Lögberg - 16.12.1926, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. DESEMBER 1926
Bls. 11
HSHS
[HS^SSSHSHSHSaSESHSHSHSaSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSasaSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHi,-
?**.
Sértsö L deild í biaðinu
SOLSKIN
^HshsHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSHSESHSHSHSHSHSHSHSH 5HSESHSHSHSH5HSHSH5HSH5HSH5HSHSHSHSH5H5HSHSH5H5H5HSHSHSH5HSHSHSHSHSH5H5H5HSHSHSHSHSHSHSHSH5HS
Jól.
Jálin eru að koma. HátíðTn, sem öld eftir
öld liefir fært mannanna! börnum mestan fögii-
uð og gleði. Þær uppsprettur gleðinnar, sem
við jólin eru bundnar, þrjóta aldrei. Þær frjósa
ekki í vetrarliörkunum og þær þorna okki upp í
sumarhitanum. Ef mennirnir að eins fást til
að leita sér svölunar við þær lindir, þá er hana
þar áreiðanlega ávalt að finna.
Flestir munu við það kannast, að engar sög-
ur, sem þeir hafa heyrt eða lesið, hafa haft eins
mikil áhrif á þá, sérstaklega meðan þeir voru
böm, eins og hinar einföldu sögur um jólaboð-
skapinn í Betlehem. Og börnin skilja þessar
frásögur engu síður en fullorðna fólkið. - En
sérstaklega vel skilja börnin jólaboðskapinn,
]>egar góð og guðhrædd móðir flytur hann börn-
unum sínum. -Sem betur fer, er það ekki séra
Matthías einn, sem þetta liefir reynt, þó hann
kunni öðrum mönnum betur að segja frá, þar
sem hann lýsir jólunum á sínu bernsku heimili
og því, þegar móðir hans sagði honum söguna
um fæðingu frelsarans
“Síðan hóf hún heilög sagna mál.
Himnesk birta skein í okkar sál.
Aldrei skyn né skilniiigs kraftur minn
skildi betur jólaboðskapinn. ”
Birta drottins ljómaði í kring um fjárhirð-
ana forðum. Birta drottins ljómar enn í kring-
um börnin, yngri og eldri börnin, þegar þau á
jólunum heyra jólaboðskapinn, eða festa sér
hann í huga. Hugsið um þetta, hve óendanlega
fallegt það er, að birta drottins ljómar í kring
um mennina.
Það e'r fátt eða ekkert, sem mennirnir eiga
dýrmætara í eigu sinni, heldur en ljúfar og
fagrar bernskuminningar, og flestir mnnu kann-
ast við, að margar þeirra allra ljúfustu bernsku-
minninga eru bundnar við jólin, jólin heima
hjá föður og móður. Það var ef til vill í ein-
hverjum kotbænum, sem margir þeirra er þess-
ar línur lesa, nutu jólagleðinnar í æsku sinni, en
samt fundu þeir aldrei betur en þá, að birta
drottins ljómaði í kring um þá á jólunum.
Foreldramir geta miklu um það ráðið,
hverjar verða æskuminningar barna þeirra og
það má rciða sig á, að ljúfar bernskuminningar
er manninum ómetanlegur styrkur, þegar hann
kemur út í lífið og örðugleikarnir og freisting-
arnar sækja að lionum, svo að segja úr öllum
áttum. Þær endurminningar eru oft sólskins
blettir þar sem hann getur fundið frið og hvíld,
sem hann ekki finnur annars staðar, og þessar
endurminningar eru mörgum mönnum miklu
meiri styrkur heldur en flesta grunar. Það er
því áreiðanlega skylda allra foreldra, að hljmna
að því eftir mætti, að börn þeirra fari út í lífið
með eins mikið af góðum minningum frá
bernskuheimilinu eins og hægt er. Til þess eru
tækifærin mörg, en aldrei meiri en á jólunum.
