Lögberg - 12.04.1928, Page 7
LÖGBBRG, FIMTITOAGINN i2. APRÍL 1928.
Bla. 7.
Huginn og Muninn
ÆSKUMINNINGAR.
Eftir Finnboga Hjálmarsson.
(Framh.)
Barnaleikir og leikföng.
öll bðrn eiga æskuleiki, sum
fleiri og önnur færri, en öll ein-
hverja. Þessa leiki áttum við og
unnum þeim af hjarta. Þeir voru
sannir sólskinsblettir á vorhimni
æskunnar. Paparaleikur. Valinn
var sléttur flðtur og markaðir á
hann þrír reitir, sem sumir köll-
uðu hafnir. Miðreiturinn var ætl-
aður paparanum; hann var mark-
aður mitt á milli hinna tveggúa,
nokkur fet úr stefnu, svo þeir all-
ir mynduðu hér um bil þríhyrning.
Þeim, sem hlupu, tilheyrðu hinir
reitirnir tveir, sinn á hvorum
skeiðsenda. Á öðrum þeirra stóðu
í leiksbyrjun allir þeir, sem hlaupa
skyldu á auða reitinn. Lög þessa
leiks voru þau: aldrei mátti neinn
hlaupa inn í eða yfir reit paparans.
Hann hafði veri§ kosinn af öllum
hlaupagosunum fyrir leikforingja.
og um leið gengist undir það, að
hahdsama þá alla. Hann var því
svo rétthár, að enginn mátti stíga
fæti inn á hans reit. Yrði nokkr-
um sú goðgá, var hann kallaður
brendur, og vísað úr leik. Ekki
mátti foringinn heldur hlaupa inn
í hina reitina eða kippa neinum
út úr .þejm, sem ’þangað höfðu
náð. Ef hann gerði það, þá var
hann dæmdur brendur, og strax
kosinn annar í hans stað. — Nú
byrjuðu hlaupin, paparinn kom að
heiman frá sér og reyndi að grípa
einhvern sem fram hjá fór. Væri
hann fljótur að hlaupa og sterk-
ur, tókst honum fljótt að ná ein-
hverjum. Var þá sá, sem hann
náði, orðinn hans þjónn og hjálp-
armaður við að ná hinum. Svona
gekk leikurinn fram, þar til allir
voru náðir. í þessum leik tóku
stúlkur þátt, engu síður en dreng-
ir. Oft var glatt á hjalla í þess-
um leik, og sjaldan kom fyrir
nokkurt þrátt eða þref. Við vor-
um öll bræður og systur við barna-
leikina okkar.
Höfrungaleikur. — Drengir röð-
uðu sér hver fram af öðrum í
beinni línu, studdu svo höndun-
um á hnén 0g beygðu niður hðf-
uðin. Nokkurt bil var á milli
þeirra. Sá sem stóð aftast í röð-
inni, hóf þenna leik með því að
stökkva yfir alla hina, stanzaði
svo framan við röðina og studdi
höndum á kné. Nú kom sá, sem
þá stóð aftastur og stökk fram
yfir alla hina. Svona gekk koll af
kolli, þar til allir höfðu stokkið
jafn-oft.
Skessuleikur.
Tröllskessa átti heimili sitt upp
til regin dala, eða fjarri manna-
bygðum. Hún bjó að sínu og var
óágeng við menn. Land hennar
var innan vissra vébanda þar í
þrengslum dalanna. Þar spruttu
fádæmin öll af fjallagrösum og
allskonar ber. Alls engan yfir-
gang þoldi hún mönnum á þetta
land sitt. Ef nokkur var svo
djarfur, að tína þar grös eða ber,
þá kom hún óðar hlaupandi og
rak alt á burt með harðri hendi.
