Alþýðublaðið - 22.07.1960, Blaðsíða 14
ÐSTEFNAN
Framhald af 13. síðu.
Raðstefna lét í ljós þá von að
þessi neyðarmerkjatæki kæm
ust í notkun hjá sem flestum
þjóðum og að íslenzk stjórn-
arvöld hjálpuðu til að stuðla
að því. Umgetin tæki voru til
sýnis á ráðstefnunni.
4. Ráðstefnan benti á hina
miklu þýðingú flugvéla fyrir
sjóslysavarnir, sérstaklega við
ísland, sem afstöðu sinnar
vegna hefur lykilaðstöðu í
norðanverðu Atlantshafi Ráð-
stefnan lét í Ijós voni'r um, að
á íslandi væru jafnan til stað-
ar hinar fullkomnustu leitar-
og björgunarflugvélar.
5. Ráðstefnan lagði sérstaka
áherzlu á nauðsyn þess, að
smábátaeigendur og notendur
kynntu sér vel gildandi reglur
Og ákvarðanir í öryggisskyni
og slysavarna- og sjóbjörgun-
arfélög Norðurlanda gerðu allt
sem þau gætu til að auka ör-
yggi í sambandi við sjóferðir
á smábátum. Við umræður um
þennan síðasta lið kom í ljós,
að Noregur var eina landið á
Norðurlöndum þar sem giltu
strangar reglur um skráningu
og skoðunarskyldu á smá-
fieytum.
í sambandi við þessa ráð-
stefnu var ýmislegt gert til að
kynna fulltrúunum landi'ð og
þjóðina. Þeim var boðið til
liádegisverðar um borð í varð
skipinu Óðni, þar sem þeir
fengu að kynnast íslenzkum
sjóbjörgunar- og varðskips-
mönnum. Þá bauð bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar þeim til
liádegisverðar um leið og
þeirn gafst kostur á að skoða
Jiraðfrystistöð bæjarútgerðar-
innar og í þei'rri för var þeim
boðið til kaffidrykkju að
Bessastöðum. Bogarstjórar
Reýkjavikur og félagsmálaráð
herra og siglingamálaráðh.
Emil Jónsson höfðu boð inni
fyrir fulltrúana. Þá var þeim
gefinn kostur á að sjá Þing-
velli, Gullfoss og Geysi' og
Blóma-
skálinn
v. Nýbýlaveg og Kárs-
nesbraut tilkynnir.
Mikið úrval af ódýrum
blómum: Rósir — Nellikk
ur — Levkoj -— Ljóns-
•munnar.
Einnig mjög ódýr potta-
blóm.
Nýtt blómkál og hvítkál
foeint úr garðinum.
Blómaskáimo
v. Nýbýlaveg og Kárs-
nesbraut.
Snorralaug í Reykholti, sem
þeim fannst mikið til um.
FuUtrúarnir eru nú löngu
komnir heim til sín og hafa
sent þakkarbréf fyrir góðar
móttökur. Svenska slysa-
varnafélagið sendi sérstak-
lega vandað skrautprentað
skjal svöhljóðandi:
tSvenska Sállskapet för
Ráddning af skeppsbrutne
sendir Slysavarnafélagi ís-
lands si'tt innilegasta þakklæti
vegna hinnar þýðingarmiklu
Oa vel skipulögðu sjó'björgun-
arráðstefnu Norðurlandanna
30. júní — 1. júlí 1960 og fyr-
ir hina mikilfenglegu gest-
risni og vináttu, sem hinum
erlendu fulltrúum var sýnd af
forseta íslands, Slyasvarnafé-
lagnu og kvennadei'ldum þess,
bæjarstjórnum Hafnarfjarðar
og Reykjavíkur og íslenzka
sj ávarútvegsmálaráðuney tinu
og væntir þess fastlega að
ráðstefna í Reykjavík og önn-
ur slík samvinna Norðurland-
anna megi verði sjóslysavörn
unum og sjóbjörgunarmálun-
um til eflingar.
Staurahorg
Framhald af 4. síðu.
vekur strax atihygli mína, að
hús silfursmiðanna er í mörgu
tiUiti' öðru vísl en önnur hús,
og engar eru þar rifur í gólf
inu!
Óvíst er, hvort Kampong
Ayer fær áfram að vera til
eða dagar hennar eru brátt
taldir. Yfi'rvöldin vilja flytja
borgina upp á þurrt. Sumir
eru svo illgjarnir, að segja,
að það stafi af því, að hi'nir
háu herrar vilji geta heimtað
vatnsskatt og lóðaskatt af
fólkinu, en samt veigra þei'r
sér við að taka ákvörðun.
