Lögberg - 12.04.1928, Side 5
LöGBERG, FIMTUDAGINN 12. APRIL 1928
Bla. 6.
1 meir en þriðjung aldar hafa
Dodd’s Kidney Pills verið viður-
kendar . rétta meðalið við bak-
verk, gigt, þvagteppu og mörgum
fleiri sjúkdómum. Fást hjá öll-
um lyfsölum, fyrir 50c. askjan,
eða 6 öskjur fyrir $2.50, eða beint
frá The Dodds Medicine Co., Ltd.,
Toronto, ef borgun fylgir.
Canada framtíðarlandið.
“Mér finst að fáar atvinnugrein-
ar muni borga sig betur en bú-
sktpur.” Svo sagði við mig mað-
ur, sem verið hafði bóndi sem
nætst 15 ár. Hann kom allslaus,
eins 0g margir aðrir, frá íslandi.
Hann fékk sér heimilisréttarland,
sem var erfitt viðurpignar — bæði
lélegur jarðvegur 0g langt frá
járnbraut. En þrátt fyrir erfið-
leikana gekk þessum manni vel.
Hann var iðinn, útsjónarsamur
og lærði fljótt, ef hann sá eitt-
hvað betur gert hjá öðrum, eða
betur hagað til með eitthvað.
Hann seldi bú sitt á árunum, þeg-'
ar alt var í sem hæztu verði, og
tók þá upp aðra atvinnugrein.
Hafði honum safnast laglegur
höfuðstóll á búskaparárunum og
með þessum peningum gat hann
svo haldið áfram að vinna, en
unnið sér miklu léttara.
Landvinna er oft hörð, langur
vinnutími og verkin sjálf erfið.
En bóndinn getur oftast sýnt,
eftir nokkurra ára búskap, að
honum hafi græðst fé, og að hann
eigi þurfi að hætta við búskapinn
með tvær hendur tómar.
Fyrir aldarf jórðungi síðan þótti
ekki út úr vegi fyrir allslausan
mann, eða sama sem allslausan,
að fara að búa. í þá daga gerði
fólk ekki eins mikið tilkall til
lífsins eins og nú.. í þá daga gátu
fáir dalir keypt býsna margt. Nú
er þetta breytt. Maður, sem ætl-
ar að fara að .búa,.verður að hafa
fé til að byrja með, — hvað mikið,
er undir því komið, hvar sezt er að
og hvernig búskapurinn er, hvort
t. d. að það er kornrækt, mjólkur-
bú 0. s. frv. Það er orðinn helzt
ógerningur, að byrja með alt í
skuld. Ef eitthvert óhapp kemur
fyrir, þegar verið er að byrja, get-
ur það vel orðið til þess að eyði-
leggja tilraunina. Ef maður er
allslaus, en vill búa, verður hon-
um bezt að vinna hjá öðrum, þar
til honum safnast svo fé, að hann
geti byrjað fyrir sjálfan sig. Alt
af má byrja smátt, og ef maður-
inn er útsjónargóður, hefir hann
sig fljótt áfram.
Bóndinn verður að vera útsjón-
arsamur, ekki síður en verzlunar-
maðurinn. Það hefir verið álitið
af fleirum og færri, að ef ein-
hver væri óhæfur að hafa sig á-
fram í bæ, eða borg, þá væri bezt
að koma honum út á land og láta
hann fara að búa. Hver, sem
reynt hefir búskap, hér eða ann-
ars staðar, mun fljótt segja, að
þetta sé ekki rétt hugsað.
Bændur fara á höfuðið, eins og
aðrir. Bóndinn verður að vera
iðinn og útsjónarsamur. Meðan
hann er ókunnugur, verður hann
að sækjast eftir að læra af þeim,
sem reynsluna hafa og sem hafa
komist áfram. í búskap, ekki
síður en öðrum greinum, er alt af
eitthvað nýtt að læra, og bóndinn
verður að bera skyn á margt.
Sem dæmi, skal nú sagt frá
tveimur bændum, sem stunduðu
kornrækt hér í Manitoía. Skul-
um nefna þá A og B. Báðir keyptu
lönd á sama tíma og fyrir sama
verð. Þetta voru góð lönd, ná-
lægt járnbraut og jörð öll
‘brotin’.
A keypti 320 ekrur — hálfa
“section”, fyrir $13,000. Á land-
inu voru fremur góðar byggingar.
B keypti jafnstórt land, en af því
byggingar voru ekki eins góðar,
fékk hann sitt land fyrir $10,000.
