Lögberg - 15.09.1932, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. SEPTEMBER 1932.
BIs. 3.
Sólskin
SÖLSTAFIR
Ljá mér eyra ljóða dísin unga,
Lát mig heyra alt sem getur tunga,
Klætt í mannlegt mál og orða búningi—
Máttar þroskans hreyfi öldu snúning.
Finst mér ljúft að fálma út í bláinn,
Finn þar máske alt sem hefur þráin
Seytt og ofið inn í löngun mína,
Alla fögru hljóðstafina þína.
Glaðnar yfir, ský frá sólu svífur,
Svana liljómur þagnar geiminn klýfur;
Blærinn raular barna gælu þýða,
Bjartir straumar yfir hvelin líða.
Sálar hugboð sólar stafi málar,
Sannleiks höndin við því fallna rjálar,
Birtir nýja, ljúfa hugar heima,
Hringiðuna sjálfa fer að dreyma.
Dísin fagra dreyptu á þurra tungu,
Dropa af þinni frelsis hugsjón ungu,
Lát þar bjarta ljóma sólar stafi,
Ljóða magn frá þínu óðar hafi.
Vermi líf frá sólar sölum þínum,
Sendu gleði þanka-brotum mínum.
Sendu frið og sálar huggun blíða,
Sendu kraft þeim veiku til að stríða.
Færðu börnum blíðust ástar hótin,
Blessun svo að styrki litla fótinn,
Fylgd og vörn þeim ver á lífsins leiðum,
Leiðarstjarna yfir þeirra heiðum.
Ljóða gyðjan, lýstu í manna hjörtu,
Leiftra þínum vísdóms neistum björtu,
Þar sem tötrar toga dimman skugga,
Tendra blys við þeirra sálar glugga.
Yndo.
BERGMÁLSPRINSINN
Konungsonurinn í Zizzadoníu liét Bergmál.
Þetta var ungur og fallegur konungssonur,
en hafði þann slæma galla, að hann hermdi alt
eftir, sém liann heyrði aðra segja. Og þess-
vegna var hann kallaður Bergmál.
—Þetta venst af honum eins og allur annar
óvani, þegar hann er orðinn stór, sagði kon-
ungurinn.—Því að annars getur hann ekki
orðið konggir eftir minn dag.
—Eg verð gráhærður af sorg út af þér,
sagði hann við prinsinn.
—Gráhærður af sorg yfir þér, át hinn eftir.
—Þú verður aldrei, konungur!
—Aldrei konungur, bergmálaði prinsinn.
—Og þú færð aldrei prinsessuna fyrir konu!
—Aldrei prinsessuna fyrir konu, sagði
prinsinn. Það var ógeniingur að tala við
hann.
En loksins þegar prinsinn stækkaði, skildi
hann hvaða vandræði það voru að geta aldrei
sagt neitt frá eigin brjósti, heldur aðeins éta
það eftir sem aðrir sögðu. Og svo einsetti
hann sér að svara jafnan hyggilega framveg-
is. En hann gat það ekki, hvemig sem hann
reyndi. Ilann var orðinn of’gamall og óvan-
inn of ríkur í honum.
Og prisinn fór að skæla, drotningin fór að
skæla og alt fólkið í Zizzidoníu fór að skæla,
af því að prinsinn gat ekkert nema étið eftir
það sem aðrir sögðu.
En öll tár í Zizzidoníu gátu ekki þvegið
þennan óvana af prinsinum og þessvegna kall-
aði kongurinn snjallasta lækninn í Zizzidoníu,
hann Dust lækni til sín og hann kom sam-
stundis. Hann var svo lærður, að liann gat
lesið alt, sem skrifað var í stjörnunum. Og
hann var svo gamall að það var ekkert hár
eftir á höfðinu á honum, og hann hafði svo
sterk gleraugu, að hann g»t séð allar álfur
heims í einu.
—Góði Dust læknir, gerið þér mér nú þann
greiða að lækna hann Bergmál prins, sagði
kongurinn. Þá skuluð þér verða líflæknir
hans þegar hann .er orðinn kongur í Zizzi-
doníu.
0g læknirinn skimaði nú í allar áttir gegn-
um sterku gleraugun sín. Á afviknum stað
norður í Tröllafjöllum kom hann auga á jurt,
—það var galdrajurt, sem læknaði alla sjúk-
dóma milli himins og jarðar. En það var
erfitt að finna hana, því að hún bar ekki blóm
fyr en dimt var orðið á kvöldin, svo að mað-
ur varð að hafa með sér Ijósker til þess að
finna liana.
Sérstök deild í blaðinu
Fyrir börn og unglinga
—Nú hætti prinsinn að skæla og kongurinn
og drotningin hættu að skæla og þurkuðu sér
um augun, því að nú vonuðu allir, að prinsinn
gæti orðið eins og annað fólk.
Syo var það eitt kvöld, að Bergmál prins
tók sér ljósker í liöiul og lagði af stað norður
í Tröllafjöll til þess að finna jurtina skrítnu.
Á leiðinni rak hann löppina í stóran s'tein,
svo að hann losnaði og valt með ógurlegum
gauragangi niður hlíðina og tók undir í öllum
Tröllafjöllum. Þá heyrðist ferleg rödd innan
úr f jallinu. Hún sagði:
—Hver er svo djarfur að raska ró minni
hérna í fjallinu?
