Lögberg - 12.05.1927, Blaðsíða 2

Lögberg - 12.05.1927, Blaðsíða 2
fils. 2 LöGBERG, FIMTUDAGINN 12. MAÍ 1927. r SH5a52SH52SSSESZ5SS2SHSaSZ5aSHSESHSHSHSÍSHS2SH5HS2SH52SE5c!SaSHS2SaSSS2SHS2SHS25ESH52Sa5BSaSH5a5H52Sa5HSasaS2SHSH5HSH5aSHS2Sa52SHSH5H5H5aSS5SSHSHSESH5HSH5E52S;Z5aK,Tc Sérstök deild í blaðinu SOLSKIN SH5HSH5H5?c-; StStSesaSHSaSHSHSESHSHSHSE5HSESH5E5H5HSHSH5H5H5H5HSaSESH5HSHS?SHSH5SHSH5HSH5ESHSH5HSH5HSH5HSH5HSH5HSHSHSHSHSH5H5H5H5H5ESHSH5ESHSHSESHSH5H5HSHSHSHSH SHSHSHSHSHSHSi TEPOTTURINN. Stgr. Th. þýddi. Það var einu sinni stoltur tepottur. Hann var stoltur af postulíninu, sem í honum var, stoltur af túðunni sinni löngu, stoltur af hand- arhaldinu breiða; hann hafði nokkuð til síns á- gætis, bæði í bak og fyrir og um það talaði hann, en ekki talaði hann um lokið á sér, það var bsotið, það var spengt saman; hann hafði ágalla og um galla sín talar maður sjálfur ó- gjarnan; aðrir munu víst gera það óspart. Bollarnir rjómakannan, og sykurskálin og öll teáhöldin mundu víst betur muna eftir breysk- leika loksins og fremur minnast hans en hand- arhaldsins góða 0g túðunnar ágætu; það vi&si tepotturinn. “Eg þekki þau,” sagði tepotturinn við sjálfan sig, “eg þekki líka ágalla minn og kann- ast við hann, og af því má bezt marka auðmýkt mína og yfirlætisleysi; allir höfum við ágalla, en svo hefir maður líka sína hæfiileika. Boll- arnir hafa handarhald og sykurskálin lok, eg fékk nú hvorttveggja, 0g eitt umfram, sem þau fá aldrei, eg fekk túðu, hún gerir mig að drotn- ingu teborðsins. Sykurskálinni og rjómakönn- unni hlotnaðist að vera þjónandi þemur ljúf- fengisins, en eg er veitandi og yfirráðandi, og breiði út blessun meðal hins þyrstandi mann- kyns. Innan í mér seyðast hin kínversku lauf í sjóðandi, bragðlausu vatninu!” Alt þetta sagði tepotturinn í sinni fjörugu æsku. Hann stóð á dúkuðu borðinu, hann var tekinn upp af fínustu hendi, en þessi fínasta hönd var klaufaleg í meira lagi, tepotturinn datt niður, túðan brotnaði af, handarhaldið br>otnaði af, lokið er ekki umtalsvert, það er nóg talað um það áður. Tepotturinn lá á gólf- inu í yfirliði og valt úr honum vatnið sjóðandi. Það var ljóta áfallið og verst, að aUir hlógu að honum, en ekki að hendinni, sem var svo klaufa- leg, að missa hann niður. “Þá endurminningu losna eg aldrei við,” sagði tepotturinn, þegar hann seinna meir sagði sjáifum sér æfi sína. “Eg var kallaður aflóga garmur og settur út í horn og daginn eftir var eg gefinn konu, sem var að sníkja sér út flot. Eg lenti í fátækt 0g stóð þarna mátt- laus og hjálparlaus, en sem eg stóð þama þannig til reika, þá byrjaði mit betra líf. Eitt e r maður og annað v e r ð u r maður. Það var látin í mold, og það er nú fyrir tepott sama sem að verða jarðsettur; en í moldina var settur niður blómlaukur, hver hann setti eða hver það var, sem gaf mér hann, það veit eg ekki, en nokkuð er það, að gefinn var mér hann, svo sem uppbót fyrir kínversku blöðin, uppbót fyr- ir brotna handarhaldið og túðuna. Og laukur- inn lá í moldinni, laukurinn lá í mér, hann varð hjartað í mér, nýtt