Lögberg - 17.06.1926, Blaðsíða 5
LÖGBERG FLMTUDAGINN,
17. JÚNl 1926.
Bls. 5.
Whoopee-ee!! The Cowboys eru ad koma til
Sex Daga
i Júní 29. til Júlí 5.
Championship Cowboy Contest
Það verður líf
í þessu piltar!
Beztu reiðmenn, sem nokkurs staðar finn-
ast, koma tií Winnipeg, til að taka þátt í
‘‘Stampede” leikjunum. Leikimir fara fram
á hverjum degi. Byrja kl. 2 síðari hluta dags
og kl. 7 að kveldinu. Aðgöngumiðar eru nú til
sölu í öllum helztu búðum bæjarins og kosta
$1.10. Ef þér kaupið aðgöngumiða nú, þá hafið
þér tækifæri til að fá Pontíac bíl fyrir ekkert.
Þér komið að sjá leikina hvort sem er, og því
þá ekki að kaupa aðgöngumiðann strax og forð-
ast þvöguna við innganginn? .
Hér verður alt að sjá, sem vanalegt er á
“Stampedes”. Staðir og óþægir hestar, kapp-
reiðar menn ríða berbakt viltum hestum, ná
kálfum með því að vef ja reipi um hálsinn á
þeim, og gera það af hestbaki; sýnt hvemig'
viltar kýr eru mjólkaðar; menn standa á lend-
inni á hestunum og láta þá svo hlaupa. Margt
fleira verður þar gert, sem er engra meðfæri,
nema þaulæfðra reiðmanna.
MjEYGT af baki
Koinið og sjáið
The Stampede!
Þér sjáið vilta hesta, hrikalega viðureigiji
milli manns og hests; vilta uxa, sem sitja um
tækifæri til þess að ráðast á piltana og stanga
þá ; fallega og fljóta kálfa; fallegar og djarfar
stúlkur, sem ekki láta hættuna draga úr sér
kjarkinn, en era djarfleg^r og brosa fallega til
áhorfendanna hyernig sem gengur. Þar em
hestar keyrðir svo hart, að það liggur við að
alt brotni í mél. Hestamir detta stundum, en
standa upp aftur og halda áfram hlaupunum.
Þar er sýnt, hvernig margir hestar, sem festir
em saman, reyna sig við samskonar hóp af
hestum. Allir era hestarnir bara Mlf-tamdir.
Það er gaman að sjá hvernig farið er að mjólka
viltar kýr. Þar geta menn einnig séð róm-
verska leikinn, þar sem maður stendur á tveim-
ur hestum, en þeir hlaupa sem harðast; detti
maðurinn er lífi hans og limum hætta búin.
Þar gefur einnig að líta “relay races” og
“chuck wagon races”. —annars alt sem full-
komið “Stampede’” hefir að bjóða.
u
ONE WILD AND WOOLÝ WESTERN WEEK” — “RIDE ’IM COWBOY!!”
The Winnipeg Stampede er undir ráðsmensku Alberta Stampede ,Co. Ltd.
WELSH BROTHEKS,
Stampede Managers.
PETER WELSH,
President.
H. C. McMULLEN,
Director-General.
FRED KENNEDY,
Stampede Secretary.
...... .iimiímim..............
ræktaða akra þess lands, getur
gert sér í hugarlund hve mikið
var starf frumbýlinganna. Stein-
ar og stokkar tala stundum. Björg-
in og trén, sem íslenzkir innflytj-
endur vestra ruddu úr landnámi
sínu, eru þöglir en þó talandi
vottar um atorku þeirra og
manngildi. Það er hverju orði
sannara, að:
“Landnemans lesa má
lífssögu um engi og tún.”
Víðlend akurlönd og blómleg
býli, sem risið hafa á rústum
fyrstu bjálkakofanna, brosa nú
hvervetna við augum í nýbygðum
íslendinga vestan hafs. , Svona
eru framfarirnar miklar á tæpum
mannsaldri. í borguhum hafa
landar okkar einnig brotið sér
braut til bættra lífskjara og koma
þar fram sömu einkennin og með-
al frumbyggjanna í sveitunum.
