Lögberg - 01.08.1929, Blaðsíða 8
Bls. 8.
LÖGBERG FIMTUDAGINN 1. ÁGÚST 1929.
Glóðheitar bollur
búnar til úr
RobinHood
Ur bænum
Ásgeir Clemens frá Silver Bay
og Guðrún F. Sveinson frá Vogar
voru gefin saman í hjónaband að
599 Sherbrooke St., 25. þ. m. af dr.
Birni B. Jónssyni.
Þann 26. júlí, kl. 8 að kveldi, fór
fram viðhafnarmikil hjónavígsla
í Elks Club Rooms hér í borginni.
Brúðhjónin voru E. Leo Johnson
og Jónína Sigríður Olson. At-
höfnina framkvæmdi dr. Björn B.
Jónsson. Fjölmenn og ríkmann-
leg veizla var haldin í hinum rúm-
góða fundarsal, og stóð hún til
miðnættis. Lögberg óskar ungu
hjónunum efnilegu hamingju-
samrar framtíðar.
Sunnudaginn hinn 4. ágúst pré-
dikar séra Jóhann Bjarnason í
Mikleyjar kirkju. Fer þar einnig
íram ferming og altarisganga. Fór
séra Jóhann áleiðis til Mikleyjar
á mánudaginn.
Gjafir til Jóns Bjamasonar skóla.
Consul General Böggild, Mont-
real ................. $10.00
Mrs. Inga Thordarson, Chi-
cago .................... 10.00
Miss Jóhanna Hallgrímsson,
Minneota ................ 5.00
Mr. og Mrs. P. Jökull, Min-
neota .................. 5.00
Sigríður Eiríksson, Mary Hill 5.00
Ungtemplara stúkan Gimli
No. 7, Gimli, Man ........ 10.00
Mr. og Mrs. Jón Árnason,
Moosehorn, Man............ 2.00
Kvenfél. “Stjarnan’’, Árnes,
Man.................... 10.00
Pembinasöfnuður ........... 10.00
Kvenfél. Liljan, Hnausa .... 10.00
S. W. Melsted, gjaldk.
Jarðarför Helgu sál. Bárðarson,
er andaðist að heimili sínu í Ar-
gylebygð þ. 22. júlí eftir ellefu
vikna legu, fór fram þ. 24. s.m.,
fyrst með húskveðju á heimilinu
og svo með útfararahöfn í kirkju
Frelsissafnaðar. Fjöldi fólks við-
statt. Hin látna, er var merkis-
kona, var ættuð úr Mýrasýslu, for-
eldrar hennar þau hjón Eiríkur
Jónsson og Guðríður Jónsdóttir,
er áttu heima á Litlu Brekku í
Borgarhreppi. Maður Helgu var
Sigmundur sál. Bárðarson, er Iézt
að heimili þeirra hjóna í desem-
ber 1902. Þau hjón komu að heim-
an árið 1886, námu land í Argyle-
bygð árið eftir og bjuggu þar æ
síðan. Þau eignuðust tólf böm.
Þrjú af þeim dóu ung, tvö dóu
fullorðin árið 1923, Guðbjörg og
Sigurður, hann af brunaslysi vest-
ur í Vatnabygðum í Saskatche-
awn. Sjö eru á lífi: 1. Ólína Guð-
ríður Sigurrós, 2. Guðbjörn Sigur-
jón, 3. Jórunn, gift Dr. R. Mc-
Leod, 4. Jón, kona hans Guðrún
Jósefína f. Richter, 5. Eiríkur
Valdimar, 6. Felix og 7. Lilja. —
Hin systir Helgu sál. er á lífi,
Guðbjörg að nafni, og á heima í
Glenboro. Búskaparár sín á ís-
landi, sex eða sjö í alt þar, bjuggu
þau Sigmundur og Helga í Rauða-
nesi í Borgarhreppi í Mýrasýslu.
Eftir lát manns síns 1902 bjó
Helga sál. ein með börnum sínum
og fórst vel. Fjölskyldan öll hin
myndarlegasta og vel látið fólk.
—■ útförin var undir umsjón J. S.
McLellan, frá Baldur, er hefir
hinn fullkomnasta útbúnað eins
og nú gerist í stórborgum. Mr.
Óli Anderson söng einsöng í kirkj-
unni. Séra Jóhann Bjamason jarð-
söng. (Fréttar. Lögb.).
í Séra Rúnólfur Marteinsson fór
j til Pembina á laugardaginn í vik-
j unni sem leið og prédikaði þar á
1 sunnudaginn. Pembina söfnuður
I er fámennur, því þar eru nú orðn-
ir fáir ísendingar, en hann er
engu að síður lifandi og starf-
andi.