Ef hún náði þeim, áður en þeir
komust út af landareign hennar,
þá urðu þeir henni að bráð. —
Oft fórum við, krakkarnir, inn í
þetta ímyndaða Skessuland og
tíndum þar bæði grös og ber. Ef
við sáum kerlu ekki úti, þá vorum
við hróðug og kát. óhætt er að
tína grðs, skessa er ekki heima,
sögðum við, eða: óhætt er að tína
ber, skessa sefur. En þetta óhætt
sveik okkur oft. Skessa kom þá
minst varði,- og tók og stundum
fleiri úr þessum landráðahóp og
fór með þau heim til sín. Ekki
mátti hún sjálf stíga út fyrir sín
eigin landa merki, þá varð hún að
steingerfingi. Oft var tekið kná-
lega til fótanna, þegar skessan
sást koma. Hver sem komst út
fyrir merkin, þóttist eiga fótum
sínum fjör að launa. Þó leikur
þessi sé bara gaman og glaðværð
og hávaði séu hans förunautar,
þá er hann engan veginn eins sak-
laus og sumir hinna leikjanna.
Þeir sem búa að sínu í ró og friði
við alla, eiga fullkominn rétt á
Því, að þeir séu látnir í friði. En
í þessum leik fer svo fjarri, að
að sé gert. Þessi leikur sýnir á-
girnd, ofbeldi og rán, þrent það
Ijótasta í fari manna.
ir augun á honum, síðan var hon-
ua snúið marga hringi og þulin
yfir honum áhrínsorð um það, að
hann skyldi ekki finna neinn af
þeim, sem hann ætti að leita að.
Einu hlunnindin, sem þessi leik-
ur ánefndi Skolla í vil, voru þau,
að enginn af þeim, sem hann átti
að finna, mátti færa sig neitt úr
þeim stað, þar sem hann hafði
sezt. Þessi lög voru margsinnis
brotin. Ef Skolli stefndi beint á
einhv^rn, þá skreið sá úr vegi, en
aðrir hentu í hann mold og torfi,
sem á bak við sátu. Þetta kom
Skolla til þess að snúa í áttina,
sem þetta moldviðri kom úr. —
Þessi leikur gat staðið lengi, þeg-
ar svona brögðum var beitt. Mik-
ið gaman höfðum við krakkar af
þessu, þó er leikurinn þögull 0g
laus við allan hávaða, og alls ó-
líkur hinum, sem öll glaðværð er
samferða. Enginn gengur sveitt-
ur, með kafrjóða vanga frá þess-
um leik, nema Skolli sjálfur.
Hann er sá eini, sem hefir mátt
hreyfa sig, og kalt hefir þeim orð-
ið, sem bað konuna forðum að
gefa sér kaffi, því það hefði sett
að sér hroll eftir Skollaleikinn.
SkoIIaleikur.
Hópur unglinga settist í hring
á leikvöllinn. Kosinn var svo einn
úr flokknum fyrir leikforingja.
Hann var svo kallaður Skolli, með-
Saltabrauðsleikur.
Þessi leikur hefst þannig: Einn
úr hópnum stóð upp við þil eða
vegg, með höndurnar fyrir and-
litinu, og byrjar að telja: einn,
tveir og svö áfram ^pp til hundr-
aðs, eða kannske meira. Hinir
földu sig á meðan. Þegar sá, sem
taldi, var búinn að því, kallaði
hann upp og sagði “saltabrauð
fyrir mig’’ og klappaði lófanum á
það, sem hann stóð hjá meðan
hann taldi. Svo gekk hann frá
þessum stað til að skima eftir
þeim, sem höfðu falið sig. Ef
hann sá einhvern af þeim, hljóp
hann þangað sem hann hafði tal-
ið, kallaði upp nafn hans, sló
lófanum á blettinn og saltaði
brauðið fyrir hann. — Oft varð
mikil þröng á þingi í þessum leik.
Hver sem betur gat, kom nú hlaup-
andi 0g reyndi að salta sitt eigið
brauð. Mikill hávaði og kapp
kom fram í þessum leik: hlaup,
hrindingar, stympingar, hlátrar og
köll voru sjálfsagðir förunautar
okkar og vottar að þessari hólm-
stefnu. *
Þá höfum við nú mint þig á
helztu barnaleikina okkar. Þó er
margt barna gamanið eftir ótalið:
Hopp á öðrum fæti, stökk jafnfæt-
is, stökk við því að hlaupa til, eins
og kallað er, steypa sér kollhnís,
sem er bara drengja gaman; skjóta
af boga, henda pílu, kasta steini
úr slöngu, vega salt, reisa hor-
gemling, rífa lepp úr svelli, ganga
á stultum: tveimur prikum með
hökum á fyrir fæturna— þetta
hækkaði okkur upp, svo við gát-
um orðið sex feta háir, þegar við
vildum.
