Lögberg - 14.02.1929, Page 8

Lögberg - 14.02.1929, Page 8
Bls. 8. LÖGBERG FIMTUDAGINN 14. EEBRÚAR 1929. ROBlHHOOÐMHlS limitcd Brauð gert úr Robin Hood mjöli heldur sér miIJi þe.ss sem bakað er RobínHood Úr bænum. Látin er í New York borg, Mrs. Fokker, kona flugvélaverksmiðju- eigandans nafnkunna, dóttir hr. Snjólfs J. Austmanns. Var hún tæplega þrítug að aldri, mesta á- gætiskona, að dómi allra, er eitt- hvað kyntust henni. Er við frá- fall hennar þungur harmur kveð- inn að hinum aldurhnigna föður og systkinum. Messuboð 17. febr. — Foam Lake kl. 2 síðd. (stand. t.). Nú eru hlýindin að koma. Fjölmennið — —Virðingarfylst C. J. 0. Athygli skal hér með dregin að því, að fjórða ársþing Hins sam- einaða kvenféjlags Hins ev. lút. kirkjufélags íselndinga í Vestur- heimi, verður sett í dag (miðv.d. 13. febr.) í kirkju Fyrsta lúterska safnaðar, klukkan 2.30 e. h. Er þess að vænta, að þingið verði eins vel sótt og framast má verða. Stendur það yfir í tvo daga. aðist þar aðfaranótt þess 20. jan. Hún var jarðsungin frá kirkj- unni að Winnipeg Beaeh, og lögð til hvílar í grafreitnum í grend við Winnipeg Beach þann 21. jan. Séra Sig. Ólafsson jarðsöng. Kristján Jónsson, vistmaður á Betel, andaðist þar, þann 20. jan. Hann var ættaður frá Skeggja- stöðum í Garði í Gullbringusýslu. Hann kom til þessa lands stuttu eftir aldamót og dvaldi um hríð í Duluth, Minn. Kristján var 72 ára er hann dó. Hin árlega afmælissamkoma Betel, verður haldin í Fyrstu lút. kirkju, þann 4. marz næstkom- andi. Það er kvenfélag safnaðar- ins, er fyrir samkomunni stend- ur, og þarf því ekki að efa að vel verði til ennar vandað. Nánar auglýst síðar. Mr. Thor. Johnson, og Miss Laufey Sæmundson, bæði til heim- ilis hér í Borginni, voru gefin saman í hjónaband þann 11. þ.m. af séra Birni B. Jónssyni, D.D., að heimili hans, 774 Victor St. Á fundi, sem Goodtemplara- stúkan Skuld, nr. 34, I.O.G.T., hélt þriðjud. 5. þ.m., voru eftirfylgj- andi embættismenn' settir í em- bætti af umjboðsmanni stúkunnar, Gunnl. Jóhannssyni: F.Æ.T.: Ás- björn EggertsSon, Æ.T.: E. Har- alds, V.T.: O. G. Guðmunusson, Kap.: Á. Jóhannesson, Rit.: Helgi Jöhnson, A. R.: Þórh. Eyford, F.R.: Sig. Oddleifsson, Gjaldk.: M. Johnson, D.: Anna Eyford, A. D.: L. Eyjólfson, V.: Sig. Mark- ússon, ú.V.: Sigurj. Björnsson.— Stúkan Skuld heldur nú fundi á þriðjudagskvöldum; munið það, Goodtemplarar, og komið á fund- ina. Þeir Jóhannes Pétursson frá Wynyard, Sask. og Mr. Guðmunds- son frá Mozart, komu til borgar- innar í byrjun vikunnar. Var hinn síðamefndi á leið til N. Dak. Mr. Pétur Bjarnason frá Hecla P.O., Man., hefir legið á spítalan- um hér í borg frá því síðustu dag- ana í janúar. Hann var skorinn upp við handarmeini af Dr. Gib- son . Er hann á góðum batavegi. Hr. Björgvin Guðmundsson, bið- ur þess getið, að engin söngæfing verði