Lögberg - 30.12.1926, Page 3

Lögberg - 30.12.1926, Page 3
23. DESEMBER 1926. 30. DESEMRER 1926 Sls. 3 Sárar Kverkar? Gefðu því gætur þegar í staÖ ef hálsin?i verður sár og reyndu aÖ rá'ða bót á því, það getur veriS und- anfari þrálátra og hættulegra háls- og lungna-sjúkdóma^ Besta meSalið við öllu slíku er Peps. Þegar Peps taflan leysist upp í munninum, þá fara hin heilnæmu efni hennar ofan í kverkarnar og ltingnapipurnar. Peps hreinsa kverkarnar og and- færin bæSi fljótt og vel og en besta vörnin gegn margskonar eiturefn- ttm. Koma t veg fyrir bólgu og sár- indi. Taktu Peps æfinlega þegar þér finst að þú þurfir þeirra. Peps tafla í munninn hreinsa loftið, sem þú dregur að þér og er vörn gegn kvefi og allskonar óhollustu, sem þú átt á hættu aö anda aS þér i strætisvögnum og annarsstaSar þar sem mannfjöldi er samankominn. Peps eru jafngóðir fyrir unga og 2famla til að verjast kvefi, bron- chitis. asthma og öðrum brjóst júkdómum. peps Fábu 25C. öskiu af Peps töflum í datr. Fást alstaðar í lyfiabúðum og öðrum búðuni eða beint frá Pens Co. Duoont Street. Toronto. VER SMITTANDI SJÚKDOMA Frá Islandi. í nýkomnum Vísis-blöðum, frá 20. og 22. nóv., standa eftirfarandi merkar fréttir um afstöðu þjóð- kirkjunnar á íslandi gagnvart kirkjumálum Vestur-íslendinga: Biskupinn neitar guðfræðingi um vígslu. Á morgun fer fram prestsvígsla í dómkirkjunni; biskupinn vígir Pál Þorleifsson cand. theol. til Skinnastaðarprestakalls. — Annar ungur guðfræðingur, cand. theol. Þorgeir Jónsson, sem er ráðinn prestur til Nýja ísl. kirkjufélags- ins í Vesturheimi, hafði óskað að fá vígslu sama dag, en biskupinn neitaði að vigja hann. Ástæður biskups til þessarar ráðabreytni verða torskildar, ef athugað er, að fyrir fjórum árum vígði sami biskup prest til safn- aðar, «em er í þessu sama kirkju- félagi, og hafði sá guðfræðingur numið fræði sí» af sömu mönnum og Páll Þorgéir, þ. e. í guðfræða- deild Jiáskóla vors'. Á meðan biskupinn eigi hefir gert nánari grein fyrir synjun sinni, freistast margir til að ætla að Þorgeir hafi framið éinhsern glæp, er geri hann óhæfan til prestskapar. Vænti eg þess, að herra biskup- inn skýri opinberlega frá ástæð- um sínum, svo að rakalaus grunur falli eigi á Þorgeir, og til þess að eg og aðrir prestlingar yitum hvers vér megum vænta, ef vér í tið núverandi biskups kynnum að beiðast blessunar ísl. kirkjunnar til að boða, bræðrum vorum vest- anhafs fagnaðarerindiðð. Ludvig Guðmundsson. Dr. Jón biskup Helgason hefir, að gefnu tilefni, látið svo ummælt Við Visi: “Fyrirspyrjandi virðist gera ráð f.vrir, að það sé skylda biskups að veita vigslu til prestsembættis hverjum kandídat, sem hennar beiðist og hvert á land, sem hann ætlar sér. En þetta er misskiln- ingur. Embættisskylda mín í þessu tilliti nær ekki út fyrir takmörk hinnar ísl. þjóðkirkju. En biskup getur með sérstöku leyfi landsstjórnar veitt vígslu mönnum, sem starfa utan þjóð- kirkju, þegar þess er óskað af hlutaðeigandi söfnuði og sá söfn- uður stendur á sama játningar- grundvelli og þjóðkirkjan — hin- um evang. lúterska. I því tilfelli, sem hér liggur fyr- ir, er um hvorugt þetta að ræða. Söfnuður sá, sem hefir kallað umræddan kandídat, hefir ekki látið neina ósk í Ijós um það, að eg vígði þennan kandidat, sem hann hefir ráðið tll sín. Og eg hefi enga tryggingu fyrir, að hann hirði um, að eg veiti honum vígslu, því að söfnuðuri þessi stendur alls ekki á sama játning- ar-grundvelli og þjóðkirkja lands vors. Söfnuðurinn heyrir til kirkjufélagi, sem kallar