Lögberg - 10.03.1927, Síða 7

Lögberg - 10.03.1927, Síða 7
LÖGBEBG, FIMTUDAGINN 10. MARZ 1927. Bls. 7 Yfir sextugt og ennmeð fullum kröftum. Kona í Alberta, sem hefir mikið álit á Dodd’s Kidney Pills. Mrs. M. Griffin hefir losnað við afleiðingarnar af influenzu. Lake 'J'helma, Alta, 7. marz — (einkaskeyti)— Þetta eftirtektaverða vottorð er frá Mrs. M. Griffin, sem er vel- metin kona í Lake Thelma, Alta. Hún sgir:' “Haustið 1918 varð eg veik og var veik þangað til í jan- úar 1919. Þegar mér fór að batna hafði eg óttalegan bakverk, svo eg gat ekki staðið upprétt. Eg gat ekki gengið nema með kvölum. Eg reyndi alla hluti. Eg las um Dodd’s Kidney Pills og keypti þrjár öskj- ur. Þegar eg var búin úr tveimur öskjum var eg orðin svo góð, að eg gat hlaupið þvert yfir strætið. Eg vildi ekki án þeirra vera. Þær eru verðar þyngdar sinnar í gulli. Eg er 63 ára gömul, en get nú vel hlaupið eins og ung stúlka.” Þetta ágætis meðal — Dodd’s Kidney Pills — fæst hjá öllum lyfsölum og hjá The Dodd’s Med- icine iCo., Ltd., Toronto (2), Ont. Mœðradagurinn. "Grétu börnin mikið?” Þetta var spurning ,sem eg minn- ist að heyra oft, er eg var að alast upp, viðvikjandi fermingarbörnum. Svarið var oftast í já-kvæðis-átt- ina, en væri eitthvert barnið undan- skilið — grét ekki — þótti slíkt býsn. Aumkunarvert að minsta kosti. Eg var ein af þeim fáu, sem ekki grét við þá athöfn. Það og margt fleira er mér í férsku minni, frá þeim degi,—og dögunum á undan. Eitt af því er það, að þegar prest- urinn lagði hendina á höfuð mér, eftir að hafa tekiö eiðinn, eru um- mælin, er kirkjan leggur honum í munn og voru því töluð til mín, sem annara undir sömu kringumstæð- um. Þau eru þessi: ‘Vertu trúr alt til dauðans”— Eg veit að allir eru að einhverju leyti eiðrofar, vilji Guð ganga í dóm við þá, og þvi einnig eg, en hvort það er af ásettu ráði eða ekki gerir allan mun. Eg er samt stórefins í, að á allri liðinni æfi minni, hafi þessi setn- ing gert mér harðari kosti, heldur en þegar um það tefldi, að skrifa um mæðradaginn. Að láta sannfæringu sína hinkra við fyrir sársauka þeirra er unna manni, getur verið skvlda, en að láta hana lúta fyrir þeim, sem hærra eru settir í mannfélaginu, af ótta við þau stig, er aumngjaskap- ur, sem eg á erfitt með að vor- kenna. En upp yfir þessi vegamót verða menn iðulega að hefjast, og þar sem þau eru oft klettar með klaka á, er gott þeim hafi verið í hjaAa lögð orðin. “Vertu trúr.” f trúnni á þessa einu setningu, skrif- aði eg um þetta mál. í trúnni á þessa setningu hefi eg ákveðið og fundið þegar eg hefi litið á það frá eins mörgum hliðum og mér er gefið að líta á það frá, að sé eg að /ara með öfgar einar, dettur mál mitt út af máttlaust, dautt, engum til lýta nema mér ''sé vit í því, verð- ur einhver mér færari, til að koma auga á það, áður mjög margir ára- tugir renna, eða eftir. Ef ekki verður siðurinn þessi og sánkti Kláusar dýrkunin hrynjandi stein- ar í varnarmúr hins brezka veldis, sem inn um streymir á sínum tíma æðisgenginn öldugangur lífsins. Ástæður fyrir því að svo langt líður á milli þess að eg minnist á þetta