Lögberg - 17.09.1931, Page 2

Lögberg - 17.09.1931, Page 2
Bls. 2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 17. SEPTEMBER 1931 Fertugaáta og sjöunda ársjDing * Hins evangeliska lúterska kirkjufélags Islendinga í Vesturheimi Haldið að Garðar og Akra, N. Dak., dagana 25. til 27. Júní 1931 (Framh.) Þá lá fyrir á ný fyrsta mál á dagskrá: Heimatrúboð. I sambandi við það málefni lagði séra S. S. Christopher- son fram þessa skýrslu: Skýrsla ntn trúboðsstarfsemi Með því eg hefi nokkurn tíma afgangs frá starfi mínu hjá Konkordía og Lögbergs söfnuðum, hefi eg gert nokkrar fer'Sir þang- að, sem er engin stöSug prestþjónusta. Vil eg til frekari skýringar geta um þaS helzta. Þann 10. ágúst síðastliSinn fór eg suður til íslendinga viS Tan- tallon og Yarbo, og messaSi þar á tveim stöSum. Líka fór eg þangaS þ. 8. mai til aS syngja yfir. SkýrSi eg þar nokkur börn í fyrri ferS- inni. Býst eg ViS aS fara þangaS eftir kirkjuþingiS. BygSirnar eru aSallega tvær á því.svæSi, og hafa þær gengiS mikiS úr sér, aS því er fólksfjölda snertir. Eg fór til íslendinganna viS Beckville í Manitoba, og var þar um nokkurn tima til aS búa börn undir fermingu og staSfesti þau í Smalley skóla þ. 15. marz. Fór guSsþjónustan aS nokkru leyti fram á íslenzku og aS nokkru leyti fram á ensku, vegna þess aS margt enskt fólk byggir svæSi þetta, sem ekki nýtur stöSugrar prest- þjónustu. Var þaS ánægjuleg stund fyrir alla. Þá hefi eg gert nokkrar ferSir meS járnlbrautinni, vestur frá Bredenbury. Fór eg til Leslie þrjár ferSir, til aS syngja yfir; flutti eg líka guSsþjónustu á einni ferSinni. Líka fór eg til Mozart til aS syngja yfir þ. 10. april. Til Foam Lake fór eg og messaSi þar milli jóla og nýárs. Þá fór eg til Argyle-bygSar til aS syngja yfir þ. 28. janúar síSastliSinn. Haust og vetrar-mánuSirnir eru aSallega fritimi minn frá söfn- uSum mínum; á eg því hægt meS og er fús til aS vinna aS trúboSs- störfum út í frá um þann tíma. Á kirkjuþingi aS GarSar, 26. júní, 1931. Sig. S. Christopherson. Þá er séra Sigurður hafði lesið skýrslu sína, var sam- þykt að slíta fundi. Var sunginn sálmurinn nr. 240 og fundi síðan slitið. Næsti fundur ákveðinn kl. 8 e. h. sama dag. SJÖTTI FUNDUR — kl. 8 e. h. sama dag. Fundurinn hófst með bæhargjörð, er séra Sigurður S. Christopherson stýrði. Dr. Björn B. Jónsson flutti fyrirlest- ur, er hann nefndi: “Þörfin að afkvista”. — Var honum, að erindi því loknu, greitt þakklætisatkvæði með því að allir stóðu á fætur, samkvæmt tillögu séra H. Sigmar. Um fyrir- lesturinn, eða sumt í honum, urðu talsv’erðar umræður, er stóðu yfir þar til kl. 10 e. h. Var þá samþykt að slíta fundi. Sunginn var sálmurinn 245, hinni postullegu blessan lýst af forseta, og var síðan fundi slitið. Næsti fundur ákveðinn kl. 9 f. h. næsta dag, í kirkju Vídalínssafnaðar. SJÖUNDI FUNDNR — í kirkju Vídalínssafnaðar, laug- arda'ginn þ. 27. júní, kl. 9.20 f. h. Fundurinn hófst með guðræknisstund, undir umsjón séra J. A. Sigurðssonar. Flutti hann stutta prédikun um “þröng hlið og mjóa vegi”, út af þeim orðum í fjallræðu Jesú