Löndin voru mjög lík að gæðum
og lágu sitt hvoru megin við
brautarstæðið.
A borgaði $3,000 niður í bújörð
sinni—, það var nærri allur sá
höfuðstóll, sem hann hafði ætí-
að sér að byrja með. Það sem
eftir stóð — $10,000 — átti að
borgast á 10 árum. Alt svo átti
A að borga $1,000 og vexti af
skuldinni sem eftir stóð, á hverju
ári. A vann jafnan einn á Iandi
sínu og fékk sér ekki hjálp nema
um uppskerutímann, þegar mest
lá á. Eftir 10 ár var landið út-
borgað. A hafði alt af staðið í
skilum. Tveimur eða þremur ár-
um seinna seldi A alt landið.
Hafði hann nálega $25,000 í aðra
hönd. Landið seldi hann hærra
’verði, en hann hafði keypt það.
Hann brá búi, þegar allar afurð-
ir voru í sem hæstu verði.
Hvernig fór fyrir B? Hann
hafði drengi sina með sér. Þeir
voru fjórir og voru þeir eldri bún-
ir að vinna með honum, meira og
minna, í nokkur ár, áður en hann
brá búi. Þess skal getið, að A
var einnig kvæntur maður 0g átti
þrjú börn, tvær stúlkur og dreng,
sem yngstur var.
B borgaði lítið niður í landi
því, sem hann keypti — 0g það
var hið eina, sem hann borgaði
því. Hann brá búi jafnt og A,
en á þeim tíu árum, sem A var að
borga út sitt land, greiddi B að-
eins vexti af höfuðstól. Þegar B
svo flutti sig, átti hann ekkert
meira í bújörðinni heldur en þeg-
ar hann kom.
A lét vel yfir sínum búskapar-
árum. Honum hafði lánast vel,
þó oft væri hart í búi. Algerðum
uppskerubrest hafði hann aldrei
orðið fyrir, en tvívegis eyðilagð-
ist mikið af korninu — í annað
sinn af hagli, en í hitt skiftið af
ryði. En A hafði kvikfénað jafn-
framt kornrækt og sagði hann, að
það hefði bjargað sér þau árin,
þegar kornið fór illa.
B vildi lítið sinna kvikfénaði
Hann hafði nokkrar kýr og seldi
mjólk. B fanst helzt ekkert af
þessu borga sig. í hans augum
voru kjör bóndans alt annað en
góð og honum fanst lítið upp úr
búrækt að hafa.
Báðir höfðu mennirnir rétt fyr-
ir sér. Annar hafði aukið sinn
höfuðstól úr liðugum $3,000 upp
í $25,000. Á sama tíma hafði hinn
staðið í stað.
Ókunnugur maður, sem talað
hefði við B um búskap í Vestur-
Canada, hefði hlotið að komast
að þeirri niðurstöðu, að það væri
eiginlega ómögulegt fyrir bónd-
ánn, að hafa sig áfram hér. B
hefði ekki þurft að fara með ó-
sannindi, til þess að koma þessari
hugmynd inn hjá hinum. Alt sem
B þurfti að gera, var að segja sína
eigin sögu. Það var nóg og meira
en nóg.
En hefði þessi sami maður tal-
að við A, hefði hann fengið alt
aðra hugmynd. A var vel ánægð-
ur með sitt. Hann hafði unnið
hart og neitað sér um margt —
hafði jafnvel ekki keypt “bíl”,
en honum hafði orðið vel ágengt.
A hefði ráðlagt hverjum dugandi
manni að reyna búskap og hefði
gefið honum mjög góð ráð. B
hefði sagt honum, að reyna aldrei
búskap, en gera hvað annað sem
væri.
Þessir menn voru btlnir að hafa
sömu atvinnugrein meira en 10
ár. í þessi ár höfðu þeir verið
nágrannar og þó létu þeir svona
misjafnt af reynslu sinni. Annar
var framsýnn, hinn ekki. B
hefði alstaðar átt í basli, en alveg
óvíst, að honum hefði alstaðar
lið eins vel eins og honum — og
fólki hans — þó leið á bújörð-
inni.
Þetta er eitthvert bezta dæmi
þess, sem eg hefi rekið mig á,
hvað tveir menn geta sagt mis-
jafnt frá en þó báðir sagt satt.
