Lögberg - 06.08.1931, Síða 8

Lögberg - 06.08.1931, Síða 8
Bls. 8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 6. ÁGÚST 1931. RobmfHood FLOUR Gerir betra brauð, kökur og kryddbrauð Fjögra herber'gja íbúð fæst ti'l leigu nú þegar að 278 Simcoe Street hér í borginni; íbúðinni fylgir kola- og gas-eldavél. Afar- sanngjörn leiga. Sími 31 845. Undirskrifuð vill fá vist á heim- ili, þar sem er húsmóðir, en ekkí mörg lítil börn. Er tilbúin að fara í vistina 13. þ.m. — Mrs. J. Einarson, Lundar, Man. * Ur bœnum Mr. Egill Egilsson frá Brandon og synir hans tveir, voru staddir í borginni á laugardaginn. Guðsþjónustur við Church- bridge: í kirkju Konkordía- safn. sd. 9. ágúst; í kirkju Lög- bergs-safn. þ. 16. s. m. S.S.C. Tveir af nemendum Jóhannesar Pálssonar að Árborg, Man., tóku próf hjá Toronto Conservatory of Music, og hlutu mörk, sem fylg- ir: Juliana J. Thorsteinsson, að Geysir P.O., Introductory Violin, honors, 76 stig; Ingvar S. Guð- mundsson, Árborg (P. O., Intro- ductory Violin, honors, 76 stig. Mr. Jónas Jónasson, áður eig- andi að Oak Dairy, er fluttur til 663 Pacific Ave. Sími 51241. Dr. A. V. Johnson, tannlæknir, verður í Riverton á þriðjudaginn, hinn 11. þ. m. Mr. Sigfús Halldórs frá Höfn- um, gagnfræðaskólastjóri á Ak- ureyri, lagði af stað heimleiðis á þriðjudaginn í þessari viku. Messur í prestakalli séra Sig. Olafssonar fyrir ágústmánuð: — Sunnud. 9. ág.: Hnausa kl. árd., Riverton kl. 2 e. h., Geysir kl. 8.30 síðd. — Sd. 16. ág.: Sylvan kl. 11 árd., Árborg kl. 2 e. h.. — Sd. 23. á!g.: Framnes kl. 11 árd., Geysir kl. 2 e. h., Riverton kl. 8 síðd. — Sd. 30. ág.: Árborg kl. 2 e. h. og Víðir kl. 8.30 síðd. Mr. og Mrs. Jón Finnbogason komu heim til borgarinnar hinn 25. júlí, eftir þrig*gja vikna dvöl í íslenzku bygðinni í North Da- kota. Voru þa« hjón aðallega hjá Mr. Thorláki Björnssyni og sonum hans að Hensetl og Mr. og Mrs. A. F. Björnson, Mountain, en komu þó til margra annara. Framúrskarandi góðum viðtökum segjast þau hafa mætt þar suður frá og 'biðja Lögberg að flytja íslendinlgum í North Dakota kæra kveðjú sína og alúðar-kakkir fyr- ir viðtökurnar. Búnaðarfélagið í Árborfe’, Man., ætlar að halda sýningu á lömbum (Fat Lamb Fair)i þar í bænum, á mánudaginn hinn 10. þ. m. Guðsþjónustur verða haldnar í kirkjunni að 603 Alverstone St., sem hér se!gir:— Fimtudaginn, kl. 8 e.h.: bæn og biblíulestur. Sunnudaginn 9. ág., kl. 3 e. h., ensk messa, ræðumað- ur: öldungurinn erkibiskup Phair; kl. 7 að kveldinu á ísilenzku. — í næstu tvær vikur: á mánudög- um, þriðjudögum og fimtudögum hafa þau Mr. og Mrs. Phair bib- líukenslu kl. 8 að kveldi. Mr. og Mrs. Phair eru hámentuð hjón og vel að sér í ritningunni. —Allir velkomnir. Virðingarfylst, P. Johnson. Mrs. B. Freemanson, og dóttir hennar, Mrs. Fenton, frá Struth- ers, Ohio, voru staddar í borginni um he’gina. Séra Jóhann Bjarnason messar væntanlega næsta .sunnudag, !