Lögberg


Lögberg - 28.11.1929, Qupperneq 1

Lögberg - 28.11.1929, Qupperneq 1
42 ARGANGUR i| WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 28. NÓVEMBER 1929 NÚMER 47 HELZTU HEIMSFRÉTTIR Col. Ralph H. Webb kosinn borg- arstjóri í Winnipeg (Bæjarstjórnar kosningarnar á föstudaginn fóru þannig, að R. H. Webb var kosinn borgarstjóri með 22,762 atkvæðum. Hyman hlaut 13,770 atkv., og McLean 7,257. Hefir Webb því meir en seytján hundruð atkvæði fram yf- ir báða gagnsækjendur sína til samans. í fyrstu kjördeild voru kosnir bæjarráðsmenn: H. Andrews, L. F. Borrowman og C. E. Simonite. í annari kjördeild voru kosnir: Ralph Maybank, A. J. Roberts og T. Flye (endurkosinn). í þriðju kjördeild náðu allir þrír bæjarráðsmennirnir . endurkosn- Ingu, J. B. Blumberg, R. Durward og Barry. Næsta ár verða því fimm nýir menn í bæjarráðinu, þrír fyrir fyrstu kjördeild og tveir fyrir aðra kjördeild. Eru það alt menn, auk hins kosna borgarstjóra, sem hið nýja félag, Civic Progress Associ- ation, studdi til kosninga. Þar að auki studdi þetta félag Mr. Barry, sem er einn af þeim, sem endur- kosnir voru í þriðju kjöfdeild. Verkamannaflokkurinn hefir ein- um manni færra í bæjarráðinu næsta ár, þar sem er Mr. Farmer, sem ekki náði endurkosningu í fyrstu kjördeild. Yfirléitt hlutu umsækjendur verkamanna flokks- ins miklu færri atkvæði nú, held- nr en þeir hafa fengið á undan- förnum árum. Um fern aukalög voru greidd atkvæði við þessar kosningar. Voaru samþyktar fjárveitingar tii City Hydro og til nýrra baða, en felt að byggja brú yfir C. P. R. brautirnar við Sherbrooke Str. og brú yfir Assiniboine ána á Arling- ton Str. A heimleið Rt. Hon. W. L. Mackenzie King, forsætisráðhera, kom til Winni- peg á föstudaginn í vikunni, sem leið. Var hann þá á heimleið til Ottawa, eftir að hafa ferðast um Vesturlandið, alla leið til Van- •couver, síðan hann var hér á vest- urleið, um síðustu mánaðamót. Síðan hefir hann flutt ræður, og allstaðar fyrir fjölda fólks, í Prince Albert, Rosthern, Edmon- ton, Prince George, Prince Rup- ert, Ocean Falls, Vancouver, Cal- gary og Regina. Á öllum þessum atöðum talaði hann á almennum fundum, en þar að auki talaði hann oft fyrir ýms félög og á samkvæmum. Forsætisráðherrann lét hið bezta yfir ferð sinni og viðtökum fólksins allstaðar, þar sem hann kom. Þótti honum viðtökur þær, er hann hafði mætt, bera þess Ijósan vott, að fólkið í Vestur- Canada væri fyllilega ánægt með þá stjórn, sem það nú á við að búa. Á föstudagskveldið hélt Can- adian Club í Winnipeg, forsætis- ráðherranum samsæti í Royal Al- exandra hóteli. Flutti hann þar snjalla og skemtilega ræðu, og tal- aði aðallega um stefnu stjórnar- innar í utanríkismálum, sem hann sagði að væri hiklaust friðar- stefna. Var gerður mikill rómur að máli hans. Innflytjendur Á fyrri helmingi fjárhagsársins, sem yfir stendur , eða frá 1. apríl til 30. september, ha<fa 120,338 komið til Canada. Eru þar ekki meðtaldir 17,696 Canadamenn, sem fluzt höfðu til Bandaríkjanna með þeim ásetningi að vera þar, en sem á þessu tímabili hafa komið aftur til Canada. Eru innflytj- endurnir lítið eitt færri en á sama tímabili árið sem leið, eða sem svarar þremur af hundraði. Þó hefir komið fleira fólk frá Bret- iandi, Bandaríkjunum og Skandí- navisku löndunum, en töluvert færra frá öðrum lndum. Tveir fiskimenn verða úti og ýmsir fleiri lenda í hrakningum Tveir fiskimenn urðu úti í vonzku veðri á Winnipegvatni í vikunni