Lögberg - 16.12.1926, Qupperneq 4

Lögberg - 16.12.1926, Qupperneq 4
Bls. 12 LöGBERG, FIMTUDAGINN 16. DESEMBER 1926 Stórglœp-aldái Bandaríkjanna. Eftir Dr. Th. Thordarson. í Bandaríkjunum er nú ekkert, er veldur alraent meiri áhyggju, en sá óaldarflokkur, sem nú er risinn upp hjá þjóðinni og fer sí-vaxandi ár frá ári. Það er víst, að fjöldi manna hefir myndað ýms leynifé- lög, er 1‘ifa að mestu eða öllu leyti á glæpaverkum, og sá flokkur manna er orðinn skaðlegt átumein á líkama þjóðfélagsins. Sú var tíðin, að Bandaríkjaþjóðin var talin með löghlýðnustu þjóðum hins mentaða heims, og hafði fátt af spillvirkjum að segja. Svo var það til ársins 1850, og nokkru lengur. Það ár voru að eins 7,000 fangar í öllum fangelsum landsins, en nú eru að minsta kost'i 350,000 karlar og konur, sem lifa að mestu eða öllu leyti af glæpum og hermdarverkum þar í landi. Hagfræðiskýrslur Bandaríkjanna sýna, að árið 1900 voru myrtir 2.1 af hverjum 100,000 íbú- anna; árið,1915, 7 af hverjum 100,000; árið 1924, 8.5 af hverjum 100,000, og á þessu ári (1926) er talið, að 11 af hverjum 100,000 muni myrtir áður lýkur. — Á Englandi voru árið 1920 að eins 0.8, 1921 0.7,# 1922 0.5 og 1923 0.6 morð framin meðal hverra 100,000 íbúa. Munurinn á þessum og öðrum glæpaverkum meðal þessara tveggja frændþjóða er svo mikill, að undrum sætir. Méðal Evrópuþjóða er engin, sem' jafnast við Bandaríkin í glæpaverkum. Þar eru ítalir lang- verstir, en í morðum hafa þeir komist hæst 7.5 af hverjum 100,000 árið 1921; síðan hefir sú tala lækk- að mjög, og hin siðustu árin hafa þeir ekki komist í hálfkvisti við Bandaríkjamenn í neinum glæpaverk- um. — Þjófnaður og rán fylgir vanalega og er aðal- orsök flestra morða í þessu landi. Af því leiðir, að fjártjónið sem glæpunum veldur, er gífurlegt, og eftir áætlun þeirra, er kunnastir eru þessum málum, var alt það f.iártjón og kostnaður, er glæpamenn valda hér í landi, ekki minni en tíu þúsund miljónir dollara árið sem leið. Ekki alls fyrir löngu rituðu tveir merkir rithöf- undar á íslandi nokkrar fremur ómerkar deilugyein- ar um ýmislegt, er þeim bar á milli. Meðal annars ræddu þeir um meðferð á illræðismönnum og lag^f brjótum, og sá ,sem hélt uppi vörn fyrir þeirra mál- stað, vitnaði til Bandaríkjanna og komst svo að orði: “Eg hugsa til Bandaríkjanna. Þar er nú svo mikið af glæpum, að þjóðina hryllir við.” Þetta er nokkuð nærri sanni! En svo bætir hann við; “Ekki er þetta fyrir vorkunnsemi eða refsingarskort. Glæpamennirnir eru líflátnir, ef í þá næst. Og al- menningur manna stendur á öndinni eftir því, að fá illræðismönnunum refsað.” Þetta er alveg þveröfugt við hið sanna. Hafði þó höfundur þessara orða þá fyrir skemstu, er hann ritaði þau, dvalið langvístum hér vestan hafs, og var honum því engin vorkunn ^ð vita hið sanna, ef hann hefði nokkuð reynt að kynna sér málefnið. — Sann- leikurinn er sá, að vorkunnsemi og refsingarskortur er einmitt það, sem nú ræður mestu 1 meðferð þjóð- arinnar á glæpamönnum, og almenningur gerir sér lítið far um að fá illræðismönnum refsað. Þeir eru oft og einatt ekki handsamaðir, og þegar þeir eru teknir, og leiddir fyrir lög og rétt, þá er málsókninni hagað svo, að flestu er snúið þeim í hag, og mál- sækjanda af hálfu ríkisins er gert í flestu erfiðara fyrir en verjanda glæpamannsins. Málin eru þvæld með öllum þeim brögðum, er lítt