Lögberg - 20.09.1928, Page 1
PHONE: 86 311 Seven Lines 1
K«"'íoí l iRw For Service and Satisfaction
PHONE: 86 311
Seven Lines
41. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 20. SEPTEMBER 1928
NÚMER 38
Helztu heims-fréttir Fœr verðlauna-pening úr silfri.
Canada.
Vínbannsmenn frá öllum hlut-
um Canada, ætla að halda þing í
Ottawa 18. og 19. október. Sam-
band bannmanna í 'Canada, sem
hefir aðalstöðvar sínar í Toronto,
stofnar til þessa þings.
* * *
T. C. Norris, fyrverandi forsæt-
isráðh. í Manitoba, hefir nú sagt
af sér þingmensku fyrir Lands-
down kjördæmið. Fer því fram
aukakosning í því kjördæmi og er
haldið, að það verði í næsta mán-
uði, líklega seint í mánuðinum.
Hverjir þar kunnað að verða í
kjöri, er enn með öllu óvíst. Þess
hefir verið getið til, að það verði
bara einn frambjóðandi af hálfu
liberala og Bracken flokksins, og
sá maður verði Donald Mackenzie,
fyrverandi skrifari United Farm-
ers of Manitoba. En þetta eru til-
gátur einar, enn sem komið er, og
það er ekki langt síðan, að Mac-
kenzie bar á móti þessu. Að sjálf-
sögðu hafa conservatívar þar líka
sinn mann í kjöri, hver sem hann
kann að verða.
* * *
Rt. Hon. Ramsay MacDonal<J og
dætur hans sigldu heimleiðis frá
Quebec á fimtudaginn í vikunni
sem leið. Þegar hann fór, sagðist
hann helzt vilja, að hann hefði
tapað af skipinu, svo hann hefði
tækifæri til að sjá meira af Can-
ada, því hann hefði tekið svo
miklu ástfóstri við þetta land, að
hann vildi helzt koma aftur í
næsta mánuði, og hann kæmi
sjálfsagt á næsta ári, eða hann
vonaði Iþað fastlega. Hann sagð-
ist taka heim með sér mikinn
fjölda af ánægjulegum endur-
minningum um veru sína í þessu,
ágæta landi, sem hann mundi ekki
glata, heldur halda óspárt á lofti
þegar hann' kæmi heim.
* * *
Flogið hefir nú verið alla leið
frá Qttawa til Vancouver og póst-
ur fluttur alla þá leið í loftinu.
Lagt var af stað frá Ottawa á mið-
vikudaginn í síðustu viku og kom-
ust flugmennirnir til Vancouver
á laugardagskveld. Leiðin, sem
þeir flugu, er hér um bil 3,300
mílur og tíminn, éem þeir voru
uppi í loftinu var 32 klukkustund-
ir, svo þeir hafa að jafnaði flogið
rúmar 100 mílur á klukkustund,
þegah þeir voru á ferðinni. 'Segja
þeir, að hægt sé að fljúga alla
þessa leið á tveimur dögum, frá
sólarupprás til dagseturs, ef veð-
ur sé sæmilega hagstætt.
* * *
Á laugardaginn í vikunni, sem
leið andaðist að heimili sinu í To-
ronto, Rev. John Hall Edmison,
D. D. merkis prestur og atkvæða-
maður í sameinuðu kirkjunni í
Canada.
* * *
Árið 1923 voru skuldir Canada
$2,453,000,000. Siðan hefir fjár-
hagur landsins stöðugt farið batn-
andi og hafa skattarnir verið lækk-
aðir til stórra muna á þeim árum,
sem síðan eru liðin og jafnframt
hefir verið grynt á ríkisskuldinni
um meir en tvö hundruð miljónir
dala. Líklegt þykir að á þessu
fjárhagsári verði afgangurinn enn
meiri en á undanförnum árum, har
sem nú lætur yfirleitt vel í ári, og
uppskera er með allra mesta móti.