lifandi hjarta; slíkt hafði eg aldrei haft áður. Það var líf í mér, þróttur 0g fjörmagn; lífæðin sló. Laukurinn skaut frjó- öngum; það var eins og hann sprengdist af hugsunum og tilfinningum; þær bmtust út og urðu að blómstri; eg sá það, eg bar það, eg gleymdi mér í fegurð þess: Signuð sæla, að gleyma sjálfum sér í öðrum. Það þakkaði mér ekki fyrir, það hugsaði ekki um mig; menn dáðust að því og dásömuðu það. Eg stór- gladdist af því, hversu mjög hefir það þá sjálft hlotið að gleðjast. Einn dag heyrði eg sagt, að það verðskuldaði að vera í betra potti. Eg var sundpr brotinn í miðju og kendi afskap- lega til, en blómið komst í betri pott, og mér var grýtt út í húsgarð þar ligg eg nú sem ann- ar leirbrotsgarmur, en endurminninguna hefi eg; hana getur enginn frá mér tekið. — Sdbl. GLEÐILEGT SUMAR! Það var einu sinni maður, sem gekk daglega hraustur 0g ánægður til vinnu sinnar. Einn dag kom kunningjum hans saman um að leika á hann, og þeir komu til hans hver á fætur öðr- um og spurðu hann, hvort honum liði ekki vel, hvað gengi að honum, hvers vegna hann væri svona aumingjalegur, og svo fram eftir götun- um. Áður en dagurinn var liðinn, var mann- inum farið að líða svo illa, að hann varð að hætta vinnunni og fór heim að hátta. Með samskonar móti er oft verið að reyna að draga kjark úr kristnum mönnum nú á tím- um. Hvað eftir annað er verið að spyrja: Gjörir kirkjan anna^s nokkuð gagn? Er nokk- urt gagn í kristindóminum ? Er trúarlífinu ekki að hnigna? Er mönnum nokkur alvara með þetta kirkjumála-brask? Væri ekki alveg eins gott að hætta alveg við það? Spumingar eins og þessar verða oft til þess að vekja efa og draga úr áhuga. En það er vel hægt að svara þeim. Því aldr- ei í sögu kirkjunnar hefir verið starfað af eins miklu kappi og nú að eflingu og útbreiðslu fagnaðareorindisins. Aldrei hefir líknarstarf kristninnar borið eins stórkostega ávexti og nú á tímum. Aldrei áður hafa eins margir keypt og lesið biblíuna 0g nú. Aldrei hefir verið hugsað og talað um trúmál af meiri alvöru en nú. Þess vegna þarf enginn að láta hugfallast að telja sér trú um, að guðs ríki meðal mann- anna sé að hnigna. Satt er það reyndar, að margt er eftir ógjört og margt ófullkomið; jen hinsvegar er nú hjá svo mörgum ljós skilning- ur á kölluninni kristilegu og fúsleikur til að leggja rram krafta sína , að það er stórkostlegt fagnaðarefni. Sumarið er að byrja og alt að lifna við aft- ur í ríki náttúmnnar eftir vetrardvalarji. Lát- um alla þá dýrð guðs, sem sumarið opinberar, og alla þá blessun, sem það flytur, vekja og glæða hjá oss bjartar og djarfar vonir. Rek- um allar hugleysis og dáðleysis hugsanir á dyr, og munum eftir því, að vér berjumst undir merkjum þess konungs, sem ekki getur beðið ósigur. Látum frjósemi sumarsins minna oss á, að alt gott, sem gjört er í drottins nafni, ber á- vöxt til blessunar. Setjum oss á árstímamót- unum að láta þetta sumar ekki verða ávaxtar- laust fyrir vort eigið andlega líf; tækifærin eru mörg í kirkju, sunnudagsskóla og heimilislífi. Og setjum oss að flytja sem meata