Lögberg - 24.10.1929, Qupperneq 1
iðb
PHONE: 86 311
Seven Lines
io~
^ Better
Dry cieaning
and Laundry
42 ARGANGUR
I
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 24. OKTÓBER 1929
NUMER 42
/po<=>oc
Helztu heims-fréttir
o<=i)
>o<y
Canada
Nú er svo komið, að konur hafa
jafnan rétt við karlmenn, til að
vera skipaðar Senatorar, eða þing-
menn efri málstofunnar í Ottawa.
Hingað til hefir það ekki verið,
sem kemur til af því, að orðið
“person” í British North America
Act hefir verið skilið svo, að það
ætti við karlmenn aðeins, en ekki
konur. Hæsti réttur Canada hafði
úrskurðað, að orðið “person” næði
ekki til kvenna í þessum lögum og
hefðu þær því ekki rétt til sætis í
efri málstofunni. Konurnar undu
illa þessum úrskurði, og gengust
fimm konur í Alberta fyrir þvi,
að áfrýja þessum úrskurði til
hæsstaréttar brezka samveldisins
(Privy Council). Hefir nú dóm-
stóll þessi úrskurðað, að orðið
“person” eigi í lögum þessum,
engu síður við konur en karla, og
má stjórnin því hér eftir skipa
konur, sem Senatora í efri mál-
stofu sambandsþingsins í Ottawa
og má vænta þess, að ekki líði á
löngu þar til einhver þeirra á þar
sæti.
* * * *
Iyemasa Tokugawa heitir hinn
fyrsti sendiherra Japans keisara
til Canada. Hann kom til Win-
nipeg í vikunni sem leið, á leið til
Ottawa, þar sem hann hefir nú
tekið við emhætti. Er sendiherra
þessi af gömlum höfðingjaættum
í Japan, én sagt er, að hann sé
engu að síður maður blátt áfram,
prýðiilega mentaður og fylgist vel
með öllum helztu framfara og um-
bótamálum í heiminum. í viðtali
við blaðamann hér gat hann þess,
að hið fyrsta, sem hann þyrfti að
gera, væri að kynnast Canada,
landi og þjóð, og svo að gera sitt
til að auka vináttu og bræðralag
milli Japan og Canada.
* * *
Almennar kosningar til fylkis-
þingsins í Ontario eru nú fyrir
dyrum og fóru útnefningar fram
á laugardaginn í síðustu viku.
AIls eru þingsætin 112, en þing-
mannaefnin, sem tilnefnd voru á
laugardaginn, eru 239. í sjö kjör-
dæmum var aðeins eitt þing-
mannsefni, og eru þeir sjö þar
með kosnir gagnsóknarlaust. Þeir
eru allir tilheyrandi stjórnar-
flokknum, íhaldsmönnum. Stjórn-
in hefir þingmannaefni í ölluhí
kjördæmunum. Frjálslyndi flokk-
urinn hefir 87 þingmannaefni,
framsóknarflokkurinn 10, og svo
eru 30 frambjóðendur, sem annað
hvort eru óháðir eða tilheyra ein-
hverjum smáflokkum. Eru þrjú
þingmannaefni í allmörgum kjör-
dæmum og fjögur í sumum. Leið-
togi íhaldsflokksins er núverandi
stjórnarformaður, Hon. G. H.
Ferguson, frjálslynda flokksins,
W. E. N. Sinclair, og framsóknar-
flokksins J. G. Lethbridge. Frétt-
ir þar austan að segja, að allmik-
ið kapp sé í kosningum þessum. 1
Ontario þarf þingmannsefni ekki
að leggja fram neitt tryggingar-
gjald, eins og víðast annars stað-
ar, og getur jafnvel dregið sig í
hlé eftir að útnefningar hafa fram
farið, án þess að tapa nokkru fé
við það.