* * *
Bracken stjórnarformaSur er ný-
kominn frá Calgary. Eerðaðist
hann í flugvél háðar leiðir og kom
við í Regina, Saskatoon og rýmsum
fleiri stöðum. Hann segir að upp-
skeran verði nú meiri heldur en hún
hefir nokkurn tima áður verið í
Vestur-Canada, en samt hafi frost
gert meiri skáða í Saskatchewan
heldur en af hafi verið látið, þvi
það hafi skemt hveitið all-víða, en
hvergi eyðilagt það.
* * *
Akuryrkjudeild fylkisstjórnar-
innar í Saskatchewan hefir gefið út
skýrslu um uppskeruna i fvlkinu
árið sem leið. Telur skýrslan að
bændur hafi fengið fyrir uppskeru
sína 1927 rúmar þrjú hundruð og
:níu miljónir dala og þar af fyrir
hveiti aðeins $206,474,000. Hveiti-
uppskeran var alls í fylkinu 212,-
860,000 mælar af 12,979,279 ekr-
um, eða til jafnaðar af hverri ekru
16.4 mælar. Skýrsla þessi telur
að bændur i Saskatchewan hafi
fengið nálega hálfa fjóröu miljón
dala fyrir kartöflur árið 1927.
* * *
Oldfield, Kirkley and Gardner,
fasteignasalar ætla að láta byggja
stóra ibyggingu á Portage Avenu,
Winnipeg, gagnvart Hudson Bay
búðinni. Á 'bygging þessi að verða
gerð fyrir íbúðir og skrifstofur og'
er gert ráð fyrir að hún kosti hálfa
miljón dali. Byrjað er á verkinu nú
í haust.
* * *
Sagt er að Boyd Block, Portage
Avenue, Winnipeg, hafi rétt ný-
lega verið 'seld fyrir $800,000.
* * •
Canada og Portúgal hafa gert
með sér viðskiftasamning, sem
gengur í gildi 1. október. ■ Er sá
samningur talinn Canada mjög hag-
kvæmur.
* * *
Hon. R. B. Bennett, leiðtogi
conservativa flokksins, í Canada,
ætlar að koma til Winnipeg á mánu-
daginn í næstu viku og fara ekki
aftur fyr en á laugardaginn. Mun
hann ætla sér að verja þeirri viku
til að koma Winnipeg-búum í skiln-
ing um ágæti íhaldsstefnunnar, og
halda hér nokkrar ræður um þau
efni.
* * *
Breskur stjórnmálamaður, Lord
Lovaþ hefir að undanförnu verið
að ferðast um Canada til að kynna
sér hversu álitlegt það sé, fyrir fólk
frá' Bretlandi aö flytja jíil þessa
lands, og setjast bér að, sérstaklega
sem bændur. Hefir hann nýlega
verið í Peace River héraðinu og
lætur hann mikið yfir 'því, hvað
honum hafi litist þar vel á sig.
Segist hann hafa fundið þar fjölda
af breskum landnemum, sem svo að
segja undantekningarlaust komist
vel af og séu ánægðir méð að vera
þangað komnir, og geri sér hinar
beztu vonir um framtíðina. Hið
sama megi segja um annara þjóða
fólk, sem sest hafi að í þessu mikla
búsældar héraði.
* * *
Prinsinn af Wales og bróðir hans
prins Henry fóru hinn 5. þ. m. af
stað til Suður-Afríku og ætla að
vera i því ferðalagi eina fimm mán-
uði.
* * *
Sir Oliver Lodge flutti nýlega
ræðu í Wjellington kirkjunni í Glas-
gow og sagði þar meðal annars að
mannkynið væri enn á bernsku
skeiðj, en hann tryði örugglega á
guð og annað líf.
t
MISS JUNO MAGNUSSON
Miss Juno Magnússon frá Oak
View er fædd 1906. Eru foreldrar
hennar Jóhannes Magnússon, skag
firzkur að ætt, og Helga Jónas-
dóttir, eyfirzk að ætt, nú Mrs. G.