Eftir þessu sama tók eg í fyrir-
lestri séra Magnúsar Jónssonar
“docents”, sem hann flutti og lét
svo prenta um dvöl sína hér
vestra. Eftir því sem mig minn-
ir, var svo að segja alt satt og
rétt, sem séra Magnús sagði, —
en það var valið að eins af því
versta og það svo þannig sett
saman, að maður, sem ókunnugur
er, hlýtur að halda að þetta sé
hið hversdagslega og algenga hér
í Vesturheimi. — En það, auð-
vitað, nær engri átt. Séra Magn-
ús sá að eins gegn um svört gler-
augu, eins og B, því reynslan hef-
ir verið þannig.
í öðru héraði var eg einu sinni
staddur. Þar hafði uppskeran
skemst meira og minna nokkur*ár.
Aldrei hafði orðið alger uppskeru-
brestur, en mörgum fanst þeir
hafa asma sem ekkert haft í aðra
hönd. Þó nokkrir bændur höfðu
ekki getað látið inntektir og út-
gjöld mætast, og voru því mjög
óánægðir yfir ástandinu. Þar
sagði einn bóndinn við mig: “Þú
heyrir marga kvarta um peninga-
skort, og þeir segjast vera að
tapa. Eg get sagt fyrir mig, að
eg hefi alt af lagt peninga fyrir
á hverju ári síðan eg kom hingað,
og eg get bent á fleiri bændur hér
í bygðinni, sem sagt geta það
sama.”
Akuryrkjuskólar landsins hafa
síðari árin verið að segja bænd-
um, að þeir skyldu hafa heldur
minna land, en rækta það betur.
Það útheimtir minni vinnu og
minni kostnað, en uppskeran er
tiltölulega meiri. Það er enginn
efi á því, að margir bændur hafa
stórtapað á því, að reyna að rækta
of stóra bújörð. Þeir hafa orðið
stórskuldugir vegna landakaupa,
bygt á kornuppskeru eingöngu, og
hafi hún svo mishepnast, hefir far-
ið mjög illa. Eins hefir það reynst
betur, að hafafleiri en eitt járn í
eldinum. í stað þess að hafa að-
eins kornrækt, er minni hætta á
tapi, ef einnig er kvikfjárrækt.
Bóndinn, sem vill laga sig eftir
reynslu þeirra, sem vel hafa haft
sig áfram, og vill læra af þeim,
sem reynt hafa, þarf ekki að ótt-
ast, að hann ekki geti haft sig á-
fram í Vesturlandinu.
Rvík, 10. marz
Af Austfjörðum er nýlega sím-
að að bátar séu að byrja veiðar á
Hornafirði. Tíð hefir verið góð
austanlands undanfarið og gott
til beitar.—Vörður.
WALKER.
Skopleikarinn nafnfrægi, Sey-
mour Hicks, kemur senn hingað
til borgarinnar ásamt föruneyti
sínu, og leikur á Walker leikhús-
inu í viku. Hefst fyrsta sýning-
in mánudagskveldið þann 23. þ.
m.. Alls sýnir flokkur þessi þrjá
góða leiki, “Sleeping Partners”,
“Scrooge” og “Christmas Carol”.
Aukasýningar á miðvikudag og
laugardag. s
Það er engum vafa undirorpið,
að leikflokkur þessi er sá lang-
fullkomnasti þeirrar tegundar, er
til borgarinnar hefir komið á
seinni árum. Enda var ávalt hús-
fyllir, er hann lék hér- snemma 1
vetur. Þeir, sem leiklist unna,
ættu ekki að sitja sig úr færi í
þetta sinn.
Vélritunarsamkepnin.
FRANK N. COHEN
Frank N. Cohen, sem er stúdent
frá D. B. C., hefi runnið Manito-
ba-verðlaunin fyrir þa,ð hvað hann
er viss í réttritun. Áður hefir
hann unnið verðlaun fyrir hið
sama í samkepni, sem náði yfir
alla Canada. Hraðinn var 73.5
orð á mínútu.
Rafstöðvar á sveitabæjum.
