Lögberg - 13.12.1928, Síða 1
iiftef a.
SÓ
41. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 13. DESEMBER 1928
NÚMER 48
Canada.
Aukakosningar til s'ambands-
þingsins fóru fram í Victoria, B.
C., á fimtudaginn í vikunni sem
leið. Var þar autt þingsæti vegna
þess, að Dr. Tolmie, sem nú er for-
sætisráðherra í British Colmbia,
sagði af sér þingmensku, sem
sambandsþingmaður, þegar hann
gerðist leiðtogi íhaldsmanna í
British Columbia. Þingmanns-
efni íhaldsmanna, D. B. Plunkett,
hlaut kosningu með 83 atkvæðum
fram yfir gagnsækjanda sinn, Dr.
J. D. Mc'Lean frambjóðanda frjáls
lynda flokksins. Við síðustu al-
mennar kosningar hafði Dr. Tol-
mie 2,781 atkvæði fram yfir E. C.
C. Martin, sem þá var gagnsækj-
andi hans.
* * *
Sameinuðu bændurnir í Mani-
toba, (U. F. M.) hafa farið fram
á það við stjórnina, að lækka
gjaldið, sem 'bílaeigendur verða
árlega að borga stjórninni, ofan í
$5.00 fyrir hvern bíl. Svarið sem
þeir fengu, var það. að þetta væri
því að eins hægt að gera, að toll-
urinn á gasolíu væri hækkaður
um það, sem þessari niðurfærslu
nemur, eða svona um það bil tvð-
faldaður. Tekjurnar, sem stjórn-
in hefir haft að þessum bíla-
keyrslu leyfum á þessu ári, eru
komnar yfir eina miljón dala, en
bílarnir í fylkinu eru um 70,000.
Þessi lækkun á keyrsluleyfi, sem
farið er fram á, mundi lækka tekj-
ur stjórnarinnar um $650,000 að
minsta kosti, og er það svipuð
upphæð, eins og þær tekjur, sem
stjórnin hefir nú af olíuskattin-
um. Eins og stjórnir vanalega
gera, lofaði hún að athuga málið.
Það voru ekki aðeins bændurnir,
heldur líka bændakonurnar, sem
fóru fram á þessa lækkun.
* * *
Sumir námamennirnir brezku,
sem til Canada komu til að vinna
við uppskeruna, láta heldur bág-
lega af veru sinni hér, þegar þeir
koma heim, og yfir ástandinu hér
yfirleitt. Segja, að hér sé ekki
annað að hafa en atvinnuleysi,
sult og seyru. Einir sjö af þess-
um mönnum höfðu stolist heim
með skipi, sem fór frá Montreal
til Englands. Fyrir þetta voru
þeir sektaðir og dæmdir í fang-
elsisvist. Þar gafst þeim tæki-
færi til að segja frá sinni reynslu
í Canada, og hún var nú eitthvað
annað en ánægjuleg. Einn þeirra,
Turner að nafni, sagðist að vísu
hafa efngið vinnu hjá bónda. en
sér hefði verið sagt, að hann væri
ónýtur og kynni ekki vinnuna og
hefði svo verið rekinn eftir rúma
viku. Sagðist hann þá hafa farið
að vinna hjá öðrum bónda í grend
við Edmonton, en hann hefði ekki
borgað sér nema 25 cent á dag.
Annar náungi, Daly að nafni,
sagðist hafa fengið vinnu hjá
svenskum bónda, en hann hefði
rekið sig eftir fáa daga, bæði
vegna þess, að hann var óvanur
vinnunni og kunni ekki svensku,
en tók aftur svenskan mann.
Hinir höðu svipaðar sögur að
segja. Þeir hefðu orðið að vinna
14 klukkustundir á dag og allir
verið látnir hætta eftir fáa daga,
og þá hefði ekkert tekið við nema
sulturinn og allsleysið. Þeir bættu
því við, að þetta og því um líkt
væri það, sem þúsundir innflytj-
enda til Canada ættu við að búa.