* * *
Enn eru þeir MacAlpin og fé-
lagar hans ófundnir, en þeir lögðu
af stað i Ioftförum í rannsóknar-
ferð til Norður-Canada fyrir meir
en *jö vikum og hefir ekkert til
þeirra spurst síðan. Hefir stöð-
ugt verið leitað að þeim nú vikum
saman, en leitarmennirnir hafa
enn ekki orðið neins vísari.
Skuldir Canada voru 30. sept-
ember 1928 taldar $2,223,347,691.
Hinn 30. september síðastl. voru
þær $2,140,341,090, og hafa því
skuldirnar minkað um $83,006,601.
Þrátt fyrir hinar afar miklu
skuldir, sem enn hvíla á þjóðinni,
síðan á stríðsárunum, verður ekki
annað sagt, en fjárhagurinn sé í
góðu- lagi, þar sem tekjurnar eru
ekki aðeins nógu miklar til að
mæta útgjöldunum, heldur til að
höggva stórt skarð í skuldasúp-
una á hverju ári, en það hefir ver-
ið gert nokkur síðustu árin. 1
septembermánuði voru tekjurnar
meir en þrem miljónum hærri en
á sama tíma í fyrra, en útgjöldin
hér um bil miljón lægri.
Hon. W. L. Mackenzie King, for-
sætisráðherra Canada, kemur til
Winnipeg að kveldi hins 30. þ.m.
Verður hann hér um kyrt næstu
tvo daga og að kveldi hins 1. nóv.
flytur hann ræðu í Central Unit-
ed kirkju. Kirkjan tekur ekki nema
um 2000 manns, en ræðu forsætis-
ráðherrans verður víðvarpað út
um alt Manitoba-fylki, þar sem
tæki eru til. Einnig verða mót-
tökutæki sett upp í öðrum kirkjum
eða samkomuhúsum í Winnipeg,
svo fólk hafi þannig tækifæri til
að heyra ræðuna, þó það komist
hvergi nærri, ræðumanninum.
Snemma í þessum mánuði, kom
forsætisráðherra Breta, Rt. Hon.
J. Ramsay MadDonald, til Banda-
ríkjanna, þeirra erinda að eiga tal
við Hoover forseta, og aðra þá,
sem þar mestu ráða, um takmörk-
un her.flotanna. Fréttir allar
segja, að mjög vel hafi fallið á
með þessum tveimur valdhöfum,
og er þeim báðum friðarmálið
vafalaust mikið og einlægt áhuga-
mál, og virðist mjög fjarri skapi
þeirra beggja, að stórþjóðirnar
keppi hver við aðra um að hafa
sem mestan og' öflugastan herfiota
og reyni hver um sig að verða þar
fremst. -Stendur nú til, að annar
fundur verði haldinn til að ræða
um þetta mál í vetur, og verði
hann haldinn í London, og er bú-
ist við, að á honum mæti einnig
fulltrúar frá Frakklandi, ítalíu
og Japan. Enginn efi er á því, að
hér er tilraun gerð að stíga stórt
og þýðingarmikð spor í friðar-
áttina.
Bandaríkin
Samkvæmt tilkynningu frá ut-
anríkisráðgjafa Bandaríkjanna,
Mr. Stimson, hefir Costa Rica
undirskrifað sáttmála þann, sem
kendur er við Kellogg, um ólög-
helgun styrjalda. Hafa nú alls
stjórnir fimtíu og þriggja þjóða
undirritað sáttmála þann, af sex-
tíu og fjórum, er kvaddar voru til
staðfestingar hans. Er þess að
vænta, að hinar muni koma á eft-
ir í náinni framtíð.
* * *
Sjö gæzlumenn voru myrtir í
uppþoti, sem nýlega átti sér stað
í Canon City fangelsinu í Color-
adoríki.
* * *
Senator Mprris iShepphard, frá
Texas, flytur frumvarp til laga
um breytingar á núgildandi vín-
bannslöggjöf Bandaríkjaþjóðar-
innar, þess efnis, að kaup áfengra
drykkja skuli framvegis skoðast
beinn glæpur.
