Lögberg - 30.12.1926, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. DESEMBER 1926
Bls. 5
Dod<is nýrnapillur eru besta
nýrnameðalið. Lækna og gigt bak-
verk, ihjartabilun, þvagteppu og
ðnnur veikindi, sem stafa frá nýr-
unum. — Dodd’s Kidney Pilla
kosta 50c askjan eða sex ösikjur
fyrir $2.50, og fást hjá öllu'm lyf-
•ölum eða frá The Dodd's Medi-
cine Company, Toronto, Canada.
borg taka við skeytum þeirra.
Þykja einkum þessar rannsóknir
með stuttri bylgjulengd vera mik-
ilsvarðandi. Ál'it þessara manna
mun vera, að auk dagsbirtunnar
muni aðrar orsakir finnast, er
hafi áhrif á styrkleika bylgjanna,
og er þetta eitt af aðal viðfangs-
efnum þeirra, en auk þess ætla
þeir að rannsaka radioeðli jarð-
tegunda og vatns (heitra lauga).
Háskólinn í Hamborg og "Notge-
meinsschaft der deautschen Wis-
senschaft” í Berlín kosta leiðang-
ur þenna. I
Frá Bergþórshvoli.
Fleirlf* munir fundist en þeir, sem
getið var um um daginn.
Reykjavík, 5. nóv. 1926.
í fyrradag hafði Mbl. tal af
Markúsi Sigurðssyni, sem verið
hefir yfirsmiður við bygginguna
að Bergþórshvoli í sumar. Hann
kom hingað til bæjarins á mánu-
dagskvöldið.
Frásögn hans um gröftinn á
Bergþórshvoli var á þessa leið:
Er hann kom austur í vor, var
eigi búið að grafa í fulla dýpt fyr-
ir grunni hins nýja húss. Sökum
þess, hve jarðvegur er þar gljúp-
ur, þurfti að grafa djúpt niður í
hólinn. Var grafið fyrir stöplum
er steyptir voru til þess að tryggja
undlrstöðu hússins.
í þriggja metra dýpi komu þeir
niður á brunaleifarnar. Full vissa
er fyrir því, að þar sé uirí leifar
Njálsbrennu að ræða, því neðan
við brunaleiifarnar var órótaður
sandjarðvegur, svo byggingarleif-
ar þær, sem þarna fundust, hljóta
að vera frá elztu tímum Berg-
þórshvois.
Markús var við allan gröftinn,
og kann því gerst frá honum að
segja.
Brunaleifarnar fundust aðeins
í suðvesturhorni gryfjunnar, sem
grafin var fyrir húsinu, á svæði,
sem var um 2 ál. á breidd frá
austrti til vesturá, og sex ál. á
lengd frá norðri til suðurs.
Á þessu svæði fanst, auk þess
sem séra Jón Skagan skýrði frá
um daginn.
Mikið af röftum,
með ákveðinni gerð, allir brunnir
að neðanverðu, en óbrunir að of-
an. Sáust þess glögg merki, að
þekjan hefir fallið ofan á tóftina
og kæft eldinn áður en tréð hefir
brunn'ið. Verður þá auðskilin
frásögn Njálu, þar sem sagt er
frá því, hve lík þeirra, sem fór-
ust í brennunni, voru lítt brunnin.
Auk raftanna fundust þessir
munir:
Botn úr eirkatli,
heillegur, en lítið varðveitt af
hliðum ketilsins, og brotnaði
mjög, er hreyft var við.
Þrjú steinbrýni,
einkennileg, sjö þuml. á lengd,
1H á breidd og þuml. á þykt.
Voru þau auðsjáanlega klofin úr
steini. Mismunandi mikið voru
þau eydd. — Enn fremur fanst
Jaxl úr manni,
og loddi kjálkabrot við jaxlinn.
Eig’i vissi Markús, hvar hlut-
ir þessir voru niður komnir nú.
