Lögberg - 09.02.1928, Side 1

Lögberg - 09.02.1928, Side 1
41. ARGANGUR | WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 9. FEBRÚAR 1928 NÚMER 6 Helztu heims-fréttir Canada. Yiðskifti milli, Canada og Bret- lands voru töluvert minni árið sem leið, heldur en árið næsta á undan. Áríð 1926 námu viðskift- in alls $625,163,789, en árið 1927 ekki nema $593,566,381. Þær vör- ur, sem Canada selur Bretlandi, eru meir en helmingi meira virði, heldur en þær vörur, sem Bret- land selur Canada. Er það aðal- lega hveitið, sem þar yeldur mestu um. * * * Þeir eru, eins og kunnugt er, töluvert i-osknir menn, margir af senatorunum í Ottawa, en Senator Dessaulles mun þó vera þéirra elztur. Hann varð hundrað ára hinn 1. þessa mánaðar. * * * iEnn hefir eitrað áfengi orðið manni að bana í Winnipeg, Pat- rick Murphy að nafni. Er hann sá þrettándi, sem mist hefir lífið í Winnipegborg af þessum orsök- um, nú á fáum vikum. * * * Langa lengi hafa Vesturfylkin í Canada krafist þess, að fá sjálf full yfirráð yfir náttúruauðajfum sínum. Aldrei hefir þetta getað haft framgang, hvaða stjórn sem setið hefir að völdum í Ottawa, þangað til nú, að út lítur fyrir, að þess verði ekki langt að bíða, að fylkin fái full yfirráð yfir sínum náttúruauðæfum. Hinn nýi leið- togi íhaldsglokksins, Hon. R. B. Bennett, hefir það eitt með öðrum aðfinningum sínum við gerðir stjórnarinnar, að þetta skuli ekki Þegar hafa verið gert, og má af því marka, að hann sé þessu máli hlyntur. Forsætisráðherrann hef- ir svarað á þá leið, að nú sé verið að semja við fylkin um afhending þessara náttúruauðæfa og líti út fyrir, að það muni geta farið fram, áður en langt líði, með góðu samkomulagi allra hlutaðeigenda. * * * Rev. W. Leslie Clay, D.D., prest- Ur við St. Andrew’s kirkjuna í Victöria, \B. C., og yfirmaður Presbytera kirkjunnar í Canada, andaðist á Almenna spítalanum í Winnipeg, hinn 2. þ.m. Hann var á leið til Ottawa, þegar hann kom til Winhipeg fyrir nokkrum dög- um, og var þá svo veikur, að hann var þegar fluttur á spítalann, og hefir hann legið þar síðan. Varð hjartabilun dauðamein hans. Hann ar 64 ára að aldri. Rev. Clay var kirkjuhöfðingi mikill og var í hví- vetna hjnn mætasti maður. * * * í Owen íSound, Ont., hefir það uýskeð komið fyrir, að yfirkenn- uri við Strathconaskólann, Henry Wilson, hefir bannað að nota í skólanum söngkenslubók, sem þar hefir að undanförnu verið notuð, að því er virðist, og er það sem hann hefir á móti bókinni, að í kenni séu Bandaríkja ættjarðar- söngvar og að bókin sé prentuð í Bandaríkjunum. Þegar þetta kom fyrir skólaráðið, sýndist þar sitt hverjum, en niðurstaðan varð sú, a<5 eiga ekkert við málið að svo stóddu og verður bókin ekki not- hð í skólanum á meðan. Hefir borið allmikið á þessu að undanförnu og heldur lögreglan, að hún hafi nú náð þeim , sem að þessu eru valdir. * * * Það er gert ráð fyrir, að elli- styrkslögin væntanlegu í Manito- ba, gangi í gildi með byrjun næpta fjárhagsárs, eða 1. maí 1928. * * * 30. janúar brann Metropolitan United Church í Toronto, ein af veglegustu kirkjum Mótmælenda í Canada. Áætlað er, að það kosti hálfa miljón dala að minsta kosti, að byggja hana upp aftur eins og hún var., * * * Harvey C. Simpson, sem um eitt skeið var þingmaður fyrir Vir- den kjördæmið, á Manitoba þing- inh, lézt í Vancouver, B. C. hinn 29. f. m. * * * 1 Quebecfylki