Lögberg - 15.09.1932, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. SEPTEMBER 1932.
Bls. 5
Bextu kaupln . . .
er nokkru sinni hafa þekst hjá
MOFFAT’S
Jafnvel nú, þegar alt er í lágu
veröi, eru þessi kostat)o5 sjald-
gæf. þessi undursamlega
U
Moffat ..
"'Compact”
Aðeins $89.50 út í hönd
eða $9.50 við móttöku og
$4.00 íi mánuði
COMPACT”
hefir marga yfirburði til brunns
að bera. Hún hefir 4 brennara,
postulínsvarinn ofn, ábyggilegan
hitamæli og Moffat tryggingu.
SKOÐIÐ pESSA ELDAVÉL A
SÝNINGARSTOFU HYDRO
EÐA HRINGIÐ UPP 848 132
ÓKEYPISI
Sérhver sá, er kaupir “Compact”
eldavélina í september fær ókeypis
annaðhvort ketil eða 2 slcaftpotta,
með fílabeins áferð eða hvítum stein-
gljáa.
HUGFESTIÐ að kaupendur þess-
ara eldavéla spara $18.00 á vir-
leiðslunni.
Cítij of Winnfpeg
Hildrollectnc Sustem,
' PRINCESS ST.
55-59
Æfiminning
JÓNS GUBMUNDSSONAR.
Jón Gðmundsson var fæddur á
Berufjarðarströnd í Suður-Múla-
sýslu á íslandi þ. 26. febrúar
1844. Foreldrar hans, Guðmundur
og Járnþrúður, bjuggu á fleiri
stöðum í þeirri sveit. Snemma
misti Járnþrúður mann sinn og
íluttist þá til systur sinnar, Vil-
borgar, konu Þorvaldar Stígsson-
ar á Kelduskógum í sömu sveit.
Þar ólst Jón heitinn upp hjá
móðursystur sinni og manni henn-
ar til þess tíma, að þau fluttust
til Ameríku vorið 1881, en þá fór
móðir Jóns með hann, og fleiri
börn sín, einnig til Ameríku, og
settust að í North Dakota.
Systkini Jóns heitins, sem náðu
fullorðins aldri, voru þessi: bróð-
ir, sem einnig hét Jón, Stefán,
Björgólfur og Guðmundur, einn-
ig tvær systur, Vilborg og Sigur-
laug.
Árið 1891 giftist Jón ekkjunni
Þorbjörgu Sveinsdóttur frá Dal-
geirsstöðum í Miðfirði í Húna-
vatnssýslu. Gjörðist hann þá
stjúpfaðir tveggja barna hennar
frá fyrra hjónabandi, Guðrún,
dáin 1901, og Helga, kona Bjarna
Bjarnasonar hér að Wynyard.
Það sama ár reistu þau hjón bú í
Gavalier County, nálægt Milton á
Pembina fjöllum í Norður Dakota,
og bjuggu þar til árið 1909, að
þau fluttust inn í þessa bygð, og
settust að á heimilisréttarlandi
sínu hér skamt frá Wynyard og
þar sem þau bjuggu til dauða-
dags. Þau hjón eignuðust tvo
sonu, Stefán, dáinn 28. janúar
1919, og Sveinbjörn, sem alt af
hefir stundað þúið með foreldr-
um sínum.
Stefán, sonur Jóns heitins, gift-
ist árið 1916 Kristjönu Kristjáns-
son, dóttur Ólafs Kristjánssonar
frá Morden, Man. Þeirra sonur
er ólafur Júlíus, sem nú er hjá
móður sinni nálæga Mozart, Sask.
Jón heitinn Guðmundsson vor
ekki útsláttasamur eða umsvifa-
mikill í mannfélagsmálum, miklu
fremur fáskiftinn og trúr á öllum
sviðum. Hann hafði auðsæilega
nokkra þá kosti til að bera, sem
prýða hvern mann og farsæla
mannlífið. Hann var framúr
skarandi skyldurækinn, hirðu
samur og hirtinn heimilisfaðir og
búmaður, en það er að vera eft-
irbreytnisverður, og hefðu marg-
ir mátt af því læra að kynnast
eðlisháttum hans í þeim efnum.