hér, eru fyrst: að það er ekki dagleg atvinna mín að skrifa, önn- ur, að eg hefi verið að skrifa um þessi mál, mæðradaginn og Sankti Klúus, á ensku. Kann lang best við að gera tilraun til að þeir skilji mig sem eg á tal við. En ekki hefir nú tekist að fá áheyrn þar, þvi tvö blöð, sem eg sendi greinina til, hafa hvörugt viljað birta hana. Annað blaðið hafði þó áður tekið af mér nokkra greinar, umyrða og athugasemdalaust. Fyrir Veikar og Slitnar Taugar og Þróttlitil Líffærli. . Nuga-Tone er meðal, sem lækn- írinn ráðleggur oft og hefir verið S. *e?ningi vel kunnugt í 40 ár. Það hefir veitt búsudum karla og kvenna heilsu, fjör og lengri líf- daga, sem voru slitin orðin og taugaveikluð. Það gerir blóðið heilbrigt, taugarnar styrkar og sömuleiðis hjartað og nýrun og önnur helstu líffærin. ’Miss Bessie Tmell, Tyle River, Va., tóik bara inn úr einni flösku af Nuga-Tone. Hún segir: “Það hefir gert mér meira gott heldur en öll önnur meðöl, sem eg hefi reynt. Eg er hraustari, og taug- arnar og hjartað er í miklu betra lagi og eg sef vel á nóttunni.” — Nuga-Tone verður að reynast þér jafn vel, eða bað kostar þig ekk- ert. Fáðu flösku í dag. Það er al- gerlega á vora ábyrgð; en vertu viss um að fá Nuga-Tone. Eftir- líking getur verið'ónýt. HJitt skil eg vel að Englendingar eru merktir því mannlega marki, sem við öll hin erum merkt, að þeir vilja heldur siða aðra, en vera af öðrum siðaðir. Minnist eg þess m. a. að merkur enskur máður neitaði að koma til veizlu þeirrar er Fálkunum var haldin, við beimkomuna úr “Hockey”-leika sigurför sinni, af því þeir léku á sunnudag. Mér fanst eg skilja hann og eg óskaði þess í hjarta mínu áð þeir hefðu ekki gert það. Samt hefi eg fundið piltunum ýmislegt til afsökunar, hvort það er gilt, er annað mál. Fyrst höfðu þeir allir boðið fram líf og limi til Evrópuferðar áður, undir sama flaggi. Þá, samkvæmt því sém hérlend fréttablöð sögðu frá, voru menn kallaðir til víga Drottins dag sem aðra daga, á með- an á striðinu stóð. og hafa þessir menn engan veginn verið þar und- anskildir. Vera má þeim hafi ekki fundist sterkt bragð að því, að taka þátt i leikjum á sunnudegi, eftir slika reynslu. í þriðja lagi er senni- legt að þeir hafi átt jafnlítil ráð á, hvaða dag var leikið, eins og hvaða dag var ibarist og hefðu þeir gert uppreist fnóti ráðum heimalands- ins (sem leikjum réði) myndu skoð- anir hafa orðið skiftar um fram- komu þeirfa. Þeir breyttu ekki nafni á Drott ins deginum, heldur gerðu, og eg 'vona, hugsuðu eins og margur nýt- ur maður, er þörfin eða kringum- stæður knýja til að nota daginn til vinnu: “Þetta verður að gerast, en mér þykir slæmt að þurfa að gera það í dag.” Þá vil eg gera tilraun til að hrinda þeirri hugmynd að eg hafi ritað nokkuð það, er gæti verið vanvirðandi fyrir konur. Þó Guð hafi skapað konuna móður, eru til lög, sem hún lýtur, þörf og óþörf á undan móðureðli hennar. Fyrir norðan Betlehem er gröf Rakelar, þar sem hún andaðist við fæðingu yngsta sonar síns. Slíkar grafir eru svo margar frá öllum öldum, að enginn maður megnar að telja. Fyrir framan mig á borðinu er