Lögberg - 15.09.1932, Page 2
Kls. 2.
LÖGBERG, FJMTUDAGINN 15. SEPTEMBER 1932.
Séra Hjörtur J. Leó
(Framh. frá 1. bls.)
eg að geta þessarar sumarvistar i
Mikley, því að hún reyndist honum
minnisstæður spölur á lífsleiÖinni.
Svo bar til aS þetta sama haust var
séra Jónas A. SigurÖsson sendur út
um ýmsar bygÖir Vestur-íslendinga,
þess erindis, aÖ safna fé til hinnar
fyrirhuguÖu skólastofnunar kirkjú-
félagsins. Kom hann í þeim erind-
um norÖur til Mikleyjar í septem-
ber um haustiÖ, og þar hittust þeir
Hjörtur í fyrsta sinni. Nærri má
geta, aÖ báÖum þessum ungu gáfu-
mönnum hafi verið nautn í samvist-
inni, þó stutt væri; enda heyrði eg
Hjört minnast þess fundar iÖulega
með sérstökum hlýleik, þegar hann
rakti fyrir mér andlega reynslu sína
í æskunni. Þeir áttu tal meðal ann-
ars um trúmál, og stóðu þar allmjög
öndverðir, því að séra Jónas var
öruggur talsmaður kristinnar trúar,
en Hjörtur var að eigin dómi orÖ-
inn fráhverfur flestum kirkjukenn-
ingum, og bilaður jafnvel í sjálfri
guðstrúnni. Þeir komu sér saman
um að rökræða það, sem þeim bar
á milli, hleypidómalaust og með
góðri vinsemd; gengu þeir svo niður
að vatninu, settust á stein í f jörunni,
— sagði Hjörtur mér — sátu þar
lengi dags og þinguöu málið. Þeir
héldu báðir heit sitt um ándann í
þeim umræðum; og þegar þeir luku
talinu, kannaðist Hjörtur við það
hreinskilnislega, að kristindómurinn
væri miklu auðugri að rökum, en
vantrúin miklu fátækari, heldur en
hann hefÖi áður gjört sér í hugar-
lund. Sagði hann mér, að þetta sam-
tal við séra Jónas, þar i f jörunni við
Winnipegvatn, hefði verið upphafið
að afturhvarfi sínu til kristinnar
trúar.
Veturinn eftir hitti eg Hjört af
og til í Winnipeg. Eg var þá vika-
drengur hjá Katli Valgarðssyni
mjólkursala, og leyföi hann mér að
ganga á barnaskóla i nokkra mán-
uði um veturinn—Mulvey skólann,
suðvestan til í bænum. Normal-deild
kennaraskólans var höfð þann vetur
í sömu byggingunni. Þar innritaðist
Hjörtur í janúarmánuði og las und-
ir annars flokks próf í kensluvís-
indum. AÖrir námsmenn úr Nýja
íslandi, sem gengu á skóla í Winni-
peg þann vetur, voru þeir Thorvald-
ur Thorvaldson, Stefán bróðir minn
og Jóhannes Eiríksson. Héldu þeir
uppi gömlum kunningsskap, fengu í
lið með sér nokkra fleiri námsmenn
íslenzka, og stofnuðu félag—ekki
man eg hvað það hét, en markmiðið
var háfleygt. Fundir voru haldnir í
annari hverri viku—minnir mig—
og var þar mörgu reift, sem vænlegt
þótti til andlegra þrifa—kappræðum
og fyrirlestrum, gagnrýningu á
skáldskap og bókmentum, umræðum
um vísindi og mannfélagsmál.
SkólanámiÖ nægði ekki þessum
mönnum. Hjörtur lá ekki á liði
sínu í þeim félagsskap; og fanst
mér þaö vera heilmikil mentun út
af fyrir sig, að sækja fundina hjá
þeim skólabræðrum og hlusta á um-
ræðurnar; því að sami andinn var
ráðandi þar, eins og áður á Gimli.
