Lögberg - 12.04.1928, Síða 8

Lögberg - 12.04.1928, Síða 8
Bls. 8. LöGBERG, FIMTUDAGINN I2. APRÍL 192S Jimmy, Mary og Robert eru að borða brauð búið til úr Robín Hood FI/OUR ABYGGILEG PENINGA TRYGG ING í HVERJUM POKA Úr bænum. Séra Valdimar J. Eylands hefir borist köllun frá fjórum norskum lúterskum söfnuðum í Makoti, Norður Ðakota, skamt frá Minot. Óráðið mun það vera, hvort hann tekur þessari köllun. Jón Ágúst Thorkelsson, frá Nes, Man., og Jónína Lárusson. frá Gimli, voru gefin saman í hjónaband af séra Birni B. Jóns- syni 3. þ.m. Eiríkur Sólberg Sigurðsson frá Hnausa 0g Guðrún Elizabet Stef- ánsson, frá Árborg, voru gefin saman í hjónaband 5. þ.m. að 774 Victor St. Séra Björn B. Jónsson gifti. J. E. Sigurjónsson skólastjóri frá Kenville, Man., var staddur í bænum um helgina í heimsókn til foreldra sinna að Beverley stræti. Til Argyle fór hann á miðviku- daginn að heilsa upp á frændur og vini þar, og heldur svo áleiðis til Kenville fyrir næstu helgi. Manitoba Prohibition Alliance heldur ársþing sitt í St. Stephens Broadway Chuhch, Kennedy og Broadway, í dag, fimtudag, kl. 10 árdegis. Dr. Bailey flytur ræðu að kveldinu, um vísindaleg áhrif áfengis á mannlegan líkama. Opinn fundur Goodtemplara, miðvikudag 18. apríl, kl. 8.30, í efri salnum. Valið söng prógram og margbreytt. Tveir ágætir ræðumenn. Alt ókeypis. — Komið allir, allir! J. E. Mr. Gísli Sigmundsson, kaup- maður að Hnausa, Man., var staddur í borginni fyrri part vik- unnar sem leið. Mr. Jón B. Snæfeld frá Hnausa, Man., kom til borgarinnar snögga f rð í síðustu viku. Athygli skal hér með dregin, að auglýsingunni, sem nú birtist hér í blaðinu frá Mr. Edwin G. Baldwinson lögmanni. Hefir hann lögmannsskrifstofu sína að 905 í Confederation byggingunni. Mr. Frank Ferdrickson, íþrótta- maðurinn góðkunni, og kona hans og börn, komu til borgarinnar á þriðjudagsmorguninn, sunnan frá Bandaríkjum, þar sem þau hafa verið í vetur. í sambandi við umræður, sem spunnist hafa út af svari heim- fararnefndarinnar til Dr. Brand- sonar birtist skýring í næstu blöðum. Sig. Júl. Jóhannesson. Guðlaugur Sigurðsson frá Lund- ar, Man., var staddur í borginni um helgina. Eg vil geta þess, í sambandi við fyrirhugaða kenslu Mr. Emile Walters, sem sagt hefir verið frá í blöðunum að fram munf fara á Gimli næsta sumar, að nefndinni, sem stendur fyrir undirbúningi málsins, hefir borist tilboð frá einu heimili, sem kveðst geta tek- ið á móti alt að tólf nemendum og veitt þeim húsnæði og fæði fyrir $1.00 á dag. Þeir, sem kynnu að vilja sinna þessu, geri svo vel að snúa sér til Dr. A. Blöndal, 806 Victor St., Winnipeg. Ragnar E. Kvaran. HEIMILI og FÆÐI fæst hjá MRS. R. S. BLÖNDAL 619 Victor Street Rétt hjá Sargent. Sími 22 588 Mjög vandaða og skemtilega samkomu ætlar kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg að halda í kirkju safnaðarins á sum- ardaginn