sig “Sam- bandskirkjufélag nýguðfræðinga og annara frjálstrúarmanna.” Og aðal einkenni þess er, að það er játningarlaust, en um játningar- laust kirkjufélag verður aldrei sagt, að það standi á saipa grund- velli og það kirkjufélag, sem heimtar af þjónum sínum, að þeir a vígsludegi lofi hátíðlega að pré- dika í anda vorrar evangelisku lútersku kirkju. En að kirkjufé- lag þetta er játningarlaust, or- sakast af því, að þeir “aðrir frjáls- trúarmenn”, sem getur um í nafni --félagsins, eru únítarar, sem eins 0g kunnugt er standa ekki á evan- gelisk-lúterskum trúargrundvelli, en eru í beinni andstöðu við hann. Og nýguðfræðingar, sem binda bandalag til kirfy'ulegs samfélags við únítara, gerðu það vitanlega ekki, ef þeir hefðu nokkrar mætur á þessum grundvelli, sem hinir hafna. Af þessum ástæðum hefi eg ekki séð mér fært að veita um- ræddum vígslubeiðanda prests- vígslu. )Að eg haustið 1921 veitti, með leyfi réttra stjórnarvalda, öðrum kandídat vígslu til prestsþjónustu í ísl. söfnuði vestra, er rétt. En það gerði eg bæði eftir beiðni hlutaðéigandi safnaðar, og eftir að fengin var og* í mínar hendur komin skýlaus yfirlýsing um, að söfnuður þessi stæði á sama evangel. lúterska grundvellinum og þjóðkirkja vor. Sú yfirlýsing hljóðar svo: “We deny any connection with unitarians, declare ourselves in harmony with evangelical luther- an church of Iceland. If further declarations are required wire Quilllake cong. I. V. Bjarnason, pres.” Á íslenzku: “Vér afneitum sér- hverju sambandi við úaítara, teljum oss í samhljóðan við evan- gelisk-lúterska kirkju á íslandi. Sé frekari yfirlýsingar óskað, þá símið til Quill-Lake safnaðar. I. V. Bjarnason forseti. ” “Samþands-kirkjufélagið” var ekki komið á fót, þegar þetta gerðist, og söfnuðurinn, sem hér beiddist vígslu handa prestsefni sinu, því ekki heldur kominn í félag það, sem ekki var stofnað fyrr en ári síðar Við það, sem nú hefir verið tek- :ð fram, bætist enn frejnur það, að Sambandskirkjufélagið er í beinni andstöðu við hið evang. lút. kirkjufélag Islendinga í Vestur- heimi, sem mest og bezt hefir unnið að kristindómsmálum með- al landa vorra vestra síðan er það var stofnað. Þjóðkirkja vor vill ekki veita þeirri andstöðu neinn stuðning, en telur sér m'iklu frem- Ur skylt eftir megni að styðja “Kirkjufélagið” í starfi þess, þar sem þeir agnúar, sem.áður voru á samvinnu við það, eru nú úr sög- unni og með því fengin öll skil- yrði fyrir bróðurlegri samvinnu á sameiginlegum grundvelli evan- gelisk - lúterskrar kristindbms- skoðunar.” Anna K. Sigurðardóttir Ijósmóðir. Anna Krístín er fædd 4. okt. 1849. — Foreldrar hennar voru: Sigurður Eiríksson, bróðir önnu konu Jóns Borgfjörðs, og Guðrún Erlendsdóttir, systurdóttir Jóns Sigurðssonar á Gautlöndum. — Bjuggu þau hjón á Ingjaldsstöð- um, stendur bær sá austan Skjálfandafljóts gegnt Ljósavatni. Áttu þau hjón 12 börn og var Anna Kr. þeirra elst. Fátæk voru þau, eins og gefur að skilja, með svo stóran barnahóp á nytjarýrri jörð. Snemma bar á því, að Anna Kr. væri góðum gáfum gædd, var hún mjög hneigð til að líkna nauð- stöddum og hjúkra sjúkum, bæði mönnum og málleysingjum. Eitt sinn var Anna Kr. léð grannkonu, 1^1 að vinna að heim- ilisstörfum, náði hún þar í kenslu- bók í ljósn^óðurfræðum, fékk hún hana lánaða 0g drakk hana í sig. Leiddi það til þess — meðal ann-* 1 * * ars — að hún var hvött mjög til þess að fara utan og nema ljós- móðurstörf. Varð það að ráði, að Reykjadalshreppur veitti henni 60 dala styrk, auk þess sem lands- fé