Lögberg - 06.08.1931, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 6. AGÚST 1931.
Bls. 5.
sjónir, erum vér fullvissir um, að
hér mun búa í framtíðinni stór,
hraust og þrekmikil þjóð, þjóð
með háar og göfugar huigsjónir,
er lætur mikið og gotjt til sín
taka í vandamálum 'þjóðanna.
Það er vor heitasta ósk, að svo
megi verða. Vér óskum af alhug
að Canada og hin canadiska þjóð,
megi njóta fulls frelsis og friðar,
og gnótt allra 'gæða falli henni í
skaut meðan ljósöldur líða um
lcindin blá, og bárur rísa á björt-
um sjá.
Prestastefnan 1931
FB. 27. jjúní.
Hin árlega prestastefna var að
bessu sinni haldin dagana 18.—20.
júní. Hóst hún föstudag (18.
júní) með guðsþjónustu í dóm-
kirkjunni, þar sem dómkirkju-
presturinn, séra Bjarni Jónsson,
prédikaði út af sálminum í 1. Pét.
2, 4-5. En fundirnir fóru eins og
vant er frarr) í húsi K.F.U.M. hér
i bænum.
Kl. 4 hóust fundahöldin.—Bisk-
up flutti bæn og bauÖ menn vel-
komna og kjöri fundarskrifara séra
Albert Eiríksson á Hesti. Voru þá
alls mættir 32 prestar og 3 prófast-
ar, en síÖar hætust 'nokkrir við,
svo að tala synodusmanna mun hafa
ofðiÖ nær 40. En auk þeirra sátu
fundinn nokkrir eldri andlegrar
stéttar menn, embættislausir og guð-
ræðikandidatar. — Biskup gaf yfir-
lit yfir helztu viðburði næstliðins
fardagaárs og byrjaða á aö minn-
ast 1000 ára hátíðarinnar á liðnu
ári, sem hafði orðið landi og þjóð
til svo mikils sóma, og öllum, sem
hátíðina sóttu, til svo mikillar
ánægju. Þá mintist hann tveggja
látinna uppgjafapresta, séra Guð-
laugs Guðmundssonar frá Stað í
Steingrímsfirði og Kjartans próf.
Helgasonar frá Hruna (af þjón-
andi prestum hafði enginn dáið á
fardagaárinu), ennfremur prests-
ekknanna Jóhönnu Soffíu Jónsdótt-
ur frá Viðvík (ekkju séra Zófóni-
asar próf. Halldórssonar) og Guð-
ríðar Pétursdóttur frá Höfða
(ekkju séra Gunnars Ólafssonar).
Af prestsskap höfðu látið á árinu
prestarnir Jón Finnsson á Djúpa-
vogi, Magnús próf. Bjarnarson á
Prestsbakka, Magnús Þorsteinsson
á Patreksfirði, Gunnar Benedikts-
son í Saurbæ í Eyjafirði og Ólafur
próf. Stephensen í Bjarnanesi. En
af prófastsstörfum hafði látið séra
Jón Pálsson á Höskuldsstöðum.
Þjónandi prestar væru alls 103, en
10 prestaköll væru óveitt. Af 8
prestaköllum sem óveitt voru í fyrra
(af því að þau, að undirlagi stjórn-
arinnar, höfðu ekki verið auglýst)
höfðu 4 verið veitt á fardagaárinu,
en við þau 4, sem þá voru óveitt
hefðu bæzt 6. Þessi 5 prestaköll
hefðu verið veitt á árinu: Reykholt
(Einari Guðnasyni), Breiðibóls-
staður í Vesturhópi (Stanley Mel-
ax). Grenjaöarstaður (Þorgrími
Sigurðssyni), Stórinúpur (Jóni
Thorarensen) og Bjarnanes (Eir-
íki Helgasyni). En vígslu hefðu
tekið: Einar Sturlaugsson til að-
stoðarprests í Eyrarprestakalli, Sig-
urjón Guðjónsson til aðstoðarprests
í Saurbæ á Hvalf jarðarströnd og
Þorgrímur Sigurðsson til Grenjað-
arstaðar. Rinnig hafði biskup, með
leyfi stjórnarvalda, veitt prests-
vígslu Jóni Auðuns, er gerðist
prestur utan-þjóÖkirkjusafnaÖar í
Hafnarfiröi, í stað Ólafs fríkirkju-
prests Ólafssonar, er lét af prest-
skap sem júbílprestur á liðnu ári.