fyrsta, 19. apríl. Hef- ir félagið í mörg ár, eins og kunn- ugt er, haft þann sið, að gangast fyrir slíkum gleðimótum og fagna þannig sumri að gömlum og góð- um íslenzkum sið. Þess má geta, að á þessari samkomu verður í fyrsta sinni leikið nýtt strengja- kvartette í B moll, eftir Jón Frið- finnsson, og er lagið tileinkað Thorsteini Johnston og verður leikið af hans hljóðgæraflokk. — Skemtiskrána er að finna á öðrum stað í- blaðinu. Blaðið Grand Forks Herald frá 2. marz s.L, lætur þess getið, að ungfrú Thórstína Jackson, hafi flutt við háskólann þar í bænum, áhrifamikið og fræðandi erindi um ísland og íslenzku þjóðina. Hafi hún jafnframt, fyrirlestrinum til skýringar, sýnt margar fargar myndir af landinu, staðháttum og atvinnuvegum þjóðarinnar. Hefðu ummæli ungfrúarinnar um landnám íslands, stofnun alþing- is á Þingvöllum 930, sem og um þúsund ára ^hátíðina 1930, vakið sérstakan fögnuð meðal áheyr- enda. — Geta má þess, að téð blað dregur sérstaka athygli að þeim um'mælum fyrirlesarans, að eigi sé kaldara í norðlægustu hér- uðum íslands, en þá er kaldast sé í Chicago. — Var yfirleitt gerð- ur hinn bezti rómur að fyrirlestr- inum. Sunnudagsmorguninn 1. þ. m. varð bráðkvaddur að heimili sínu, 12 Norfolk Ave., St. Vital, Willi- am Studlow-Sawyer, 68 ára að aldri. Hann var af enskum ætt- um, en kvæntur íslenzkri konu, Kristínu Johnston. Þau hjónin eignuðust tvö börn, dreng og stúlku. Stúlkan, Alice May, dó fyrir tveim árum, en drengurinn, William, er hjá móður sinni. — Mr. Sawyer kom til Vestur- Canada árið 1882. Hann tók þátt í Suður-Afríku stríðinu rétt fyrir aldamótin, og gat sér góðan orð- stír fyrir dugnað og hreysti. — Síðustu tólf ár æfinnar vann hann sem gjaldkeri á landaskrifstofu Hudsons Bay félagsins í Winni- peg. Hinn látni var mest prúð- menni, vinsæll og vel látinn af öllum, sem hann þektu. Hr. Jón Runólfsson skáld var staddur í borginni um helgina. Hefir verið í Nýja íslandi síðan fyrir jól í vetur. Mrs. J. P. Duncan frá Antler, Sask., hefir verið stödd i borg- inni undanfarna daga. i-----j--- Gefið að Betel í marz. Mrs. E. Egilsson, Gimli .... $2.00 Sigurður Goodman, Wpg ... 10.00 Úr Blómsveigasjóði kvenfélags Frelsissafn., gefið í minningu Árna Sveinssonar, er andaðist þ. 7. marz s.l., og ekkjan óskar að gefið sé til Betel ...... $41.50 Innilega þakkað, J. Jóhannesson, féh., 675 McDermot ave. Wpg. Krákur og Magpies eiga ekkert friðland í Saskatchewan í sumar. Stjórnin telur þessa fugla þjófa og ræningja og gerir þá útlæga úr sínu ríki 0g Ieggur fé til höfuðs þeim, ætlar að verja til þess $2,500. Þeir sem keppa um verð- laun fyrir að eyðileggja þessa fugla, verða að hafa fæturna af þeim eða eggin þeirra til sann- indamerkis. Má framvísa þeim hjá Game Branch, friðdómurum, eða sveitaskrifurum eða skóla- kennurum, sem láta af hendi vott- orð þessu viðvíkjandi. Lesið aug- lýsingu