Lögberg - 10.04.1930, Side 4

Lögberg - 10.04.1930, Side 4
Bls. 4. LÖGBERG, FIMTUDAGINN 10. APRÍL 1930. r ——- Högfcerg G«fið út hvem fimtudag af The Col- umhia Press, Ltd., Oor. Sargent Ave. og Toronto St., Winnipeg, Man. Talsímar: 86 327 og 86 328 Einar P. Jénsson, Editor Utanáskrift blaðsins: The Columbia Press, Ltd., Box 3172 Winnipeg, Man. Utanáskrift ritstjórans: Editor Lögberg, Box 3172, Winnipeg, Man. Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram. The “Lögberg" ís prtnted and publlshed by The Cotumbia Press, Llmited, in the Columbía BuildlnK, 685 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba. Betur má ef duga skal ------ -----------------------I Það er kunnugra en frá þurfi að segja, hvílíku feikna tjóni drep í komi hefir valdið hér í landi, og þá ekki hvað sízt í Sléttu-fylkjun- um, þar sem kornræktin er mest stunduð. Og iþótt því verði vitanlega ekki neitað, að nokkuð hafi unnist á í áttina til útrýmingar slíkum ó- fögnuði, þá er það samt sem áður sýnt, að betur má ef duga skal. Áhrifamestu ráðstafanimar, sem enn hafa gerðar verið tii útrýmingar drepi í komi, mega vafalaust mega teijast þær, ef afgreiddar voru á sambandsþinginu 1927. En með þeim lög- um var hverjum þeim verksmiðjúeiganda, ér það hlutverk hafði með höndum að búa til efna- blöndu tii útrýmingar ávaxtadrepi og koms, það á herðar lagt, að láta skrásetja vöm sína í Ottawa, áður en hún skyldi gild tekin sem verzlunarvara. Var þetta gert með það sér- staklega fyrir augum, að útiloka eins og fram- ast yrði viðkomið, sölu á svikinni, eða jafnvel löldungis ónothæfri efnablöndu, er bændur höfðu oft og einatt verið gintir til að kaupa við ránsverði. Samkvæmt lögum þessum var það að skyldu gert, að skýr og ákveðin for- skrift fylgdi hverjum pakka, eða hverri flösku, ásamt staðfestingu um það, hvort efnablandan væri skaðleg mönnum og dýrum, eða ekki. Auk þess var tekin fram nákvæm vigt eða únzu- fjöldi. Engum getur 'blandast hugur um það, að ráðstafanir þær af hálfu þings og stjómar, er nú hafa nefndar verið, hafi komið að miklu liði, þótt enn eigi það auðsjáanlega langt í land, að drep-plágunni í komi verði til fullnustu út- rýmt. Strangar og nákvæmar vísindarannsóknir hafa leitt það í ljós, að á hinu mikla megin- landi Norður-Ameríku, fer árlega forgörðum að minsta kosti tveggja biljón dala virði af fæðutegundum, af völdum margvíslegs plöntu- dreps. Hefir það og sannast, að starf miljóna manna hefir af sömu ástæðum, «að litlu sem engu orðið, Eftirspumin eftir efnablöndu til útrýming- ar drepi í komi hefir, eins og gefur að skilja, verið að jafnaði geysimikil. Af því hefir það leitt, að glæframenn og lyfjasullarar hafa, undir fölsku yfirskyni, hrúgað á markaðinn hinni og þessari ólyfjan, er til ills eins leiddi og ekki annað liafði í för með isér, en beint peningatap. , Meginið af framleiðslu bóndans er selt við flokkun á opnum markaði. Sá, er. vöruna kaupir, gengur þess því eigi dulinn hvað hann fær fyrir peninga sína. Slíkt hið sama verð- ur því miður eigi ávalt með sanni sagt, þá er um er að ræða hinar og þessar vörategundir, er bóndinn er neyddur til að kaupa og otað er að honum í silkiumbúðum lævíslegs auglýs- inga skrums. Að því hlýtur að reka, fyr en síðar, að stjómirnar láti sínar eigin efnastofur rann- saka strangvísindalega sérhverja vörutegund, áður en hún er boðin til kaups, svo ekki verði um það vilst, hvert sé gildi hennar eða van- gildi. Það er nú fyrir langa löngu tími til þess kominn, að hverjum