Skyldurækni og hirðusemi mynda
ríkan heimilisfrið, ánægju og lífs-
gleði. Við útför látinna vina er
það þýðingarmesti og fegursti
bautasteinninn, sem við getum
reist, og jafnframt okkur huggun
arríkast og haldbezt í endurminn
ingunni, ef við getum vanið okkur
á kosti hinna burthorfnu vina
vorra. Skylduræknin er fögur
dygð, og felur í sér eilíft gildi.
Jón heitinn var alvörugefinn trú-
maður, um það get eg persónulega
dæmt. Fáir réttu vingjarnlegri
hönd eða fögnuðu sjáanlega meir
en hann erindi Krists í kirkjunni,
það var sem hann hugsaði eins og
skáldið: “í fanginu þínu faðir
minn, friðar og kærleiks nýt eg.”
Hugsið ykkur hinn framliðna
bróður okkur, 88 og hálfs árs
gamlan, allavéga af sér genginn,
Þróttur œskunnar
Dr. Magnus Hirschfeld, hinn heimsfrægi sérfræðingur í kynfræði
og forstöðumaður Institute for Sexual Science i Berlfn á pýskalandi,
hefir framleitt
TITUS-PEARLS
til að hjálpa miljónum manna og kvenna, sem hafa verið að tapa
slnum líkamlegu kröftum. Við mikla reynslu og nána athugun hefir
hann komist að því að veiklun eitlanna leiðir af sér ýmsan sjúkleika,
svo sem blóðþrýsting, eykur kalkið urn of í œðunum og gerir mann
örmagna eftir mikla áreynslu. Veldur svima, magnleysl og tauga-
veiklun o. s. frv.
Alt þetta læknast með Titus-Pearls. Dr. Hirschfeld hefir reynt það
við fjölda manna á lækningastofnuninni í Berlín.
L. S. (stjórnar embættismaður, 60 ára gamall, giftur) kvartaði um
magnleysi, svima og skjálfta. Hann varð þreyttur af allri áreynslu.
Varð seinn að hugsa og átti erfitt með það. Heilsa hans hafði verið
veik í 5 ár og blóðþrýstingur of mikill. Hann var látinn taka 2 Titus-
Pearls þrisvar á dag. Tveim vikum teinna var heilsufar hans sem hér
segir: Heilsan betri; meira fjör; sviminn minni; orkan meiri. Eftir
að haldið hafði verið áfram enn I tvær vikur, var magnleysið horfið
og þreytan. Hann var orðinn öruggur og léttlyndur. Blóðþrýstingur-
inn var horfinn og nú, sextugur að aldri, var hann búinn að fá eins
mikla krafta og eins mikinn kjark, eins og þegar hann var upp á sitt
hið besta.
Byrjaðu strax á því að verða aftur ungur! Strax í dag! Innan
tveggja vikna kennir þú hinnar nýju orku I sjálfum þér. Sendu $5.00
(peninga í ábyrgðarbréfi eða póstávísun) fyrir tveggja vikna lækn-
ingatilraun.
Bkrifið eftir bæklingi G.O.D. pantanir teknar gildar.
Gerið svo vel að fylla inn þennan miða:
TEUTONIA IMPORT & EXPORT SERVICE CO., DPT. 16187
211 Fourth Avenue, New York City, N. Y.
Gentlemen: Please forward to the following address.Boxes
Titus-Pearls, for which I enclose $...
My name is................................City..
My address is.............................State..
heyrnin að mestu leyti farin,
hendurnar skjálfandi, svo þær
gátu naumast borið svaladrykk
að munninum og vanmátturinn lá
á hverri taug, einungis hugsunar-
áhöldin nokkurn veginn styrk.
Hugsið ykkur, þegar hann vakn-
ar sðasta sunnudagsmorgun, og
minnist þess í huganum, að þann
dag á að messa á Wynyard, í
kirkjunni hans, og með hugsun
kemst hann að þessari niður-
stöðu: “1 fanginu þínu, faðir
minn, friðar og kærleiks nýt eg.”
Hann fann og hafði orð á því,
að hann væri með lasnara móti,
en til kirkju varð hann að kom-
ast, jafnvel þótt Sveinbjörn son-
ur hans héldi, að hann væri ekki
ferðafær. og það var ekki fyr en
á heimleið frá kirkjunni að hann
gat um það hugboð sitt við son
sinn, að nú hefði hann farið sein-
ustu kirkjuferðina hérna megin
lífsins. Næsta miðvikudag er
hann liðið lík, horfinn heim til
þeirra bústaða, sem Jesús Krist-
ur hefir búið þeim er hann elska.