Goodman, að Narrows, Man. Jó-
hannes dó .1910. Eftir að hún
misti föður sinn, ólst Miss Magn-
ússon að miklu leyti upp hjá Mr.
og Mrs. S. Sigfússon við Oak
View og náði þar barnaskólament-
un. iFiór síðan á verzlunarskóla.
Vann svo við það sem gafst til
1925, að hún innritaðist við Mc-
Kellar General Hospital í Fort
William, Ont., og útskrifaðist það-
an með góðum vitnisburði, og var
sæmd verðlaunapening úr silfri
fyrir nám sitt. Var hún strax
ráðin fyrir yfirhjúkrunarkonu við
eina stærstu deild sjúkrahússins.
/
Bandaríkin.
Frank ÍB. Kellogg, utanríkisráð-
herra, kom til New York úr Ev-
rópu-för sinni hinn 10. þ.m. Frétt
frá New York segir, að hann hafi
litið ágætlega út og verið hinn
glaðasti og mjög ánægður með
viðtökurnar fyrir handan hafið,
en sérstaklega yfir því, hve vel
Evrópuþjóðirnar hefðu tekið frið-
arsáttmálanum, sem við hann er
kendur. Kellogg var spurður,
hvort nokkuð mundi satt í því, að
Englendingar og Frakkar hefðu
gert með sér samning, flotamál-
ununm viðvíkjandi, sem að ein-
hverju leyti færi í bága við frið-
arsáttmálann. Ekki hélt Kellogg
að svo mundi vera. “Eg held ekki,
að þeir samningar hafi nokkuð að
gera við sáttmálann,” sagði hann.
“Mér skilst, að það sé ekkert leyni-
legt við þennan samning. Stjórn-
ir beggja landaanna hafa neitað
því.”
* * *
Dómnefnd, sem verið hefir að
rannsaka ólöglega vínsölu og annað
fleira af svipuðu tæki í Philadelphia
íætur mjög illa af því hvernig þar
sé ástatt í þeim efnum, og telur
yfirmann leynilögreglunnar, Charles
Beckman, með öllu óhæfan fyrir
stiiðu sina og hefir borgarstjórinn
nú vikið honum frá stöðu sinni.
* * *
Eigendur kolanáma í Illinois og
verkamenn þeirra hafa undirskrif-
að vinnusamninga, sem gilda i
fjögur ár, þar sem kaup verka-
manna er lækkað um 16 til 19 p>er
.cent.
* * *
Gene Tunney, slagsmálamaðlfur-
inn frægi hefir í sumar verið að
ferðast á Englandi og hefir verið
þar afar vel tekið og hafa margir
orðið til að sýna honum virðingar-
merki og er þar á meðal prinsinn af
Wales.
* * *■
Nýlega afstaðnar kosningar í
Maine rikinu gengu republican
flokknum mjög í vil, og hlaut hann
meir en áttatíu þúsund meirihluta
atkvæða. Ríkisstjóri var kosinn
William T. Gardiner og Erederick
Hale endurkosinn senator.
* * *
Ofsaveður gekk yfir nokkurn
hluta South Dakota og Nebraska
ríkjanna i vikunni, sem leið og varð
all-mörgu fólki að bana og olli ákaf-
legu eignatjóni.
* * *
Fellibylur hefir enn valdið miklu
tjóni á Florida-skaganum, nú um
síðastliðna helgi. Fréttir, sem enn
eru að vísu óljósar, segja að márgir
hafi meiðst og eignatjón sé stórkost-
legt.
* * *
Bandaríkjablöð og tímarit hafa
nú altaf mikið að segj^ um forseta-
kosningarnar, sem nú eru fyrir dyr-
um, en af þeim fréttum verður
naumast . nokkuð ráðið, hvorum
þeirra Smith eða Hoover muni
veita betur þegar að kosningunum
kemur. Það þykir mjög miklu
varða fyrir Hoover að Coolidge
veiti honum fylgi sitt, en hann hef-
ir enn sem komið er ekki látið til
sín taka.