Krists, í Matteusar guðspjalli. Við nafnakall voru fjarverandi: Jóhannes Einarsson, A. Loptson og O. Gunnarsson, er komu þó á fund litlu síðar. Gjörðabók 4., 5. og 6. fundar lesin og staðfest. Skrifari las upp bréf frá Á. P. Jóhannssyni, Winnipeg, er verið hefir í skólaráði Jóns Bjarnasonar skóla í mörg ár, þess efnis, að hann sé ófáanlegur til að vera áfram í stjórnarnefnd skólans. Fyrir hönd fjármálanefndar la'gði J. J. Myres fram þessa skýrslu: Fjármálanefndin leyfir sér að leggja álit þetta fyrir hið hátt- virta þing: 1. Nefndiri~ leggur til að féhirðir, til þess að gera gagnrýning skýrslanna auðveldari í framtiðinni, setji í sérstaka dálka það sem inn kemur í Heimatrúboðssjóð á árinu þannig: að í einum dálki sé það sem inn kemur frá söfnuðum; í öðrum dálki það sem einstaklingar gefa; í þriðjja dálki gjafir frá félögum ýmsum; i fjórða dálki það sem kemur við ýmsar messur trúboðspresfs í sér- stökum söfnuðum og í fimta dálki það sem söfnuður geldur presti þeim vist kaup fyrir trúboðsstarf. 2. —l'Jtgáfumál. (a) Nefndin finnur til þess að fjárhagur Sameiningarinnar er í öngþveiti vegna þess að kaupendur borga ekki blaðið. Tap “Sam.” s. 1. ár var $261.00 og óborguð áskriftargjöld yfir fleiri ár nema nú $1850.00. Nefndin leggur til að þriggja manna nefnd sé kosin til þess að aðstoða ráðsmann Sameiningarinnar við innheimtu áskriftargjalds og söfnun auglýsinga. (b) Nefndin leggur til að framkvæmdarnefnd kirkjufélagsins sé falið að annast um útgáfu Gjörðabókar eins og á undanförnum árum. 3. —Heimatrúboðsmál. * (a) Nefndin lítur svo á, að eins og nú standa sakir verði kirkjufélágið að sameina sem mest krafta sína um kristilega starf- semi á þeim víðtæku svæðum innan vébanda þess þar sem nú er lítil eða engin kirkjuleg starfsemi þvi það liggur í augum uppi að öll framtíð kirkjufélagsins er í voða nema bráð bót sé ráðin við þessu ástandi. Skýrslur bera með sér að af 54 söfnuðum kirkjufélagsins séu nær 20 án fastrar prestsþjónustu. Nefndin vekur athygli á því að sem stendur er ekkert fé til í Heimatrúboðssjóði; aftur á móti skuldar sjóðurinn Hallgrímssöfnuði $400.00 samkvæmt ioforði á kirkju- þingi í fyrra; ennfremur $200.00 sem stjórnarnefnd kirkjufélagsins hefir lieitið Gimli prestakalli og sem fjármálanefndin leggur eiridregið til að þingið samþykki. Er því nú sem stendur $600.00 skuld á Heima- trúboðssjóðnum. Það dylst því engum að kirkjufélagið verður að biðja söfnuði sína um meira fé á þessu ári en að undanförnu og leggur því nefndin til að tekjur í Heimatrúboðssjóðinn verði áætlaðar $1800.00. (b) Því miður sér nefndin sér ekki fœrt að mæla með þvi að beiðni Hallgrímssafnaðar um $400.00 styrk á þessu ári sé veitt, auk þeirra $400.00 sem kirkjufélagið þegar skuldar söfnuðinum. 