þ. 9. ágúst, á þeim stöðum í Gimli- prestakalli, sem hér segir: í gam- almenna heimilinu Betel kl. 9.30 f.h. í kirkju Viðinessafnaðar kl. 2 e. h. og í kirkju Gimli safnaðar kl. 7 e. h. Óskað er eftir, að fólk veiti þessu athygli og fjölmenni við messurnar. Á laugardaJgskvöldið kemur, frá k'lukkan níu til hálf-tíu, verð- ur víðvarpað íslenzkum hljóm- plötusöngvum, sumum þeim feg- urstu, er sungnir voru í sambandl við Alþingishátíðina í fyrra. Er það velvild CKY félagsins að þakka, að þetta verður kleift. Mr. A. S. Bardal á hljómplötur þessar og á hann sinn góða þátt í þessari ráð- stöfun. Margir íslendingar eiga nú víðvarpstæki, og er þess að vænta, að þeir noti sér þetta tækifæri, til þess að hlýða á hinn undur-fa&ra söng. Frá íslendingadagsnefndinni Vegna rigningar laugardaginn 1. ágúst, fórst íslendingadagshaldið fyrir í Winnipeg þann dag. Nefndin afréð að fresta degin- um til laugardags 8. ágúst. Fer þá fram í River Park það prógram, er áður hefir verið aug- lýst, að undanteknu því, að Dr. Sig. Júl. Jóhannesson flytur minni íslands í stað Dr. Jóns S, Árna- sonar frá íSeattle, .sem sökum ferða- áætlunar sinnar og annna heima fyrir, er gerðu honum ókleift að bíða; einnig fellur úr minni Vest- ur-íslendinga, er séra Fr. A. Frið- riksson frá Blaine ætlaði að flytja, en sem eigi gat heldur beðið, því þeir félagar að vestan voru sam- bílis. Einnig fellur úr fram- sögn frú önnu S. Árnason. Dr. J. T. Thorson flytur minni Canada á íslenzku. Nefndin hefir reynt að undir- búa prógram dalgsins eins vel og kostur er á, og er það nú undir íslenzikum almenningi komið, hvort dagurinn hepnast eða ekki. Verði veður óhagstætt fer prógramið fram í hinum stora dans- og samkomusal í River Park. Dans að kveldinu í Good Templ- ars’ Hall. Aðgengur 25c. Mr. Thorbergur Eiríksson frá Lundar, Man., og Miss ólafía Jó- hanna Goodman frá Narrows, voru gefin saman í hjónaband hinn 29. júlí síðastl. Dr. Björn B. Jónsson gifti og fór hjónavígs-1 an fram að heimili hans, 774 Victor St. hér í morginni. Mr. Jóhann Friðriksson, guð- fræðanemi, kom til borgarinnar á þriðjudaginn. Síðastliðinn mán- uð ,var hann út við Manitobava<tn og prédikaði þar á tveimur stöð- um hvern sunnudag. Mr. Frið- riksson er nú á leið til Langruth og býst við að verða þar þriggjí vikna tíma. Dr. Jón Árnason frá Seattle, o!g séra Fr. Friðriksson frá Blaine, Wash., komu til borgarinnar á föstudaginn í/ síðustu viku. Með þeim voru frúr þeirra og börn; komu í stórum bíl alla leið. Bæði Dr. Árnason og séra Friðrik ætl- uðu að flytja ræður á íslendinga- daginn í River Park, á 'laugardag- inn, en af því hátíðarhaldi varð ekkert, í það sinn, vegna rign- ingar. Þetta larigferðafólk lagði af stað heimleiðis á miðvikudag- inn. ÍSLENDINGADAGURINN (WINNIPEG) Laugardaginn 8. ágúst 1931 RIVER PARK Forseti dagsins: SÉRA RÚNÓLFUR MARTEINSSON Ræðurnar byrja kl. 3 e.m. O, CANADA. Ó, GUÐ VORS LANDS. 