Lögberg - 08.03.1928, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. MARZ 1928.
BU. S.
1 meir en þriðjung aldar hafa
Dodd’s Kidney Pills verið viður-
kendar rétta meðalið við bak-
verk, gigt, þvagteppu og mörgum
fleiri sjúkdómum. Fást hjá öll-
um lyfsölum, fyrir 50c. askjan,
eða 6 öskjur fyrir $2.50, eða beint
frá The Dodds Medicine Co., Ltd.,
Toronto, ef borgun fylgir.
Canada framtíðarlandið.
Lake Winnipegosis, er annað
stærsta stöðuvatnið í Manitoba.
Lega þess er við upptök þeirra
vatna og fljóta, er að vestan falla
í Winriipegvatn. En það eru Wat-
erhen áin, Waterhen vatnið, Ma-
nitoba vatn, Fairford áin, Lake
St. Martin og Dauphin áin.
Tvær járnbrautir renna um bæ-
inn Winnipegosis, sem er miðstöð
fiskivéiða á þessu vatni.
Fiskurinn, sem veiddur er í Lake
Winnipegosis, er hvítfiskur, pikk-
ur og gedda (pike). Er sérstak-
lega á orði gæði pikksins (yel-
lows) í þessu vatni. Á Banda-
ríkja markaði, er sagt að þessi
tegund fiskjar sé betur borguð úr
Lake Winnipegosis en nokkru öðru
vatni. Sumarvertíðin er frá því
að ísa leysir til 15. ágúst. Er þá
hvítfiskur mest veiddur. En ekki
má veiðin fara fram úr 1,000,000
punda á vertíðinni. Pike má þó
veiða upp til fyrsta laugardags-
ins í októbermánuði.. Aðal fiski-
veiðin á þessu vatni er þó að vetr-
inum. Stunda hana hér um bil
250 manns, og er vetrarveiðin
vanalega tveim-þriðju meiri en
sumarveiðin. Árið 1924 var sum-
arveiðin 954,800 pund og seldist
fyrir |$54,703. pEn vetrarveiðin
var 3,869,500 pund og var metin
á $193,205. — Alls fiskaðist því
á árinu 4,824,300 pund, sem í
peningum námu $247,908, á vatni
þessu.
Manitobavatn er þriðja stöðu-
vatnið að stærð í fylkinu og er
mikilsvert, sem veiðivatn. Það
er milli stórvatnanna Winnipeg-
vatns og Winnipegosis vatns, og
er tengt við bæði þessi vötn með
ám og fljótum.
Á essu vatni er eingöngu fiskað
að vetrinum. Samgöngur eru
greiðari út að vatni þessu, en
nokkurra hjnna stærri vatna. Og
beggja megin við það, er landið
vel setið. Hefir þetta hvort-
tveggja mikla þýðingu í þá átt,
að draga fiskimenn að vatni
þessu. Enda kveður nú svo mik-
ið að aðsókn manna til fiskiveiða
á Manitobavatni, að nærri allur
helmingur þeirra er fiskiveiði
stunda að vetrinum til i fylkinu,
leita nú þangað. Árið 1924 voru
gefin út 779 veiðileyfi og vetur-
inn 1925 jukust þau um 200. Auð-
vitað verður veiði hvers manns
minni, er þeir hnappast saman út
á þetta eina vatn. En eigi að
síður er hagur þeirra oft engu
minni en annnars staðar af fiski-
veiði. Veldur því það, að bæði er
útbúnaður við veiði á þessu vatni
m,iklu ódýrari, en á hinum vötn-
unum, og svo eru járnbrautirnar
nálega hvar sem er við hendina
að flytja fiskinn til markaðar.
Svo þegar til alls kemur, borgar
veiðin sig á þessu vatni tiltölrlega
mjög vel.
Á siðastliðnum árum hefir ný
ÞEIR SEM ÞURFA
LUMBER
KAUPl HANN AF
The Empire Sash& Door Co.
Limited
Office: 6th Floor Bank of Hamilton Chambers
Yard: HENRY AVE. EAST. - . WINNIPEQ, MAN.