Ekki man eg hvar Hjörtur var
viÖ kenslu næsta sumar; en eg hygg
að það hafi verið “vestur í héruð-
um.” Vistin entist honum fram á
vetur, svo að hann kom ekki fyr en
um miðja jólaföstu til Winnipeg.
Hann sótti þegar um inngöngu á
Collegiate og ætlaði að lesa undir
fyrsta flokks kennararpróf, aka- j
demiskt, það sem eftir væri skóla-
ársins. Skólastjórinn, sem Scho-
field hét, var mesti sómamaður,
reglusamur og varfærinn, en hafði |
tií að vera nokkuð stirðbusalegur j
við námsmenn, og þótti yfir höfuð
alt annað en útsláttarsamur i skóla-
formenskunni eða við kennarastarf-1
ið. Hann gaf þvert nei við inn- j
göngubeiðni Hjartar að því sinni, ogj
taldi það menskum manni ókleift að |
lúka fyrsta flokks prófi eftir lið-
ugan hálfs árs lestur í skólanum.
Hjörtur lét það ekki á sig fá.
Hann settist aÖ heima hjá foreldr-
um sínum í Selkirk, keypti sér þau
námstæki, sem hann þurfti; las svo
fyrsta flokks fræðin kennaralaust
það sem eftir var vetrarins, og lauk
prófi um vorið með ágætum vitnis-
burÖi. En ekki sagðist hann hafa
getað stilt sig um að senda Schofield
ofurlítinn saklausan bréfmiða, rétt
til að benda honum á, hve slæman
vitnisburð Schofield hefði gefið
þessum skóla sínum með úthýsing-
unni um veturinn.
Mér finst það eiga vel við, að
setja hér stutta lýsingu á Hirti, eins
og hann kom öðrum manni fyrir
sjónir um þessar mundir—manni,
sem var skóladrengur í Selkirk, þeg-
ar Hjörtur var að búa sig undir
fyrsta flokks prófið. Lýsingin er á
þessa leið, í lauslegri þýðingu:—
“Eg man vel eftir Hirti þegar
hann var að stunda námið einsamall
þar í Selkirk. Við leituðum til hans,
drengir, með erfið efni úr skólan-
um, og alt af var hann tilbúinn með
hjálpina. Á þeim dögum virtist hon-
um vera einkar létt um nám. Mér
er kunnugt um það, að hann sló iðu-
lega slöku við lesturinn. Hann sat
og skrafaði við kunningja sína,
tefldi skák, og svo framvegis. Það
kom mér því nokkuð á óvart að sjá
hve hart hann lagði að sér veturinn
1906-7.
“Hann var fluggáfaður ungling-
ur—sífelt til þess búinn að setjast
á rökstóla eða þreyta kappræður í
sinn hóp eða á mannamótum, eða
þá að yrkja og þýða ljóð. Islend-
ingar í Selkirk dáðust að honum, og
að verðugu. Hann var frábærlega
mannblendinn; aldrei afundinn eða
þur á manninn; jafn-fús að eiga tal
við erfiðisfólkið eins og við hvit-
kragaða “business” menn; enda bar
hann góð kensl á meðfædda hæfi-
leika hjá óskólagengnum löndum
sínuin af eldri kynslóðinni, og veitti
þeim gáfum verðuga viðurkenningu,
hvar sém hann hitti þær fyrir sér.
Það var nokkuð, sem gömlu Islend-
ingarnir aldrei gleymdu.
“Hjörtur var vel heima í bók-
mentum, bæði íslenzkum og ensk-
um. í gömlu sögunum var hann
regluleg fræðslulind, þegar í æsku;
og mjög snemma náði hann merki-
lega góðu haldi á íslenzku máli.
Hann hafði glögga þekkingu og
næman skilning á ensku skáldunum,
og sumum ritgjörðahöfundunum
líka.—Hann var efni í ágætan bók-
mentamann eða rithöfund.”
