. JANÚAR 1926. Bls. 5. ^KIDNEY PILLS Js CH ?°5íest?í5Ií Dodds nýrnapillur eru besta nýrnameðaiið. Lækna og gigt bak- verk, ihjartabilun, þvagteppu og önnur veikindi, sem stafa frá nýr- unum. — Dodd’s Kidney Pilla kosta 50c askjan eða sex öskjur fyrir $2.50, og fást hjá öllurn lyf- sölum eða frá The Dodd's Medi- cine Company, Toronto, Canada. f jóra þingmenn, og að hann, ásamt hinum óháðu þingmönnum og þing- mönnum verkamannaflokksins, gat haft það á váldí sínu, hvor hinna gömlu fliokka, skyldi fara með völd. Leiðtogi íhaldsmanna og fylgifiskar hans, höfðu í kosuinga- hríðinni, allir undantekningarlaust svarið hátolla stefnunni fylgi. Ekki einungis þverneitað að lækka tollana frá því, sem nú eru þeir, heldur ákveðið að hækka þá, til móts við verndartolla Bandaríkj- anna. Allir þingmenn frjálslynda flokksins bænda og verkamanna- flokksins, áttu það sameiginlegt, að vera lágtollamenn, og þess- vegna var etkkert eðlilegra né sjálf sagðara en það, að þeir tækju saman höndum í helstu málunum, þegar á þing kæmi, og varð sú raunin á. 'Mr. A. Speakman, bændaflokks- maður frá Red Deer. Alberta, tók síðastur til máls flokksbræðra sinna, rétt áður en til atkvæða- greiðslunnar kom og mun óhætt mega fullyrða, að hann hafi tal- að fyrir hönd hinna seytján bændafiokksmanna, er atkvæði greiddu gegn vantraustyfirlýsing- unni. Kvaðst hann sérstaklega ótt- ast, að ef íhaldsflokkurinn til valda kæmist, myndi hann hækka verndartollana þjóðinni til stór tjóns og nema Crow’s Nest flutn- ingsgjaldataxtann úr gildi. Af þ$im þingmönnum íhalds- flökksins, sem til máls tóku, auk leiðtoga síns, þótti mest kveða að þeim Hon. Bennett frá Calgary, Mr. Cahan, þingmanni St. Lawr- ence — St. George kjördæmisins í Montreal og Hon. Hugh Guthrie frá South Wellington. Báru þeir allir lof á Meighen, hétu margs- bonar umbótum, einkum á sviði fjármálanna og gáfu jafnframt í skyn að stuðningur af hálfu bændaflokksins myndi vel þeginn verða. Snjallar og efnisríkar ræður, fluttu þeir Henry Bourassa, utan- flokkaþingmaður, frá Monreal og Woödsworth, þingmaður hins ó- háða verkamannaflokks fyrir Norð ur-Mið-Winnipeg. Lýstu þeir báð- ir yfir því, að þeir myndu óhikað greiða atkvæði gegn vantrausts- yfirlýsingunni. Var hinn fyrnefndi einkum og sér í lagi afar harðorð- ur í garð íhaldsflo'kksins og Mr. Meighen’s • Nýju ráðgjöfunum vel fagnað. Tveir hinna nýju ráðgjafa, þeir Hon. George H. Bovin, K. C., (Shefford), tollmálaráðgjafi og Hon. Lucien Cannon, K. C. ('Dorc- hester) Solicitor—General, tóku báðir til máls í sambandi við van- traustsyfirlýlsinguna. Voru það þeirra fyrstu ræður á þingi, eftir útnefningu þeirra í ráðuneytið. Var ræðum beggja tekið forkunn- ar vel. Guðbjörg Þorsteinsdóttir Kristjánsson. Ekkja frá Flögu í Hörgárdal F. 28. nóv. 1848 D. 10. jan. 1926. Mér hverfur þar sumar, er svalinn gnýr og sálin, er lífið burtu flýr, þótt daglátin spegli hver draumur nýr og dularfull spáin geymi vort æðsta og bjartasta æfintýr, frá æðra og sælla heimi. En ljóð mitt til þín er ei spurn né spá —■ eitt spor til að þakka og minna á alt heil-lyndið þínum huga frá og hjarta þíns eldinn bjarta, sem vinunum brann sem vorsól há, svo veturinn hvarf þeim úr hjarta. Þú reyndir hve heima oft örðugt er að uppskera það, sem sáði hver. En hér verður íslenzkan beinaber og brokkgeng og fælin og mæðin. Svo þungt verður huganum þar og hér hjá þeim, sem ei sníða skæðin. lEn íslenzku geymdirðu fræðin flest. í fróðleiknum sjálfrar þín nauztu bezt, þótt áhuginn beindist að ættvísi mest, sem ágætu tengdist minni. 