Lögberg


Lögberg - 10.07.1930, Qupperneq 4

Lögberg - 10.07.1930, Qupperneq 4
Bls. 4. LÖGBERG. FIMTUDAGINN 10. JÚLÍ 1930. Högfjerg Gtefið út hvem fimtudag af The Col- ttm-hia Press, Ltd., Oor. Sargent Ave. og Toronto St., Winnipeg, Man. Talsímar: 86 327 og 86 328 Einar P. Jónsson, Editw Utanáskrift blaðsins: The Columbia Press, Ltd., Box 3172 Winnipeg, Man. Utariáskrift ritstjórans: Editor Lögberg, Box 3172, Winnipeg, Man. VerS $3.00 um áriS. Borgiat fyrirfram. The ••Lögberg" Is prlnted and publlnhed by The Columbia Preas, Llmlted, ín the Columbla Bulldlng, 695 Sargent Ave., Wlnnipeg, Manltoba. Hvað er eðlilegra ? Undanfamar vikur hafa útnefningar þing- mannaefna farið fram í hinum ýmsu kjördæm- um Manitobafylkis og verður ekki annað sagt, (n að vel hafi tekist til um val, að minsta kosti bvað frambjóðendur frjálslyndu stefnunnar áhrærir. 1 flestum tilfellum eru það stömu mennii nir, sem útnefningu hafa hlotið; mun því alment fagnað verða, því undantekningarlaust, reyndust þeiv allir á síðasta kjörtímabili, stöðu sinni fyllilega vaxnir, jafnvel langt fram yfir það, er alment gerist. Flestir frambjóðendur hins frjálslynda skóla, ganga undir liberal- progressive nafni eins og í síðustu kosningum, en tveir sækja fram undir ákveðnu innsigli frjálslynda flokksins; eru það þeir Joseph T. Thor.son, K. C., er leitar endurkosningar í Mið- Winnipeg kjördæminu hinu syðra, og Mr. Mc- Pherson, er býður sig fram á ný í Portage kjördæmi. _ Orðið höfum vér varir lítiLsháttar goluþyts úr aftu- halds áttinni, þar á meðal í Heims- kringlu yfir samvinnu þeirri, er átt hefir sér stað og á sér stað enn, milli liberala og hinna svokölluðu progressive þingmanna eða þing- mannaefna; slíkar aðfinslur, hvaðan sem þær koma, stafa af helberum misskilningi,og minna óþægilega á hugarfarslegan krabbagang. Frá skoðanalegu sjónarmiði séð, ber li'berölum og þeim, er progressive nafnið bera, svo lítið á milli, að gengið hefði glæpi næst, ef um fvlstu samvinnu hefði ekki verið að ræða. Báðir eiga flokkar þessir sammerkt í því, að fylgja lág- tollastefnunni að málum; fyrir báðum vakir sama sjálfstæðishugsjónin viðvíkjandi eanad- iskum þjóðréttindum; báðir mótmæla þeir of- beldi og einokun á hvaða sviði sem er, og báð- ir bera þeir fyrst og síðast rétt einstaklingsins og hag alþýðunnar fvrir brjósti. Gat því nokkuð hugsast eðlilegra en það, að flokkar, er svona voru andlega skvldir, mynduðu með sér vamarsamband gegn ofbeldi og yfirgangi afturhalds klíkunnarf Nei, og aftur nei! Hugsjónir frjálslynda flokksins og þeirra, er undir progressive nafninu ganga, samein- ast í öllum megin-atriðum, hugsjónum Vestur- landsins, eða hugsjónum æskunnar; Vestur- landið og æskan, mega í raun og veru, enn sem komið er, teljast eitt og hið sama. Eins og nú horfir við, verður ekki annað sagt, en að byrvænlega blásr fyrir þingmanna- efnum Kingstjórnarinnar hér í fylkinu; að- sóknin að fundum þeirra hefir verið sérlega mikil, og góður áhugi komið í hvívetna í ljós; bendir því flest til þess, að þeir menn, flestir, ef ekki allir, ganga sigri hrósandi af hólmi. Þó eru eitt eða tvö kjördæmi, sem svo er á- statt með, eins og til dæmis í Springfield, að fleiri en einn leita kosninga undir merkjum frjáLslyndu stefnunnar. Slíkt má undir engum kringumstæðum eiga sér stað, og verður von- andi úr bætt, áður en framboðsfresturinn renn- ur út; ekkert það, er að einhverju leyti getur veikt aðstöðu hins ákveðna þingmannsefnis nú- verandi stjórnar, má líðast óátalið. Fólkið í Sléttufylkjunum^hallast