Lýsingin er eins rétt og sönn eins
og hún getur verið, finst mér—að
þvi viðbættu, að þrátt fyrir gáfna-
flugið og gletnina, þrátt fyrir þetta
taumlausa hugarfjör, sem einkendi
séra Hjört á meðan honum entust
kraftar, þá var hann alvörumaður
alla æfi, og bjó yfir djúpri trúar-
hneigð og brennheitum áhuga fyrir
siðgæði og réttlæti. Eða svo þekti
eg hann. Eg fann þau einkenni hjá
honum tvitugum, á Gimli, og fanst
mér þau koma betur i ljós hjá hon-
um eftir því sem árin liðu.
Næsta vetur tók Hjörtur próf í
kensluvísindum fyrsta flokks, og
var hann þar með útlærður í þeim
fræðum, og eftir ákvæðum laganna
fullhæfur til kennaraverks eða
skólastjórnar hvar sem vera skyldi
á barnaskólum eða miðskólum fylk-
isins. Og þá var einsog verkefni nýtt
og hæfilegt væri lagt upp í hend-
urnar á honum. Einn af kennur-
um Hjartar á Normal skólanum í
Winnipeg—þar sem hann lærði
kensluvísindin—var, ef mér skjátl-
ast ekki, dr. Alexander Mclntyre,
leiðandi maður í mentamálum fylk-
isins. Hann hafði þá í nokkur ár
verið eftirlitsmaður (inspector)
barnaskólanna í Selkirk og Nýja ís-
landi, og hafði veitt því eftirtekt,
segir mér kunnugur, að tiltölulega
margir dugandi námsmenn komu til
æðri skólanna í Winnipeg frá þess-
ari fátæku og afskektu bygð út með
vatninu. Dr. Mclntyre langaði til
að auka gengi barnaskólanna norð-
ur þar; og fyrir áeggjan hans og
umsýslu var svo miðskóli stofnaður
á Gimli um aldamótin. Nýtt skóla-
hús var reist þar með tveim kenslu-
stofum, og Hjörtur var ráðinn til
að veita skólanum forstöðu. H'ann
tók við því embætti haustið 1900 og
stýrði skólanum í þrjú ár, eða til
vors, 1903. Nýi miðskólinn gat sér
ágætan orðstír undir umsjón Hjart-
ar. Mér er sagt, að í öllu fylkinu
hafi enginn miðskóli komið fleiri
nemendum í gegnum próf á þeim
árum, eða með hærri einkunnum að
meðaltali, heldur en Gimli skólinn.
Við Hjörtur vorum lítið saman á
þessum árum, og hittumst fremur
sjaldan; enda var hann önnum kaf-
inn við skólastarfið og ýms auka-
verk. Hann gekk í lúðraflokk, sem
stofnaður var á Gimli og blés í
bassalúður af áhuga miklum í eitt
eða tvö ár. Hjörtur var til með að
reyna flest einu sinni. HJann flutti
iðulega ræður á samkomum og við
önnur tækifæri, og gat sér vaxandi
vinsældir sem ræðumaður. Líka
vakti hann talsverða eftirtekt sem
skáld og rithöfundur. Grein eftir
hann um íslenzkar bókmentir, prýð-
isgóð, birtist, ef eg man rétt, í jóla-
blaði Lögbergs 1901 eða 1902.
Hann birti kvæði eftir sig nokkrum
sinnum, frumsamin á íslenzku, eða
þá enskar þýðingar á íslenzkum
ljóðum. Meðal annars flutti hann
fyrirlestur um íslenzkan skáldskap
á kennaramóti í Winnipeg og las þar
nokkrar þýðingar frá sinni hendi á
ljóðum eftir Matthías Jochumson,
Stephan G. Stephansson og J.
Magnús Bjarnason. Það voru þýð-
ingar, segir vinur hans einn um
þessi sýnishorn.