VERÐ og GŒDI ALVEG FYRIRTAK
Þeir íslendingar, er í hyggju hafa að flytja búferlum til
Canada. hvort heldur er heiman af íslandi eða frá Bandaríkjun-
um, sendi skriflegar fyrirspurnir til ritstjóra Lögbergs.
Ye Olde Firme
HEINTZMAN & CO. PIANO
ÁÖur en þír takið þi þýðingarmiklu ákvörðun að velja piano fyrir heimili
yðar. þá heyrið fyrst Heintzman & Có. Ágaetustu hljóðfseri ( Canada.
Ef þér búið ekki í borginni, þá skrifið oaseftir upplýsingum og verðlista.
J. J. H. McLEAN L00
The West’s Oldest Music House,
329 Portage Are. - Winnipeg
Hið nýja heimili Dominion Busi-
ness College er algerlega útbú-
ið öllu því, er þarf til að gefa
fullkomnustu verzlunai'kenslu.
í átján ár hafa verkveitendur
í Winnipeg tekið stúdenta frá
Dominion skólanum fram yfir
aðra.
Það borgar sig að ganga á
góðan kóla.
DOU
BUSINESS;
THE MALL — WINNIPEG
TELEPHONE 37 181
BLUE ribbon
Powder
Því að vera í vanda með valið? Notið að eins BJue Rfbbon,
og þá munu allir aðiljar ánægðir verða.
Sendið 25c til Blue Ribbon, Ltd., Win-
nipeg og fáið Blue Ribbon Cook Book,
f ágætu bandi,—bezta matreiðslubók-
in, sem hugsaat getur fyrir heimili
Vesturlandsins.
aðferð verið tekin upp í sambandi
v,ið fiskiveiði á Manitobavatni.
Er hún sú, að senda fiskinn fersk-
an eða ófrosinn til markaðar. Er
fiskurinn látinn í ís eða snjó, og
fluttur í kælivögnum með járn-
brautum. Er hiti svo jafn í kæli-
vögnunum, að fiskurinn hvorki
frýs né þiðnar. Kostar auðvitað
miklu meira að senda fiskinn með
þessum hætti, en samt þykir það
vel borga sig, svo miklu auðveld-
ara er að ^elja hann nýjan. Það
hefir komið fyrir, að pikkur hefir
selzt í heildsölu á 40—50 cents
pundið I New York, sem þannig
hefir verið sendur.
Fiskitegundirnar í Manitoba-
vatni eru eftir þýðingu taldar
sem markaðsvara, sem hér segir:
Pikkur, byrtingur, .hvítfiskur,
gedda, Yellow Perch, og Mullet.
Svo mikið, sem fiskað hefir ver-
ið S vatni þessu, er engin þurð á
fiski þar. Árið 1924 nám vetrar-
veitðin 4,855,800 pundum. Mark-
aðsverð hennar var $312,317.
Dauphin vatn. Á því er að eins
fiskað að vetrinum Er það við
hjartarætur eins hins elzta og
bezta búnaðarhéraðs í fylkinu.
Hefir vegna þeirrar legu verið
svo að segja takmarkalaust fisk-
að í því 1 síðast liðin 35—40 ár,
enda er nú farin að minka þar
veiði. Vatnið er fremur grunt og
í það falla ekki aðrar ár, er fisk-
ur gæti gengið eftir, en Mossy-
áin, er í Winnipegosis-vatnið
rennur.
Árið 1924 veiddust þar 152,000
pund af ýmiskonar fiski, svo sem
pikk, geddu, gullaugum, byrtingi
og Mullet. í peningum nam veið-
in $9,289.
Lake St. Martin er ekki stórt
vatn og fiskviði er þar ekki stund-
uð nema að vetrinum. Vatnið má
heita hluti'af Fairford- og Dauph'-
in-ánum og er því partur af þeim
vbtnaklasa, er tengir Winnipeg-
vatn og Manitobavatn saman.
