Lögberg - 04.08.1927, Page 3

Lögberg - 04.08.1927, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. ÁIGÚST 1927. Bls. 1. 43. Kirkjuþing Hins evangeliska lúterska kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi. HALDIÐ f WINNIPEG. MANITOBA, 22.-27. Júní 1927. Þá lá fyrir kosning embættismanna: Forseti var endurkosinn séra Kristinn K. Olafson. Vara-forseti endurk. séra Rúnólfur Marteinsson. Skrifari var endurkosinn séra Jóhann Bjarnason. Vara-skrifari endurk. séra Sigurður Ólafsson. Féhirðir var endurkosinn hr. Finnur Johnson. Vara-féh. endurk. hr. Jón J. Bildfell. — Allir endurkosnir í e. hlj. í framkvæmdarnefnd kirkjufélagsins, auk forseta, skrif- ara og féhirðis, voru endUrkosnir þeir séra J. A. Sigurðsson, Dr. B. J. Brandson, Ðr. B. B. Jónsson og séra N. S. Thor- láksson. í skólaráð Jóns Bjarnasonar skóla voru kosnir, t'il þriggja ára, þeir séra J. A. Sigurðsson, A. S. Bardal og Ásmundur P. Jóhannsson. Dr., Björn B. Jónsson baðst lausnar úr skólaráðinu. Var það samþykt. Kosinn var í hans stað til eins árs, séra Carl J. Olson. í stjórnarnefnd Betel voru endurkosnir, til þriggja ára, í e. hlj.: Dr. B. J. Brandson og Jónas Jóhannesson. Ráðsmaður kirkjubyggingarsjóðs var endurkosinn hr. Finnur Johnson. Yfirskoðunarmenn voru endurkosnir þeir Th. E. Thor- stéinson og F. Thordarson. , Þá lá fyrir að taka á móti tilboðum um þ'ingstað fyrir næsta kirkjuþing. Séra V. J. Eylands bar fram boð frá Mel- anktons söfnuði, í Mouse River bygð í Norður Dakota. Sigur- björn Sigurðsson flutti heimboð frá Bræðrasöfnuði í Riverton. Var samþykt að þakka boð'in bæði. A. M. Ásgrímsson gerði þá tillögu, en séra Carl J. Olson studdi, að boð Melanktons- safnaðar sé þegið. iSér R. Marteinsson gjörði þá breytingar- tillögu og Klemens Jónasson studdi, að þegið sé boð Bræðra- safnaðar. Um tillöguna urðu fjörugar umræður og kapp nokkurt, þó í góðsemd. Var breytingartillagan feld með nokkurum meirlihluta, en aðal tillagan því næst samþykt. Samþykt var að greiða skrifara og féhirði venjulega þóknun fyrir störf þeirra. Þakklætis atkvæði greiddi þingið forseta ogskrifara, með því að allir stóðu á fætur, samkvæmt tillögu séra J. A. Sigurðssonar. Gjörðabók ellefta fundar lesin og staðfest. Mælti forseti þá nokkurum kveðju og árnaðarorðum til þingsins. Mintist um leið þess ánægjuefnis, að fjarlægir söfnuðir, eins og á Kyrrhafsströnd, hefðu í fyrra og nú haft fulltrúa á þingi. Gat éinnig hins vinsamlega kapps, er orðið hefði m'illi safnaða að fá þing til sín næsta ár. — Las hann þá Jóh. 17: 6-26 og flutti bæn. Var síðan sunginn sálmur, lesið sameiginlega Faðir-vor af öllum og lýst blessun af forseta. Var þingi svo slit'ið kl. nál. 1 e.h. Heiðindómur vs. Kristindómur. Fyrirlestur fluttur á kirkjuþingi í Winnipeg í iúní 1927, af Séra Jónasi A. Sigurðssyni. Umtalsefni mitt er himinhátt og heimsvítt. Ekki þarf þá að segja yður, að eg hefi hér reist mér hurðarás um öxl. Ekki er heldur til vinsælda né frægðarorðs að vinna. Eg ætla ekki að gera tilraun til að auka gengi mitt með þessu erindi. Eg tala um þetta efni því eg finn mig knúðan til þess. Mér finst íslenzkum manndóm ósamboðið, að geta ekki rætt sín andlegu áhugamál, nema helzt með ofsa og