Um trúarlega reynslu Hjartar á
þessum tima get eg lítið sagt, annað
en það sem hann segir sjálfur í
æfisöguágripi þvi, er lesið var við
vígslu hans vorið 1909. Hann tekur
það fram þar, að um þær mundir
hafi verið nokkuð farið að rofa til
í sál sinni. Þó voru skoðanir hans
allmjög á reilki. “Stundum trúði eg
öllu,” segir hann, “jafnvel katólsk-
um kenningum; stundum hafði eg
nærri því afráðið að ganga á presta-
skóla Únitara.” Séra Runólfur
Marteinsson var þá prestur lútersku
safnaðanna í Nýja íslandi, og taldi
Hjörtur sig hafa haft mikið gott af
að kynnast honum og verki hans.
“Pann eg að það er ómögulegt
nokkrum manni að sýna þá sjálfs-
fórn. sem hann gjörði þar, nema
MACDONALD’S
Fitte Qú
Bezta tóbak í heimi fyrir þá, sem
búa til sína eigin vindlinga.
Ókeypis vindlingapappír
XIG-ZAC
með hverjnm tóbakspakka
Ágætasta vindlinga tóbak í Canada
K.AUPIÐ ÁVALT
LUMBER
Kjá
THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HENRY AVK. KAST. - . WINNIPKG, MAN.
Yard Offiœ: ftth Floor, Bank of Haanilton Chambers.
fyrir áhrif guðs anda.” Samskonar
vitnisburð gefur hann séra Stein-
gríini Thorlakssyni, sem hann hafði
kynst áður í Selkirk. Björtur mun
hafa verið séra Runólfi innan hand-
ar að einhverju leyti við kirkju-
starfið, jafnvel þótt hann sæi sér
ekki fært að gjörast lúterskur safn-
aðarlimur að svo stöddu.
Ein sérstök mynd af séra Hirti
frá skólastjórnartíð hans á Gimli
hefir orðið mér einhvern veginn
minnisstæð. Hún stendur í sam-
bandi við ferðalag Sir Rodmond
Roblins, sem þá var stjórnarfor-
maður Manitobafylkis, norður um
Nýja Isiand veturinn 1901 eða 1902.
Roblin brá sér í pólitíska kynnisför
um hávetur norður með vatninu, og
sýndi meiri mannblendni, meiri
“hupplegheit,” heldur en landar
norður þar höfðu búist við af hon-
um.
Eg átti ferð norður tjl Gimli að
kvöldi dags þegar Roblin var stadd-
ur þar; og varð mér gengið inn í
verzlunarbúð Jóns “kapteins”. Eg
bjóst við að hitta Hjört þar inni og
aðra kunningja; því að sölubúðir
í Nýja íslandi, eirts og viðar um
Vesturheim, urðu stundum nokk-
urs konar samfundastaðir fyrir
frumbúana. Þeir hvörfluðu þang-
að í frístundum og skiftust sögum
við eða sveitafréttum, eða ræddu
pólitík og lögðu á ráðin um að “re-
formera heiminn,” rétt eins og verk-
ast vildi.
Þegar eg kem inn í búðina, rek
■eg augun í Hjört og forsætisráð-
herrann. Þeir sitja þar á rökstólum ;
eða réttara sagt, annar sat á vöru-
kassa en hinn hafði tylt sér upp á
búðarborðið. Þeir voru að spjalla
saman um mentun og mannfélags-
mál eins og gamlir og góðir kunn-
ingjar. Þó höfðu þeir aldrei mæst
áður, held eg; og Hjörtur var
“liberal” í stjórnmálum. Fáeinir
menn aðrir sátu í kring um þá Rob-
lin og Hjört, en lögðu fátt til sam-
ræðunnar. Það leit helzt út fyrir
að þeir væru báðir í sínu essi þar i
búðinni um kvöldið.
■4
Þessi sjón í “kapteins” búðinni—
þar sem Hjörtur sat og skeggræddi
við stjórnarformann fylkisins, eins
og við gamlan góðkunningja—hún
mun hafa vakið hjá mér umhugsun
um merkilegt efni, ráðgátu, sem oft
hefir komið í huga minn síðan.