1 hug varstu skýr unz sól var sezt á síðustu göngunni þinni. Þú áttir svo sjaldgæft sonalán, að sumargjöf næstum varð haustsins rán, þótt ellin, sem fálki með augu frán sjái’ alstaðar bráð á vegi. Þú húsfreyjan ríktir áhyggju án að æfinnar sunnudegi. Þú trúðir á sálar sigur þann, sem svefninn og dauðann yfirvann, og dýrðina, Ijósið og lífið fann, er leiðirnar hérna skildu. Þú áttir í huga þér eld, sem branh frá eilífðarlöndunum mildu. Þar brostu þér fagnandi framtíðar lönd, með frændur og vini af þessari strönd, sem móti þér tækju, er brystu bönd og búin varst þú að stríða. i— 1 tW þinni’ eg kveð þig. En tek, þér í hönd með treganum jarðarlýða. Og vertu svo blessuð um eilíf ár, þú íslenzka göfgi með djúpar þrár, þér andi Guðs friður himinhár og helgi oss minning þína. Svo kveðja þig bæði vor bros og tár, i báðum þú lengi munt sk’ína. Þ. Þ. Þ. < skýrði efni og orðfæri og Miss Að- albjörg Jbhnson las Auroru, blað félagsins. En það sem telja má aðalefni þess, sem fram fór á þessum fundi var kappræða og var umræðuefnið þetta: “Ákvaðið að kvenfólk ráði meiru i heiminum en karlmenn.” Játandi hliðina höfðu Miss Lauga Geir og Matthías J. Matthíasson, en hina neitandi Egill Fáfnis og Miss Ingibjörg Bjarnason. Játandi hliðin vann kappræðuna að dómi þeirra er til þess voru kvaddir. Það er óhætt að segja að þessi kappræða eða mælskusamkepni, eða hvað menn nú vilja kalla það, hafi tekist mjög vel og verið þeim til sóma er hlut áttu að máli. Alt þetta fólk talaði íslensku vel og virtist létt um það, þótt enskan muni þeim öllum tamari, að einum undanteknum, Agli Fáfnis, sem er fyrir fáum árum kominn til þessa lands. Stúdentafélagið íslenska er nú búið að vera til í nærri fjórðung- aldar og hefir oftast haldið uppi fundarhöldum nema einhvemtíma á stríðsárunum. Fundurinn & laugardagskveldið var manni sönn un þess, að það er enn í fullu fjöri og góðar vonir um að það eigi enn langa lífdaga fyrir hönd- um. báta, en þar eð brim var við land I hræddur maður og hjarta hreinn gátu þeir ekki lent. Þeir biðu þessvegna í bátunum fyrir utan brimið, þangað til seinnipartinn á mánudag, að þeir gátu lent við illan leik þó; en alt gekk það slysalaust. Meðallendingar voru altaf í fjöru og gáfu skipbrots- mönnum bendingu þegar þeir skyldu róa í land. Skipið hafði meðferðis 480 smál. af kolum, er áttú að fara til ísa- fjarðar, til hvers þar vitum við ekki. ástríkur eiginmaður og góður faðir. Manni finst, að við reikn- ingsskilin hinstu, hafi hann feng- ið þau orð að heyra af vörum hans, sem síðast yfirskoðar reikninga lífsins: “Þú varst trúr yfir litlu, eg mun setja þig yfir mikið; gakk inn í fögnuð herra þíns.” Um afstöðu stjórnarinnar til breytingartillögu Mr. Meighen s, fórust Mr. Boivin þannig orð: “(1) Ef til þess kæmi, að tillag- an fengi framgang, myndi stjórnin ekki eiga annars úrkosta, en að segja af sér. (2) Sá væri