Bretland.
hefir leitað sér mjög víðtækra
upplýsinga unf ýms stór og um-
fangsmikil hátíðahöld. En á þeim
upplýsingum er ekki mikið að
græða vegna þess, að alstaðar eru
kringumstæður allar margfalt
auðveldari en hér.
Nefndin hefir og haft allmikil
viðskifti við heimferðarnefnd
Vestur-íslendinga.
En nú liggur næst fyrir hendi,
að reka smiðshöggið á ákvarðan-
irnar um það, hvernig hátíðin eigi
að fara fram.
—Hvernig hafið þið hugsað
ykkur hátíðahöldin í aðalatrið-
um
—Að svo stöddu vil eg ekki
skýra nákæmlega frá frumvörp-
um þeim, sem gerð hafa verið að
efnisskrám. Búist er við, að há-
tíðahöldin á Þingvöllum standi
yfir 2 til 3 daga.
Eg geri ráð fyrir að sjálfsögðu
að þing verði þar sett. Annars
verða þar ýmsar ræður, söngur,
iþróttir og þvíuml.
— En eru eigi ráðgerðar nein-
ar sögulegar sýningar?
— Ekkert hefir verið ákveðið
um slíkt enn þá.
— En hvað um tillögu Fáks
um veðreiðar?
— Fákur vill efna til veðreiða
í Bolabás við Ármannsfelh Til
þess það geti orðið þarf að Íeggja
þangað bílveg. Ef ráðist verður
í að gera Kaldadalsveginn bílfær-
an, þá er þessi leið að Ármanns-
felli partur af þeim-vegi, og yrði
þá vandað til þessa kafla. En ef
ekkert verður hugsað um Kalda-
dalsveginn í heild sinni, þá tel eg
vafasamt, að ráðist verði í að
leggja veg að Ármannsfelli. Ann-
ars er Bolabás fagur og ágætur
staður, slétt malarflöt og skógi-
yaxnar hæðir kring.
— Og hvað um byggingar á
Þingvöllum?
— Við ætlumst ekki til þess, að
þar verði neinar byggingar reist-
ar, allir hafi ■ sína bækistöð í
tjöldum.
— En byggingarnar, sem fyrir
eru?
— Þær verða ekki rifnar, en e.
t. v. fluttar. Skýli þarf að reisa
fyrir hljómsveitir og þvíuml., en
ekki er ákveðið hvar, vegna þess
að við höfum ekki ákveðið til
fullnustu hvernig hátíðahöldunum
skuli haga—hvar aðalhátíðasvæð-
ið á að vera.
Um þrjá staði getur verið að
ræða.
1. Á vellinum norðan við Val-
höll, sem nú er sléttaður. Þar er
víðast og mest olnbogarúm. Flöt-
urinn er um 30 dagsláttur hygg
eg.
2. Almannagjá ofan við öxar-
árfoss; fagur staður og skjól gott.
3. Almannagjá og brekkan hjá
Lögbergi. En þar er vegurinn
svo ákaflega mikið til trafala.
Sennilega verður að nota alla þessa
átaði. En þá verður að hugsa vel
fyrir því hvernig á að koma öll-
um mannfjöldanum greiðlega frá
einum stað til annars.
— Hvað búist þér við að marg-
ir sæki hátíðina?
— Ekki er gott að gizka á það.
Frn nríntn við höfum látið ukkur detta 1 hug
ritt Sioriuin w að þarna yrðu um 20 þús. manns.
ALÞINGISHÁTÍÐARNEFND- Mikla ut9j°n Þarf fil nð
ARINNAR sjá öllum (þeim fjölda fynr tjald-
stæðujn. Bezti tjaldstaðurinn
Um það segist Morgunblaðinu [verður á Þingvallatúninu. En þar
svo frá 29. ágúst 's.l.: • 1 verður ekki rúm fyrir tjöld nema
Nefndin hefir haldið 50 fundi : handa 6—7000 manns. Við höf-
til að ráða ráðum sínum. Ætlun-! um litið eftir bollunum í hraun-
in er sú á næstunni að gera endi- inu fyrir tjöld, en Iþeir taka aldrei
legar ákvarðanir um ýms mikil-1 nema 1—2,000 manns.
ugt er, skipað sérstakan söng-
málastjóra, boðið út hátíðaljóð,
lög og kantötu; ennfr. komið til
leiðar, að nokkur félög hér í bæ
undirbúa sýningar o. s. frv.