um þetta efni á öðrum. stað í blaðinu. Mr. Jón Stefánsson frá Steep Rock, Man., er staddur í borginni um þessar mundir. Sagði hann fátt í fréttum annað en það, að mikið væri unnið að undirbúningi með samlagssölu á fiski, og að Mr. Paul Reykdal beitti sér mik- ið fyrir framkvæmdir í málinu. íslendingar! Hafið það hugfast, að ungmenna samsöngur Brynj- ólfs Þorlákssonar fer fram í Fyrstu lút. kirkju, mánudags- kveldið hinn 23. þessa mánaðar. Skorað er á fóllT að tryggja sér aðgöngumiða sem allra fyrst. ÍSLANDSBRÉF. Heiðraði ritstj. Lögbergs. Með því eg svo lengi hefi notið þeirrar ánægju, að vera sent heiðráð blað yðar, “Lögberg”, má varla minna vera, en að eg láti yður vita, að mér er mikil þægð í því, og vil því hér með tjá yður þakkir mínar fyrlr. Eg og fólk mitt höfum ánægju af að lesa það og fáum með því tækifæri til þess að fylgjast betur með lífi og mál- efnum landa vestur þar, en ann- ars væri kostur, og ættum við, allir íslendingar, að láta okkur annar um það, en við alment gjörum, því svo andar oft hlýtt til okkar og svo oft og drengi- lega hafa Vestur-ísl. hlaupið und- ir bagga með og stutt okkur, er m;kils verð mál hafa verið á dðf- inni og þegar annarar hjálpar hefir verið þörf. Eitt ljósasta og fegursta dæmi þess, hvernig gamlir landar þar vestra hugsa til fóstrunnar í austr- inu, þó að þeir ekki hafi séð hana síðan þeir fluttu héðan á barns- aldri fyrir mörgum áratugum, er hin stórfagra og göfuga tillaga gamla veiðim. Björns Magnússon- ar, sem hann nýlega kom með í blaði yðar, því hvað getur verið j fegurri hugsjón en það, að vilja j klæða landið skógi á ný og auðga i það að svo nytsömum dýrum sem j eg er sannfærður um að sauðnaut mundu reynast hér. Eg er viss um, að margir hér heima hafa orðið hrifnir af þeirri j göfugu hugsjón hans, og má ekki minna vera, en að hann yrði þess var, að tekið hafi verið eftir þeirri tillögu hans hér heima. Eg hefi sjálfur lengi haft áhuga fyrir því, að þessi dýrategund j yrði flutt hér inn, enda reynt að j fá alþingismenn til að flytja | frumvarp á þingi um að svo yrði j gjört, en árangur af því engínn orðið, og verður varla fyrst um sinn, en um hitt, með trjáræktina, höfum við haft nokkra viðleitni, þó lítill sé árangurinn enn sem komið er, enda viðleitnin verið i smáum stíl, eins og með annað hjá oss. Þá gleður það okkur, að sjá í vestanblöðunum, hve mikill er á- hugi landa þar vestra með að fjöl- menna á þúsund ára hátíð alþing- is 1930, og ætti það að verða báð- um þjóðarbrotunum til gagns og gleði og vonast því margir hér til þess, að sjá eitthvað af ættingj- um sínum, sem þeir annars aldrei munu sjá, og þar á meðal er eg einn. Með alúðarkveðju, Ellert K. Schram. WONDERLAND. Leikurinn, “The Crystal Cup”, sem sýndur er á Wonderland leik- j húsinu, er skemtilegur og eftir- I tektaverður ástaleikur, og heldur I ímyndunaraflinu vakandi