1. Ávarp forseta, séra Rún. Marteinsson. Fjallkonunni fagnað. Fósturlandsins freyja — Karlakór. EE 2 Ávarp Fjallkonunnar: SS frú Sigríður Björnson 3. Minni íslands— = Raeða: Dr. Sig Júl. Jóhannesson. Kvæði: séra Jóhann P. Sólmundsson Söngur: Karlakór. = 4. Ávörp frá tignum gestum. = 5. Minni Canada— Ræða: Dr. Joseph Thorson. Kvæði: Þ. Þ. Þorsteinsson. = Söngur: Karlakór. ELDGAMLA ÍSAFOLD. GOD SAVE THE KING. IÞRÓTTIR Þann 27. júlí s.l. andaðist á heimili sonar síns, J. B. Vopna í Kandahair, Sask., öldungurinn Guðjón J. Vopni, tæpra 84 ára; hann var blindur og rúmfastur síðustu tíu ár. Foreldrar hans voru: Jón Jónsson og Björg Guð- laugsdóttir, sem bjufegu á Ás- brandastöðum í Vopnafirði. Eft* irlifandi kona hans er Guðríður Sigurðardóttir frá Krossavík í Vopnafirði. Þau komu til þessa lands árið 1889, bjuggu ellefu ár í Argyle-bygð, Man., og átján ár bjuggu þau hjá Tantal'lon, Sask. og síðustu þrettán árin í Kanda- har, Sask. Fyrsti þáttur íþróttanna byrjar kl. 10.30 f. m., með kapphlaupum fyrir börn og unglinga. Verðlaun gefin. Kl. 12 á hádegi byrjar seinni hluti íþróttanna í 14 liðum og verður þar fylgt reglum Amateur Athletic Union of Canada. íslenzk glíma strax að afstöðnum ræðu- höldum Kept verður um gull, silfur og bronze medalíur, silfur bikar og belti. f íþróttir allar fara fram undir stjórn þeirra Mr. G. S. Thorvaldsson og Mr. Bjöms Péturssona.r Kl. 8.30 að kveldinu byrjar dans í G. T. húsinu á horni Sargent og McGee stræta; Orchestra frá Gimli spilar fyrir dans- inum. Gömul og ný danslög. Aðgangur að dansinum 25 cents. Verðlauna-valz aðeins fyrir tslendinga, fer fram kl. 10 e. m. Tvenn verðlaun gefin fyrir bezt dansaðan “Round Waltz”. Gnægðir af heitu vatni verða á staðn- um fyrir fólk, til kaffigerðar. Inngangur í garðinn, hvenær sem menn koma, að deginum, er 25 cents fyrir full- orðna, en 15 cents fyrir börn yngri en 12 ára. lir Alþingi sett Reykjavík, 16. júlí 1931. Klukkan 1 í gærdag, höfðu þing- menn safnast saman í anddyri Al- þingishússins o!g gengu svo þaðan í fylkingu til kirkju — allir nema jafnaðarmenn. Þeir voru kyrrir í þinghúsinu meðan á guðsþjónustu stóð. Séra Sveinbjörn Högnason pré- dikaði. Hann lagði út af orðum Páls postula í 2. bréfinu til Kor- intumanna. Að aflokinni guðsþjónustu gengu þin!gmenn til fundar i Neðri deild- ar sal Alþingis. Þar las forsætis- ráðherra upp hin venjulegu kon- ungsbréf um, að A'lþingi væri stefnt saman, og lýsti yfir að þingið væri sett. Þá bað forsætisráðherra ald- ur.sforseta, Svein óilafsson í Firði, að taka sæti í forsetastól og stýra fundi unz lokið væri kosnin!g forseta. Var þá gengið til kosninga í sameinuðu þingi. Var fyrst kosinn forseti s.