og einum óprúttnum vöru- prangara líðist það ekki átölulaust, að þrengja inn á almenning hinu og þessu sulli í nafni ímyndaðra vísinda. Þjóðnýting víðvarpstækja ... ............................] Eitt meðal þeirra mörgu, og mikilvægu mála, er vænta má að núverandi sambands- þing geri nokkur skil, er málið um þjóðnýting víðvarpstækja. Er hér um svo afar þýðing- armikið mál að ræða, að á miklu veltur um af- drif þess fyrir framtíð hinnar canadisku þjóð- ar. t Norðurálfuþjóðiraar flestar hverjar, hafa ákveðið að þjóðnýta víðvarp og víðvarpstæki. Bandaríkjaþjóðin, er að heita má eina þjóðin, er enn sem komið er, hefir ekki tekið fast- ákveðna stefnu til þessa afar mikilvæga máls, en vorrandi gerir hún það samt áður en langt um líður. Reynsla canadisku þjóðarinnar viðvíkjandi þjóðnýting samgöngutækja hefir verið hin glæsilegasta. Engin þjóð í víðri veröld, kemst í hálfkvisti við canadisku þjóðina hvað þjóðnýt- ing járnbrauta áhrærir. Bendir nú flest til þess, að þjóðbrautakerfið candiska, verði eigi aðeins sjálfbirgt í framtíðinni, heldur verði jafnvel þar að finna eina voldugustu tekjulind þjóðarinnar. Meginið af skógarauðlegð canadisku þjóð- arinnar, er ennþá almenningseign. Hve lengi að slíkt ásigkomulag lielst við, hvílir eingöngu á trausti fólksins í landinu sjálfu. Hið sama er að miklu leyti um málmauðlegð þjóðarinnar að segja. , Víðvarpsundrið, þótt ærið sé nú alment notað, mun enn sem komið er, vel mega teljast á tilraunastigi, borið saman við það, er verða mun í framtíðinni. Byltingin, er uppgötvan þess og notkun, þegar hefir orsakað, er að vísu orðin feykilega víðtæk. Þó mun hún ekki vera nema svipur hjá sjón, ef svo mætti að orði kveða, til móts við þær miklu og margvís- legu opinberanir á þessu sviði, er ætla má að jafnvel næstu árin leiði í ljós. Það er því einsætt, að'á miklu veltur fyrir framtíð cana- disku þjóðarinnar, hver stefna verður tekin af hálfu þings og stjórnar í málinu. Hörmulegra slys gæti canadisku þjóðina tæpast hent, en það, aði selja frumburðarrétt víðvarpsins í hendur einstökum auðfélögum. Ekkert annað en þjóðnýting, getur í þessu til- felli, komið til nokkurra mála. Canadiskar skóglendur Mikið er um það rætt og ritað innan vé- banda hinnar canadisku þjóðar, hve mikilsvert það sé, að fylztu fyrirhyggju sé gætt að því er verndun og viðliald canadiskra skóga á- lirærir, og fer það að vonum. Að því er skógana hér í landi áhrærir, stendur canadiska þjóðin, enn sem komið er, flestum, ef ekki öllum öðram þjóðum betur að vígi. Níutíu af hundraði allrar skógarauð- legðar þessa lands, er enn almenningseign, um léið og svo hagar til með nágranna þjóð vorri sunnan landamæranna, að hún er til þess neydd, að kaupa svo að segja við hvaða verði sem upp er sett, voldug skógarbelti, til þess að tryggja einhvem trjáviðar forða handa hinum ófæddu kynslóðum, eða að minsta kosti þeim, sem taka eiga við landinu á næstunni. Þjóðin canadiska á, sem betur fer, að mestu leyti skóg- ana sjálf, og þess vegna er það enn á hennar valdi, að skipa fyrir um meðferð þeirra og viðhald. Þjóðinni er þegar farið að skiljast, að þótt skóglendur hennar séu bæði miklar og verðmætar, þá geti afurðir þeirra auðveldlega gengið til þurðar, og það jafnvel á tiltölulega skömmum tíma, nema því aðeins, að fylztu fyr- irhyggju isé gætt. Þess vegna er líka það, að canadiskum almenningi er það nú meira á- hugamál, en nokkra sinni fyr, að vinna að því í einingu, að fyrirbyggja, að svo miklu leyti, sem unt er, hættu þá