* * *
Aðfaranótt hins 17. þ. m. kvikn-
aði í gömlu gestgjafahúsi í Seat-
tle, Wash., og fórust þar sjö mann-
eskjur, en fimtán meiddust, sum-
ar hættulega. Þessa gömlu bygg-
ingu skorti víst flest varúðar-
tæki og ekkert tækifæri fyrir
fólkið að komast út nema um
dyrnar, en gangar allir fyltust af
eldi og reyk, áður en fólkið hafði
nokkurt svigrúm til að komast út.
Út um gluggana af hinum efri
hæðum stukku margir og biðu
ýmsir af því meiðsli og dauða.
* * *
Frétt frá St. Paul, Minn., segir,
að elding hafi þar í nágrenninu
orðið tveimur bændum að bana á
föstudaginn í síðustu viku, og
slasað tvo aðra menn.
* * #
Mál hefir verið höfðað gegn Al-
bert B. Ball, fyrrum innanríkis-
ráðherra, og er hann sakaður um
að hafa þegið $100,000 mútu,
meðan hann gegndi því embætti.
# * *
Stjórnarvöldin gerðu í vikunni
sem leið herferð mikla á hendur
vínsalanna á austurströnd Banda-
ríkjanna, á hundrað mílna svæði,
alt frá Atlantic City til Sag Har-
bor. Er svo talið, að þar með séu
brotin hin stórkostlegustu, ólög-
legu vínsölusamtök, sem nokkurs
staðar eiga sér stað í Bandaríkj-
unum eða annars staðar. Voru
þarna 150 menn teknir fastir og
lagt hald á miljón dala virði af
áfengi og allar stöðvar vínsalanna
settar undir strangt eftirlit. Kom
það hér í ljós betur en nokkru
sinni fyr, hve afar stórkostleg þau
samtök eru, sem halda uppi ólög-
legri vínsölu í Bandaríkjunum og
græSa á henni stórfé. Hvort sem
stjórninni hepnast að stöðva al-
gjörlega vínsölu eða ekki, þá er
enginn efi á því, að eftirlitið er
nú miklu strangara en áður.
* * *
Hálf öld er nú liðin, síðan hug-
vitsmaðurinn mikli, Thomas A.
Edison, fann upp rafmagnslamp-
ann, sem nú er svo útbreiddur og
alþektur, að heita má að hann lýsi
miklum hluta jarðarbúa. Heíir
sjálfsagt engum manni, í bókstaf-
legum skilningi, hepnast að láta
ljós sitt skína eins víða um heim,
eins og Edison. Er þessa atburð-
ar nú víða minst og hinum háaldr-
aða hugvitsmanni mikill sómi
sýndur. Gekst Henry Ford fyrir
veglegu hátíðahaldi út af þessu í
Dearborn, Mich., og var Mr. Edi-
son þar gestur hans. Þar var
einnig Hoover forseti og hélt ræðu
og mintist hins aldna höfðingja á
sviði uppfyndinganna, með mikilli
virðingu. Sjálfur hélt Mr. Edi-
son stutta ræðu, en sagt er, að
honum hafi orðið nálega ofraun
að taka þátt í þessu hátíðahaldi,
enda er hann nú maður á þriðja
ári yfir áttrætt og hafði fyrir
skömmu verið allmikið lasinn.
Hvaðanœfa
Tveir af hinum alþektu stjórn-
málamönnum Frakka, þeir Clem-
enceau og Poincaré, eru veikir um
þessar mundir. Sá fyrnefndi er
nú 88 ára gamall og munu kraftar
hans nú mjög að þrotum komnir.
Hefir hann. slæmt kvef og kennir
nokkurrar brjóstveiki. Poincaré,
fyrverandi forseti og forsætisráð-
herra, sagði af sér stjórnarfor-
mensku í sumar vegna heilsubil-
unar og hefir hann tvisvar verið
skorinn upp síðan. Segja síðustu
fréttir, að læknarnir geri sér von
um að hann komist aftur til
heilsu.