útdráttur úr skýrslu og áliti hátt- setts læknis og vísindamanns í New York, þar sem hann segir að mæð- ur mannkynsins verði skammlifari en aðrir meðlimir þess, t. d. ógiftar konur, eða kvæntir menn. Það er ályktun hans og þeirra er þetta skráðu að, slitið á konum, sem fylgir barneignum, barnaupp- eldi og heimilishaldi orsaki þetta. Þetta er það sem allar konur, vit- andi og óafvitandi hræðast, þar til þeim þykir nógu vænt um ein- hvern til þess að sú tilfinning bíði lægra hlut. Við þetta átti eg. Til er annar ótti, sem móðureðl- ið eða móðurástin verður að lúta fyrir. Það er meðfædd siðferðis- tilfinning, sem aðskilur sálugæddu veruna frá dýrunum. Það er ekki á þessum vorum hnetti, talin heppi- leg kona mannfélaginu, þaðan af síður gæfusöm, sem lætur móður- eðli sitt ráða fyrst. Rati hún á glap- stigu, mun það oftar vera ástin á manninum, sem leiðir hana, fremur en ójarðborinni veru. Þá er enn eftir hin jarðbundn- asta eða aumkunarverðasta hliðin, sém þessi mannlega vera, sem aðrir gugnar fyrir, óheilla lögin, sem hún lýtur. Glögt merki þess var atriði, sem Lögberg sagði frá fyrir nokkru síðan. Sem kunnugt er, er Sáluhjálpar- herinn eitt af hinum fórnfúsustu líknarfélögum heimsins. Blaðið sagði frá því, að Sáluhjálparher- inn hefði fengið landslögum breytt svo að skilriki þyyftu ekki að gef- ast rikinu af óskilgetnum börnum, er fæddust undir vernd þessa fé- lagsskapar. Þú. sem þykjst elska móðurina nóg til þess að krjúpa við fótskör hennar á Drottins daginn, ekki ein- ungis með hluttekning og þakk- læti, hvorutveggja gat verið rétt- mætt hefðirðu ekki kropíð. — Áttu hvorki sál né hjarta til þess að finna til með ósjálfbjarga barni, sem fætt er í ánauð svívirðingar- innar og bæði faðir og móðir skríða með bleyðihug í felur fyrir? En sjá máttu jkt, að móðurástin, svo dýrðleg og.Guði skyld sem hún er í algleymingi sínum, á hér mann- lega hlið. — Getur algerlega brugð- ist. Hún þorir ekki að koma fram i dagsljósið, barni sínu til verndar. Hún verður að lúta fyrir hræðsl- unni við heiminn — skugganum af eigin syndum. _ y Hvernig vogum ver oss í hasæti ^að sveif mynd fyrir huga minn, ?ar eg las þessa lagafrem: — 'kja full af messufólki. Prestur- fyrir altari reiðubúinn að ssa. >á kemur hundur inn á kirkju- fið og spýr þar. Óhug slær yfir l og fát kemur á djákna. Hann þýtur upp, hart og títt, þrífur glit- ofið söðulklæði prestkonunnar og breiðir yfir. Rakkinn flýtir sér út og djákn- inn í sætið, én kirkjugólfið fúnar undan óþverranum. En af því kirkjan er bygð á bjargi. stendur hún, svo nýtt gólf er síðan látið í hana. Látum móðurástina sitja efst mannlegrar ástar, samt eru til fleiri tegundir, sem alí-erfítt er að ganga fram hjá. iHver reiknar sorg smábarna er standa yfir gröf elskaðrar móður? Eg veit bæði um pilt og stúlku, bæði vel gefin, sem alla æfi sína hafa þjónað foreldrum sínum. Svo eru mörg börn; sum yfir sjúkra- beði móður eða föður öll beztu ár æfinnar. Þegar þakka skal mann- lega ást er tæpast sanngjarnt að ganga fram hjá sliku. Kona í Bandaríkjunum festi fót sinn í 'brautarspori og gat ekki los- að. Maður