hina miklu, sem skógar- eldum er samfara. Fólk er nú, sem betur fer, farið að láta sér skiljast, að til séu fleiri uppskerutegundir hér í landi, en uppskera koms og garðávaxta; það er farið að láta sér skiljast, að afurðir skóganna séu ef til vill ekki hvað þýðingarminsta upp- skeran, og er gott til þess að vita. Koriíyrkjan hefir fyrir löngu tekið vísindin í þjónustu sína, sem og óhjákvæmilegt var. Er nú ekki komin tími til, að hliðstæðum aðferðum verði beitt, þegar um skógvernd og skógaruppskera er að ræða? Tæplega verður efast um það. Vart mundi sá bóndi fyrirhyggjusamur kallast, er eigi hugsaði lengra fram í tímann en það, að láta sér nægja góða, eins árs upp- skera, og kærði sig svo kollóttan, þótt ill- gresið hefði árið þar á eftir náð yfirtökunum í akri hans. Myndu ekki flestir halda, og það jafnvel með nokkrum rétti, að eitthvað væri í meira lagi bogið við sálarástand þess manns, er sekur gerðist um slíkt atferli? Það er að mestu leyti á valdi þjóðarinnar sjálfrar, hvemig til tekst um skógvemdina og skógarafurðirnar í framtíðinni; hvort kom- andi kynslóðir taka við naktri eyðimörk, eða blómlegum, arðberandi skógarlendum. Fregnir af sambandsþingi eftir L. P. Bancroft, þingm. Selkirk kjörd. Giagnger og yfirgripsmikil endurskoðun á lögum og reglum um eftirlaun hermanna í Can- ada, vill G. C. Power liðsforingi að fari fram. Er hann formaður þeirrar sérstöku nefndar í sambandsþinginu, sem með höndum hefir eftir- laun og önnur málefni, er snerta heimkomna hermenn. Þessi uppástunga hans hefir hlotið stuðning og samþykt hinnar canadisku deildar herþjónustuliðs brezka ríkisins. Það á vel við að á þessu þingi er það talið helzta málið, í hvílíkri þakkarskuld Canada sé við þá menn er í herþjónustu vora, og liðu harð- rétti og hörmungar austanhafs. 1 þessari sér stöku nefnd er sérstakt úrval viðurkendra þingmanna. Uppástungur lir. Powers era mjög þýðingarmiklar fyrir alla heimkomna hermenn í Canada. 1 stuttu máli era þær þessar: 1. Áframhald þeirrar nefndar, sem nú hefir eftirlaunamálið með höndum. 2. Afnám áfrýjunarnefndar fylkjasambands- ins. 3. Afnám þess fyrirkomulags að vissir lög- menn séu í ráðum með heimkomnum her- mönnum til undirbúnings málum sínum. 4. Stofnun eftirlauna dómstóls, sem skipaður sé níu dómurum, — ekki nauðsynlega lög- mönnum. •5. Skifting landsins í þrjú héruð: Austur- hérað frá Atlanzhafi til Ottawa, miðhérað frá Ottawa til Winnipeg, vesturhérað frá Winnipeg til Vancouver, og séu þrír dóm- arar skipaðir fyrir hvert hérað. 6. Að allar kvartanir og kröfur séu teknar til greina, og þeim ráðið til lykta; sömu- leiðis sé feldur úrskurður viðvíkjandi eignavirðingu. 7. -Vald eftirlauna dómstólsins til þess að rannasaka og kveða á um allar kröfur, eftir að þær hafa verið samþyktar af eftirlauna- nefndinni. 7. a Að eftirlauna dómstóllinn sé á mismun- andi stöðum, eftir því sem hentast er. 8. Að skipaðir iséu hermanna málaflutnings- menn í stað ráðamanna. 9. Eftirlauna dómararnir megi kalla til álits lækna eða sérfræðinga, þegar þess þykir ]>örf. 10. Að hermanninum sé úrskurðað í vil, þeg- ar um eitthvert efamál er að ræða. Þessi nefnd leysir meira starf af höndum, en nokkrar aðrar tvær þingnefndir til samans, og er þar um minni pólitískan flokkadrátt að ræða. Þingmenn þessarar nefndar telja sér það heiðursspursmál, að hermaðurinn sé ekki látinn líða sökum pólitiskra flokksæsinga. Nú er það orðið víst, að útflutningur áfeng- is verður bannaður með samþykki allfa aðilja og staðfestur af landstjóranum. Auk þess hafa einnig samningar verið byrjaðir um gagn- skiftalög, er hindri leyniflutning tollaðra muna milli ríkjanna, eða þeirra muna, sem ekki má selja. Öldungadeildin hefir samþykt flutningsbann áfengis án nokkurra breytinga, við aðra um- ræðu; rætt það í nefnd, og er nú ekkert eftir annað en samþykkja það við þriðju umræðu. 