Hinn 18. júní voru þau Rúnólf-
ur Sigurdson og Winnifred Rachel
Holiday, bæði til heimilis í Win-
nipeg, gefin saman í hjónaband
af séra Rúnólfi Marteinssyni, að
493 Lipton St. Heimili þeirra
verður framvegis í Winnipeg.
Mr. og Mrs. Páll Guðmundsson,
frá San Diego, Calif., voru stödd
í borginni í vikunni sem leið. Þau
áttu lengi heima í Winnipeg og
fluttust héðan til Saskatchewan
og þaðan fyrir sex árum til San
Diego.
Mr. og Mrs. Halldór Anderson,
Cypress River, Man., hafa verið
j stödd í borginni nokkra undan-
farna daga. Mrs. Anderson er að
leita sér lækninga.
Messuboð. — Næsta sunnudag
messar séra Carl J. Olson að Moz-
art kl. 11 f.h., Wynyard kl 3 e. h.
og Kandahar kl. 7.30 e. h. Allar
þessar guðsþjónustur fara fram á
íslenzku.
PIANO HLJÓMLEIKA
! heldur Mr. Tryggvi Björnsson á
j eftirgreinduym stöðum:
Árborg — 5. ágúst.
Riverton — 7. ág.
Lundar — 12. ág.
Glenboro — 14. ág.
Baldur — 16. ág.
Gimli — 19. ág.
Hljómleikar í Winnipeg auglýstir
síðar.
Mr. og Mrs. Andrew Pálmi, frá
Jackson, Mich., komu til borgar-
innar um helgina og verða hér
þessa viku. Mr. Pálmi hefir ver-
ið tólf ár þar syðra og mjög fáa
íslendinga séð á þeim tíma. Er
hann góður íslendingur, engu að
síður og munu margir Vestur-
íslendingar kannast við hann af
vísum, sem birzt hafa eftir hann
í Heimskringlu og' verðlaunum,
sem hann hefir gefið fyrir bezt
ortar hringhendur. Mr. Pálmi var
eitt sinn glímumaður mikill og
glímukappi á Norðurlandi. Þá í-
þrótt hefir hann nú ekki æft í
mörg ár. íslenzku glímunni seg-
ist hann þó muni aldrei gleyma
og ætlar nú að taka. þátt í henni
á íslendingadaginn í River Park á
laugardaginn. Mr. Pálmi er Hún-
vetningur, úr Langadal. Mrs.
Pálmi er pólsk að ætt.
Ólöf Ingibjörg Bjarnason, hjúkr-
unarkona, sem heima á í Los Ang-
eles, Calif., kom til borgarinnar
síðastl. föstudag í heimsókn til
systkina sinna. Hygst hún að
dvelja hér í mánaðartíma. Er hún
til iheimilis hjá bróður sínum,
Skúla G. Bjarnason og konu hans,
að 656 Toronto St.
Börn staðfest í Konkordía kirkju,
við Churchbridge, sunnudaginn
28. júlí:
Ervin Behrmann.
Guðmundur Sveinbjörnsson.
Guðjón Camoen Loptson.
Helgi Loptson.
Thorgrímur Thorvaldsson.
Thorsteinn Hjálmar Loptson.
Ólafur Greipur Sveinsson.
Vilmundur Egill Sveinsson.
Elenóra Bensson. S.S.C.
Þann 13. júlí síðastl. andaðist
á Almenna sjúkrahúsinu í Winni-
peg, William Thorleifur O’Hare,
sonur hjónanna John og Sigríðar
O ’Hare, er faðir hans ættaður frá
Ontario, en Mrs. O’Hare dóttir
Bjarna heitins Péturssonar á
Grenivöllum í Árnesbygð, búa þau
O’Hare hjónin þar í grend. Wil-
liam varð veikur síðastliðinn vet-
ur og leið miklar þjáningar unz
hann lézt, sem áður er sagt; hann
var mannvænlegur piltur, og er
hans sárt saknað. Hann var jarð-
sunginn frá lútersku kirkjunni í
Árnesi þann 16. júlí, af séra Sig-
urði ólafssyni, að viðstöddu fjöl-
menni.
Miss Emily Johnson.
Hún á heima í Vancouver, B.C.,
og er þar uppalin, nú 15 ára að
aldri, dótturdóttir Árna kaupm.
Friðrikssonar og konu hans. Hún
hefir nú undanfarin ár lagt stund
á fiðluspil og skarar langt fram
úr öðrum þar um slóðir í þeirri
list. Hefir hún nú ár eftir ár
leyst próf sín af hendi með afar-
hárri einkunn og nú síðast (1929)
hlotið $180.00 verðlaun. Lítur út
fyrir, að þessi unga stúlka sé efni
mikinn snilling á sviði hljóm-
listarinnar.