allan leikinn út. Margir ágætir leik- endur taka þátt í leiknum, svo sem Dorothy Mackaill og Jack Mul- hall, Rockcliffe F'illawes, Jane Winton, Edythe Chapman og Clar- issa Selwynne 0. fl. Kveðjusamsæti í Árborg. Það fór fram í hinu fallega og rúmgóða húsi læknishjónanna, Dr. og Mrs. S. E. Björnson, þ. 25. f. m. Byrjaði um kl. 9 e. h. Fólkið, sem verið var að kveðja, voru þau Mr. og Mrs. Carl Jónas- son og Hugrún Kristín dóttir þeirra, þrettán ára gömul. Voru þau á förum til Winnipeg og lögðu af stað tveim dögum síðar. Samsætið, var æði \fjölment. Fjöldi af fólki viðstatt úr bænum og nokkuð lengra að. Heiðurs-, gjafir voru þeim hjónum gefnar, vönduð og dýr stundaklukka og peningabudda vönduð (Jhandbag), er frúnni var sérstaklega gefin, auk nokkúrrar fjárupphæðar, sem eg vissi ekki hve mikil var, er ganga skyldi til að kaupa hentuga gjöf handa dóttur þeirra hjóna. Samsætið fór fram með ræðu- höldum, söng og ágætum veit- ingum. Fjrrst töluðu þau Mrs. S. E. Björnson, kona Dr. Björnsons, og séra Jóhann, er höfðu það sér- staka hlutverk, að afhenda heið- ursgjafirnar. Þá töluðu næst I. Ingaldson þingmaður, Valdimar Jóhannesson, Mrs. E. L. Johnson, Lárus Guðmundsson, Mrs. Guðm. Jóhannesson, Miss Gerða Christo- phersson og Carl Jónasson, er þakkaði fyrir hönd þeirra hjóna og dóttur þeirra, þá sæmd og þann vinarhug, er samsætið gæfi til kynna. Á milli ræðanna, er flest- ar voru, eins og við á, fremur stuttar, voru sungnir íslenzkir úrvalssöngvar, er fjöldi veizlu- gesta tók þátt í 0g gjörði skil hin beztu. Á píanó, með söngvunum, lék kornung listfeng stúlka, Miss Snjólaug Sigurðsson, dóttir þeirra hjóna Mr. og Mrs. Sigurj. Sig- urðssonar. Þau Mr. 0g Mrs. Carl Jónasson eru úr Þingeyjarsýslu. Komu a§ heiman árið 1913, þá nýgift, og hafa að mestu síðan átt heima í Árborg, þar sem þau áttu prýði- legt heimili. Carl er þjóðhaga- smiður og eftir því röskur við iðn sína. Hefir hann bygt fjölda húsa í bæ og bygðum hér norður frá og jafnan verið yfirsmiður.— Mrs. Jónasson er að sínu leyti engu síður listfeng við kvenlegar hannyrðir. Hafa þau hjón tekið drjúgan þátt í félagslífi bæjarins og notið almennra vinsælda. Dótt- ir þeirra, Hugrún Kristín, þó ung sé, hefir og verið mjög vinsæl, hjá yngri 0g eldri í bænum. Þyk- ir burtför þeirra sízt hagur fyrir bæ eða bygð, þó gleðskapur og góður mannfagnaður ríkti í sam- sætinu. — Munu allir hér óska þeim Mr. og Mrs. Jónasson og dóttur þeirra mikils og góðs geng- is í hinu nýja og stærra heim- kynni, höfuðborg fylkisins, þar sem þau búast við að dvelja fram- vegis. — Heimili þeirra verður fyrst um sinn að 703 Victor St. f —ijFréttar. Lögb.). HEMSS5EKSKEM3KEHEMED53K!S!aaM3KSK!SMSKlEHSME!