var veitt, samkvæmt lögum, til að nema ljósmóðurstarf utan- lands. Tvítug sigldi Anna Kr. til Kaup- mannahafnar ásamt annari ís- lenzkri stúlku, Krístjönu Sigurð- ardóttur. Lærðu þær báðar Ijós- móðurstörf. Hefir Anna Kr. minst þeirrar skólasystur með hlýleik. Ári síðar kom Anna Kr. heim til íslands aftur, útlærð með góð- um vitnisburði, og stundaði hún ljósmóðurstörf um eitt ár, án þess að vera veitt umdæmið. Að því ári l'iðnu fluttist Anna Kr. að Sandhaugum 1 Bárðardal, giftist hún bóndasyni þar Jóhann- eSi Jónssyni. Endurgreiddi hún þá 60 dala styrkinn til Reykdæla- hrepps. Var henni veitt yfirsetu- konú starfið í Bárðardalnum og gegnir hún því starfi enn; er það umdæmii víðlent og strjálbygt og oft mjög örðugt yfirferðar vegna vetraríkis og vatnsfalla. Hefir hún nú stundað það starf um nær- felt hálfan sjötta tug ára. Oft var önnu Kr. leitað utan umdæmis, því að fátt var um lærðar Ijósmæður framan af starfstíð hennar, og ekki læknir í Þingeyjarsýslu. Hafði hún um skeið ofurlitla lyfjabúð og stund- aði smáskamtalækningar, og þótti vel gefast. Heppin hafði hún ver- ið í starfi sínn, þótt að eins hafi út af því borið. Tekið hefir hún á móti á fjórða hundrað börnum og er það mikið í svo fámennu umdæmi, og er það til, að hún hafi tekið á móti þrem ættíiðum. Mjög bætti hún meðferð sængur- kvenna og ungbarna, og að lik- indum á margur henni líf að launa, beinlínis og óbeinlínis. Ekki varð þeim hjónum barna auðið. Föður sinn misti A. Kr. um það bil, er hún giftist, tóku þau hjónin þá til fósturs 2 yngstu bræður hennar. Einnig ólu þau upp systurdóttur hennar. Um 19 ár er Anna Kr„ búin að* vera ekkja. Hefir tekið við búi á Sandhaugum Eiríkur yngsti bróð- ir hennar og hefir hún verið skjöldur og skjól heimilisins eftir sem áður, eins og hvervetna þar, sem hún hefir komið fram eða látið til sín taka. Þegar Kvenfél. S.-Þingeyinga var stofnað, hafði A. Kr. forstöðu deildarinnar hér í sveit um langt skeið og ritaði allm'ikið í blað félagsins. Samsæti var ö. Kr. haldið—af konum sveitarinnar — árið 1908, til viðurkenningar fyrir vel únn- ið starf. Var henni gefinn vand- aður hægindastóll með áletruðum silfurskildi. Nokkrum árum áður höfðu hjón- in á Lundarbrekku, Jónas Jónsson og Jakobína Jónsdóttir, gefið ö. | Kr. vandað úr — viðurkenning fyrir framkomu hennar á þeirra heimili. Það sem sérstaklega éinkennir Ö. Kr. er hið ágæta starfsþrek, og hin framúrskarandi stilling og geðprýði, sem henni er gefin. Eru það sérstaklega dýrmætir eigin- leikar hverri ljósmóður, að æðr- ast aldrei, og láta aldrei á sér sjá óttamerki, hvað sem mætir; er það ekki lítið traust og hjálp hverri sængurkonu, að hafa hjá sér þann bjargfasta klett í ólgu- sjó lífsins — að hafa á þeim roynslustundum þerínan rólega, glaða brimbrjót, éem bægir án allrar áreynslu þeim boðaföllum á bug, sem fjöldlnn fær ekki við ráðið. — Vandsezt verður í sæti hennar. Gott er yður, þér yfirsetukon- ur, að hugleiða þessa éiginleika. Anna Kr. minnir e'inkennilega mikið á kvenskörunginn og land- námskonuna Auði djúpauðgu og væri sennilegt að ættir þeirra mætti rekja saman. Vér skulum ei æðrast, þó ýin fálll sjór og endur og sinn gefi á bátinn. Að halda sitt strik, vera í hætt- unni stór og horfa ei um öxl, það er mátinn. Sveitungi. —19. Júní. presturinn sannaði neitt. Hann vissi að slíkt er ekki hlutverk presta. En hann hafði gaman af að grenslast eftir því, hve mikið presturinn vissi um víkingana fornu, og spurði því prestinn hve- nær ísland hefði fundist. Prest- urinn