Canadian Pacific S. S.
Empress of Russia, 25. júlí 1929.
Hr. ritstjóri Lögbergs,
Kæri vin!
Eg vil biðja þig að flytja kærir
kveðjur okkar hjónanna til hinna
mörgu vina okkar, bæði sunnan
og norðan línu. Um það leyti, er
við lögðum á stað í langferð okk-
ar, var okkur sýndur hlýhugur af
svo mörgum. Fylgir hann okkur
sem blíður byr. Einnig þakka eg
þér árnaðaróskir þínar í blaðinu.
Ferðin hefir gengið hingað til
upp á hið ákjósanlegasta, og líðan
er góð, G. s. 1. Lögðum á stað frá
Vancouver kl. 12 í dag. Skipið er
ágætt að sjá, bæði að utan og inn-
an, eins langt og eg hefi getað séð.
Við ferðumst á öðru farrými og
fer vel um okkur, óþarfi á því
betra. Komum kl. 6 í kvöld við í
Victoria, þegar eg get skotið þess-
um línum í land.
Vinsamlegast,
N. S. Thorlaksson.
KENNARI óskast fyrir Frey
skóla No. 890, fyrir næsta skólaár.
Umsækjendur taki fram menta-
stig, æfingu og launa upphæð
Umsóknir sendist til H. B. Skapta
son, Box 206, Glenboro, Man.
KENNARA vantar fyrir Ebb
and Flow skóla, No. 1834, frá 15.
ágúst til 15. des. n. k. Umsóknir
tiltaki mentastig, æfingu og kaup
óskað eftir. Sendst til J. R. John-
son, Sec.-Treas., Wapah, Man.
100 herbergi,
með eða án baðs.
Sanngjarnt
verð.
SEYMOUR HOTEL
Sími: 28 411
Björt og rúmgóð setustofa.
Market og King Street,
C. G. Hutchison, eigandi.
Winnipeg - Manitoba
Eina hótelið er leigir herbergi
fyrir $1.00 á dag. — Húsið eld-
trygt sem bezt má verða. —
Alt með Norðurálfusniði
CLUB HOTEL
(Gustafson og Wood)
652 MainS'. <Vinn<o«g
Ph. 25 738. Skamt norðan við
C.P.R. stöðina. Reynið oss.
TIMBUR 0G JARNVORUR TIL BYGGINGA
ChJVinnip
Við Toronto iConservatory of
Music hafa fyrir skömmu tekið
próf nemendur Mrs. L. G. How-
ard, Selkirk, Man, þeir er hér seg-
ir: — Elementary, F. C. H.: Lin-
ey Björnson, og Margrét Chatter-
ton. — Introductory, F. C. H.:
Elizabeth Björnson. — Kennari og
nemendur eru íslendingar.
Ungmenni fermd í kirku Bræðra-
safnaðar í Riverton, 28. júlí, af
séra Sigurði Ólafssyni:
Guðrún Kristbjörg Guðmundsson
Bergljót Guttormsson.
Hulda Margrét Guttormsson.
Sigurlín Lilja Jónasson.
Jóna Sigríður Doll .
Jóhanna Lovísa Vídalín.
Margrét Ingibjörg Hálfdánsson.
Jóhanna Pearl Coghill.
Jónína Guðrún Gíslason.
Björn Kristinn Gíslason.
Vilberg Friðrik Gíslason.
Messur í norðurhluta Nýja ís-
lnads í ágústmánuðl:—
4. ág.: Framnesi kl. 11 f. h. og
i Árborg kl. 2 e. h.
11. ág.: Víðir Hall kl. 2 e. h.,
(ferming og altarisganga), og í
Riverton kl. 8 síðd.
18. ág.: Geysis kirkju kl. 2 e. h.
og í Árborg kl. 8 síðd.
25. ág.: Riverton kl. 11 f.h. og að
Geysir, kl. 2 e.h.
Munið eftir íslendingadeginum
í River Park á laugardaginn. —
Börnin, sem vilja taka þátt í kapp-
hlaupunum, verða að vera á staðn-
um kl. 9.30 árdegis. Barna verð-
laun öll verða goldin í peningum
að þessu sinni. Nefndin.