Gátan er þessi: Hvernig stendur á
því, að maður jafn málreifur og
mannblendinn, og jafnmikill æfin-
týramaður ög andlegur glimukappi,
eins og Hjörtur óneitanlega var í
aðra röndina, skyldi sleppa við að
sogast ofan í hringiðuna miklu í
stjórnmálum þessa lands? Eg veit
það ekki fyrir víst. Mér finst, að
pólitíkin hlyti að hafa heilmikið að-
dráttarafl fyrir mann með einkenn-
um og hæfileikum Hjartar, og að
hann væri mjög líklegur til að geta
sér meiri en litla frægð á því sviði.
Þó flutti Hjörtur aldrei ræðu á
“kosninga” fundi, svo að eg viti,
eða tók annan þátt, opinberlega, í
atreiðum pólitísku flokkanna.
Skjátlist mér í þessu, þá segi aðrir
til, sem betur vita. Að minsta kosti
varð aldrei hljóðbært um nokkuð
slíkt. Ekki skorti hann þó ákveðn-
ar skoðanir í stjórnmálum, eða á-
huga fyrir því sem honum fanst rétt
vera, þar fremur en annars staðar.
En eg held, að það sem bægði hon-
um burt frá leikvellinum pólitíska,
hafi verið sá ófagri skollaleikur, sem
leikinn er alt of oft með flærð og
alls konar brellum á þeim vettvangi,
eins og kunnugt er. Hjörtur var of
mikill alvörumaður, of fylginn sín-
um hugsjónum til þess, að hann
gæti sætt sig við annað eins. Mun
hann þá heldur hafa kosið að koma
þar hvergi nærri.
Og mér er kunnugt um það, að
sama hugsjónatrygðin varnaði hon-
um framsóknar á öðru sviði. Þegar
Hjörtur fór frá Gimli vorið 1896,
bjóst eg hálfpartinn við því að hann
myndi hætta við skólakenslu og
leggja fyrir sig laganám. Það var
auðfundið, þegar hann varði dreng-
inn eftir snjókastið, sem fyr var
frá sagt, að hann hefði haft gaman
af að ílytja mál fyrir rétti. Það
var eins og hann væri þar að reyna
flugfjaðrirnar. Og ekki svo sjald-
an sagði hann okkur sögur af mála-
rekstri og snjöllum ráðum lög-
manna, eða lét okkur finna það á
sér með öðru móti, að hann hefði
öðru hvoru talsverða löngun til að
leita gæfunnar í réttarsalnum.
Þó varð ekkert af framkvæmdum
í því efni fyr en allmörgum árum
seinna—um ártalið veit eg ekki fyrir
víst, en það mun hafa verið annað
hvort i sumarfríi þegar Hjörtur
stjórnaði miðskólanum á Gimli, eða
skömmu þar á eftir. Þá var eins og
atvikin beindu honum út á þessa
braut. Svo vildi til, að hann var
kvaddur til að bera vitni í einhverju
ryskingamáli—sem ekkert var. Þótti
honum ómakið bæði ilt og óþarft.
En annars vegar i réttarhaldinu var
Bonnar lögmaður, einna nafnkunn-
astur allra þeirra stéttarmanna í
WJinnipeg um þær mundir, og talinn
bæði slægur og harðleikinn, þegar
hann þvældi vitni. Þessum manni
varð nú Hjörtur að mæta. Hann
gat ekki stilt sig um að glettast of-
urlítið við lagagarpinn og svaraði
spurningum hans flestum í hálf-
kæringi, en þó svo, að Bonnar gat
ekkert á því haft. Neitaði meðal
annars að fullyrða nokkuð undir eið
um nafn sitt eða fæðingarár, þar
sem hann hefði hvorttveggja eftir
annara sögusögn. Og eins fór hann
með málsatriðin sjálf. Hann var
svo hjákátlega varfærinn, að lög-
maður græddi sáralítið á fram-
burðinum. En þegar svo Bonnar
tók að brýna raustina og ætlaði að
auðmýkja þetta vitni, þá krafðist
Hjörtur þess, að sér væri engin ó-
Fyrir Þá, Sem Altaf
Enj| 'Þreyttir.