Eru lesendur Mgbl. því nokkru
nær um störf og fyrirætlanir
nefndarinnar, þó hér sé eigi
drepið nema lauslega á nokkur
atriði. En úr þessu ætti nú að
greiðast sem fyrst, svo almenn-
ingur gæti fengið nokkurn veginn
yfirlit yfir það, hvernig forráða-
mennirnir þugsa sér að hagað
verði og stjórnað þessari afmælis-
hátíð íslenzku þjóðarinnar.—Mbl.
hverjum sitt. Það væri að vísu satt
að á Bretlandi væri 1.250.CXX) af
vinnulaúsu fó!k!/ en ’-að kqjmi ekki
til af þvi, að iðnaðurinn væri að
ganga saman, heldur af hinu að
þeim hefði ekki hepnast að auka
atvinnuveginn tiltölulega við fólks-
fjölgunina. Þessvegna væri út-
flutningur fólks frá Bretlandi
nauðsynlegur.
Ekki þótti honum undarlegt þó
Canada væri vönd að innflytjend-
um. Þeir, sem illa reyndust í sínu
eigin landi væru líklegir til að revn-
ast eips þó þeir flyttu í annað land.
Það Væri rétt sem Horace hefði
forðum sagt: “Þeir, sem fara yfir
höfin skifta um loftslag en ekki
hugarfar.”
Hinsvegar hélt hann því sterk-
lega fram, að það væri mikill hag-
ur fyrir Canada, að fá innfytjend-
ur frá Bretlandi og helzt sem flesta,
því hvergi væri betra og duglegra
fóítc að finna, heldur en einmitt þar.
Nýtt Islendingafélag.
Blaðið Oregon Journal, sem gef-
ið er út í Portland, lætur þess get-
ið, að nýlega sé stofnað þar
borginni íslendingafélag, er telji
á annað hundrað meðlimi. Fram-
kvæmdarnefnd félagsins er þann-
ig skipuð: Barði G. Skúlason lög-
fræðingur, forseti, en meðstjórn-
endur: Mrs. J. Walter Lindal, Mrs.
O. P. Lambourne, Lúðvík Laxdal
og Tom Frazer. Til heiðursfélaga
voru kjörnar þær Mrs. Skúlason
og Mrs. Laxdal. Á stofnfundin-
um fór fram all-tfjölbreytt skemti-
skrá. Mintist Mr. Skúlason fag-
urlegá íslands og íslenzkrar þjóð-
menningar, er 'hann kvað vera á
látlausum þroskavegi. Á fundi
þessum voru einnig stödd Mr. og
Mrs. Jón Friðfinnsson frá Winni-
peg, og stjórnaði Mr. Friðfinns-
son söngnum. Voru þar meðal
annars sungin lögin “ó Guð vors
lands”, “Hvað er svo glatt”, ásamt
þjóðsöng Bandaríkj anna og ýmsu
fleira. Hátíð þessi hafði verið
hin veglegasta, og öllum þeim, er
að henni stóðu, til sæmdar.
Lögberg árnar þessum allra-
yngsta vestur-íslenzka J'jóðrækn-
isfélagsskap, allra heilla.
Hon Hugh P. MacMillon, mikils-
virtur lögmaður frá Skotlandi, sem
nú er að ferðast um Canada, hélt
ræðu í Winnipeg á laugardaginn i'
síðustu viku, þar sem han\ mintist |nema hann sé sérstaklega til þess
meðal annars á fjárhagsástand kvaddur.
væg atriði hátíðahladanna, að því
er einn néfndarmanna skýrir
blaðinu frá.