}!lSKEM53KSMSKiEKlSM | | Sumarmálasamkoma ! H Undir umsjón KVENFÉLAGS fyrsta lút. safnaðar | Fimtudaginn 19. Apríl, 1928 i M Prógram: u s Samsöngur—Nokkrar stúlkur. | | Einsöngur ....................... .Mrs. S. K. Hall 'Í y Recitation ......................Miss R.,Thorgeirsson y m String Quartette in B Minor |a Vögguljóð eftir Jón Friðfinnsson .. .....|....Hljóðfæraflokkur Th. Johnston ^ p Ræða....................................W. J. Lindal * | Einsöngur—Ukrainian Folk Songs........Rev. Katsunoff & a Samsöngur—Nokkrar stúlkur. 7 s Einsöngur ...........................Mrs. S. K. Hall g | §2 Duet ................ Mrs. B. H. Olson og Paul Bardal ^ M Ballad—Popini .....i ...*.. .Hljóðfæraflokkur Th. Johnston h Byrjar kl. 7.15 Veitingar Inngangur 35C HSMEHSKZKSKSHSKISKSKSKEKSKSMSKEKSKSKEKSKSKEKEKSKSKSKSK RO S 171 Theatre-E* Fimtud. Föstud. Laugard. Byrjar kl. 1 e. h. S0RRELL & S0N Sagan, sem gagntók hug og hjörtu miljónanna, sýnd í myndum sem einn af hinum mestu ástarleikjum er rit- aðir hafa verið. Leikin af frægustu lista^ mönnum og konum er nokk- ur mynd hefir að bjóða. Mánud. Þriðjud. Miðv.d. (næstu viku) Heimsins mesta kvikmynd WHAT PRICE GLORY Mynd sem þú munt aldrei gleyma. Til Hallgrímskirkju. Jóhann Sigfússon, Selkirk $2.00 Áheit til Hallgrímskirkju, sent af Mrs. Harvey, Vancouver, B.C............ 2.00 Mrs. G. Thomas, Winnip......2.00 Thomas Guðmundss., Wpg.... 3.00 Ónefnd, Winnipeg........... 0.50 Kvenfél. “Tilraun”, Hayland, Man................... 10.00 Ingibj. Thordarsön, Selkirk 5.00 Lestrarfél. “ísalnd’, Baldur 5.00 Áður auglýst............ $261.85 Alls nú ...... $291.35 E. P. J. Takið eftir! íslendingum og öðru fólki hefir ætíð þótt mikið til koma þegar St. Skuld, I.O.G.T. hefir haft sína ár- legu Tombólu og Dans. Þar hefir fólkið fengið þá beztu kjördrætti, sem það hefir glaðst svo mjög af. Eina slíka tombólu er stúkan að undirbúa nú, sem á að verða 7. maí næstkomandi. Nefndin hafði ætlað að hafa þessa tombólu þann 24. þ. m., en sökum þess að aðrar samkomur voru svo mjög náið þeim degi, afréð nefndin að færa tom- bóluna til þess 7. maí eins og að ofan er skýrt, svo hún væri ekki fyrir öðrum félögum, sem voru með sínar samkomur á þeim tímamótum. Meira um þetta i næstu blöðum. Nefndin. Úr bréfi frá Bolungavrík, 8. febr. 1928: “Hér í landi eru erjur í trú- málum og stjórnmálum, en eg held mig þar utan við, og vil gera meðan eg get Hingað til auð jörð, engin frost, og aflast vel er gefur. “óstjórn í landi og kviksyndi 1 fjármálum. Skattar drepandi, og margir hér í niðurlægingu. — Eg bið fyrir íslandi 1930.” THE WONDERLAND THEATRE Sargent and Sherbrooke Fimtud. Föstud. Laugard. (Þessa viku) For the Love of Mike Leik. af George Sidney, Ford Sterling og Ben Dyson„ Max Davidsons gamanleika- félagið í FLAMING FATHERS Hawk of the Hills 7. kafli Dyrnar opnast kl. 1 á laug- a^dag e. h. Mánud. Þriðjud. Miðv.d. (næstu viku) Comedy Smiths Cousins Hafið auga á Cohens and Kellys in Paris ÞAÐ VAR 9LLDREI HÆGRA að eignast góðan kæli- skáp og • njóta þeirra þæginda og heilsubót- ar, er hann veitir. Velj- ið þann skápinn, er yð- ur líkar bezt. Reynið hann í 10 daga með ís, er vér leggjum til frítt, og kauoið hann svo með hægum borgunar- skilmálum. 