4. —Heiðingjatrúboð. Sem stendur eru um $600.00 í Heiðingjatrúboðssjóði. Vér leggj- um til að í hið minsta $600.00 sé safnað á árinu svo goldnir verði til Heiðingjatrúboðsstarfs $1200.00 eins og á undanförnum árum. 5. —Stofnanir kirkjufélagsins. (a) Að því er snertir stofnanirnar Betel og Jóns Bjarnasonar skóla lítur nefndin svo á að þingið eigi ekki að heimila fjárkvaðir á hendur söfnuðunum til þeirra þaj-fa, en að stjórnarnefndir þessara stofnana hafi fjárhaginn algerlega með höndum án þess að söfnuð- irnir séu þar í ábyrgð. (b) Hinsvegar leggur nefndin til að einstaklingar innan kirkju- félagsins styrki stofnanirnar með frjálsum framlögum, eftir því sem hver og einn lítur á gildi þeirra. J. J. Myres P. Bardal. E. H. Fáfnis Á3björn Sturlaugson Björn B. Jónsson. Sam þykt var, að skýrslan sé tekin fyrir lið fyrir lið. 1. liður ræddur nokkuð, þar til séra R. Marteinsson gerði þá tillögu, er studd var af mörgum, að þessum lið sé vísað til framkvæmdanefndar, og var það samþykt. 2. liður var ræddur all-mikið. Loks gerði séra R. Mar- teinsson þá tillögu, er séra N. S. Thorláksson studdi, að staf- lið A þessa liðs sé vísað til framkvæmdarnefndar. Var tillagan rædd um stund, en að lokum samþykt með 24 atkvæðum gegn 19. Var síðan stafliður B þessa Hðs samþyktur. 3. liður var ræddur nokkuð, þar til séra R. Marteinsson gerði þá tillögu, er P. S. Guðmundsson studdi, að þessi liður bíði skýrslu þingnefndar í heimatrúboðsmálinu, og var það . samþykt. 4. liður var sömuleiðis ræddur allmikið. Séra R. Mar- teinsson gerði þá tillögu, en Ásmundur Loptson studdi, að þessum lið sé frestað þar til skýrsla þingnefndar í heiðingja- trúboðsmálinu sé lögð fram, og var það samþykt. 5. liður ræddur lítið eitt. Séra R. Marteinsson gerði þá tillögu, er var studd af mörgum, að láta lið þenna bíða þar til nefndaálit, er snerta þessi efni, verða lögð fram. Var þetta samþykt. Þá var tekið fyrir á ný 4. mál á dagskrá: Betel. Fyrir hönd þingnefndar í því máli, lagði Jóhannes Ein- arsson fram þessa skýrslu: Betel nefnd Nefndin hefir lesið meö athygli og ánægju rækilega skýrslu stjórnarnefndar Betel. Skýrslan er all ítarleg og skýrir hvernig starf- ræksla hefir verið möguleg án þess að skerða innstæðu stofnunarinnar, sem aftur bendir á lofsverða ráðdeild. Nefndin leggut því til að þingið samþykki það, sem hér fylgir, án þess þó að fyrirbyggja við- auka, sem frekari umræður kunna að gera nauðsynlegar. 1. Að þakkað sé Guði fyrir náð og blessun þá er hvílir yfir heimilinu. 2. Að þakkað sé stjórnarnefnd heimilisins, ráðsmönnum og vinnufólki ágæta umönnun fyrir hag heimilisins og hlýa aðhjúkrun sem heimilisfólki er veitt. 3. AS þakkað sé öllum þeim sem með gjöfum og góðvild hafa styrkt þetta líknarstarf kirkju vorrar. 4. Að umsögn yfirskoðunarmanna um fjármálaskýrslu nefndar- innar sé samþykt. Á kirkjuþingi á Garðar, 26. júní, 1931. J. Einarsson Mrs. B. Kelly J. J. Erlendson Franklin Goodman V. Johnson. Klemens Jónasson lagði til og skrifari studdi, að skýrsl- - an sé samþykt í einu lagi. Var það samþykt. Þá lá fyrir á ný 2. mál á dagskrá: Heiðingjatrúboð. Fyrir hönd þingnefndar í þessu máli, lagði séra S. S. Christopherson fram þessa skýrslu: Heiðingjatrúboðið Nefndinni sem var falið að gera tillögur í kristniboðsmáli meðal heiðingja leyfir sér að leggja fram eftirfarandi tillögur: 1. Þingið vottar trúboða sínum, séra S. O. Thorlakssyni og konu hans innilegt þakklæti fyrir skýrslu þeirra utn trúboðsstarfið, og þá alúðarkveðju, er þau sendu, og árnar þeim blessunar Guðs í starfi þeirra. 