» * *
Loftskip mikið og merkilegt
hafa Þjóðverjar bygt í Altenrheim
á Svisslandi. Er það þar bygt
vegna þess, að Versala friðar-
samningarnir takmarka tölu
loftfara, er Þjóðverjar megi
byggja heima fyrir. Dr. Dornier
heitir sá, sem byggja hefir látið
loftskip þetta, og er það nefnt
D-X. Á mánudaginn í þessari
viku flaug það eina klukkustund
yfir Constance vatninu og hafði
inanborðs 169 menn. Eru engin
dæmi til, að svo margir menn hafi
áður verið í einu loftskipi. Hepn-
aðist tilraunaflug þetta, eins vel
og bezt gat verið. í loftskipi þessu
eru 12 mótorar, sem samtals hafa
6,000 hestsöfl, og er þeim þannig
fyrir komig, að alt af má grípa til
eins, þó annar bili.
James Henry Scullin, leiðtogi
verkamanna flokksins í Ástralíu,
sá sem sigursæll reyndist við síð-
ustu kosningar þar, hefir nú tekið
við völdum og myndað nýtt ráðu-
neyti, en fyrverandi forsætisráð-
herra, S. M. 'Bruce, hefir sagt af
sér.
* * *
Humberto prins og konungsefni
ítala, er nú í Brussels í Belgíu, í
þeim erindum að fastna sér Marie
Jose prinsessu, en hún er dóttir
Alberts konungs og Elízabetar
drotningar.
Fyrirlestur um Island
Séra Kristinn K. Olafson, for-
seti kirkjufélagsins, flutti á fimtu-
dagskveldið í vikunni sem leið,
langan og fróðlegan fyrirlestur
um ferðir sínar á íslandi í sumar.
Var fyrirlesturinn fluttur í Fyrstu
lútersku kirkju í Winnipeg, og var
þar margt fólk saman komið og
leyndi sér ekki, að “enn eins og
forðum”, fýsir Vestur-íslendinga
mjög að heyra sagt frá ættland-
inu og frá frændum og vinum þar
“heima.”
Er þetta í fyrsta sinni, sem séra
K. K. Ólafsson hefir séð ísland,
því hann er fæddur og uppalinn
hér í landi, og er hið sama að
segja um frú hans, en hún var
með honum í þessari för. Bæði eru
þau ættuð af Norðurlandi, Þing-
eyjarsýslu og Eyjafirði, og eiga
þar frændfólk margt, enda ferð-
uðust þau mest um þau þau hér-
uð, en komu þó fyrst að landi á
Austfjörðum, og komu inn á flesta
firðina. Alla leið norðan úr Þing-
eyjarsýslu og suður í Reykjavík,
ferðuðust þau í bíl, nema á bát
yfir Hvalfjörð. Einnig fóru þau
til Þingvalla og alla leið austur
í Fljótshlíð.
Hér skal ekki út í það farið,
að segja frá efni fyrirltestursins,
en vér skildum fyrirlesarann
þannig, að honum hefði þótt land-
ið “fagurt og frítt”, en þó jafnvel
litist enn betur á fólkið en landið.
Sérstaklega fanst honum mikið
til um föðurlandsást íslendinga,
trú þeirra á landið og framtíð
þjóðarinnar og fórnfýsi þeirra,
að leggja mikið í sölurnar fyrir
land og þjóð.
Eins og auglýst hafði verið, var
fyrirlesturinn fluttur til arðs
fyrir Jóns Bjarnasonar skóla.
Skólastjóri, séra Rún. Marteinsson,
skipaði forsæti, en áður en fvrir-
lesturinn hófst, sungu þau Mr.
Paul Bardal og Mrs. J. Stefáns-
son, nokkra söngva, öllum við-
stöddum til mikillar ánægju.