hélt því fram, að það hefði fundist 874, en víkingurínn var ekki ánægður með þá úrlausn, og presturinn gat ekki fært neinar sannanir fyrir staðhæfingu sinni. Það er líka rangt með farið, að víkingurinn hafi haldið því fram, að það væri landráð að kenna börnum íslenzku. Hinu hélt hann fram, að slíkt nám mundi ekki koma þeim að miklum notum hér, og presturinn gat ekki sannað hið gagnstæða, sem ekki var heldur von. iÞá er það ekki heldur rétt, sem presturinn segir, að víkingurinn hafi sagt, að heili Islendinga gæti ekki rúmað nema eitt tungumál. Hinu hélt hann fram, að þeim, sem nema vildu fleiri tungumál en eitt, mundi hagkvæmari kunn- átta í öðrum málum en íslenzku, og mun það rétt vera* að prestur- inn hafi þá “fallið óvígur” — sem von var. Presturinn seg^r, að Oregon- ríkið byrji við Portland og að gegnum Oregon-ríkið sé eintóm fjalla-leið. Norðurtakmörk Ore- gon-ríkis eru 9 mílum norðar en Portland og er bein lína þaðan um 200 mílur til næstu fjalla í suður, en járnbrautarleið er mikið lengri frá Portland til fjalla. Líklegast hefir presturinn lagst til svefns, þegar lestin fór frá Portland, og ekki rumskast fyr en hún hafði farið svo sem 350 mílur. Prestar vaka ekki æfinlega, sem ekki er von. Presturinn segir, að járnbraut- arlestin hafi faríð á skipi yfir arm af San Franéisco firðinum, en hún fór vitanlega að eins yfir Cacramento ána frá Benicia til Port Costa, fimm mílur frá ósn- um, þar sem áin fellur í fjaðar- arminn. Þetta er að eins örlítið sýriis- horn. Ferðasagan er löng eins og Jónsbókarlestur, og öll svipuð þessu. Og hún er alveg eins góð og við var að búfcst. ekki öxarhólmi ímynd hólmans stóra, sem vér byggjum? Hefir ekki það sem bezt er í íslenzkri menningu að fornu og nýju dafn- að mest fyrir þá sök, að það var friðað fyrir átroðningi handan yfir vatnið, líkt og gróðurinn í hólmanum. Fræin voru aðkomin, en þau hafa fengið að þroskast í næði á sinn sérkenriilega hátt. Er ekki öxarhólmi lifandi mynd af góðu íslenzku sveitaheimili, þar sem hið bezta í fari þjóðar vorrar hefir þróast i kyrð og næði, þar sem hver hefir verið öðrum skjól og heimilið var éins konar ríki út af fyrir sig og sjálfu sér nóg í flestum efnum? Hvernig haldið þið að færi, ef brú væri gerð yfir í öxarhólma og opnuð almenriingi til umferð- ar? Hve lengi skyldi þá hinn und- urfagri gróður hans standa í full- um blóma? Eg má varla hugsa til þess, hverriig þá færi, ef ekkert væri gert jafnframt til að verja hann. Og raunar held eg að ein- ungis eitt gæti bjargað honum, eftir að brúin væri komin. Það er, ef menn hefðu helgi á honum. Slíkt kann að virðast fjarstæða, því að eitt af einkennum vorrar aldar er það, hve fátt er mönnum nú heilagt. En hvað ætti að vera mönnum heilagt, ef ekki lífið sjálft, og því helgara sem það birtist í fegurri og fullkomnari myndum. Fyr eða síðar kemur sú tíð, og það er sonn guðsþjóqústa að styðja að vexti og viðgangi lífisns — “að gera úr almennum gróanda teig, að guðsríki íslenzkan haga.” I ferð minni um daglnn kom eg líka að skurðinum og flóðgáttinni miklu, sem verið er að gera upp við Hvítá. Þar er eitt mesta mannvirkið, sem unnið hefir ver- ið hér á landi, öflugasta viðleitn- ‘in til að láta tvö strá vaxa, þar sem áður var eitt. Eg býst við, að flestir geiT ráð fyrir, að éveit- an takist vel og að engjarnar hérna í Flóanum verði vafðar grasi á næstu árum. Við skulum vona, að þeim verði að trú sinni. I?n hverriig á svo framhaldið að verða? Hvað verður fléira stór- merkja að segja úp Flóanum? — unga