2. Þingið þakkar séra N. S. Thorlakson greinar hans um trú- boðsstarf trúboða vorra og svæðið sem þau starfa á. Er það ósk þingsins að sem flestir riti um það mál í málgagni kirkjufélagsins. 3. Einhuga hvatning er gerð til presta, safnaða, sunnudagaskóla, kvenfélaga og einstaklinga, að gera sér Ijósa grein fyrir nauðsyn á trúboði meðal heiðingja, og sýna með glöggum ávöxtum kærleika sinn við starfið. 4. Þar er trúboðið ibyg|;ist á skýlausum fyrirmælum frelsara vors, álítur þingið það mikið vandamál að veita undanheldi í því máli og ákveður því að leggja fram $1200.00 til starfsins á þessu ári. 5. Þingið fagnar væntanlegri heimsókn trúboða sinna. Býður þá hjartanlega velkomna og hvetur söfnuði kirkjufélagsins að færa sér í nyt komu þeirra með því að fá þá til að heimsækja sig og fá sem bezta kynningu af trúboðsstarfinu. S. S. Christopherson Tryggvi Johnson Mrs. J. A. Jósefson B. T. Benson Dora Benson Samþykt var að taka skýrsluna fyrir lið fyrir lið. 1. liður samþyktur í e. hlj. — 2. liður sömuleiðis. — 3. liður sömuleiðis. — 4. liður sömuleiðis, og um leið var 4. liður í nefndaráliti fjármálanefndar, er hljóðar um sama efni, einnig samþyktur. — 5 liður samþyktur. — Var nefndarálitið síðan í heild sinni samþykt, og málið þar með afgreitt af þinginu. Dr. Björn B. Jónsson flutti þinginu hróðurkveðju frá séra J. J. Clemens, í Aurora, 111. Mintist hann á, að á þessu þingi væri 35 ára vígslu-afmæli séra Jóns. Væri hann nú, því miður, alvarle'ga bilaður á heilsu og hefði látið af embætti. Sagði hann, að séra Jón mintist nú, með þakklæti, bæði prestakallsins, er hann hafði þjónað, og kirkjufélagsins, er hafði vígt hann. — Lagði séra J. A. Sigurðsson til og séra R. Marteinsson studdi, að forseta og skrifara sé falið, að senda séra J. J. Clemens þakklæti, samúðarskeyti og bless- unaróskir þingsins, og var það samþykt í e. hlj. Var fundartími þá að verða á enda og vár fundi slitið kl. 12 á hádegi. Næsti fundur ákveðinn kl. 2 e. h. sama dag. ÁTTUNDI FUNDUR — kl. 2 e. h. sama dag. Tekið var fyrir á ný 5. mál á dagskrá: Sunnudagsskólamál. Fyrir hönd nefndarinnar í því máli lagði Stefán Hall- grímsson fram þessa skýrslu: bingnefndarálit í sunnudagaskóla málinu 1. Nefndin vill benda á þá afar brýnu nauösyn og skyldu, aö börn, sem á sunnudagaskóla ganga, séu undirbúin á heimilunum. 2. Nefndin álítur að sjálfsagt sé, að nota það tungumál sem að mestum og beztum notum kemur í skólanum, og að sunnudags- skólar séu hvattir til að hika ekki vi'ð, aö stofna alenskar deildir i sunnudagsskólum sínum, þar sem eru börn, sem ekki eru íslenzk, eða börn og ungmenni, sem ekki hafa fullkomið gagn af kenslu á íslenzku, og skal þar dómgreind umsjónarmanna og kennara ráða. 3. Nefndin álítur enga brýna þörf á að prenta íslenzkar sunnu- dagaskóla lexíur, eða “Ljósgeisla,” þar sem hægt er að fá slíkt á enskri tungu. 