Fyr á tímum var í Lake St. Mar-
tinvatni meiri hvítfiskveiði, en í
nokkru öðru vatni S hlutfalli við
stærð þess. Seinni part sumars,
virtist sem hvítfiskur úr Winni-
pegvatni færi upp eftir Dauphin-
ánni og inn í Lake St. Martin til
að hrygna. Kom sá fiskur þá ekki
aftur til Winnipegvatsnins fyr en
í desembermanuði eða janúar-
mánuði. En þetta hefir breyzt á
síðutsu fimm eða sex árum, hvað
sem því veldur, og hvítfiskiveiði
í Lake St. Martin er nú orðin lít-
il. Árið 1924 veiddist þar ýmis-
konar fiskur, er alls nam 113,200
pundum og seldist á $8,130.
Þá hefir nú verið minst á veiði-
vðtn þau, sem eru í þeim hluta
fylkisins, er kallaður hefir verið
eldri Manitoba. En á mörg fleiri
má benda, er veiði er nú rekin í
með miklum hagnaði. Skal á þau
minst síðar.
WALKER.
Næstu tíu daga, frá 8. þ. m. að
telja, sýnir leikflokkur Mrs. Bran-
don Thomas, tvo kýmnileika í
Walker leikhúsinu. Heitir hinn
fyrri “Lord Richard in the
Pantry”, með Cyril Maude í aðal-
hlutverkinu, og “Big Fleas”. Eru
báðir leikirnir skemtilegir með
afbrigðum, og leiknir af úrvals-
leikendum. — Þess verður heldur
ekki langt að bíða, að Sir John-
Martin Harvey, sýni list sína á
Walker leikhúsinu.
Dánarfregnir
Þann 15. febr. andaðist á heim-
ili sínu, Flatatungu, í grend við
Árnes P. O. Man., Mrs. Anna Sig-
fúsdóttir Hallgrímsson. Hún var
fædd 10. apríl 1842 í Gljúfrárkoti
á Skíðadal, í Svarfaðardal í Eyja-
fjarðarsýslu. Voru foreldrar
hennar Sigfús Jónsson og Anna
Jónsdóttir. Fóstruð var hún upp
af hjónum á Hrísum í Svarfaðar-
dal. Anna giftist 27. sept. 1865,
Sigurbirni Hallgrímssyni; reistu
þau bú á Mýrarlóni, bjuggu síðan
í Lögmannshlíð, en fluttu þaðan
til Canada 1874. Dvöldu þau eitt
ár í Ontario, en komu til Gimli
1875, í fyrsta hópi ísl. landnema.
Nokkrum árum síðar námu þau
land í Flatatungu og bjuggu þar
æ síðan. .— Þeim varð sjö barna
auðið; lifa tvær dætur: Guðrún
Helga (Mrs. Anderson), í Poplar
Park, og Hallgríma Friðrika, sem
hefir verið aðstoð aldraðra for-
eldra sinna. — Barnabörn önnu
heitiinnar eru 21 á lífi, en barna-
barnabörn 25. Höfðu þau hjón
verið í hjónabandi meira en 62
ár. Er hinn aldraði maður, sem
eftir er skilinn, við furðu góða
heilsu, og fylgist með því, sem er
að gerast, er enn léttur á fæti,
þótt elli sé tekin að beygja hann.
Anna heitin var þrekkona, og
hafði unn'ið mikið og vel, vel
greind að náttúrufari. Þrotin var
hún að heilsu hin síðustu ár, og
naut þá hjúkrunar Friðriku dóttur
sinnar Anna var jarðsungin þ.
18. febr. og fór kveðjuathöfn fram
á heimili hennar og frá lúterksu
kirkjunni í Árnesi. Var margt
manna viðstatt, þrátt fyrir óblítt
veður þann dag.
Sigurður Ólafsson.
Stórstúkuþing Templara
Það var haldið í G. T. húsinu á
Sargent Ave., Winnipeg, þann 27.
og 28. febrúar mánaðar. Fulltrú-
ar mættu frá þessum stúkum;
“Heklu”, “Skuld”, “Hope of Elm-
wood” og “'Britannia” í Winnipeg.