heimiUs- gleði inn í líf þeirra, sem með oss lifa. Við það glæðist starfsglöð trú. Þá verður sumarið oss bjart og blessað. AUKA-DAGUR. “Húrra!” — æpti Tommi og kom á hend- ings-kasti inn í leikstofuna til stystkina sinna — “það er heill auka-dagur nú í ár, og hann er á morgun.” “Hvað áttu við, Tofnmi?” — spurði Sigga stein-hissa, og flýtti sér að bjarga brúðunum sínum, til þess að Tommi skyldi ekki stíga ofan á þær ósköpunum. Nonni og Stína flýttu sér að komast niður- úr legubekknum. “Hvað er auka-dagur? Hvern- ig er hann? — spurðu þau með mestu ákefð. “Vitið þið ekki, að það er hlaupár?” sagði Tommi með miklum spekingssvip—, “og það eru 29 dagar í febrúar þeir voru ekki nema 28 í fyrra. Lítið þið á.” Systkinin fóru öll að athuga þetta fyrir- brigði á almanakinu, sem hékk á veggnum. “En hvað það er gaman!”— sagði Sigga. “Við ættum endilega að halda upp á þennan merkilega dag.” “Eg sting upp á, að við höfum picnic” — sagði Stína. “En sú vitleysa”—sagði Nonni; — upicnic um hávetur! Við skulum heldur reynna að hafa ‘turkey” í miðdegisverð.” “Nei, heyrið þið,” — sagði Sigga, — “við skulum heldur reyna að gera eitthvað fallegt fyrir einhvern, — það fallegasta, sem okur getur dottið í hug.” “Látum svo vera” — sagði Tommi, heldur dræmt. “Eg ætla þá engri hurð að skella allan daginn. Fólkinu kemur það líklega eins vel og nokkuð annað.” “Og eg ætla ekki að þræta við neinn” — sagði Nonni, og þóktist gjöra vel. •“Og eg ætla ekki að stríða henni Siggu”— sagði fjörkálfurinn hún Stína litla. “0g eg ætla ekki að meina öðrum að leika sér að því, sem eg á” — sagði Sigga, og leit með hálfgerðum áhyggjusvip þangað sem brúð- urnar hénnar voru; því henni var mjög sárt um þær, og yngri systkinin voru ekki alt af sem mjúkhentust. “En þetta er alt saman eitt- hvað, sem við ætlum ekki að gjöra; við skulum réyna að finna eitthvað sem við ætlurn að gera. — Þey, þarna kemur mamma.” Morguninnn eftir voru þau öll komin ó- venjulega snemma á fætur, því þeim fanst al- veg ófært, að láta nokkuð af þessum merkilega “auka-degi” fara til ónýtis. Og óðar en þau voru komin í fötin, fóru óvenjulegir hlutir að gerast þar á heimilinu. Það var laugardagur. Og þegar mamma ætlaði að fara að kveikja upp eld til að baka, var eldiviðar-ksasinn fullur af góðum þurrum eldivið, án þess að hún hefði nefnt það við nokkurn. Hana hafði ekkert grunað, af því að Tommi hafði ekki skelt kjallarahurðinni, þeg- ar hann fór niður til að kljúfa Spýtumar. Meðan brauðin vom í bakarofninum, var Sigga á ferðinni með rykþurkuna inni í stofu; — Nonni og Stína þurkuðu rykið af stólum og borðfótum. Þetta var lang-bezti laugardagarinn, sem mamma hafði lengi átt. “Það hlýtur að vera af því, að bömin hafa verið svo dugleg að hjálpa mér” — sagði hún, þegár þau voru að borða kvöldverðinn; og syst- kinin hniptu hvert í annað undir borðinu, og héldu, að enginn tæki eftir því. “Það virðist líka hafa legið svo vel á öllum í- dag; eg hefi ekki heyrt eitt einasta ónota-orð. En að hverju eruð þið að hlæja? Hér hlýtur- að vera eitt- hvert leyndarmál á á ferðum.” Svo