jafnframt skilning flokksins. Rt. Hon. W. L. Mac- kenzie King og æsktu þess jafn- framt, að hann fengi sem allra fyrst sæti á þingi. Mun þess og eigi verða langt að bíða úr þessu, með því að aukakosning í kjör- dæmi því, þar sem hann býður sig fram, Prince Albert, Sask., fer ur stjórnarinnar í máli þessu, aðjfram þann 15. febrúar næstkom- þótt tillagan yrði feld, myndi ráðu- andi, og má hiklaust telja hon- Hveitisamlagið. Eitt af því, sem bændurnir hafa jafnan talað mikið um, er hvað gert væri við það korn, sem af- gangs væri sérstalklega í kornhlöð- unum við hafnirnar. Hvað hveiti- samlagið snertir, hefir fyllilega verið' ráðið fram úr því. Það sem afgangs er, ef það er nokkuð, rennur í sameiginlegan sjóð þeirra er kornið rækta. Að þessir afgang- ar renna til þeirra, sem kornið eiga, er eitt af því, sem einkennir aðferð hveitisamlagsins, þar sem hveitið fer um farveg samlagsins fceint frá framleiðanda til neyt- anda. Auðvitað er við því búist af starfsmönnum hveitisamlagsins sem vinna við kornhlöðurnar, að vigta rétt, en ef samt sem áður eitthvað kynni að verða afgangs, þá fá meðlimir hveitisamlagsins það alt aftur. Margir bændur búa þannig, að þeir fá aðeins noktkurn hluta upp- skerunnar. Ýmsir hafa verið í vafa um hvort þeir, er þannig eiga hlut af uppsk^runni gætu gengið í hveitisamlagið, ef hinn, sem á hlut á móti þeim, vill ekki verða meðlimur. Þó landeigandinn vilji ekki ganga í hveitisamlagið, eða þá hinn, sem vinnur landið vilji það ekki, þá kemur það ekki í veg fyrir að sá af þeim, sem inn vill ganga, geti gert það. Það er þann- ig ástatt um marga, sem nú til- heyra samlaginu. Það er því ekk- ert því til fyrirstöðu, að hver, sem þannig stendur á fyrir, gangi í hveitisamlagið fyrir sitt leyti. Það eru ýmsir bændur í Mani- toba og Saskatchewan, sem gjarn- íslenskur togari grunaður um landhelgisbrot. “Þór” skýtur 6 fallbyssuskotum á eftir honum. en togarinn sleppur. Seinnipartinn í gær kom varð- skipið Þór hingað til bæjarins. Þegar eftir komu hans flaug sú fregn eins og eldur í sinu um bæ- inn, að Þór hefði hitt togara vest- ur við ólafsvík á mánudagsnótt- ina var. Var togarinn ljóslaus. Var hann svo nálægt landi, að grunsamlegt þótti. En er varð- skipið nálgaðist togarann leitaði hann undan, báru varðmenn kensl á, að þar var hinn nýi togari Jupi- ter, er keyptur var nýlega í stað- inn fyrir Belgaum, Skipstjóri Þórarinn Olgeirsson. Er togarinn leitaði undan, höfðu varðmenn ekki önnur ráð en hleypa úr byssunni. Sex sinnum varskotið á eftir togaranum, en alt kom fyrir ekki. Hann sigldi út í myrkrið. Morgunbl. 16. des. Œfiminning. neytið hvorki skoða það, sem beina velþóknun þingsins á gerð- um þess, síðastliðin fjögur ár, né heldur slkýlaust umboð til þess að sitja áfram við völd um óákveðinn tíma. (3) Hitt lægi í augum uppi, að fall vantraustsyfirlýsingarinnar hlyti að skoðast sem viðurkenning þess, að King stjórnarformaður hefði breytt rétt, er hann ákvað eftir kosningar að vera við völd unz þing kæmi saman og stefna því til funda, eins fljótt og frekast var kostur á. Frjálslyndi flokkurinn sem einn maður. Rétt um þær mundir er þing koan saman, lýstu allir þingmenn frjálslynda flokksins trausti sínu á