En úr sveitunum frá stúkunni
"■afold” í Riverton, “Vonin” á
Gimli, “Einingin” í Selkirk, “Fram-
þrá” á Lundar og frá stúkunni
“Arborg” í samnefndum bæ.
þessu:
1) Að farið sé fram á, að fylk-
isstjórnin skipi mann, er umsjór
og eftirlit hafi með bindindis-
fræðlslu.
2) Þingið lýsir vanþóknun sinni
á því, að “Cash and Carry” að-
ferðin var leyfð í sambandi við
vínsölu og að ekki voru hömlur
lagðar á að auglýst sé áfengi í
blöðum.
3) Að lögleitt sé að banna ung-
lingum, eða drengjum innan 21
árs, að keyra vínflutninga vagna.
4) Að rannsakað sé frekar, hvort
umboð fylkisstjórnar sé svo tak-
markað í framleiðslumálum, að
það geti ekki látið sig varða til-
búning öls og víns. (Hafa fram-
kvæmdir í þá átt, að stöðva víns-
tilbúning oft strandað á því, að
framleiðsla öll (jnanufacturing)
sé lögum samkvæmt í hðndum
sambandsstjórnar og þá vínfram-
leiðsla éins, en ekki fylkisstjórn-
ar.)
5) Að vinna að því, að fræða
almenning uml bindindismál og
glæða hugsjónir hans fyrir því
velferðarmáli, unz takmarkinu er
náð «g áfengissukkið er gert
landrækt.
í framkvæmdarnefnd stórstúk-
unnar voru þessir kosnir fyrir
komandi ár:
S.Æ.T.: A, S. Bardal.
iS. Kansl.: G. P. Magnússon.
S. Rit.: Miss F. Long.
S.V.T.: Gunnl. Jóhannsson.
F.S.Æ.T.: S. Mathews.
S. Gjk.: Hjálmar Gíslason.
S. Kap.: W. R. Wood.
S. Dr.: J. C. Bessason, Selkirk.
S.G.Kosn.: J. Halldórss,, Lundar
S.G.Ungt.: G. K. Jónatansson.
S.G.Fræðslm.: B. A. Bjarnason,
Arborg.
S.V.Alþj.Æ.T.: H. Skaftfeld.
Að kvöldi hins 29. feb. fór fram
upplesturs samkepni, að tilhlut-
an stórstúkunnar. Tóku 5 stúk-
ur þátt i samkepninni. Heiðurs-
peninginn hlaut ungfrú Fríða Sól-
mundsson frá Gimli. En allar
þóttu stúlkurnar hafa leyst verk
sitt vel af hendi.
Á þinginu var þéim stórtemplar
A. S. Bardal og W. R. Wood sér-
staklega þakkað fyrir þeirra ó-
trauða starf í þarfir bindindis.
V*r þess getið, að hinn fyrver-
andi hefði mætt á hástúkuþingi í
rBandaríkjunum í sumar fyrir
hönd stórstúku Norðvesturlands-
ins, sem hann veitir forstöðu, og
fyrir hönd Goodtemplara á ís-
landi. Kostaði hann ferð þessa
sjálfur og þáði ekki eyri að ó-
makslaunum úr handraða stúkn-
anna. Var og á orði haft, að
hann hefði ekki nýlega upp á
þessu tekið.
S. E., a.rit. st.st.
Fregnir frá Ottawa.
eftir L. B. Bancroft,
þingmann Selkirkkjördæmis.