“í ást og hlýðni eg verkið vinn,
verðlaunin góðu hlýt eg.
í fanginu þínu, faðir minn,
Friðar og kærleiks nýt eg.”
Jóhann Friðriksson.
Tákn tímans
Til þeirra af samlöndum mín-
um hér í landi, sem kynnu að lesa
eftirfarandi línur, vildi eg óska
að geta orðið til hjálpar til að sjá
og skilja það, sem hinn örlaga-
þrungni yfirstandandi tími hefir
í skauti sínu til allra manna. Að
tíminn hinn yfirstandandi sé ó-
vanalega lærdómsríkur öllum al-
varlega hugsandi mönnum, eru
flestir búnir að viðurkenna með
sjálfum sér, þó alt af séu ein-
hverjir af fólki yfirleitt, sem ekki
vilja við það kannast í viðtali, að
þeir þurfi að taka nokkuð til
greina á sérstakan hátt af því,
sem mönnum er opinberað frá
þeim, og af honum, sem er, og
hefir verið stjórnandi aflið í öllu
sem honum verður að lúta, en
það er eðlilega alt, sem hann hef-
ir skapað. í sambandi við það,
sem öllum mönnum er svo eðli-
legt og sameiginlegt, með tilliti
til tákna tímans hins yfirstand-
andi, er það er trúin á æðra og
tilkomandi líf fyrir alla menn, þá
er ekki nema eðlilegt, að margir
séu nú á tímum að reyna að gera
sér grein -fyrir afstöðu sinni við
hann, sem skapaði manninn með
öllum hans mismunandi lyndis-
einkunnum og sálarþrá, að vita
eitthvað um það, sem honum hlýt-
ur að mæta á því landi, sem þeir,
sem nú lifa, eru enn ekki komnir
til, með lífinu hinu tilkomanda.
Allir eiga þrá, sterka eða óljósa,
til að vita hvað hinir svo óvana-
legu reynslutímar kunni að hafa
í för með sér til allra manna, sem
á jörðinni búa.
Frá mínu sjónarmiði ætti það
að vera öllum mönnum og konum
hugljúft, að gera sér grein fyrir
þessu og að afla sér þeirrar þekk-
ingar, sem þeim gæti komið til
hjálpar til að átta sig sem bezt á
því, hvað hér kunni að vera að
ræða um, með tilliti til hinna
margvíslegu tákna, í því sem er að
gerast umhverfis þá um allan
heim. Almenn dagblöð og tíma-
rit eru flest öll mjög svo einhliða
i því að gefa mönnum úrlausn í
þeim efnum, sem sálarþrá þeirra
gefur þeim innri löngun til að fá
hjálp og skýringar á. YfirleitS
er mjög lítið að sjá á þessum
svæðum í því Ijósi, sem ætti að
vera öllum ant að geta séð, hið
hulda afl bak við nálega alt, sem
er að gerast í heiminum á yfir-
standandi tíma, og að fá, ef
mögulegt er, leiðbeiningar og
hjálp til að skilja þessa stórvið-
burði, sem mönnum hafa verið
opinberaðir á síðastliðnum ára-
tugum, en ekki sízt á því, sem
hefir hina mestu þýðingu fyrir
alla menn að fá hjálp til að sjá
og skilja á nú yfirstandandi tíma.| bókum.