í Selkirk föstudaginn þann 15. þ. m., og heldur engin í Winni- peg laugardaginn þann 16., eða mánudaginn þann 18. Dr. Twéed verður stáddur í Árborg miðviku- og fimtudag, þ. 2.7 og 28. þ. m. WONDERLAND. Það er sagt um kvikmvndina “Four Walls’’, sem nú er verið að sýna á Wonderland leikúsinu, að ún sé fallegasta myndin, af fall- egasta staðnum í fallegustu borg- inni í heimi. Þetta mun ekki vera langt frá lagi, því. myndin þessi er afbragðs góð og skemtileg og allir ljúka upp einum munni um það, að þar leiki John Gilbert af- ' burða vel. Fyrri hluta næstu viku sýnir leikhúsið myndina “The Patriot”. Mynd frá Rússlandi, sem er með afbrigðum dularfull og spennandi og öllum þykir afar mikið til kpma. “Ramona”, myndin sem á minna en sex mánuðum varð heimsfræg, verður sýnd af John S. Thorstein- á eftirfylgjandi stöðum. Árborg, þriðjud. 19. feb. Riverton, miðvikud. 20. feb. GimU, fimtudag 21. feb. Hnausa, föstudag 22. feb. Sagan gerist í Californíu um miðja 19. öld, eða um það leyti, sem gulltekjan stóð þar sem hæst. Sagan m. a. gengur út á kúgun Indíána og ást kynblend- ingsstúlku til tveggja vina — aynars Indíána, en hins af hvít- um ættum. Mrs. J. S. Torsteinsoií syngur “Ramona” og mörg af gömlu, góðu, angurblíðu lögunum, sem við, hverfandi kynlsóðin, rauluð- um fyrir svona tuttugu til þrjá- tíu árum síðan — áður en “jazz-’ og “blackbottoms” tóku við stjórn- inni. Mr. Telmer spilar á píanó. Aðgangur 75c, 50c, 25c. Látin á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg, Fjóla Anna Gísla- dóttir Hördal; kona Sveinbjarnar Teitssonar Hördal, í Riverton. Mrs. Hördal var fædd 6. des. 1882, á Skíðastöðum í Skagafirði. Gísli Gíslason hét faðir hennar, en móðir hennar hét Helga. Misti hún móður sína ung, og fór á- samt föður sínum og seinni konu hans, til Canada. Ólst upp í Sel- kirk, en fór til Winnipeg og var þar til heimilis í mörg ár. Áríð 1905 giftust þau Sveinbjörn og Fjóla heitin. Bjuggu þau þar í 14 ár, en fluttu síðan í ísafoldar- bygð og síðar til Riverton. J>au eignuðust 8 börn, dóu tvð þeirra ung, en sex eru á lífi. Hin látna var talin merk kona og góð móð- ir. Lengi hafði hún verið lasin að heilsu, en varð snögglega veik, var flutt á sjúkrahúsið og and- DÁNARMINNING. Guðmundur Guðmundsson var fæddur á íslandi 7. ^ílí 1845, í Gautavík í Reruneshreppi. í Suður Múlasýslu. Faðir hans var Guð- mundur Jónsson bóndi í Gauta- vík; kona hans hét Jarðþrúður Jónsdóttir. Þau hjón eignuðust tíu börn; af þeim 'lifa tvö: Jón Goodmani, Wynyard, Sask., og Guð- laug H. Thorlakson Hensel, N.D. Guðm. Guðmundsson dó 7. des. 1928, hjá dóttur sinni Jarðþrúði, sem er Mrs. Heyerman og býr í bænum Linton, N.D. önnur dótt- ir hans, Margrét að nafni, er til hans kom með líkið alla leið frá Linton til Hensel, N.D., og var það lagt við hlið konu hans í kirkjugarði Vídalíns