Tveir nýir prófastar hefðu verið
skipaðir: séra Jakob Einarsson fyrir
/Norður-Múla og séra Sigurður
Haukdal fyrir Barðarstrandar próf-
astsdæmi. En tveir hefðu verið
settir í bili: séra Björn Stefánsson
fyrir Húnavatns- og séra Jón Pét-
ursson fyrir A.-Skaftafells-prófasts-
dæmi. Loks hefði verið kosinn og
síðan skipaður vígslubiskup fyrir
hið forna Skálholtsbiskupsdæmi:
prófessor Sig. P. Sivertsen (i stað
Valdimars Briem vígslubiskups, er
lézt á næstliðnu ári).
Nýjar kirkjur hefðu veriö reist-
ar á Stórólfshvoli, á Flugumýri og
i Vallanesi og byrjað á kirkjubygg-
ingu á Siglufirði, Tjörn á Vatns-
nesi og Vík í Mýrdal. Ný prests-
íbúð hefði verið reist á Æsustöð-
um í Eangadal (í Bergstaðapresta-
kalli) og keypt íbúðarhús á Patreks-
firði handa Eyrarpresti. Frumvarp
til laga um íb'úðarhús á prestsetrum
hefði legið fyrir Alþingi í vetur,
en ekki orðið útrætt. Aftur voru
3 af frumvörpum kirkjumálanefnd-
ar afgreidd sem lög frá Alþingi
áður en þing var rofiö: um utan-
fararstyrk presta, um bókasöfn
prestakalla og um kirkjuráð, og
hiðu þau nú staðfestingar konungs.
Hinar kirkjulegu bókmentir hefðu
á árinu auðgast um 3 rit:
Apókrýfiskar bækur gamla testa-
mentisins ) nýrri þýðingu að 2-3
eftir þá Þórhall biskup og Harald
próf. Níelsson, en að 1-3 eftir þá
Sigurð próf. Sívertsen og Ásmund
dócent Guðmundsson. Hefðu hin-
ir síðarnefndu tveir að öllu leyti
séð um útgáfuna, en Biblíufélag
vort hefði kostaö prentunina og
hefði sett verð ritsins svo lágt, að
þess væru engin dæmi á nálægum
tíma um yfir 20 arka rit (5 kr. í
bandi, en 3% kr. óbundin eintök).
Þá hefði og verið prentað síðasta
(fjórða) bindi “Almennrar kristni-
sögu” eftir biskupinn, og væri því
ritverki þar með lokið. Væru það
samtals 90 arkir, eða nál. 1500 bls.,
og næði fram að byrjun heimsstyrj-
aldar (1914). Loks hefði veriö
prentað nýtt “kver”: “Kristin
fræði,” eftir séra Friðrik Hall-
grímsson, og fengið stjórnarvalda-
leyfi til að nota það við ferming-
arundirbúning barna við hliðina á
hinum eldri lærdómsbókum.
Biskup haði ekki haldið neina yf-
irreið á næstliðnu sumri, en aftur
hefði hann, sem fulltrúi íslenzku
kirkjunnar tekið boöi norsku stjórn-
arinnar um hluttöku í hátíðahöldum
Norðmanna i Þrándheimi. En að
hálfu guðfræðideildar háskóla vors
hefði Ásmundur dósent Guðmunds-
son tekið þátt í þeim hátíðahöld-
um.
Að loknu máli bar biskup fram
venjulegar tillögur sínar um styrk
til uppgjafapresta og prestaekkna
og voru þær samþyktar umræðu-
laust (alls úthlutað kr. 8490,00).
Ennfremur gerði hann grein fyrir
hag prestsekknasjóðsins, sem við
síðustu áramót hefði verið orðinn
kr. 60,434,30.
Þá gerði Ásmundur dósent Guð-
mundsson grein fyrir starfsemi
harnaheimilisnefndar. Fjársöfnun
í þágu þeirrar starfsemi heföi num-
ið alls kr. 4,288. Höfðu gjafir
safnast úr öllum prófastsdæmum
landsins, en tiltölulega langmest úr
Rangárvalla-prófastsdæmi. Jörðin
Hverakot í Grímsnesi hefði verið
keypt og þar reist mikið og vandað
hús, sem gæti tekið 30 börn.