Umræðum, um fjárlaga frum
varpið, er enn éigi lokið, þótt far-
ið muni nú nokkuð að síga á
seinni hlutann. Á meðal þeirra,
er til máls tóku, var C. _H. Cahan,
íhaldsflokksþingmaður frá Mont-
real. Gerði hann breytingar til-
lögu við frumvarpið, þar sem hann
lýsti yfir óánægju sinni út af
því, að stjórnin gerði engar ráð-
stafanir til þess, að auka at-
vinnu í landinú, né heldur tryggja
canadiskum vörum sæmilegan
markað heima fyrir. Næst tók til
máls iB. W. Fansher, progressive
þingm. fyrir Lambton kjördæm-
ið, er einnig flutti breytingartil-
lögu, og lét í ljós óánægju sína
yfir því, að stjórnin skyldi lækka
tekjuskattinn, taldi lækkun vernd-
artollanna alt of lága og veittist
mjög að þeirri ráðstöfun, að sölu-
skatturinn skyldi eigi verið hafa
afnuminn með öllu.
Flestir þeirra íhaldsmanna, er
til máls tóku, voru frá Ontario.
raun varð á. Annars hafa um-
ræðurnar verið svo mjög á víð og
dreif, að ýmsa hefir furðað á því,
að þær gæti í raun og veru snúist
allar um sama fjárlagafrum-
varpið.
Tekjuskattur sá, er sambands-
stjórnin jafnar niður, er með
tvennum hætti, sem sé tekjuskatt-
ur einstaklinga og tekjuskattur
viðskiftastofnana. Árið 1927,
nam tekjuskattur einstaklinga, er
sambandsstjórninni féll í skaut,
$18,000,000, um leið og tilsvar-
andi skattur frá verzlunar og við-
skiftastofnana, hljóp upp á
$29,000,000. Samkvæmt fjárlaga-
frumvarpi því, er hér um ræðir,
er tekjuskattur einstaklinga lækk-
aður um tíu af hundraði. Er skoð-
un núverandi fjármálaráðgjafa
slík, að sá skattur skyldi afnum-
inn sem tekjugrein sambands-
stjórnarinnar, en í stað þess gætu
fylkin eftir vild, aflað sér tekna
með slíku móti. Ekki er þó ó—
hugsandi, að um þá uppástungu
g ti orðið næsta skiftar skoðanir.
Samkvæmt núverandi fjárlaga-
frumvarpi, hefir verndartollur
hækkaður verið á tveimur fram-
leiðslutegundum, að ráði toll-
málanefndarinnar, en lækkaður á
tuttugu og sjö, svo sýnt er, að
sporin eru hreint ekki svo fá, er
stjórnin hefir stigið í rétta átt,
með ákvæðum hinna nýju fjár-
laga.
Flestar hinna föstu nefnda, eiga
afar annríkt um þessar mundir.
Sá, er línur þessar ritar, á sæti í
akuryrkju og innflutningsmála-
nefndinni, auk þess sem hann er
jafnframt meðlimur þeirrar
nefndar, er um fiskiveiðar fjall-
ar. —
FUNDARGERÐ
Sveitarráðsins í Bifröst.
Annar fundur var haldinn 1.
febrúar 1928 í Árborg, Man. Við-
staddir voru: B. I. SigvaJdason,
oddviti; G. Sigmundson, M. Woj-
chychyn, B. J. Lifman, J. Sigurd-
son, O. Meier, og Steve Spdanyk.
Sigurdson skýrði frá, að hann
hefði talað við John Burak við-
víkjandi börnum hans, sem væru
hjá St. Benedict systrunum og
sveitin gæfi með. Mr. Burak
hafði sagt, að ástæður sínar væru
þannig, að hann gæti ekki haft
ofan af fyrir börnunum.
Gunnar Einarsson, Hnausa, og
Björn Bjarnason, Geysir, keyptu
N.E. 24-22-3E. af sveitinni fyrir
$200 út í hönd og borguðu auka-
kostnað.
Frank Dolinsky óskaði að mega
vera á S.E. 24-21-2E. Hann hafði
tekið hér um bil þrjú járnbraut-
arvagnhlöss af við af landinu.
Sveitarráðið ákvað, að hann borg-
aði $15 fyrir hvert vagnhlass, eða
hann yrði að fara burtu. Wm.