Leikföngin okkar (barnagullin)
voru ekki á þessum árum, sem við
erum að segja þér frá, keypt í
verzlunarbúðum dýrum dómum og
með okurverði. Þau sendu held-
ur enga ginningargeisla frá sér
eða töfraljóma. Sum þeirna voru
bara veðurbarin horn og leggir
af sauðfé bændanna; önnur voru
skeljar af ýmsu tagi, sem sjáv-
aröldurnar höfðu lagt frá sér upp
í fjöruna um leið og þær gengu
þar fram hjá. Þær höfðu skilið
þetta eftir handa okkur, enda voru
margar af þeim bornar fljótt heim
og bætt í hópinn hjá nöfnum sín-
um. — Þótt þessi leikföng okkar
væru hvorki gylt né grafin, voru
þau okkur börnunum dýrmætir
fésjóðir. Dag eftir dag frá
morgni til kvölds, gátum við leik-
ið okkur að þeim. Þau voru það
eina, sem við áttum. Og líka það
eina, sem æskan skoðar fémætast.
Þau voru í meðvitund okkar lif-
andi peningur: sauðfé, kýr og
hestar, alveg eins arðberandi fyr-
ir okkur, eins og fénaður bænd-
anna var þeim, þess vegna þurftu
þau eftirlit og hirðingu. — Við
skiftum þeim í flokka eftir kyni;
bygðum hús handa þeim, svo við
gætum hýst þau, þegar vondu
veðrin komu, sátum hjá þeim í
bezta haglendinu á daginn og
bældum þau á kvíabólinu á kveld-
in. Við reittum gras með hönd-
unum, hlóðum því svo í hrúgur
við fjárhúsin til vetrarforða. Við
smöluðum lambfénu á stekkinn
og stíuðum lömbunum frá ánum.
En stekkja-óðinn lögðum við til
sjálf og jörmuðum fyrir hvoru-
tveggju.— öil.þessi leikföng okk-
ar nefndum við eftir skepnunum,
sem þau voru af: Hrossaleggir
voru hestarnir; reiðhestarnir voru
stundum litaðir rauðir, svartir og
fljótastur; hann var ættaður úr
Skagafirði og skírður eftir bæn-
um, sem hann var frá og nefndur
Hamra-Rauður, eftir gæðingnum
mikla hans séra Þorláks Hall-
grímssonar, sem eitt sinn hafði
verið prestur á Skinnastað í Axar-
firði. Rauður okkar gaf nafna
sínum ekkert eftir að vekurð eða
flýti; teygði sig átján fet á sléttri
jörð, en tuttugu og fjögur á ísum.
Eitill var brúnn á lit, mesti fjör-
gammur og gekk næst þeim rauða.
En Skjóni hékk í þeim fyrsta
sprettinn, en var ekki eins þolinn
og hinir tveir. — Áburðarhesta
áttum við marga og góða. Það
kom sér nú líka betur, því oft var
farið í langferðir. Enginn á-
burðarhestanna var líkt því eins
sterkur og Grani. Hann var grár
á litinn, mesti stólpa gripur og
rammur að afli. Aldrei var hann
látinn bera léttari klifjar en tvð
hundruð pund á hlið, og stundum
tvo sykurtoppa í ofanálag á mið-
klakknum. Með þessar klifjar fór
hann hóftölt frá morgni til kvölds
og tók ekki nær sér en það, að
hann gaf sér ætíð tíma og ró til
að taka góða munnfylli af grasi
þar sem loðnastir voru götubakk-
arnir. — Oft gekk í mesta stíma-
braki og ráðabruggi fyrir okkur,
um það hvernig ætti að koma
þessum afar þungu klifjum til
klakks á Grana. Við höfðum oft
látist vera Finnbogi rammi og
Grettir Ásmundsson eða Ormur
Stórólísson. En þegar átti að láta
þessar bagga-völur á Grana, þá
treysti enginn sér til þess. Þá
mundum við eftir Brandi sterka,
átján ára pilt inum, syni ekkjunn-
ar á Knútsstöðum í Aðaldal. Hann
hafði látið svona þungar klifjar
til klakks á áburðarhest bóndans
í Baldursheimi við Mývatn, þegar
hann var eitthvert sinn staddur á
Húsavík, og gert það með annari
Vor-hreinsunar
TAL
HEFIR þú tekið eftir því, að
þegar þú hefir sáran blett
á þér einhvers staðar þá er alt-
af eitthvað að rekast á hann?