Eigi veit þá, er þetta’ ritar neitt
ná/kvæmlega um peninga- eða
land-eign íslendinga 1 Vestur-
heimi, en hitt er honum kunnugt,
að margir þeirra eru vel efnum
búnir, þó einnig séu þeir, sem
við örðugri fjárhag eiga að búa.
Svo munu flestir íslendingar
skapi farnir, að þeim þyki sá
kostur verstur, að af þeim fari
engar sögur. Þessu skapbrigði
hefir mjög borið á meðal landa
okkar vestra. í þjóðfélags og
stjórnmálum hafa þeir tekið all-
mikinn þátt, einkanlega á síðari
árum, og ýmsir þeirra aflað sér
góðs orðstírs á þeim sviðum. Þing-
manns-sess hafa sumir þeirra
^TDODDS W
IKIDNEY 0
k"lLMí
Lght*s di5bV ,
hP'^BETE S B V|l|
Dodds nýrnapillur eru besta
nýrnameðalið. Lækna og gigt bak-
verk, (hjartabilun, þvagteppu og
önnur veikindi, sem stafa frá nýr-
unum. — Dodd’s Kidney Pills
kosta 50c askjan eða sex öskjur
fyrir $2.50, og fást hjá öllu*m lyf-
•ölum eða frá The Dodd's Medi-
cine Company, Toronto, Canada.
sckipað og skipa enn, og aðrar
trúnaðarstöður. Vert er að geta
þess, að um all-langt skeið sat ís-
lendingur í dómsmála ráðherra-
sæti Manitoba fylkis og þótti fylla
þann sess með sóma.
Á öðrum starfsviðum hafa land-
ar okkar einnig látið til sín taka
þar vestra, og unnið sér traust og
sæmd. í presta- og læknastétt
eiga þeir margan ágætismann eigi
síður en í mörgum öðrum stöðum
þjóðfélagsins. Seilst hafa þeir
einnig inn á svið lista og vísinda.
í hljómlist og málverka mætti nðfn
nefna, sem aukið hafa orðstýr ís-
lands. Vísindamenn hafa þeir
átt, eigi all-fáa 1 ýmsum greinum
og eiga í flokki sinum. Líklega er
það á vitorði allra íslendinga, að
landi þeirra, fæddur í Canada, er
heimskunnur landkönnuður og
rithöfundur.
Eru rit hans, svo merk sem þau
eru, vonandi lesin af þeim hér
heima, sem ensku kunna, og hefir
margt óþarfara verið unnið en að
snúa þeim á íslenzka tungu.
Engir hafa þó borið merki ætt-
lands síns fram til stærri sigurs
eða meiri frama, heldur en ís-
lenzkir námsmenn vestan hafs.
Þeir hafa eigi ósjaldan verið
fremri öllum öðrum samferða-
mönnum sínum á námsbrautinni
og borið veríílaun af hólmi. Tveir
þeirra unnu hinn fræga Rhodes-
námsstyrk, en sá sem hlýtur þann
heiður, fær í hlut þriggja ára
dvöl við fremstu háskóla Bret-
lands. Skipa menn þessir nú há-
ar stöður. Er annar þeirra pró-
fessor í klassiskum fræðum við
Wesley College í Winnipeg, en
hinn rektor lagaskólans þar 1
borg, þessir tveir eru nefndir hér
sem dæmi. Fjölda margir aðrir
hafa fetað í fótspor þeirra og orp-
ið bjarma frægðar á land sitt og
kynstofn. Væri samin ýtarleg
frásögn um afrek íslenzkra náms-
manna vestan hafs, mundi það
unglingum heima á íslandi holl-
ur lestur, og hleypa þeim kappi í
kinn.
Félagslíf meðal lslendinga
vestra er auðugt, einkanlega í
þeim bygðum og borgum þar, sem
margt þeirra dvelur.
Ýmiskonar félagsskap hefir
verið komið á fót, og stuðlað mjög
að viðhaldi máls og þjóðmenn-
ingar; aukið kynning og sam-
vinnu manna meðal.
I trúarefnum má með sanni
segja, að byltingasamt hafi ver-
ið, enda skoðanir skiftar í þeim
greinum, en formælendur beggja
trúarstefnanna, sem efstar hafa
verið á baugi, einbeittir og sókn-
harðir. Bíður það sögunnar oð
leggja fullnaðardóm á það mál.