stjórnarformanni og leiðtoga Moldar minni. Vor fyrst var mold. Að moldu slætt hvert merkurdýr — þess fyrri daga fiskivers var faðmur hlýr. Við sólarinnar svása yl varð særinn stór; við áhrif ljóss og lífræns mjöðs varð leirinn frjór. Vor fyrst var mold. Úr skorpu-skáp vor sköpun sté; vort dýraríki, grösin græn og grenitré. Og breytiþróun þörf var lífs, að þroskast meir; unz mannlegt loks var mótað hold í mök við leir. Sú haldvéf nú er hæsta snild á hnetti þeim, þar grundvöll lagði leirinn fyr að lífsins heim; því holdsins andans innri makt hér æðst á fold. við sólareld var soðin upp úr svartri mold! Vor glæsta mold! þess grunnur alls sem gaf oss líf, er seðftr oss — og seinast ert vor síðsta hlíf! þitt dýrkar nafn um eilíf ár vor andi rór; vér lifum, því við lífsmagn þitt er leirinn frjór. (X T. Johnson. um þar sigur vísan. Þykir enda líklegt að hann nái kosningu gagn- sóknarlaust. Merkilegir hljómleikar í vœndum. Undanfarna mánuði hefir all stór flokkur karla og kvenna, (eitthvað um sjötíu raddir) verið a.ð æ<fa söngverk eitt mikið og meúkilegt , eftir Björgvin tónskáld Guðmundsson, og er svo til ætlast að hljómleikarnir fari fram í Fyrstu lútersku kirkjunni, seinni part næstkomandi mánaðar, ef til vill þann 22. Er verk þetta flokkur helgisöngva. fSacred Cantata, og nefnist “Advenat regnum tuum’ (Til komi þitt ríki). Hljómverk þetta er næsta fagurt með há-kirkjulegum blæ, máttugt og mjúkt til skiftis. Ætti söngelskt íslenskt fólk í þessari borg, því ekki að sitja sig úr færi, heldur láta hvert einasta sæti kirkjunnar verða fkipað hljómleikakveldið. Geta má þess og að sungin verða jafnframt við þetta tækfæri tvö lög eftir Björgvin, við texta úr “Strengleikum” Guðmundar Guð- mundssonar, svo sýnt er, að eigi verður móðurmáli voru skipað í krókbekk. IBjörgvin Guðmundsson er víð- gáfaður maður, óvenju auðugur af nýjum melódíum og er sárt til þess að hugsa, að honum hefir eigi veizt frekari kostur til enn víð tækari mentunar í ríki tónanna. Fólk það, er að undirbúningi hljómleikanna vinnur, hefir sýnt frábæra alúð, að því er æfingum viðkemur, og er slíikt gleðilegur vottur um vaxandi áhuga. Jóhann Kr. Johnson. Svo sem um var getið á sínum tíma í íslensku blöðunum, andað- ist að heimili sínu í Winnipeg, 17. ágúst 1925, Jóhann Kristján John- son, kaupmaður, er nú sýnd hér andlitsmynd hans og skal getið Nýir bændur og vinnu- lýður fyrir Canada. í samkomulagi við stjórn lands- ins, hefir Hudsonls Bay Company Overseas Settlement Limited, tek- ist. á hendur að flytja hingað vænt- anlega bœndur og koma þeim hér fyrir á hagkvæmum bújörðum. Verður fólk það, er inn flyst á þenna hátt, frá hinum ýmsu Evrópu-löndum. 'Hudson’s Bay félagið er þekt um víða veröjd fyrir ráðvendni og nákvæmni í öllum þess athöfnum og er mönnum því óhætt að reiða sig á, að það lofar engu upp í ermina sína.' Þeir bændur, sem kynna að vilja fá vinnufólk frá Evrópu, eða frændur og vini, ættu að snúa sér sem allra fyrst til Hudson’s Bay Overseas Settlement, Limited, Main Street, Winnipeg, er lætur góðfúslega allar upplýsingar þessu viðvíkjandi í té. Er áríðandi fyrir menn, að senda þangað fult nafn ásamt heimilisfangi. Hafi bændur enga ákveðna persónu í huga, er