þ. Kosningu hlaut Ás- geir Ásgeirsson með 23 atkv,; Jón Þorláksson hlaut 15 atkv. og Jón Baldvinsson 4. Varaforseti S.þ. var kosinn Þor- leifur Jónsson í Hólum með 23 atkv.; Magn. Guðmundsson hlaut 14 atkv., en 5 seðlar voru auðir. Skrifarar í S.þ. ýoru kosnir með hlutfallskosnin'gu þeir Ingólfur Bjarnarson og Jón A. Jónsson. Kosnir voru til Efri deildar, með hlutbundnum kosningum: Halldór Steinsson, Bjarni Snæ- björnsson, Jakob Mðller, Einar Árnason, Guðmundur ólafsson, Ingvar Pálmason, IP’áll Hermanns- son og Magnús Torfason. Sósíalistar tóku ekki þátt í þessum kosningum. Kosning embættismanna deilda. Efri deild: Forseti var kosinn Guðm. ól- afsson með 7 atkv., Jón Þorláks- son fékk ( atkv.. Auður 1 seðill. 1. varaforseti var kosinn Ingvar Pálmason með 7 atkv.; Guðrún Lárusdóttir fékk 5 atkv. Auðir tveir seðlar. 2. varaforseti kosinn Páll Her- mannsson. Skrifarar voru kosnir: Pétur Matrnússon o!g Jón Jónson. Neðri deild: Forseti var kosinn Jörundur Brvnjólfsson. 1. varaforseti Ingólfur Bjarn- arson. 2. varaforseti Halldór Stefáns- son. Skrifarar voru kosnir: Magnús Jónssjon og Bernh. Stefansson. —MgM. — Ósköp ertu vesaldarlegur. —Mig dreymdi óttalegan draum í nótt. Mig dreymdi það, að öll þau dýr, sem eg hefi skotið um æfina, stóðu umhverfis rúmið mitt. — Hvernig gaztu orðið hrædd- ur við nokkra kjúklinga? — Pabbi, var rauða blekið. sem þú kevptir í gær, mjög dýrt? — Nei, því snyrðu að því? — Jú. ég helti því óvart nlður á teppið í stássstofunni. — Er það ekki leiðinlegt, að vera rukkari? Allir biðja yður náttúrlega að fara ti'l fjandans. — Nei, nei — allir biðja mig um það að koma aftur. VEIKUR MAGI GERÐUR HRAUSTUR Ef þú hefir litla matarlyst, og ef Það sem þú, borðar meltist illa og þér líður illa og þér verður ilt af því, þá reyndu Nuga-Tone bara fáeina daga og findu þann mikla mismun sem verður á hellsu þinni. Nuga-Tone bætir matarlystina og gerir meltingurta auðvelda. Nuga- Tone hreinsar eitur-gerla úr llkaman- um, iæknar nýrna og blöðru sjúkdóma og hægðaleysi og styVkir taugarnar og vöðvana og öll líffærin. Nuga-Tone fæst hjá lyfsölum. Hafi lyfsalinn það ekki við hendina, þá láttu hann útvega það frá heildsöluhúsinu. Silíurbrúðkaup Mr. og Mrs. S. Núpdal og Mr. og Mrs. P. Tómasson, 28. júlí 1931. Við drekkum engin Fróðafull, og fóstrum enga Sögu. Við sjáum aldrei glanslegt gull, en gjörum stundum bögu. Við eigum bara lítið ljós, á litlum silfur-stjaka. Við sjáum lífsins ljúfu rós, og langar til að vaka. Við elskum það sem fagurt finst, og fríð er kærleiks rósin; við þekkjum hana’ í öllu inst, með ótal fögru ljósin. Við finnum hana anda á æð og önn af náttúrunni. Við sjáum hana á silfurhæð, í samfélagsins