dóu árið sem leið fimm karlmenn og ellefu konur, sem öll voru hundrað ára að aldri og þar yfir. Af þessum sextán gömlu manneskjum voru átta 100 ára, tvær 101, þrjár 102, ein 103, in 104, og elzti karlinn varð 109 ára gamall. * * # Frank B. Kellogg, utanríkis ráð- herra Bandaríkjanna, hefir verið í Ottawa undanfarna þrjá daga. Þar hefir honum verið afar vel tekið af landstjóra, forsætisráð- herra og öðrum stjórnmálamönn- um. í Bandaríkin. George W. Goethals, sá er bygði Panama skurðinn, dó að heimili sínu í New York hinn 21. fyrri mánaðar, sjötugur að aldri. * * * Á Pan-American þinginu, sem haldið hefir verið í Havana, Cuba, lýsti Charles E. Hughes yfir því, að Bandaríkjamenn hefðu engan ásetning til að komast yfir meiri landeign, heldur en þeir nú hefðu. Það sem þeir hefðu skift sér af málum ríkja í Mið-Ameríku, væri ðð eins til þess gert að koma þar á friði og fastri stjórnarskipun. *« * * Það er sagt, að Herbert Hoov- er taki nú miklu innilegar í hend- ina á þeim, sem hann kemst í kynni við, heldur en siður hans hafi verið alt til þessa. Þykir það, meðal annars benda í þá átt, að hann hafi góðan hug á að verða útnefndur sem forsetaefni. *• * * Nokkur hluti democrata flokks- jns hefir nú hafist handa, og læt- ur mikið til sín taka, að afla fylg- is Senator James A. Reed við næstu forsetakosningar, eða öllu heldur við útnefningu forsetaefn- is. Hvað þann flokkinn snertir, þá sýnist nú helzt um tvo menn að gera, sem forseta efni, Senator Reed og A. Smith ríkisstjóra í New York, en margir hafa það á móti Smith, að hann er kaþólskur og halda, að hann verði kannske fyrir of miklum áhrifum frá páfa- garði. * * * Winnipeg Trades and Labor Council og fleiri verkamanna sam- bönd, hafa farlð fram á það við stjórnina í Manitoba, að hún ®t°fni nýtt ráðherra embætti, með því, sem þar til heyrir, til ^ess fyrst og fremst að líta eftir agsmunum verkamanna, eða hins a ækara fólks í fylkinu. Verka- ann-afélögin ætlast til, að öll a,’ aem verkamenn snerta sér- - a lega, heyri undir þessa nýju 8 Jornardeild 0g reyndar fleiri mal, sem almenning varða. Hvort nokkuð verður frekar af þessu, er ekki enn hægt að segja. Stjórnin ætlar að athuga málið. * * * f vikunni sem leið, voru fimm ungir pijtar í Winnipeg teknir fastir fyrir að brjótast inn í búð- ir og stela þaðan ýmsum vörum. Þeir eru á aldrinum 16 til 19 ára. Bretland. 'Stórblöðin tvö, London Daily News og Westminster Gazette, hafa verjð gerð að einu blaði, sem heitir Daily News and Westmin- ster Gazette. Þetta hefir þær af- leiðingar, að um 500 menn, sem unnið hafa við þessi blöð, hafa við það mist atvinnu sína. Þar á meðal eru ritstjórar, fréttaritar- ar, prentarar og aðrir, sem við blöðin hafa unnið, því svona mik- ið ^ærri menn þaff til að gefa út eitt stórblað heldur en tvö. * * * Jarlinn af Warwick er nýlátinn, 45 ára að aldri. Hann var hers- höfðingi á stríðsárunum og stjórn- aði meðal annars fjórðu og tólftu herdeildum frá Canada. Hann var þá Lord Brooke. \ Anna Mjlls og Frank Jesson, að Leicester á Englandi, hafa verið trúlofuð í 30 ár, eða síðan 1898. Nú er önnu farið að lítast alvar- lega illa á þetta, og heldur að ekkert ætli að verða úr hjóna- bandinu, svo hún hefir höfðað mál á móti Frank og krefur hann um $5,000 skaðabætur. Það var alt af eitthvað í veginum fyrir því, að þau gætu gift sig. Faðir hans setti sig á