Fram til þessa hefur staura
borgin verið láti’n í friði. Hún
er sérkennilegt samfélag, sem
í mörgu tilliti er sjálfu sér
nógt. Þar er jafnvel kvi'kfjár
ræ'kt rekin. Ég sá víða svín
leika furðulegustu jafnvægis
listir á flekum, sem bundnir
voru vi'ð húsin_ Þar eru
hænsnafoú, oft raunar lítið
annað en mjó fjöl, og vatnið
skolar stöðugt klærnar á
hænugreyjunum. Guð einn
veit, á hverju þær lifa og
hvernig tilveran lítur út í
þeirra augum!
Framan við mörg húsanna
er lí’till pallur. En pallurinn
framan við skólann er stór.
Hann er um lei'ð leikvöllur.
Þegar skólabörnin fá að
hlaupa út milli kennslustunda,
halda þau oft hiklaust út fyrir
handriðið og stinga sér þráð-
beint á hausinn í vatnið. Þar
busla þau og skrækja, unz frí
mínútunum lýkur. Þetta er
skiljanlegt, þegar þess er gætt,
að hitinn er árið um kring 35
—38 gráður. Hér kemur ekki
einu sinni hressandi' nætur-
gjóla utan af hafinu.
Vogurinn
Framhald af 13. síðu.
um. Og ferðinni er oftast heit
ið inn á hólman ofan við Ell-
iðaárnar, niður á grasbalana
við voginn eða upp í bollana
við vestari farveg árinnar.
Og hvers vegna ekki að gera
þarna útivistarsvæði, gera
eitthvað fyrir staðinn, svo að
hann verði vistlegri, friða
hann og prýða. Sá staður yrði
mikið sóttur um helgar líka.
Það er gott að komast út úr
skarkalanum, þótt ekki sé far
ið langt til. Það eiga heldur
ekki allir bíl, og SVR geng-
ur inn að Elliðaám, fyrir þá,
sem ekki eiga svo stutt að
geta farið fótgangandi.
Og Nesti er inn við voginn,
fyrirmyndar bílabar. Brekk-
an fyrir neðan og öll umgegni
í kring er til fyrirmyndar, og
mætti með lítilli fyrirhöfn
laga til og prýða á svipaðan
hátt aðra bletti í kringum vog
inn og uppi eftir hólmanum,
svo að staðurinn yrði skemmti
legri því að fólkið hefur þegar
gert hann að útivistarsvæði,
án þess að spyrja nokkurn um
leyfi.
E. X.
Eiginkona mín,
GUÐJÓNÍNA SÆMUNDSDÓTTIR
frá Ásgarði, Garðskaga, sem lézt 18. þ. m. verður jarðsungin
frá Útskálakirkju, laugardaginn 23. þ. m. kl. 3 e. h,
Sigurður Kristjánsson.
Maðurinn minn
JÓN GUÐJÓNSSON, rafvirkjameistari
Borgarholtsbraut 21, Kópavogi,
lézt að heimili sínu 21. þ. m.
F. h. aðstandenda,
Guðrún Runólfsson.
Slysavarðstotan
er opin allan sólarhrlnginn.
Læknavörður fyrir vitjanir
er á sama stað kl. 18—8. Síml
15030
Gengisskráning 15. júlí 1960.
1 Kaup Sala
£ 106,74 107,02
US $ 38,00 38,10
Kanadadollar 38,75 38,85
Dönsk kr. 551,30 552,75
Norsk kr. 532,55 533,95
Sænsk kr. 735,50 737,40
Finnskt mark 11,87 11,90
N.fr. franki 775,40 777,45
Minningarkort
kirkjubyggingarsjóðs Lang
holtssóknar fást á eftirtöld-
um stdðum: Verzl. Anna
Gunnlaugsson, Laugavegi 37.
Langholtsvegi 20. Sólheimum
17 Vöggustofunni HLíðar-
enda. Bókabúð KRON, Banka
stræti
Ríkisskip.
Hekla fer frá R,-
vík kl. 18 annað
kvöld til Norður-
landa. Esja er á
Austfjörðum á
suðurleið. Herðu-
breið er á leið frá Austfjörð
um til Rvíkur. Skjaldbreið
er á Húnaflóa á leið til Akur
eyrar. Herjólfur fer frá Rvík
kl. 21 í kvöld til Vestm.eyja.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell er væntanlegt
til Kolding 25. þ. m. Arnar-
fell er væntanlegt til Swan-
sea 25. þ. m. Jökulfell er í
Rvík. Dísarfell er á leið til
Stettin frá Esbjerg. Litlafell
losar á Norður- og Austur-
landi. Helgafell fór 18. þ. m.
frá Leningrad til íslands.