Við þessum og þvílíkum sögum,
taka sum verkamanna blöðin á
Englandi, og útbreiða þær sem
bezt þau geta.
* * *
Það er nú talað um, þó óráðið
muni það vera enn, að byggja nýj-
an iSpítala fyrir berklaveikt fólk
1 Manitoba. Verður hann vænt-
anlega, ef til kemur, bygður ein-
hvers staðar í grend við Winni-
peg. Þykir það nokkurn veginn
sjálfsagt, þar sem fólksfjöldinn
er hér langmestur. 'Stjórnin hefir
látið nefnd manna kynna sér hve
margt er af berklaveiku fólki í
Manitoba og telst það að vera um
þrettán hundruð. Þó er það ekki
alveg víst, að alt þetta fólk sé
berklaveikt. Hefir ekki verið
skoðað svo nákvæmlega. En það
er talið áreiðanlegt, að þörf sé á
spítala, sem tekur eina 250 sjúk-
linga fram yfir það, sem nú er
rúm fyrir.
* * #
Á mánudaginn var byrjað að
flytja póst með loftförum milli
helztu borganna í Sléttufylkjun-
um, Winnipeg, Regina, Saska-
toon, Edmonton og Calgary. Frá
Winnipeg fór loftfarið kl. 9.10 á
mánudagsmorgun, og hafði með-
ferðis um 16,000 bréf. Til Regina
kom það kl. 11.25, eða 15 mínútum
seinna en til var ætlast, en til
Winnipeg kom það aftur á réttum
tíma kl. 4.30 sama dag. í Re-
gina voru önnur tvö loftför til
staðar, sem komið höfðu frá Cal-
gary of Edmonton um morguninn,
og tóku þau við póstinum frá Win-
nipeg og fluttu hann áleiðis, en
Winnipeg loftskipið tók við þeim
þeim pósti, sem þau komu með að
vestan og austur átti að fara.
Með þessu lagi komast bréf á
einum degi milli Winnipeg og
Calgary og Edmonton. Hepnaðist
þetta alt ágætlega og er sagt, að
loftförin hafi þenna dag borið um
fimtíu þúsund bréf. Þessum til-
raunum með póstflutninga í loft-
inu, verður haldið áfram í 19
daga, en hvort þeir þá halda á-
fram fer eftir því, hvernig þær
hepnast, sérstaklega fjárhags-
lega.
marz, apríl, maí, júní, júli og ág.;
sú seinni yfir september, október,
nóvember, desember, janúar og
febrúar. Verð árgangsins eru
tveir dalir í Canada og Bandaríkj-
unum, en átta krónur á íslandi.
Ætlast er til, að árgangurinn sé
ei 'seinna borgaður en í desember
ár hveyt, þegar seinni bókin er
komin í hendur áskrifendum.
Saga, 732 McGeet IStreet,
Winnipeg, Canada.
Bandaríkin.
í boðkap sínum til neðri mál-
stofunnar í Washington leggur
Coolidge forseti sérstaka áherzlu
á að þingið gæti hófs í öllum
fjármálum nú í velgengninni.
skipi sérstaka nefnd til að hlynna
að bændastéttinni og búnaðar-
málunum yfirleitt; samþykki fjár-
veitingar til að byggja fimtán ný
herskip (fast Crusiers) og sam-
þykki Kellogg friðar sáttmálann.
* # *
John Coolidge, sonur forsetans,
er trúlofaður Miss Florence Trum-
bull, dóttur John H. Trumbull
ríkisstjóra í Connecticut.
í samsæti
hjá Mr. og Mrs. Ottenson.
Á þessum stað er ljút að hressa
lund
og lesa sögu okkar kæru vina,
sem hafa fylgt oss farna, langa
stund
og fágað gleðiljósum sambúðina.
Það er svo gott þá geysa élin köld,
að geta fundið yl og samúð þýða,
og því er okkur koman hqr í kvðld
svo kær og hlý við endurminning
blíða.