Holyon, að N.E. 15-24-lE. skýrði
frá, að Manitoba Farm Loans As-
sociatjon þiundi borga sveitinni
$500 fyrir áfallinn skatt og ann-
an kostnað á fyrnefndu landi. Þar
sem sveitin hafði þegar beðið um
eignarbréf fyri landinu, var á-
kveðið að taka ekki ákvörðun fyr
en það kæmi.
E. P. Garland fór fram á það
fyrir Riverton Manufacturing Co.
að gamla brúin í Riverton sé tek-
in burtu, þar sem hún sé ófær til
notkunar og hindri bátaferðir um
ána.
Sigurdson og Lifman lögðu til,
að gefa félaginu leyfi til að rífa
brúna sveitinni að kostnaðar-
lausu og skyldi efnið úr henni
tilheyra sveitinni. Leyfi frá lög-
manni sveitarinnar þyrfti félagið
að fá áður brúin væri rifin.—Sþ.
Odviti skýrði frá, að G. O. Ein-
arson hefði sagt lausri stöðu
sinni sem innköHunarm. skatta.
Nokkrar umsóknir komu fram, en
niðurstaðan var sú, að V. Jóhann-
esson skyldi skipaður innköllun-
armaður fyrir $100 um mánuðinn
og 2% af þeim peningum, sem
hann sjálfur innheimti.
Oddviti skýrði frá, að hann hefði
samið við Lögberg og Farmers
Life um að birta útdrátt úr fund-
argerðum sveitarráðsins, og skyldi
hvort blað fá $50 á ári fyrir það.
Samþykt var að verja til þess $100
á ári. Móti því greiddu þó atkv.
þeir Sigmundson og Lifman.
Gddviti vakti máls á ákvörðun
þeirri, sem gerð hafði verið á síð-
asta fundi því viðvíkjandi, að
borga skólunum að eins eftir því,
sem skattarnir borguðust. Hann
hélt, að hér væri of langt gengið
og þetta væri ekki framkvæman-
legt. Var tilkynt, að þetta mál
yrði tekið til umræðu á næsta
fundi.
Fátækrastyrkur var veittur:
Mike Kalenchuk $30, Ladies Aid
Soc. of Silver, Man., $25, Salva-
tion Army $50, Can. Nat. Inst. for
the Blind $25,
Bréf voru lesin frá búnaðar-
deild fylkisstjórnarinnar viðvíkj-
andi auSum löndum og annað þar
sem tilkynt var, að Mr. Cummings
(of Land Settl. B'oard) yrði í Ár-
borg 9. febr. og óskaði að eiga tal
við svaitarstjórnina. Var odd-
vita og skrifara og Mr. Lifman
falið að eiga tal við hann. Skrif-
ara var falið að tilkynna búnað-
ardeildinni, að sveitin sé fús til
samvinnu við hana viðvíkjandi
byggingu eyðilanda.
Gddviti skýrði frá, að hann
hefði samið við lögmann sveitar-
innar um eignarbréf, sem sveitin
þyrfti að fá fyrir löndum, sem
væru að verða hennar eign og
mundu verða yfir 50 á þessu ári,
og tæki hann að eins $20 fyrir
hvert eignarbréf. Þetta sparaði
sveitinni mikla peninga.
Lifman og Sigurdson lögðu til
að aukalög nr. 292 séu nú lesin í
annað og þriðja sinn og þar með
élamlþykt.—ISamþ. Á móti þvi
greiddu atkvæði Wojchychyn og
Spadanyk.
Sigmundson og Lifman lögðu til
að aukalög nr. 293 séu nú lesin í
annað og þriðja sinn og þar með
samþykt.Samþ. Sömu tveir menn
greiddu atkvæði á móti.
Lifman og Sigurdson, sveitar-
ráðsm., var falið að útvega efni
og byggja brú á Section línu
norðan við 6-23-2E. Wojchychyn
var falið að byggja brú á town-
ship línu norðan við 35-21-2E —
Lifman var falið að byggja brýr á
tveimur stöðum, (á Hamrlik og
Jacobs línum).