eindregið að lágtolla stefnunni; það veit og skilur, að það er frjálslyndi flokkurinn, er vakti Vesturland- ið af svefni; það er ekki búið að gleyma á- standinu, sem átti sér stað í stjórnartíð þeirra Borden’s og Meighen's; því ætti þess vegna að vera vorkunnarlaust, að vara sig á beitunni, sem hersveitir afturhaldsins, með Bennett í broddi, eru nú að bera a borð fyrir það. 1 hvert skifti, sem afturhaldsliðið fer með völd, hækkar kostnaður framleiðslunnar að miklum mun, jafnframt því sem allar þær lífsnauðsynjar, er almenningur þarf að kaupa, hækka líka í verði. Þegar frjálslyndi flokk- urinn heldur um stjórnartauma, er þessu farið. á alt annan veg; þá lakkar framleiðslukostn- aðurinn sökum lækkaðra tolla; 'bóndanum verð- ur hægra um vik, — hann fær meiri arð iðju sinnar, og gildir hið sama um iðnaðarmann- inn og verkamanninn í borgum og bæjum. íbúar Manitobafylkis, seni og reyndar Sléttu- fylkjanna í heild, ættu að kjmna sér sem allra nánast núverandi pólitískt vlðhorf, og kveða svo upp dóm sinn eftir því. Strauma og stefn- ur í stjórnmálum, má því aðeins réttilega greina, að litið sé á málin æsingalaust. Kjósendur eiga nú senn að skera úr því við almenna atkvæðagreiðlu, hvort j>eir aðhyllist frekar stefnu þess flokks, núverandi stjórnar- flokks, er barist hefir fyrir og hrundið í fram- kvæmd, lækkuðum framleiðslukostnaði, lækkuð- um flutningsgjöldum, að ógleymdri lagningu Hudsonsflóa brautarinnar, eða hins flokksins, Bennett flokksins, er með tollmálastefnu sinni hlvrii að verða þess valdandi, að framleiðslu- kostnaðurinn ykist til muna, jafnframt því, sem arður bóndans af búi sínu, mvndi jjverra að sama skapi. Hvorn flokkinn fyllið þér?| Kjósendum Sléttufylkjanna stendur það vafalaust enn í fersku minni, hverjir það voru, sem fastast lögðu á móti því, að Crovris Nest flutningsgjalda taxtinn yrði innleiddur á ný; þeim er fullkunnugt um, að slíkt var verk aft- urhaldsflokksins, með Bennett í broddi fylk- ingar; þeir eru heldur ekki búnir að glejona hálfvelgju afturhalds hersveitanna í sambandi við Hudsonsflóa brautina. Hvað væri um mannvirki það í dag, ef ekki væri fyrir ein- lægni þeirra Kings og Dunnings ? Vesturland- inu er bórgið í höndum slíkra manna, og íbúar þess rækja ek'ki rétt borgaralega skyldu sína, nema þeir tryggi sigur hverjum einasta fram- bjóðanda stjómarinnar, við kosningar þær, er nú fara í hönd. +■—*—------------------------------------- Islendingar og sambandskosningarnar Þótt íslendingar hér í Manitoba séu tiltölu- lega fámennir, borið saman við ýmsa aðra þjóðflokka, þá gætir jró áhrifa þeirra, bæði við sambandskosningar, sem og á öðrum .sviðum, engan veginn hreint ekki svo lítið; eiga Islend- ingar meðal annars í tveimur Winnipegkjör- dæmum, yfir svo miklu afli atkvæða að ráða, að á miklu veltur, hveraig því er beitt. 1 Mið-Winnipeg kjördæminu hinu syðra býður sig fram af hálfu frjálslynda flokksins. sem þegar er kunnugt, hinn stór-snjalli landi vor, Mr. Joseph T. Thorson, K.C., sá er sæti átti á sambandsþingi fyrir það kjördæmi, síð- astliðin fjögúr árin. Frá framkomu Mr. Thor- son’s á þingi, hefir verið áður skýrt svo grand- gæfilega hér í blaðinu, að litlu er þar við að bæta, öðru en þá því, að hvetja fólk til þess að greiða honum atkvæði. Það er Islendingum mikill vegsauki, að eiga slíkan mann á þingi, sem Mr. Thorson er; mann, sem jafn-drengi- lega liefir varið málstað fólksins og hann hefir gert; mann, sem svo er hátt hafinn yfir klíkur og þröngsýnan flokks aga, að honum halda engin bönd; mann, sem fyrst og síðast fylgir raust samvizku sinnar. Það ætti að vera hverjum ednasta íslenzkum kjósanda í kjör- dæmi Mr. Thorson’s, hjartfólgið metnaðarmál, að stuðla að kosningu hans af fremsta og ítr- asta megni. Af þeim sambands kjördæmum utan Winni- peg borgar, er íslenzks atkvæðamagns gætir mest, má einkum og sérlagi nefna til Portage og Selkirk kjördæmin. 