ádeilum. Eg ætla mér því ekki að brigzla vísvitandi heiðnum forfeðrum né samferðamönnum, né heldur bótmæla öllu í fari nafn-kristinna Islendinga. En þarfnist umtalsefni mitt eða yfirskrift þess skýringar eða bótmæla, vil eg benda mönnum til erindis Einars H. Kvarans, er hann nefndi Kristur cða Þór. Löngu áður en það birtist, hafði eg valið nafn þessum hugleiðingum. Njáls saga getur þess, er Þang-Brandur fór trúboðs erindum vestur um sveitir á Islandi, hafi þar ikomið í móti honum kona, Steinunn að nafni, móðir Skáld-Refs. Hún boðaði Þang-Brandi heiðni og “taldi lengi fyrir honum.” Þang-Brandur þagði, meðan hún talaði, en er hann tók til máls snéri hann því öllu, er hún hafði mælt í villu. Þrátt fyrir það lét hún ekki yfirbugast. “Hefir þú heyrt þat,” sagði hon, “er Þórr bauð Kristi á hólm, ok þorði Kristur eigi at berjast við Þórr?” Þá sögu rek eg ekki lengra. En mér finst einatt að Steinunn tali enn—og mæli margt.—Og mér dylst ekki, að ýmsum finst Þórr skora Krist á hólm til bardaga, en að þeir, sem þar eiga skildi að halda, skirrist við. Hólmgangan og vopnabrakið er enn oft efst á baugi. Hitt virðist oft sæta minni tíöindum, þótt Þang- Brandur snéri máli hennar öllu í villu. Enga geri eg þó veizlu í móti Þang-Brandi, sem Gestur hinn spaki í Haga gerði forðum daga. En til Steinunnar og hennar sona sný eg orðum minum. önnur frásaga úr Njálu þrýstir sér inn í umhugsunarefni mitt. Hún er af Flosa og brennumönnum, er þeir dvöldu í Orkneyjum. Á sjálfan jóladaginn sat jarl með hirð og gestum að drykkju, og vildu höfðingjar heyra tíðindin um brennuna aö Bergþórshvoli. Gunnar Lambason, einn brennumanna, var fenginn til að segja söguna. I viðhafnarskyni var hann settur á stól. Sigtryggur kon- ungur, einn gestanna, spurði: “Hversu þoldi Skarphéðinn í brennunni?” “Vel fyrst lengi,” sagði Gunnar, “en þó lauk svá, at hann grét,” ok um allar sagnir hallaði hann mjök til en ló (Jaug) víða frá,” — segir sagan.— Eg er naumast sá eini hér staddur, er hefi fundið til þessa frásagnastils,—einnig í andlegum málum. Mannleg kappgirni og flokksfrekja segir einatt söguna á svipaðan hátt og Gunnar Lambason sagði frá Skarphéðni og brennunni. Á því getur eng- inn vafi leikið.—En ekki er eg hér þó í erindum Kára, er kom ó- vænt að, og vó Gunnar að sögulaunum. En svo tíð er þessi frásögu aðferð vor á meðal, að tími er kominn til að vega að henni. Hver öld á sinn efa, síná vantrú og neitun. Hver kynslóð sína afvegaleiðslu. Venjulegast eru þetta alda-gamlar sryndir er leynst hafa í hjörtunum, svipað og frásögu aðferö Gunnars, en nefnast þó nýgræðingur, er þær ganga aftur.— Þannig eru trúarbragðadeilur jafngamlar trúnni. Menn deildu við Krist og reyndu að veiða hann í orðum. Ávalt síðan hafa menn deilt um Krist, kristindóminn og kirkju hans. Postul- arnir voru ekki samdóma. Ritningarnar geta um deilur og of- sóknir af hálfu Gyðinga. Og heiðingjarnir sátu ekki hjá, heldur kváðu upp sína krossfestingar-dóma í ýmsum myndum, þó ekki verði þeim hér lýst. Stundum átti þjóðerni manna sinn þátt í þeim ófriði. Ýms villuspeki kom fram, jafnvel í frumkristninni. Jafnaðarlegast var óvináttan gegn eöa fráfallið frá Kristi og kristindóminum, sprottið af einhverjum