sem leið. Voru jpað þeir Fred Oboch frá Gimli og Mannie Magnusson frá Árborg. Þriðji maðurinn, sem með 'þeim var, Jacob Smidt að nafni, komst af við -illan leik, en kól mikið og er nú í St. Boniface spítalanum. Hafði hann verið úti í tvo sólar- hringa. Sjö fiskimenn lentu í hrakning- um á Manitobavatni um sama leyti, þannig, að ísinn brotnaði og þeir lentu á stórum jaka, en var með dugnaði og harðfengi bjarg- að af tveim mönnum frá Lang- ruth, Man., og voru það þeir Björn Ohristianson og Valdi Jónasson. Flóðalda verður mörgu fólki að bana á Nýfundnalandi Jarðskjálfta varð vart á Ný- fundnaland á mánudaginn í vik- unni sem leið, er vann þó lítið tjón, en honum fylgdi afar stór- kostleg flóðalda, sem gekk yfir nokkurn hluta af suðurstrnd landsins og varð mörgu fólki að bana og vann að öðru leyti mikið tjón. Það er talið áreiðanlegt, að þarna hafi farist að minsta kosti 20 manns, en margir óttast, að þeir séu miklu fleiri, kannske ein- ir 36—40. Eru fréttirnar, sem enn hafa fengist af þessu slysi, ógreinilegar, því samböndin við þennan hluta landsins, eru slitin. Clemenceau látinn Hinn heimsfrægi stjórnmála- maður og fyrverandi forsætísráð- herra Frakka, Georges Clemen- ceau, andaðist snemma á sunnu- dagsmorguninn var, 88 ára að aldri. Kom sú dánarfregn engum á óvart, því fyrir helgina barst sú fregn um allan heim, að hinn gamli maðurwæri á förum. Er þar fallinn einn aif mikilhæfustu stjórnmálamönnum á sinni tíð, og er hann sérstaklega frægur mað- ur fyrir það, að hann á gamals aldri tók að sér stjórnarformersku á Frakklandi á stríðsárunum, og þótti hann leysa það afar vanda- sama verk af hendi með afbrigð- um vel. Clemenceau var bardaga- maður mikil og átti skæða mót- stöðumenn og óvini, en um yfir- burða hæfileika hans efaðist víst enginn. Sem stjórnmálamaður var hann vanalega kalfcður “tígrisdýrið.” Kominn heim Hon. John Bracken, forsætis- ráðhera Manitoba-fylkis, kom heim til Winnipeg, á sunnudags- kveldið eftir, að hafa verið tveggja mánaða tíma að heiman, lengst af á Bretlandi. Er sagt, að aðaler- indi hans muni hafa verið það, að kynna sér sem bezt fyrirkomulag Breta viðvíkjandi ellistyrk, eða framfærslu gamalmenna, sem ekki geta lengur haft ofan af fyrir sér. Stærra loftskip Hið nýja German - American Zeppelin félag, er í þann veginn að byggja nýtt loftskip, með átta mótorum, enn stærra en Graf Zeppelin, sem allir kannast við. Það Þarf 14 mánuði til að byggja þetta mikla loftskip og verður það því eki tilbúið fyr en 1931. Það er ætlað til ferða milli Ev- rópu og Ameríku. FjárhagsáoetlunÞjóðbrautakerfisins Símað er frá Montreal þann 20. þ. m., að framkvæmdarstjórn þjóð- brautakerfisins, — Canadian Nat- ional Railways, leggi til að varið skuli á næsta ári tuttúgu miljón- um dala til endurbóta á vögnum, gistihúsum og eldri brautum. Jafnframt því, er farið fram á, að veittar verði tiu> miljónir til lagningar nýra brauta. Harry F. Sindair leystur úr varðhaldi Olíukóngurinn margumræddi, Harry F. Sinclair, hefir nú verið leystur úr varðhaldi, eftir sjö. mánaða íangelsisvist. En þann dóm hlaut hann, fyrir lítilsvirð- ingu gagnvart rannsóknarnefnd öldungaráðsins í Washingon, sem og hæstarétti Columbia dómþing- hár. Mr. Sinclair kom mjög við sögu í sambandi við olíuhneykslið al- ræmda, er fyrrum innanríkisráð- gjafi Bandaríkjanna, Albert B. Fall, var viðriðinn, og fundinn sekur um. Heldur Mr. Sinclair því fram, að hann hafi verið hafður fyrir