þeir vilja fá hingað út, heldur eitthvert vinnufólk, þá getur félag þetta komið slíku til leiðar á afar skömmum tíma. Út- vegar félagið með glöðu geði öll skjöl og skilríki, setur sig i sam- band við persónur þær. er inn eiga að flytjast, og hefir eftirlit með ferðalaginu til hins ákveðna stað- ar í Canada. Eftir að' hingað kem- ur, mun félagið leiðfcæina fólkinu á margvíslegan hátt, og láta það þar með verða aðnjótandi þeirrar miklu þekkingar í sambandi við kosti og val bújarða, er félagið á yfir að ráða. Þess er æskt, að sem flestir sendi -nöfn og heimilisfang vina sinna í Evrópu, þeirra, er í hyggj.u hafa að flytja hingað, til Hudsön’s Bay Com[>any's Overseas Limited, Winnipeg, sem veitir fúslega allar frekari upplýsingar þessu viðvíkj- andi. Athygli bænda í hinum ýmsu bygðarlögum, skal hér með dregin að auglýsingu Hudson’s Bay Company Overseas, Limited, sem birtist á 5. blaðsíðu í Lögbergi fimtudaginn þann 28. janúar. MAGIC BAKING POWDER an Vildu ganga í samlagið um að helstu æfiatriða. selja grófari korntegundir, en vilja þó gjarnan mega seíja heima fyrir, hafra til útsæðis, án þess að þurfa að fá leyfi til þess hjá embættismönnum samlagsins I hvert sinn. Þetta er hægt að gera, því sérstakar ráðstafanir hafa ver- ið gerðar, svo meðlimir hveitisam- lagsins geti selt hafra heima fyr- ir. Upplýsingar þessu viðvíkjandi ai^Vrifstofan í té og eins nefndirnar í hverju héraði. í Al- berta fylki eru ekki samtök um að selja grófar korntegundir. Stúdentafélagið. Stúdentafélagið hélt fund á laugardagskvöldið ! fundarsal Fyrstu lútersku kirkju. Fundur- inn var vel sóttur ogskemtilegur. Forseti félagsins Miss Aðalbjörg Jöhnson stýrði fundinum vel og skörulega. Islenzkan er henni á- reiðanlega ekkert ofurefli þó hún sé alin upp hér í landi. Sveinbjörn ólafsson talaði um að auglýsa lsland meðal annara þjóða. Hann talaði á ensku, en aít annað fór fram á íslenzku. Quartett sungu Miss Bjarnason, Miss Bardal, Hermann Melsted og Jón Bjarnason. Miss Halldórson lék á píanó. GISLI A LÓNI. Þegar eg sá þig síðast, frændi, svipurinn þinn var hreinn sem fyr. Þá bar fjölda gesta að garði, og gleðibros við hverjar dyr. Sama höföings lundin ljúfa, sem léði þér ætíð þol og fjör, Þitt hús var kóngshöll bygðarbúa, sem blíðkaði margra hrygðar kjör. Eg veit á Lóni ríkir rökkur, og renna af kinnum saknaðs tár, hvar bros þitt skein er depill dökkur, sem dreifist vart í fleiri ár. Hún Margrét þín og mætar dætur mistu sína hjartans þrá, en það eru að eins nokkrar nætur unz njóta þín að aftur fá. Dagsverkið þitt er klappað og klárt bg komið í gegn með prýði; þó að stundum sviði sárt, þú sintir ei kveifara lýði; í heims þrauta kifi þú ei brást, en þoldir öll jelin svölu; sannar þakkir; þú sífelt varst ' í sómamanna tölu. Þú áttir skilið þann skapadag, í skyndi sem bar að hendi; þú áttir skilið þann hinzta hag, sem heilagur Guð þér sendi; þú áttir sk'ilið það himneska hrós, sem hreptir þú, firtur kvölum; þú áttir skilið að liða sem ljós frá lífsins jarðnesku sölum. Jón Stefánsson. Jóhann Kr. Johnson var fæddur 4. dag ágúst mánaðar árið 1858 á Dvergarsteini á Islandi. Var hann sonur Jóns prests Jónssonar, er lengi þjónaði Dvergarsteins- prestakalli, og konu