Lögberg óskar öllum Sólskinsbörnum, yngri
og eldri, gleðilegra jóla, en fyrst og fremst
þess, að birta drottins megi ljóma kring um þau
öll eins og fjárhirðana forðum. •
Fjársjóður, sem mölur og ryð geta ekki jrandað.
Þegar eg var lítil, var eg látin lesa í biblí-
unni. Þar las eg meðal annars þessi oi’ð:
“Safnið yður fjársjóðum á himnum, sem mölur
og ryð geta ekki grandað.” Eg hugsaði þá
mikið um, hvernig eg ætti að fara að því. Ef
til vill hefði eg, eins og fleiri, helst viljað safna
jarðneskum fjársjóðum, en til þess sá eg þá eng-
in ráð, og raunar ekki heldur til þess að safna
hinum andlegu. Helst virtist mér tiltækilegt,
að gefa fátækum, því það hafði eg heyrt að yrð’i
margborgað. En þar kom ein þrautin fvrir mig,
eg vissi ekki að eg ætti nokkuð til að gefa. Eng-
inn vakti athygli mína á því, að í rauninni átti
eg nóg til, eins og flest önnur börn. — Eg átti
ástúðlegt bros, sem eg hefði getað gefið for-
eldrum mínum, í stað þess að setja upp fýlu-
svip, hvað lítið sem út af bar. Eg hefði getað
tekið þátt í sorg þeirra, sem hryggir voru, í
stað þess að gera gys að þeim. Og eg hefði get-
að verið fljót að hlaupa spor fyrir þá, sem veik-
ir voru og þreyttir. En hvers virði slík smá-
hugulsemi er, varð mér ekki ljóst fyr en löngu
seinna. .IJelst til seint sá eg, hvað hinir svo-
kölluðu smámunir geta verið mikils virði. ___ t
æskunni höldum við oft, að við munum geta kaf-
að hið mikla haf sannleikans og fundið þar fá-
gætar skeljar og dýrar perlur; en þegar á full-
orðins árin kemur, lenda flestir á lægra stigi.
Við verðum þá flest að láta okkur nægja, að
grafa upp það, sem aðrir hafa fundið á undan
okkur og fært í land, en þang og þari gleymsk-
unnar lagst ofan á, svo að nú kostar ærna fyr-
irhöfn að finna það aftur, og við sjáum eigi fvr
en um seinan, að við höfum oft gengið fram hjá
verðmætum hlutum í hugsunarleysi og látið þá
ónotaða, af því okkur virtust þeir of lítilfjör-
legir til þess að þeim væri nokkur gaumur gef-
inn. Kom mér þá til hugar æfintýrið um kistu
Þrasa landnámsmanns, undir Skógafossi, sem
kveðið var um:
“Þrasakista auðug er
undir fossi Skóga.
Hver sem þangað fyrstur fer
finnur auðlegð nóga.”
framgjarnir menn fóru að leita henn-
r fundu hana undir fossinum, þar sem
til hennar var vísað, en { stað gripa og gersema
var hún full af grávíðislaufi. Þeir þóttust verða
fyrir hinu mesta gabbi og vildu ekki líta við
því. Þó tók einn þeirra hnefafylli sína af lauf-
inu og stakk í vasa sinn. En þegar heim kom
Nokkrir
Þei
ar
og hann fór að líta eftir, var vasinn fullur af
skírasta silfri.
Mér hefir farist líkt og þessum mönnum.
Ýmsan fróðleik hefi eg átt kost á að nema um
æfina, en fundist hann of lítilfjörlegur og kast-
að honum frá mér. Nú er orðið of seint að snúa
aftur. Þrasakista er lokuð fyrir mér, og eg á
ekki kost á að opna hana framar. Nú á eg ekki
annars kost, en að leita í vösum mínum, ef
þangað kynnu að hafa slæðst fáein grávíðis-
lauf, sem eg fann til í aiskunni, þegar eg vildi
fara að safna fjársjóðum. Enn þá óska eg, að
ínér hafði auðnast að ná í fleiri laufblöð úr kistu
Þrasa meðan hún var opin. Þá hefði eg frem-
ur getað'bent öðrum á þau, því víða er þau að
finna, ef maður gefur því gaum.