vandaðir lögmenn geta fceitt, dregin á langinn sem mest, og þeim er skotið frá einum dómstóli til annars, unz allur áhugi fyrir þeim dofnar, vitnum fækkar og málsóknin verður lítið annað en nafnið eitt, og loksins er glæpa- maðurinn sýknaður eða fær vægan dóm, fangelsis- vist, sem er honum engin hegning. í flestum ríkjum Bandaríkjanna er dauðadómur lögleiddur fyrir morð; þau ríkin, sem hafa dauða- dóm úr lögum numið, eru: Arizona, Kansas, Maine, Michigan, Minnesota, North Dakota, Oregon, Rhode Island, South Dakota, Colorado, Iowa, Washington og Wisconsin. í öllum öðrum ríkjum Bandarikjanna er dauðadómur fyrir morð lögleiddur. En þess ber að gæta, að í flestum þei>i ríkjum er það lagaákvæði Iit- ið meira en dauður bókstafur. Því er sjaldan fram- fylgt, en fangelsisvist eða sýknun dæmd í þess stað. Það sem hér ræður mestu, eru ekki lögin, heldur hugsunarháttur almennings. Mikill fjöldi manna o# kvenna í Bandarikjunum, eða að minsta kosti sá hluti þeirra, er mest lætur til sín taka í þessum málum, er algerlega mótfallinn dauðahegningu fyrir nokkurn glæp, telur hana óhæfa grimd, villidýrseðl- inu samboðna, en siðuðum þjóðum hina mestu smán. Glæpamaðurinn er í þeirra augum ekkert annað en brjóstumkennanlegur ólánsmaður, í raun og veru eins góður og hver heiðarlegur meðlimur þjóðfélags- ins, en hefir ratað í raunir, og tældur af illum fé- lagsskap loks lent í það ólán, að fremja glæp. Þá er að þeirra hyggju sjálfsagt ranglátt að leggja þunga líkamlega refsingu á slíkan mann, það sem þarf er góð aðhlynning og kærleikshót, til þess að gera hann að nýjum og betri manni. Því er sjálf- sagt að sýkna hann eða gefa honum fangelsisvist í stað dauðadóms. Að nafninu til er þá glæpamaður- inn vanalega dæmdur í æfilangt fangelsi, en í raun og veru er þeim dómi sjaldan fullnægt. Ef hann lifir til lengdar, er honum vanalega slept lausum eftir fáein ár, ef hann hefir vini eða vandamenn, er dálítið vilja í kostnað leggja til þess að fá hann lausan látinn. Eins og eðlilegt er, reyph þessir brjóstgóðu vinir glæpamannanna einnig að sjá um það, að vel fari um þá, og þeim líði vel meðan þeir dvelja í fangelsinu, og að þeim takist það kærleiks- verk mætavel, um það ber raunin vitni. Flest eða öll hin stærri fangelsi Bandaríkjanna eru þannig gerð, að þess er gætt að þeir, sem þar eiga Vist, njóti sem flestra nýtízkuþæginda. Rúmgóð herbergi með öllum nauðsynlegum innanstokksmunum, nægum hita, góðu lofti og sólarljósi, ef þess er kostur, heitt og kalt vatn og böð, verða allir fangar nú að hafa. Fæða þeirra er margbreytt, holl og nóg. Vinnan oft- ast létt og holl líkamshreyfing, og vinnutíminn vana- lega ekki lengri en sex klukkustundir á dag. Hve- nær sem þeir fá einþvern kvilla, er læknir við hend- ina, og fyrir alvarlegri sjúkdóma fá þeir góða spítala vist. Gleraugu eru þeim gefin, hve nær sem sjón- in deprast, og tannlæknar gæta þess, að gera tíman- lega við allar skemdar tönnur, svo tannnfna þjáir þá ekki. Ekki er því heldur gleymt, að þeir þarfnast skemtana sér til dægrastyttingar, eins og aðrir menn. Þeir fá nógar bækur, blöð og tímarit. ef þeir vilja lesa. Ræðumenn, söngvarar og leikarar skemta þefm við og við, og kvikmyndir fá þeir að sjá einu sinni eða tvisvar í viku og stundum oftar. Tóbak fá þeir nóg; en satt er það, að “cigarettur” fá þeir ekki að reykja nema um miðdag og á