hagsmuna ástæðum. Einnig villan og syndin varð verzlunarvara. Margt í heimi andans gekk og gengur enn kaupum og sölum. Þó fara slíkar hvatir venjulega huldu höfði. Kirkjusagan er löng raunasaga í því efni. Ekki verður hér nein frásaga um villulærdóma né viðreisnar- tilraunir heiðindómsins og árásir heiðingjanna í ritum þeirra gegn kristinni trú. En sagnfróðir menn vita, að alla efaspeki manns- andans má þar finna í einni eða annari mynd. 1 þeim efnum er fátt nýtt undir sólunni. Einingarstefnan svo nefnda er t. d. frá annari öld. Á vorri tíð nefnast einingarmenn Únítarar. Ekki er þar því um nýja andastefnu að ræða. Um einn leiðtoga þeirra í Rómaborg um byrjun 3. aldar er þess getiö, að hann hafi haft meiri mætur á ritum Aristótelesar en á biblíunni. Og er ekki laust við að það minni á nútíðar-afstöðu sumra einingarmanná. Þá var og uppi flokkur manna andvígur kristindóminum, er nefndu sig Gnóstíka. Er nafnið dregið af grísku orði, er merkir þekking eða vizku. Eins og orð þetta bendir til, voru Gnóstíkar flokkur þeirra manna, er töldu sig spekinga. Þeir voru fræði- menn, eða töldu sig til þeirra, er fólu vantrú sína í vísinda-hjúpi, eða dulargerfi flókinna hugsana og stórra orða. Hófst sú stefna snemma á 2. öld, hvarf úr sögunni um tíma, en magnaðist aftur á miðöldunum og nefndist þá skólastefnan. Ýmsum mun þegar skiljast, aö arfþegi hennar sé sú andastefna, er vizkan, einnig meðal íslendinga, telur helzt við sitt hæfi. Kenning Gnóstika var upprunalega austurlenzk tvíveldiskenn- ing. Viðfangsefni þeirra voru, meðal annara, uppruni heimsins og uppruni hins illa. Til voru þeir í þvi liði, er sömdu sjálfir rit, er komu þeim í stað heilagrar ritningar. Einn biskup þeirra kendi, að Gyðingdómurinn væri frá hinum góða Guði, en heiðindómur- inn frá hinum vonda guði. — Er að því vikið sökurn þessa um- talsefnis. Myndi margt í andlegu lífi vor nútíðarmanna betur ráðast ef þeir kyntu sér rækilega sögu mannkynsins, einkum sögu manns- andans, í stað þeirrar fræðimensku, sem áreiðanlega er til og tignuð, er vex eins og undra njóli á einni nóttu—og visnar jafn fljótt. En deilur hafa reynst hin dygga félagsfylgja allrar mannlegr- ar starfsemi. Kirkjan, sem öðru fremur hefir reynt að gera ófrið útlægan úr sambúð manna, hefir sjálf kent á því óeiningaroki. Og vitanlegt er, að líf íslendinga hefir ávalt verið einna auðugast af ófriði. Venjulega hugsum vér flestir um það sem arf frá heið- inni víkingaöld. Landnám íslands var styrjaldar-afleiðing. Trú- in kristna var boðuð Islendingum af víkingum — að undanteknum Friðriki biskup. Sumir trúboðanna kunnu betur til mannvíga, en þeir kunnu náðarboðskap hins krossfesta. Segja má, að trúboðið var flutt Islendingum með oddi og egg. Andstæðingar kristninn- ar á vorri tíð hafa einatt talið kristnínni til útgjalda grimd Ólafs Tryggvasonar og vígaferli Þang-Brands, þegar þeir sjálfir hafa brýnt beitta egg orða sinna gegn erindi Krists. Sú tilhneiging er æði sterk vor á meöal, að rista breiðan þveng af annars skæði.— Um oss hefir verið sagt, að það “þótti um hríð yfirburða ein- kenni,—að sýna fyrirlitning öllum helgum véum.” Og: “ófyrir- leitnir lýðforingar blésu sleitulaust að þeim kolum.” fBls. 139 Sam. maí 1911). — Brennu frásögn Gunnars komst i móð — Skarphéðinn grét, eða Þór skoraði Krist á hólm, og hann þorði eigi að berjast.