—Þegar þess er gætt, hve margt
fanst þarna á tiltölulega litlu
svæði, þarf ekki að ganga að því
gruflandi, að mikið er af minjum
þarna niðri í hólnum eftir Njáls-
brennu. Hinir hálfbdunnu raftar
benda til þess, að margt hafi eld-
urinn skilið eftir, og því meiri
líkur til, að ýmislegt sé þar fé- j
mætt að finna fyrir fornminja- og
sögu rannsóknir.
Að fenginni þessaiú vitneskju,
lítur Morgunblaðið svo á, að það
sé blátt áfram skylda manna, að
hefjast handa, og svifta hinu 2—
3 metra þykka moldarlagi ofan af
allri Njálsbrennu rústinni, og fá
hinu færustu vísindamenn, sem
völ er á, til þess að hafa umsjón
með greftrinum.
Markús Sigurðsson skýrði Mbl.
frá því, að afar auðvelt væri, að
ryðja moldinni ofan af rústinni.
Norðan við hólinn er djúp laut.
Er eigi annað en rista ofan afj
lautínni, ryðja moldinni ofan í
hana, og þekja síðan. Yrði úr
}wí hreinasta jarðabót.
Það er hneyksli, ef hér verður
eigi hafist handa á næstu missir-
um.—(Mbl.
Finnland hið nýja.
í ímynd flestra íslendinga, er
Finnland í flestu tilliti samstæða
annara Norðurlanda, og þjóðin
náskyld Svíum í máli og menn-
ingu. Að vísu vita flestir, að til
er mál, sem heitir finska, og ekki
á neítt skylt við Norðurlandamál-
in, en yfirleitt halda menn sænsk-
una miklu útbreiddari í Finn-
landi, en hún er. Sænska hliðin
á Finnalndi hefir verið opnari og
aðgengilegri en hin og áhrifin
þaðan því meiri. Finskir staðir
eru jafnan nefndir sænskum nöfn-
um en ekki finskum hér á landi,
þó mikill meiri hluti Fánnlend-
inga nefni aldrei nöfnin Helsing-
fors, Abo og Viborg til dæmis,
heldur ávalt Helsinki, Turku og
Viiipuri.
Finnlendingum er illa við þetta,
það er að segja meiri hlutanum
— og hann er meiri en margur
heldur. Finnlendingar eru réttum
þremur miljónum fleiri en Islend-
inga^, en þar af eru ekki nema
340,000 sænskumælandi — rúm-
lega tíundi hver maður.
Um áramótin 1917—18 urðu
Finnlendingar sjálfstæð þjóð, eft-
ir að hafa staðið undir erlendum
yfirráðum síðan 1293. Má þvi
segja, að þeim hafi tekist vel að
varðveita þjóðerni s'itt og tungu,
í meira en 500 ára sambúð við
Svía, og kemur það v*itanlega af
því, hversu frábrugðin þjóðarein-
kennin voru. Sænskan var mál
hinnar ráðandi stéttar, og ýmsra
andans manna, sem heillast höfðu
af sænskri menningu, en alþýðan
hélt trúlega við sitt.
Finnlendingar eru mjög óskyld-
ir Norðurlandaþjóðunum og mál
þeirra sömuleiðis. Að því er menn
hyggja, er þjóðstofniinn kominn úr
suðurhéruðunum við Volga, og
þykjast menn hafa fndið menjar
eftir hann þar frá því seint á
steinöldinni. Hafi kynþáttur þessi
síðan flutt s'ig smátt og smátt
vestur og norður yfir Rússland og
staðnæmst um hríð í héruðunum
fyrir sunnan Finskaflóa. En á
fyrst öldunum eftir Krists burð
hafi þeir svo flust norður yfir
flóann og sest að í Finnlandi.
Nánustu ættingja þessa kynþátt-
ar telja menn Eistlendinga og
Magyarana í Ungverjalandi, og
styðjast þar einkum við athugan-
ir á málum þessara þjóða, sem eru
mjög skyld.