Ákveðið hefði verið að vinna að
stofnun dagheimilis fyrir börn á
Siglufirði og að styrkja stúlku það-
an til utanfarar til að kynnast
þessháttar liknarstarfsemi. Lagt
var fram á fundinum frumvarp til
laga um barnavernd, frá barna-
verndarnefnd, sem einnig hafði
samið frumvarp til laga um fávita-
hæli. Var nefnd kosin til að athuga
frumvörp þessi (en álit sitt lagði
itefndin fram á fundi Prestafélags-
ins á Laugarvatni). I umræðum,
sem urðu um þetta mál voru allir
sammála um að votta barnaheim-
ilisnefndinni þakkir fyrir ágætt
starf hennar, og þá sérstaklega
írummælanda, sem reynst hefði
mestur athafnamaður innan nefnd-
arinnar.
Loks las biskup upp bréf frá
Sjálandsbiskupi innihaldandi til-
mæli þess efnis, aö íslenzkir prest-
ar mintust frá prédikunarstól og í
kirkjubæn 1. sunnudag í september
þ. á. starfs þess, er nú væri unnið
í heiminum til eflingar friði með
þjóðunum, en sá sunnudagur væri
næsti sunnudagur á undan setningu
íriðarþingsins áformaða í Genf.
Var í einu hljóði samþykt að verða
við þeim tilmælum.
Kl. 8.30 flutti séra Friðrik Hall-
grímsson ágætt erindi í dómkirkj-
unni fyrir almenning um boðskap
kirkjunnar og starf.
Föstudag 19. júní klukkan 9 var
aftur gengið til fundar. Er sálm-
ur hafði verið sunginn og bæn flutt,
gerðu biskup grein fyrir messu-
flutningi og altarisgöngum á næst-
liðnu ári. Vegna þess, hve mörg
prestaköll stóðu óveitt, hefðu mess-
ur allsyfir orðið nokkuru færri en
árið áður, en þó svo að kobið hefðu
að meðaltali nærri því 40 messur á
hvern prest.
Af sömu ástæðu hefði fallið nið-
ur altarisgöngur i fleiri prestaköll- I
um en áður, og tala altarisgesta
því orðið nokkuru lægri en árið á
undan (alls 4957).
Þá skýrði biskup frá störfum
handbókarnefndar. Lét hann þess
getið, að hann teldi nefndina nú
hafa lokið þeim störfum, sem hún
hefði skift með sér, til undirbún-
ings nýrrar handbókar og bar fram
tillögu þess efnis, að tveim mönn-
um væri falið það starf, sem nú
væri óunnið, að samræma hinar
einstöku kirkjulegu athafnir o. s.
írv. og tilnefndi þá tvo: Sigurð
próf. Sívertsen og Ásm. dósent
Guðmundsson, í von um að styrkur
fengist af almannafé til þess að
launa það starf þeirra að einhverju
leyti. Urðu allmiklar umræður um
málið og lauk þvi með full sam-
þykki fundarmanna á tillögum for-
seta.
Þá hreyfði biskup nýmæli um
aldurstakmark til fermingar, svo að
mönnum yrði gert hægra fyrir en
áður með að fá Ófullaldra ung-
menni fermd og ekki þyrfti að ó-
náða biskup með undanþágubeiðn-
um, eins og nú ætti sér stað. Eftir
allmiklar umræður var borin fram
svohljóðandi tillaga:
“Preststefnan óskar að prestum
verði framvegis heimilt, án sérstaks
aldursleyfis frá biskupi, að ferma
börn, sem þeir telja fermingarhæf
að þroska og þekkingu, ef þau ná
14 ára aldri innan næstu áramóta.”
Var tillaga þessi samþykt í einu
hljóði og biskupi falið í nafni presta-
stefnunnar að greiða henni leið til
hlutaðeigandi stjórnarvalda.
Loks flutti Magnús prófessor
Jónsson ítarlegt erindi um viðtök-
ur kirkjulegu frumvarpanna á Al-
þingi og horfurnar á framgangi
þeirra. 'Var þá, er hann lauk máli
sínu, komið að borðhaldstima,’ og
því fundi slitið.