4. Nefndin vill allra vinsamlegast benda á það, að skylda hvílir á sunnudagsskóla kennurum, að brýna fyrir nemendum skólanna, að það sé sjálfsögð skylda þeirra, að leggja rækt við guðsþjónustur safn- aðarins. Á kirkjuþingi að Akra, N. D., þ. 27. júní, 1931. Jennie M. Frost ' S. J. Sigmar Stefán Hallgrímsson T. Anderson O. Anderson Eftir litlar umræður gerði Klemens Jónasson þá tillögu, er Mrs. J. A. Josephson studdi, að skýrslan sé samþykt í einni heild. Var það samþykt og málið þar með afgreitt af þing- inu. Þá lá fyrir 6. mál ^ dagskrá: Úngmennafélög. Séra E. H. Fáfnis, er mál þetta hafði verið falið á kirkju- þingi í fyrra, lagði fram þessa skýrslu: Skýrsla um ungmenna starf mitt á árinu Vísa eg fyrst til skýrslu skrifara sem sýnir að ungmenna félögum hefir fjölgað um þrjú og einnig tala meðlima hefir aukist meira en sem nemur meðlimatölu hinna þriggja nýstofnuðu félaga. Eg hefi ekki átt kost á að ferðast til hinna ýmsu safnaða þar sem engin ungmennafélög eru. Hefir starf mitt því verið aðeins í mínu prestakalli. Þar hefir starfið verið þannig: 1 Frelsissöfnuði var ungmennafélag stofnað í sumar er leið af ungum manni er Árni Sveinson heitir. Hann fékk styrk til þess hjá enskum manni þar í sveit. Síðan hefir félagið starfað reglulega, vaxið og telur nú milli 40 og 50 meðlimi. Félagið hefir styrkt pen- ingalega Children’s Welfare Society. 1 Fríkirkjusöfnuði hjálpaði eg til þess að stofna ungmennafélag í vetur. Tilheyra því nú milli 60 og 70 meðlimir. Félagið hefir pen- ingalega styrkt Heiðingjatrúboð vort. Bæði þessi félög hafa tekið að sér að vinna ýms verk fyrir söfn- uðina og þannig létta starf þeirra. En auk þess hafa félögin hjálpað til þess að færa sólskin inn í huga margra sem þurftu þess með á erfiðum tímum. Og þess utan þroskað hæfileika ungmenna sem annars hefðu ekki átt kost á að þroskast. 1 Glenborosöfnuði var stofnað félag seinni partinn í vetur en þótt 18 séu í félaginu erum við ekki enn fyllilega búin að koma fót- unum fyrir okkur. En framundan er bjartur vegur og við erum full af lífsþrá og starfskröftum. Möguleikar eru margir á stofnun ungmennafélaga en bæði þarf tíma og sérstakan mann til starfsins, og þá um leið kostnaður. Vildi eg óska að hið háttvirta kirkjuþing athugi málið sem er eitt af stór- málum þess. Virðingarfyllst, E. H. Fáfnis. Samþykt var að veita skýrslunni viðtöku og þakka séra Agli fyrir starf hans. Urðu þá nokkurar umræður um málið. Að lokum lagði dr. B. B. Jónsson til, og Klemens Jónasson studdi, að séra Egill sé beðinn að hafa mál þetta með hönd- um á árinu. Þetta var samþykt og málið þar með afgreitt á þessu þingi. G. Thorleifsson vakti athygli á, að hér væri staddur á þinginu gamall o& góður starfsmaður kirkjufélagsins, H. Hermann, og lagði til, að honum sé veitt málfrelsi á þinginu. Var það samþykt í e. hlj. og flutti H. Hermann hvetjandi ræðu til þingsins um að temja sér að læra að meta unga fólkið og starf þess, og var ræðan þökkuð af forseta. Með því þá, er hér var komið, að ekkert ákveðið verkefni var undirbúið til meðferðar, var samþykt að taka á móti til- boðum um kirkjuþingsstað