1 ibáðum þessum kjör- dæmum, léita sömu mennimir endurkosningar, Mr. MöPherson í Portage og Mr. L. P. Ban- croft í Selkirk; báðir eru mePn þessir sam- vizkusamir menn, er starfað hafa dyggilega í þjónustu kjördæma sinna og verðskulda þar- afleiðandi endurkosningu. Með aðstoð Islend- inga í Manitobavatns 'bygðunum, auðnaðist Mr. McPherson í kosningunum 1926, að koma Mr. Meighen fyrir kattaraef, og harma það víst fáir. Vann Mr. McPherson þar hið mesta þarfaverk, meira en nægilegt til þess að verð- skulda endurkosningu fyrir. Um fyrverandi þingmann Selkirk kjördæmis og núverandi frambjóðanda, er ekki nema alt hið bezta að segja; hann er sjálfmentur al- þýðumaður, er komist hefir vel áfram í lífinu og nýtur almennra vinsælda. Mr. Bancroft. hefir setið á þingi tll-mörg ár og verið mikils metinn af samþingismönnum sínum. Kjósend- ur í Selkirk kjördæmi kaupa því hreint ekki köttinn í sekknum, þar sem Mr. Bancroft er. Víðar en í þeim kjördæmum, sem nú hafa nefnd verið, gætir íslenzkra áhrifa hreint ekki svo lítið, eins og til dæmis í Macdonald kjör- dæminu. 1 því kjördæmi býður sig fram, undir merkjum frjálslyndu stefnunnar, nýliði á sviði stjóramálanna, Mr. Weir að nafni, hinn ágæt- asti maður að sögn; er vonandi að íslenzkir kjósendur veiti honum óskift fvlgi. t Proven- tíher, Dauphin og Nelson kjördæmum, er þó nokkuð af íslenzkum atkvæðum, sem vonandi hallast flest, éf ekki öll, á sveif frjálslynda flokksins og lágtollastefnunnar. tslendingar, hér sem annars staðar, hafa alla jafna verið frjálslyndir og djarfhugsandi menn; þeir hafa átt manna örðugast með að kyssa á vöndinn, eða beygja sig fyrir kúgun og ofbeldi. Hjá fáum þjóðflokkum í þessu landi, mun frjálslynda stefnan hafa skotið dýpri og haldbetri rótum, en tslendingum; mun það sannast gleg'gst og áþreifanlegast þann 28. þessa mánaðar. Vér trúum því eindregið, að tíminn muni leiða það í ljós, eftir að valurinn hefir kannaður verið þann 28., að ekki ein einasta íslenzk mannvera, hafi orðið dægurflugum aft- urhaldsins að bráð. Islendingar Eftir Sig. Júl. Jóhannesson. +-----------------------------------------■+ Enn vil eg minna á það, að sambandskosn- ingar ern í nánd; enn vil eg ítreka það, hversu mikil ábyrgð því fylgir að greiða atkvæði. Hér í Winnipeg gætir íslenzkra atkvæða allmikið í tveimur kjördæmum — báðum mið- kjördæmunum. tslendingar vilja teljast siðmannað fólk með dómgreind og skilningi — og þeir eru það. Á íslandi er nýafstaðið þúsund ára afmæli Alþingis. Islendingar eru stoltir af því, að eiga elzta þjóðþing í heimi. Þeim finst það bera vott um það.— jafnvel vera sönnun þess —- að þeir skilji stjórnmál að minsta kosti ekki lakar en þær aðrar þjóðir, sem ]>au skilja bezt. Og þetta hefir við talsvert að styðjast. En menning Islendinga og heiður í komandi tíð má ekki einungis byggjast á framkomu hinna liðnu og afreksverkum þeirra. Nútíð og framtíð e: undir þeim komin, sem nú eru uppi og afkom- endum þeirra. Glæsilegar minningar og göfg- ar ættir; fortíðar-heiður og feðra-frægð eru góð með öðru góðu, en ekki einhlít. Þetta ’þurfa Islendingar að muna, í hvert skifti sem þeir taka þátt í