10, mánuð- i rtil að borga. ARCTICj ICEsFUEL C0.LTD,. 439 P0RTACE AVE. Oppos/te Hudsons Bay< PHONE 42321 P Ábyggilegir hænu-ungar. Hænsnl, sem verpa að vetrarlagi. • Varphænur úrvalstegundir, vel vald- ar og lausar við Wh. Diarrhea og T.B. öll eggin gefa lifandi unga. Afsiattur á stærri pönt- unum, sem koma fljótt. Útungunar- vélar og úrvals hænsnafóður. ö- keypis skrá. Meðlimir International Baby Chick Ass'n. Auglýsingar á- byggilegar, ráðvendni í viðskiftum. Reliable Bird Co., 405% Portage. Wp. ÞAKKARÁVARP. Við undirrituð vottum hér með okkar hjartfólgnustu þakkir þeim hinum mörgu vinum og nágrönn- um, sem svo drengilega og vel hafa komið okkur til hjálpar síðan við urðum fyrir því óhappi í jan- uar síðastl., að heimili okkar brann. En það er ekki að eins verðmæti gjafanna og hjálpsem- innar,þó það hafi yerið mikið, sem við þökkum, heldur líka og eigi síður þann hug, sem því hefir fylgt. Við höfum fundið til þess, að alt hefir verið gert af þim fús- leik og þeim nærgætna vinarhug, sem aldrei mun okkur gleymast. Svo margir eiga hlut að máli, að ekki tjáir að tilgreina nöfn, en þeim öllum vildum við tjá, að við metum, þökkum og gleymum ekki því, sem fyrir okkur hefir verið gert. Góður guð endurgjaldi öll þessi kærleiksverk. Cypress River, Man., 31. Marz 1928. Th. Hallgrímsson. Valgerður Hallgrímsson. Baby ChicKs 200 EGGJA HÆNUR gefa 12 sinnum meiri peninga en 100-eggja hænur. Kaupið þér ódýr- ustu hænsni eða þau beztu?. Hæn- ur af yorum úrv. tegundum skara fram úr öllum varphænum í Bran- don, þar sem þær voru reyndar. 56 reyndar og stjórnar viðurkend- ar R.O.P. leggja til eggin fyri’r 51.000 raforku útungunarvélar. Allar tegundir góðar varphænur. Stj. viðk. Barred Rock 50c $1.00 Wyand, Leghorn $8.25 $15.50 $30 Úrvals Manitoba varphænur. Bar’d Rocks sérst. $6 $11.75 $23 S. C. White Legh. $5.50 $10.75 $21 Wyand. .R S. Reds $6.25 $12.25 $24 Minorcas Orpingt. $6.25 $12.25 $24 —Skrifið eftir verðskrá. Pantið beint frá oss og fáið fljóta af- geriðslu. Skýrteini um kynbland. Hambley Electric Hatchery 601 Logan Ave. Winnipeg. 32SE5E5H5E5E5H5ESESE5E5E5E5H5E5ESE5E5E5E5E5H5E5H5ESH5E5E5? SH.5H5H5HS 8 B A Strong, Business Reliable Schoo! MORE THAN 1500 ICELANDIC STUDENTS HAVE ATTFNDED THE SUCCESfe BUSINESS COLLEGE OF WINNIPEG SINCE 1909. It will pay you again and again to train in Win- nipeg where employment Ib at its best and where you can attend the Success Business CoIIege whose graduates are given preference by thousands of em- ployers and where you can step right from schoo! into d good position as soon as your course is finished. The Success Business College, Winnipeg, is a strong, reliable school—its superior