Hins vegar er það ljóst, að flokka-
skiftingin innan vébanda trúmál-
anna hefir hreinsað loftið og hald-
ið mönnum betur vakandi and-
lega, en ella hefði verið. Kirkju-
leg starfsemi meðal íslendinga í
Vesturheimi hefir verið og er, víð-
tæk mjög og áhrifarík, og víst er
um það, að kirkjan hefir átt drjúg-
an þátt í viðhaldi þjóðernisins.
Þá hafa íslendingar vestra eigi
átt lítinn hlut í bókmentalegri
iðju þjóðar sinnar. Fjölda blaða
og tímarita hafa þeir gefið út, um
lengri eða skemmri tíma, auk
vikublaðanna tveggja, sem bezt
eru kunn almenningi hér heima.
Misjöfn hafa þau auðvitað verið
að ágæti og áhrifavaldi, en mjög
hafa þau stutt að viðhaldi máls-
is og alls þess, sem -íslezkt er.
Útgáfa bóka hefir eigi verið
minni að vöxtum, einkanlega
skáldsögur, þýddar og frumsamd-
ar, og ljóðabækur, að ógleymdum
fjölda smárita ýmislegs efnis.
Nokkrir menn vestra hafa fengist
við skáldsagna gerð, en hinir eru
þó miklu fleiri, sem ljóð hafa ort,
og þó ýmsir séu í þeim hóp, sem
ekki geti talist til hinna stærri
spámanna, þá eru hinir einnig
okkrir, sem vel má skipa á bekk
með hium betri, ef eigi beztu,
ljóðskáldum íslenzkum, samtíðar
þeirra, jafvel þó undan sé skilinn
Klettafjalla-örninn. Mun það því
ólítill skerfur, sem landar vestra
hafa lagt til bókmenta-auðs ætt-
landsins.
Þess má einnig minnast, að
nokkru hafa íslenzkir Vestmenn
snúið á enska tungu af Ijóðum
þjðskálda okkar, og mörgu ágæta-
vel. Yngri kynslóð þierraer nú
farin að iðka ljóðagerð og skáld-
sagna á ensku máli, og má gera
sér góðar vonir um arðinn á því
sviði, eftir því sem á stað er
farið.
Af þessu stutta yfirliti sézt, að
um auðugt líf er að ræða meðal
íslendinga vestan hafs, sérstak-
lega þegar þess er minst, að þeir
eru að eins fáeinar þúsundir.
Að lokum skal rædd að nokkru
barátta landa ókkar fyrir við-
haldi tungu sinnar og þjóðernis.
Er hún eigi talin síðast vegna þess
að hana beri að telja lítinn eða
ómerkan þátt í starfsemi þeirra,
heldur af því, að hún er, að dómi
þess, er þetta ritar, merkilegust,
þegar haft er í huga fámennið,
fólksdreifðin og aðrir örðug-
leikar.
, Mælt mál íslenzkt þar vestra,
er að vísu eigi óblandaá, en þó
furðu hreint; eins óbj^gað og við
má búast, eftir atvikum öllum.
Svipað er um ritmálið, þó líklega
vandi menn sig þar alla jafna bet-
ur. Viðhald þjóðernis og tung-
unnar er áreiðanlega öllum þorra
manna metnaðarmál, og það ætla
eg að þjóðræknisstarfssemin hafi
aldrei verið ákveðnari en einmitt
nú. Sum þau öfl, sem að því
marki vinna, hefir þegar verið
bent á. Þjóðrælumfélagið með
deildum í mörgum hinna íslenzku
bygðarlaga, starfar með miklu
fjöri að viðhaldi máls og menn-
ingar. Winnipeg-deildin heldur
árlega uppi, á vetrum, kenslu í ís-
lenzku, ókeypis þeim er njóta vilja.
Færir margur sér það í nyt. Sýn-
it þetta hvorutveggja hvern á-
huga menn hafa á þessum málum.