kvöldin. Bersýnilega er fangelsisvistin undir þessum lífskjörum ekki nein hegning fyrir stórglæpi. Það er víst, að mikill meiri hluti glæpamanna í Banda- ríkjunum lifa við meiri þægindi í fangelsi, en þeir geta veitt sér sjálfir, er þeir ganga sem frjálsir menn. Hið helzta, sem þeir geta að fangelsisvist fundið, er það, að þeir tefjast um stund frá atvinnu sinni, sem er sú að fremja glæpaverk, en svo læra þeir oft hver af öðrum 1 fangelsinu ýmislegt viðvikj- andi því starfi sínu, og það þykir þeim töluverð bót í máli. Um hina smærri afbrotamenn er öðru máli að gegna, þeir eru margir heíðarlegir menn, "þó þeim verði það á að brjóta lög, oft og einatt, og þeim þyk- ir fangelsisviet ill og hin mesta smán, og fyrir þá er sú hegning oft of hörð og óréttlát. Hins vegar hafa stórglæpamenn engan læyg af fangelsisvist, stæra sig oft af henni, eftir að þeir verða lausir, og verða meiri Jietjur eftir en áður í augum stallbræðra sinna, sem oft fagna þeim opin- berlega, er þeir koma heim aftur úr fangelsinu. Eitt af því, sem mest veldur vorkunnsemi al- mennings við glæpamenn, er sú skoðun, að þeir séu siðferðislega og andlega, að eðlisfari, svo annmark- aðir, að þeir geti ekki borið ábyrgð verka sinna. Þetta er bygt á rannsóknmn þeirra ma> na, er r.efn- ast sálarfræðingar. Þeir þykjast háfa uppgötvað ýms tákn og merki, er sýni ótvírætt sálarástand mannsins, andlega hæfileika hans og annmarka, og þeir nefna þessa fræði sína glæpafræði. Helzti spámaður og forsprakki glæpafræðinnar var hinn frægj Gyðingur, Cesare Lombroso á ítalíu. Hann ruddi til rúms þeirri kenningu, að allir glæpa- menn væru siðferðislega ábyrgðarlausir vesalingar, með þeim annmarka fæddir, gætu engum freisting- um viðnám veitt, en bærust stjórnlaust með straumn- um eins og brotið skipsflak á ólgusjó lífsins; þeir væru því óbyrgðarlausir og aumkunarverðir, og hegningu skyldi aldrei beita við þá, en hafa mætti þá í haldi, til að aftra þeim frá hermdarverkum þeim, er þeir eðlilega mundu fremja, ef þeir gengju lausir. Nú eru um fjörutíu ár liðin síðan þetta gerðist; en árið 1903 tók sig til læknir einn á Englandi, Char- les Goring, og hóf sjálfstæða rannsókn til þess að fá vissu fyrir því, hvað hæft væri í kenningu Lam- broso’s. Goring var sjálfur skarpskygn vísindamað- ur, og hann fékk í lið með sér nokkra meðal hinna beztu lækna á Englandi. Þeir fóru í fangelsin og skoðuðu 3,000 sakamenn, mældu þá og prófuðu ná- kvæmlega samkvæmt þeirri aðferð, er Lombroso hafði,, og fundu þar hin sömu sérkenni og galla, til- tölulega í sömu hlutföllum og ítalinn hafði fundið meðal samskonar sakamanna þar í landi. Alt stóð þar heima, eins og Lombroso hafði kent. Lengra iiaxui L/uinuiuðu eivn.i lurio lendingurinn lét ekki þar við sitja, hann þurfti frei ari sannana, og nú tók hann næst til rannsóknar þa sem fangelsum var fjarstæðast, háskólana á Enj Iandi. Hann fór með félögum sínum' til Oxford o Cambridge, og því næst til háskólans í Edinburgl Þeir skoðuðu alls 3.,000 stúdenta í háskólum þessun og höfðu í öllu nákvæmlega hina sömu aðferð o þeir áður höfðu haft við fangana; árangurinn var s að undrum þótti sæta; meðal stúdentanna á æðst skólum Bretaveldis fundu þeir alt það, er Lon broso taldi sérkenni sakamanna, fyllilega eins a ment og þeir áður höfðu fundið það meðal fangann Kenning Lombroso’s var dæmd marklaus og einski