Kl. 4 síðdegis hófst fundur að
nýju. Samkvæmt dagskrá skyldi
þá erindi flutt um kirkjulegt líf í
Svíþjóð, en ræðumaður fékk sig
leystan frá flutningi sökum lasleika.
Var þá tekið fyrir næsta mál á
dagskrá: “Kirkjan og Útvarpið”.
Gerði séra Friðrik Hallgrímsson
sem er í útvarpsráði af kirkjunnar
hálfu, grein fyrir starfi útvarpsins,
að þvi er snertir hina andlegu
fræðslu og spunnust af því fjör-
miklar umræður, er héldust allan
fundartímann. Voru menn allir á
einu máli um gagnsemi útvarpsins
og flestir lýstu gjleði almennings
víðsvegar um land yfir guðsþjón-
ustunum, sem útvarpað væri. En
einnig heyrðust raddir um, að hætt-
ur gæti stafað af útvarpinu fyrir
kirkjuna, svo að yrði til þess að
draga úr kirkjurækni manna, auk
þess sem ekki væri alt jafn holl
fæða, sem bærist mönnum til eyrna
gegnum “gjallarhornið.” Því var
þó hréyft, af séra Gunnari Árna-
syni, að æskilegt væri að útvarpið
yrði að uppbyggilegri kveldhug-
vekju (10-15 mín.) all virka daga
vikunnar, aðra en laugardaga, og
tillaga borin fram þar að lútandi,
og var hún samþykt.— Að end-
ingu þakkaði biskup fyrir hönd
fundarmanna séra Friðriki Hall-
grímssyni starf hans í útvarpsráð-
inu.
Kl. 8.30 flutti séra Ásmundur
Guðmundsson ágætt og eftirtektar-
vert erindi fyrir almenning í dóm-
kirkjunni um kirkjuna og verka-
mannahreyfinguna.
Laugardagsmorgun 20. júní kl.
9 var aftur gengið til fundarhalds
og hófst fundur sem áður með
sálmasöng og bænarflutningi.
Biskup skýrði frá því hvað liði
sálmabókar-endurskoðuninni, sem
áformuð hefði verið, að nefnd hefði
enn ekki fengist sett til að vinna
það verk og þá ekki heldur loforð
fyrir neinu fé í því skyni, sem ó-
hjákvæmilegt skilyrði væri fyrir, að
koma sliku verki í framkvæmd.
Verk eins og endurskoðun sálma-
bókarinnar væri meira vandaverk en
svo, að hrapa mætti að því, yrði
vel að vanda það er lengi ætti að
standa. Hinsvegar taldi biskup
vandhæfi á því að fá endurskoðun-
arnefnd skipaða öðru eins mannvali
og nefnd sú* var skipuð, sem vann
að sálmabókinni frá 1886, og naum-
ast verið unnið svo að íslenzkum
sálmakveðskap síðan, að úr miklu
væri að velja. Hitt leiddi af sjálfu
sér, að senn 50 ára gömul sálma-
bók fullnægði ekki sem skyldi trú-
arþörf einstaklinga á vorum dög-
um, þótt hún þætti afbragð á sín-
um tíma og væri álitin það enn af
mörgum, bæði innan lands og utan.
Þess vegna yrði það að teljast tima-
bært mál að farið væri að vinna að
endurskoðun hennar eða safna til
viðbætis við hana, sem einatt væri
fyrsta sporið til gagngerðrar endur-
skoðunar. Umræður urðu ekki um
þetta mál.
Þá skýrði biskup frá tilhögun á-
formaðrar biskupsvígslu næsta dag
og þátttöku synoduspresta og ann-
ara andlegrar stéttar manna í þeirri
athöfn. Og vegna undirbúnings-
ins undir þá athöfn óskaði biskup
að prestastefnunni yrði lokið með
þessum fundi, enda væri dagskrá
ílokið ,'og fundarmenn hefði ekki
hreyft við neinum málum, sem þeir
óskuðu að hreyfa á prestastefnu
þessari.
Las forseti prestastefnunnar að
fundarlokum 23. sálm Davíðs, flutti
bæn og árnaði kirkju og þjóð allrar
blessunar. Var þá sungið versið
“Son guðs ertu með sanni” og þvi
næst prestastefnunni slitið.—Vísir.