hennar kom, en gat ekki losað hana heldur. Lestin var rétt komin. Hann lagði hendina yfir um konu sána og segir: “Eg skal deyja með þér.” Lestin fór yfir þau bæði. Kærleika Bergþóru er viðbrugð- ið og að maklegleikum. Svo mikið er og hefir verið til af Bergþórum að aldrei verða taldar. í Það var bróðir, sem kvað þetta eftir systur sína: “Mér finst eg vera að syngja mitt síðasta ljóð og sálar minnar brunnar vera að þorna.” Og: “Eg vildi að eg gæti fléttað þér fagran minniskranz, en fyrir augun skyggja heitu tárin, vertu sæl mín systir. í faðmi fann- klædds lands þú frið nú átt við minninguna — og sárin.” Fyrir skömmu misti unglings- stúlka ungan bróður sinn, sem hún hafði verið mikið með og fyrst á eftir var óttast um hún tapaði sér alveg. • Á föðurást mintist eg í fyrra í grein minni um þetta mál og eg vil bæta því við, aQ eg veit ekki af neinum, sem túlkaði betur harm minn, stæði eg yfir deyandi barni' mínu, heldur en þættir úr eftir- mælum Stepháns G. Stephánssonar eftir drenginn sinn, sem kaflar voru þá tilfærðir úr líka. Hitt er satt að margt annað gæti gefið manni meiri kraft til að gróa aftur, svo sem: “Hann heyrir sínum himni frá, hvert hjartaslag þitt jörðu á,” o. fl. Víst hefir Egill fundið til yfir moldum Bövars son- ar síns, er af honum spruttu fötin Heiðinn maður, vikingur, vóg mann sjö ára. Og víst hefir Kjartan unnað Bolla er hann vildi eigi bera vopn á hann, er hann átti líf sitt að verja. Svona má lengi telja fyr og síð- ar. Ekkert af þessu er hér talið til að rýra gildi sannrar móðurástar né telja alla fullkomna, er heyra undir þau bönd er hér eru nefnd, ekki einu sinni til þess að telja þá fullkomna sem hér er bent á að bezt hafi gert. Síður en svo; heldur til að ibenda á, að allur kærleikur virðist vera frá Guði kominn, líka það, að hversu göfugar sem manns- sálirnar kunna að vera, kemur hið ófullkomna, mannlega altaf í ljós líka, í mismunandi stórum mynd- um. Og er víst að helguðu menn einn Drottins dag hverjum þætti kærleikans, sem opinberast hefir þannig manna á meðal, móðurast, föðurást, barnsást, eiginkvenna og eiginmanna, systkina, frænda og vina, þá yrðu Drottinsdagarnir ei fáir þegar við værum búin; og þeg- ar veizlugleðin með öllu því, sem hún getur dregið í kjölfari, væri um garð gengin, gæti skeð að verulegir syrgjendur hefðu fremur ófull- nægjandi endurminningar frá þeim dögum líka. Það er til stutt svar við þessu. Við megum það ekki. Það er til löng reynsla, sem sannar oss að Drottinlegar skipanir eiga og verða að aktast. Að það er engum hörmulegra en þeim, sem einhverra hluta vegna, verða að kallast smælingjar, þegar þessi boð eru brotin. Það eru þeir sem fyrst og síðast liða mest, þeg- ar mennirnir stíga eða vilja stíga upp fyrir þessi lög, taka þau í sín- ar hendur og fara með þau eftir vild. Konan ætti í allri alvöru að at- huga þetta mál, í stað þess að taka við öllu því tveim höndum, sem maðurinn vill rétta henni, hvort það kemur í bága við 'boð Guðs eða ekki. • Erum við í rauninni ekki komn- ar hér að sögunni af konunni i for arræsinu ? Fyrir hepni og orku manns síns smá