hans Bjargar Magnúsdóttur, er ættuð var frá Hömrum í Eyjafirði. Er Jóhann var tíu vetra misti hann föður sinn, var hann eftir það hjá móð- ur sinni þar til hann var sextán ára. Fór hann þá til Eskifjarðar til frænda síns, Jóns sýslmarns Jónssonar og var skrifari har.s hálft annað ár, réðist hann þá sem bókhaldari til Karls kaupmanns Tuliniusar á Eskifirði og var þar fast að fimtán árum. Eftir það fluttist hann til Djúpavogs og var bókhaldari við verslun örum og Wulfs i sex ár. Næstu þrjú árin var hann við verslunarstörf hjá Otto Wathne á Seyðisfirði. Byrj- aði hann þá verslun á sjálfs sín reikning á Seyðisfirði og hélt henni áfram þar til hann fluttist til Vesturheims. Árið 1892, 8. sept. Icvæntist Jó- hann og gekk að eiga ungfrú Guðríði Helgu Hóseasardóttur frá Jórvík í Breiðdal. Lifir hún mann spili og slíku athæfi. “The Wheel” er samt sem áður ekki prédikun beinlínis. Það eru myndir, sem ber fyrir augað hver eftir aðra, sem sýna lífið eins og það er og a- horfendurnir draga sínar ímynd- anir og ályktanir af þeim. Leikararnir eru sjálfir trygg- ing fyrir því að vel sé leikið, eins og t. d. Harrison Ford, Claire Adams, Mahlam Hamilton, Mar- gret Livingston David Torrence, Clara Horton og George Horris. Það erhægt a(ð skilja “The Wheel” og myndin dregur vafalaust að sér fleira fólk heldur en flestar aðrar myndir á þessu ári. WALKER John Coates, hinn frægi enski tenor söngvari verður á Walker leikhúsinu mánudagskveldið 1. febrúar næstkomandi. Það er í fyrsta sinn, sem hann er þar og eina skiftið, sem hann syngur í Winnipeg. Mr. Co'ates .hefir hlotið mikla aðdáun þeirra, er söng unna í New York, Boston, Montreal, Ottawa og hvar annarstaðar þar, se.m hann hefir komið nú á fyrstu ferð sinni um Canada og Banda- ríkin. Hann er þektur fyrir sína fögru rödd og sérstaklega hvern- ig þann fer með efnið og, skýrir skemtilega söngvana, sem’ eru á skemtiskránni. Það þarf ekki æfða söngfræðinga tilað skilja og gleðj- ast af að heyra John Coates. Sæt- in eru nú til sölu. * * * Sir John Martin Harvey, fræg- astur leikari í hinum enskumæl andi heimi, verður á Walker leik- húsinu á þriðjudagskveldið. 2. febrúar og verður þar í fimm kveld og einnig síðari hluta dags á miðvikudag og laugardag. Hann sýnir þar leikinn “The Only Way’ sem hann er frægur fyrir að leika svo ágætlega. Hann sýnir mjög fallega á leiksviðinu atriði úr stjórnarbyltingunni frönsku. Með honum verða margir ágætir leik- arar, sem leikið hafa með honum í London og á fyrri ferðum hans um Canada þar á meðal Lady Mar tin Harvey og mörgum leikurum, sem ekki hafa áður verið i Winni- peg. Sætir eru nú fáanleg nær sem WONDERLAND. Leikurinn The Freshman verð- ur sýndur á Wonderland á fimtu- dag, föstudag og laugardag í þess- ari viku. Það er mjög spennandi og skemtilegur leikur, sem sýnir skólapilt, sem hefir mikið álit á sjálfum sér og sækist eftir því að láta mikið á sér bera og komast í álit hjá félögum sínum og öðrum. En þetta sjálfsálit var ekki bygt á réttum grundvelli og hann kemst að því að þeir sem Tiann hélt að þætti mikið til sín koma, gerðu bara háð að honum. Þeir höfðu haft hann bara eins og fífl. En hann rankar við sér og hættir að sækjast eftir lofi annara, en