Ingunn Jónsdóttir.
Góði hirðirinn.
Jesús líkti sér við fjárhirðir. Hann kallaði
sig sjálfan “góða hirðirinn”, en okkur kallar
hann: lömb sín, sauðina sína og hjörðina sína.
Jesús yfirgaf hús föður síns, kom frá himnum
til þess að gæta okkar, sem hann kallar lömbin
sín og hjörð föður síiis.
Þegar eg var drengur, þá gætti eg kinda. fvr-
ir föður minn. Það var oft erfitt. Eg þurfti
stundum að sitja yfir þeim allan daginn. Mátti
varla setjast niður. Stundum varð eg að ganga
þreyttur og svangur allan daginn upp um f jöll
og fram um dali til þess að finna kindurnar.
Þegar eg þá var á heimleið með þær, reyndi eg
oftast að telja þær, en gat það vanalega ekki fyr
en heirn að húsunum kom. Eg var ])ví ætíð mjög
kvíðafullur á leiðinni heim, því skyldi eitthvað
vanta af kindunum. þá varð eg að leggja aftur
af stað til að leita að þeim, sem vantaði. Þegar
heim að húsunum kom, þá taldi eg kindurnar inn
um dyrnar, og oft kom þá fyrir, að eina, tvær
eða þrjár vantaði. Það var bei.skasta lífs-
reynslan. Annað hvort varð eg að fara strax
af stað að leita, það var farið að dimma og eg
var orðinn þreyttur og svangur, eða eg varð
að geyma að leita til næsta dags og eiga þá á
hættu að eitthvað tapaðist af kindunum, sem
heima voru, á meðan eg var að leita að hinum.
Leitin var oft erfið, eg liljóp og stökk, stundum
datt eg og meiddi mig svo að blæddi úr hnján-
um eða fótleggjunum. Stundum fanst mér eg
svo einmana og yfirbugaður, þar1 sem eg var
lengst inni í afdölum, að eg gat ekki stilt mig
um að gráta. Það kom fyrir, að eg þurfti að
leita að sömu kindinni eða kindunum í fleiri
daga. Eg glejuni aldrei þeim stundum, en þá
datt mér aldrei í hug, að þetta starf mitt mundi
seinna hjálpa mér til þess að skilja, hversu
mikið Jesms gerði fyrir okkur og hve mikil sár-
indi það kostaði hann.
Hann var stundum svo þreyttur og hrygg-
ur yfir ógæfu okkar, að hann grét. Hann var
árvakur, viljugur, starfsamur, fórnfús, þraut-
seigur, nákvæmur og kærleiksríkur. Hann fór
snemma á fætur, eins og góði f járhirðirinn jafn-
an gerir. Hann fór þá afsíðis til þess að tala
við sinn himneska föður, til þess að biðja hann
að hjálpa sér þann daginn, svo að hann gæti gætt
lamba sinna réttilega. Og þegar hann hafði
þannig búið sig undir dagsverkið, þá tók hann
til starfa. Hann kendi fjöldanum, læknaði þá
sem veikir voru, hjálpaði þeim sem bágt áttu
og huggaði allla hrelda. Hann tók litlu böniin
í fang sitt og blessaði þau. Hann miskunaði
þeim séka, sem átti að grýta. Hann var jafn-
áhugasamur, þegar hann talaði við eina fyrir-
litna konu við Jakobs brunn, eins og þegar liann
var umkringdur af mörg þúsund manns. Hann
var eins fús til þess að benda kennimanninum
Nikódemusi á hið sanna “himna brauð”, sem
komið var niður af himni til þess að gefa heim-
inum líf, eins og hann var viljugur til þess að
lijálpa veika manninum við Betesda laug, sem
engan átti að. Þannig stafaði góði hirðirinn.