Bræðurnir Eiríkur og Jón Orms-
synir, hafa síðastl. ár sett upp
rafstöðvar á sex sveitabæjum:
Stóru Mástungu í Gnúpverjahr.
stærð: 7,5 kw., 5,5 m. fall, verð:
9500 kr.), Hamragörðum undir
Eyjafjöllum (stærð: 5,5 kw., 20 m.
fall, verð: 5500 kr.), Meðaldal í
Dýrafirði (stærð: 8 kw., 4,5 m.
fall, verð: 11500), Múlakoti í
Fljótshlíð (stærð: 15,5 kw, 32 m.
fall, verð: 10 þús. kr.), Skálavík
við ísafjarðardjúp (stærð: 5,5 kw,
90 m, fall, verð: 12 þús kr.), Háa-
múla í Fljótshlíð (stærð: 5,5 kw,
90 m. fall, verð: 12 þús. kr.), og
Hámúla í Fljótshlíð (stærð: 24
kw, 20 m. fall, verð 7 þús. kr.).
Árið 1926 settu þeir bræður upp
stöðvar á Kaldá í önundarfirði
( tærð: 6,5 kw, 20 m. fal, verð:
7 þús. kr.), og á Ósi við Akranes
(stærð: 3 kw., 7 m. fall, verð 4500
kr.). Af þessum tölum, eem hér
eru tilgreindar, geta bændur lítið
eitt áttað sig á kostnaði við bygg-
ingu rafstöðva í sveitum.—Tím.
VÍSA.
MISS CHRISSIE BROMLEY
Miss Bromley, sem hér er mynd
ar, er Dominin Business College
nemandi og hefir skarað fram úr
öðrum í vélritunarsamkepni og
reyndist öllum öðrum fljótari ár-
ið sem leið. Hún var í byrjenda-
deildinni, en varð líka fljótari en
þeir þátttakendur, sem í eldri
deildunum voru. Hún ritaði 75.5
orð á mínútú.
MISS LOTTIE ROSENBLAT
Miss Rosenblat á mikinn heiður
skilinn fyrir þátttöku sína í vél-
ritunar samkepninni. Þeir gátu
tekið þátt í samkepninni, sem að
byrjuðu eftir 1. ágúst 1927. Miss
Rosenblat byrjaði í D. B. C. 15.
ágúst 1927, og 24. marz 1928, vann
hún fylkisverðlaunin og ritaði
55.7 orð á mínútu.
Þó að lífsins kulda kjör
kreppi þrátt að sinni:
Eg á eldheitt æskufjör
enn í sálu minni.
Þröstur.
Ellistyrkslögin.
Eins og skýrt hefir verið frá
hér í blaðinu, voru ellistyrkslög-
in samþykt á fylkisþinginu í Mani-
toba, rett áður en þinginu var
slitið. Enn hafa lögin ekki verið
staðfest af fylkisstjóra, og það
er enn ekki kunnugt hvenær það
verður gert, en líklegt þykir að
lögin verði staðfest einhvern-
tíma í sumar. En þótt lögin séu
enn eigi staðfest, þá getur fólk þó
nú sótt um styrkinn, og geta þeir,
sem vilja, fengið þau skjöl, sem
þar til þurfa, hjá Old Age Pen-
sion Branch, The Workmen’s Com-
pensation Board, 166 Portage Ave.
East, Winnipeg, Man. Spurning-
arnar, sem eru á umsóknarskjöl-
unum og umsækjandi þarf að
svara, eru margar og flestar auð-
veldar. Það sem hver umsækj-
andi þarf að vera viðbúinn að
sanna, er:
1. Að hann sé brezkur þegn, eða
ekkja, sem var brezkur þegn áð-
ur en hún giftist.
2. Að hann sé fullra 70 ára að
aldri.
3. Að hann hafi átt heima í
Canada síðastliðin 20 árin.
4., Að hann hafi átt heima í
Manitoba síðustu 5 árin.
5. Að tekjur hans nemi ekki
$365 á ári.
Umsókninni verða að fylgja
sainnanir fyrir því, að umsækj-
andi sé brezkur þegn og að hann
sé fullra 70 ára. Fyrir því, að
hann sé brezkur þegn, er borgara-
bréfið fullkomnasta sönnunin,
eða ef um konu er að ræða, sem
ekki hefir sjálf borgarabréf, þá
verður hún að sanna, að hún sé
eða hafi verið gift brezkum borg-
ara. Hvað aldurinn snertir, þá
er skírnar-vottorð eða fæðingar-
vottorð hentugast, eða þá gifting-
arvottorð, þar sem aldurinn er
tekinn fram, eða þá einhver önn-
ur lögmæt skjöl, sem sýna hvað
gamall umsækjandinn er. En
jafnvel þótt ekkert slíkt sé fyrir
hendi, þá geta hlutaðeigandi em-
bættismenn tekið til greina eið-
fest vottorð frá ábyggilegum og
Veljið yður
Vor Skófatnaðinn
þar sem sérfratðingar gaeta þess vandlega
að hann fari vel á faeti.