runni. Við sjáum hana’ í sumarblæ, á sólarkyngis vörum, . við heyrum hana á barna bæ í blíðrar móður vörum. Við þráum hennar þýðu sól á þroskans mær og sonu. Við sjáum hana’ á silfurstól í-sambúð manns og konu. II. Og þegar giftist Guðný ung, hún gaf sig ekki Njáli, hún var og er og verður þung á vigtinni hjá Páli, því fegri enga sér hann sól, né sælli nýtur blíðu; en það hafa fleiri hlotið skjól af hennar rausn og þýðu. Þá dagskrá vantar fjölbreytt föng, í frjálsu gleðimáli, og ríður mjög á réttum söng, þá ráðast menn að Páli. Þá grúfir regn og gumar sjá, að gott er að vera þresktur, það er sem augun opnist þá, og okkar Páll sé ‘beztur. Þá skúr og hiti skrýða mörk og skeinur kuldans sjatna, hún Stebba er eins og stássleg björk hjá straumi tærra vatna. En þegar sárin svella myrk og sorgin býr á hvörmum, þá lætur henni’ að dána styrk af ljúfum kærleiks örmum. Þó elli vinni mönnum mein og mæði fyr en varði, hún iðni tekur stóran stein af Stefáns gönguskarði, svo komist geti hann krókalaust á kýfðan auðnuvelginn. því enn er Núpdals höndin hraust og hugur framtaks megin. III. Nú hef ég sýnt og sannað drótt, að silfur er í þeim öllum, með sigurbros og sálarþrótt, á silfurbrúðkaups pöllum. Ó, góði faðir, gefðu þeim það gull, sem bryddir ljósin, þá olíu, sem endist heim, svo eflist kærleiks rósin. Svo lifið öil í ljúfum draum á ljóss og gæfu völlum, við silfurtæran sælustraum frá sálarlífsins fjöllum. Og munið þann, sem mestur bjó hjá mönnum heims og konum, sem björtu ljósi’ á lífið sló og leiðist öll af honum. Fr. Guðmundsson. — Æ, herra lögregluþjónn, það er innbrotsþjófur hjá okkur og konan mín hefir náð í hann. Vilj- ið þér ekki koma og reyna að bjarga honum? Minni kvenfélagsins “Frækorn” Flutt á 25 ára afir.æli þess, 25. maí 1931. Bezt í lífsins stormi stríðum stælist þjóð mín fríð hennar !gildi’ í heimi víðum hækkar alla tíð. Ættaralaukar lands við trygðir lifi’ og þrokist hér; hver sem eftir dáð og dygðir dýran ávöxt sér. Mestu konur minnar þjóðar manndóm hlutu’ í arf; offra lífi frjálsar, fróðar fyrir göfugt starf; braut til sigurs röskar ryðja, ráðum fylgir dáð, þar sem heilla-hendur styðja, hæsta marki er náð. Konur líkna úti og inni æ hvar mest er þörf. Æðstu þökkum aldrei linni, ykkar fyrir störf. Kærleiks hót og hendur snjallar helga þenna da!g, Blessi Guð um aldir allar íslenzkt kvenfélag. V. J. Guttormsson. Hún: Hér sé ég í blaðinu, að þeir í Ástralíu hafa stundum J skifti á konunni sinni o!g hesti. i Aldrei mundi þér koma það til | hugar. Hann: Auðvitað ekki — en j ég vildi ekki að mín yrði freist-; að með fállegum bíl. VOR HEIT VÉR VILJUM HALDA. Lág: Táp og fjör . . . Það er satt: í lofti lág , llítilsigld og enn þá smá erum við; en verðum senn vaxnar konur, stórir menn. Komi því kynslóð ný, kröftum skili