virði. En rannsóknir Gorings og félaga hans vor birtar í enskum stjórnarskýrslum; lítið var um þa ritað og þær eru þess vegna fáum kunnar. Hir vegar hafði Lombroso ritað ósköpin öll, rithátti hans var oft snildarlegur, og kenningin nýstárlej og almenningur gleypti við ritum hans, og þau flug út um allan þinn mentaða heim, og kenning þeirr lifir enn þann dag í dag eins og ekkert hefði ísko; ist, og er nú í mestum blóma á ítalíu, og I Bandarík unum hin öruggasta hjálparhella stórglæpamanna! Ef verjendur glæpamannsins hafa nóg fé frai að leggja, þá geta þeir alt af fengið einhverja sálai fræðinga til þess að sýna það með óskiljanlegui sérfræðingasönnunum, að' glæpamaðurinn sé si? ferðislega og andlega svo lamaður, að hann ge1 enga ábyrgð borið verka sinna. Fyrir rétti er vitr ísburður þessara fræðimanna oft svo fáránlegur, a hann er litið eða ekki tekinn til greina. Að því leyl hefir þessi kenning fremur lítil áhrif. En hún hefi læst sig svo inn í hug og hjörtu almennings, að þa þroast su vorkunnseml og meðkend með glæpamönr um, sem mestu ræður um tilveru þeirra og stari semi (Sá rangsnúni hugsunarháttur grefur alla grundvoll undan refsingarvaldi laganna, en glæpi fara i voxt og íllræðismönnum fjölgar dag frá deg ÞvflItiS er að ðttast. feir hafaatvial seíe mikiu lettari en heiðarleg erfiðisvinna og oftas miklu vænlegri til féfanga. Mikið er um það rætt og ritað, hver áhrif dauð£ egning hafi á tilveru stórglæpamanna. Margir er þezrri hegningu algerlega mótfallnir, eins og sag er her að framan; en þeir eru Iíka margir, og meða Þezrra flestzr dómarar og helztu málafærslumem þjoðannnar er halda því fram, að hún og aðrar Iík amlegar refsingar sé hið eina, sem forhertir glæpa menn ottzst og taki alvarlega til íhugunar. Því ti sonnunar taka þeir til samanburðar þær þjóðir sen ofhinsaUðahTÍn" ,ÖggÍIda °g framfylgja henni inmz örl”gar Þær’ SCm annað hvort hafa dauðahegn mí?t i ?Uk nUmÍð’ Cða bCÍta henni sJ‘a,dan Þó lög mætt se, og þa eru oftast England og Canada tekzí til samanburðar við Bandaríkin. Á Englandi er um tÍltÖ1U,ega Sjald^f- í Lundán m, með átta mzljónum íbúa, voru t d árið 192, af’ránsmönnunfeðaTþeíin ,'eeirr“ Syi-paður þessu verður samanburðurinn á öðr um stoðum meðal þessara tveggja þjóða, og þó öllc meirz munur sumstaðar, því að á Englandi eru flesl njrð unnzn z Lundúnum, en í Bandaríkjunum eru aðrar borgzr verri í þessu efni en New York t d Chzcago og Detroit, sem er þeirra verst. Árið 1924 voru í Detroít, sem þá hafði nálægt einni mS zbua fi-amm 163 morð og 615 rán. _ Sama árið voru oronto, sem hefir rúmlega 600,000 íbúa fjögur morð 0g 44 rán framin. Canada hefir hegningaíög að mestu hzn sömu og England; hengir mrðinL og zð aðr Trnn,e,n 1 Michi«an Það úr lögunfnum- að Izflata nokkurn glæpamann eða beita neinni líkamlegrí refsing við nokkurn fanga. Flestir þeir, er bezt þekkja glæpamenn, segja, að lífláti næst óttist þeir ekkert eins og hýðingu, og henni er ópsart beitt við þá í Canada og á Englandi fyrir rán og aðra stórglæpi, sem dauðadómur er ekki við lagður. í* Canada er tala glæpamanna tiltölulega nálægt því, sem hún er á Englandi, og margfalt lægri en hún er í Bandaríkjunum. Delaware er hið eina ríki Bandaríkjanna, er læt- ur hýða glæpamenn, og það er margreynt, að þeir forðast það litla ríki eins og heitan eld. Það er ekki sársaukinn einn, sem gerir