rangri sök, og að málsóknin öll á hendur sér, hafi verið sprottin af pólitískum hvöt- um. Republicanar hefðu ekki get- að sætt sig við það óátalið, að hann hefði leyft sér að stuðla op- inberlega að kosningu heiðvirðra Demokrata. Konungurinn Nú er rétt um ár síðan konung^- urinn veiktist svo hættulega, að honum var um langt skeið naum- ast hugað líf. Nú hefir hann hér um bil náð sér aftur, eftir hin miklu veikindi, og segir aðal- læknir hans, Lord Dawson af Penn, að honum aukist kraftar með degi hverjum. Eldsvoði og minndauði í Winnipeg Aðfaranótt föstudagsins í vik- unni sem leið, brann íbúðarhús, að 796 Atlantic Ave., og varð eldsins ekki vart, fyr en heita mátti, að húsið stæði í björtu báli, því fólkið var alt í fastasvefni. Heimilisfólkið var átta alls, rosk- in hjón, Mr. og Mrs. Johnson, syu- ir þeirra þrír, tvær dætur og tengdasonur, Robert Thomson. Þrent af heimilisfólkinu fórst í eldinum, .húsmóðirin, Mrs. Flor- ence Johnson, sextug að aldri; Winnie Johnson, 24 ára, og Roy Johnson, 16 ára. Hitt fólkið bjargaðist alt, með naumindum þó. Einn af piltunum, Sidney Johnson, vaknaði fyrst og vakti hitt fólkið, en þá var eldurinn orðinn svo magnaður, að aðeins fimm björguðust lifandi. Sagt er, að kviknað hafi út frá eldstæð- inu. Nýr sendiherra Hoover Bandaríkjaforseti, hefir útnefnt Senator Walter E. Edge, frá New Jersey, til sendiherra á Frakklandi, í stað Myron T. Her- rick’s, sem fyrir skömmu er lát- inn. Bátur ferst með ellefu mönnum. > Reykjavík 27. okt. Frá ísafirði er símað: Vélbátur- inn Gissur hvíti fór í fiskiferð héðan fyrir hálfri annari viku, og hefir ekki til hans spurst síðan. Talið er víst, að báturinn hafi farist í afhlaupaveðri fyrra laug- ardag. Á bátnum voru þessir ellefu menn: Jóhannes Hjaltason, skipstjóri, ísafirði. Baldvin Sigurðsson, stýrimaður, ísafirði. Þórarinn Sölvason, vélstjóri, Bíldudal. Helgi Guðmundsson, Aðalvík. Stefán, bróðir Helga, Aðalvík. Sigurður Jónsson, frá Aðalvík. \ Jón Olsen, af ísafirði. Ólafur Andrésson, af ísafirði. Ástvaldur Bjarnason, af ísaf. Guðleifur Gíslason, af ísafirði.. Þorlákur Guðmundsson, Álfta- firði. Baldvin og Guðleifur voru kvæntir. Hinir ókvæntir, alt ung- ir menn. Báturinn var eign skipstjórans og Ingvars Péturssonar á ísa- firði. — Vísir. Hon. C. A. Dunning er aflagði embættiseið síðastliðinn þriðjudag, sem fjármálaráð- gjafi sambandstjórnarinnar í Ottawa. Verður hann því eftirmaður Mr. Robb, sem fyrir skömmu er látinn. Jafnframt fjármálaráðgjafa embætti, hefir Mr. Dunning einn- ig með höndum fyrst um sinn, forustu járnbrautarmála ráðuneyt- isins. Segja veðurfar hið sama og fyrir þrjátíu þúsund árum Þeir Dr. Chester A. Reed, og Mr. Ernest Antews, meðlimir náttúru- fræðafélagsins ameríska, fullyrða, að svo megi heita, að veðráttufar sé~hið sama nú á dögum og fyrir | þrjátíu þúsund árum. Horfa fram á örbirgð og eymd Fregnir frá Ottawa hinn 20. þ. m., láta þess getið, að um þessar mundir, berist sambandstjórninni daglega fregnir frá Geneva, Ber- lín, og Warsaw, um hörmulegt eymda^rástand meðal Mennoníta, er flúið hafa frá Rússlandi und- an ánauðaroki Sovíetstjórnarinn- ar. Er mælt, að tala þessara flótta- manna, sé nú komin upp í hundrað þúsund, eða freklega það. Utanríkisráðuneyti Þjóðverja hefir farið þess á leit við canadisk stjórnarvöld, að þau veiti lands- vist, að minsta kosti sex þúsund- um af þessum brjóstumkennanlega flóttalýð. Þykir margt mæla með, að svo muni