Næsta kveld var fyrirlesturinn
endurtekinn í Selkirk, og mun séra
K. K. ólafson ætla sér að flytja
hann enn á nokkrum stöðum í ís-
lenzku bygðunum hér vestra, og
þarf ekki að efa, að því verði vel
tekið úti í sveitunum, engu síður
en í Winnipeg og Selkirk.
til að skapa nú verk, sem íslandi | væri, að jafnungur maður fengi
má til sóma verða. Þeir hafa all- j slíkt tækifæri. Óskaði hann Beck
ir lagt mikið erfiði á iig til að I allra heilla í hinu nýja starfi, fyr-
gera hátíðina sem skemtilegasta
og viðhafnarmesta.
Það ætti því sízt við, að þeir
ofan á alt erfiðið og fyrirhöfnina,
þyrftu að verða fyrir beinu fjár-
hagslegu tjóni og það all-tilfinn-
anlegu, þegar litið er til féleysis
ísl. listamanna.
“Brautin” telur rétt, að vér
kostum minna til tildurboðs út-
lendra stórmenna, en gerum held-
ur vel við þá, sem ísl. tónlist á
hvað mest þroska sinn og framtíð
að þakka. — Brautin 18. sept.
Auk þeirra tónskálda, sem get-
ið er hér að ofan, er hr. Jón Frið-
finnsson, einn af keppendunum.
—Ritstj.
ir hönd skólans, kennara og nem-
enda. Brottfarar Becks var getið
i flestum stórblöðum Pennsylvan-
iaríkis og í þeim öllum var farið
einkar lofsamlegum orðum um
starfsemi hansc. — Vísir.
Frá Islandi
Tilkynning
Starfsemi Richards Beck
Hátíðasöngur
Alþingishátíðarinnar
Sagt er, að þessi tónskáld taki
þátt í samkepninni um að semjá
hátíðasönginn (kantötuna) 1930:
Bjarni Þorsteinsson.
Pálí ísólfsson.
Emil Thoroddsen.
Björgvin Guðmundsson.
Sigurður Þórðarson.
Þórarinn Jónsson.
Jón Leifs.
Hátíðasöngurinn mun verða
stærsta tónlistaverk, sem enn
hefir verið samið af ísl. tónskáld-
um. Er sagt það sé í 14 köflum,
og eru sumir nokkuð langir.
Hafa sum tónskáldin orðið
að verja töluverðu fé til þess að
fullgera sönginn í tæka tíð og út-
búa hann sem fullkomnast.
Fer nú að líða að því, að dæ:nt
verði um verkin, því þau kvað eiga
að vera komin öll til dómnefndar
fyrir 15. n. m. Þegar litið er til
þess, hve mikið verk hefir verið
unnið hér og hinum fátæku tón-
skáldum vorum kostnaðarsámt, er
það hin mesta smán, hve lítil og
nánasarleg eru verðlaun þau, sem
tónskáldunum eru boðin.
Það væri því rétt og nauðsyn-
legt með öillu, að laun þeirra
skálda, sem sigur bera af hólmi,
séu hækkuð að stórum mun, helzt
upp í kr. 5,000, — fyrir fyrstu
verðlaun og samsvarandi fyrir
2. og 3. verðlaun. Og auk þess
ætti að greiða öllum þátttakend-
um þann beina kostnað, sem þeir
hafa orðið fyrir, vegna samning-
ar hátíðasöngsins.
Allir þátttakendur hafa gert
landi sínu hið mesta gagn með
söngstarfi sínu.