EROS-MUSTERIÐl
Marlgar þjóðir hafa sérstakar
rannsóknarnefndir í Aþenuborg,
og eiga þær að reyna að uppgötva
sem flest viðvíkjandi fornöld
Grikkja. Ameríkumenn eru þar,
eins og víðar, fremstir í flokki,
því að þeir hafa nóg fé. Nýlega
var skotið saman sex og hálfri
miljón króna í Bandaríkjunum,
til þess að grafið yrði upp hið
gamla torg Aígora í Aþenuborg.
Nú er bygð á öllu því svæði, þar
I sem torgið var, og til þess að geta
grafið það upp, þarf að rífa nið-
ur 450 hús. Seinustu fregnir af
amerísku rannsóknarnefndinni
eru þær, að hún hafi fundið
musteri Eros. Vissu menn áður,
að slíkt musteri hafði verið í
Aþenuborg, en það var nú löngu
feleymt, hvar það hafði staðið. —
Lesb.
Kennari: Að hvaða gagni er
húðin á kúnni?
— Hún heldur kúnni saman.
Fjórðungsaldar afmœli
Þegar tekið er tiilit til þess,
hvílíkur aragrúi það er af félög-
um, sem stofnuð hafa verið með-
al Vestur-íslendinga og hversu
skammlíf þau flest hafa verið, þá
er óhætt að telja það merkisat-
burð í sölgu hverrar bygðar eða
hvers bæjar hér vestra, þegar
félag hefir lifað í fjórðung aldar.
Það var því ekki furða, þótt
Gimli væri í sparifötum sunnu-
daginn 19. júlí, enda væri synd að
segja, að svo hefði ekki verið.
Tilefni hátíðarinnar var það,
að ungtlingastúka Goo<Jtemplara-
félagsins hafði þá starfað stöð-
ugt í 25 ár. Undirbúningur hafði
verið hinn allra bezti; hátíðin
fór fram í skemtigarði bæjarins,
sem er “einn dýrðle'gi bletturinn,
sem drottinn hefir skapað”, eins
og Þorlákur biskup Bjarnarson
komst að orði um Borgarfjörð-
inn. Ræðupallurinn var allur
fagurlega skreyttur og alt í bezta
lagi. Brynjólfur Þorláksson
söngkennari hafði æft unglingo-
flokk frábærlega vel, eins og hans
er vandi.
Veður var hið ákjósenlegasta
o!g hátíðina sótti fjöldi fólks, bæði
úr heimahögum og annars staðar
að; sérstaklega var fjölment frá
Winnipeg, ekki einungis af Good-
templurum, heldur voru þar
margir aðrir.
Herra Gumfjlaugur Jóhanns-
son stýrði hátíðinni með fyndni
og skörugsskap; skýrði hann frá
ti'lefni hennar og las upp tvö
kvæði, sem ort höfðu verið; ann-
að eftir Oddnýju Helgason, hitt
eftir Sig. Júl. Jóhannesson. Guð-
jón Hjaítalín og S. B. Benedicts-
son lásu upp sitt kvæðið hvor,
sem þeir höfðu ort.
Ræður fluttu: G. M. Bjarnason,
um'boðsmaður .stúk. Skuld; A. S.
Bardal, stórtemplar; séra Rún-
ólfur Marteinsson, fyrv. stór-
templar, og Sig. Júl. Jóhannes-
son. Frú J. B. Skaptason flutti
einkar fagurt ávarp; hafði hún
gengist fyrir stofnun stúkunnar
fyrir aldarfjórðungi, og mintist
þess mjög fagurlega. Er von-
andi, að ávarp hennar birtist í
blöðunum; það er sannarlega
þess vert.
A. S. Bardal skemti með nýjum
hátíðasöngvum frá íslandi. Hafði
hann fyrir skömmu fengið send-
ar hljómplötur, er þeir voru,
sungnir á; var það hin ágætasta
skemtun.
Eins og fyr er ggtið, söng æfð-
ur unglinga söngflokkur undir
stjórn Brynjólfs Þoúláksonar.