Kvenskðr—reimaðir og hneptir, nýjasta
gerS og iitir. Úr svo miklu aS velja
að allir geta fengið það sem þeir vilja.
Allar stærðir og víddir, svo hver kona
fær það, sem henni hentar.
$5.00 til $13.00
Karlsmannaskðr.—Vér höfum hina ágætu Lees-skð, viðurkenda
að vera með hihum fallegustu og endingar bestu skóm, sem d*0 C A
nokkursstaðar fást.—Oxford gerðin þessa viku á.... «J)O.DU
Margar fleiri tegundir úr að velja. Veljið yður skð hér-^það borgar sig.
Allan Shoe Store ltd.
2(37 Portage Ave.
priOju dyr vcstur af Dingwalls.
Tals. 28 237
kunnugum manni.
Þá þarf umsækjandi að geta
sannað, að hann hafi verið 20 ár
í Canada og 5 ár í Manitoba. Eið-
fest vottorð frá einhverjum öðr-
um en umsækjanda, mun í því efni
væntanlega verða tekið til greina.
Þó er betra að hafa einhver skjöl,
sem sanna þetta, svo sem bréf,
sem umsækjandi hefir fengið eða
kvittanjr eða önnur viðskifta-
skjöl.
Eigi umsækjandi einhverja
fasteign, verður hann að gefa
lýsingu á henni og sanna eignar-
rétt sinn og sýna hvað hún er
virt. Enginn skyldi láta af hendi
eigur sínar með þeim tilgangi, að
fá fyrir það ellistyrk, því slíkt
verður ekki tekið til greina.
Umsóknarskjölin verða að vera
vottfest af Notary Public, Justice
of the Peace, Magistrate, eða
Commissioner for Taking Affida-
vits.
Allar upplýsingar, þessu máli
viðvíkjandi, veitir fyrnefnd skrif-
stofa (The Workmen’s Compensa-
tion Board), hvort sem heldur er
skriflega eða munnlega. En sjálf-
samt verður margt gamalt, ís-
lenzkt fólk að fá sér hjálp ein-
hvers, sem þekkingu hefir á þessu
máli til að koma þessu í fram-
kvæmd. f
Ýmislegt.í?
Er bindindismálið pólitiskt mál?
Líklega er hér verið að spyrja
um, hvort stjórnin, hver sem hún
er, feigi að fjalla um málið sér-
staklega. Ef maður skilur
spurninguna þannig, þá er bind-
indismálið pólitiskt mál eins og
öll önnur mál geta orðið það, sem
afleiðing afskifta stjórnarinnar.
Það var til dæmis leitt í lög á
Englandi af Vilhjálmi bastarði,
að hringt skyldi klukkan átta að
kveldinu, og skyldu þá slökt Ijós
og yrðu allir að ganga til rekkju
—hætta öllum leikaraskap eða
vinnu. Slík afskifti yrðu ekki
liðin að eg held, nú á dögum.
2. Það er reynsla fyrir því, að
gott væri að eta ekki kjöt, af hvaða
tegund sem er, heldur fisk, egg
eða jurtir. Stjórnin gæti tekið
sig til og bannað kjötát; en mundi
mörgum ekki þykja það fremur
mikil afskiftasemi, að stjórnin
færi að skifta sér af því, hvað
menn ætu mikið? Menn myndu
ekki álíta slíkt “pólitiskt” mál. '
3. Það er nú samt álitamál,
hvort ekki stendur svipað á, í
sambandi við afskifti stjórnar-
innar í bindindismálinu.
Líklega hefði aldrei orðið eins
mikill rekstur út af nautn áfeng-
is, ef gætt hefði verið hófs við
drykkjuna. Stjórnin hefði aldrei
farið að rekast í því, þótt ein-
hverjir tækju sér eitt eða fleiri
glös á dag, ef alt annað virtist
vera í góðu lagi,—maðurinn hegð-
aði sér vel og sæi sómasamlega
fyrir sér og sínum.
Stjórnin hefir tekið að sér mál-
ið, bæði hér í voru umhverfi og
víðar, vegna þess, að þess varð
fyllilega vart, að ýmsir drukku
of mikið, urðu sí og æ fullir, viti
sínu fjær, eyddu fjármunum sín-
um og létu konu og börn líða
skort tilfinnanlega.