Að geyma andans eld frá bernsku-
tíð,
er æðsta markið vorra hröðu daga,
þá verður létt og ljúft vort æfi-
stríð
og ljóssins rúnum fáguð okkar
saga.
Þó líði tíð og lánið sýnist valt,
má létta stríðið bróður-hug og
vilja.
Á haustsins vegum verður aldrei
kalt
hjá vinum þeim, er takmark lífs-
ins skilja.
Þið hjón, sem með oss mættuð
sæld og þraut
og merktuð daginn rausn og kær-
leiks vilja,
vér óskum gæfan geisli ykkar
braut,
unz gengur sól til hafs og leiðir
skilja.
M. Markússon.
Valdimar J. Magnússon
dáinn.
Hann andaðist á heimili sínu,
1121 Ingersoll Str., Winnipeg, að
morgni dags, hinn 11. þ.m. Síð-
ustu mánuðina var heilsa hans
biluð, en rúmfastur lá hann ekki
nema fáa síðustu dagana.
Waldmar J. Magnússon var 62
ára að aldri, fæddur og uppalinn
á Akureyri, en hér í landi mun
hann hafa verið rúm 40 ár, lengst
af í Winnipeg, og öll þau ár, sem
hann var hér í borginni, vann
hann hjá Lögbergi og var einn af
prenturum blaðsins. Átti hann
því meiri þátt í útíiti blaðsins og
ýmsum ytra frágengi, heldur en
flestir lesendur þess munu hafa
hokkurn grun um.
Eftir hann lifir ekkja hans og
fjögur börn þeirar, tvær stúlkur
og tveir piltar, öll uppkomin og
hin mannvænlegustu.
Með Waldimar J. Magnússyni,
er í val hniginn mætur maður og
góður drengur, einn af þeim góðu
íslendingum, sem í engu vildi
vamm sitt vita. Er hans því ein-
læglega saknað, ekki aðeins af
hans nánustu, heldur einnig af
öllum, sem hann
Konungurinn
Af heilsu hans er það að segja,
dð hann liggur enn hættulega
veikur og er þungt haldinn, og
enn í engum afturbata. Eru nú
fullar þrjár vikur síðan hann
veiktist, og eru kraftar hans, að
því er séð verður af daglegum
fréttum, smátt og smátt að
þverra. Prinsinn af Wales kom
heim til London á þriðjudags-
kveldið og gekk þegar á fund föð-
ur síns. Hafði hann hraðað ferð
sinni alt sem mögulegt var og
ferðast 6,000 mílur á níu og hálf-
um degi.
annað séð, en að framtíð safnað-
arins sé vel borgið.
Athygli þarf að vekja á því, að
varast verður að of-mikið bil
verði á milli kynslóðanna eldri
og yngri. Hið eldra fólk, einkum
miðaldra fólk, á að fylgja unga
fólkinu, sérstaklega á guðsþjón-
ustur þess. Foreldrar, kennarar,
djáknar og fulltrúar, geta ekki
þarfara verk unnið en það, að
samrýma sig sem bezt yngri kyn-
slóðinni og leiðbeina henni með
samúðarfullri njerveru sinni á
guðsþjónustu stundum þess. Það
þektu, og þá'er lífsins heilbrigðasta framþró'
ekki sízt af Lögbergi og öllum
starfsmönnum þess.
Því miður er ekki í þetta sinn,
tækifæri til að minnast hans frek-
ar. En vér, sem kynst höfum hon-
um í mörg ár, söknum hér góðs
vinar og ágæts samverkamanns.
Saga
Tímaritið Saga er nýkomið út,
og er þetta seinni bókin af fjórða
árganginum. Efni hennar er sem
hér segir, talið eftir stafrófsröð:
Afturhvarfið: J. ,P. Pálsson; Á
Þingvelli 1930: Þ. Þ. Þ.; Draum-
ur prestsins: Bogi Bjarnason. —
Dýrasögur: Trygð smalahundsins:
Björn Pétursson frá Sléttu; Pete:
E. S. Guðmundsson; iSandy: E. S.
G.; Villikötturinn (þýtt); Hygg-
inn hundur (þýtt); Hrafninn og
valurinn: Stefán Eiríksson; Söng-
elski selurinn (þýtt). — Enginn
skyldi höggorm við hjarta ala: J.