Með fyrirlestrahöldum og sam-
komum er einnig unnið, bæði í
borgum og sveitum. Sérstaklega
má nefna íslendingadaginn, þjóð-
hátíð landa vestra, sem haldinn
er árlega í Winnipegborg og víðar
2. dag ágústmánaðar. Er jafnan
vel til hans vandað. Ræður eru
haldnar, kvæði eru flutt og ætt-
jarðarsöngvar sungnir, að ó-
gleymdum glímum og öðrum í-
þróttum. Sækir margt manna há-
tíð þessa og hefir hún verið
máttugt afl til sameiningar og á-
hrifadrjúg í mesta máta.
Bent var á það hér að ofan, að
nærri hefði verið höggvið íslandi,
er það þurfti að sjá á bak svo
margra barna sinna. Af því sem
sagt hefir verið er það ljóst, að
vart er hér um algert tjón að
ræða. Þeir, sem vestur fluttust,
hafa eigi með öllu týnst ættjörð
sinni. Þeir hafa borið nafn henn-
ar um heiminn, því að rauplaust
má segja, að þeir hafi reynst mæt-
ir borgarar í kjörlandi sínu, en
góður íslendingur, hvar sem hann
dvelur, er bezta auglýsing landi
sínu og þjóð.
Menningarsambandi hafa þeir
jafnan haldið við ættjörðina, og
verið gefendur, eigi síður en
þiggjendur, sem sýnt hefir verið.
Bókamarkaði hennar hafa þeir
verið drjúgur styrkur. Áhrif frá
þeim hafa borist heim og eigi ó-
sjaldan til hins betra, hafa vakið
menn og hvatt til framsóknar.
Trygð hafa þeir haldið við ætt-
landið. Bera ljóðin þau öll, sem
því eru helguð þess Ijósastan vott.
ósanngjarnt og ofdjarft mundi
það, að álíta þau einlægnislausar
varajátningar.
“ísland hverfur, æskuströndin,
eins og slitni hjartaböndin”,
eru upphafsorðin að einu slíku
kvæði nýortu; svipað mun fleir-
um í hug komið. Hlýlega hef-
ir oft verið hugsað heim. Það
hefir sýnt sig í verkinu. Hvenær
sem þörfin var stærst , var örlát
bróðurhöndin rétt yfir hafið. Næg-
ir að benda á þátttöku íslendinga
vestra í stofnun Eimskipafélags-
ins okkar. Þessi hjálpfýsi er
meir en fögur. Hún kemur innan
að og er vottur hinnar sönnustu
þjóðrækni.
Á þessum merkisdegi megum
við heima niinnast landanna
vestra með þakklæti óg virðing.
Saga þeirra er saga okkar og á
söguspjöld íslands verður ferill
þeirra skráður skýru letri.
Aths.—Hér er að eins stiklað á
steinum, en beina vil eg því til rit-
stjóra tímaritanna hér, hvort úr
vegi mundi að fá einhvern þann,
sem glögga þekkingu hefir, til þess
að rita ýtarlega um þetta efni ís-
lenzkum almenningi til gagn-
semdar og fróðleiks.—Höf.
Frá Islandi.
Lögrétta hefir nokkrum sinn-
um áður sagt frá landskjörinu og
undirbúningnum undir það. En
framboðsfresturinn var útrunn-
inn 5. maí og komu fram 5 listar,
sem prentaðir eru hér á eftir.
En kosningar fara fram 1. júlí
næstk. og á að kjósa 3 þingmenn
(og aðra þrjá til vara) í stað
þeirra Sigurðar Eggerz, Ágústs
Helgasonar og Gunnars Ólafsson-
ar, en tveir hinir síðarnefndu
sitja nú á þingi sem varaþing-
menn Sig. Jónssonar frá Yztafelli
og Hjartar Snorrasonar, sem dán-
ir eru.
A-listinn er listi Alþýðuflokks-
ins, B-listi er listi kvennasamtak-
anna, C-listi frá íhaldsflokknum,
D-listinn frá Framsóknarflokkn-
um og E-listinn frá hinum ný-
stofnaða Frjálslynda flokki.
A-listi: Jón Baldvinsson, frú.