næsta ár. Forseti bar fram heim- boð frá Hallgrímssöfnuði í Seattle. Bjóst hann við, að ýmsum mundi þykja miklir örðugleikar á, að sækja kirkjuþin'g vestur við haf, en slíkir örðugleikar væru þó alls ekki óyfirstígan- legir, og heimboðið væri í vinsemd og einlægni fram borið. Dr. B. B. Jónsson minti á, að það væri til standandi tilboð frá Fyrsta lút. söfnuði um kirkjuþingsstað. Var að þessu búnu samþykt, að fela þetta efni framkvæmdanefnd kirkju- félagsins. J. J. Myres vakti athygli á, að á fundi væri maður, er margir mundu kannast við og mikinn áhuga hefði á öllu því, er íslenzkt væri og til sóma mætti verða íslandi og íslenzkri þjóð, og lagði það til, að Birni Magnússyni væri veitt mál- frelsi á þinginu. Var það samþykt í einu hljóði, og flutti Björn stutta en skörulega tölu, um íslenzkan jurtagróður og trjárækt. Var talan þökkuð af forseta. Þá lá fyrir 7. mál á dagskrá: Samband kirkjufélagsins við önnur lútersk kirkjufélög. Forseti skýrði frá, að framkvæmdanfend hefði í fyrra verið falið að undirbúa málið fyrir þetta þing. Hefði fram- kvæmdan^endin falið þriggja manna nefnd úr sínum hópi að undirbúa málið. Bjóst sú nefnd við að leggja nú málið fram á þingi, með þeim undinbúningi, er málið var búið að fá í höndum nefndarinnar, en hefði svo horfið frá því áformi, og legði nú til að málinu sé, til frekari undirbúnings, frestað til næsta kirkjuþings. — Gerði þá dr. B. B. Jónsson þá tillögu, er J. J. Myres studdi, að þingið aðhyllist þessa ráðstöfun, og var það samþykt. — í sambandi við mál þetta flutti forseti bróðurkveðju og árnaðarorð frá dr. F. H. Knubel, forseta United Lutheran Church. Þá var tekið fyrir á ný 1. mál á dagskrá: Heimatrúboð. Fyrir hönd þingnefndar í því máli, lagði séra J. A. Sig- urðsson fram þessa skýfslu: Heimatrúboð Nefndin í Heimatrúboðsmálinu telur það gleðiefni að áhugi vestur-íslenzkra kirkjumanna er áreiðanlega að vakna í því efni. En aftur er hið örðuga fjárhagsástand í ýmsum söfnuðum kirkjufélagsins því til fyrirstöðu að nefndin dirfist að leggja til að tekin séu ýms þau framfaraspor er hún þó æskir. En nefndin leggur til: 1. Að séra N. S. Thorlákson, er gefið hefir kost á þjónustu sinni, sé fenginn til að vitja safnaðanna í Saskathewan eða annara stöðva og framkvæmdarnefndinni sé falið að greiða ferðakostnað og á annan hátt að ráðstafa starfi hans. 2. Að framkvæmdarnefndinni leyfist að semja við hr. Jóhann Friðriksson um trúboðsstarf um sumarmánuðina, einkum í bygðum íslendinga í grend við Manitobavatn. 3. Að framkvæmdarnefndin færi sér í nyt hjálp þeirra presta kirkjufélagsins er ekki starfa alt árið hjá söfnuðum sínum. 4. Að söfnuðir er njóta fullrar prestsþjónustu séu beðnir að gefa það eftir að sóknarprestar þeirra vitji prestslausra bygða, helzt kirkjufélaginu að kostnaðarlausu. 5. Að framkvæmdarnefnd sé heimilað, ef fjárhagur heimatrú- boðssjóðs leyfir, að styrkja Hallgrímssöfnuð í Seattle í hinu örðuga starfi hans í þeirri stórborg, með $200.C(0. 