Hvað 'sem þú gerir, eru jafn-
vel smáskeinur þér til mikilla ó-
þæginda. Þetta tefur fyrir þér
og þú átt bágt með að vinna.
Hættan liggur þó aðallega í
því, að hættulegir gerlar komast
í sárin á hörundinu og vinna þar
mikið tjón, nema því að eins að
Zam-Buk sé strax viðhaft. Zam-
Buk eyðir strax þrautum og er á-
reiðanleg vörn gegn hættulegum
gerlum. Það má æfinlega reiða
sig á, að það græðir fljótlega og
gerir það vel . ,
Nú þegar húshreinsunin liggur
fyrir, mátt þú ómögulega vera
án hins ágæta Zam-Buk.
Zam-Buk er áreiðanlega bezta
meðalið við öllum hörundskvill-
um svo sem: illkynjuðum sárum,
bólum, hringormi, eczema, piles
og öðru slíku.
Þetta ágæta meðal getur þú
fengið hjá lyfsalanum fyrir
50c. öskjuna, eða 3 fyrir $1.25.
ZamBuk Co., Toronto, sendir
með ánægju gott sýnishorn án
endurgajlds, ef óskað er.
ina, 0g hafði fá eða engin þeirra
heyrt áður en hann las þau upp.
Af kvæðinu um Jón Sigurðsson,
og fleirum, sem ég tel ágæt, er
hann las, sézt glðgt, að í skoðun-
um sínum er skáldið frjálsmann-
lega hugsandi.
Skáldið erna mintist þess, að
kvæði sín mundu aldrei á prent
koma. Þess vegna hefði hann
tekið tækifærið til að lesa nokkur
af þeim, meðan hann dveldi á
meðal svo stórs hóps íslendinga,
sem væru í Winnjpeg. Það getur
nú satt verið, að kvæðin verði ekki
prentuð. En alt fyrir það, er eg
viss um, að sum af þeim munu
lifa.
Inngangseyri setti hann engan
að samkomu sinni, en svo góðan
rétt þótti áheyrendum að hann
hefði á borð borið, að þeir tóku
það upp hjá sjálfum sér, að iaka
samskot í salnum.
Að loknum lestrinum, risu á-
heyrendurnir upp úr sætum sín-
um 0g þökkuðu lesturinn með
dynjandi lófaklappi og ómældum
hlýhug 0g virðingu til hins aldna
skálds.
S. E.
Þá höfum við nú sagt þér frá
æskuleikjunum og leikföngunum.
En æskan sjálf, þessi ylhýra dag-
hendinni. Og nú varð einn úr j rennjng mannsæfinnar, hrein og
hópnum strax að Brandi sterka, j ejng 0g dagurinn, er nú
og snaraði böggunum upp á Grana j gv0 afar ]angt í burtu, að hún sést
með annari hendi. Maður nokk-, ag ejn3 j gjónauka Hugans og
ur hafði sagt okkur söguna af | Munans> fr£ náttmálum æfinnar
Brandi streka í húminu á kveld- j átt s6larlagsins.
skjóttir og nefndir eftir litnum;
an að leikurinn varði. Bundið varíþeir voru allir gamm-vakrir gæð-'sem við fundum
svo klút eða einhverri druslu fyr- ingar, þó var rauður þeirra lang- voru skíðin okkar.
in, áður en ljós voru kveikt. En
feður okkar geymdu í fersku minni
söguna af Gretti Ásmundssyni,
þegar hann bar jólamatinn á bak-
inu neðan frá sjó á Reykhólum.