Stjórnin varð við bæn almenn-
ings í því efni, að hefta þessa ó-
fyrirleitnu neytendur áfengis með
einhverju móti, halda þeim innan
vébanda siðferðisins, að einhverju
leyti, ef unt væri. Ef mennirnir
hefðu kunnað sér hóf, gætt hófs,
þá hefðu, menn aldrei beðið
stjórnina að skifta sér af málinu,
0g þá hefði málið enn verið það
sem það er í raun og veru, nefni-
1 ga siðferðislegt mál.
Yfirleitt álita menn það lélegt
siðferði, að neyta þess sem ekki
byggir upp líkama mannsins á
neinn hátt. Það er fullsannað vís-
TORONTO MINING STOCK
Stobie-Furlong-Mathews)
APRIL ioth, 1928.
Abana Open High. Cloce
308 300
Aconda 29% 28
Amvilet 350 330
Bidgood • ■ 101 110 103
Central Man. .. • • 139 140 138
Columbus K. . 3% 3% 3%
Dome ■ • 1050 1075 1065
Gold Hill • ■ 21 23% 23%
Gran. Rouyn . 24 2? 23
Hollinprer 1?«0 1685
Howey ... 108i Í22 115
H. B. M. & S. . ...1730 1730 1700
Int. Nickel ... . .... 90 90 89
Jack Man 77 77 75
Kootenay Fl. . . . . 30 32 32
Macassa ... 42 42 40
Noranda ...1760 1760 1755
Premier . . 240 240 225
Pend Oreille . . . 2175 2090
San Antonio . . . 40 38
Sud Basin ...1020 1025 1005
Sudbury Cont. . ■ 46 46% 46%
Sher. Gordon . .. • "25 755 740
Teck Hughes . ..• 895 917 905
Tough Oakes . . * 56 56 55
Gillett’s Lye, er notað
til þess að hreinsa sinks,
rennur o. fl. Einnig til
þess að búa tií yðar
eigin þvottasápu og
margt annað. Forskrift-
ir fylgja hverri könnu.
iémhbm
indalega. Það er líka álitið brot
á siðferðislögmálinu, að drekka
svo mikið, að maður verði ósjálf-
bjarga, veltist um flatur, þar sem
maður er ^tadddur, jafnvel þó
maður rambi á fótunum, en sjái
allra handa ofsjónir og kyssi í
misgripum varir einhverrar ásjá-
legrar blómarósar í staðinn fyr-
ir varir konu sinnar eða unnustu;
eða framkvæmi eitthvað enn al-
varlegra í ölæðisvímu, þegar
maður sér að ,eins í hálfskímu.
Ekki er það síður alvarlegt sið-
ferðislega og félagslega og fjár-
hagslega, þegar maðurinn sóar fé
sínu í drykkjuskap og ýmislegt,
sem af honum leiðir, og verður ó-
sjálfbjarga og byrði því sveitar-
félagi, sem hann lifir í. Það er
þetta 'sérstaklega, sem hefir knúð
menn til þess að hefjats handa og
reyna að hefta drykkjuskap með
öllu móti. Eitt af slíkum örþrifs-
ráðum, sem menn hafa tekið í
þessu sambandi, er að gefa málið
í hendur stjórnarinnar, láta hana
hjálpa, ef unt væri.^
í stuttu máli: ýmsir líða, þeg-
ar menn haga sér ekki eins og
óskandi væri:
1. Lífið verður í raun og veru
óbærilegt, þegar menn breyta
ekk i við aðra, eins og menn óska
að þeir breyti við sig.
2. Félagslífið verður mjög ó-
aðgengilegt, þegar sumir meðlim-
ir þess eru sí 0g æ groggaðir af
ölvímu.
3. Það verður fljótlega þreyt-
andi fyrir þá, sem lifa heiðarlegu
lífi og aldrei eyða neinu í áfengi,
og afleiðingar þess að ala önn
fyrir þeim, sem ósjálfbjarga hafa
orðið, sem afleiðing ofnautnar í
áfengum drykkjum.
Bindindismálið er því siðferði-
legt í insta eðli sínu; óbeinlínis
félagslegt 0 g fjárhagslegt; en
pólitiskt að eins í óeiginlegum
skilningi, sem afleiðing þess, að
sumir bindindismenn og aðrir hafa
fengið stjórninni það í hendur til
meðferðar.
Jóh. Eiríksson.
/■- »
“White Seal”
langbezti bjórinn
KIEWEL
Tals. 81 178 og 81 179