Fyrir því getur enginn gert sér
grein, hversu mikið þjóðræknis-
starf og hversu fagurt verk það
er, sem hann leysir af hendi hq(r
vestra með söngkenslu sinni. Er
það illa farið, að þess skuli aldrei
hafa verið minst með einhverri
viðeigandi opinberri viðurkenn-
ingu. “En seinna koma sumir
dagar og koma þó,” segir mál-
tækið.
Skrautritað ávarp afhenti A.
S. Bardal stórtemplar Mrs.
Chiswell fyrir hönd stórstúkunn-
ar, til þess að votta henni þakk-
læti og viðurkenningu fyrir henn-
ar mikla starf og áhrifaríku við-
leitni í bindindismálinu yfirleitt
og sérstaklega sem forstöðukona
og verndari unglingastúkunnar.
Var ávarpið skrautritað af mikl-
um hagleik eftir Þ. Þ. Þorsteins-
son.
Mrs. Chiswell þakkaði með fá-
um en fögrum orðum og var
henni fagnað með dynjandi 'lófa-
klappi
Að líkindum birtist eitthvað af
kvæðunum, sem flutt voru, en
innihald úr ræðum er ekki hægt
að birta, þótt sumar þeirra sann-
arlega hefði átt það skilið. T. d.
var afar mikill fróðleikur í ræðu
A. S. Bardals — fróðleikur, sem
fleiyi ættu að vita en raun er á,
og eldurinn úr ræðu séra Rúnólfs
Marteinssonar, vildi eg óska að
væri lifandi sem víðast.
Yfir höfuð var hátíðin í fylsta
lagi ánægjuleg og Goodtemplur-
um til mikils sóma.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Þegar Amy Johnson kom heim
eftir hið fræga flug sitt til Ástr-
alíu, hafði hún engan stundlegan
frið fyrir blaðamönnum, sem
spurðu hana í þaula. Henni tókst
að svara öllum spurningum þeirra,
en spurningu/sem líti'l stúlka lagði
fyrir hana, gat hún ekki svarað:
Telpan spurði:
—iHvar ætlaði frænka að lenda,
ef jörðin hefði farist, meðan hún 1
var uppi í loftinu?
The Newest Shoes
For Town and Country
Midsummer styles-to accom-
pany sheer dark things. With
a swagger, sophisticated
smartness about them. Very
moderately priced, too!
VERY NEW
An open shank sandal of patent with a novel
cut out effect in front. An Advanced Mod-
ern—well lasted. At M $8.50
FOR SPORTS
A golf or country oxford of black and white
calf. It has a rubber sole, and leather heel
with a rubber lift. Tarsal support feature.
At N $7.50.
DRESSY
A new Young Modern of brown ltid, with
a laced-in inset of lighter brown on the
vamp and quarter. Spike heels. At O $6.00.
TAILORED
A simple opera pump of black with a tiny
piping of white to emphasize the join. A
Women’s Shoc Section, Second Floor, Hargrave. moderate spike heel. At P $8.50.
T. EATON C?
LIMITED
“SUCCESS”
TRAINING
IS
THOROUGH
TRAINING
WHO IS A GRADUATE OF THIS COLLEGE?
A graduate of our College is one who passes the required
examinations set by the Business Educators’ Association
of Canada. We do not set, nor do we examine, the final
examination papers of our students. The Business
Educators’ Association sets and examines all final examina-
tion papers of its membership, and approximately 22,000
examination papers were written by students of B. E. A.
Colleges in Canada during the year ending June 30, 1931.
OUR EXAMINATION SYSTEM
Students may write examinations on one or more subjects
at the end of any month in the year. When all the sub-
jects for any particular course are successfuMy passed the
student is then awarded the graduation diploma of the
Business Educators’ Association of Canada. Students
who fail on any subjects are permitted to re-write at the
end of any subsequent month, and many do so, even after
leaving College. Evening students have the same examina-
tion privileges as day students.
B. E. A. DIPLOMA COURSES
1. STENOGIiAPHY (Partial) A :
Shorthand, T.viH-uTÍting, Correspondenoc, Spelling, Pen-
manship, Office Practice.
2. STENOGRAPHY (Partinl) B :
Shorthand, Typewrltlng, Correspondence, Spelling, Pen-
niansliip, Comptometer, Dictaphone, Office Practice.