verða. Fullyrt er, að flóttalýður þessi, horfi fram á hungur og örbyrgð í vetur, nema því aðeins, að fram- kvæmdarnefnd þjóðbandalagsins skerist í leikinn og ráði fram úr vandræðunum. Mr. Thomas og iðnarmálin Rt. Hon. J. H. Thomas, at- vinnumálaráðgjafi stjórnarinnar brezku, hefir nýverið opinberlega hvatt brezka bílaframleiðendur, til að gera svo bíla sína úr garði, að þeir gæti fyllilega mætt ame- ríkskri samkepni. Hyggur r^ðgjaf- inn, að með þesum hætti mætti auka bílaframleiðsluna til muna, og veita þar með fjölda manns at- vinnu. Sæmdur virðingarmerki Konungur Norges hefir sæmt Sir H|enry Tihornton, járbr.forseta, St. Olafs orðunni í viðurkenning- arskyni fyrir það, hve vel hann hafi reynst norskum innflytjend- ur, sem til þessa lands hafa kom- ið síðustu árin, og hve ant hann hefir látið sér um hag þeirra og greitt götu þeirra á ýmsan hátt. Hilmer Bryn, yfirkonsúll Norð- manna í Canada, afhenti Sir Henhy heiðursmerkið fyrir hönd konungsins. Finnast látin á 54. giftingar- afmael sinu Símað er frá New Ýork þann 19. þ.m., að þá um dáginn 'hafi há- öldruð hjón í Brooklyn, Mr. og Mrs. Thomas Widicombe, fundist látin á heimili sínu. Hafði gas- svæla orðið þeim að bana. Dag þann var 54. giftingarafmæli þeirra hjóna. Mr. Wildcombe var áttræður að aldri, en kona hans sex árum yngri. Þeir, sem elliityrks njóta í Canada Samkvæmt nýútkomnum skýrsl- um frá Ottawa, er tala þess fólks hér í landi, er ellistyrks nýtur um ■þessar mundir, 13,394. Þar af 7,423 karlar, en 5,866 kvenmenn. Frá því, er ellistyrkslögin gengu í gildi, hafa stjórnir þessa lands, fylkisstjórnirnar og sambands- stjórnin, lagt fram í þessu augpa- miði, $3,389,082.25. Landskjálfta-k ippir í Austur-Canad* Símað er frá Halifax, þann 18. þ. m., að allsnarpra landskjálfta- kippa hafi orðið vart í Austur- Canada, einkum og sérílagi í Nova Scotia. Tjón mun þó eigi hafa orðið þar, svo teljandi sé. Aftur á móti er mælt, að ýmsar ritsímalínur um Atlantshaf, hafi 'færst mjög úr lagi. Lœtur af forystu Forseti námumannasamtakanna brezku, Mr. Herbert Smith, hefir sagt lausri sýslan sinni. Er ástæð- an talin sú, að hann hafi verið eindregið mótfallinn þeirri af- stöðu samverkamanna sinna í framkvæmdarnefndinni, er að því laut, að ganga að uppástungum ráðunyetisins, um að lengja dag- legan vinnutíma í námunum. Er Mr. Smith sagður að hafa jafnan verið næsta andvígur Commiinista hreyfingunni. Aukaþingi slitið Síðastliðinn föstudag, var aukaþingi því, sem setið hefir á rökstólum í Washington undan- farandi, slitið, eftir langvarandi þjark, um tolmálafrumvarp stjórn- arinnar. Ekki auðnaðist þinginu að afgreiða frumvarpið, og kemur það því til umræðu á ný, er þing kemur saman í öndverðum næsta mánuði. Til athugunar Mr. Böggild látinn Flestir af þeim, sem hugsað hafa til íslandfsferðar næsta ár, eru nú eflaust búúnir að ráða við sig, hvort þeir takast þá iferð á hend- ur eða ekki. Eg vil þess vegna nú vinsamlegast mælast til þess, að þeir, sem hugsa til þeirrar ferð- ar með Cunard skipi því, sem fer frá Montreal 6. júní næstkomandi, láti nú ekki dragast lengur að tryggja sér far með því að borga niður í farbréfi. Það ' er engin hætta fyrir neinn að gjöra þetta, því ef eitthvað kemur fyrir svo að manni sé ómögulegt að fara, fær maður sína peninga til baka, ef félagið er aðvarað þremur vik- um áður en skipið fer frá Mont- real. Ástæðan fyrir því, að eg vil nú minna menn á þetta, er sú, að nauðsynlegt er að vita