Hanri fórnaði líka öllu. Hann yfirgaf sitt
bjarta, hlýja, skrautlega og inndæla heimili á
himnum, fór fyrir föður sinn út í myrkur og
kulda, kvalir og dauða; kom hingað til jarðar-
innar til þess að hjálpa o'kkur. Við vorum föð-
ursins týndu sauðir. Jesús þoldi alt ilt okkar
vegna, hungur og þorsta, þreytu og kvalir, háð.
og spott manna, misþyrmingu og krossins
dauða. Hann elskaði svo 'heitt, að hann gaf líf
sitt fyrir okkur, sem hann elskaði.
Jesús varð að leggja út í allar þessar hætt-
ur, koma hingað til jarðarinnar, þangað sem
syndin ríkir, til þess að segja okkur frá' föður
sínum, live liann væri góður og hversu mikið
hann elskaði okkur. Og við köllum kenninguna,
sem hann kendi, fæðuna sem góði hirðirinn gaf
hjörð sinni, og við erum hjörð hans.
Það er ekkert til, sem veitir hjörtum okkar
meiri svölun en það, sem Jesús kendi okkur
um kærleika Huðs. Hann sagði, að Guði þætti
svo vænt um okkur, að jafnvel öll hárin á höfð-
um okkar væm talin. Að Guð hugsaði það
mikið um okkur, að hann teldi jafnvel hárin á
höfðinu á okkur, Hugsum okkur hvílík ná-
kvæmni það er! Þá getúm við líka verið viss
um, að Guð telur öll okkar góðverk, telur allar
bænir okkar, telur tárin, þegar við grátum, tel-
ur öll sporin, sem við hlaupum fyrir hann,
telur líka erfiðu sporin okkar. Hann veit þá
um allar okkar sorgir og alt, sem okkur liggur
á hjarta, hann veit hvað okkur langar til að
fá, hann þekkir gleði vora, hann veit hvað er
bezt fyrir okkur, hann elskar okkur með eilífum
kærlei'ka og gerir alt fyrir okkur, sem verða má
okkur til góðs. Þessi kenning Jesú er það
liuggunarríkasta, sem við getum fundið, hún er
einmitt fæðan, sem veitir hjörtum vorum sanna
svölun.
Þessi fæða er líka holl. Hún er holl fvrir
okkur sjálf, holl fyrir heimilið okkar og þjóð-
ina okkar. Ef við gerum ]>að, sem liann bauð
okkur, ]>á mun ókkur vegna vel og,éið munum
þá verða til mikillar blessunar. Hann bauð
okkur að (dska óvini vora, að gjöra öllum gott.
biðja fvrir þeim sem ofsæktu okkur og töluðu
illa um okkur. Hann bauð okkur að feta í fót-
spor sín og lífa lireinu og heilögu lífi. Hann er
góði hirðirinn. Hann' gengur á flndan okkur,
hann leiðir okkur að eins veg sannleikans, stro
ef við erum lömbin lians, ]>á getum við ekki
ráfað í villu, eða verið illa haldin. Við hljótum
þá að lifa hreinu og heilögu lífi, honum til dýrð-
ar, en öðrum til fvrirmyndar.
Pétur Sigurðsson.
Ofurlítil skólasaga,
Drengjum þykir gaman að skotum og hvell-
um. Það er eitthvað svo mannalegt.- Nú höfðu
drengirnir í skólanum á Eyri komist yfir efni
í púðurkerlingar og eldglæringar, og voru með
“sprengingar” úti og inni, og-tók eigi fyrir, þð
bannað væri og hörðu væri liótað.
Einu sinni verður “sprenging” inni í einum
bekknum, og þegar farið var að rekast í því,
berast böndin að tveim sveinum. Menn vissu
eigi til að aðrir hefðu komið inn í þá stofu um
það levti, og yrði því annar hvor að vera sekur
eða báðir. — Drengirnir hétu Jón og Sigurður
og voru góðir víiiít. Hafði Jón verið einn um
verkið, en Sigurður var alveg saklaus, og vissi
ekki um neitt fvrri en hvellurinn kom.