synlegt að fá þá beztu úrlausn
sem fyrir hendi er, að þá er eðli-
legt að leitað sé þangað, sem
mönnum ávalt er gefin hin eina
ábyggilega hjálp og leiðbeining,
sem hann gefur, sem stjórnar og
ræður yfir öllum hlutum og einn-
ig yfir smá-atriðum í lífi mann-
anna, sem hans hjálpar og að-
stoðar vilja leita og þiggja. Og
það er frá því sjónarmiði, að eg
tek mér það frjálsræði að benda
löndum mínum á, að aldrei í sögu
mannanna hefir verið meiri þörf
á að þeir geri sér ómak að kynn-
ast því, sem hinn Alvitri vill
hjálpa þeim til að sjá og skilja í
öllum þessum margvíslegu og örð-
úgu spursmálum yfirstandandi
tákna og viðburða. Þess vegna
langar mig til að bjóða þeim af
löndum mínum, sem kynnu að
vilja láta þessar mínar í einlægni
gefnu bendingar koma þeim til
hjálpar, að benda þeim á auglýs-
ingu annars staðar í blaðinu á
nokkrum smáritum og bókum, sem
eg get fyllilega mælt með að vera
rituð af mjög þar til hæfum mönn-
um, og í nákvæmu samræmi við
það, sem Guðsorð segir um hinn
yfirstandandi tíma, og sem gefur
þeim nákvæma lýsingu á öllu, sem
er í vændum, og hlýtur að koma
fram í lífi þjóða og einstaklinga
á mjög nálægum tíma.
Á eitt atriði i táknum tímans
yfirstandandi vil eg sérstaklega
benda íslenzkum foreldrum, sem
er nærri ótrúlegt að gæti rutt sér
inn í vissar stofnanir þessara
landa, hafa nú viðtekið og sett
inn í vissar deildir skólanna sem
kenslugreinir þá óhæfu, sem í alla
staði er ósönnuð og vitanlega
verður aldrei sönnuð, að mann-
kynið sé komið frá einni tegund
dýra jarðarinnar, en ekki frá
hendi hins alvitra og algóða föð-
ursins á himnum, eins og grein
er gjörð fyrir því í byrjun heil
agrar ritningar. Ekki getur mað-
ur annað en treyst því og trúað,
að hér sé um háalvarlegt atriði
að ræða í augum allra sannkrist-
inna manna. Er nokkur furða, þó
allir alvarlega hugsandi menn og
konur spyrji: Hvert stefnir
þetta? Og þetta gefur tilefni til
í hjartans alvöru að spyrja: er
það ekki ómaksins vert að heyra
og sjá hvað sá segir um alt þetta,
sem menn aldrei geta flekað eða
náð valdi yfir?
í tilefni af þessu hefir mér
komið til hugar, að bjóða löndum
mínum þær beztu bækur og smá-
rit, sem nú eru óðum að fjölga,
og mörg eru rituð af vel þektum
og til þess hæfum mönnum; en
hér er sérstaklega átt við það á
prentuðu máli, sem ritað er í
nánu samræmi við það, sem Heil-
ög ritning og spádómsbækur
hennar hafa að gefa fólki til úr-
lausnar á öllu þessu, sem ætti að
vera til trúarstyrkingar og hjálp-
ar til að athuga það “eitt nauð-
synlegt“ og gefa því graum ein-
göngu, sem mönnum er gefið að
ofan frá hinum alvitra og stjórn-
ara allra hluta. Það verður því
í blaðinu í þetta sinn bókalisti yf-
ir smárit og bækur sem eru rit-
aðar af vel þektum rithöfuníum.
Eg vil sérstaklega benda fólki á
bók um atriðin viðvíkjandi hinni j
svokölluðu framþróunarkenningu.
Titill bókarnnar er: “Does Sci-
ence Support Evolution?” Bókin
er eftir frægan mentamann. Á
framsíðu bókarinnar, sem er 160
blaðsíður, er þetta: “By E. Ralph
Hooper, B.A., M.D., for 21 years
Demonstrator in the Anatomical
Department of the Medical Fac-
ulty of the University of Toronto.”
— Allar bækur og rit eru seldar
með auglýstu söluverði bókanna
og sendar mönnum kostnaðar-
laust. f undirbúningi er bók, sem
undirskrifaður hefir haft mikinn
undirbúning með að koma á prent.
Þetta er gert með sérstöku tilliti
til þeirra af löndum mínum hér,
sem ekki hafa full not af enskum
Þessi bók og væntanlega
Rlm!
Til gamla landsins
Ódýrar, fljótar og þægilegar ferðir
MEÐ
Canadian Pacific Steamships
Vlkulegrar ferSir frá Montreal beint til Glasgow. Ný og stór
eimskip með björtum og víðum farrýmum. Gott fæði. Kurteys
umgengni. Söngur, leikir og margar aðrar skemtanir.
Þriðja folkks skipsrúm til Reykjavíkur, aðra leið, $98.50
fram og til baka........... .................$167.00
Við útvegum vegabréf og önnur skírteini. Landsvistarleyfi fyrir konur,
smábörn og unnustur einnig útveguð.