Uppskeruhorfurnar í Vestur-
Canada eru langt frá því að vera
álitlegar. Skýrslur frá Canada
hveitisamlaginu, miðaða,r við 25.
júlí, segja, að þá sé útlitið þann-
ig að gera megi ráð fyrir að upp-
skeran verði 53 per cent. af með-
al uppskeru. Er skýrslan eða á-
ætlanin á þessa leið: Hveiti—
Manitoba, 60; Saskatchewan 56.5;
Alberta, 44. Hafrar—(Manitoba,
45; Saskatchewan, 53; Alberta, 42.
Bygg—Manitoba, 50; Saskatche-
wan 58; Alberta, 44. Víðast hvar
hefir regn verið alt of lítið og er
það aðal orsökin til þess, að upp-
skeran er svo lítil.
WONDERLAND
Winnipeg’s Cosiest Suburban
Theatre
Thur. - Fri. - Sat. (This Week)
ANITA LOO’S
“GENTLEMEN PREFER BL0NDES”
Added Feature—
“THE BRÁNDED MAN”
Also lst Episode—
“THE FINAL RECKONING”
Mon. - Tue. - Wed. (Next Week)
CLARA BOW in
“THREE WEEK ENDS”
Ungmenni fermd í Geysiskirkju
þann 21. júlí, af séra Sigurði Ól-
afssyni:
Gíslína Elinóra Gíslason.
Friðrik Sigurðsson.
Sigurjón Sigurðsson.
Sunnudaginn 4. ágúst messar
séra Haraldur Sigmar: í Eyford
kl. 11 f.h., Fjallakirkju kl. 3 e. h.
og á Mountain kl. 8 e. h. Allir vel-
komnir.
Það var séra Rúnólfur Mar-
teinsson, sem jarðsöng Mrs. Guð-
rúnu önnu Reykdal, en ekki Dr.
Björn B. Jónsson, eins og sagt
var í síðasta blaði. Útfarárat-
höfn var einnig haldin í kirkju
Árdalssafnaðar og stýrði henni
séra Sigurður Ólafsson.
Mr. Árni ,B. Gíslason, yfirdóm-
ari frá New Ulm, Minnesota, var
staddur í borginni ásamt frú
sjinni, um miðja yfirstandandi
viku.
í vikunni sem leið voru ákafir
hitar svo að segja allstaðar í
Sléttufylkjunum, sérstaklega þó
seinni part vikunnar. Á föstudag-
inn var meiri hiti í Winnipeg,
heldur en komið hefir í 29 ár, eða
96 stig. Talið er að 23. júní 1900
hafi hitinn verið 100.5 stig í Win-
nipeg. Á laugardaginn var hitinn
miklu skaplegri og eins á sunnu-
daginn. Annars er tíðarfar í
Vestur-iCanada mjög heitt og þurt
SAFETY TAXICAB CO. LTD.
Beztu bílar í veröldinni
Til taks dag og nótt. Sann-
gjamt verð. Sími, 23 309.
Afgreiðsla: Leland Hotel.
N. CHARACK, forstjóri.
PRINCESS FLOWER SHOP
Laus blóm—Blóm í pottum
Blðmskraut fyrir öll tækifæri
Sérstaklega fyrir jaröarfarir.
COR. SARGENT and VICTOR
Phone 36 102
Margir Islendingar
hafa í hyggju að
kaupa bíla
Eg get veitt þeim allar
nauðsynlegar upplýsingar í
samþandi við nýja Chevro-
lets bíla, sem og brúkaða
bíla, sem mikið úrval er af.
Eg hefi starfað og starfa
enn fyrir
McRae & Griffith
Limited
sem verzlar með Chevrolet
bílana.
309 CUMBERLAND AVE.
Phone; 24 821.
Á kveldin: 49 465
Added Feature—
“SHIPS OF THE NIGHT”
L. B. FREDRICKSON
umiboðsmaður.
Nú þarf á blævél að halda
Óþarfi að líða af hitanum. Hinn þægllegi vindblær af
raf-blævélinni er nokkuð, sem þér ættuð ekki að ganga á
mis við.
Kostnaðurinn er ekki teljandi.
Blævél til að eyða matarlyktinni í eldliúsinu er mikil þæg-
indi fyrir húsmóðurina. Er máske þægilegt að koma
henni fyrir við efri gluggan.
Báðar seldar fyrir litla niðurborgun, með liægum
borgunarskilmálum.
Til sýnis í áhaldabúð vorri hinni nvju
POWER BUILOTNG
WIHNIPEG ELECTRIC
COMPANY
“Your Guarantee of Good Service.”
Lítið inn í eina af vorum þrem búðum: Appliance Depart-
ment, Power Bldg., 1841 Portage Ave., St. James, og cor.