— Þessi bardaga-aðferö, þessi ófriðar-óáran hefir dunið yfir oss aftur og aftur,—líkt og hallæri yfir heimaþjóðina á liðnum öldum. Allskyns deilur hafa jafnan brunnið við í lífi Islendinga. Og sjálf- ir eru þessir víkingar andlegra mála, er mest víðfrægja miskunn- arskort Ólafs Tryggvasonar og víg Þang-Brands, fremur læri- sveinar Þang-Brands en Krists. Mönnum verður stundum starsýnt á sverðið,—þegar það er ekki í eigin hendi. Við það ber að kannast, að sjálfur er eg alinn á byltingaöld. Eg las bardagasögur. Auk þess fóru í æsku minni mestar frægð- arsögur af andlegum viking, fræknum manni af Gyöinga kyni, er sagt var um, að hann opnaði aldrei munninn, nema til að gera árás á kristindóminn. Gegn honum varði stórveldið í þjóðlífi Norðmanna, Björnstjerne Björnson, lengi og vel trú sína, en fór þó um síðir halloka. Brandes hjó víða strandhögg, .og íslending- ar fóru ekki varhluta af því tjóni. Var sízt að furða, að þar féll í valinn margur góður drengur. Trúartjóninu var samferða margvíslegt annað tap, i hugsun, bókmentum og þjóðlifi öllu. Þessi nýja stefna réði víða riki í sálunum er eg var á vaxtarskeiöi. Innan við tvitugsaldur nam eg óð hins glæsilegasta æskumanns meðal íslendinga i þá daga. Eg á við kvæði Hannesar'Hafstein, Sannleikurinn og kirkjan. Skáldið lét sannleikann og kirkjuna eiga í höggi. Vitanlega lyktaði þeirri baráttu með fullum ósigri kirkjunnar. Niðurlag ljóðs þess var: “Að kirkjan, kirkjan hún brennur.” Þessi slagorð skáldsins bergmáluðu í orðum og af- stöðu æskumanna. Orð Krists: Eg er sannleikurinn, og til þess kom eg í heiminn, aö bera sannleikanum vitni, urðu að daufum undirtón. Ný brennusaga var sögð eða sungin. Sízt er það furða þótt æskunni yrði einatt áfátt, svipað ís- lenzka prófessornum, er lagði orð Pílatusar: Hvað er sannleik- ur? Kristi í munn. Þau hausavíxl urðu tíð, og reyndust oss til muna hættulegri en glundroði Bakkabræðra, er samkvæmt þjóð- sögunni ekki þektu eigin fætur, er þeir tóku fótlaugar.— Ranglátt væri þó að geta þess ekki hér, að Hannes Hafstein lagfærði í síðari útgáfu ljóðmæla sinna þetta kvæðis niðurlag. Ber breyting sú að minsta kosti vott um það, að skáldið var ekki á efri árum alveg ánægður með öll stóru orðin, stíluð af eldmóði æskuefans, eftir nám við fætur Brandesar. En þessi hugsunarháttur og kveðskapur varð tízka. Gáfaðir skólamenn gengu á undan. Gröndal sagði í ritgerð um skáld og skáldskap Jlsafold 8. febr. 1888) “Trúleysi er höfuð einkenni hinnar nýju skáldskapar stefnu. — Þeir geta ekki brúkaö Guð, hann er of gamall fyrir þá.”—Efnilegir unglingar öpuðu þenna móð. Aðrir, með Hákoni konungi góða, ginu yfir ketilhöddunni hjá Þrændum. Þeir reyndu að vera kristnir og heiðnir í senn. Orðin urðu nokkurs konar Glúms eiður. Alt slíkt fluttist vestur um haf. Hér var rúmgott i landnámi andans, hátt undir þak og vítt til veggja. Sízt er þvi furða, þótt ofvöxtur hlypi í ýmsa afneitun. Við þetta hefir nútíðarkynslóð Islendinga mátt búa. Dreifðir og fámennir, höfum vér gert oss sjálfa fámennari Vér höfum lesið um Sturlungaöld—og lifað