En slóð Finnboga ramma höfðu
þeir margoft rakið yfir Flateyjar-
dalsheiði og skoðað hlóðarsteina
hans við Almannakamb. Hálf-
gerður stuggur stóð okkur af
kröftum Orms, eftir að hann
henti hestinum með heyböggunum
í hann föður sinn. En nú var bú-
ið að láta baggana upp á Grana,
og ferðinni heitið yfir Reykja-
heiði. Við riðum gæðingunum
okkar, en rákum áburðarhestana.
Grani tók strax götuna til heið-
arinnar, kroppaði í götubakkana
smám saman eins og hann var
vanur að gera, fékk sér góðan
sopa að drekka úr Boðsvatninu,
hélt svo upp Krubbana og var
eftir litla stund kominn austur í
Grísatungu.
Það má víst með sanni segja, að
hestarnir séu þðrfustu þjónar
bændanna, þó hafa þeir aldrei
verið eins þarfir og handhægir
fyrir þá, eins og þeir voru fyrir
barnshugsun okkar. (Gammvakrir
skeiðhestar á sumrin, en skautar
á veturna), þá var það sem þeir
teygðu sig tuttugu og fjögur fet
á ísnum.
Kúfskeljar voru kýrnar okkar.
Þær voru allar sækynjaðar, nema
Gullinhyrna; hún var fædd á
landi, mestá mjólkuræð, sem lagði
saman nytjar og mjólkaði fullan
ask handa öllum börnum. Reyð-
ur var sægrá á litinn og kollótt,
bezta kýr, og svo þæg, að aldrei
þurfti að leita að henni. Saman-
ber vísuna eftir eitt nútíðar stór-
skáldið: “Eg má sitja heima kyr,
því nú er Reyður komin heim’’. —
Uðuskeljarnar voru geldneyti á
ýmsum aldri, en krákuskeljar kálf-
ar. Hörpudiskar voru borðáhöld.
Hrútshorn voru hrútar, sauða-
horn sauðir, ærhorn ær og lamba-
horn lömb. — Forystusauðurinn
var svartur, allra forystusauða
beztur og vitrastur. Aldrei var
svo dimm hríð, að hann rataði
ekki heim á kveldin; hann setti
alt féð í sporaslóð á eftir sér
milli fjalls 0g fjöru.
Stundum tálguðu fullorðnu
piltarnir fyrir okkur ýmsa fugla
úr ýsubeini og gerðu það mjög
haglega; æður með fjóra unga á
bakinu þótti okkur mikil gersemi
í fuglahópnum okkar.
Fjalir með mastri og segli, eða
kubba, hðfðum við fyrir skip, og
fleyttum þeim á hverjum polli,
Tunnustafir
(Meira.)
Fyrsti
JamesRichar dson & Sons
Bankameiut, sem ávaxta peninga.
367 Main Sltreet - WINNIPEG
STOCKS
AND
BOÍiPS
Meðlimir
Montreal
Stock
Exchange
Víðtæk þekking óg auðfengnar
upplýsingar gera oss mögulegt að
láta í té nákvæmar upplýsingar
viðvíkjandi sölu verðbréfa á
hvaða peningamarkaði aem er.
Vér erum viljugir að gefa yður
allar upplýsingar viðvíkjandi
þeim verðbréfum, sem þér hafið,
eða hafið í hyggju að kaupa. —
Ágætlega vel trygð verðbréf er
hægt að kaupa með mánaðar nið-
urborgunum, samkvæmt samning-
um við oss.
Sími 24 831.
(Private Branch Exc'hange)
Þökk fyrir lesturinn
í foreldrahúsum mínum voru
fornsögurnar lesnar eins og svo
víða á bæjum h^ima, einu sinni
á hverjum vetri. Þó all-langt sé
nú umliðið, hefi eg sjaldan orð-
ið þess var, að lestur hafi skilið
eins lifandi myndir eftir í huga
mínum.