móti þessu hjóna- bandi, systir hans var tæringar- veik og það sem verst var af öllu, var það, að hann hafði aldrei nóga peninga til að gifta sig. * * * iBrezki hershöfðinginn alkunni, Haig jarl, varð bráðkvaddur að heimili sínu í London á sunnu- dagskveldið 9. janúar. Haig jarl var yfirhershöfðingi brezka hers- ins á Frakklandi síðari stríðsár- in, og var nafn hans svo að segja á hvers manns vörum út um allan heim á þeim árum. Hann var vafalaust mikill hershöfðingi og gaf sig að hermálum alla æfi, ekki að e:ns meðan á stríðinu stóð, heldur líka löngu áður og jafngn síðan. Haig jarl var vin- sæll hjá mönnum sínum og er sagt að hann hafi látið sér mjög ant umj hag þeirra, ekki sízt síðan stríðinu lauk. Hann varð 66 ára gamall. * * * Brezki hershöfðinginn nafn- kunni, Haig jarl, sem nú er ný- látinn, hefir að sögn eftirskilið dagbók sína frá stríðsárunum, sem samkvæmt hans fyrirsðgn verður vandlega geymd og lokuð, þangað til árið 1940, en þá á að gefa bók- ina, út. Það er haldið, að þessi bÖk hafi mikinn fróðleik að geyma og að hún muni segja hispurslapst frá mörgu, sem gerðist á þeim árum, og frá gerðum margra stjórnmálamanna og herforingja og annara, sem völd höfðu, og það .vægðarlaust, og að dagbók þessL muni leiða í ljós margan sann- leika, stríðinu viðvíkjandi, sem enn sé öllum almenningi hulinn. Hvaðanœfa. Fréttir hafa borist um, að upp- reisn hafi verið hafin seint í mán- uðinum> sem leið, á sunnanverðu Rússlandi, gegn Soviet stjórninni. Fylgir það fréttinni, að stjórnin hafi viðbúnað mikinn til að bæla niður þessa uppreisn, sem helzt lítur út fyrir að hafin sé af með- haldsmönnum Leon Trotzky og fé- laga hans, sem eru fallnir í mikla ónáð hjá þeim, sem nú hafa völd- jn. Þessar fréttir eru óljósar og er ekki af þeim hægt að gera sér grein fyrir hve alvarleg þessi upp- reisn kann að vera. Hafa stund- um áður borist uppreisnar fréttir frá Rússlandi, er svo hafa hjaðn- að niður og orðið að engu. * * * iSkip kom til London um síð- ustu mánaðamót frá Ástralíu, sem hafði verið níu mánuði á leiðinni, sem er alveg óvanalegt nú á dðg- um, síðan alt fór að verða svo hraðfara, eins og nú er- orðið, og minnir þessi frétt því á sögur af sjóferðum, eins og þær gerðust i gamla daga. Skipið hafði lent í miklum hrakningum, og skipstjór- inn hafði dáið af slysi, sem fyrir hann kom á leiðinni. Skipið heit- ir Stirling og er frá Seattle, Wash., stórt seglskip, og hefir víða farið og er vel þekt á öllum höfnum við Kyrrahafsströndina. * * * Fimm ár eru liðin síðan Musso- lini brauzt til valda á ítalíu, þar sem hann hefir stjórnað eins og hver annar einvaldur síðan. Var þessá fimta afmælis hans í stjórnarsessinum minst með ein- hvers konar hátíðahöldum í Róma- borg og hélt Mussolini þar ræðu. Lagði hann mesta áhrezlú á her- búnað og virðist hann helzt vilja hafa allan sinn flokk járnvarðan og hvern mann æfðan á ungum aldri við vopnaburð. Segir hann, að þess þurfi með, því hann og flokkur sinn eigi nóga óvini og ítalía eigi nóg af óvinum líka, en þeir félagar þurfi alt af að standa á verði, að vernda heiður og gagn föðurlandsins. Frá Islandi. Dr. Alexander Jóhannesson hef- jr sent frá sér nýtt málfræðirit um viðskeytj í íslenzku, ritað á þýzku og er fylgirit með Árbók Háskólans. Er það einnig gefið út sérstakt hjá Niemeyer í Halle. Þýikur togari, “Kroman” frá Cuxhaven, strandaði á