sögðu þau henni alla söguna. Og Sigga bætti við með miklum raunasvip: “Eg vildi óská, að við þyrftum ekki að bíða fjögur ár eft- ir næsta auka-degi.” “Hm!” — sagði Tommi, og glotti við —, “við gætum leikið það, að allir laugardagar væru auka-dagar. Mamma myndi líklega ekki éTcki banna okkur það.” — Sam. DOKTOR ALVIS. Stgr. Th. þýddi. ' Einu sinni var fátækur bóndi, Krabbi að nafni. Hann ók til borgar með einn faðm eldi- viðar og hafði tvo uxa fyrir. Brenniviðinn seldi hann doktor nokkram fyrir fáeina dali. Nú hittist svo á, þegar bóndanum voru útborg- aðir peningamir, að doktorinn sat að borðum; sá þá bóndinn, hvað hann hafði gott að borða og drekka, svo honum kom vatn í munn af í- löngun og óskaði hjartanlega með sjálfum sér, að hann væri líka orðinn doktor. Stóð hann .svo stundarkorn, uns hann spurði að lokum, hvort hann gæti ekki líka orðið doktor. “Ja, jú, jú,” svaraði doktorinn. “Það er hægðarleikur. ” “Hvernig á eg að fara að því?” spurði bónd- inn. Hinn svaraði: “Fyrst skaltu kaupa þér stafrófskver, eitt af þeim, sem mynd er í af bæjarhana. Vagn þinn 0g uxana skaltu selja og koma í peninga, kaupa svo góð klæði fyrir og hvað annað, sem doktomm hæfir að hafa. 1 þriðja lagi skaltu láta mála orðin: “Eg er doktor Alvís” á spjald og negla það yfir húsdyrum þínum.” Bóndinn gerði alt eins 0g honum var fyrir sagt. Nú sem hann hafði iðjað nokkra stund í doktorsstandinu, en ekki samt fengist við það til muna, þá bar svo til að peningum var stolið frá stórherra nokkrum. Var honum þá sagt, að í því þorpi byggi doktor Alvís og hlyti hann eflaust að vita, hvað orðið væri af peningun- um. Lét herramaðurinn þá samstundis týgja vagn sinn og ók af stað. Kemur liann í þorpið að doktorshúsinu og spyr hvort hann sé doktor Alvís. Hann kveður svo vera. Herramaður- inn biður hann þá að koma með sér og ná aftur handa sér stolnu peningunum. Hann kvaðst þess allfús. “En hún Manga, konan mín, verður þá að fara með mér.” Herramaðurinn lét sér það vel líka, fékk hjónunum sæti í vagni sínum og óku þau svo öll af stað. Þegar þau voru komin á herragarð- inn, þá var búið að leggja þar á borð ög var doktornum boðið að borða með. “Já,” sagði hann. “En þá verður hún Manga, konan mín, líka að borða með” •j— 0g settist hann með henni að baka til við borðið. Nú kemur fyrsti borðþjónn með ágætisrétt á fati og hnippir þá bóndinn í konu sína og seg- ir: “Þetta er sá fyrsti, Manga mín”. Hann átti við, að þetta væri þjónninn, sem bæri fram fyrsta réttinn. En þjónpinn hélt, að hann segði með þessu: “Þetta er fyrsti þjóf- urinn, og fyrir þá sök, að svo var í raun og vem, þá varð hann skelkaður og sagði, þegar hann kom út, við félaga sína: “Doktorinn veit alt, og við komumst í bölv- un; hann sagði, að eg væri sá fyrsti.” Sá annar vildi alls ekki inn fara, en hann mátti til. Nú þegar hann kom inn með sinn borðrétt, þá hnipti bóndinn í konu sína 0g sagði: “Þetta er sá annar, Manga mín.” Þessi þjónnn varð líka skelkaður og flýtti sér sem mest hann mátti að komast út. Ekki fór betur fyrir þeim þriðja, og sagði