Fram að þessu hefir verið hljótt
um störf Alþingishátíðar nefnd-
arinnar, svo hljótt, að sumir hafa
efast um, að hún starfaði mikið.
Hafa víða heyrst raddir um það,
að viðbúið væri, að alt myndi
lenda í eindaga, ef sá tími sem
eftir er til stefnu, væri ekki not-
aður sem allra bezt.
f nefndinni eiga þessir sæti nú:
Jóhannes Jóhannesson bæjarfó-
geti (formaður), Ásgeir Ásgeirs-
so fræðslumálastjóri (rit.), Magn-
ús Jónsson, Sig. Eggerz, Jónas
Jónsson frá Hriflu og Pétur G.
Guðmundsson. Auk þess á for-
sætisráðherra sæti í nefndinni, en
tekur ekki þátt í störfum hennar
annars a
bresku þjóðarinnar. Hann var ekki
á því, að það væri neitt líkt þvi eins
slæmt eins og af væri látið. Hér
mundi því oft haldið á lofti að alt
væri að fara á höfuðið í “gamla
landinu,” en þegar menn heyrðu
slíkt væri gott að temja sér að kom-
ast eftir því, í hvaða tilgangi því
væri á lofti haldið. Hann sagði að
lánstraust Breta hefði aldrei verið
Um síðustu helgi fór nefndin
til Þingvalla, og með henni var
Handa því sem umfram er, verð-
ur að tjalda á bökkum öxarár fyr-
ir vestan Almannagjá. Þar er ó-
talkmarkað svæði jfyrir tjöúd.
Lagður verður bílvegur þangað.
Þá þarf að sjá um, að greiður
gangur verði af hærri járbarm-
inum og niður í gjána. Hægt er
Fimtíy ara hjónabandsminnirg
þeirra Mr. og Mrs.
F. FINNBOGASONAR.
á Finnbogastöðum í Nýja íslandi.
(Frá fréttaritara Lögb.)
Bærinn Finnbogastaðir er rétt
á bygðamótum hinnar svonefndu
Breiðuvíkur og Árnessbygðar í
Nýja íslandi. Þar hafa búið við
sæmileg efni í fjöldamörg ár þau
hjón, Finnbogi Finnbogason, frá
Crtibleiksstöðum í Húnavatnssýslu
og Agnes Jónatansdóttir kona
hans, heiðurshjón mestu. í ágúst
s. 1. voru þau hjón búin að vera í
hjónabandi í fimtíu ár, og höfðu
vinir þeirra, í hinum tveim, áður-
nefndu bygðum, ákveðið að minn-
ast þessa merkisatburðar í æfi-
sögu þeirra. Sökum langvarandi
veikinda hinnar góðu konu, Agn-
esar, virtist þó ekki tiltækilegt að
hafa gullbrúðkaupsveizlu, með
venjulegu fyrirkomulagi, svo vin-
irnir tóku það ráð, að heimsækja
þau með fámenni, í staðinn fyrir
margmenni, er annars hefði ver-
ið, eða með öðrum orðum: fela
nokkurs konar sendinefnd heim-
sóknina, er svo afhenti heiðurs-
gjafirnar, sem getið er um í þakk-
lætisávarpi þeirra hjóna, er mér
Agnesar, hafa þau hjón nú alveg
nýlega flutzt til Árborgar, til dótt-
ur sinnar Þorbjargar og manns
hennar, Marteins M. Jónassonar,
sem nú er bæði skrifari og féhirð-
ir sveitarinnar og auk þess póstaf
greiðslumaður þar í bænum. Hér
með fylgir þá ávarpið og svo þakk-
lætisorð þeirra Finnbogasons-
hjóna.—
ÁVARPIÐ.
Til Finnboga og Agnesar Finn-
bogason.
Frá vinum í Breiðuvík.
Kæru vinir!