kosningum. Skilningur og manndáð, dómgreind og skyldurækni koma, ef til vill, hvergi betur í ljós, en við atkvæðaborðið. Þakklæti og viður- kenning fyrir vel unnið starf telja sér allir sannir menn skylt að greiða; og vanþóknun sinni telja ]>eir jafn-sjálfsagt að: lýsa, þegar skyldu- verk eru vanrækt eða illa af hendi leyst. Nú vill svo vel til, að í báðum þeim "Winni- peg-kjördæmum, þar sem Islendinga gætir, er um menn að velja, — einn í hvoru kjördæmi — sem reynst hafa trúir og nýtir fulltrúar, at- kvæðamiklir og samvizkusamir menn. Þeir hafa verið kjördæmi sínu til heiðurs, kjósend- um til blessunar og allri þjóðinni til heilla. Þessir menn eru þeir Dr. Joseph Thorson lögmaður og J. S. Woodsworth. Eins og oft hefir átt sér stað fyr, er nú sam- vinna milli verkamannaflokksins, bændaflokks- ms og frjálslynda flokksins; er það mjög eðli- legt, þar sem stefnur þeirra allra eiga svo margt sameiginlegt; þessir flokkar berjast nú um kosningarnar ó móti hiilum sameiginlega óvini sínum og fólksins — afturhaldsklíkunni. Það hefir orðið samkomulag, að verkamenn láti engan sækja gegn Thorson og frjálslyndir menn engan gegn WoodswÓorth. Móti hinum síðarnefnda sækir maður sem Grant heitir, og mun lítil hætta stafa af honum; samt ættu allir Islendingar að fylkja sér und- ir merki Woodsworths, sem er af öllum talinn einn'hinna snjöllustu og mætustu manna, er þing hafa setið. Um fylgi Islendinga við Thorson ætti ekki að ]>urfa að efast; hann hefir komið þannig fram í síðastliðin f jögur ár, að allir landar ættu að vera stoltir af. Hann er eini Islendingur- inn, sem til þings sækir í allri Canada, og þótt það sé löndum vanvirða — þeir ættu að geta kosið að minsta kosti 3—4 ef samtök ættu sér stað —, ]>á er það samt betra, að eiga einn fulltrúa, sem treysta má og fram úr skarar, en marga, sem enginn eða fáir vissu af. En afturhaldsliðið lætur ekkert ógert, sem unt er, til þess að koma Thorson fyrir kattar- nef; á móti honum sækir lögmaður, er Kennedy heitir, með auð fjár að baki sér; hann hefir setið á þingi eitt ár, og voru aðal-störf hans ofsóknir gegn hinum mæta manni AVoods- worth. Þess ætti að mega vænta, að bæði íslenzku blöðin, bæði íslenzku kirkjufélögin eða meðlimir þeirra, allir starfs- og embættismenn Þjóðrækn- isfélagsins og Islendingar í heild sinni, tækju höndum saman til þess að tryggja sér vissu fyrir því, að þessi eini fulltrúi þeirra á sam- bandsþingi, sem svo vel hefir reynst, verði sendur þangað aftur, með fleiri meirihluta- atkvæðum en áður. En tíminn styttist; hendur verða að standa fram úr ermum; það þarf að vaka, því hinir sofa ekki; það þarf að vera við öilu búinn, því engar blekkingar eru sparaðar af hálfu hinna. Enginn atkvæðisbær Islendingur má láta það koma fyrir, að hann dragi sig í hlé, liggi á liði sínu eða greiði ekki atkvæði. Eitt einasta atkvæði getur stundum ráðið úrslitum, og þótt sigur ætti að vera vís, er það áríðandi, að láta ekki oftraust skapa hvíld og aðgerðaleysi. Canada framtíðarlandið í hinum fvrri greinum hefir verið nokkuð að því vikið, hvers vegna að hugur svo margra ís- lenzkra bænda, hefir hneigst að Manitobafylki. En í þessari grein verður leitast við að lýsa að nokkru ástandi og staðháttum í Saskatchewanfylki. í mörgum til- fellum gildir það sama um Mani- toba og Saskatchewan, enda liggja þau saman hlið við hlið. Þó eru ýms atriði, að því er snertir Sas- katchewan, sem væntanlegir inn- flytjendur hefðu gott af að kynn- ast, þar sem öðru vísi hagar til, og skal hér drepið stuttlega á