safnaðar, eins og hann hafði óskað eftir, er hann lá mjög Veikur í haust, og jarðsungið af séra H. Sigmar, að viðstöddu skyMfólki og vinum hins látna. Guðm. var seinustu heimilis í Mozart, Sask. Dóttir tíu árin hjá Jarðþrúði dóttur sinni; hún reyndist honum elsku- leg dóttir í alla staði, og Mr. Hey- erman sömuleiðis mjög vel. Guðm. var kristinn maður, sem hagnýtti sér guðsorð, hafði unun af að lesa biblíuna; þráði að fá að komast heim til drottins Jesú. Blessuð sé sál hans í faðmi frels- arans. — Guðm. er getið í Sögu N. Dak. gl. 189. H. Th. Gullbrúðkaup áttu hinn 8. þ. m. merkishjónin Eyjólfur Jónsson bóndi á I>óru- stöðum á Vatnsleysustr. og kona hans Steinunn Helgadóttir. Sama dag voru gefin saman í hjónaband fósturdóttir þeirra Guðríður And- résdóttir og Guðni Einarsson bóndi á Landakoti. Fjöldi sveit- unga þeirra, vinir og vandamenn voru viðstaddir. Minningarræða fyrir gullbrúðkaupshjónunum, og hjónavígslan fór fram í Kálfa- tjarnarkirkju. Var svo gengið ehim að Þórustöðum1. og gullbrúð- kaupshjónunum afhetn skrautrit- að ávarp frá fósturbörnum þeirra. Þaðan var haldið að Landakoti, heimili brúðhjónanna, beið þar gestanna tjaldbúð raflýst og vist- um búin borð. Samkvæmið var hið ánægjurík- asta, og margar ræður fluttar. Inni beið hlýtt hús gestanna og vandað harmonium; skemti fólk sér þar við söng, en aðrir- stigu dans í tjaldbúðinni. Samkvæminu lauk nokkru eftir miðnætti, og Jiéldu allir glaðir heim, yfir því að hafa mætt á þessum merka áfanga. lEyjólfur og Steinunn byrjuðu búskap sinn með sáralítil efni; var ann þá 26 ára gamall og fremur heilsutæpur fyrstu bú- skaparárin. — Samtæk hagsýni þeirra hjóna og staðföst iðjusemi varð þess valdandi, að þau brátt voru viðurkend í efnaðri og nýt- ustu bænda röð. Auk þess, sem þau eiga einn uppkominn efnilegan son, voru mörg fósturbörn þeirra, er bera vott um, og viðurkenna hið góða og guðrækilega uppeldi er þau nutu hjá þeim. Bóklega mentunin var Eyjólfi svo sem mörgum alþýðumnnum 19. aldars útigangsfóður; þrátt fyrir það gegndi hann ýmsum op- inberum trúnaðarstörfum. í hreppsnefnd starfaði hann 18 ár og var um sex ára skeið oddviti hennar; lágu þá miklar skuldir á hreppnum, en eftir þau sex ár var hreppurinn skuldlaus út á við. Og ýmsum öðrum störfum gegndi hann í þarfir sveitarfélags síns. Síðustu 10 áratugi hefir hann verið einn með hæstu gjald- endum hreppsins. Kona Eyjólfs er auk góðra bú- sýsluhæfileika, viðurkend fyrir hjálpsemi gagnvart sjúkum, bæði mönnum og skepnum. Mun hún um nærfelt 30 ár hafa verið bjarg- vættur í sveit, sinni gagnvart sjúkdómum í búpeningi; veit bændastétt landsins, 'hve mikils virði sú aðstoð er. Auk ýmsra vináttu og virðing- armerkja er mætt^ þeim á hinum merkilega áfanga, færðu fjórir ibróðursynir Steinunnar þeim vand aðan legubekk, og sveitungar þeirra og vinir færðu þeim vönd- uð útvarpstæki. Megi gullbrúðkaupsjónin eiga bjart og friðsælt haust fyrir hendi. Þau hafa í störfum sín- um reynst og reynast enn sómi stéttar sinnar. Á. J. MorgbJ. 