1 umræðum, bæði í neðri málstofunni og í öldungadeildinni, komu fram kvartanir um það, að áfenigsgerðarmenn (bæði sterkra og veikra drykkja), eigi ekki að fá neinar skaða- bætur fyrir eyðilagða verzlun. Sir George Foster lýsti því yfir, að hann ætti ekki leng- ur til neina samhygð með þeim náungum; en Dandurand, öldungaforingi, kvað framvarpið ekki hindra löglega verzlun og sannarlega ætti Canadastjórnin eða fólkið í heild sinni þeim enga þakkarskuld að greiða, þótt þeir töpuðu þeirri verzlun, er þeir hefðu haft við leynisölu- menn áfengis, og önnur ill öfl í landinu. Mr. Pope, sem er einn afturhaldsöldunganna, vakti óhug öldungaráðsins í heild sinni, er hann bar það fram í dyljum, að stjómin hefði neitað að fá framvarpið í hendur sérstakri nefnd vegna þess, að þá hefði ef til vill komið í dagsljósið, hversu mikið hefði borist í kosn- ingasjóð frá brennivínsvaldinu fyrir frjáls- lynda flokkinn 1926. Frjálslyndir öldungar spurðu hann um samskonar fjárframlög til a.fturhaldsmanna í Ontario 1929, en Pope svar- aði og sagði: “Eg vona, að þeir hafi verið eins hepnir og þið vorað, þó þið getið, fari kolað, ekkert sannað; en við getum sannað það sem skeði 1926.” Hjónaskilnaðarmálinu reiddi vel af og komst í gegn um aðra umræðu. Breytingartil- laga í því skyni, að drepa frumvarpið, var feld með 12 atkvæðum, og síðan var framvarpið sjálft samþykt við aðra umræðu með sama at- kvæðamagni. Lítur nú út fyrir, að þetta frum- varp, sem þegar hefir fallið einu sinni í þing- inu og var lífgað aftur, verði loksins samþykt með fáeinum atkvæðum. Það er hér um bil víst, að frumvarpið verður samþykt í öldunga- deildinni, því þar hefir það verið samþykt á þremur undanfömum þingum. ------- Töluvert bar atvinnumálin á góma í fyrri viku. 1 því sambandi lét forsætisráðgjafinn, Mr. King, þess getið, að sig furðaði -stórlega á, að svo virtist sem bóndanum væri ávalt gleymt, er um slík mál væri að raiða. Þó væri það í rauninni á almanna vitund, að bóndinn væri at- vinnulaus marga mánuði á ári. Mr. King fylgdi því fast fram, eins og reyndar ávalt áður, að hvert fylki út af fyrir sig, bæri á því fulla á- byrgð, að ráða fram úr þeim vanda, er af at- vinnuleysi stafaði innan vébanda þess, nema þá í alveg sérstökum tilfellum. Benti forsætis- ráðgjafinn réttilega á það, að þrátt fyrir hið mikla umtal, sem orðið hefði út af atvinnuleysi í hinum ýmsu borgum, þá hefði ekki ein einasta fylkisstjóm krafist aðstoðar af hálfu sam- bandsstjórnarinnar. Stjórn Ontario fylkis, meðal annars, þverneitaði að innan takmarka þess fylkis, væri um nokkurt atvinnuleysi að ræða, og nákvæmlega sömu sögu hefði stjórn Quebec fylkis að segja. Hinu mætti jafnframt ekki gleyma, að jafnvel þótt atvinnuleysis yrði vart á stöku stað, þá væri ávalt einhverja þá að finna, er gera vildu úlfalda úr mýflugunni, ef um pólitiska hagnaðarvon gæti verið að ræða. Canada framtíðarlandið ----r Hænsnarækt. Hænsnarækt borgar sig vel, ef hún er rétt stunduð. Aftur á móti gæti hún orðið tap fyrir vankunnáttu. Þess vegna heyrir maður svo margan bóndann segja, að ekkert sé upp úr hænsnunum að hafa. Að velja beztu varphænurnar. Áður en