Skólastjórinn tekur báðii fyrir^ til yfir-
heyrslu og byrjar á Jóni, og liarðneitar hann
sökinni. — Þá er Signrður yfirheyrður. Hann
þegir við, játar livorki sökina né ber liana
af sér. Þetta þótti næg sönnun fyrir sekt hans,
og fékk hann bæði að kenna á reglustikunni og
líka innisetu, meðan hini voru að leika sér.
Jóni var ekki vel rótt innanbrjósts. Hann
náði fundi Sigurðar um kvöldið, og átaldi hann
fyrir það, að hann skvldi ekki líka hafa neitað.
“Mér gat ekki dottið annað í hug, því að ekki
vildi eg koma þér í skömm, og þú varst saklaus.
En enginn var við, og það, var ekki hægt að
sanna þetta á okkur.”
“Það var nú einmitt það,” sagði Sigurður,
“að við vorum þarna. tveir einir. Kennarinn
gat ekki verið í óvissu um það, að annar hvor
okkar var sékur. Og ef við báðir neituðum, þá
varð annar hvor okkar að hafa skrökvað. Þess
vegna þagði eg.”
Nú geta menn ráðið í hugsanir Jóns litla um
nóttina. Daginn eftir átti skólastjórinn að
vera hjá þeim í bekknum í fyrstu kenslustund-
inni. Þegar ha»'n var sestur, gengur Jón upp
að kennarasætinu, og stvnur því upp kjökrandi
að hann hafi einn verið með “sprenginguna ”
daginn áður, en Sigurður sé alveg saklaus. “Eg
mátti til að segja frá því. ”
Það varð steinhljóð í bekknum. Skólastjór-
inn var stundarkom að átta sig á þessu. Síðan
tók hann í hendina á Jóni og sagði: “Komdu
með mér til hans Sigurðar, við þuffum báðir
að biðja hann fyrirgefningar.” Skólastjórinn
tók í hönd iSigurðar, en Jón hljóp upp um
hálsinn á honum.
Eftir það tók
ar” í skólanum. —
alveg fyrir
N. Kbl
1 sprengmgarn-
STÖKUR.
Berir þú kvöl þér í brjósti,
blæði í sál þinni upndir;
leitaðu’ að öðrum, sem líða,
létt þeirra þungbæru stundir
Na>ði nepjan úm sál þér,
nístistu’ af rokveðursöldum;
skýldu þá öðrum sem skjálfa,
skapaðu yl handa köldum.
Finnist þér von sérhver visna,
veiki þig efi í geði;
gleddu með umhyggju og ástúð
annara lífstraust og gleði.
Já, krjúptu með alt sem þig angrar
að annara þrautabeði.
Þá verður heil hver holund
og hugurinn þrunginn af gleði.
María Jóliannsdóttir.
JÓLAGAMAN.
Þeim hafði verið :kent það, bræðranum, að
fara me5 bænirnar sínar undir svefninn. Nú
voru þeir liáttaðir eitt kvöldið, skömmu fyrir
jólin, og Tommi var búinn að bæta heillangri
romsu við venjulegu kveldbænina sína: Hann
var að biðja guð að gefa sér það og það í
jólagjöf.
“Þú þarft ekki að hafa svona liátt,” sagði
eldri bróðir hans, guð heyrir eins til þín fyrir
því. ’ ’
“Já,” sagði Tomi, “en hún amma heyrir
svo illa.”
DR. B. J. BRANDSON
f!16-2S0 Modical Arts iSldg.
Cor. Graham og Kennedy Sta.
Phone: 21 834.
Offic® tlmar: 2_3
Heimili: 776 Victor St.
Phone: 27 122
Winnipeg, Manitoba.
COLCLEUGH & CO.
Vér leggjum sérstaka áherzlu & aC
selja meBul eftir forskriftum lækna.
Hin beztu lyf, sem hægt er aB fft, eru
notuB eingöngu. Pegar þér kómiB
meB forskriftina tll vor, megiB þér
vera vlss um, aB f& rétt þaB sem
læknirinn tekur tll.