V. J. (þýtt); Eugene Debs (e. M.
S. L.) : Jakobina Johnson þýddi;
Er Njála eldri en Þorsteins saga
Síðuhallssonar?: Steinn Dofri;
Franz Schubert (Aldarfinning):
Gísli Jónsson; Gátur; Geita-
sveinninn, eða öfgar aldanna: J.
Magnús Bjarnason; Gimli: Hjálm-
ur Þorsteinsson; Glettur málar-
ans: Anatole France; Hugrúnar:
Þ.Þ.Þ. íslenzkar Þjóðsagnir—
Svipsjónir: Björgv. Guðmundsson;
“í skugganum einn eg lúri”: B. G.;
Stóru sporin: Halldór Daníelsson;
Fjarsýni Bjargar í Reykjahlíð:
Sigurj. Bergvinsson; Sá gegnum
heilt: M. Ingimarsson; Hulduærn-
ar: Jón örn, Jónsson; Frá Birni
lóru: J. ö. — Kirkjuferð á jóla-
dag: Sig. Júl. Jóhannesson; Krydd
(þýtt og frumsamið); Ljóðabréf
til Sögu: Baldvin Halldórsson;
Perlur: Abraham Raisin (þýtt);
Ráðningar á gátum; Sannleiks-
segjandinn: Mrs. Southworth;
Siðferðislögmál og eigingirni:
Ambrose Bierce; Snorri Sturluson
og Njála: Steinn H. iDofri; St.
Pétur í sálarleit: C. E. S. Wood,
S. H. f. H. þýddi; Það sem á vant-
aði: Þ. Þ. Þ.; Þrjú kvæði: 'Rich-
ard Beck: Lands míns tigna tunga,
Nær koma skipin? Lífsmynd.
Saga kemur út vor og haust.
Fyrri bókin nær yfir mánuðina:
Betel.
Kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar
í Winnipeg, hefir á hverju ári, síð-
an gamalmenna heimilið var
stofnað, varið töluverðu fé til að
gleðja gamla fólkið um jólin.
Þeim góða sið ætlar félagið enn
að halda uppi, að svo miklu leyti
sem efni þess leyfa, en sem stend-
ur hefir það litla peninga fyrir
höndum. Kemur það meðal ann-
ars til af því, að kvenfélag Fyrsta
lút. safnaðar varði miklu fé til að
kaupa fyrir húsgögnin í viðbót þá,
sem bygð var við heimilið á þessu
ári. Þau öll lagði þetta félag til
og gaf þau til minningar um frú
Láru Bjarnason.
Til þess að afla nokkurs fjár,
til að gleðja gamla fólkið á Betel
um jólin, eins og að undanfðrnu,
hefir félagið ákveðið að halda
samkomu í samkomusal kirkjunn-
ar á þriðjudagskveldið, hinn 18.
þ. m., þar sem tekið verður móti
því, sem fólk vill góðfúslega láta
af hendi rakna í þessu skyni, og
er hver og einn sjálfráður að því,
hversu mikið hann lætur það vera,
því inngangur verður ekki seldur.
Kvenfélagið efar ekki að þetta
muni hepnast vel. Undanfarandi
reynsla hefir ótvíræðlega sýnt, að
fólkið í Winnipeg, eins og annars
staðar, er ávalt reiðubúið að rétta
Betel hjálparhönd og til að gleðja
gamla fólkið, en þó sérstaklega
um jólin.
Samkoman byrjar kl. 8.30 á
þriðjudagskveldið. Verður þar til
fagnaðar söngur, hljóðfæfaslátt-
ur, upplestur og veitingar. Ágætt
tækifæri til að njóta góðrar gleði-
stundar, auk þess, sem er aðal-
atriðið, að gleðj'a gamla fólkið á
Betel um jólin.
Ársfundur.