Umsóknir um Soldiers Taxa-
tion Relief kom frá Mrs. I. Fjeld-
sted. E. S. Sigurdson og A. Hib-
bert og voru þær teknar til
greina.
Oddvita og skrifara var falið
að mæta fyrir sveitarinnar hönd
á fundi, sem þingnefnd fylkis-
þingsins héldi viðvíkjandi skulda-
bréfum sveitarinnar.
Eftirfylgjandi útborganir voru
samþyktar: Word 1,$21.55; Word
4. $4.02: Ward 5, $32.50: Ward 6.
$7.88; Stationery, $52.03; General
Expense, $27.00; Postage and Ex-
cise, $12.50; Legal Exp., $79.30;
Hospitals, $568.25; Village of Ar-
borg, $17.05. — Total, $822.08.
Næsti fundur ákveðinn í Ár-
borg 7. marz 1928.
TORONTO MINING STOCK
Stobie-Furlong-Mathews)
MARCH 7th. 1928.
Abana Open High. Cloce
298 290
Aeonda 38 37
Amulet 450 433
Bidgood 75 75
Central Man. ... 155 155 153
Columbus K. .. ■ 4% 4% 4%
Dome 1160 1140
Gold IIill 30% 28
Gran. Rouyn .. . 24 24 23%
Hollinger .1715 1715 1705
Howey 140 140
H. B. M. & S. .. .1710 1740 1740
Int. Niekel .... . 84% 85% 85%
Jaek Man 75 75
Kootenay Fl. .. . 35% 37 35
Macassa 40 40
Noranda 1984 1985
Premier 275 270
Pend Oreille .... 1920 1865
San Antonio .... 39 36
Sud Basin .. 950 950 . 920
Sudbury Mines . 23% 23% 23
Sher. Gordon .. 750 745
Teck Hughes .. .. 900 910 905
Tough Oakes . . .. 62 63 61
Wakenda 13% 13%
W. Dome Lake . 13% 13% 13%
Auk fulltrúa frá þessum stúk-
um og stórstúku-nefndar, sótti
íjöldi annara Goodtemplara þing-
ið. Má af aðsókn þeirri ráða, að
áhugi manna sé óvanalega vel
vakandi fyrir bindindi.
Skýrslur framkvæmdarnefndar
stórstúkunnar báru það og með
sér, að ötullega hafi unnið verið
að Templaramálum á árinu. Nýj-
ar stúkur voru stofnaðar og dauð-
ar vaktar upp; Félaga tala hafði
mikið aukist á árinu. Á sviði
ungmenna hefir meira verið unn-
ið en áður að Goodtemplaramál-
um og með bezta árangri. Nýr
og einbeittur áhugi virðist einn:g
hafa vaknað fyrir fræðslu og út-
breiðslustarfi.
Nokkur af þeim málum, er
þingið samþvkti voru fólg;o <
Fordæmdu þeir undantekningar-
laust stjórnina fyrir lækkun þá á
verndartollum, er fjárlagafrum-
varpið gerði ráð fyrir. Spáðu
þeir því, að af slíku tiltæki
myndi það leiða, að baðmullar og
ullarverksmiðjur flestar yrðu með
því neyddar til að hætta viðskift-
um. Við slíkar fullyrðingar væri
nú samt líklegast ekki úr vegi að
nota frádráttartöfluna, því þær
hafa ávalt og á öllum tímum kom-
ið fram, er um lækkun verndar-
tolla var að ræða.
Hinir og þess?r utanflokkaþing-
menn frá Ontario og Alberta, hafa
'ýt’ð í ljós megna óánægju yfir
’mVkun tekíuskattsins, og þyrlað
-''^’iframt urm beilm’khi mold-
'k-’ yf’> b-r? ak >',í”-*-oiiarn-
•o—i oi-i-- en
SENDA
yður
ágœta
Orfhgjyþonic
VICTROLA
Beztu söluskilmálar í
Canada.
E. NESBITT LIMITED
O thophonic Victrola*, Reco»d»aruI Radio.
Sargent Ave. við Sherluooke Strœti
Talsími 22 688