Notre Datne and Slierbrooke
Phones: 87 659 — 87 650
Vér seljum Giftingaleyfisbréf
Giftinga- og .iarðarfara-
Blóm
með litluxn fyrirvara
BIRCH Blómsali
593 Portage Ave. Tals.: 30 720
St. John: 2, Ring 3
A. S. BARDAL
848 Sherbrooke St.
Selur llkkistur og annast um út-
farir. Ai'.ur fltbOnaBur aá. beztl.
Enn fremur seíur hann allskonar !
minnlsvai-Ba og legsteina.
Skrifsitofu tale. 86 607
Heimilis Tals.; 58 302
THOMAS H. JOHNSON
H. A. BERGMAN
tsl. lögfræðingar.
Skrifstofa: Room 811 McArthur
Bulldlng, Portage Ave.
P. O. Box 1666
Phones: 26 849 og 26 840
W. J. Lindal. J. H. Lindal
B. Stefansson.
fslenzkir lögfr.eðingar.
356 Main St. Tals.: 24 968
356 Maln St. Tals.: A-496S
Peir hafa einnig skrifstofur aB
Lundar, Riverton, Gimli og Piney
og eru þar aB hltta 6. eftirfylgj-
and ttmum:
Lundar: annan hvern mlBvikudar
Riverton: í'yrsta fimtudag.
Glmll: Fyrsta miBvlkudag.
Piney: þriSJa föstudag
1 hverjum mánuBl.
A. G. EGGERTSSON
ísl. lögfræðlngur
Hefir rétt tll aB flytja mfU baBl
I Manltoba og Saskatchewan.
Skrifstofn: Wynyard, Sa.sk.
Athygli!
Komifl með næstu lyfjaávísun-
ina yðar til vor. Þaulæfðir sér-
fræðingar annast um alla lyfja-
samsetningu.
INGRAM’S DRUG STORE
249 Notre Dame Ave.
Gagnvart Grace kirkjunni.
A. C. JOHNSON
907 Confederation I.lfe Bldg.
WINNIPEG
Annast um fasteignir minnt.
Tekur að sér að ávaxta sparifé
fólks. Selur eldsábyrgð og bif-
reiða_ ábyrgðir. Skriflegum fyr-
irspurnum svarað samstundis.
Skrifstofusími: 24 263
Heimasimi 33 328
J. J. SWANSON & CO. I
LiIMITED
R e n t a 1 8
Insurance
RealEstate
Mortgages
600 Paris Building, Winnipeg
Pohnes: 26 349—26 340
STEFAN SOLVASON
TEAt'HHH
ot
PIANO
1256 Domlnion St. Phone 29 832
Envil Johnson
SERVIOE EL.EOTRIO
Rafmagns ContracUng — AUm-
lcyns rafmaoMndhöJd Meld oo vtd
þau pert — Eo •«! Moffat op
McClary Eldavélar oo heft þmr
Ul sýnia d verkMtœði nUnu. «
524 SARGENT AVE.
(gamla Johnson's byggingin vlB
Young Street, Winnipeg)
Verkst.: 31 507 Helma.: 27 28*
Verkst. Tals.: Hehna Tala.:
28 383 29 384
G. L. STEPHENSON
PLTTMBER
AUskonar rafmagnsAhöld, svo smn
straujárn, víra, allar tegundlr *í
glösum og aflvaka (batteries)
VERKSTOFA: 676 HOME 8T.
Tals. 2.4 153
NewLyceum Photo Studio
Kristín Bjarnason eig.
290 Portage Ave, Winnipeg
Næst við Lyceum leikhúsið.
íslenzka bakaríið
Selur beztu vörur fyrir l:>-gsta
verð. Pantanir afgreiddar bæ(M
fljótt og vel. FJölbrejrtt úrval
Ilrein og Upur viðskifti.
Bjarnason Baking Co.
676 SARGENT Ave. Wlnnlpec.
Pbone: 34 298