fólkið helst aldrei til lengd-! ar í sveitinni, nema það sjái, að i það geti á hæfilegum aldri orðið þar sjálfstætt, gifst, reist bú, átt börn og buru, grafið rætur og muru. Jafnframt Vill það hafa eitthvað af þeim mannfagnaði, samneyti við aðra menn, er bæ- ‘irnir veita. Þetta tvent er það, sem mest dregur unga fólkið úr sveitunum í kaupstaðina, að í kaupstöðunum má mynda heimili og l'ifa á handafla sínum einum, og að þar er meira um mannfundi og ýms þægindi en víðast til sveita. Hvorttveggja þetta verð- ur því að taka til greina, þegar finna skal hið nýja skipulag fyrir búskapinn hér í þessu væntanlega Gósenlandi—flóanum. Prestar “l'ifa og hrærast” íjHvernig verður mannlífið í Fló- heimi trúarinnar. Þess vegna sjájanum, þegar graslífið glæðist? 1 þeir ekki heim veruleikans nemaí “eins og gegn um gler og í þoku.” 3an Frandisco Víkingur. Framtíðin í Flóanum Ræða flutt við ölfusárbrú ágúst 1926. Eftir próf., dr. Guðmund Finnbogason. 15. Presturinn og Víkingujinn. Síðast liðið haust birtist í Lög- bergi ferðasaga eftir prest, sem farið hafði víða um Ameríku. Er San Francisco-borgar þar að góðu getið og má það vera gleðiefni þeim, sem þar búa. En að San Frnacisco sé “stærsta borgin í Californíu” mun vera fyrírsögn. Sum'ir prestar hafa spádóms- andagift, sem óvart getur bland- ast saman við veruleikann. Presturinn segist hafa hitt þar mann, sem hafið hafi kappræðu við sig. Hafi víkingablóðið auð- sjáanlega runriið óblandað í æð- um hans. Hann hafi skorað slg á hólm að sanna, að bygging ís- lands hafi hafist 874. Þetta er ekki allskostar rétt Víkingurinn ætlaðist ekki til að Eg fór fyrir skömmu í fyrsta sinni upp með öllu Sogi og að upptökum þess í Þingvallavatni. Aldrei á æfi minni hefi eg séð eins yndislegt vatn. Því veldur fyrst og fremst hreinleikinn. Ekk- ert bergvatn getur verið tærara en Sogið. Allir vita, hve silfur- skærar lindirnar eru, sem koma undan hrauninu og mynda Þing- vallavatn. — Og þó að eitthvert grugg bærist með lækjum út í vatnið, þá mundi það alt sjatna á botni þess áður en Sogið líður brosandi inn á braut sína. Af hreinleikanum kemur hinn skærí litur Sogsins, þar sem það er lygnt og hið óViðjafnanlega hréinhvíta eða grænhvíta löður, þar sem það fellur í fossum. All- ur þess gangur vottar mátt 4 og mildi í senn. Mér fanst Sogið vera heilagt vatn og sálubót að horfa á það. Eg gekk þaðan með hreinni og hressari hug. En á einum stað í Soginu er fegursti hólminn, sem eg hefi séð. Hann stendur iðjagrænn í stríð- um straumi mqjð hvítar löður- breiður alt umhverfis. Hann heit- ir öxarhólmi.. Um nafnið er sú saga, að einhvern tíma í hörku- stuttu máli: —’Hvaða breytingar gera menn ráð fyrir að verði á heimilislífi manna, félagslífi og menningu, þegar grasið verður méira á engjunum? Af því hefi eg ekki fengið nema óljósar fregnir hjá þeim, er eg hefi talað við. Mér skilst, að menn ætli að auka kúabúin, hafa grasið til kúa- fóðurs, setja upp eitt eða fleiri rjómabú og fá svo járnbraut til að aka öllum smjörtunnunum t‘il Reykjavíkur. En í samband'i við þennan framtíðardraum hefir mér virzt bóla á nokkrum áhyggju um, svo sem þessum: Hverjir eiga að slá alt grasið? Og hverjir eiga gefa kúnum? Og svo kemur það, sem erfiðast er: Hverjir eiga að mjólka kýrnar? 