Garðskaga, skamt frá títskálum á gamlárs- kvöld. Mannbjörg varð. Vélbáturinn “Höskuldur” úr Vestmannaeyjum fór 22. f.m. úr Reykjavík áleiðis til Eyja, undir stjórn Gísla Magnússonar útgerð- armanns þar. Þegar komið var fyrir Reykjanes, bilaði vél báts- ins, síðan rifnuðu segl hans og hrakKi hann fyrir sjó og vindi langt af siglingaleið. Bæjarfógeti Vestmannaeyja sneri sér til stjórn arráðsins, sem brá þegar við og sendi Óðinn til hjálpar. Fann Óðinn bátinn 15 mílur utan yið venjulega siglingaleið og dró hann til Vestmannaeyja. Hafði bátur- inn þá yerið 72 klst. á ferðinni. Hafði hann meðferðis 15 farþega, og má telja slíkt vítaverða óvar- kárni af bátstjóranum. Hefði meira borið út af með veður og skygni, myndi báturinn hafa far- ist með allri áhöfn. samkv. frá- sögn Mbl. eru Vestmannaeyingar mjög þakklátir bæjarfógeta sín- um, skipherranum á Óðni og skrif- stofustjóra í dómsmáladeild, fyr- ir skjótar björgunarráðstafanir. Þingmálafundir hafa nýlega verið haldnir á Akureyri og fsa- firði. Samkvæmt símskeytum, sem borist hafa fréttastofunni, hafa verkamenn verið -öllu ráð- andi á fundum, enda samþykt til- lögur í anda jafnaðarmanna. Á ísafirði tóku fhaldsmenn ekki þátt í atkvæðagreiðslu.—Tíminn. Borgc,,nesi, 1. jan. Tíðin hefir verið nokkuð um- hleypingasöm undanfarið. Við bráðapest hefir lítið eða ekki orðið vart. — Heilsufar er gott.— Allflestir munu hafa tekið skepn- ur á gjöf í desember, en sumir nokkru fyr. \ Vestm.eyjum, 31. des. f gær fór fram afhending á hin- um nýja spítala, sem Gísli John- sen konsúll hefir rist. Húsið er fyrir 30 sjúkinga, 19.5x10.5 m. að stærð, mjög vandað og veglegt. Kvenfélagið Líkn gaf 20 þús. kr. í innanstokksmunum, bæjarsjóður lagði til lóð, 30 þús. kr., aðrar stofnanir og einstakir menn sam- tals 30—40 þús. kr., sem konsúll- inn hefir safnað, en afganginn gefur hann og frú hans. Húsið með innanstokksmunum öllum kostar hátt á þriðja hundrað þús- und. Spítalinn hafði áður en af- hending fór fram, verið tekinn út af landlækni, húsameistara ríkis- ins, bæjarfógeta og héraðslækni og Johnsen konsúll lofað að bæta því við, sem að dómi úttektar- nefndaynnar á vantaði fyrir 1. marz næstk., því þá á spítalinn að taka til starfa. — í tilefni af þess- ari höfðinglegu gjöf hélt bæjar- stjórnin konsúlnum, landlækni og húsameistara ríkisins, sem hefir gert uppdráttinn að húsinu, stjórn kvenfélagsins og öðrum, sem við spítalamálið hafa verið riðnir, veizlu, og fór hún fram í gær- kveldi. Spítalanefndin og 40—50 manns voru þar. Afhenti þar kon- súllinn spítalann í hendur bæjar- stjórnarinnar til fullrar eignar og umráða. Auk hans tóku til máls: landlæknir, húsameistari, bæjar- stjóri, bæjarfógeti, héraðslæknir, séra Jes Gíslason, séra Sigurjón Árnason, Páll Bjarnason skóla- stjóri og Kolka læknir. 1 dag er húsið opið fyrir almeniíing og sýna læknarnir það þeim, er vilja. Spítalinn verður síðar vígð- ur af landlækni, áður en hann tek- ur til starfa. Leiðrétting—í skeyti frá Vestm. eyjum 31. des. kennir nokkurs mis- skilnings um eitt atriði, nfl. þar sem segir: “spítalinn verður síð- ar vígður af landlækni”, þar eð bæði afhending og vígsla fór fram þ. 30. des s.l., en hins vegar er ekki ætlast til að spítalinn taki til starfa fyr en 1. n.k. — Þá hefir landlæknir og upplýst um það, að það sé rétt hermt í skeytinu frá 31. des., að húsið muni kosta