service has resulted in its annual enrollment greatly exceeding the combined yearly attendance of all other Business Colleges in the whole provinee of Manitoba. Open all the year. Enroll at any time. Write for free prospectus. BUSINESS COLLEGE, Limited 385y2 Portage Ave. — Winnipeg, Man. H5H5H5H5H5H5H5E5H5H5HSH5H5H5H5H5HSH5HSHSH5H5HSHSH5HSH5H5H5HSHSH5H5 “Það er til ljósmynda smiður í Winnipeg” Phone A7921 Eatons opposite W. W. R0BS0N 317 Portage Ave. KennedyBldg ÞJOÐLEGASTA Kaffi- og Mat-söluhúsið oena þössl borg liefir nokkurn tima haft lnnan vébanda sinna. FyrirtakB máltlöir, akyr, pönnu- kökui, ruilupyilsa og þjóBræknis- k&ffi. — Utanbæjarmenn fá ué. avalt fyrst hresslngu á Wi;vi:l, CAÍ’E, 6l»a Sargent A?e Slml: B-3197. Booney Stevens, elgand,. Póstpantanir. Vér önnumst nákvæmlega pantanir með pósti, hvert sem eru meöul, patent meðul, togleður vörur, áhöld fyrir sjúkra herbergi eða ani.að, með sama verði og I borginni. Kynnl vor við íslendinga er trygg- ing fyrir sanngjörnum viðskiftum. THE SARGENT PHARMACY, LTD. Sargont & Toronto - Winnipeg Sími 23 455 Úrvals Canadiskar varphæn- ur. Þúsundum ungað út viku- lega af reyndum, stjórnarvið- urkendum tegundum. Eggja- hanar frá 313—317 skrásettir í útungunarvélum vorum. 100 per cent. ábyrgst að hafi útung- unaregg. Custom Hatching, Incubators og Brooders. Kom- ið eða skrifið eftir gefins verð- skrá, til Alex Tavlor’s Hatchery 362 Furby St. Wpg. Sími 33 352 CARL THORLAKSSON úrsmiður Ákveðið metverð sent til yðar samdægurs. Sendið úr yðar til aðgerða. — Hrein viðskifti Góð afgreiðsla. THOMAS JEWELRY CO. 666 Sargent Ave. Winnipeg Talsími 34 152 ALLAR TEGUNDIR FLUTN- INGA. Nú fer að líða að vorflutning- um og er þá tryggast og bezt að leita til undirritaðs. JAKOB F. BJARNASON 662 Victor St. Sími 27 292 A. SŒDAL PAINTER and DECORATOR Contractor Painting, Paperhanging and Calsomining. 407 Victor St. Phone 34 505 ARINELDS Basket Grates Komið arineldi yðar I gott lag-, og njðtið þæginda á hinum svölu kvöldum. Kosta lltið hjá oss. Basket Grates, dökkar og aðr- ar með forneskjulegri Iátúns áferð. Aðeins $7.70 til $15.00, Neistaverndarar, öryggisásar og eldstæði. ‘^teiaSS CEfamted 179 Notre Dame East Sfml: 27 391 Tals. 80 623. Heimili: 88 026 C. J0HNS0N 675 Sargent Ave. Umboðsm. fyrir Hecla Furnace Allar viðgerðir gerðar. Áætlanir gerðar yður að kostnaðarlausu. Rose Hemstitching & Miliinary Gleymið ekki að á 724 Sargent Ave. fást keyptir nýtfzku kvenhattar Hnappar yfirklæddir. Hemstitching og kvenfatasaumur gerður. Sórgtök athygll veitf Mail Order«. H. GOODMAN. V. SLGURDSON. Phone: 37 476 Blómadeildin Nafnkunna Allar tegundir fegurstu blóma við Kvaða taekifæri aem er, Pantanir afgreiddar tafarlaust •Islenzka töluð í deildinni. Hringja má upp á sunnudög- um B6151. Robinson’s Dept. Store.Winnineg

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.