1 Með öðrum orðum: Aðal kvíðaefnið virðist vei-a það, að starfsfólk fáist ekki til að vera í sveitinni árið um kring, nema þá með afarkostum, sem enginn búskapur þolir. Það ctreymi til Reykjavíkur og sjáv- arþorpanaa jafnskjdtt og það get- ur, svo að búast megi við að þeir, Mér dettur ekki í hug að bera hér fram að þessu sinni ákveðnar tillögur um það, hversu öllu þessu skyldi haga. Það er mál, sem þarf vandlega rannsókn og íhugun, og það væri lang eðlilegast, að tillög- urnar kæmu fyrst og fremst frá héraðsmönnum sjálfum, sem eiga að búa og niðjar þeirra við það skipulag, sem myndað verður. En það ætti að vera öllum ljóst, að hér er verið að gera stórfelda tilraun, sem mikið veltur á að vel fari. Hér er verið að leggja inn á nýja braut í íslenzku þjóðlífi, og hugsunin um það, að hér er merki- legt tækifæri til að marka nýja stefnu, skapa nýja sveitamenning, ætti að fylla alla unga menn þessa héraðs áhuga og framtaksþrá. Og þá ríður á, að menn geri sér ljóst, að sönn menning birtist í sjálf- stæðum smekk, hún sést á því, að menn kunni í öllum efnum að sniða sér stakkinn eftir vexti og þó við vöxt. Það er vottur um menning- arskort og vantraust á sjálfum sér að apa eftir öðrum það, sem menn sjá fyrir sér, án þess að athuga fyrst, hvort það á éins vel við hjá manni og hinum. Sveitirnar hafa mist ýmislegt gott og ga,malreynt i menningu sinni, bæði í húsasmíði, klæðnaði, mataræði og siðvenjum. af því menn hafa hugsunarlaust gert ráð fyrir þvi, að alt væri betra eins og það er haft í kaupstöðun- um. Kaupstaðirnir okkar hafa hins vegar apað eftir útlenda tízku, hvort sem hún átti hér við eða ekki. En dálítil umhugsun ætti að nægja til að sannfærast um, að í mörgum efnum hæfir annað í sveit en í borg. Menn éiga því hvorki að reyna að gera sveitina að borg né borgina að sveit, heldur sníða lifshættina á hvorum staðnum sem1 mest eftir staðháttunum. Við það kemur fram sjálfstæð menning, sem verður mönnum því hjart- grónari, sem þeir hafa lagt meira af hugsun sinni og smekk í að skapa hana. — Ekkert finst mér yndlfelegra en að koma á sveita- heimili þar éem flest ber með sér, að það er^ heimafengið, heima- hugsað og heimaunnið. Það er þá eins og hugsun fólksins, sem skap- aði þett með eigin höndum, andi hlýtt að manni, hvert sem litið er. Slikt fer heimilinu jafnvel eins og iðjagrænt grasið fer túninu kring um bæ'inn. Hvorttveggja ber vott um gróðrarmagn, sýnir, að menn- irnir, jafnt og jurtirnar, eiga sér rætur i þeim jarðvegi, sem þeir eru settir i, og draga holla nær- ingu þaðan. Þar sem slík menn- ':ng þróast, elta menn ekki hvert hjóm útlendrar tízku, því að þeir sem ekk'i verða farnir með bil, yita> hverg Virði það er> gem þeir fari þegar járnbrautin kemur. — Og hvaða gagn verði þá að áveit- unni og járnbrautinni? > Þetta er vissulega alvarlegt mál, og satt að segja virðist mér alt þetta mikla áveitufyrirtæki leika á lausum þræði, meðan menn hafa ekki gert sér ljóst, hvernig lífi manna á að haga hér í Flóanum, þegar grasið kemur. Mér fyndist eðlilegt, að hér væri naumast talað um annað manna á milli en það, hvað gera ætti til þess sveitalífið blómgaðist hér að sama skapi sem grasið vex betur. Ekkert værí eðlilegra en að hér frosti myndaðist ísspöng út i | ræi{i hver uppástungan aðra og hólmann. Maður brá við og fór þangað með öxi og ætlaði að höggva tré, er þar var, og er hann var í undirbúriingi með það, heyrði hann braka í ísspönginni og þaut af stað aftur í land- En 1 fátinu gleymdi hann öxinni, og er hún þar enn. Að því er séð verður frá bakk- anum, ber hólminn það með sér, að hann hefir um langan aldu/ verið friðhelgur fyrir ágangi manna og dýra. Þar eru reynitré og bjarkir og hvannstóð og blóny skrúð í svo fagurskipuðum þyrp- ingum, að slikt sést ekki