Ekki líki eg áhrifum þeim, er
eg varð fyrir, er Sigurður skáld
Jóhannsson las up kvæði sín í
Goodtemplarahúsinu 20. marz-
mánaðar, við áhrifin af því að
heyra fornsögurnar lesnar. En
að einu leyti, að minsta kosti,
rifjuðust þau upp fyrir mér, und-
ir lestri hans.
íslenzkan á hér í vök að verjast.
Alt, eða mest af því, sem við les-
um, er á ensku máli. Hugsanirn-
ar verða því ærið útlenzkar. í
íslenzfkum orðabúningi fara þær
oftast illa. Samþandið milli hugs-
ana og orða slitnar við það.
Verður því íslenzka myndin, sem
draga átti oft með lítilli líftóru og
ólík myndum þeim, sem brugðið
er upp á fornsögunum.
ISigurður skáld Jóhannsson hef-
ir siglt mörgum betur fyrir þessi
sker í kvæðum sínum. í þeim
hugsar hann, finnur til og talar,
sem íslendingur. Hann er þar
heill en ékki hálfur. Lýsingarn-
ar í þeim munu því hafa orðið
eins lifandi í hugum flestra, er á
hann hlýddu og hann var sjálfur,
þar sem hann stóð fyrir framan
áheyrendurna, áttræður, eik-
beinn, bungubrjóstaður, skýrleg-
ur og djarfmannlegur. Að þessu
leyti mintu kvæði hans mig á á-
hrifin af fornsagnalestrinum
heima.
Að dæma um kvæði hans að
öðru leyti, er ekki kostur á hér.
Eg hefi ekkert af þeim við hend-
Dr. I. W. Myles
leyfir sér að tilkynna, að hann
sé tekinn að stunda tannlækn-
ingar með læknisstofu að
W. Somerset Block
Ofice sími 26 944. Heim: 63 135
Opið á Þriðjudags, Fimtudags
og Laugardags kveldum.
frá kl. 7—9.
Ymislegt.
VIII.
útbreiðslufundur Good-
Templara 1928.
Til þessa fundar var vandað og
hepnaðist mjög vel að gera hann
uppbyggilegan og skemtielgan.
Fundurinn var allvel sóttur.
Var skemt með söng 0g hljóðfæra-
slætti.. 'Sungu þeir Thor John-
son og Árni Stefánsson, sem báð-
ir eru söngmenn ágætir.
Mr. Gunnlaugur Jóhannsson
stýrði fundinum, þakkaði mönn-
um fyrir komuna og flutti stutt,
en fjörugt erindi. Hann kvað
tvær fullorðnar konur standa hjá
sér á hápallinum og fór nokkrum
orðum um starf þeirra á liðna
tímanum og bar þeim vel söguna.
Ekki sáum vér konurnar,- en það
skildist oss, að hann talaði hér á
líkingarmáli og ætti við stúkurn
ar Heklu og Skuld. Vér höfðum
gaman af ræðu Jóhannsons.
Ræðumenn höfðu verið valdir
þeir séra Björn B. Jónsson, D.D
og Dr. Sig. Júl. Jóhannesson.
Fyrst talaði Dr. B. B. Jónsson.
Kvað (hann svo hafa litið út á
liðna tímanum, sem bindindis-
menn legðu mesta áherzlu á að
sækja fundi og skemta sér þar; en
það væri ekki nægilegt, menn
yrðu að beita áhrifum sínum út-á-
við. Hann sagði, að bindindis-
menn hefðu aðgang að tveimur
stofnunum, nefnilega: kirkjunni
og blöðunum, og menn ættu að
skipa sér undir merki kirkjunnar
og kref jast þess, að prestar hlyntu
að bindindismálum með ýmsu
móti. 1 blöðin kvað hann menn
eiga að skrifa og þannig útbreiða
nauðsyn bindindis í ýmsum mynd-
um. Dr. B. B. Jónsson hefir löng-
um látið sig bindindismálið miklu
skifta og hlynt að því ósleitilega.