útungun byrjar á vor- in, ættu allir að velja úr beztu varphænurnar og hafa bær sér með óskyldum hana. Beztu varp- hænurnar fara vanalegast fyrst niður á morgnana og seinast upp á kveldin. Annað merki er hetta: Farðu yfir hænsnahópinn að kveldi til, þegar þau eru sezt upp. Sköða þú hverja hænu fyrir sig. Beggja megin við eggholið eru tvö bein, seni kölluð eru: pelvic bein. Séu beinin þunn og komir þú þremur fingrum á milli þeirra, þá er hænan góð varphæna; séu beinin þykk, og komir þú að eins einum fingri á milli beinanna, þá er hænan mjög léleg sem varp- hæna. Það tekur frá viku til tíu daga fyrir eggin að verða frjósöm. Eftir að útungun er um garð gengin, ættu allir hanar að vera teknir og hafðir sér, en ekki leyft að ganga með hænunum um sum- artímann. — Margir standa í þeirri meiningu, að hanar þurfi að vera með hænunum til þess að þær geti verpt; en það er mikil fjarstæða. Nú eru egg keypt eftir flokkun. Egg með útungunarefni, byrja að ungast út í sumarhitanum, og skemmast fljótt; ófrjósöm egg aftur á móti, geymast yfir lengri tíma án skemdar. Hænsnafóður. Um þetta leyti árs þurfa hænsn- in ekki eins kröftugt fóður eins og að vetrarlagi; en grænmeti er þeim nauðsynlegt; ef þau ekki haifa aðgang að grasi, þá þyrfti að rækta fyrir þau kálmeti. Einn hnefi af korni þrisvar á dag fyr- ir hverja hænu, er mátulegt eða 20 pund af korni á dag fyrír hverjar 100 hænur. Helzt ætti kornið að vera af fleiri en einni tegund, t. d. einn þriðji af hverju: höfrum, byggi og hveitikorni. — Hænsni fá leiða á sömu kornteg- und til lengdaír. — Þeir sem hafa nóg af skilvindumjólk og hleypa henni í ost með sýru, geta sparað sér korn, því í mjólkinni er mik- ið eggjahvítuefni. — Annað, sem hænsni ættu alt af að hafa að- gang að, er grófur sandur (grav- el), og nógar skeljar (muldar). Sandurinn hjálpar meltingunni og og er nauðsynlegur. úr skeljunum myndast eggjaskurn. • Hænsnalús og maur. Hænsni, sem eru • lúsug,- verpa ekki til lengdar. Til þess að eyði- leggja lús, er lúsasmyrsl ((blue ointment) einna bezt. Taka skal hænurnar að kvöldinu, og maka smyrslin undir báða vængma, undir stélin og ofan á hausinn (við hauslúsX að eins lítið á hvern stað. Þetta eyðileggur lús. En það er meiri vandi að losast við hænsnamaur (mites). Þessi maur skríður á hæsnin á nótt- unni og sýgur úr þeim blóð, en heldur til í rifum og smugum á daginn. Maurinn magnast ákaf- lega fljótt í hitanum á sumrin, og getur valdið því, að hænur hætti alveg að verpa. Til þess að lostast við maur, verður að sprauta hænsnahúsið með steinolíu eða sterku kreolin- vatni. Taka skal alt út úr hús- inu, sem lauslegt er, svo sem hreiður, hænsnaprik o.s.frv. Svo skal sprauta í allar rifur og smug- ur, sem sjáánlegar eru. Þetta verður svo að endurtakast eftir vikutíma, þegar mauraeggin ung- ast út. Bezt er að sprauta hænsnahúsin áður en maurinn magnast. Veiki í hænsnum. Þeir, sem hafa léleg hænsnahús, missa oft hænsnin úr veiki, eink- um á vorin. Ekki er til neins að reyna að lækna hænu, sem verð- ur veik; betra að eyðileggja hana sem fyrst, því oft smitar hún heil- brigðar hænur. Tæring er mjög almenn í hænsnum, sem hafa hana, þá munt þú sjá Ijósleita depla á lifrinni og innýflunum. Missir þú margar hænur úr þessu, er þér bezt að losa þig við allan hópinn, því þessi veiki er mjög í meir en þriðjung aldar hafa Dodd's Kidney Pills verið viður- kendar rétta meðalið við bakverk, gigt, þvagteppu og mörgum fleiri sjúkdómum. Fást hjá öllum lyf- sölum, fyrir 5öc. askjan, eða