bóndinn, er hann kom: “Þetta er nú sá þriðji, Manga mín.” Hinn fjórði varð að bera inn lokað fat 0g sagði herramaðurinn við doktorinn, að nú skyldi hann sýna list sína og geta upp á, hvað undir lokinu væri, en það voru krabbar. • Bónd- inn leit á fatið, vissi engin- sköpuð ráð og sagði: “Æ, eg vesall krabbi.” “Sko til,” sagði herramaðurinn, “hann veit það. Nú veit hann líka hver hefir stolið peningQnum. ” En þjóninum datt allur ketill í eld og depl- aði augum til doktorsins, að hann skyldi finna sig út. Þegar doktorinn var kominn út, þá meðgengu allir þjónamir fjórir fyrir honum, að þeir hefðu stolið peningunum; kváðust þeir fúsir til þess að skila aftur þýfinu og þar á of- an gjalda honum stórfé, ef hann ekki kæmi upp um þá; að Öðrum kosti væru þeir frá. Fóru þeir og með hann þangað -sem peningarnir vom faldir. Nú var doktorinn ánægður, fór inn aft- ur, settist við borðið 0g mælti: “Herra minn, nú ætla eg að leita eftir í bókinni minni, hvar peningarnir eru niður komnir. ” En fimti þjónninn skreið inn í ofninn til að hlera eftir hvort doktorinn vissi meira. En doktorinn sat með stafrófskverið, blaðaði í því fram og aftur og leitaði að hananum. En með því að hann gat ekki fundið hanann, þá sagði hann: “Héma ertu þá og upp á þér skal eg hafa.” Þá hélt sá, sem í ofninum var, að hann ætti við sig, stökk út dauðhræddur og kallaði upp: “Þessi maður veit alt!” < Vísaði nú doktor Alvís herramanninum á staðinn, þar sem peningarair voru fólgnir, en sagði ekki hver stolið hafði, fékk svo að laun- um stórfé af beggja hálfu og varð af þessu frægur maður. — Sdbl. FÓRN. Merki læknirinn enski, Sir George Turner, sem starfað hefir að því að uppræta líkþrá eða holdsveiki í Suður-Afríku, hefir sjálfur sýkst af þeim hryllilega sjúkdómi. Það er álit hans, að mikil líkindi séu til þess, að ráð verði fundið til að lækna sjúkdóminn. Þó að töluverð sýk- ingarhætta sé holdsveiki samfara, telur hann almenningi þó venjulega standa meiri hættu af maxmi með lungnatæringu en af holdsveik- um manni. Sir George hefir afráðið að helga það, sem eftir er æfinnar, læknisstarfi meðal holdsveikra manna, og hefir boðist til að ganga í þjónustu holdsveikra-trúboðsins á Indlandi; en líklega verður hann heldur sendur til Suður Professional Cards DR. B. J. BRANDSON mc-220 Medlcal Arts Cor. Graham ogr Kennedy Sta. Phone: 21 834, Ofílca tlmar: 2_2 Heimill: 776 Victor St. Phone: 27 132 Winnipegr, Manitoba. COLCLEUGH & CO. Vér leggjum sérstaka ðlierzlu A. aC •elja meCul eftir forskriftum lœkna. Hln beztu lyf, sem hœgt er aC fá eru notuC eingöngru. l>egar þér kómiC meC forskriftlna til vor, meglB þér vera vlss um, aC fá rétt þaC eem læknirinn tekur til. HOtre Dame and Sherbrooke Phones: 87 659 — 87 88« Vér seljum Glftingaleyfisbréf DR O. BJORNSON 210-220 MedicaJ Arte BJd* Cer. Graham og Kennedy Ste. Phonea: 21 834 Office tlmar: 2—3. Helmill: 764 Vlctor St. Phone: 27 688 Winnipeg, Manitoba. DR. B. H. OLSON 219-220 Medical Art-S Bldg. Cor. Graham og Kennedy Stm. Pane: 21 834 Offlce Hours: 2—{ Heimili: 921 Sherbume 8t. Winnipeg, Manitoba. DR. J. STEFANSSON 21C-220 Medical Arte Uldg Cor. Graham ogr Kennedy 8te. Phole: 21 834 Stundar augma, eyrna nef og kverka sjflkdöma.