hana. Kærleiksauð- urinn og trúarþroskinn hafa víða rýrnað. Þjóðræknin hefir liðið. Vér höfum fremur lært um trúarbrögð en lifað samkvæmt þeim. En kristindómurinn er engan veginn gefinn til þess að vér eyddum árunum til að verja hann og þvi síður til að deila um hann, þótt sú hafi jafnan orðið raunin á. Og það sem vér teljum galla krist- indóms og kirkju, eru fremur gallar heiðninnar,—óyfirunninn heiðindómur i hjörtum og lífi mannanna. Annars minnir margt í lífi þóðar vorrar á þau orð Velhavens, að þyrnar séu greinar, er ekki náðu þroska. — Ef til vill er alt trúarringl, allar trúardeilur og allur heiðindómur meðal vor vottur um kristindómslíf, er fæddist andvana, — greinar, er ekki náðu þroska og urðu þyrnar. Silfurbrúðkaup í Riverton. Nágrannar, vinir og ættingjar þeirra Mr. og Mrs. Jóns Halldórs- sonar í Riverton, héldu hátíðleg- an silfurbrúðkaupsdag þeirra hjóna, þ, 16. júlí s.l. Fór hátíð- arhaldið fram á fögrum grasfleti við íbúðarhús þeirra þar í þorp- inu. Byrjaði það síðari hluta dags og stóð fram undir kvöld. Var margt manna saman komið. Til skemtana voru ræður, söng- ur og hljóðfærasláttur. Ræður voru þó að eins tvær, önnur sú, er séra Jóhann Bjarnason flutti, en hina flutti silfurbrúðguminn sjálfur, í síðari hluta samsætis- ins, þar sem hann þakkaði fyrir hönd þéirra hjóna, bæði heiðurs- gjafir, er þeim voru færðar, og svo sæmd þá, er þeim var sýnd með samsætinu sjálfu. Sönginn intu af hendi veizlugestir sam- eiginlega, aðallega undir umsjón þeirra Mr. H. J. Eastmans og Mr. Sigurbjörns Sigurðssonar. Hinn síðarnefndi var og fyrir nokkur- um hóp manna úr lúðrasveit Riv- ertonbúa og spiluðu þeir nokkur lög, er þótti ágæt skemtun. Heiðursgjafir til þeirra Mr. og Mrs. Halldórssonar, voru kassi með silfurborðáhöldum, frá kven- félaginu Djörfung í Riverton; silfurdiskur, fyltur með silfur- peningum frá börnum þeirra hjóna, og silfurbakki með silfur- peningum, frá nágrönnum og vin- um í Riverton og annarsstaðar. Um leið og skemtanir fóru fram voru frambornar veítingar hinar rausnarlegustu. Veður var hið bezta og gátu veizlugestir notið fagnaðarins eins og framast varð á kosið. Þau Mr. og Mrs. Halldórsson bjuggu áður fyrrum í Víðirbygð, en hafa nú um nokkurra ára skeið átt heima í Riverton. Er Jón Halldórsson einn af mörgum systkynum. Þrír bræður hans, nokkuð kunnir, nefnilega, Bald- vin hagyrðingur, Páll faðir Jó- hannesar læknis í Elfros, og Jó- hann, verzlunarmaður ' í Winni- peg. Kona Jóns er Anna, systir Jóns Sigurðssonar í Víðir, fyrrum oddvita í Bifröst-sveit. Eru þau systkyn og Gunnar B. Björnsson, ritstjóri og fyrrum þingmaður í Minnesota ríkisþinginu, bræðra- börn. Þau Mr. og Mrs. Halldórs- son eiga hóp af frábærlega mynd- arlegum börnum, sum uppkomin, en hin á unglingsaldri. Voru flest þeirra viðstödd í samsætinu. Auk skemtana, er fram fóru, sungu veizlugestir “Hve gott og fagurt og inndælt er”, og “Lífs- ins faðir láni krýn”, um leið og séra Jóhann las biblíukafla og flutti bæn.