Þessir stöðugu þreytuverkir og
sú tilfinning, að altaf gangi eitt-
hvað að manni, á rót sína að rekja
til hægðaleysis. Notaðu Nuga-Tone
og fáðu lækningu á þessum kvilla
áður en hann leiðir til annars
verra og verður ólæknandi. Nuga-
Tone hreinsar þessi eitruðu efni
úr líkamanum, sem eyðileggja
heilsuna og gera lífið óánægju-
legt. Matarlystin verður betri og
meltingin og þú ferð að sofa vel
og verður eins og þér er eðlilegt.
Stundum verður heilsan miklu
betri, eftir að þú hefir tekið Nuga-
Tone bara fáeina daga, svo fljót-
ar eru verkanir þess. Og ef heils-
þín er ekki alveg eins góð eins og
hún ætti að vera, þá láttu ekki
bregðast að reyna Nuga-Tone. Þú
getur fengið það alstaðar ,þar sem
meðul eru seld. Hafi lyfsalinn
það ekki við hendina, þá láttu
hann útvega það frá heildsölu-
húsinu.
Virðing sýnd í réttinum eða þjösna-
skapur; og fékk þá kröfu viður-
kenda. Lögmaður mátti lækka
seglin. En mig minnir, að málið
færi einhvern veginn út um þúfur.
En Hirti til mikillar undrunar, þá
gegur Bonnar til hans að loknu rétt-
arhaldi, hælir honum heilmikið fyrir
einurð og skarpa greind, og segir
a'ð hann sé ágætt lögmannsefni.
Litlu síðar vistaði Hjörtur sig á
skrifstofu Bonnars og tók að stunda
laganám af alefli. Hann undir þar
allvel hag sínum um nokkra hríð.
Sá þó fyrir sér á þeim slóðum ýmis-
legt það, er honum var ekki sem
geðfeldast, en lét sig það litlu skifta.
(Meira)
INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS
Amaranth, Man B. G. Kjartanson
Akra, N. Dakota
Árborg, Man Tryggvi Ingjaldson
Árnes, Man G. Sölvason 1
Baldur, Man O. Anderson
! Bantry, N. Dakota
Bellingham, Wash Thorgeir Símonarson
Belmont, Man
Blaine, Wash Thorgeir Símonarson
I Bredenbury, Sask S. Loptson
Brown, Man J. S. Gillis :
Cavalier, N. Daksta B. S. Thorvardson
Churchbridge, Sask S. Loptson
Cypress River, Man F. S. Frederickson
Edinburg, N. Dakota....
Elfros, Sask .. Goodmundson, Mrs. J. Hi ]
Foam Lake, Sask..
! Garðar, N. Dakota; Jónas S. Bergmann
Gerald, Sask
Geysir, Man Tryggvi Ingjaldsson ;
• Gimli, Man
[ Glenboro, Man F. S. Fredrickson
Hallson, N. Dakota
Hayland, Man
Hecla, Man
Hensel, N. Dakota
Hnausa, Man
Hove, Man..
Húsavík, Man
Ivanhoe, Minn
Kristnes, Sask
Langruth, Man
Leslie, Sask
Lundar, Man S. Einarson
Lögberg, Sask
Markerville, Alta
Minneota, Minn
Mountain, N. Dakota
i Mozart, Sask
Narrows, Man
Nes, Man
Oak Point, Man
! Oakview, Man
Otto, Man
Pembina, N. Dakota. .. .
: Point Roberts, Wash
Red Deer, Alta
Revkjavík, Man
Riverton, Man
Seattle, Wash T. J. Middal
Selkirk, Man
' Siglunes, Man
Silver Bay, Man
Svold, N. Dakota
Swan River, Man
Tantallon, Sask
Upham, N. Dakota Einar T- Breiðfjörð !
Vancouver, B.C
Víðir, Man
! Vogar, Man
Westbourne, Man
Winnipeg Beach, Man...
Winnipegosis, Man
Wynyard, Sask