Á árunum 1154—1292 lögðu Sví-
ar undir sig Finnland smátt og
smátt. Um siðbót var fyrst farið
að nota finsku sem ritmál, siðbóta-
postuli þeirra hét Micael Agricola
og var einn af lærisveinum Lút-
ers. Er hann talinn fyrst'i mað-
urinn, sém ritað hafi finsku að
nokkru ráði; hann þýddi m. a.
Nýja Testamenfcið, og kom það út
á finsku 1548, en öll Biblían kom
ekki út á finsku fyr en 1642. En
finskra áhrifa í bókmentunum
gætti eig'i að síður lítið um þess-
ar mundir. Það er eigi fyr en *um
aldamótin 1800, að finsk þjóðern-
isvakning fer fyrir alvöru að
breiðast út og fá vind í seglin, en
þegar niu ár voru liðin af öldinni,
urðu Svíar að láta landð af hendi
við Rússa. Varð það að vissu
leyti til þess að vekja Finnlend-
inga enn betur til meðvitundar
um þjóðerni sitt.
J. V. Snellman og tímaritið
“Saima” höfðu forustuna á þessu
sviði. Og um miðja öldina sem
leið var svo komið, að allmörg
skáld og fræðimenn voru farnir
að nota finskuna í riti. Jafnframt
reis upp hópur mentamanna, sem
notuðu finskt mál, en áður hafði
sænskan verið mál lærðra manna
og rithöfunda. Þó var það ekki
fyr en 1860—70, að farið var að
nota finskuna alment í blöðum.
Fyrsti skólinn, sem notaði
finsku sem aðalmál, var stofnað-
ur 1858. Það var mentaskólinn í
Jyvaskyla. Fyrst var kent bæði á
sænsku og finsku, en er stundir
liðu fram, á finsku eingöngu. Ár-
i, 1869 var fyrstí finski kvenna-
skólinn stofnaður í Helsingfors.
Og 1865 var finska lögboðin í
skólunum jafnframt sænsku. Sex
árum síðar var leyft, að kensla
mætti fara fram á finsku ein-
göngu. Og 1887 var fyrirskipað,
að opiinberar skrifstofur skyldu
svara á finsku þeim bréfum, er
þær fengju á því máli.
Á síðustu árum rússnesku
stjórnarinnar í Finnlandi var
gerð tilraun til þess að lögleiða
rússneska tungu í embættisfærslu
í Finnlandi, en þó varð því ekki
framgengt. Fyrirskipun sú um
mál Finnlend'inga, er nú gildir, er
frá 1923, og eru helstu ákvæði
hennar þessi:
í þeim héruðum, þar sem tíundi
hluti* íbúanna krefst þess, skulu
bæði málin kend. Þó skal kenna
bæði málin í Helsingfors, Abo og
Vasa, þó að minni hlutinn nái
ekki tíu af hundraði. Komist minni
hlutinn í e'inhverju héraði, sem
hefir bæði málin, niður fyrir átta
af hundraði, skal hætta að nota
mál hans.
Síðan Finnland varð sjálfstætt
ríki missir sænskan fótfestu þar
með hverju ári sem líður, og í
mörgum héruðum landsins eru
börn, sem ekki læra sænskt orð.
—Tvö hundruð þingmenn eiga
sæti á löggjafarþingi Finnlend-
inga, og eru þeir kosnir til þriggja
ára í senn. Flokkaskiftingin er
þannig nú, að í þinglinu sitja 61
hægrimenn, 61 bændaflokks- og
framsóknarmenn og vinstri flokk-
ur, sem í eru 60 jafnaðarmenn og
18 kommúnistar.
iLandbúnaður er aðal atv'innu-
vegur Finnlendinga, og lifðu 61
af hundraði af þjóðinni af honum
árið 1920, en að 14.8 af iðnaði.
Tala sjálfseignarbænda hefir síð-
an 1901 vaxið úr 110 upp í 300
þúsund. Ríkið á sjálft um 40 af
hundraði allra jarðeigna í land-
inu. Smjörframlieðsla hefir auk-
ist mjög síðustu árin.