í ágúst siðastliðnum voru fim-
tíu ár liðin frá því að þið bund-
ust hjúskapar, trygða og kær-
leiksbandi. Þið hafið þannig
ferðast saman langa leið og lang-
an tíma. Tiltölulega fáum auðn-
ast að njóta svo langrar sambúð-
ar. Það er því ei nema eðlileg til-
finning samferðamannanna, að
staðnæmast litla stund og minnast
ykkar á þessum tímamótum. Minn-
ast góðrar samfylgdar og sam-
vinnu. Samferðamennirnir hafa
ykkur margt að þakka. Vér skuld-
um ykkur fyrir mikið og óeigin-
gjarnt starf í bygðinni um öll
þessi ár, sem þið hafið hér verið.
Þið tilheyrið landnemaflokknum
íslenzka sem skapað hefir nýja
sögu í nýju landi, nýjar bygðir í
nýrri heimsálfu, ný heimili undir
nýjum ókunnum kringumstæðum
og ókönnuðu umhverfi, rutt veg
fyrir komandi kynslóðir að íara.
Ykkar skerfur í því starfi hefir
verið stór. Steinarnir, er þið haf-
ið lagt, til í þessa nýju mannfélags
byggingu, hafa verið margir og á-
byggilegir. Ekkert það málefni var
uppi í bygðinni, sem stefndi til
velferðar, framfara og framtíðar-
gæfu fólks og bygðar, að þið
væruð þar ekki með af lífi og sál
] í orði og verki. Fyrir alt þetta er
skyldugt að þakka.
Lengi verða oss mörgum í minni
hinar ljúfumannlegu viðtökur
ætíð á heimili ykkar, sem var eitt
af hinum ágætustu bygðarinnar.
Hlýleiki sá, frá arni jafnt sem
anda, sem mætti hinum aðkom-
andi gesti Og gagntók með likum
áhrifum og vorblærin gróandi
túnin á ættjörðunni. Fann ósjálf-
rátt til þess, að maður væri heima
hjá sér. Þetta var uppbygging á
sinn hátt.
Fyrir alt þetta mikla og góða
starf ykkar fyrir bygðina, fyrir
hinn langa og blessunarrika sam-
veru- og samvinnutíma þökkum
vér einlæglega og hjartanlega.
Guð blessi ykkur aíla ófarna æfi-
daga. Sólgeislar Guðs náðar og
kærleika ljómi hana upp.
ÞAKKARORÐ.
Sunnudaginn þ. 2. sept. síðastl.
var okkur undirrituðum gerð
heimsókn af Mrs. Valgerði Sig
urðsson, Mrs. M. Magnússon, Mrs.
G. G. Martin, Miss Guðnýju Mark-
ússon, og Mr. (Finni Markússon,
fyrir hönd Breiðuvjkur-búa og ná-
granna okkar úr Árnesbygð og
víðar að, í tilefni af 50 ára sam-
búð okkar hjóna. Þetta fólk færði
okkur $50 í gulli, fagran blóm-
vönd í glerstandi, brúðarköku og
“Golden Wedding Card” á ensku.
Einnig frá Okkar einu næsta ná
grannahúsi gott bréf með hugljúf-
um þakklætis og heillaóskum, þar
sem fagurlega var minst liðinnar
tíðar.
Fyrir þetta altsaman finnum við
hjón okkur skylt að senda hjart-
ans þakklæti, fyrir gjafirnar og
vinarhuginn, éem innifelst með
hefir borist og sem eg læt hér mcð fneðfylgjandi kvæði, ort af dr. Sig.
fylgja. Því miður hefi eg ekki við
hendiná kvæði dr. S. J. Jóhannes-
sonar, sem hann orti og á er
minst, það hefir ekki komist í
mínar hendur. Mun eg þó síðar,
væntanlega, geta náð í kvæðið,
að setja gangstíg niður í gjána, svo það geti komið út í Lögbergi.
sem lítil óprýði yrði að rétt sunn-
an við fossinn. Brú verður sett
þar á ána. Og tröppum er hægt
að koma fyrir í sprungu í eystri
gjárbarminum þar skamt frá. Er
þá fenginn greiður gangur milli
hátíðasvæðisins-og tjaldanna upp
með öxjará, rétt /hjá Þingvalla-
túninu.