Hamrafell fór 17. þ. m. frá
Hafnarfirði til Batum.
Jöklar.
Langjökull er í Riga. Vatna
jöíkull lestar á Norðurlandi.
Eimskip.
Dettifoss fer frá Liverpool
í dag til Grimsby, Gautaborg
ar, Árhus og Gdynia. Fjallfoss
kom til Rvíkur 17/7 frá Isa-^
firði. Goðafoss kom tif
Gdansk í gær, fer þaðan til
Rvíkur. Gullfoss kom til K,-
hafnar í gær frá Lieth. Lag-
arfoss fer frá New York um
27/7 til Rvkur. Reykjafoss
kom til Ábo 20/7, fer þaðan
til Ventspils, Hamina, Lenin-
grad og Riga. Selfoss kom til
Rvíkur 9/7 frá New York.
Tröllafoss fór frá Keflavík
16/7 til Hamborgar, Rostoe.k,
Ystad, Hamborgar, Rotter-
dam, Antwerpen og Hull.
Tungufoss fór frá Rvík 20/7
til ísafjarðar, Sauðárkróks,
Siglufjarðar, Húsavíkur, Dal-
víkur og Akureyrar.
Verndiff dýr
gegn meiðslum og dauða
með því að hirða vel um girð
ingar og skilja eigi vírspotta
eða vírflækjur eftir á víða-
vangi. — Samband Dýra-
verndunarfélags íslands.
Flugfélag
íslands.
'""‘Sí Millilandaflug:
Guiifaxi fer til
•» ^ .<•: Glasgow og K.-
$$8S5*SSS$|: hafnar kl. 8 í
jj?* dag. Væntanleg
afitur tU Rvl!kur
kl. 22.30 í kvöld.
msmssmmm Flugvélin fer til
w&imm® Glass°w °s K--
•.»&»»•*».' hafnar kl. 8 í
fyrramálið. Hrímfaxi fer til
Oslóar, Khafnar og Hamborg
ar kl. 10 í fyrramálið. Innan-
landisflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (3 ferð-
ir), Egilsstaða, Fagurhólsmýr
ar, Flateyrar, Hólmavíkur,
Hornafjarðar, ísafjarðar,
Kirkjubæjarklausturs, Vest-
mannaeyja (2 ferðir) og Þing
eyrar. Á morgun er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferð-
ir), Egilsstaða, Húsavíkur,
ísafjarðar, Sauðárkróks,
Skógasands og Vestmanna-
eyja (2 ferðir).
Loftleiffir.
Hekla er væntanleg kl. 19
frá Hamfoorg, Khöfn og Osló.
Fer til New York kl. 20.30.
Bifreiffaeigendur!
Munið happdrætti Styrkt-
arfélags vangefinna. Glæsí-
legir vinningar (sjá auglýs-
ingar). Hver keyptur miði
gefur von um skattfrjálsan
vinning. Er jafnframt til
styrktar góðu málefni, —
þakkarfórn frá þeim, sem
eiga heilbrigð börn.
Samúffarspjöld Minningar-
sjóðs Sigurðar Eiríkssonar
og Bryndísarminning eru af
greidd í Bókabúð Æskunn-
ar.
Frá Mæffrastyrksnefnd.
Skrifstofa nefndarinnar er
flutt á Njálsgötu 3 Sími
14349.
Tilkynning frá Tæknibóka-
safni IMSÍ. — Yfir sumar-
mánuðina frá 1. júní til 1.
sept. verður útlánstími og
lesstofa safnsins opin frá kl.
1-7 e. h. alla virka daga
nema laugardaga kl. 1-3 e.h.
Styrktarfélag vangefinna: —
Minningarspjöld félagsins
fást á eftirtöldum stöðum
í Reykjavík; Bókabúð Æsk-
unnar, Bókabúð Braga Bryn
jólfssonar, Bókaverzlun
Snæbjörns Jónssonar, Verzl
uninni Laugavegi 8, Sölu-
turninum við Hagamel og
Söluturninum í Austurveri.
Utvarpiff:
13.25 Tónleikar. 20.30 Ferða
þankar: Austan tjalds og vest
an (dr. PáU ísólfsson) 20.55
Tékkneski í/'iðluleikarinn Kar
el Sneberger leikur. 21.30 Út
varpssagan: „Djákninn i
Sandey.“ 22.10 Kvöldsagan:
„KnitteT 22.30 Harmoniku-
báttur
LAUSN HEILABRJOTS:
Þið hafið vonandi ekki
svarað 6
3,4 22. júlí 1960. — Alþýðublaðið