Fyrsta lút. safnaðar í Winnipeg.
Eins og áður hefir verið getið
hér í blaðinu, var hann haldinn
hinn 27. nóvember. Einnig hefir
þegar skýrt frá kosningu em-
i bættismanna. Swlan hafa f«11-
trúar safnaðarins skift með sér
verkum þannig, að Mr. A. C. John-
son er forseti, Mr. T. E. Thor-
steinson skrifari, og Mr. Jónas Jó-
hannesson féhirðir.
Yfirskoðaðir reikningar, sem
lagðir voru fram á fundinum,
sý^a, að hagur safnaðarins stend-
ur ágætlega. Fjárhagsárið náði
aðeins yfir tíu mánuði í þetta sinn
og höfðu tekjurnar á því tímabili
orðið $9,818.99, en útgjöldin
$9,618.96, og var því tekjuaf-
gangur, sem nemur $300.05. —
Fylgir hér með skýrsla sú, er
prestur safnaðarins, Dr. Björn B.
Jónsson, lagði fram á fundinum:
iSIkýrsla um guðsþjónustur og
prestsverk í Fyrsta lút. söfnuði í
Winnipeg, 1. jan 1928 til 31. okt.
1928 (tíu mánuðir): Guðsþjón-
ustur 83, altarisgöngur 487, skírn-
ir 27, fermingar 33, hjónavigslur
35 greftranir 22. Innritast í söfn-
uðinn 67.
Skýrslu þessari um embættis-
verk mín mættu, ef til vill, fylgja
örfá orð um hag safnaðarins á
þessu fagnaðarári, sem nú er senn
runnið í aldanna skaut.
Árið hefir að mörgu leyti verið
TIL HELGU,
ekkju Stephans G—
Þótt falli að glugga fanna lín,
er frost og skugga með sér bera-
óðs eg brugga öl til þín,
ef í því huggun kynni að vera
Svipult gengi flýr oss frá,
að fölu mengi hníga meiðir;
sá kann engan sigur fá,
sem ei gengur brattar leiðir.
\
lEnn þér hlýnar aftan blær
og yngir þína rós á vanga,
sorgir dvína, sárið grær,
sól þér skíni’ um daga langa.
Þú ei hefir hnotið, aldrei áð,
þín æfi er krotuð meðal fanna —
einnig notið, unnað, þráð,
og alla hlotið virðing manna.
un, þá fólkið, sem lifir daginn 1
dag, lætur sér mest um það hug-
að, að undirbúa morgundaginn.
Sé það ávalt markmið fólks í þess-
um, söfnuði.
Að sjálfsögðu hafa mætt oss
erfiðleikar á þessu ári, sem öðr-
um árum. Það tafði mjög fyrir
safnaðarstarfi í byrjun haustver-
tíðarinnar, að hér í borginni gekk
illkynjuð landfarssótt, svo loka
varð sunnudagsskólum sem öðr-
um skólum og takmarka funda-
höld og samkomur. Sunnudags-
skóladagar urðu því færri þetta
ár og ungmennafélögin urðu síð-
búin. En furðu fljótt komst þó
starf það aftur í gott horf.
Á ári hverju heggur dauðinn
skörð í bræðrafylking vora. Af
þeim, sem fallið hafa frá á tíu
mánuðunum síðustu, þeirra er
gamlir og alkunnir safnaðarlimir
eru, má nefna ólaf Freeman, Guð
laugu Fredrickson, Halldór K.
Halldórsson, Stefaníu Johnson og
Ásmund Jóhannesson. Það minn-
ir oss, sem eftir stöndum, á þessi
orð frelsarans: “Verið þar fyrir
vakandi, því þér vitið eigi daginn
né stundina.”
Nú eigum vér mikið verk fyrir
höndum hér í söfnuðinum — meira
verk, en nokkuru sinni fyr. Vinn-
um verkið a 11 i r, — allir eitt í
anda, allir með það eitt fyrir aug-
um, að “Guð í öllum greinum veg-
samist fyrir Jesúm Krist.”