— En hveriær hugsar nefndin
sér að verklegur undirbúningur
byrji?
Sjálfboðalið Ungmennafél.
hefir unnið nokkuð að sléttun
Vallanna, útbúið tjaldstæði, lag-
að farvegi öxarár, en auk þess
Ávarpið til þeirra Mr. og Mrs.
Finnbogason, frá vinum í Breiðu-
vík, er samið af Mr. Bjarna Mar-
teinssyni, bróður séra Rúnólfs,
velþektum hæfileikamanni og
bcnda 1 Breiðuvík. Voru þeir,
Finnbogi og hann fyrir eina tíð
samverkamenn í sveitarráði, þeg-
ar Pjnnbogi var fulltrúi Breiðvík-
inga í sveitarstjórn, en Bjarni
skrifari og féhirðir sveitarinnar.
í mörg ár undanfarin hafa þeir og
verið starfandi saman í stjórn
Breiðuvíkur safnaðar, ásamt öðr-
um góðum mönnum þar í bygð.
Talar höfundur ávarpsins því af
betra en nú, enda hefðu þeir ávalt
staðið við sína’samninga og borgað j sem hér koma til greina
hin þingkjörna Þingvallanefnd og hefir mií:ið af sléttun verið unn- j náinni þekkingu og með þeiinskýr-
nokkrir aðrir, sem sérstakelga eru
nefndinni eru til aðstoðar.
í gær hitti Mgbl. Magnús Jóns-
son alþm. og spurði hann um
nefndarstörfin alment og Þing-
vallaförina síðustu.
—Nefndin hefir a(lls haft 50
fundi, segir M. J., og mun hún
hafa rætt öll þau helztu málefni,
Hún
ið i ákvæðisvinnu. Ileik, sem honum er laginn. Get eg
Annars líður sennilega að því, | þess til, sökum langrar og ágætr-
að nefndin útnefni framkvæmda- j ar kynningu sjálfs mín við þau
stjóra hátiðahaldanna, er á að i Finnbogasdns hjón, að þeim
taka að sér alla yfirstjórn þess- j Breiðvíkingum muni hvergi þykja
ara mála. Sá maður ætti helzt ofmælt, svo hlýtt og gott sem á-
ekki að hafa annað með höndum
frá því hann tekur við því starfi
og uns alt er um garð gengið.
Þá hefir nefndin, eins og kunn-
varpið er. Þau Mr. og Mrs. Finn-
bogason eru ágætishjón og alls
góðs makleg. — Sökum erfiðleika
í sambandi við sjúkdómsstríð
Júl. Jóhannessyni, er prentist
með þessum línum.
Við vissum fyrir, að vinirnir
ætluðu að gera okkur gleðidag,
sem öðrum, er Breiðvíkingar hafa
sýnt mörgum undanfarandi; en
kringumstæður okkar bönnuðu
það, þar kona mín hefir legið veik
síðan 10. marz s. 1. og ekki með-
tækileg fyrir glaðværð og fjöl-
menni. En þó þessi heimsókn væri
fámenn, gladdi hún okkur engu
síður en fjölmennið, því við fund-
um sama hlýhugann til okkar nú
Og fyr. — Þá er einnig að þakka
samleiðina, samferðina, nú orðin
með sumum 45 ár, og þenna dag
bar upp á sama mánudag þá við
stigum fæti á land í Nýja íslandi,
2. sept. 1883. Við þökkum greiða
og velvildarhug af mönnum fjær
sem nær í Nýja íslandi og einnig
mönnum utan þessa héraðs. Sam-
búðin hefir þó verið alt af við
Hnausabygð þar til nú, að við er-
um flutt til Árborgar.
Svo óskum við öllum vinum og
kunningjum allra heilla og Guðs-
blessunar á lífsleiðinni, fjær og
nær, ungum sem gömlum, hvort
leið þeirra verður löng eða stutt.
Árborg, 6. sept. 1928.
Finnbogi Finnbogason.
Agnes Finnbogason.
\