Þeir eru allir viðurkendir gáfu-
menn á sínu sviði og eru líklegir
Þótt Richard Beck sé enn ung-
ur maður, er það orðið ærið starf,
sem hann hefir int af hendi, til
þess að kynna enskumælandi þjóð-
um íslenzka menningu. Þykir
óþarfi að rekja starfsemi hans til
þessa, því hennar hefir verið get-
ið all-ítarlega áður, og er mönnum
því nokkuð kunn. Nú hefir hann
með höndum undirbuning á safni
af enskum þýðingum, á íslenzkum
ljóðum og er svo ráð fyrir gert,
að safnið komi út í bókarformi í
Reykjavík næsta vor. Útgefandi
bókarinnar er Þórhallur Bjarna-
son, prentari frá Akureyri, og á
hann frumkvæðið að útgáfu þýð-
ingasafnsins. Ýmsir góðir menn
hafa heitið Beck aðstoð sinni við
starf þetta eða hvatt hann til þess,
svo sem Sir William Craigie, mál-
fræðingurinn og íslandsvinurinn,
prófessor Halldór Hermannsson,
prófessor Skúli Johnson og Jakob-
ína Johnson, en Skúli og Jakobína
munu hafa verið einna mikilvirk-
ust allra við að þýða íslenzk ljóð
á ensku. Þykja margar þýðingar
þeirra ágætlega gerðar. Þar sem
nú annað safn íslenzkra ljóða í
enskri þýðingu er á uppsiglingu,
safn prófessors Kirkconnells, ætti
enskumælandi menn að geta feng-
ið allgóða hugmynd um ljóðagerð
fslendinga, þegar þessar bækur
eru komnar út.
Richard Beck hefir sjálfur gef-
ið sig talsvert að ljóðasmíði, í frí-
stundum sínum, og mun ljóðabók
eftir hann koma út í Winnipeg í
haust.
í júlíhefti “Scandinavian-Ame-
rican Review” er grein eftir Beck
um Stephan G. Stephansson, með
mynd af skáldinu.
Beck hefir að undanförnu verið
enskukennari í Thiel College, í
Pennsylvania, en jafnframt unn-
ið mikið að því að fræða um bók-
mentir Norðurlanda, og þá sér-
staklega íslands, með fyrirlestra-
haldi og ritgerðum, í blöðum og
tímaritum. T. d. kom fyrir nokkru
síðan grein eftir hann í ‘^Ccandi-
navian Studies and Notes”, sem
heitir “Iceland’s Thousand Year
Old Parliament”. Þessi fræðslu-
starfsemi Becks hefir vakið mikla
eftirtekt, sem vænta mátti, og sem
háskólakennari hefir hann getið
sér hið bezta orð, enda hefir hann
nýlega verið kjörinn prófessor í
Norðurlandamálum og Norður-
landa bókmentum við North Da-
kota háskólann, í Grand Forks.
Verður hann jafnframt forseti
deildarinnar í Norðurlandafræð-
um. Háskóli þessi er mikil og
góð stofnun og 1 þeim hluta Amé-
ríku, sem Norðurlandabúar eru
fjölmennastir. Beck er án efa vel
hæfur til þessa starfs, því hann
lagði mikla stund á norræn fræði
í Cornell háskólanum, og hefir alt
af eftir föngum aukið þekkingu
sína í békmentum Norðurlanda. í
blaðinu ‘The Record-Argus”, sem
er gefið út í Grenville, þar sem
Thiel háskólinn er, birtist nýlega
grein um Beck. Er þar skýrt ít-
arlega frá starfsemi hans og tek-
in upp kveðjuorð rektors háskól-
ansð dr. Xanders, sem fór miklum
lofsorðum um Beck og komst svo
að orði, að skólinn misti mikils, er
Beck færi, en honum hefði boðistj
svo virðuleg staða, að
Reykjavk, 20. sept.
Þrír menn druknuðu á Reykja-
víkurhöfn aðfaranótt laugardags-
ins s. 1. Er ekki kunnugt með
hvaða hætti þetta hörmulega slys
hefir borið að höndum, en þeir
fundust við Elíasarbryggju um kl.
3 um nóttina, og var einn þeirra
þá með nokkru lífsmarki". Menn-
irnir hétu: Guðmundur Jónsson,
verkstjóri, Sigurbjörnt Jónasson,
formaður, og Jóhannes Björns-
son. — Tíminn.
Pálmi Hannesson, kennari frá
Gagnfræðaskólanum á Akureyri,
hefir verið settur rektor við
Mentaskólann í Reykjavík, í stað
Þorl. H. Biarnasonar, sem hefir
gegnt því starfi síðan Geir Zoega
andaðist.