þangað til landið okkar alt er “þurt”, eitur keldum ræst á burt. Eitt er víst, og það er það: þungum kletti velt úr stað getur orka ungmenna, ef þau verða samtaka. Komi því kynslóð ný, kröftum skili þangað til iandið okkar alt er “þurt”, eitur keldum ræst á burt. Þú, sem lengi lítinn her leiddir öruígg, heill sé þér. Haldi allir heitin sín, hlotnast beztu launin þín. Komi því kynslóð ný, kröftum skili aþngað til landið okkar alt er “þurt”, eitur keldum ræst á burt. Sig. Júl. Jóhannesson. Skrif.stofustjóri: Hver er það, sem öskrar svona þarna á innri skrifstofunni? — Það er Nielsen —• hann er að tala við Gautaborg. — Farið þér inn til hans og seg- ið honum að nota tálsímann. Practice límited to: EYE, EAR, NOSE & THROAT Office Hours: 11—1 and 2—5 Beglnning Sept. lst. Dr. H. FREDERICK THORLAKSON 522 Cobb Bldg. Seattle, Wash. Telephone: Main 3853 ZAM-BUK iæknar verki, bólgu, blóðrás af HÆMORRHOIDS (Piles) Ointment 50c Medicinal Soap 25c CARL THORLAKSON úrsmiður 027 Sargent Ave., Winnipeg Sími: 27 117. Heima 24 141 Dr. T. Greenberg Dentist Hours 10 a.m. to 9 p.m. PHONES: Office 36 196 Res. 51 455 Ste. 4 Norman Apts. 814 Sargent Ave., Winnipeg Jakob F. Bjarnason TRANSFER Annasrt greirtlega um alt, sem að flutningum lýtur, smáum eða stðr- um. Hvergi sanngjamara verð. Heimili: 762 VICTOR STREET Slml: 24 500 íslenska matsöluhúsið par sem íslendingar í Winnipeg og utanbæjarmenn fá sér máltíðir og kaffi. Pönnukökur, skyr, hangikjö* og rúllupylsa á takteinum. WEVEL CAFE 692 SARGENT AVE. Slmi: 37 464 RANNVEIG JOHNSTON, eigandi. VEITIÐ ATHYGLI! Eg undirrituð hefi nú opnað BEAUTY PARL0R í Mundy’s Barber Shop, Portage Ave., næst við McCullough’s Drug Store, Cor. Sherbrooke and Portage Ave. Heimasími: 38 005 Mrs. S. C. THORSTEINSON 100 herbergi, meö eða án baðs. Sanngjarnt verð. SEYM0UR H0TEL Siml: 2$ 411 Björt og rúmgðð setustofa. Market og King Street. C'. G. HUTCHISON, eigandl Winnipeg, Manitoba. HOTEL C0R0NA Cor. Main St. and Notre Dame. (Austan við Main) Phone: 22 935 GORDON MURPHY, Mgr. Þar sem íslendingar mætast. J. S. McDiarmid Chas. McDiarmid McDIARMID BROTHERS LIMITED SASH, DOORS and MILLWORK LUMBER Phone 44 584 600 Pemjoina Highway Winnipeg, Man. SIGURDSSON, THORVALDSON COMPANY, UMITED General Merchants Utsölumenn fyrir Imperial Oil, Limited Royalite Coal Oil, Premier Gasoline, Tractor and Lubricating Oils ARBORG PHone I RIVERTON Phone I MANIT0BA, CANADA HNAUSA Phone 5 1 — ring 1 4 Lipur afgreiðsla og vörugœði einkenna verksmiðju vora. Stæráta brauðgerðahús í Canada. Vér sendum vöruna heim til yðar hvernig sem viðrar. 1 00 umboðssalar í þjónuátu vorri. Canada Bread Company, Limited Portage Ave. and Burnell St. Phone 39 017-33 004 FRANK HANNIBAL, framkvæmdarstjóri

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.