hátt. á annað hundrað þúsund fullgert. —Vísir 2. jan. Vegna fyrirspurna um Flateyj- arbók, sem félag manna á Akur- eyri hefir tekið' sér fyrir hendur að gefa út á næstu árum í alþýð- legri útgáfu, skal þetta upplýst um útgáfuna: Bókin er 124 arkir að stærð, eða nálega 2000 blaðsíður í stóru 8 blaða broti. í henni eru þessar meginsögur: ólafs saga Tryggvasonar, ólafs saga helga, Sverris saga og Hákonar konungs gamla. Inn í þessar meginsögur eru feldar 80 minni sögur og flokkar af Noregskonungum, öðr- um frægum mönnum í Noregi og á íslandi og margvíslegur fróð- leikur annar. — Flateyjarbók hef- ir verið gefin út eitt skifti aðeins, á árunum 1860—68. Var það textaútgáfa, þ. e. handritið pren- að orðrétt og stafrétt. Er staf- setningin mjög óaðgengileg al- þýðu, enda er útgáfan nú 1 sár- fárra manna höndum. Nú verður stafsetningu breytt til þess horfs, sem gept hefir verið um íslendinga sögur, og eru horfur á að þaulvan- asti íslendingur í þeirri grein, búi handritið undir prentun. Bókin á að koma út í þremur bindum, hvert þeirra um 6—700 bls. á vönduðum pappír og eitt bindi á ári. Á- skriftarverð hvers bindis verður, í góðri kápuhefting 10 kr., í snotru léreftsbandi 14 kr. í vönduðu skinnbandi 17 kr. En tilsvarandi bókhlöðuverð verður 15, 20 og 25 kr. Á móti áskriftum taka meðal annara Jónas Sveinsson bóksali Akureyri, Oddur Æjörnsson prent- meistari Akureyri, og ritstjóri Tímans. Nýlega var efnt til sýningar á íslenzkum málverkum í Kaup- I mannahöfn. Vóru þar málverk eftir ýmsa heistu málara lands- ins. Var sýningunni yfirleitt vel tekið f dönskum blöðum og nokk- ur málverk seldust. Bjarni Ásgeirsson alþm., sem fór utan til þess að rannsaka og undirbúa löggjöf um innflutning tilbúins áburðar á svipuðum grundvelli, og núverandi atvinnu málaráðherra hefir haft á prjon- um á undanförnum þingum, er ný- Iega kominn heim úr þeirri för. Eru góðar vonir um árangur af ferð hans, og að takast muni bráð- lega að lækka þessa nauðsynja- vöru landbúnaðarins til verulegra muna. Skömmu fyrir jólin vildi til það slys í verksmiðjunni Gefjun á Ak- ureyri, að verkamaður einn, Frið- geir Jónsson að nafni, mejddist stórkostlega í véHunum; og andað- ist hann á Þorláksmessu af af- lieðingum slyssins. — Á Þorláks- messu varð og úti 11 ára gamall drengur frá Knararnesi á Vatns- leysuströnd í Gullbringusýslu, sonur bóndans þar. Hafði hann gengið ásamt fleiri mönnum til kinda, verið sendur hejm með fjár- hóp, en snúið af réttri leið er dimmviðri gerði. Fanst hann ör- endur daginn eftir. Bjórsölumálið. Á miðvikudaginn í vikunni sem leið, samþykti Manitobaþíngið við þriðju umræðu, áfengislaga frum- varpið, sem það hefir varið mest- um tímanum til að fást við, síð- an það var kallað saman í vetur, og nú á þriðjudaginn voru lögin staðfest af fylkisstjóra. Mun þá ekkert að vanbúnaði, að bjórinn verði seldur í glasatali út um alt Manitobafylki, annað en það, að gistihúsin fái sitt bjórsöluleyfi, en á því mun ekki lengi standa, svo gera má ráð fyrir að bjórinn verði til sölu í glasatali í Winni- peg og í flestum öðrum bæjum í fylkinu, um miðjan þennan mán- uð, því gistihúsin munu flest, eða öll, hafa bjórstofurnar tilbúnar og lögunum samkvæmar. Hafa þau kostað til þess miklu fé, en eigendurnir gera sér vafalaust beztu vonir um, að það fé gefi þeim góðan arð. Islenzk glíma. Þjóðræknisþingið stendur nú