hækkaði hún og hagur henn- ar úr kofanum í forarræsinu og vetrarkulda og allri eymdinni og baslinu, sem því fylgdi upp i stór- hýsi og stór störf. Hún var aldrei ánægð og heimtaði altaf meiri völd, þar til loks að hún var orðin páfi. Þá var það einn morgun að hún sá sólina koma upp; varð hún þá æf yfir þvi að eiga ekki ráð á sólar- Slys ÞAR _sem um er að ræða skurði, mar, tognun, bruna eða sár, þá er Zam-Buk þægilegast og bezta með- alið til að græða alt slíkt. Það er frá mjög'heilnæm- um jurtasafa að Zam-Buk fær sinn kraft til að draga úr verkjum og bólgu og hindra áhrif gerlanna, og til að fegra húðina. Zam-Buk er ágætt við saxa í höndum og frost- bólgu. Kauptu öskju í dag. uppkomunni. Hún kvaðst ekki verða ánægð nema hún yrði eins og Guð almáttugur, svo hún gæti ráð- ið sólinni eftir vild. Hún hrapaði í forarræsið sitt aftur. Það er timi til. fyrir konu sem karl, að vara sig, þegar hún (sem hann) er komin upp á afar hátt fjall og er þaðan sér vel “öll ríki veraldar og þeirra dýrð.” “Margur hefir lotið andskotan- um fyrir minna,” segir Jón Vida- lin, er hann leggur út af: “Freist- ing Jesú á eyðimörkinni.” Það þarf fæstum okkar að sýna öll ríki veraldar og þeirra dýrð. “Eitt litið hom er oftast nóg,” sagði séra Halldór Jónsson einu sinni hér, um sama mál. Hvað mikið að konan og þeir, sem hafa vgrið henni alvarlega vin- veittir, hafa lagt í sölumar fyrir það mál að hún yrði rn^tin sem sálu gædd vera, er hefði þaðan af leiðandi jafnan rétt við hina aðra sálu gæddu veru hér á jörðu, er ekki mögulegt fyrir mig að segja, og eg held að jafnvel þeir eða rétt- ara sagt þœr sem kunnugastar eru ]æim málum,í jafnréttismálunum. geti ekki sagt það. Hve hörmulegt hrun væri það ekki, ef skammsýni hennar léti metnað sinn ráða þegar hún er komin í páfasætið — mann- jafnaðar sætið. Ekki einungis hún myndi sjálf hrapa í forargryfjuna sína aftur, heldur maðurinn og bömin hennar líka. Mannkyninu veitir sannarlega ekki af að halda vel í þær reglur sem Guð hefir gefið því — þær, sem þvi hefir opinberast svo ljóst, að enginn ágreiningur getur verið um gildi þeirra, og allur heimurinn sem nokkra njósn hefir af guðlegri opinberun, heldur i gildi, og sér að er lifsnauðsyn að standi i gildi. Minningar og hluttekningar guðs- þjónustur hafa menn látið sér duga í sorgartilfellum. Þar þarf engar nafnabreytingar á deginum, þar eiga allir eftirlifandi syrgjend- um óskilið mál eða skilið eftir þvi, sem meðfaranda þykir við eiga. En hjá oss beygjast sporin í vora átt og iber því með sér að meiri rétt- indi em tekin en vera skyldi. Þá er þetta aðeins upphafið. Bæði konan, sem skrifíýði á móti grein minni og séra W. J. E. hafa látið getið um samkomur og veislu- höld i sambandi við daginn, svo eru fleiri. Veizluhöld eru góð í sinni röð og eg veit og vona að sá sé margur er vill halda henni móðyur sinni veizlu. En þau em ekki guðsdýrk- un. Og þegar Drottinsdagurinn er orðinn veizludagur fyrir hálft mannkynið, hefi eg enga trú á, að hann verði sá verndardagur hinna ánauðugu, sem hann nú er og hefir verið, og á að vera. Engillinn sagði við Jóhannes er hann féll fram fyr- ir honum: “Varastu þetta, eg er samþjónn þinn og bræðra þinna, sem hafa vitnisburðinn um Jesú. Tillbið þú Ouð.” Þetta stendur við æðsta boðorðið og endurtekning Jesú Krists á því í sigri freistingarinnnar: Drottinn Guð þinn skaltu tilbiðja og þjóna honum einum.”