nema þar sem náttúran hefir fengið að starfa í fríði. — Plönturnar, sem námu þarna land, endur fyrir löngu, hafa smám saman fundið þá stöðu, er samræmislegust var við þarfir þeirra. Þær hafa lagað sig hver eftir afstöðu sinni til annara, uns fremsta þroska varð náð. Þaðan stafar samræmið og fegurðin, sem gleður augað. Þess1! mynd hefir fylgt mér síð- a og vakið margar hugsanir. Er allar væru þær teknar til vand- legrap íhugunar, að hér væru nefndir manna, er sætu'iðulega á ráðstefnu til að reyna að hugsa upp það búskaparlag 0g þá heim- Uishætti, sem hér ættu við, þegar grasið góða kæmi um allar engj- ar. Hér eru ótal spurningar, sem krefjast úrrlausnar: Eiga hér aðallega að vera kúa- bú eða sauðabú? Á að hafa hér s^órbýli eða smábýli? Eiga búin að vera einkaeign eba félagseign? Hvernig verkfæri og vélar á að nota? Eiga menn að .vinna saman, eða hver að bauka sér, hafa vélar hver fyrir s'ig eða í samlögum? Eiga bæirnir að vera á víð og dreif, eða mynda þorp? o. s. frv. En fyrst og síðast verður spurn- ingin þessi: Hvern'ig á að haga öllu starfi og heimilisháttum svo, að hin uppvaxandi kynslóð, karl- ar og konur, viljl vera áfram í sveitinni sinni, í stað þess að flýja þaðan, ekk'i sem fæturnir sjálfir hafa skapað. Eg mintist áð^ir á öxarhólma. Hann stendur mér fyrir hugskots- sjónum sem ímynd þeirrar sveita- menningar, sem komandi kynslóðir eíiga að skapa í landi hér. Þar er gróðrarmagn, þar er fjölbreytni, þar er hið bezta skipulag og þar er fullkomin fegurð. Eg óska þess, að hér megi á komandi árum vaxa upp menning, jafnheilbrigð og jafn fögur og gróðurinn í öxarhólma. — Lesb. Mbl. Kona rithöfundarins. Því er jafnan svo varið, að al- menningur hefir mikla forvitni á að vita sem mest um daglegt líf, siði og hætti skáldanna og annara listamanna, sem þjóðkunnir eða heimskunriir hafa orðið fyrir verk sin. Ekki á þetta sér sízt stað um skáldið Joseph Conrad, því líf hans var að ýmsu einkennilegt og æfintýra ríkt. Hann var fæddur á Póllandi og þar uppalinn. Hann gerðist sjó- maður snemma og fór víða. En þegar hann var um þrítugt, hætti hann við sjómenskuna og settist að á Englandi, 0g var þekking hans á enskri tungu þá mjög ó- fullkomin. En það liðu ekki nema tvö eða þrjú ár þangað til út koma eftir hann sögur eins og “Almay- er’s Folly”, “The Nigger of the Narcissus” og “Youth”. Eru sög- ur þessar skrifaðar á svo gullfall- egu máli, að ensk tunga hefir ald- rei verið betur skrífuð. Kona þessa rithöfunaar hefir, í leyti er eftirtektaverð og merki- leg. Farast henni orð á þessa leið: Það er virðuleg staða, að vera kona mikils rithöfundar, sem í Mf- anda lífi hlýtur , og það að verð- leikum, mikla frægð og viður- konningu. Skynsöm kona finnur ótal vegi til að aðstoða mann sinn við ritstörf hans, án þess að vera honum til nokkurra óþæginda, eða léta hann finna að hún sé á nokk- urn hátt að grípa 'inn í hans verkahring. Hún getur látið hann finna, að hún fylgist með því, sem hann er að gera og meti verk hans. Það er skáldinu á- nægja og styrkur að vita af því, að konan hans lætur sig einhverju varða, það sem bezt er og göfug- ast í sálarlífi hans og þarf hún ekki að slá honum gullhamra til þess að hann finni þetta. Þetta er styrkur konunnar, og hér getur hún unnið manni sinum mikið gagn. Þegar rithöfundurinn finn- ur það, að um verk hans er hugsað á hans eigin heimili og þau eru þar skilin, og um þau dæmt af góðvilja og samúð, þá er það hon- um ómetanlegur styrkur og miklu a.f áhyggjum hans og óþægindum þar með rutt úr