fyrir dyrum. Fyrsta kvöld þess verður helgað íslenzkri kapp- glímu, eins og undanfarin tvö ár, um $100 verðlaun Jóhannesar Jós- efssonar glímumeistara. Glímunefndin, sem Þjóðræknis- félagið skipaði í fyrra, til þess að starfa milli þinga, hefir vonir um það, að þetta verði fjölmennasta glímumótið, er Þjóðræknisfélagið hefir enn staðið að. Fari svo, hef- ir glímunefndin ákvðið, að glímu- mönnum skuli skift í flokka, eft- ir þyngd. Verður úrslitaglíman þá miklu sanngjarnari, og vonar .nefndin að þessi vitneskja verði til þess að fleiri ræki glímuna en ella mundu. Glíman fer fram þriðjudags- kvöldið 21. febrúar, og hefst kl. 8.30. — Þeir sem ætla sér að taka þátt í henni, eru beðnir að gera aðvart ritstjóra Heimskringlu fyr- ir kl. 6 síðdegis, daginn sem kapp- glíman verður haldin. Ur bœnum. íslenzki söngflokkurinn, Ice- landic Choral Society, hélt sam- söng, undir stjórn Mr. H. Thor- ölfssonar, í Fyrstu lút. kirkju, síðastliðið þriðjudagskvöld, til arðs fyrir Björgvinssjóðinn. Sam- söngurinn var afar fjölsóttur, lík- lega nálægt. átta hundruðum manns, og skemti fólk sér yfir-! leitt hið bezta. Nánar í næsta blaði. Skemtisamkoman í Goodtempl- ai^ahúsinu á föstudaginn 10. þ.m., verður öðruvísi, en allar aðrar samkomur í Winnipeg í þessum mánuði að því leyti, að til hennar hefir verið vandað óvenjulega vel, en samt er aðgangur ókeypis og engin samskot tekin. — Auk þess, sem talíð er upp á skemtiskránni, fer þar fram atriði, sem ekki er nefnt og mörgum mun þykja gam- an að. — Þið sjáið og heyrið hvað það er, þegar þangað kemur. Að eins ein vika til mótsins mikla á Marlborough Hotel. A'lt er undirbúið.— Ágætis ræðumenn, sem halda stuttar en veigamiklar ræður, sóló-söngur, og allir syngja, hljóðfærasláttur mikill og góður (básúnur og bumbur barð- ar). Nógur matur og góður. — Fólk er beðið að koma í tíma, því sezt verður að borðum klukkan 8 stundvíslega. — Sex ágætir spilar-. ar spila fyrir dansinum, sem verð- ur í stórum og skrautlegum sal. — Pantið aðgöngumiða í tíma, því þeir fækka óðum., því að eins viss tala er seld. Þeir fást hjá O. S. Thorgeirssyni bóksala, Steind. Jakobssyni matvörusala og J. G. Thorgeirssyni matvörusala á Sar- gent Ave. — Mætist á Þorrab^ót- inu þ. 15. þ.m. Laugardaginn 4. febr. voru gef- in saman í hjónaband, af séra B. B. Jónssyni, Rosinant Thorsteins- son frá Selkirk og Sigfríður Paul- son frá Hecla, Man. Hjónavígsl- an fór fram að heimili Mr. og Mrs. John Magnusson, 9 Wi'llow- banlc St., Brooklands, Man. Kvenfélagið á Mountain hefir Þorramót í A.O.U.W. Hall, Moun- tain, laugardagskvöldið 18. febrú- ar kl. 7.30. Verður þar íslenzk máltíð á borðum, hangikjöt, rúllu- þylsa, harðfiskur, flatbrauð, pönnukökur og margt fleira. Einn- ig verða stuttar ræður, mikill söngur, kvæði kveðin og fleira. Æskilegt að allir fslendingar mæti það kveld. Aðgöngumiðar kosha $1.00, og eru til sölu víðs- vegar í bygðinni á hinum ýmsu póstafgreiðs'lustöðum. Silfurbrúðkaup. Á laugardaginn i vikunni sem leið, var silfurbrúðkaupsdagur þeirra hr. Bjarna Magnússonar og frú Guðrúnar konu hans, að 683 Beverley St. hér í borginni. ÖIl þau 25 ár, sem þau hafa verið gift, hafa þau átt heima í Winnipeg, og reyndar miklu lengur, eða frúin að minsta kosti, og eiga hér marga vini. Héldu vinir þeirra þeim mjög myndarlegt og ánægjuelgt samsæti á laugardagskveldið í samkomusal Fyrstu