— Þótti samsætið vera hið ánægjulegasta. (Fréttaritari Lögb.) Til minningar um silfurbrúð- kaupsdag Jóns Halldórssonar og 16. júlí 1927: Þið eruð enn með æskuroða’ á kinn. Endurminning liðins tíma er vakin. Þið brúðarsessinn byggið annað smn. Burt er allur deyfðarsvipur hrak- mn. Harmar gleymast, gleðin tekur stól. Guðdóms kraftur vermir ykkar hjörtu. Géislum stráir bjarta sumar sól og sveipar burtu næturmyrkri svörtu. Nú er glatt í góðum vinahóp og grundin brosir klædd í sumar- skrúða. Náttúran, sem herrann hæstur skóp. Hefir yndisfagra svipinn prúða. Drottinn ykkar blessi brúðkaups- dag og blessi vkkar vegferð hér á jörðu. Lifið sæl, með léttum gleðibrag, laus frá allri mæðu’ og stríði hörðu. Lifið sæl, og látið heimsins glaum liða hjá með þys og storma- gnýjum. Þið eigið enn þá eftir æskudraum og opna vegi’ að svalalindum nýjum. Gunnl. Pálsson. Allir kannast við orðtakiS íslenzka: Ekki er gaman að guð- spjöllunum, því enginn er í þeim bardaginn. FriSarboðskapur er oss ekki ávalt fagnaðarefni. En bardagar, og t. d. blaðadeilur, eru oss aufúsugestir. Og þjóð vor tók að berjast um guðspjöllin, Guðs orð, guðdóminn, Krist, kirkjuna og kennidóminn. Ekkert var svo heilagt, að um það gæti ekki hver sveinstauli barist. — Óðinn og Þór áttu sér orustufrægð. Vér afkomendur og læri- sveinar þeirra hlutum einnig að berjast, sumir til fjár og aðrir fyrir orðstír. Margir vor á meðal töldust orðhagir skáldmenn. Og orðin voru vígð sem vopn til sóknar og varnar heiðindómi og kristindómi. Hjá þeirri örvadrífu hefi eg setið. Eg hefi um langt skeið verið að mestu hlutlaus um andlegar deilur þjóðbræðra minna. Eg hefi hvorki gert blöð þeirra.né rit að Brávelli. Eg hefi ekki viljandi ýtt mönnum saman í orrahríð. En eg hefi þó ekki, af ásettu ráði, afneitað trú minni né þjóðerni mínu. Eg hefi heldur ekki vísvitandi hallað réttu máli, það lítið eg hefi til þeirra lagt, til stuðnings mínum málstað. Og þessi orð eru þá ekki heldur 'borin fram af deilugirni. Því síður eru þau flutt af kala er eg beri til einstaklinga né flokka. En eg tel mig eiga það hjá þeim mönnum, er árum saman hafa talað og ritað um þau efni, sem Framh. á bls. 7. Byggir Upp Veikan og Slitinn Líkama. Millíónir manna hafa siðastlið- in 3>5 ár hlotið undursamlegan á- rangur af því að nota Nuga-Tone. Þetta alþjóðar meðal, sem bætir heilsuna og eykur orkuna. Fólk- ið notar þetta meðal, þegar það megrast og missir matarlysting, á erfitt með meltingu, hefir gas og uppþembu í maganum, lifrar- veiki eða nýrnaveiki, blöðrusjúk- dóm, höfuðverk, slakar taugar, svefnleysi, þreytuverki á morgn- ana og annað sem því fylgir, Íegar fólk er að tapa heilsunni, röftum og andlegu þreki. Nuga-Tone er ávalt selt með þeirri ábyrgð, að peningunum er skilað aftur, ef óskað er. Meðal- ið verður að hjálpa þér4 svo þér líði betur og þú lítir betur út, annars skilar lyfsalinn pening- unum. Með slíkri tryggingu ætt- ir þú ekki að hika við að reyna það. Fáðu þér flösku frá lyfsal- anum og vertu viss um að fá rétta meðalið. Hœsta verð Borgað fyrir RJOMA yðar fáið þér áreiðanlega með því að skifta við “Co-tOp” stöðina í nágrenni yðar. Stutt- ur flutningur er trygging fyrir því, að rjóm- inn skemmist ekki og fyrir góðan rjóma fæst hátt verð. Sendið til SASKATCHEWAN COOPERATIVE CREAMERICS g» FRÁ GIMLI. Grös, jurtir, blóm og tré gaf guð jörðinni, til að prýða hana, og gefa henni “lífið”. — Stjörnur, tungl og sól gaf hann himninum, til