3. STENOGRAPIIY (Complele) G:
Bookkeeping, Rapid Calculation, Shorthand, Typewriting,
Correspondence, Spelling, Penmanship, Office Practice.
4. STENOGRAPHY (Complete) D:
Bookkeeping. Kapid Calculation, Shorthand, Typewriting,
Correspondence, Spelling, Penmanship, Comptometer, Dic-
taphone, Office Pi-actice.
5. COMPLETE OFFICE TRAINING COURSE:
Bookkeeping. Accountancy, Actual Business, Commercial
Arithmetic, Rapid Calculat.ion, Commercial Iaw, Corres-
pondenee. S|H-lling. Pennvtnship, Shorthand, Typewritlng,
Office Practice. (Comptometer and Dictaphone—optional).
6. SECRETARIAL:
Shorthand, Typewriting, Business Detter Writing, Account-
ancy, Spelling. Writing, Buslness Research, Rapid Calcu-
lation, Secretarial Science. Aritlimetic, Business Organiza-
tion and Administration, Hkxmomlcs, Money and Banking,
Commercial I .a w. (Optional Subjectst Comptometer,
Machine Aecounting, Stenotypy, Dictaphone).
Tliis is tlie only complete Secretarlal Course available tn
Western Canada. and has been authorized by the Business
Educators’ Association of Canada. Some courses which
are advertised as “Secretariai” are merely Stenography
courses. The B. E. A. Secretarial Course has wonderful
possibilities for students with tirade XI. or higher educa-
tion. ,
7. COMMERCIAL ACCOUNTANCY COURSE:
Bookkeeping, Acoountancy, Arithmetic, Rapid Calculation,
Business Law, Correspondence, Penmanship, Spelling.
Optional Subjects: Typevvriting, Comptometer).
8. BUSINESS ADMINISTRATION COURSE:
The first section of this course embraces aU the work cov-
ered in Course No. 7 (Oommereial Aocountancy). The
second section includes Business Management and Organi-
/ation, Advanced Accountancy, Economics, Auditing, Money
and Banking, Salesnmnsliip, Oomnioreial Geography, Of-
fice Management.
9. COMPTOMETER AND TYPEWRITING:
Comptometer, Typewriting, Rapid Calculation, Offioe Frac-
tloe.
10. SPEED COURSE:
Typewriting and Shorthand
This course is planned with a view to tmproving the
theory and speed of Isaac Pitman and Gregg writers, who
through inaccurate theory training, or insufficient practice
in dictation are unable to measure up to employment re-
ttuirements. Those who desire to write for the B. E. A.
Diplomn may do so by sitting for an examination in Spell-
ing, Correspondence, Penmanship, Shorthand and Type-
writing.
11. SHORTHAND, TYPEWRITING AND BOOKKEEP-
ING:
These three subjects may be studied separately, in groups
of two, or all together, to suit the preferenoe of the
stndent.
SELECT YOUR OWN SUBJECTS
While one of our regular courses more efficiently qualifies
a student for responsible and remunerative employment,
those who desire may select any subject or any group of
subjects. Our system of individual instruction encourages
rapid and accurate advancement, and permits each student
to make the best posssible use of his time.
LEADING IN RESULTS OF CIVIL SERVICE
EXAMINATIONS
During the year 1930-31 a check of the names of the suc-
cessful candidates for the Civil Service Examinations of the
Province of Manitoba (Stenography) has revealed that the
large majority of passes were made by graduates of the
Success Business College. It pays to be thorough, and it
pays to attend a thorough College.
LEADING IN RESULTS OF C. A. EXAMINATIONS
Examination results of the Intermediate and Final papers
set by the University of Manitoba and the Institute of Char-
tered Accountants of Manitoba show that since 1928 the
Success School of Accountancy of Winnipeg has had a
higher percentage of passes among its students than was
obtained by any other Accountancy School in Manitoba.
For two years in succession the “Intermediate” C. A. Med-
alist was a “Success” candidate.
Individual Instruction in
Day and Evening Classes
Enroll At Any Time
Our office is open every business day from 9 a.m. to 6 p.m.,
and on Monday and Thursday evenings from 7 o’clock to
10 o’clock. Those desiring to enroll are requested to
telephone or call for an interview.
PHONE 25 843
THE
Business College
PORTAGE AVE. AT EDMONTON ST.
Phone 25 843