Séra Jakob Ó. Lárusson, sem
gegndi skólastjórn við Laugar-
vatnsskólann í fyrra, mun ekki
gefa kost á sér til þess framveg-
is, vegna prestsembættis síns og
prestakalls. Skólastjóri á Laug-
arvatni verður Bjarni Bjarnason,
skólastjóri í Hafnarfirði.
Tómas Jóhannsson, smíða- og
leikfimiskennari á Hólum í Hjalta-
dal, andaðist 4. sept. s)ðastl. —
Tíminn.
Reykjavík, 28. sept.
Stefán Þorvarðsson lögfræðing-
ur hefir verið skipaður fulltrúi í
utanríkisráðuneytinu. Hann hefir
undanfarið unnið í utanríkismála-
ráðuneytinu í Khöfn og á alræðis-
manna skrifstofu Dana og íslend-
inga í Montreal í Canada.
Vaxtahækkunin. — Á öðrum
stað í blaðinu auglýsa bankarnir
hækkun vaxta. Samkvæmt henni
hækka forvextir úr 7% í 8%, en
innilánsvextir um %%. Eru þá
innilánsvextir af sparisjóðs inn-
lögum 5%., en af innlánsskírtein-
um 5%%. Vaxtahækkun þessi á
orsakir í hækkun forvaxta í öðr-
um löndum. Fyrir nokkru síðan
hækkuðu forvextir í New York
6%, En það hafði þau áhrif, að
Englandsbanki hækkaði forvexti
23. þ.m. úr 5H í 6%. Vegna gríð-
arlegs burtstreymis peninganna
til jBandairíkjanna. !Er stórkost-
legt og vaxandi atvinnulíf Banda-
ríkjanna talin frumorsökin til
þessarar hækkunar. Hafa nú kom-
ið tilkynningar frá Noregi um
að forvextir þar séu hækkaðir í
6% og frá Danmörku um hkækun
í 5%. Þessir eru hækkaðir vextir
seðlabankanna. En í almennum
viðskiftaböknum eru vextirnir
hærri og voru vextir bankanna
hér orðnir lægri en tilsvarandi
vextir í nágrannalöndunum.
“Andi hinna óbornu” nefnist
bók, sem frú Svafa Þórhallsdóttir
á Hvanneyri hefir þýtt og gefið
út. Höfundar teljast “tveir starfs-
menn”. Bókin er siðspekilegt rit,
“ákall um hreinleika” og kær-
leiksþroskun meðal kynslóðanna.
Bókin er rituð á hreinu máli og
látlausu, flutningur efnisins heit-
tir og alvöruþrunginn. Frágangur
bókarinnar og ytra útlit smekk-
legt.
Skeyti hefir borist um það, að
fulltrúi Lögþingsins færeyska á
1000 ára afmælishátíð Alþingis
verði Mitens forseti Lögþingsins.
Guðm. G. Bárðarson og Trausti
Ólafsson hafa í sumar rannsakað
Fyrir hönd Cunard eimskipafé-
lagsins, er mér það sérstakt á-
nægjuefni, að skýra íslenzkum al-
menningi frá, að á þeim tveim
vikum, er eg hefi dvalið hér í
borginni, hafa yfir sextíu íslend-
ingar, búsettir í Winnipeg, keypt
sér far til Islands méð skipinu
Andania, er siglir frá Montreal
þ. 6. júní 1930.
Fólk þarf ekki að ætla, að hér
sé öll sagan sögð, því margir eru
þeir enn í borginpi, sem ákveðið
hafa að tryggja sér far einhvern
hinna næstu daga. Eg dvel ekki
Iengur í Winnipeg að sinni, en
fram að mánaðamótunum. Þess
vegna er áríðandi, að þeir Winni-
peg-íslendingar og aðrir í grend-
inni, sem enn hafa eigi gefið sig
frarn, geri það sem allra fyrst.