6. Að þingið feli forseta að skipa feinn sunnudag á árinu, sem helgaður sé heimatrúboðsstarfinu. R. Marteinsson Jennie M. Frost W. G. Hillman M. Briem G. B. Olgeirson Axel Sigmar Jónas A. Sigurðsson. Samþykt var að taka skýrsluna fyrir lið fyrir lið. 1. liður samþyktur í e. hlj. — 2. liður samþyktur, 3. og 4. liður sömuleiðis. — 5. liður var ræddur þar til auglýst var fundarhlég frá kl. 4.15 til kl. 4.45, til að gefa þingmönn- um og gestum færi á að þiggja kaffiveitingar í næsta húsi við kirkju Vídalínssafnaðar.-----------Þegar fundur kom saman aftur, var sunginn sálmurinn nr. 14. Að því búnu gerði G. Thorleifsson þá tillögu, er séra R. Marteinsson studdi, að 3. liður, í nefndaráliti fjármálanfendar, sé tekinn fyrir í sam- bandi við þennan 5. lið í nefndaráliti þingnefndar í heima- trúboðsmálinu. Var það samþykt. Fóru nú fram talsverðar umræður um efni þessara um- ræddu liða. Eftir nokkrar umræður gerði dr. B. B. Jónsson þá breytingartillö'gu við 3. lið, staflið A, og G. Thorleifsson studdi, að fjársöfnun til heimatrúboðs sé færð niður úr $1,800 og í $1,200. Var það samþykt. — Þá gerði dr. B. B. Jónsson þá breytingartillögu við 3. lið, staflið B, er G. Thorleifsson studdi, að Hallgrímssöfnuði í Seattle sé lánuð $200, rentu- laust, í 5 ár, úr kirkjubyggingarsjóði. Breytingartillögu við það gerði J. J. Vopni, er séra R. Marteinsson studdi, að í stað $200 komi $400. Var þessi breytingartillaga rædd lítið eitt, síðan borin undir atkvæði og feld. Var fyrri breytingartil- lagan síðan samþykt. Var með samþyktum þessum þar með komin breyting á 3. lið nefndarálits fjármálanefndar, staflið A, stafliður B þess nefndarálits þar með fallinn, og sömu- leiðis 5. liður í áliti þingnefndar í heimatrúboðsmálinu. — Þakkaði forseti fyrir hönd Hallgrímssafnaðar, þessi úrslit, er hann taldi ljósan vott um velvilja þingsins í garð Hallgríms- safnaðar, þegar tekið væri tillit til þeirra almennu fjárhags- vandræða, er nú væru.—Að þessu búnu var skýrsla heimatrú- boðs-þingnefndar, með áorðinni breytinlg, samþykt. Sömuleið- is var 3. liður, stafliður A, í f jármálanefndarálitinu, með áorð- inni breytingu, samþyktur. Frá Islandi Vík í Mýrdal 24. ágúst. Aðfaranótt sunnudags brann til kaldra kola íveruhúsið á Nyk- hól í Pétursey. Eigandi hússins, Grímur Sigurðsson, hafði áður selt jarðeign sína, nema húsið og skika kringum það, o'g notaði nú húsið aðeins. að sumarlagi. Hann og kona hans og fimm ára barn voru þar og aðrir ekki. Elds- ins varð vart um kl. 2 og er gisk- að á, að kviknað hafi út frá reykháf. Lítið var af innan- stokksmunum í húsinu og björg- uðust þeir að mestu. Grímur sótti menn á aðra bæi, en engin tök voru að slökkva og brann hús- ið á tveimur stundum. Hús þetta var timburhús, portbygt, stórt og vandað. Mun hafa verið bygt 1915—1916. Það var vátrygt fyrir 10,000 kr. Heyþurkar hafa verið daufir, en úrkomulítið, og hefir heyskap- ur gengið sæmilega, en verkun á heyi víða eigi eins æskileg og skyldi. Spretta hefir víðast orðið í meðallagi. — Vísir. Reykjavík 23. ág. Á fundi í sameinuðu þingi í gær, fór fram kosning forseba sameinaðs þings í stað Ásgeirs Ásgeirssonar, fjármálaráðherra. Kosningu hlaut Einar Árnason 2. þin!gm. Eyfirðinga með 22 atkv. Jón Þorláksson hlaut 14 atkvæði, en þrír seðlar voru auðir.