— Rannveig K. G. Sigbjörnsson. Lýstu gegnum langnættið láttu öllu hlýna; 'ætíð glæðist vonin við vinarkveð»ju þína. Vefðu börnin veik og smá vinarörmum þínum; finni ellin yndi frá æskujólum sínum. Beri þessi blessuð jól bæði yl og forða.— þeim sem eiga ekkert skjól eða neitt að borða. Lúðvík Kristjánsson. Farmer’s Packing félagið. tapar máli á hendur Mr. F. Kuxhousc. Mál þetta reis út af því, að Farmers Packing félagið gerði rétt- arkröfu til þess að verjandinn Mr. Kuxhouse, skyldi dæmdur til að greiða því $750, er hann hafði á- byrgst með eignhandar víxli. er til þess skyldi varið að greiða að fullu hluti í téðu félagi. Úrslitin urðu þau, að McDonald dómari, dæmdi félaginu að greiða verjanda 260 dali, er hann hafði í það lagt. Félagið var ekki starfandi um þær mundir er téð hlutakaup voru gerð, og hafði því verið haldið fram, að gefnar hefðu verið út ósannar og villandi skýrslur um fjárhagslegt ástand þess. Mr. Kuxhouse komst á snoðir um þetta og reyndi að fá samning sinn við félagið numinn úr gildi. I forsendum sínum fyrir dómin- um benti dómari á, að þrátt fyrir það að verjandi hefði engin hluta- bréf fengið, né heldur tilkynningu um að félagið hefði fallist á um- sókn hans, hefði það þó komið i Ijós við yfirheyrzluna, að félagið* hafði sett tíu hluti í hans nafn. Kvað hann verjanda ekki mundu Tafa getað hjá því komist, að nafn hans hefði sett verið á lista þeirra, er í fyrirtækið lögðu, í sambandi við ógreitt hlutafé. ef maður sá. er hagsmuna félagsins skyldi gæta, hefði fylgt venjulegum reglum og reynt að sanna að verjandi hefði verið formlegur hluthafi í félag- inu um þær mundir, er gefin var út um að fyrirksipun, að fullnaðar- ráðstafanir viðvikjandi hag félags- ins skyldu gerðar. — i Sækjendur málsins lögðu á það 1 megin áherzluna að fá það staðfest í eitt skifti fyrir öll hverjir teljasí skyldu löglegir hluthafar eða fjár- stuðningsmenn fyrirtækisins. Mál- svari þeirra gerði enga tilraun til málshöfðunar gegn verjanda í þeim tilgangi að fá hann viðurkendan sem hluthafa, er eigi hefði greitt til fullnustu hlutafé sitt, eða til að koma nafni hans á lista tillags- manna, heldur fékk aðeins leyfi til að málið í heild skyldi rannsakað i rétti. Sækjandi málsins kvað verjanda byggja vöm sína á því, að um vill- andi og falskar upplýsingar hefði verð að ræða, að hann hefði verið flæktur inn á samning og gefið um- iboðsmanni félagsins víxil, er gilda skyldi sem trygging fyrir afborgun á hlutafé. Neitaði hann því harð- lega, að gerðar hefðu verið til þess nokkrar tilraunir að villa verjanda sýn. eða lokka hann undir fölsku yfirskyni til hlutafjár kaupa. “í vorum augum, leikur á því Þeir Eru Hérna! j - V ÉR höfum fullkomnar byrgðir af NORTHERN togleðurs yfirskóm, handa öllum: karlmönnum, kvenfólki og börnum. Komið inn með fjölskylduna.. Látið