reyn- ir að vera eitthvað sjláfur og hann sýnir að hann getur það. Leikur- inn er mjög hrífandi. Á mánudag, þriðjudag og mið- vikudag næstu viku sýnir Wonder- land Ieikinn “So this is Marriage” sem ^ Hobart Goldwyn hefir gert. Þar er ekki aðeins sýnd mynd af hjónalifinu eins og það er nú á dögum, heldur sýnir hún einnig hvernig það var í gamla daga hjá unga fólkinu þá. Það gerir mynd- ina miklu falegri og skrautlegri að tekin er inn í hana sagan úr biblíunni um Davið konung í nátt- úrlegum litum. f leik þessum eru margir ágætir leikarar, sem leysa hlutverk sín eðlilega af hendi og Ieika prýðis vel. Frá íslandi. Skipstrand. Norskt eimskip, “Eina Ingva Nathan Are,” strandaði aðfara- nótt mánudags austur í Meðal- landi. Mannbjörg varð. (ISímtal við Vík, 15. des.) Aðfaranótt mánudags 14. þ. m. strandaði norskt eimskip “Eina Ingva Nathan Are”, frá Bergen, á Efri-.Eyjarfjöru á Meðallandi. Skipið hafði strandað á útfiri og sinn og býr með börnum sínumlfólk vill koma af þeim sjö skiftum að 512 Toronto St. í Winnipeg 1 sem Sir John Martin Harvey leik- Þeim hjónum varð fjögurra barna ur hér í “The Only Way auðið. Fyrsta barn þeirra, Björg- vin Stefán, dó tæplega árs gamalt. Hin þrjú eru öll uppkomin og heita Svava, Lára Gyðbjörg og Hóseas Joseph Walter. Til Vesturheims komu þau Jóhann og Guðríður og börn þeirra sumarið 1903. Eftir skamma dvöl í Argyle, Man. fluttust þau til Edinburg í North Dakota og var Jóhann þar við verslunarstörf i tvö ár. Til Mozart í Saskatchewan fluttust þau í maí 1906 og voru þar 1 tólf ár. Rak Jóhann þar verslun öll þau ár og græddist fé töluvert. Vorið 1918 seldi hann verslunina og flutti til Winnipeg og bjó þar til dauðadags. Jóhann Kristján Johnson var skýrleiks maður og frábærlega vel að sér í þeim fræðum, er hann lagði fyrir sig, reikningsmaður og bókhald'ari frábærlega góður og Alveg óviðjafnanlegur drykkur Sökum þess hve efni og útbúnaður'er 8 fuilkominn. PROVINCE. Stjórn Province Ieikhússinsímæl ir ekki með því, að börn sjái mynd- ina “The Wheel.” Það er í samræmi við þá stefnu, sem hefir bygt upp þetta leikhús, að ráðsmaður þess kemur nú fram og auglýsir að myndin, er sýnd verður næstu viku, “The Wheel” er ekki þannig að holt sé fyrir börn og unglinga að sjá hana. Honum er ljóst að flestar myndir hans eru þannig að börn mega gjarnan sjá þær, en hikar ekki við að vara mæður og feður við að láta\börn sín sjá þessa af því hún snertir áhættuspil. Mr. Jernberg álítur að þar, sem hann gefur þessa aðvörun, þá geti for- eldrar óhætt sent börn sín á leik- húsið á öðrum tímum, og ekkert verði sýnt, sem þarf að óttast. Myndin “The Wheel” verður sýnd á Province leikhúsinu næstu vándvirkU. Ráðvándur var hann b™ar á mánudaginn Þeir William Fox og Victor Schertzlng- og mátti ekki vamm sitt vita í nokkrum hlut; geðprýðismaður og svo vinsæll, að aldrei mun hann Séra H. J. Leó las Þrimskviðu og komust skipsmenn, 14 að tölu, í hafa átt óvin á lífsleið sinni; guð- er hafa gengið svo frá henni, að hún hlýtur að vekja athygli þeirra sem láta sér ant um góða siði, þvi leikurinn sýnir hættuna af áhættu Kievel Brewing Go. Limited St. Boniface Phones: N1888 JN1178

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.