B. B. J.
Ferðalög
THÓRSTÍNU JACKSON.
'Eftir að hafa farið um flestar
bygðir íslendinga í Canada,
sambandi við íslansdförina 1936,
af hálfu Cunard eimskipafélags-
ins, flutti Thórstína Jackson er-
indi í Goodtemplarahúsinu hér í
söfnuðinum sannarlegt fagnaðar- borginni, við svo mikla aðsókn, að
ár. Afmælishátíðin færði söfnuðin
um mikla blessun. Hin ágæta sam-
vinna fólks að öllum undirbúningi
og hátíðarhöldin sjálf, dagana 4.
nóv. til 8. nóv. sameinaði hinn
mikla mannfjölda, er heyrir til
söfnuðinum eða fylgir honum, í
fagnaðaríka einingu, og jók hjá
oss áhuga og trú,
Þrátt fyrir feikilegan tilkostn-
að við aðgjörð og prýði á kirkjunni
og við hátíðarhöldin er fjárhagur
safnaðarins í bezta lagi, eins og
hinar mörgu f járhagsskýrslur,
sem lagðar eru fyrir fundinn bera
með sér.
Ánægju-auki er það oss öllum,
að margt fólk hefir innritast í
söfnuðinn á næstliðnum tíu mán-
uðum.
Mesta framför í lífi safnaðar-
ins tel eg aukinn áhuga hins
yngra fólks. Hin mörgu félög
unglinga og yngra fólks eru með
miklu fjöri og fer þar vaxandi
verulegur áhugi fyrir kirkjumál-
um og kristindómi. Með þeim
horfum, sem nú eru, verður ekki
eigi komust fleiri að. Sýndi hún
auk þess fjölda af fögrum mynd-
um, víðsvegar frá.
Dr. B. J. Brandson, setti mót
þetta með skörulegum inngangs-
orðum, eins og honum er lagið, og
stýrði því.
Það má óhætt segja um mót
þetta, að það tækist í alla staði
vel. Var erindi Thórstínu sér-
lega fróðlegt og skipulega flutt.
Auk þess skemtu með hrífandi
söng, þau Mrs. B. H. Olson og
Mr. Paul Bardal.
Thórstína lagði af stað á mið-
vikudaginn suður til Chicago, en
hygst að verða komin til heimilis
síns í New York, um jólin.
Fyrirlestraför Thórstínu um
nýbygðir vorar, hefir verið rétt-
nefnd sigurför.
KENNARA vantar fyrir Vestri
skóla, No. 1669; kenslutímab. byrj-
ar 1. febrúar og endar 30. júní.
Umsækjandi tiltaki kaup, og
mentastig, einnig meðmæli. Til-
boð /að vera komin fyrir 10. jan.
S. iS. Johnson, sec.-treas.
Box 9, Árborg, Man.
Stúdentablaðið.
Þess var á síðastliðnu sumri
getið í ísl. blöðunum hér í Win-
nipeg, að rit það er Stúdentaráð
háskóla íslands gefur út, og nefn-
ist “Stúdentablað”, væri nú orðið
að mánaðarriti; en það hafði áð-
ur verið ársrit.. Innihalds tveggja
fyrstu mánaðarblaðanna (frá apr.
og maí) var all-ítarlega getið í
Lögbergi og sagt frá því, að eg,
undirritaður, tæki á nmti pöntun-
um fyrir blaðinu hér vestra fyrst
um sinn að minsta kosti, og að á-
skriftargjaldið væri $1.50. — Nú
vildi eg vekja á ný athygli menta-
lýðs meðal |Vestur-ís(lendinga á
blaði þessu, því mér þykir sjálf-
sagt, að einhverjir meðal þeirra
muni vilja eignast tímarit, er
stéttarbræður þeirra á íslandi
gefa út, líkt og skólalýðurinn hér
í landi gerir, við hinar ýmsu
mentastofnanir.