nokkur helztu atriðin, sem gera það fylki frábrugðið Manitoba. Það sem nú er kallað Saskatche- wan, var áður fyrri víðáttumikið landflæmi í Vestur-Canada, sem Hudsons Bay félagið hafði fengið samkvæmt erindisbréfi frá Char- les II., árið 1670. Síðan komst landspildan undir hina canadisku stjórn, og var henni stjórnað frá Regina, sem nú er höfuðborg þess fylkis, með hér um bil 55,000 í- búa. Árið 1882 var megin hluta þessa flæmis skift niður í Alberta, Assiniboia og Saskatchewan. Það var ekki fyr en 1905, að Saskat- chewan hlaut fylkisréttindi, með Manitoba að austan, Alberta að að vestan, Bandaríkin að sunnan, en North West Territories oð norðan. Saskatchewanfylki er 257,700 fer- mílur að stærð, og er því ummáls- meira en nokkurt Norðurálfuríkið, að undanteknu Rússlandi; það er tvisvar sinnum stærra en Eng- land, Wales, Skotland og írland til samans, og hefjr um sjötíu og tvær miljónir ekra, sem hæfar eru til kornræktar og annarar yrkju. Af þessu flæmi hafa enn ekki tuttugu miljónir ekra komist und- ir rækt. Það er þvi sýnt, að tæki- færi fyrir nýbyggja í Vestur- landinu, eru enn þvínær ótakmörk- uð. í meir en þriðjung aldar haf8 Ðodd’s Kidney Pills verið viður- kendar rétta meðalið við bakverk, gigt, þvagteppu og mörgum fleiri sjúkdómum. Fást hjá öllum lyf- sölum, fyrir 50c. askjan. eða sex öskjur fyrir $2,50, eða beint frá The Dodds Medicine Co., Ltd.. Toronto, ef borgun fylgir. Mikið er þar af góðum löndum, er fást til kaups fyrir þetta frá $18 til $45 ekran, og má í flestum l tilfellum fá þau með slíkum skil- ^ málum, að borga má fyrir þau á mörgum árum. Ræktuð lönd kosta vitanlega sumstaðar miklu meira, og fer það alt eftir þvi, í hverju helzt að umbæturnar liggja. Enn ; fremur má fá mikið af löndum á leigu, til dæmis fyrir vissa hlut- i | deild í ársarðinum. — Það, sem væntanlegir innflytjendur ættu I samt fyrst og fremst að hafa í hyggju, er það, að hinar miklu | umbætur seinni ára í fylkinu hafa gert það að verkum, að erfiðleik- 1 ar frumbýlingsáranna þekkjast j ekki lengur. Eða með öðrum orð- um, að það er margfalt auðveld- 'ara fyrir nýbyggjann að byrja búskap nú, en átti sér stað hér fyr meir. Sléttan býður engum heim upp á ekki neitt. Hún borg- ar iðjumanninum handtök hans vafningalaust. Skilyrðin til ak- uryrkju og griparæktar í fylki þessu eru að heita má ótæmandi. íbúatala fylkisins er nú nálægt 800,000. Eins og nú standa sak- ir, framleiðir Saskatchewan af hinum litla, ræktaða ekrufjölda, meira korn en nokkurt annað fylki í Canada. Saskatchewan hefir á einu einasta ári framleit alt að 384,156,000 mæla af hveiti, byggi, höfrum og hör, og er þess vegna eitt hið mesta kornframleiðslu- land innan brezka veldisins. Fyrir hálfri öld eða svo, var fylkið að heita mátti óbygt. Hin litla jarðrækt, er þektist þar þá, var á mjög ófullkomnu stigi. En stórar buffalo hjarðir undu sér lítt truflaðar á beit, um sléttu- flæmið víðáttumikla. Rauðskinnarnir, það er að segja Indíánarnir, þóttust hafa tekið sléttuna að erfðum og þar af leið- andi hefðu engir aðrir hið minsta tilkall til hennar. Fáeinir stór- huga æfintýramenn, tóku að leita þangað vestur fjTÍr rúmum fjöru- tíu árum. Jafnskjótt og tekið var að leggja járnbrautirnar, þyrptist fólkið úr öllum áttum. Jarðvegurinn er framúrskar- andi auðugur að gróðrarmagni og á því voru nýbyggjarnir ekki lengi að átta sig. Erfiðleikarnir voru að miklu leyti hinir sðmu og átti sér stað í Manitoba, en þeir urðu samt enn fljótar yfirstignir. Nú hafa verið reistir skólar og kirkjur um