Alþýðublaðið - 22.07.1960, Page 11
Fréttabréf
Oslo, 20. júlí.
FJÖGURRA landa keppnin
hófst £ kvöld kl. 19.00 með inn
göngu þátttökuþjóðanna. —
Fánaberi Islands var Pétur
Rögnvaldsson. Form. norska
frjálsíþróttasambandsins, —
Aage Möst, setti keppnina
með stuttri ræðu og var setn-
ingarathöfnin öll hin hátíðleg-
asta. Veður var mjög gott, —
logn og' sólskin og um 20 stiga
hiti. Áhorfendur munu hafa
verið ca. 15-20 þúsund.
Keppnin gekk ekki vel fyr-
ir okkur. Guðjónakeppti fyrst
ur íslendinga í 400 m. grinda-
hlaupi og var þriðji lengst af,
en varg að sleppa næstbezta
Norðmanninum fram fyrir sig
á endasprettinum. Hljóp þó á
sínum bezta tíma í ár. Gul-
brandsen var að sjálfsögðu
langbeztur og setti norskt
met. — S'vavar átti gott hlaup
í 800 m., var lengi vel í 2.
eða 3. sæti og náði ágætum
tíma (aðeins 7/10 sek, frá met
inu), Hinsvegar var hann
mjög óheppinn að missa Hel-
land fram úr sér á síðustu
metrunum og verða þannig af
3. verðlaunum, þótt báðir
fengju sama tíma.
í 100 m. hlaupinu varð Hörð
ur að hlaupa í stað Hilmars,
sem var meiddur. í fyrstu brá
Hörður of fljótt við, en náði
síðan mjög slæmu viðbragði
Landslið
vann 9:1
LANDSLIÐIÐ sigraði pressu
íið með 9:1 í æfingaleik á Vals-
vellinum í gærkvöldi. í hálf-
leik var staðan 1:0.
__ Mörkin skoruðu: Guðmundur
Óskarsson 5, Þórólfur Beck 3
og Sveinn Jónsson 1 fyrir lands
liðið, en Ingvar Elísson skoraði
inark pressuliðsins úr víta-
spyrnu.
Nánar í blaðinu á morgun.
| - ■ ☆
ÚTI- handknattleiksmót fs-
lands. hefst I kvöld (föstu-
dag) 0g fer fram á Árnianns-
vellinum við Sigtún í Reykja-
VÍk. Nánar síðar.
og var síðastu r allt hlaupið.
Bunæs vann yfirburðarsigur
og hljóp mjög vel. — Belgíu-
maðurinn, Allonsius, tók
strax forustuna í 5 km. hlaup
inu, en hinir voru allir í ein-
um hnapp þar til 2 hringir
voru eftir, er Kristleifur varð
að gefa eftir vegna hins mikla
byrjunarhraða. (Hann hljóp
3 km. á 8:36,0). Átti hann því
engan verulegan endasprett,
en hljóp þó á sínum næstbezta
tíma, aðeins 4,6 sek, frá met-
inu.
Valbjörn byrjaði vel í spjót
kastinu og var lengi vel í 4, og
5. sæti eða bar til Belgíumað-
urinn fór aðeins fram úr hon-
um í næstsíðustu umferð. í 3
km. hindrunarhlaupi hljóp
Roelants, Belgíu, mjög glæsi-
lega og setti ágætt landsmet,
en Hafstein sleppti strax hin-
um keppendunum, enda fvrir-
fram vonlaust að fá nema 1
stig í þessu hlaupi Vilhjálm-
ur gerði ógilt í 2 fyrstu um-
ferðum langstökksins, en náði
svo 7,20 í 5. umferð og ógilt
í síðustu.
Jóni Péturssyni gekk vel í
hástökkinu þrátt fyrir lausa
braut, fór 1.90 og 1,95 í 1. til-
raun og 1,98 í annarri, en
tókst ekki að stökkva næstu
hæð (2.01). Hinsvegar fór
Norðmaðurinn ekki yfir 1,98
fyrr en í 3. tilraun og varð
Jón því sigurvegari og jafn-
framt eini íslendingurinn,
sem komst á verðlaunapall-
inn. Aðspurður kvaðst Jón
vera ánægður með árangur-
inn, en taldi þó að 2,01 hefði
átt að geta heppnast, ef braut
in hefði verið betri.
Husebv fór í kringluna í
stað Hallgríms, sem fékk í-
gerð í fótinn og er draghaltur.
Verður ekki annað sagt en að
Huseby hafi staðið sig betur
en hægt var að búast við. —
Hann náði 5. sæti, vann Belg-
íumanninn og var mjög stutt
á eftir danska methafanum. —
Boðhlaunið var ekki gott og
skiptingar slæmar og höfnuð-
um við þar f 6. sæti, enda mun
aði mikið um að hafa ekki
Hilmar. Að öðru leyti gekk
keppnin sem heild vel og mik
il stemning ríkjandi. Á morg
un er okkar betri dagur og má
þá búast við að stigakepnnin
verði hörð milli íslands, Dan-
merkur og C-liðs Noregs um
4. sætið. — ÖRN.
island náöi 4. sæti
Viíhjálmur og
Valbjörn sigruðu
EINS og við hafði verið búist
sigraði A-lið Noregs í 4ra landa
keppninni, sem lauk á Bislet í
gærkvöldi. í öðru sæti varð
Belgía með 85 stig og B-lið
Noregs í þriðja sæti með 78
stig, einnig eins og við bafði
verið búst. Á hinn bóginn kom
það mörgum (gleðilega) á óvart
að Island skyldi hreppa 4. sæt-
ið' og skjóta þannig Dönum og
C-Iiði Noregs aftur fyrir sig.