14. nóv 1928. Aths.—Þessi gullbrúðkaupsfregn er hér birt, samkvæmt ósk bróður gullbrúðgumans, sem búsettur.er að Arnes, Man. — Ritstj. IÐUNN KOMIN. Síðasta hefti, 12. árg. (1928) og sendi eg það tafarlaust til allra útsölumanna og kaupenda. Þessi árgangur Iðunnar er yfir 400 bís. og er það 80 bls. meira en kaup- endur áttu tilkall til. Auðvitað er það fyrir vaxandi vinsældir Iðunnar, að þessi stækkun varð möguleg, því tímarit, eins og hvert annað fyrirtæki, á sitt líf og þroska undir vinsældum fjöldans. Og það er ekkert skrum eða flap- ur þótt eg segi, að Iðunn er svo gott rit að ÖUu samlögðu, að hún ætti að vera velkomin á hverju einasta íslenzku heimili hér vest- an hafs. Verð árgangsins er að- eins $1.80, sem borgist bara ein- hvern tíma á árinu. Eg býð nýj- um kaupendum sérstök kostaboð. Öllum bréfum svarað tafarlaust. Magnus Peterson, 313 Horace Ave., Norwood, Man., Canada. Til Hallgrímskirkju. Swan Johnson, Everson, Wash $5 iSiesselja Johnson, Vanclouver $5 Th. Laxdal, Curchbridge ....... $2 J. Jónasson, Ft. R., Wpeg...... $2 Jón Eyjólfsson, Lundar ........ $1 Stef. Ólafsson, Lundar ........ $1 Snæbj. Einarsson. Lundar .... $1 Samtals $ 17.00 Áður auglýst........ 519.10 Alls nú .... $536..10 E. P. J. Andrés Þorbergsson, ættaður af Tjörnesi í Þingeyjarsýslu, andað- ist í Riverton, Man., árdegis þann 21. jan., eftir stutta legu. Hann var ekkjumaður. Tvær dætur, Mrs. Kristinn Einarsson í River- ton, og Mrs. Th. Thorsteinsson i Glenboro, eru á lífi. Andrés heit- inn kom til Canada árið 1910 af Húsavík og dvaldi um tíu ára skeið í Baldur, Man., en fluttist eftir 1920 til Riverton. INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS Amaranth, Man Akra, N. Dakota Árborg, Man Árnes, Man . . B. G. Kjartanson. . .. B. S. Thorvardson. .... Tryggvi Ingjaldson. F. Finnbogason. .. . . O. Anderson. Bantry, N.Dakota .... SigurÖur Jónsson. Beckville, Man .. .. B. G. Kjartanson. Bellingham, Wash . . . Thorgeir Simonarson. O. Anderson Bifröst, Man Tryggvi Ingjaldson. Blaine, Wash Thorgeir Símonarson. Bredenbury, Sask S. Loptson J. S. Gillis. Cavalier, N. Dakota .. . B. S. Thorvardson. Churchbridge, Sask. .. . S. Loptson. Cypress River, Man. .. . F. S. Frederickson. Dolly Bay, Man Ólafur Thorlacius. Edinburg, N. Dakota . . . Jónas S. Bergmann, Elfros, Sask .. Goodmundson, Mrs. T. H. Foam Lake, Sask . . . . GuSmundur Tohnson. Framnes, Man Garðar, N. Dakota Jónas S. Bergmann. Gardena. N. Dakota .. . Sigurður Jónsson. Gerald, Sask C. Paulson. Geysir, Man . . . Tryggvi Ingjaldsson Gimli, Man 1. Glenboro, Man Glenora, Man Hallson, N. Dakota .. . Col. Paul Johnson. Hayland, Man: .. . . .. Hecla, Man Gunnar Tómasson. Hensel, N- Dakota Joseph Einarson. Hnausa, Man Hove, Man Howardville, Man. t. .. Húsavík, Man Ivanhoe, Minn Kristnes, Sask Langruth, Man Leslie, Sask. Lögberg, Sask Marshall, Minn J. Markerville, AUa Maryhill, Man Minneota, Minn Mountain, N. Dakota .. Mozart, Sask Narrow's, Man Nes. Man Oak Point, Man Oakview, Man Otto, Man Pembina, N. Dakota . . . G. V. Leifur. Point Roberts, Wash. .. Red Deer, Alta Reykjavík, Man Riverton, Man . . Seattle Wash Selkirk, Man Siglunes, Man Silver Bay, Man Svold, N. Dakota Swan River, Man Tantallon, Sask Upham, N. Dakota .. .. Vancouver, B. C Viðir, Man Vogar, Man Westbourne, Man Winnipeg, Man Winnipeg Beach. Man. .. Winnipegosis, Man Wynyard, Sask ROSE THEATRE Sargent and Arlington Fallegasta leikhúsið í vest- urhluta borgarinnar. Fimtud. Föstud. Laugard. Þessa viku GEORGE O’BRIEN og ESTELLE TAYLOR í íleiknum “Honor Bound” einnig “Why Saylors Go Wrong” Mikjl tvígild sýning Yellöw Cameo No. 9 Mánud. Þriðjud. Miðvikud. næstu viku. Sérlega Aðlaðandi Wi DANCING DAÖGTHER5’ Leikið af k JOAN CRAWFORD og JOHN MAICK BROWN Comedy — News Óvænt heimsókn. Laugardagskveldið 2. þ. m., gerðu allmargir kunningjar og vinir þeirra Mr. og Mrs. G. F.* Gíslason, þeim heimsókn í tilefni af því, að þau voru þá nýlega flutt .til 'hins nýbygða heimilis síns, að 738 Banning Street hér í borg- inni. Alls munu þessir óboðitu gestir hafa verið um fimtíu. Þó mundu fleiri hafa viljað vera með, því þau hjón eru bæði vin- sæl og vinmörg. Til minja um heimsóknina, afhenti Dr. H. B. Olson. þeim hjónum vandaðan “Dinner Wagon” frá viðstöddum vinum. Skemti fólk sér síðan við dans, söng og veitingar, nokkuð fram eftir nóttu. Continuous Telephone 87 OZ5 Saturday 2-H^p’m. Wonderland .Jl'?;,. FIMTUI). FÖSTUD. LAUGARD. þessa viku JOHN GILBERT “in FOVR WAELS” with JOAN CRAWFORI) and Vera * ordon, E»uis Natheaux, Carmel Myers COmedy Entitled Compamoate Service and the Myatery Rlder nr. X MÁNU, ÞRIÐJTJ og MIDVIKUD., 18., 19. o£ 20. FEBR. EMIL JANNUVGS “in THE PATRIOT” Comedy Entitled Hot or Cold Voru menn á undan Kristi hólpn- ir á sama hátt og nú á tímum? verður umræðuefnið í kirkjunni nr. 603 Alverstone stræti, sunnu- daginn 17. feb., kl. 7 síðdegis. — Allir velkomnir.— Virðingarfylst, Davíð Guðbrandsson. The Cake Shop 70* Sargent Ave. Verzlið við Cake Shop, með það fyrir aug-um að fá ekta heimabakað brauð. Vörur vorar mæla bezt með sér sjálfar. Snow Cake okkar, hver .. 