í bréfi til mín nlætur ritstjóri
Stúdbl. hr. Lárus Sigurbjörnsson,
cand. phil., í ljós þá ætlan sína, að
sennilega muni ísl. mentalýður
hér vestra, þeir af honum að
minsta kosti, sem enn leggi eyra
við hjartaslög þjóðar sinnar og
móðurmáls, líklegir til' að vilja
kynnast áhugamálum og anda-
stefnu ísl. stúdenta, eins og slikt
opinberi sig í þeirra eigin mál-
gagni.
‘‘Forspjall’’ ritstjórans í fyrsta
mánaðarblaðinu, er á þessa leið:
“Svo sem kunnugt er, hefir Stú-
dentaráð Háskólans gefið út
‘IStúdentablaðið” í fjögur undan-
farin ár. Hefir blaðið komið út í
eitt skifti á ári 1. desember, og
verið hátíðarrit stúdenta á degi
þessum. — Eins og fyrsta blaðið,
sem út kom af Stúd.bl. (1. des.
1924) ber með sér, var það tilætl-
unin, að blaðið kæmi nokkuru oft-
ar út en í þetta eina skifti á ár-
inu, til þess, eins og komist er að
orði, “að gefa þeim, sem um slíkt
hirða, sem fjölbreyttasta heildar-
mynd af andelgu lífi háskólastú-
denta.” Þessu markmiði varð
auðvitað ekki náð með einu riti á
ári, riti, sem auk þess bar á sér
flest einkenni hátíðarrits; en vin-
sældir blaðsns og eftrtekt sú, sem
það vakt á stúdentum og málum
þeirra, virðist benda ótvírætt í þá
átt, að þjóðin muni leggja hlustir
við máli stúdenta, eins og það
myndi flutt í mánaðarblaði, sem
kæmi út reglulega, a. m. k. há
skólaárið.” — Um stefnu blaðsins
segir ritstj. enn fremur þetta:
“Rétt er að taka það fram, að í
hðfuðatriðum mun blaðið í hinni
nýju mynd sinni fylgja þeirri
reglu, að vinna ekki fyrir neinar
ákveðnar stefnur í þjóðfélags- eða
mentamálum, sem uppi eru með
þjóð vorri nú, heldur kosta kapps
um að gera öllum stefnum jafnt
undir höfði. Dóma um menn og
málefni munum vér þó eigi leiða
hjá oss, en þó haga þeim svo, að
sem flestar skoðanir fái að njóta
sín, má enda segja, að vér byggj-
um blaðið á þeirri staðreynd, að
meðal stúdenta eru menn nákomn-
ir öllum stéttum landsins og úr
öllum héruðum landsins, svo eng-
inn hörgull ætti að vera á mál-
svörum fyrir allar stefnur.”
Blöðin frá okt. og nóv. eru ný-
komin hingað vestur, og flytja þau
ýmislegt læsilegt efni í bundnu og
óbundnu máli. — Fyrsta greinin
í okt.-blaðinu er eftir ritstjórann,
og er á þessa leið:
“Stúdent. »
Ár eftir ár.
Og aftur í ár stendur stúdent í
hópi félaga sinna á skólaþrepun-
um og syngur: A, a, a, valete
studia.
Valete studia.
Hann kveður gamla skólann
beinlínis með virktum — með
söng — til þess í sömu andránni
að depla augunum frammi fyrir
ásjónu lífsins, hins máttuga, hins
dularfulla. Það beið hans þó,
þrátt fyrir alt.
Valete studia.
Gamall stúdent horfir á eftir
bifreiðunum, sem þjóta upp úr
bænum með hina glöðu Þingvalla-
fara. Hann svarar kveðjunum,
veifar, brosir og veifar aftur. Því
einnig hann stóð einu sinni á
skólaþrepunum og söng:
Valete studia.
En hvers vegna leggur honum
nú sting fyrir brjóst? Honum, sem
ekki vildi gera kaup, þótt boðin
væri öll veröldin fyrir að hafa
farið á mis^jvið þau fáu augna-
blik, er hann stóð á skólaþrepun-
um, grænn í gegn, og drap titlinga
framan í lífið.