Peningar sendir hvert sem vera skal. Leitið upplýsinga hjá næsta
umboðsmanni, eða skrifið á íslenzku til:—
W. C. CASEY, Steamship General Agent
372 MAIN 8T., Winnipeg, Man.
ÚTILEGUMANNAKOFI
fundinn hjá Gæsavötnum.
Hinn 20. júlí voru landmælinga-
mennirnir hjá Gæsavötnum, sem
eru undir norðurbrún Vatna-
jökuls, skamt frá Vonarskarði.
í bréfi, sem Steinþór Sigurðs-
son skrifar þaðan, segir hann svo
frá:
— Hér erum vér 920 m. yfir
sjó, en jökulbrúnin er nokkuð
sunnar, í 12—1300 m. hæð. Brekk-
an upp er hér í tveimur hjöllum;
sá næsti er rétt suður af vötnun-
um og þar er smáhnúkur — Gæsa-
hnúkur — á annað hundrað m.
hár hér frá vötnunum (1095), en
brúnin sveigir svo austur fyrir
vötnin til norðausturs að Trölla-
dyngju. Hið sama gerir efri brún-
in, en jökulröndin liggur í sveig
til austurs suður fyrir Kistufell.
Á efri brúninni eru hér
í austri tveir smátindar, sem
sveigjast hvor að öðrum, svo að
eg hélt fyrst, að það væri gíg-
barmar. En það kom i ljós, er
vér komum þangað, að þetta voru
tveir móbergshattar. Hinn 20.
júlí vorum vér við nyrðri hnúk-
inn að mæla, og þá fann eg þar í
krikanum hlaðinn kofa milli
tveggja stórra steina. Hann er
hlaðinn úr móbergi hringmynd-
aður, rúmlega 2 metra í þvermál
að neðan og hefir verið hlaðinn
upp í strýtu. En þaklð er fallið
niður og kofinn auk þess hálf-
fullur af sandi. Dyrnar snúa að
vötnunum, og er gott útsýni úr
þeim yfir alla sléttuna, hraunið
og fljótið niður fyrir Marteins-
flæðu (sem er við Skjálfanda-
fljót), enda er þetta í 1214 metra
hæð. Frá vötnunum sést kofinn
ekki, því að hann fyllir út skarð-
ið milli tveggja móbergskletta og
er sjálfur úr sama efni. Býst eg
við að þetta mannvirki sé annað
hvort frá söguöldinni, eða þá að
Fjalla-'Eyvindur, eða aðrir úti-
legumenn hafi hlaðið kofann, því
að tæplega er hann frá síðari tím-
beint um. Vötnin fundust fyrst 1880 og
trúi eg illa, að fjárleitarrnenn
hafi farið þar upp til þess að
hlaða kofann, en hitt líklegra, að
hann hafi verið notaður sem
felustaður, því útsýn er góð það-
an, en kofinn ekki auðfundinn.—
Mgbl.
f
Það hefir verið mitt hlutskifti
lim nokkurn tíma, að geta í ró og
næði gefið mér tíma til að athuga
alt þetta, sem hér er bent á, að
aðrar um þessi efni, verða aug-
lýstar síðar.
“Ekki veldur sá er varir.”
Guðm. P. Thordarson,
öllum mönnum sé skylt og nauð- 611 Simcoe St., Winnipeg.
Heres a LittleTip!
When you decide to supplement your Public, High
School or even University education with a thor-
ough business training, you are actually putting
dollars in your pocket.
Your School Education
has Cultural Value—
Your Business Education
has Pra£tical Value—
The one is for social usage—the other develops
your earning power. It is vitally necessary in
this age of intensified production that every
young man and woman receive instruction in the
modern methods of business operation.
You owe it to yourself
to investigate just what a Dominion training
would mean to you. Our courses are thorough
and complete in
Stenography - Bookheeping
Secretarial - Clerical - Accounting
Write, ’phoneor call for Prospectus giving details
of all courses.
DOMINION
BUSINESS COLLEGE
THE MALL—WINNIPEG
DAVID COOPER, C.A.
President.
‘Phone 37 181 \\!T}ranches : St. James, (Slmwood, St. Johns