Var stigakeppnin lengst af
mjög tvísýn og spennandi milli
þessara þriggja aðila, en lauk
þannig, að fsland hlaut 61 stig,
C-Iið Noregs 60 og Danmörk
57! Yfirleitt stóðu íslendingarn
ir sig allir með prýði og mun
betur en fyrra kvöldið. M. a.
sigruðu þeir í 2 greinum (Vil-
hjálmur í þrístökki og Valbjörn
í stangarstökki), fengu 3. verð
Iaun í 3 greinum og 4. sæti í
2 greinum. Bezta afrek íslend-
inga í gær vrar 1500 m. hlaup
Svavars — 3:47,8 — sem er
sami tími og fsl. metið og jafn
framt 7/10 úr sek. betra en OL-
lágmarkið í þeirri grein.
ÚRSLIT SÍÐARI DAGS:
200 m:
1. Fr Jensen, D. 22,3. 2. O.
Lövaas, Nor. B 22,3. 3. Jean P-
Svavar
Saars, B. 22,4. 4. Kj. Geistad,
Nor. C 22,5. 5. Guðjón Guðm.,
ísl. 22,7. ■— Bunæs, Nor. A varð
fyrstur á 21,3, en var dæmdur
úr leik.
Valbjörn
400 m:
1. L. Clerck, B. 48,0. 2. Dag
Wold, Nor A 48,2. 3. G. Knut-
sen, Nor. C 49,1. 4. Hörður Har-
aldss., ísl. 49,5. 5. S't. Ingvald-
sen, Nor. B 49,6. 6. K Christi-
ansen, D. 50,1.
1500 m:
1. D. AUewaert, Belg 3:46,5.
2. A. Hammarsland, Nor. A
3:46,7. 3. Svavar Markússon, ísl.
3:47,8 (metjöfnun). 4. Thor Hel-
land, Nor. B 3:50,4. 5. W. Bruun
Jensen, D. 3:50,7. 6. M. Aalbraa-
ten, Nor C 3:59,6.
Sleggjukast:
1. Strandli, Nor. A 62,76. 2. O.
Krogh, Nor. B 61,41. 3. M. Föl-
eide, Nor. C 57,64. 4. Þórður
Sig., ísl. 52,34 5. O. Bang, D.
50,98. 6. Debre, B. 28,14.
110 m gr.hlaup:
1. Jan Gul'brandsen, Nor. A
14,6. 2. Leop. Marien, B. Í4,8. 3.
Pétur Rögnvaldss., ísl. 15,0. 4.
B. Gismervik, Nor. C 15,1. 5. B.
Holen, Nor. B 15,2. 6. St. B.
Jörgensen, D. 15,4.
Kúluvarp:
l.S. Haugen, Nor. A 15,95. 2.
Olav Evjenth, Nor. B 15,47. 3.
Gunnar Husöby, ísl. 15,29. 4.
H. Aune, Nor. C 15,16. 5. B.
Laursen, D 14,57. 6. Depre, B.
14,44.
10 000 m hlaup:
1. Lennaert, B. 29:54,4. 2. T.
Tögersen, D. 29:54,8. 3. T. Tor-
gersen, Nor. A 30:02,0. 4. J.
Kjersem, Nor. C 31:16,8. 5. O.
Nedrebö, Nor. B 32:03,0. 6. Haf-
steinn Sveinsson, ísl. 34:20,4.
Þrístökk:
1. Viihjálmur Einarsson, ísl.
15,26. 2. O. Berg, Nor. A 15,10.
3. K. Bjöntegaard, Nor B 14,90.
4. R. Lindholm, D. 14,47. 5. M.
Jensen, Nor. C 14,31. 6. M. Her-
sens, B. 13,89.
Stangarstökk:
1. Valbjörn Þorláksson, ísl.
4.40. 2. Van Dijck, B. 4,40 (belg
i'skt met). 3. A. L. Nyhus, Nor
B 4,30. 4. Bj. Andersen, D. 4,30.
5. K. Hovik, Nor A 4,30. 6. R.
Förde, Nor. 4,10.
4X400 m boðhlaup:
1. Belgía 3:14,3. 2. Noregux A
3:15,8. 3. Noregur B 3:16,1. 4.
Noregur C 3:18,3. 5. Danmörk
3:19,5. 6. Island 3:21,8.
LOKAÚRSLIT:
1. Noregur A 110 st.
2. Belgía 85 —
3. Noregur B 78 —
4. ísland 61 —
5. Noregur C 60 —
6. Danmörk 57 —
Alþýðublaðið — 22. júlí 1960