vegi. Eg hef'i margt lært af þrjátíu ára sambúð Við rithöfund, sem var alveg sérstaklega tilfinninga- næmur, svo að nákvæmlega þurfti að stilla orðum sínum við hann og sem þurfti gott næði og langan tíma til að hugsa um það, sem ^iann var að gera og að yfir- vega svo að segja hvert orð og hverja setningu, serri hann skrif- aði. Þegar kona giftist rithöf- undi, þá tekst hún á hendur skyldur, ?em flestar aðrar konur hafa lítið af að segja, og hún verður að gera sér ljósa grein fyr- ir þeim. Honum ríður á, að um- hverfið, sem hann lifir í, sé við hans hæfi, og það á sitt við hvern, og það svo, að sjaldan fellur tveimur hið sama. Eg þekki einn rithöfund, sem hefir svo lítið vinnuherbergi, að það er ekki stærra en rúmgóður skápur. Hann hafði lengi verið sjómaður og eg býst við, að á skipunum hafi hann variist við þessa þröngu klefa. Aftur eru aðrir, sem ekki eru á- nægðir, nema þeir séu í stóru her- bergi, hafi stórt og fallegt skrif- borð og fjaðrapenna til að skrifa með, og þar að auki þurfa þeir að sjá út á sjóinn gegn um skrif- stofugluggann. Mín reynsla er sú, að skrifstofa bónda míns var í löngu herbergi á gömlum bóndabæ og var stof- an, eins og þá gerðist, mjög lág- reist. Borð voru þar mörg, og á þau var raðað miklu af þéttskrif- uðum pappírsörkum. Tveir ösku- standar voru þar, og var ekki ó- vanalegt, að reykur stæði upp úr þeim, stundum báðum í einu, og voru þeir oft, að mér fanst, hættu lega nærri handritunum. Þar var einn lampi og logaði oft svo lengi á honum á nóttunni, að komið var fram á morgun og dagsljósið fór að bera lampaljósið ofurliði. Á þessum árum gekk það glæpi næst, að hreyfa við nokkru af þessum blöðum, sem lágu þar um öll borð og stóla, eða færa úr stað bækur, sem lágu opnar til og frá á gólfinu, og ekki mátti með nokkru móti fletta þar við blaði. Eg hafði mikla löngun, næstum ástríðu, til að strjúka rykið af borðunum og færa hlutina í það lag, sem mér fanst betur fara. En það var ekki því líkt, að nokkru slíku væri vel tekið. En þegar hver bók var bú'in af hálfu mannsins míns, allar próf- arkir vandlega lesnar og stíll leiðréttur og alt hafði verið sent til prentarans með mjög trúverð- ugum manni, þá hafði eg nóg aft | gera, því svo vandlega þurfti að | halda saman hverjum snepli af handriti, að þar mátti ekkert ! vanta. Hélt eg þessu því öllu saman 0g gerði það með mestu nákvæmni.” toga, heldur sem bílarnir bera? Og blaðinu “Sunday Express”, ritað þá verða menn að skTlja það, aðgreln um mann sinn, sem að ýmsu ! Læknar Áreiðanlega Sjúkdóma, Sem Af Meltiingarleysi Stafa. ! Læknar, Sem Hafa Margra Ára Reynslu, Furðar Stórlega Hve Fljótt og Vel Þetta Meðal > Læknar Slika Sjúkdóma. Hafi læknirinn ekki nú þegar ráðlagt þér þetta meðal, þá farðu i sjálfur til lyfsalans og fáðu þér I flösku af því; það heitir Nuga- Tone. Það er bragðgott og þú getur fengið mánaðarforða fyrir einn dollar. Þig mun furða, hve skjót áErif það hefir. Þegar um er að ræða meltingarleysi, upp- þembing, lifrarveiki, ólyst, höfuð- verk. svefnlevsi og áhugaleysi, þá er ekkert sem jafnast á við þetta meðaU Reyndu það í nokkra daga og þú munt finna. að það gerir þig eins og að nýrri mannenskju. Það veitir endurnærandi svefn og þér fer strax að líða betur. Þeir, sem búa til Nuga-Tone, þekkja svo vel verkanir þess, að þeir leggja fyrir alla lyfsala að ábyrgjast það og skila aftur peningunum, ef þú ert ekki ánægður. Hefir ágætis meðmæli og fæst hjá öllum góð- um lyfsölum.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.