alt fylkið. Símalínur tengja borg við borg, sveit við sveit. Bifreiðar eru komnar á allflesta bóndabæi og járnbraut- arkerfin liggja um fylkið þvert og endilangt. Alls eru um 6,500 mílur af járnbrautum í fylkinu, og er það meira en í nokkru öðru fylki, að undanskildu Ontario. Nútíðarþægindi í iðnaði, sam- göngum og verzlun, hafa komið i stað örðugleikanna, sem land- nemalífinu voru samfara. En þó nú séu við hendina flest þau þægindi, sem nútíminn þekk- ir, þarf samt engu að síður að leggja alúð og rækt við störfin. Kornyrkja út af fyrir sig, stuðl- ar miklu fremur að því að veikja jarðveginn en styrkja. Og þess vegna tóku landnemarnir snemma upp á því að rækta sem mest af gripum. örðugt var til markaðs hér fyr- á árum og það svo mjög, að bænd- ur áttu fult í fangi með að láta hveitiræktina borga sig. Nú er þetta alt saman breytt til hins betra; hvar sem bóndinn á heima í fylkinu, á hann tiltölulega mjög skamt til kornhlöðu og járnbraut- arstöðva. Alþingishátíðin Ahrif hennar innávið og útávið fRæða haldin á Islendingadegi í Winnipeg, 26. júní 1930 af séra K. K. Ólafssyni, Glenboroj. Það dylst víst engum að hátíð sú, sem nú er haldin á þingvöllum við Öxará .— þúsund ára afmælishátíð Alþingis — er einstök ekki einungis í sögu íslenzkrar þjó'ðar, heldur líka þó lengra sé leitað. Að minnast at- burðar, sem við bar fyrir þúsund árum er sjaldgæft- En aö minnast stofnunar, sem á þúsund ára sögu og er enn við lýði, er ennþá sjaldgæf- ara. Flest, sem tilheyrir mannfé- lagsskipun nútímans, á mikið skemri sögu. Sjálfstjórn, lýðstjórn, lýð- frelsi og þær stofnanir, sem bera eiga uppi þessar hugsjónir — þetta alt telst vanalega til nútímans. Því furðulegra að hjá smá]>jóð norður við heimskautabaug skuli nú vera haldin þúsund ára afmælishátíð lög- gjafarþings þjóðfulltrúa — en slík þing eru talin fjöregg allrar lýö- stjórnar nútímans. Slík afmælishá- tíð hlýtur að teljast einhver merk- asta minningarathöfn í nútíðarsögu. Ýmislegt eykur á sérstöðu þessar- ar hátíðar aug þess hve einstök hún er. Hún er haldin í því.landi Norð- urálfunnar, sem síðast var bygt, en á þó elsta sögu á þessu sviði. Há- tíðahaldið nú eftir þúsund ár fer fram á sania tungumáli og talað var við stofnun alþingis, svo lítill er munur á fornmálinu og nútíðarmáli íslenzku. Hvergi annarstaðar gæti slíkt átt sér stað. Hátíðahaldið nú fer fram i sama salnum og alþingi var stofnað í—undir blárri hvælf- ingu íslenzkrar sumardýrðar, um- kringt dýrðlegri fjallasýn og til- komumiklu umhverfi að öðru leyti í riki náttúrunnar. Ræðustóllinn nú er að líkindum hinn sami og frá byrjun alþingis—Lögberg hið forna. Er þetta vegleg og viðeigandi urn- gjörð fyrir hátiðahaldið. Ætti það að vekja eitthvað af þeint anda, sem lá til grundvallar því, að alþingi var stofnað fyrir þúsund árum. Islenzka þjóðin er söguþjóð. Líf hennar á djúpar rætur i þekkingu á sinni liðnu sögu. Hún á endurreisn sina að þakka því, að hjá henni kom frant veruleg þjóðernisvakning — 'sjálfsmeðvitund, sjálfsþekking og sjálfsvirðing,—er rót sína átti að rekja til þess að forgöngumennirnir teiguðu djúpt af lindurn sögunnar og áhrif frá þeim frjófguðu alt þjóðlifið. Varð það til þess að stefna þjóðinni inn á leið þeirrar mestu framfarar, sem hún nokkurn- tima hefir orðið fyrir. Þegar hún nú á þessu framfaraskeiði, snýr sér að því að halda minningarhátíð, þá er nú stendur yfir—þúsund ára af- mælishátíð alþingis — og ryfjar þannig upp fyrir sér einn merkasta 1

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.