Bros þú, bros. Því einnig þetta
er lífið, hið dularfulla.”
Fyrirsagnir annara ritgerða í
okt.-blaðinu, eru þessar: Sumar-
ið, Frá Stúdentamótinu í Stokk-
hólmi, Nestor guðfræðisdeildar-
innar (með mynd), Stúdentagarð-
urinn (með myndum), Bækur,
Setning Hóskólans, Guðfræðis-
kandidatar vorið 1928 (m. mynd),
Frá stúdentum. Þá eru þar og
tvö smákvæði: “Að skilnaði” eft-
ir Sigurjón Guðjónsson frá Vatns-
dal, stud. theol., og “Það kveldar”,
eftir Kristján tíuðlaugsson, stud.
jur. — Það hljóðar svona: ,
Það kvöldar.
Reikar um rauðgul blöð
roði frá aftansól,
gullofin sýnast sund,
sveitin í nýjum kjól.
Blágresið hátt í hlíð
hýrnar1 við sólaryl,
glitra hin gulu strá,
gleðinnar finna til.
Úða frá lífsins lind
leggur um hreysi’ og bæ,
hingað ber unaðsóð
utan frá lygnum sæ.
Skuggar á legi og laut
lengjast, þá andar frið
utan frá auðri nótt
inn yfir lífsins svið.
Sólin, er gleði gaf,
gengin er braut á ný,
lengst út á blámans beð
blóðlituð hvíla ský.
Daggperlur bera blóm,
biðja um meira skin,
gleðin er breytt í grát,
— grát yfir horfnum vin.
Hylur sem helgilín
húmblæja dal og fjörð,
alt það, sem líf er léð,
lýtur í bænagjörð.
Sorg þagnar, svefninn vær
sveimar um auðan geim,
draumanna brenna blys,
birta upp nýjan heim.
1 nóvember blaðinu er innihald-
ið þetta: Samband ísl. stúdenta-
félaga, Leifur Guðmupdssop,
minning (með mynd), Stúdenta-
búgarður, Vinna við Stúdenta-
garðinn, Stúd.ráðskosning, Ljóð,
(mikið og nýstárlegt), eftir Tómas
Guðmundsson, Leikhus, Nýr vis-
indamaður, Kveðja frá norræna
mótinu, Bækur, 1. desember og
Frá stúdentum.
Blaðjð fyrir desember verður
stórt og efnismikið; að því stend-
ur, auk ritstjórans, nefnd er til
þess var kjörin af Stúd.ráðinu.
Stúdentablaðið er í svipuðu
broti og ‘‘Óðinn”, 16 blaðsíður,
prentað á góðan pappír, með
skýru letri og góðum myndum.
Þeir, sem eignast vilja blaðið,
geta sent pantanir til mín. Gja’d-
dagi blaðsins er í október. Af
þessum árgangi eru komin hingað
fjögur blöð, fyrir apr., maí, *>kt.
og nóv., og von á desember blað-
inu um miðjan þenna mánuð.
Pöntunum sinni eg tafarlaust,
og sendi enda ein tvö eintök til
sýnis, ef æskt er.
S. Sigurjónsson,
724 Beverley St., Winnipeg.
TIL ISLENZKRA BARNA OG
FORELDRA.
Á laugardagskvöldið kemur, þ.
15. þ.m., verða sýndar íslenzkar
myndir í Jóns Bjarnasonar skóla
á Home St., nálægt Sargent, að til-
hlutan deildarinnar “Frón”. Ar-
inbjörn Bardal hefir góðfúslega
lofast til að sýna myndirnar, og
óskar deildin Frón að sem flest
börn og foreldri komi og sjái
myndirnar. Þar sem ekki var
hægt að byrja laugardagsskólar
kenslu fyrir hátíðar, þá kom
stjórnarnefnd Fróns sér saman
um að hafa þessa kvöldskemtun
áður en laugardagsskólinn byrjar.
Komið öll kl. 8 á laugardags-
kvöldið. Nefndin.