oss selja yður bægilegan, hlýjan, vatnsheldan skó- fatnað, sem ávalt verndar fæturna gegn bleytu og fyrirbyggir kvef og aðra slíka kvilla. Lítið inn og yður munu falla byrgðirnar í geð. Til sölu hjá eftirfylgjandi kaupmönnum: Arborg Farmers’ Co-op Ass’n T. J. Gíslason, Brown. Jonas Anderson, Cypress River Lakeside Trading Co., Gimli. T. J. Clemens, Ashern. S M. Sigurdson, Arborg S. Einarson, Lundar F. E. Snidal, Steep Rock S. D. B. Stephenson .Eriksdale. Illllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllll ^511111111111111111111111111111111i!1111111111M1111111111111lli!111111!111111111i1111! 1111111111111111 li£ 1 D.D.Wood&Sons j | selja allar beztu tegundir KOLA E tuttugu og sex ár höfum vér selt og flutt heim til E almennings beztu tegundir eldsneytis, fró voruYard | Homi Rcss Avenue og Arlington Strœtis | E Pantið^frá oss til reynslu nú þegar. E Phone 87 308 E 3 símalínur E ^iniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii'iiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiÍÉ :*lllllllllllllllllll!llllllllllll!lllllilllllllllll!llllllllllllllllllllllllllUlllllllllllllllllllllll!s (KOUKOL! KOL! j I ROSEDALE KOPPERS AMERICAN SOUR I I = DRUMHELLER COKE HARD LUM P i Thos. Jackson & Snns COAL—COKE—WOOD 370 Colony Street Eigið Talsímakerfi: 37 021 1 POCA STEAM SOUNDERS ALLSKONAR 1 | LUMP CQAL CREEK VIDUR | TiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiE enginn minsti vafi.” sagði dómari, “að umboðsmenn sækjanda, sjálf- um sér fullmeðvitandi, létu verj- anda í té falskar og sviksamlegar upplýsingar, er til þess leiddu, að hann greiddi $260, sem afborgun af hlutum í téðu félagi. Hjálpið þeim sem yður hjálpa ♦♦♦ Jóla-ósk. Snöggvast vikni veturinn, við að blessuð jólin gægist inn um gluggann þinn glatt sem júní sólin Það var okkur alla tið öllum hjartakæra'st, ljósið sem í húmi og hríð hefir blikað skærast. ÞETTA ER PERSÓNULEGT ÁVARP TIL ÞESS MINNIHLUTA BÆND- ANNA, SEM ENN EKKI TILHEYRA HVEITISAMLAGINU. vert bushel hveitis, sem Hveitisamlagið selur, hálpar til þess að gera verðið stöðugra, sem er hagur allra bænda í Vestur-Canada, sem hveiti hafa að selja. H t T T T T T ♦;♦ t T T ♦;♦ t T T T T T T ± T T x f T f T f T T T T f T f T f T T f T ♦;♦ ♦^♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦'‘^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^ Hvert bushel hveitis, sem óvinum Hveitisamlags- ins er fengið í hendur, getur verið notað til að lækka verðið sem bændurnir fá. Hveitisamlagið hjálpar yður þó þér tilheyrið því ekki. Mundi yður ekki liða betur í félagsskap við þá, sem eru vinir yðar og hafa bundist samtökum til að hjálpa yður, heldur en hina, sem hafa það eitt við bændur að gera, að ná í peninga þeirra. Gerið samninga við Hveitisamlagið um næstu upp- skeru. Yður líður bctur. Þér gcrið betur og þér lifið bctur. > Manitoba, Wheat Pool Winnipeg, Man. Saskatchewan, Alberta Wheat Pool Wheat Pool Regina, Sask. Calgary, Alta T T T T T f f T T X f T T T X t x X T X x T X x x f T x T T X x T f x x T T T f ♦♦♦

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.