sex öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The Dodds Medicine Co., Ltd., Toronto, ef borgun fylgir. smitandi, ef hún kemst í hænsna- hópinn. Stundum vill til að hænsni, sem fóðruð eru ,á höfrum og byggi, hætta að éta fyrir það, að þai\ hafa úttroðinn sarp, einkanlega ef þeim er gefið mikið bygg. — Þetta má kalla uppþembu, og má lækna hana með því að skera upp sarpinn og hreinsa alt úr honum, sauma svo fyrir aftur með nál og tvinna. Verður þá hænan jafn- góð. Þetta orskast af því, að neðra opið á sarpinum hefir stíflast. Hænsnahús. Allir ættu að hafa sérstakt hús fyrir hænsnin, en ekki að hafa þau innan um gripi eða hross, sem víða tíðkast. Húsið mætti byggjast eftir fjölda hænsnahna, sem þú hefir. Það þarf ekki að vera fallegt eða dýrt, en verður að vera bjart og loftgott; nægi- legir gluggar þurfa að vera á því, og ættu að snúa 1 suður. I Staðinn fyrir gler, má brúka lér- eft í suma þessa glugga; það mundi gera húsið loftbetra. Það, sem mest er um vert, er að húsin séu björt og loftgóð, trekklaus og laus við raka. Kuldinn að vetr- inum gerir hænsnunum ekkert til, ef þau hafa nóg af strái að rusla í, þá vinna þau sér til hita. Góðar varphænur. Það eru ekki góðar varphænur, sem verpa að eins að sumrinu. Það gerir hvaða hæna sem er. Það er hennar eðli. En hænur, sem verpa í vetrarkuldanum í IManitoba eins vel og á sumrin, þær mætti kalla góðar varphæn- ur. Þessum góðu varphænum er nú sem óðast að fjölga, en hinar lélegu að fækka, sem betur fer. Sá sem byrjar á hænsnarækt, verður að hafa góðan stofn, ann- ars gæti það orðið honum stór- skaði. Bezt er að byrja með lít- ið, en auka ef vel gengur. Hænsnategundir. Til varps eru Leghorn hænsni í fremstu röð. Það má segja, að þau séu reglulegar hænsnavélar. En ókostur er einn við Leghorn- hænsnin, að þau éru mjög óstöð- ug að vilja liggja á. Þau eru held- ur smá, vigta frá 4 til 6 pund hver hæna, en vprpa furðustórum eggjum. Þeir sem hafa Leghorn- hænsni, þurfa að hafa aðrar hæn- ur til að liggja á að vorinu, eða þá útungunarvélar, sem er ómiss- anlegt fyrir alla, sem stunda hænsnarækt að nokkrum mun. J. A. TENDBRS FOR COAL CBALED TENDERS a.ldressed to the Pur- ^ chaslnpr Agrent, Department of Public Works, Ottawa, will be received at his of- fice until 12 o’cloek noon, Wednesday, April 23, 1930, for the supply of coal for the Do- minion Buildings and Experimental Parms and‘ Stations, throughout the Province of Manitoba, Saskatchewan, Alberta and Brlt- ish Columbia. Forms of tender with specificationa and conditions attached can be obtained from G. W. Dawson, Chief Purchasing Agent, Department of Public Works, Ottawa; H. E. Matthews, District Resident Architect, Win- nipeg, Man.; G. J. Stephenson, District Resident Architect, Regina, Sask.; Chas. Sellens, District Resident Architect, Calgary, Alta.; and J. G. Brown, District Resident Architect, Victoria, B.C. Tenders will not be considered unlesa made on the above mentioned forms. The right to demand from the successful tenderer a deposit, not exceeding 10 per cent. of the amount of the tender, to se- cure the proper fulfilment of the contract, is reserved. By order, N. DESJARDINS, Secretary. Department of Public Works, Ottawa, March 26, 1930. Frúfn (sem var að leggja í langferð) : Ætlarðu nú að elska mig ein» fyrir því, þótt langt sé á milli okkar? Hann: Já, því lengra sem er á milli okkar, því heitar skal eg1 elska þig. — Lesb.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.