hýðinguna ægilega í augum glæpamanna. Hún er hin eina hegning, er þeim þykir smánarleg. Hún tekur úr þeim allan mesta gorgeirinn, þeir missa alla virðingu stall- bræðra sinna, og eru einskis virtir, er þeir koma aft- ur í þeirra hóp eftir hýðinguna. Þetta hefir reynsl- an margsinnis sýnt, en þó er sú skoðun almenn mjög í Bandaríkjunum, að hýðing sé svívirðileg grimdar- refsing, mest til skammar þeim, er henni beita. Ósagt skal látið, hver hegning og meðferð mála sé hæfilegust og áhrifamest til þess að útrýma glæpa- mönnum og öðrum bezt til varúðar að fylla þeirra flokk. Um það hefir verið deilt frá fyrstu tímum mannfélagsihs til þessa dags, og verður enn, til þeirrar stundar, er það líður undir lok. Úrræðin eru ýms og breytast eftir tíma og staðháttum. Eng- ar verulegar bætur eru á því ráðnai»í neinu þjóðfé- lagi fyr en meiri hluti allra meðlima tekur í taum- ana og gerir glæpamanninn æalandi. Það hefir oft átt sér stað í borgum og bæjum Bandaríkjanna, að glæpamenn hafa vaðið svo uppi, að ekki þótti við vært þá hafa borgarbúar risið upp sem einn maður gegn illræðismönnunum, gripið þá hvar sem þeir náðust og refsað þeim harðlega, en allir þeirra liðs- menn hafa horfið á svipstundu, eins og slegnir af töfrasprota. En heil stór þjóð getur naumast orðið svo samtaka eða þarf a. m. k. langan tíma því til undirbúnings. Eins og nú horfir við í Bandaríkjun- um, eru engar líkur til að breyting verði til batnaðar í þessu máli. Hins er heldur að vænta, að glæpaalda sú, sem nú er risin, vaxi enn um stund, og verði ekki brotin á bak aftur fyr en hún gerist svo ægileg, að þjóðin sjái, að hún ætli alt að gleypa. Méðan þjóð- in heldur hlífiskildi yfir glæpamönnum, eins og hún gerir nú, þá má eiga víst að þeir magnast við hvern glæp og þeim fjölgar dag frá degi. En þetta er ekki einsdæmi.- Flestar eða allar stórþjóðir heimsins hafa fyr eða síðar, og sumar oftar en einu sinni, orð- lið að ganga gegnum þess konar hreinsunareld; enda við íslendingar — allra þjóða minstir — höfum haft okkar sturlungaöld, er okkur reið því nær að fullu. Til þess eru einnig miklar líkur, að vér, Vestur- íslendingar, séum Bandamönnum mjög samhuga um meðferð á glæpamönnum. Það var nú fyrir skemstu, og mun mörgum enn í fersku minni, að skorað var á Vestur-íslendinga að gefa fé til þess að frelsa ís- lenzkan glæpamann frá gálganum. Áskoranir hafa oft borist þeim fyr og síðar, um fjárstyk til nauð- synlegra fyrirtækja, eða til hjálpar heiðarlegum þurfamönnum, en aldrei hafa undirtektir verið neitt svipaðar því, er þær voru að þessu sinni. Méira fé eafnaðist, og, miklu fleiri lögðu til nokkurn skerf, en annars eru dæmi til meðal Vestur-lslendinga, og alt gerðist það á örstuttum tíma. Hið sama hefði vel getað átt sér stað hér og hvar meðal Bandamanna. Þess konar telja margir hin mestu kærleiksverk. Um það tjáir ekki að deila. En hitt má fullyrða, að þegar brjóstgæðin láta mest til sín taka, þar sem glæpa- menn eiga hlut að máli, þá er ekki alt með feldu í þjóðfélaginu. ÞEIR SEM ÞURFA LUMBER KAUPl HANN AF The Empire Sash& Door Co. Limjted Office: 6th Floor Bank ofHamilton Chambers Yard: HENRY AVE. EAST. - - WINNIPEG, MAN. VERÐ og GŒDI ALVEG FYRIRTAK Hættur ferðalagsins pYRRUM reiddi ferða- A maðurinn sig á sverð sitt og byssu til að varðveita pen- inga sína. Nú notar Kann Travellers’ Cheques. Aður en