Marion og Tache, St. Boniface.
o
OQ
. o
- 3
OQ
©>
62'
s*r
09
Ð
►1
OJr
0Q
O
5*
si
3
ss
9Q
Cfl
K
G. E. DALMAN
SELKIRK — MAN.
UMB0ÐSMABUR
Eftirgreindir nemendur Senu
Jóhannesson hafa tekið próf við
Toronto Conservatory of Music, í
júní 1929, í Árborg, Man.:
Primary Piano, F. C. H.: Lilja
Pálsson, 90 stig; Baldur Guttorms-
son, 85 stig; Binna Petursson, 84
stig. Pass: Fanney Magnússon,
68 stig, Guðm. Nordal 68. stig.
Elementary Piano. F. C. H.:
Laufey Benson, 82 stig; Hon.: Vi-
olet Thorwaldson, 76 stig.
Introductory Piano, F.C.H.: Helga
Sigurdson, 80 stig.
Sena Johnson er nemandi Mr.
Hugh L. Hannesson, 523 Sher-
brooke St., Winnipeg.
Mr. George Olafson frá Van-
couver, B. C., kom til borgarinnar
fyrir tveimur vikum, til að heim-
sækja foreldra sína, Mr. og Mrs.
Guðlaug ólafsson, Toronto St.
Hann lagði af stað heimleiðis á
laugardaginn var. Með honum
fóru til Calgary systur hans tvær,
Miss Emily Olafson og Mrs.
Richardson. Búast þær við að
koma aftur innan tveggja vikna.
Mr. Olafson ferðaðist í bíl alla
leið.
Mr. og Mrs. L. Johnson, frá
Mozart, Sask., voru stödd í borg-
inni um síðustu helgi. Þau voru
á heimleið og komu frá North
Dakota.
EF ÞÉR haflð í hyggja að byggja, þá tryggið yður hjá oss
TIMBUR
The Mc.Arthur Lumber& Fuel Co., Ltd.
Cor., Princess & Higgins Ave., Winnipcg. Simi 86 619
Gert í Winnipeg
Allar tegundir af rafáhöldum fyrir héimilið. Einnig
allskonar aðgerðir. Hlutir silfraðir og nickel litaðir.
SÍMI: 24 267
GARRY ELECTRIC FIXTURE CO., LIMITED
120 LOMBARD ST. - WINNIPEG
ROSE
THEATRE
SARGENT AT ARLINGTON
The West End’s Finest Theatre.
THUR. - FRI. - SAT. (This. Week)
Whoopee!! Don’t Miss It
“The Shopworn Angel"
with
NANCY CARROLL,
GARY COOPER
and ROMANCE
A Part Talking Picture
ALFIO A 100% FEATURETTE
HOBART BOSWORTH
in “THE MAN HIGHER UP”
MON., TUES. & WED. (Next Week)
MONTE BLUE in
“Greyhound Limited”
A Part Tdlking Picture
and a Great Railroad Melodrama
VARÐVEITIÐ MAT-
INN og VARÐVEITIÐ
HEILSUNA
Kæliskápurinn heldur
matnum ferskum og
kemur í veg fyrir sum-
arveikina. ís og kæli-
skápur eru beztu kaup-
in, þegar um sparnað
og góða heilsu er að
ræða. Fáið að vita um
verðlag vort og hæga
borgunarskilmála.
ARCTIC.
ICExFUELCaim.
439 PORTACE
Obktdson*
PHONE
42321
Utsala áður en vöruskrá
er samin
Sérstaklega hœgir borgunarskilmálar
og mikil verðlækkun
Þessi útsala stendur að eins yfir
í fáa daga enn. Svo vér höfum
lækkað verð á
hverjum kjól
í búð vorri
Vanaverð alt að $45. Nú
allir með sama verði
$24.75
$5 niðurrbogun
20 vikur til að borga afganginn.
10 ’ per cent. afsláttur fyrir
borgun út í hönd.
$9.75 til $19.75
$2 niðurborgun.
20 vikur til að borga afganginn.
10 per cent. afsláttur fyrir pen-
inga út í hönd.
Kjólar sem auðvelt
er að þvo
Til að selja þá alla
$3.95, $4.95, $5.95
$1 niðurbörgun
20 vikur til að borga afganginn.
10 per cent. afsláttur fyrir pen-
inga út í hönd.
YFIRHAFNIR
VIRÐI ALT AÐ $55.
EITT
VERÐ
$19.75
Komið þið, menn, og sjáið úrval vort af karlm. fatnaði
Búðin opin á laugardagslcveldin til kl. 10.
H
Easy Payments Ltd.
Á öðru gólfi í Winnipeg Piano Bldg. PORTAGE OG HARGRAVE