—Mgbl. ÞINGSLIT. Reykjavík, 25. ágúst. Klukkan fimm síðdegis í gær var fundur settur í sameinuðu þingi og voru á dagskrá kosnin'g- ar í ýmsar trúnaðarstöður og nefndir, en að loknum þeim kosn- ingum fóru fram þinglausnir. Kosningar í sameinuðu þingi: 1. Kosning framkvæmdarstjóra Söfnunarsjóðs íslands fyrir ára- bilið frá 1. jan. 1932 til 31. das. 1937: Kosningu hlaut séra Vil- hjálmur Briem (endurkosinn) með 31 atkvæði, sjö heðlar voru auðir. 2. Kosning þriggja manna í verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sig- urðssonar: Hannes Þorsteinsson, Ólafur Lárusson og Barði Guð- mundsson. 3. Kosning Mentamálaráðs ís- lands (5 manna): Ragnar Ás- geirsson, Uarði Guðmundsson, Ingibjörg H. Bjarnason, Árni Pálsson og Stef. Jóh. Stefánsson. 4. Kosnir þrír menn í Þing- vallanefnd: Jónas Jónsson, Ma'gn- ús Guðmundsson og Jón Bald- vinsson. 5. Kosnir þrír menn og þrír varamenm í I ;útflutningsnefnd Síldareinkasölunnar til ársloka: Einar Árnason, Böðvar Bjarkan og Björn; Líndal. Varamenn: Ingimar Eydal, Þormóður Eyj- ólfsson og IStefán Jónasson út- gerðarmaður. 6. Yfirskoðunarmenn lands- reikninganna 1930 voru allir end- urkosnir, þeir Hannes Jónsson al- þm., Pétur Þórðarson og Magnús Guðmundsson. Þá fóru fram 'þingslit. For- seti (E. Á.)i skýrði frá störfum þingsins. Það hefir setið 41 dag. 41 þingfundur var haldinn í Nd., 42 1 Ed., 7 í Sþ., alls 90 þingfund- ir. — Alls voru . afgreidd 46 lög, þar af átta stjórnarfrumvörp. Feld voru tvö frv., eitt afgr, með rökstuddri dagskrá, eitt tekið aftur, en 50 döguðu uppi (ekki útrædd). Fram voru bornar 25 þingsályktunartill., og voru 13 samþ. Alls fékk þingið 126 mál til meðferðar. Forseti gat þess því næst, að þetta þing hefði afkastað miklu, og mætti vonandi vænta þess, að ýms lög frá þinginu yrðu til þess, að marka framfaraspor hjá þjóð- inni. Nefndi hann sem dæmi, lög um búfjárrækt, innfl. sauðfjár til siáturf járbóta, útfl. á kældum fiski og hafnarlög. Að lokum las- forsætisráðhérra upp hinn venjulega boðskap kon- ungs, um að Alþingi væri að þessu sinni slitið — en ekki rofið. Bað forsætisráðh. þingm. að minnasfe ættjarðarinnar og konungs með ferföldu húrra, og það var gert af veikum mætiti. — Mgbl. FRÁ FÆREYJUM. í lögþinginu í Færeyjum hefir nýskeð verið lögð fram tíu ára áætlun frá danska dómsmálaráð- herranum um ýmsar framkvæmd- ir í Færeyjum. Fyrst og fremst er þar gert ráð fyrir að hafnir verði gerðar í Klaksvig og Vest- manhavn og ríkissjóður Dana leggi fram fjóra fimtu hluta af kostpaðinum, en þorpin sjálf einn fimta. Enn fremur ætlar ríkissjóður Dana að láta reisa geðveikrahæli í Færeyjum, og er gert ráð fyrir að það kosti um 470 þús. krónur. Þá eru færeysk- um sveitarfélögum fengnir ýms- ir nýir tekjustofnar, svo að þau hafa meira fé til umráða, en ver- ið hefir. Það er alment talið, að Joannes Patursson hafi átt frum- kvæðið að því að þetta er fram komið. — Mgbl.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.