þérfariðí ferðalag, þá skiftið peningumyðar fyrir Travellers’ Cheques hjá einhverri af deildum The Royal Bank of Canada (11111111111M111111111111111i1111111111111111111111111111111111111111111111111111.IIIIi111111111 I D.D.Wood&Sons { selja allar beztu tegundir KOLA = tuttugu og sex ár höfum vér selt og flutt heim til E = almennings beztu tegunciir eldsneytis, frá voruYard E | Horni Ro ss Avenue og Arlington Strœtis = = Pantið frá oss til reynslvFnú þegar. = ( Phone 87 308 I = 3 símalínur = * u 111 m 1111 m 1111111:1111111111111111 n 111111111111111 > 11111111111:1111 m 111111111111111111 ■ ■ 1111111 f? Kveðjuljóð. (Orkt við fregn um lát druknaðra æskuvina.) Grátperlum rignir; heiman yfir hafið harmdjúpar stunur flytur blærinn kaldi; sólarlaus dagur — evart er skuggakafið, sveipað er landið bleiku mjallar-tjaldi. Fegurstu rósir fölar undlir snævi, fornvinir kærstir lík í djúpum sævi. Nærri er höggvið, hnignir bernskuvinir; hugar-þrek brestur, örðugt strengi’ að knýja. Skarð er í sveit, þar féllu fagrir hlynir, framarla’ í hópi sona tímans nýja. Viildi’ eg að ísland ætti gnægðir slíkra, ötulla, góðra drengja, kostaríkra. Falla oss tár, er feysknir stofnar hníga, fyrri er sveitar bezta voru prýði; mæddum frá barmi stunur þungar stíga, stórfelt er tap þá kveðið vorum lýði. Sárast er þó, er kjarna-kvisti yngsta kaldríðrið nístir *— æfiraunin þyngsta. Skil eg því glögt, hve sviða- djúpt er -sárið, sorgmæddu hjarta langar verða stundir, svefnvana nætur, dagur einn sem árið, er þá ei neinn, sem græðir slíkar undir? Meistarans lífsorð glitrar gröfum yfir: “Grát eígi, kona, son þinn dáinn lifir.” “Grát eigi” hvíslar blær, er blómin ungu blíðlega strýkur, ný með hverju vori; “grát eigi”, mælir geisli, er skýin þungu greiðlega klýfur, sumar hans í spori; “grát eigi” er letrað ljóst í himinstjörnum, lifandi máli, huggun jarðar börnum. ‘ Hvort mun sá guð, er fugla loftsins fæðir, fellir ei nokkurt strá úr hendi sinni, hann, sem í litskrúð fegurst liljur klæðir, lífgar úr vetrar-dauða jarðar-kynni; hvort mun hann nokkurt líf manns týnast láta? Ljós er oss kveikt og ráðin dýpsta gáta. i Horf þú með von mót himni morgunbjörtum, hækkandi dagur rís í austurvegi; leysir úr fjötrum, lífgar blóm í hjörtum, langeldar vorsins blika’ á strönd og legi. Kvisturinn ungi’, er fyrri fenti yfir, fegurstu laufum skrýðist, grær, og lifir. Vinirnir lifa, þökkum Ijúft og lengi líf þeirra allra — gleði-bjarta daga. Minningar blíðar hræra hjartans strengi, hugar í djúp er rituð þeirra saga. -Samherjar dyggir! sæmd er slíka’ að harma, sveitinni gæfa, nöfnin vefjast bjarma. Richard Beck. ....................... (KOL! KOL! KOL!| I ROSEDALE KOPPERS AMERICAN SOURIS I I DRUMHELLER COKE HARD LUMP i Ihos. Jackson & Sons COAL—COKE—WOOD 370 Colony Street Eigið Talsímakerfi: 37 021 i POCA STEAM SAUNDERS ALLSKONAR 1 | LUMP COAL CREEK VIDUR | ÍÍiiimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmE A Weslern Q'iristmas- CALGARY BEER Bjór sem hefir orðstír. Til þess að geta notið jólanna, eins og í gamla daga, þarf auðvitað þennan gamla og góða drykk. í meira en 25 ár hefir Calgai*y Beer sómt sér vel á jólaborðunum í Vestur- Canada. Á jólunum er ekkert vinsælla en- hann, að undanteknu jólatrénu. Calgary Brewing and Malting Co. Calgary Limited Canada

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.