Thorstína Jackson Walters,
270 Main Street, Winnipeg.
Talsími: 26 841.
Reykjavík, 20. sept.
í kvöld kom hingað enskur tog-
ari með skipshöfnina af norska
flutningsskipinu “Norman”, er
sökk í fyrrinótt út af Glettinga-
nesi. Var stórsjór og rokstormur,
og hefir skipið sennilega liðast
sundur. — Það var með fullfermi
af síld til Svíþjóðar. Enskur tog-
ari bjargaði skipshöfninni og
flutti hingað. — Mgbl.
Akureyri, 19. sept.
Vonskugarður þ. 17. þ.m. Vél-
báta vantaði úr Hrisey og frá
Siglufirði. Enskir botnvörpungar
voru fengnir til að leita og fundu
Hríseyjarbátana, sem ekki hafði
hlekst á. — Siglufjarðarbáturinn,
sem menn voru hræddir um, kom
í morgun, hafði hrakið austur
Skjálfandaflóa. — Allir bátar á
Siglufirði töpuðu lóðum, mest 40.
Afli sæmilegur. 1— Mgbl.
Flugleiðin um ísland.
Frá Berlín er símað til Kaup-
mannahafnar blaðsins ‘Politiken’,
að Eric Geddes, formaður brezka
flugfélagsins ‘Imperial Airways’,
áformi að vinna að því að koma á
fastri flugleið á milli Englands
og Canada yfir Færeyjar, ísland
og Grænland.
Frá London er símað til ‘Poli-
tiken’, semj svar við fyrirspurn,
að Imperial Airways láti vinna
að undirbúningii tillagna um
flugleiðina á milli Englands og
Canada, en undirbúningurinn sé
þó enn þá á íhugunarstiginu. —
Mgbl.
Reykjavík, 24. sept.
Eggert Stefánsson söng í Gamla
Bíó á sunnudaginn við mikla að-
sókn. Söng hann eingöngu ís-
lenzk lög. Bar mikið á lögum eftir
yngri tónskáldin, þá Þórarinn
Jónsson, Björgvin Guðmundsson
Og Markús Kristjánsson. Varð
söngvarinn að endurtaka mörg
lögin og syngja aukalög.
Mótmæli gegn fækkun presta.—
Á héraðsfundi Kjalarnessprófasts-
dæmis 17. þ. m., voru samþyktar
svo hljóðandi ályktanir:
“Héraðsfundurinn ályktar, að
ekki geti komið til mála, að fækka
prestum í prófástsdæminu, og að
sameining prestakalla í því sé ó-
hugsanleg.”
“Héraðsfundurinn telur útvarp
guðsþjónusta æskilegt af ýmsum
ástæðumren alls ekki hæft til þess
að geta valdið fækkun presta.” —
Mgbl.
í síðastliðnum nóvembermánuði
sáust arnarhjón með tvo unga við
Skriðuvað í Vatnsdal Héldu ern-
irnir sig þar um slóðir, á svæðinu
frá Skriðuvaði að Húnaós, allan
Ólafsson hata í sumar rannsaxaoi . , , , ,
„ . . ... » , , veturmn og fram í april Þa hurfu
gullfund í Esjunni, og telja að þar I . ... , „ .
‘ o-rtrnln omlmii’ fram í Vat.ns-
sé um talsvert gull að ræða, þótt
óvíst sé enn, hvort vinsla mundi
svara kostnaði.
Pétur Sigurðsson magister hef-
ir verið settur háskólaritari í stað
Ólafs Rósengranz, sem sagt hefir
starfinu lausu. — Tíminn.
ernirnir fram í Vatns-
gil, því að þar hafa þeir átt hreið-
ur síðastliðin tvö sumur En ó-
kunnugt er hvað hefir orðið um
ungana Til þeirra sást við
Bjargaós í maí, en síðan hafði
sögumaður Mgbl ekki spurnir af
þeim — Mgbl.