Jónína Jónatansdóttir, Erlingur
Friðjónsson á Akureyri, Rebekka
Jónsdóttir á fsafirfði, Ríkharður
Jónsson myndhöggvari og Pétur
G. Guðmundsson, Reykjavík.
B-Listi: Frú Bríet Bjarnhéðins-
dóttir, frú Guðrún Lárusdóttir,
Halldóra Bjarnadóttir og frú Að-
albjörg Sigurðardóttir.
C-listi: Jón Þorláksson fjár-
mála ráðherra, Þórarinn Jónsson
alþingism., hæstaréttardómara-
frú Guðrún Briem, Jónatan Lín-
dal á Holtastöðum, Sigurgeir
Gíslason verkstjóri í Hafnarfirði
og Jón Jónsson'í Firði í Seyðis-
firði.
D-listi: Magnús Kristjánsson
landsverzlunarstjóri, Jón Jónsson
bóndi í Stóradal, Kristinn Guð-
laugsson á Núpi í Dýrafirði, séra
Þorsteinn Briem á Akranesi, Páll
öermannsson á Eiðum og Tryggvi
Þórhallsson.
E-listi: Sigurður Eggerz banka-
stjóri, Sigurður Hlíðdal dýralækn-
ir, Akureyri, Magnús Friðriksson
bóndi á Staðarfelli, Magnús Gísla-
son sýslumaður á Eskifirði, Ein-
ar G. Einarsson í Garðhúsum í
Grindavík og Jakob Möller al-
þingismaður.—Lögr.
Séra Björn Þorláksson á Dverga-
steini, sem nú hefir sagt af sér
prestskap, hafði átt sæti í sýslu-
nefnd Norður Múlasýslu í 35 ár,
og var nú ákveðið á sýslunefnd-
arfundi þar nýlega, að stofna sjóð
til almenningsþarfa, sem beri
nafn hans, og lagðar fram í því
skyni úr sýslusjóði 500 kr.
Svb. Sveinbjörnson prófessor
dvelur enn í Khöfn. Hann hefir
nú samið hátíðarsöng fyrir Al-
þingishátíðina væntanlegu sumar-
ið 1930 og var hann leikinn á
kvöldskemtun Dansk-íslezka féj
lagsins í Khöfn 16. maí.—Lögr.
Séra Ragnar E. Kvaran prédik-
aði í Fríkirkjunni fyrra sunnu-
dag og talaði um verkefni íslenzku
kirkjunnar, vildi að hún léti
meira til sín taka almenn mál, en
hún gerir. Ræðan kemur í næsta
hefti “Morguns.”—Lögr. 27. apr.
Sigurður Baldvinsson búfræð-
ingur og bóndi á Kornsá í Húna-
vatnssýslu, lézt að Korpúlfsstöðum
í Kjós á sumardaginn fyrsta, hinn
22. apríl. Var hann ráðinn til að
taka þar við ráðsmannsstörfum
fyrir Thor. Jensen. Sigurður var
44 ára að aldri, fæddur sumar-
daginn fyrsta 1882. Sigurður var
giftur iSigurlaugu Björnsdóttur,
Sigfússonar á Kornsá og konu
hans Ingunnar Jónsdóttur.
Hafrannsóknaskipið “Dana” er
lagt á stað frá Khöfn og er for-
ingi þess nú dr. A. C. Johansen.
, »
Fram að miðjum mánuði stund-
ar skipið rannsóknir við Dan-
merkurstrendur, en síðan heldur
það til Færeyja og íslands. Mest-
um hluta rannsóknartímans ætlar
skipið að verja til iþess, að rann-
saka síldargöngurnar hjá Norður-
landi. Búist er við því, að rann-
sóknunum verði hætt í september.
Meðal rannsóknamanna er Árni
Friðriksson kandídat, en Bjarni
Sæmundsson verður með í rann-
sóknunum við fslandsstrendur.
Dr. Johansen Scmidt (sem hef-
ir verið rannsóknarforingi að und-
anförnu), kemur til Hafnar um
miðjan júní úr ferðalagi til
Kyrrahafsins, og mun hann þá
fara til íslands og slást í hópinn.
Hansen er skipstjóri á Dana eins
og áður..—Mbl. í maí.
Alveg óviðjafnanlegur
drykkur
Sökum þess hve efni og útbúnaður er
fullkominn.
Kievel Brewing Co. limiíed
St. Boniface
Phones: NI178
N1179