AðflutningSvara Finnlendinga
er timbur og trjávörur. Finnland
tr mesta skógland í Norðurálfu
og 58.6 af hundraði af landinu
er þakfð skógi, sem að notum kem-
ur. Af skóglendinu á ríkið lið-
lega þriðjung. Pappírsframle'iðsla
er mikil og starfa 16,000 manns að
pappírsiðnaði. 1 landinu eru rúm-
Hvar sem þér kaup-
ið og hvenær sem þér
kaupið Magic bökun-
arduft, vitið þér, að
það er ætíð hægt að
reiða sig á það og er
hið besta, ávalt á-
byggilegt og hreint.
BÚIÐ TIL I CANADA
MACIC
BAKINC
POWDER
lega 100 trjámauks- og pappírs-
verksmiðjur, og framleiða þær
600,000 smálestir af trjámauki og
“cellulose”.
Fjárhagur Finnlands er furðu
góður. Árið 1924 var tekjuaf-
gangur ríkisins 70 miljónir mörk.
Beinir og óbeinir skattar voru það
ár 1860 miljónir. Útgjöld til hers-
ins nema 146 mörkum á íbúa á
ári, en afborgun og vextir ríkis-
skulda pm 72 mörkum. Ríkis-
skuldirnar nema um 1148 mörk-
um á hvern íbúa.—Vísir.
If. P. FERGUSON
President nnd Mann*ter
THIS SCH00L HAS MADE A SUCCESS 0F ITS BUSINESS
rrs GRADUATES ARE MAKING A SUCCESS 0F THEIR BUSINESS
Every year more University and High School stu-
dents enroll in this great School. Many of them come
from far beyond the confines of Manitoba—from Brit-
ish Columbia, Alberta, Saskatchewan, Ontario, North
Dakota and Minnesota. In fact, the majority of those
who enter Business Colleges in Manitoba enroll at the
Success College. Because of the better personal, edu-
cational, and business qualifications of our graduates,
our Employment Department is now directly supply-
ing more than 1,500 local firms with office help.
w.
New
Term
Opens
Monday
Jan. 3rd
If you cannot
enroll on the
♦
openmg date
you may enter
at any time.
Qur system
of personal
instruction
makes it
possihle to
start riglit
at the beginning
of each
subject «.
We Welcome
Ifisitors
Accredited by
co TVPFn/J. —r'fí\ nEFAHT'AffíVT — 7'Hr rAJtr.£*?T/.VCASfADA v THAN SOO &AYSCHOOL STVOEHlS./.VACTOAL ATTEfJDAUCE. ASSET'JSLSÆ CK TME COííEGE : -
SÍNIOP. TfPEVJFJTiNVDErAr-TrlENT THEZAFíESTIN LANABA , AUSTTORHJSÍ FOR A1EC7VXE 2EUVEREO SY EDWAAD FZfW.AU OFFrCIAL OF THB GREA7KCK7HEXM RAJLWAYl
BCCKKEEPUJS &- ACCOUKTltJG DSPARTJ-lBUT *=-
~*EKGtISH DrPARJHlNT ="
r---?one OF OUR EtGHT SHOKTHAND ROOHSc r~‘COMÞTOn£TER SrHACHíNE CAICULAT1N3 DEPARTJTf/iTc 'SPEED DtCTATtON, SHOR.THAHD DBPAR.THENTÍ
Day and
Evening *
Classes
COR. PORTAGE AVE. AND EDMONTON ST.
North Side Portage Ave.
Midway Between Eaton’s Store and Hudson’s Bay Store
Phone
25 843
or
25 844
C. ANGUS, C.A.,
Principal
Enroll
Early
Our office will
be open every
day between
Christmas and
New Year’s
Day.
Make your
arrangements
early, so as to
start your course
on Jan. 3rd.
Office Hours:
During Holiday
Week:
Days—
9 a.m. to 6 p.m.
Evenings—
7.30 o’clock
to 10 o’dock
Call for
an
Interview
Accredited by