lút. kirkju. — Þegar gestirnir voru allir komnir, sem var skömmu fyrir kl. 9, sett- ust allir til borðs, en áður e» veitingamar voru framreiddar, lét Dr. Björn B. Jónsson, sem stjórn- aði samsætinu, syngja sálm og las biblíukafla. En eftir að gestirnir höfðu notið ágætra veitinga, sem fram voru bornar, voru ræður fluttar og margir söngvar sungn- ir af öllum, sem við voru og sung- ið gátu. Auk veizlustjóra tóku til máls þeir Sigfús Anderson, séra R. Marteinsson, Bergsveinn Long og A. S. Bardal. Höfðu ræðumenn- irnir margt gott að segja um silf- urbrúðhjónin, sem von var að, því þau hafa látið margt gott af sér leiða og mjög sómasamlega staðið í sinni stöðu. í safnaðar- málum hafa þau hjón jafnan tek- ið góðan þátt og í bindindismálum er Bjarni alþektur fyrir dugnað sinn og einlægni. ■— Auk þeirra skemtana, sem þegar eru taldar, spilaði ungur maður, Pálmi Pálma- son, tvisvar sinnum á fiðlu, og fórst það mjög vel. Að endingu talaði silfurbrúð- guiminn og þakkaði fyrir þá vin- áttu og heiður, sem sér og konu sinni væri sýnd með þessu fjöl- menna og prýðilega samsæti, og sagði hann, að þau mundu lengi minnast þessa kvelds og ekki gleyma þeim mörgu vinum, sem hér væru saman komnir. Litlu fyrir klukkan 11 var stað- ið upp frá borðum og allir óskuðu silfurbrúðhjónunum til hamingju. Kenslustarfsemi Brynjólfs Þorlákssonar. Að því hefir verið vikið hvað ofan í annað, hér í blaðinu, hve afar þýðingarmikið þjóðræknis- starf það sé, sem Brynjólfur Þor- láksson nú er að leysa af hendi meðal íslendinga í Winnipeg, með því að halda uppi söngkenslu þeirri meðal barna og unglinga, er nokkrir framtakssamir þjóð- ræknismenn börðust fyrir á síð- asta þjóðræknisþingi, að hrundið skyldi í framkvæmd. Starfsemi Brynjólfs í hinum ýmsu nýbygðum vorum, hefir þeg- ar borið hinn glæsilegasta árang- ur, og má því vafalaust vænta sama árangurs hér, svo framar- lega að fólk vort sýni málinu verðskuldaða alúð., Æfingar fara fram í Fyfstu lút- kirkju klukkan sjö, á hverju mánu- dags og fimtudagskveldi, en á laugardögum klukkan 3.30 eftir hádegi. Það má nú þegar fullyrða, að kenslan sé komin í æskilegt horf. Lætur Brynjólfur þess getið, að hann sé hæzt ánægður með árang- urinn fram að þessu, og að góðs eins megi vænt af flokknum. — Aðsókn að æfingum fer vaxandi jafnt og þétt, þótt enn sé nægilegt rúm fyrir* fleiri. Kenslan er ó- keypis, og ætti það sannarlega ekki að draga úr áhuga almenn- ings, með að færa sér hana í nyt. Söngkennarinn, Brynjólfur Þor- lákssön, biður þess getið, að æski- legt væri að fá enn í flokkinn nokkrar stúlkur frá fimtán til tuttugu ára, flokknum til frekari styrktar. Flogið hefir það fyrir, að ýms börn kynoki sér við að ganga í flokkinn sökum ótta við skort á þekkingu í íslenzku máli. Slíkan ótta telur söngkennarinn ástæðu- lausan með öllu, með því að hann sé sannfærður um, af reynslu þeirri, er hann þegar hefir feng- ið, að íslenzk börn hér í borg, standi íslenzkum börnum í öðrum vestrænum nýlendum, fyllilega á sporði. Nú er það alvarleg áskorun frá söngkennaranum og nefnd þeirri, er um framkvæmdir söngkensl- unnar annast, til íslenzkra for- eldra* að þau láti eigi undir höf- uð leggjast, að senda börn sfn á æfingar á tilteknum stað og tíma. Er hér um þjóðrækislega skyldu að ræða, er öllum ber jafnt að inna af hendi.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.