mjög bráð- lega, hve margir muni fara, til þess aðTnöguIegt sé að gjöra nauð- synlegar ráðstafanir á íslandi. Hátíðanefnd Alþingis, sem ein ’hefir með höndum ráðstafanir á tjöldum á Þingvöllum, þarf að vita um næsta nýár, hve margra gesta er héðan von. Líka er þetta nauðsynlegt til undirbúnings fyr- ir veru manna í Reykjavík. Þó margir af þeim, sem fara, búist ekki við að þurfa að gjöra neinar sérstakar ráðstafanir um dvöl j sína í Reykjavík, þá eru ráðstaf- j anir á Þingvöllum nauðsynlegar fyrir svo að segja alla, sem há- tíðina sækja. Nefnd sú, sem starfar rneð Cunard félaginu, hefir tryggingu fyrir húsnæði og fæði í Reykjavík með ákjósanlegum kjörum. En nefndinni er ómögulegt að ábyrgj- ast neinar ráðstafanir fyrir aðra en þá, sem trygt hafa sér far fyrir 25. des. næstkomandi. All- ar ráðstafanir eru miðaðar við þann fjölda, sem þá hefir gefið sig fram, og nefndin getur ekki borið neina ábyrgð fyrir þá, sem seinna kunna að vilja slást í förina. t - B. J. Brandson. Mr.'C. B. Johnson, Glenboro, Man., var staddur í borginni um helgina. Símskeyti barst ritstjóra þessa blaðs, um síðustu helgi, frá vara- ræðismanni Dana í Montreal, Her- gel, um að látist hefði þar í borg- inni á laugardaginn, Mr. Jóhannes Erhardt Böggild, aðal ræðismaður Danmerkur og íslands í Canada. Hæfði hann legið rúmfastur í þrjár vikur. Banamein hans var hjartabilun. Mr. Böggild var sannur íslands- vinur, og hafði um nokkurt skeið gegnt ræðismannstörfum á !s- landi. Ur bænum Blandaði söngflokkurinn, Ice- landic Choral Society, efnir til hljómleika í Fyrstu lút. kirkju, á þriðjudagskveldið þann 10. des- ember næstk. Verður skemtiskrá- in mestmegnis á íslenzku. Að- gangur verður ekki seldur, en sam- skot tekin. Nánar auglýst síðar. — Fólk getur reitt sig á, að þarna verður um óvenjulega góða og uppbyggilega skemtun að ræða, því flokkurinn hefir æft sig vel undanfarandi. Söngstjóri er Mr. Halldór Thórólfson. Kvenfélag Fyrsta lúterska safn- aðar í Winnipeg, er að gefa út matreiðslubók. Það er verið að prenta hana nú og kemur bókin út í næsta mánuði, eða nokkru fyrir. jólin. Bókin verður sérlega vönd- uð að efni og frágangi öllum, og er ekkert tilsparað að gera hana sem bezt úr garði. WINTER By EINAR P. JÓNSSON. Translated by Professor Watson Kirkconnell. <xr=>o I find you a witch of the farthest world With wildest magic of snow. The billows that bellow your songs out-hurled May bann men’s peace, I know. Where the currents of uttermost seas are curled You cudgel the summer low. On shore and ocean and shrivelled rose A shroud of the grave you lay, — I hear the frost of your flashing bows, Flinging their shafts to slay,— And the pleasant plains that the sun once chose Are plunged in a dawnless day. Many a frolic, merry indeed, We made in that Arctic isle; In icy laughter I had you lead, And I leaped with a strong man’s smile. I set my sight where your lights recede And sought for your face awhile. Many, O winter, have found you fair, But #ailed to return your gaze; They know not the runes that are written there, The rose that your art displays. No sacred season I could compare With the snow of your hallowed days. Though you speak at times with spasms of ire, Your spirit is calm and sweet; The harshest blasts that I hear suspire Some hope of the summer’s heat; And I mark in the mountain’s ice and fire Fate’s mighty pulses beat.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.