Hefir hann ritað tvær ritgerðir
um málið, sem er það bezta, sem
eg hefi séð um það efni. Á hann
mjög miklar þakkir skilið fyrir
framkomu sína í málinu.
Þar næst talaði Dr. Sig. Júl. Jó-
hannesson og benti á, að nú væri
málið í höndum stjórnarinnar, og
væri ef til vill ver komið en
nokkru sinni áður, þar sem nú
væru allar “krár” opnar, bæði þar
sem mætti löglega selja og ekki
selja, og þar að auki með því að
gefa málið i hendur stjórnarinn-
ari, væri brugðið upp nokkurs
konar dýrðarljóma yfir vínsöluna,
svo að líklegt væri, að fleiri tæld-
U' t til vínnautnar—en ella. Dr.
Jóhannesson hefir, síðan hann
kom vestur um haf, verið eldheit-
ur og fullkomlega einlægur bind-
indismaður. Hefir hann unnið
manna mest að þessu velferðar-
máli, og látið til sín taka í ræðu
og riti 1 því efni. Má kalla hann
merkisbera bindindismálsins á
meðal íslendinga vestan hafs, og
mui/ merkið ekki niður falla á
meðan hans nýtur við.
Bindindismenn völdu vel, þegar
þeir vðldu þessa menn, sem ræðu-
menn á fundinum. Betri mönnum
höfum vér ekki á að skipa.
Jóhannes Eiríksson.
MALDEN ELEVATOR
COMPANY, LIMITED
Stjórnaxleyfi og ÁbyrgC. ACalskrifstofa: Grain Exchange, Winnipeg
Stocks - Bonds - Mines - Grains
Vér höfum skrifstofur í öllum helztu borgum f Vestur-Canada, og
einka símasamband viö alla hvelti- og stockmarkaöi og bjóöum þvf viö-
skiftavinum vorum hina beztu afgreiöslu. Hveitikaup fyrir aöra eru
höndluð með sömu varfœrni og hyggindum, eins og stocks og bonds.
Leitlö upplýsinga hjá hvaöa banka sem er.
KOMIST í SAMBAND VIÐ RADSMANN VORN Á pEIRRI
SKRIFSTOFU, SEM NÆST YÐUR ER.
Winnipeg
Regina
Moose Jaw
Swift Current
Saskatoon
Calgary
Brandon
Rosetown
Qull Lake
Assiniboia
Herbert
Weyburn
Biggar
Indian Head
Prince Albert
Tofield
Edmonton
Kerrobert
Til að vera viss, skriíið á yðar Bills of lading: “Advise Malden
Elevator Company, Limited, Grain Exchange, Winnipeg.”
Sérfrœðingar í Námu-Hlutabréfum
EIGIÐ SlMAKERFI
Samband viO
Montreal, Toronto, Chicago, New York, Vancouver
og alla aöra merka staði.
Stobie Forlong Matthews
LIMITED
MINING EXCHANGE BLDG., 356 MAIN ST, SOUTH, WINNIPEG.
Telephone: 89 326
JiiiimimmmmmimimHiimiMiiimMiiMiiMsmiMimmimiimmMimmiimmiiij:
1 Samlagssölu aðferðin. |
Sama reglan gildir um rjóma, sem aðrar búnaðar- E
= afurðir, að því meira sem vörumagnið er, þess tiltölulega =
= laegri verður starfrækslukostnaðurinn. En vörugæðin =
= hljóta að ganga fyrir öllu. Þrjú meginatriði þurfa að E
= vera til staðar, ef vara vor á að fá það sæti, sem henni =
5 ber & brezkum markaði, sem sé vörumagn, reglubundnar =
= vörusendingar og vörugæði. =
Með því að styðja yðar eigin SAMLAGSSTOFNUN eru =
= fyrgreind þrjú meginatriði trygð.