—Er aC hltta kl. 10-12 f.h. og 2-5 e. h. Heimili: 373 River Ave. 'fiaJe. 42 691 DR. A. BLONDAL Medical Arte Bldg. •tundar sérsUklega Kvenna og Barna ejúkdöma. ®r aC hltta fré kl. 10-12 f. h. v og 3—5 e. h. Office Phone: 22 20C Heimlli: g0'4 Victor St. * Simi: 28 180 Dr. Kr. J. Austmann, Wynyard, Sask. DR. J. OLSON Tannlæknlr 210-220 Medlcal Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy St*. Phone: 21 834 HeimiUs Tals.: 38 626 DR. G. J. SNÆDAL Tannlæknlr 014 Somerset Block Cor. Portage Ave og Donald St. Ta'slml: 28 889 Giftlnga- og JarSarfara- Blóm með litlum fyrlrvara BIRCH B1 ómsaii 593 Portage Ave. Tals.: 80 720 St. John: 2, Ring 8 A. S. BARDAL 848 Sherbrooke St. Selur llkkistur og annast um flt- farir. Allur útbflnaCur sá bestj. Enn fremur eeíur hann allskonar mlnnisvarCa og legstelna. Skrifatofu tals. 86 607 Helmllie Tals.: 58 302 Talis. 24 163 NewLyceumPhotoStudio Kristín Bjarnason eig. 290 Portage Ave, Winnipeg Næst við Lyceum leikhúsið. THOMAS H. JOHNSON H. A. BERGMAN tel. lögfræðlngar. Skrlfstofa: Room 811 McArthur Bullding, Portage Ave. P. O. Box 1656 Phones: 26 849 og 84 840 JOSEPH T. THORSON ísl. lögfræðingur Scarth, Guild & Thorson, Skrifstofa: 308 Great West Permanent Building Main St. south of Portage. Phone 22 768 LINDAL, BUHR & STEFÁNSON fsleozldr lögfræðingar. 356 Main St. Tala.: 34 »41 356 Maln St. Tals.: A-4968 felr hafa einnig skrlfstefur aC Xiundar, Rlverton, Gimll og Plney og eru þar aC hltta 4 eftirfylgj- and tlmum: Lund&r: annan hvern mlCvlkudaf Rlverton: Pyrsta fimtudag. Glmll: Fyrsta miCvikudag. Piney: þriCJa föstudag 1 hverjuim m&nuCl. A. G. EGGERTSSON (sL lögfræðlngur Hefir rétt til* aC flytja mál b«Cl 1 Manltoba og Saskatche&ran. Skrlfstofa: Wynynxd, Sask. Athygli! Komið með næstu lyfjaávísun- ina v8ar til vor. Þaulæfðir sér- fræéingar annast um alla lyfja- samsetningu. INGRAM’S DRUG STORE 249 Notre Dame Ave. Gagnvart Grace kirkjunni. A. C. JOHNSON 907 Confederation T.ife Bldg. WIPí NIPEG Annast um fastcignir manna. Tckur að sér aÖ ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábyrgð og hif- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyr- irspumum svarað samstundis. Skrifstofusími: 2% 243 Heimasimi 33 328 Íslenzka bakaríið Selnr beztu vörur fyrir lægsia verð. Pantanlr afgrdddar beeM fljótt og veL FJölbreytt ArvaL Hretn og lipur vlðsklftL Bjamason Baking Co. 874 SARGKNT Ave. Wlnnipag. Phone: 84 298 Afríku, af því hann er þar öllu svo nákunnugur. Mjög má holdsveikum aumingjum þykja vænt um þennan góða mann, sem hefir lagt og leggur svo mikið í sölurnar fyrir þá. — Hugs- um í því sambandi um hinn heilaga vin, sem kom til syndugra manna og þoldi fyrir þá sárs- auka og dauðans píslir; hugsum um þakklætis- skuldina miklu, sem véí erum í við hann, því “vorar þjáningar voru það, sem hann bar, og vor harmkvæli, er hann á sig lagði.”—Sam. t

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.