25c Hinar ágrætu Cakettes,, hver 20c, Fást einungis í The. Cake Shop Vér höfum dSJÍtinn kyma, þar sem vér seljum, ye og heitt súkkulaði, með vorri nafnfrægu Pruif Cake. Opiö á sunnudöpum frá 11 f.h. til 6 e.h. RAMONA BEAUTY PARLOR íslenzkar.stúlkur og konur. Þeg- ar þið þurfið að klippa, þvo, eða laga hárið, eða skera eða fága neglur, þá komið til okkar. Alt verk ábyrgst. Sanngjarnt verð. 251 Notre Dame Ave. Sími: 29 409 Inga Stevenson. Adelaide Jörundson. MiÐSVETRARMÓT haldið að Lundar, Man., 22. febrúar 1929. Til skemtana verður: Söngur, Ræðuhöld og stuttur Leikur, o fleira. — Inngangur 50c. Al-jíslenzkar veitingar, svo- sem: hangikjöt, rúllupyisa, og laufabrauð, o. fl«, verða til sölu á staðnum. — Hljómfærasveit Hundarbæjar spilar fyrir dans- ínum. HænU ungar, sem verða beztu varphænur í Canada; áhyrgst að ungarnir komi allir lifandi. Skýrsla um kyn unganna látin fylgja þeim. Ýmsar tegundir, svo sem Leghorns, Barred Rocks, Reds, Anconas, Min- orcas, Wyandottes, Orpingtons 12 mánaða tilsögn kostnaðarlaust. Út- ungunarvélar og áhöld til að ala upp ungana. Ókeypis verðlisti. Alex. Taylor’s Hatchery, 362 Furby St., Winnipeg, Man. BJÖRG FREDERICKSON Teacher of Piano Ste 8, Acadia Apts. Victor St. Telephone: 30 154 PRINCESS FLOWER SHOP Laus blóm—Blóm í pottum ; Blómskraut fyrir öll tækifæri Sérstakl. fyrir jarðarfarir. ] 412 Portage at Kenned. 87 876 Electricálly Hatched BABY CHICKS “Fyrir afurðir, sem eg hefi selt og það, sem eg á ðselt hefi eg feng- ið $125.00 ágéðtr af þeim $18.00, sem eg I apríl í fyrra borgaði yður fyr- ir 100 Barred Rock unga,” skrifar os^ Mrs. C. B. Denny, Milden, Sask. Pessi vitnisburður, eins og margir aðrir, sem oss berast án þess við biðjum um þá, er oss sö^nnun þess. að það borgar sig vel fyrir bændur að fá eitthvað af vorum kynbættu varphænum. Bók, sem er 32 bls. og með litmyndum fáið þér gefins. Hún gefur yður allskonar upplýs- ingar um hænsni og hvernig með þau á að fara. 10% afsláttur á öll- um pöntunum fyrir 1. marz. Hamblcy Windsor Hatcheries, Ltd. 601 Logan Ave., Winnipeg, Man. GREAT-WEST CANADIAN ÞJÓÐSÖNCVAR, ÞJÓÐDANSAR OG HEIMILISIÐNAÐARSÝNING REGINA - - MARCH 20-23 Fjögra daga hrífandi skemtun, er sýnir söng og heimilis-iðnað fólks i Sléttufylkjunum. Söngvar - hljóðfœraleikarar - alþýðudanzarar frá 20 ÞJÓÐUM klæddir í hina skrautlegu og fögru þjóðbúninga sína. Heimilis-iðnaðar Sýningin, U ndir umsjón Canadian Handi- craft Guild — en söngur og Þjóðdansar undir umsjón The Department of Music, Canadian Pacific Railway. Þeir, sem vilja senda muni á sýninguna, setji sig í sam- band við Mrs. Illingworth HOTEL SASKATCHEWAN The Canadian Pacific Hotel at Regina, Sask. A Strong, Reliable Business School UPWARD OF 2000 ICELANDIC STUDENTS HAVE ATTENDED THIS COLLEGE SINCE 1909. 0 The Success College, of Winnipeg, is a strong, reliable school—its superior service has resulted in its annual enrollment greatly exceeding the yearly attendance of all other Business Oolleges in the whole Province of Manitoba. Open all the year. Enroll at any time. Write for free prospectus. BUSINESS COLLEGE, Limited 385(4 Portage Ave. — tVinnipeg, Man. ♦

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.