Manitoba Co-operative Dairies Ltd.
| 846 Sherbrooke St. - ; Winuipeg,Ms«itob» =
FÍMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMiMMMMimMMMMMMMMMMMMMMMMMIi;
KRÁKUNUM SAGT
STRIÐ Á HENDUR
"Krákur og Magple venöa að hafa sig burt úr Saskatchewan,” segir
Saskatchewan stjörnin. pessir fuglar eru þjófar og rœningjar, en gera
lítiö gagn.
Krákur og Magpies eyöileggja hreiöur og eta egg og unga minni en
nytsamari fugla og eru þar að auki skaölegir veiðifuglum um varp-
tímann.
Peim er kent um hvarf margra söngfugla vorra, sem eru gagnlegir
af þvl þeir eyðileggja skorkvikindi.
Járnbrautar stjörnardeild, verkamáladeild og iðnaðardeild stjörnar-
innar bjööa íbúum Saskatchewan-fýlkis verölaun, sem nema alt frá $1.00
upp I $100. og samtals $2,500 fyrir að keppa um að eyðileggja sem mest af
krákum og magpies og eggjum þeirra. Fyrir hvern fugl eru gefin fimm
mörk og tvö mörk fyrir hvert egg.
Samkepnin endat; 1. sept. og allar skýrslur verða að vera komnar
til stjðrnarinnar fyrirf10. sept. 1928.
Frekari upplýsingar geta menn fengið hjá Game Branch of
THE DEPARTMENT OF RAILWAYS,
LABOUR AND INDUSTRIES
REGINA
HON. GEORGE SPENCE
Minister
T. M. MOLLOY,
Deputy Minister
UPPSÖGN
Sambandlagasamningsins.
í dag,' 24. febr., kom til umræðu
í Nd. fyrirspurn sig. Eggerz til rík
isstjórnarinnar um uppsögn sam
bandlagasamningsins. Var fyr-
irspurnin svo hljóðandi
“Vill ríkisstjórnin vinna að því,
að santbandlaga - samningnum
verði sagt upp eins fljótt og lög
standa til, og í því sambandi í-í
huga eða láta íhuga sem fyrst, á j
hvern hátt utanríkismálum vorum
verði komið fyrir bæði sem hag-
anlegast og tryggilegast, ef vér
tökum þau að fullu í vorar hend-
ur?”
1 framsöguræðp sinni gat Egg-
erz þess, að þótt 12 ár væru eftir
af samningnum, væri tími til kom-
inn að taka ákvörðun til málsins.
Vildi segja samningnum upp. —
Kvað sambúðina við Dani á nú-
verandi grundvellli okkur skað-
lega, sérstaklega hvað snerti sam-
eiginlegan ábúðarrétt. Nú væru
Danir í undirbúningi að notfæra
sér fiskiveiðaréttindin, og það í
stórum stíl. — Eins væri peninga-
austur dansks stjórnmálaflokks,
til stjórnmálastarfsemi hér á
landi, sýnilega gerður í þeim til-
gangi, að auka dönsku áhrifin.
Vildi, að við tækjum utanríkismál-
in í okkar hendur. — Tr. Þórhalls-
son forsætisráðherra kvað stjórn-
ina og Framsóknarflokkinn sam-
mála um að segja bæri upp sam-
bandslagasamningunum, og kvaðst
mundu íhuga sem gaumgæfileg-
ast, hvernig utanríkismálum vor-
um yrði sem haganlegast og
tryggilegast fyrir komið. — M.
Guðm. talaði fyrir hönd íhalds-
flokksins. Kvað hann einhuga
um uppsögn samningsins, og vildi
sem iS. E., að við fengjum utan-
ríkismálin sem mest í okkar hend-
ur. — Héðinn talaði af hálfu
jafnaðarmanna. Var einnig með
uppsögn samningsins, en vildi
jafnframt að við losuðum okkur
við konunginn líka. Á dðnsku
peningana til Alþýðuflokksins
mintist hann ekki. — S. E. Þakkaði
fyrir góðar undirtektir, og kvað
sér það óskift ánægjuefni, að all-
ir flokkar skyldu hér sammála
hvað uppsögn samningsins og
utanríkismálin snerti.—ísl.