að skreyta hann með yndisleg- um ljóma og dýrð. — Manninum gaf hann: trú, von og kærleika, en af þessum þremur er kærleik- urinn mestur, því hann breytist ekki. Trúin breytist í skoðun, vonin í uppfylling, en kærléikur- inn breytist ekki. Hann er stöðug sólna sól, er sendir öllum páska og jól, eyðir myrkri’ og öllu “svörtu”, og allra mýkir og vermir hjörtu. Það var á miðvikudaginn, þann 20. þ.m. Veðrið var yndislega gott og glaða sólskin. — Við hér í Betel, gömlu skörin, mörg af okkur, sátum úti á svölunum hér fyrir framan húsið, og vorum að njóta sólarljóssins, því svali var að öllu leyti mjög þægilegur og góður, — Alt í einu, í alheiðríku veðri, fór að rigna. Og hverju haldið þið að hafi rignt? Það fór að rigna konum, kvenfélags- konum frá Winnipeg, og svo kon- um viðar frá, og allar báru þær broshýr andlit, og mikið, eins og vant er, af kærleika til guðs og manna.. Meðferðis af sælgæti, svo sem eins og góðu kaffi, með ýmsu því tilreyrandi, höfðu þær mikið, og betra en gott kaffi, gat eg, fyrir mitt leyti, tæplega kosið. Svo fengu eyru okkar að smakka á inndælum hljómbylgjum, bæði fvrir snild fingurgómanna og barkans, og voru éigi spöruð hin fegurstu kvæði og lög. Að verða fyrir svona regnskúr, er ekki slóðalegt. — Hvað konurnar, sem komu hér á Betel þann dag, voru margar, er ekki gott að segja; ef einhver hefði spurt mig að því, hefði eg sagt: “Blessaður teldu stjörnurnar á himninum, og sand- kornin á sjávarströndinni, þá get- ur þú fengið hugmynd um það.” Það, blessað kvenfólkið, spratt upp hingað og þangað, hver kon- an annari blómlegri og sællegri. Svo fór eg smátt og smátt að sjá kurlmenn, all-laglega og myndar- lega á velli. Datt mér þá í hug: “Fari þeir kollóttir; nú hætta þær að taka eftir mér.” “Jæja, hvernig fór svo alt?” sagði mjög lagleg og góðlátleg kona við mig, þegar hún kvaddi mog “Það fór alt éins vel og á- ækjósanlega og hægt var,” sagði eg — og það segist hér með öll- um, sem þessar línur lesa. — “Ljómandi er hún lagleg og mann- úðleg”, sagði eg við sjálfan mig, eftir að hún, þessi kona, á svip- stundu var horfiri mér. Mig sár- langaði að hlaupa á eftir henni og segja: “Hvað héitirðu, góða kona?” En til hvers er fyrir mig nú að hlaupa, þó eg verði hrifinn af prúðmensku, kurteisi og mann- kostum? — Af þvi að mörg eru kvenfélög í Winnipeg, væri má- ske rétt að taka fram, að þetta kvenfélag, sem hér um ræðir, var kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar. En svo verðskulda éinnig hin ýmsu önnur kvenfélög innilegar þakkir frá öllu fólkinu hér á Bet- el, sem að skilnaði jafnan kveður slíkt heimsóknarfólk með kærum þökkum og hlýjum endurminn- ingum; Gimli, 22. júlí 1927. J. Briem. Sendið korn yðar tii UNITEDGRAIN 6R0WERSI? Ðank of Hamilton CKambers WINNIPEG Lougheed Building CALGARY Fáið beztu tryggingu sem hugsanleg er. Nýjasta og bezta BRAUÐTEGUNDIN Búin til með íágœtasta rjómabús Það er smjörið í Bamby brauði, sem gerir það öllu öðru brauði betra. Hvert einasta brauð í umbúðum. Kaupið þessa brauðtegund strax í dag! Fæst Kjá mat- vörukaupmanninum. Canada Bread umferðasölum eða með því að Kringja upp B2017-2018. Canada Bread Co.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.