—Ró minni hérna í fjallinu, svaraði prins-
inn því að hann gat ekki svarað öðruvísi.
— Hver er svo heimskur að þora að herma
eftir tröllinu í fjallinu, heyrðist sagt aftur
innan úr berginu.
—Heimskur að þora að heima eftir tröll-
inu í fjallinu, sagði prinsinn.
Þá heyrðusf voðalegir brestir í fjallinu og
áður en prinsinn hafði litið við kom gífurlega
stór hnefi út úr klettarifu, greip hann og tók
hann inn í bergið. Og nú sat hann þarna í
fangelsi.
Nú fór kongurinn að undrast um prinsinn,
er hann kom ekki aftur á tilætluðum tíma.
Hann sendi þjóna sína að leita að honum.
Þeir leituðu og leituðu og þegar þeir sáu ekki
neitt fóru þeir að kalla :
—Bergmál kongssonur! Hvar ertu?
—Kongssonur, hvar ertu, var svaiað inni í
fjallinu. Og þá sneru leitarmennirnir heim
og sögðu að kongssonurinn sæti bergnuminn
inni í Tröllaf jalli. Þeir höfðu ómögulega get-
að náð í hann, en heyrðu greinilega hvemig
hann át alt eftir þeim er þeir kölluðu.
Nú fór kongurinn sjálfur upp í Tröllaf jall.
—Er hann sonur minn í fjallinu? hrópaði
hann.
—Sonur minn í fjallinu, var svarað undir
eins.
Hefurðu ekki fundið jurtina? spurði kong-
urinn.
—Ekki fundið jurtina var svarað í f jallinu.
Nú er ekki um annað að gera en að reyna að
ná í Dust lækni. Kongurinn bað hann í öllum
lifandi bænnm að finna leiðina inn í bergið.
En vitri læknirinn las alt, sem lesið varð í
stjömunum, og í sjö konungsríkjum, en varð
einskis vísari um, hvemig ætti að komast
inn í fjallið.
Og svo sat kongssonurinn þarna í fjallinu
í sjö ár, en á áttunda árinu eftir hvarf hans,
kom ungur og fríður maður að hallardyrum
konungsins einn góðan veðurdag og barði á.
—Hver bukkar á mín hús? spurði kongur-
inn.
Það er Bergmál konungssonur í Zizzidoníu
svaraði gesturinn.
Og kongurinn opnaði liliðið og prinsinn
gekk inn. Loksins hafði honurn tekist að flýja
úr helli bergrisans og svo hafði hann enn-
fremur fundið jurtina góðu og hafði hún lækn-
að liann að fullu, svo að nú hermdi hann
aldrei eftir neinum. Hann hafði skilið þenn-
an leiða ávana eftir uppi í Tröllafjöllum.
—Segirðu mér satt, sonur minn? spurði
kongurinn alveg forviða.
—Farðu út og kallaðu upp í Tröllafjöll og
þá færðu svarið, sagði kongssonurinn.
Og kongurinn gerði það og kallaði eins hátt
og hann gat:—Er það ávaninn lians Berg-
máls kongssonar, sem svarar?
—Ávaninn lians Bergmáls kongssonar sem
svarar, heyrðist aftur.
Svona varð bergmálið til, og þið þekkið það
sjálfsagt öll og hafið heyrt það margsinnis.
En þið vitið víst ekki fyr en nú, hvernig á því
stendur.
—Fálkinn.
MJALTASTÚLKAN /
BJ ARN ARHAMNUM
Það var björt, unaðsleg vornótt. Allur
dalurinn var fyltur sumarangan. A himninum
blikuðu bleikar stjörnur.
En í fjósinu á Hóli, stærs'ta bænum í daln-
um, var alt í uppnámi. Allar kýrnar stóðu á
básunum, í stað þess að liggja og sofa, eins
og kýr eiga að gera á nætumar. Þær bauluðu
og öskruðu svo liátt, að ekki heyrðist manns-
ins mál.
Ef fólkið á ba'num hefði heyrt til þeirra,
myndi það hafa sagt:
—Það lilýtur að vera hundur úti í fjósinu,
fyrst að kýrnar láta svona illa.—Því að ekkert
fer eins í taugainar á kúnum og ókunnugir
hundar.
En það var ekki hundur, sem átti sök á ó-
látunum í fjósinu. Svo var mál með vexti,
að kýrnar höfðu séð stóran skógarbjörn, þeg-
ar þær vom á beit uppi í skóginum um daginn,
svo að það var engin furða, þó að þær væru
hræddar.
—Hvað eigum við að taka til bragðs? sagði
Reyður, sem var forystukýrin. — Enginn á
bænum veit af biminum, svo að við verðum
áreiðanlega reknar upp í skóginn á morgun,
og þá getur björninn komið og sálgað okkur
öllum!
—O, það getur nú dregist að liann leggi mig
að velli! þrumdi Svartur, stóra nautið með
breiða skallann og löngu hornin.
—Að heyra til þín bjálfinn þinn! sagði
Reyður fyrirlitlega.—Það er minstur vand-
inn að standa hér og bera sig borginmann-
lega. Hvað heldurðu að þú getir þegar björn-
inn langar þér högg með hramminum? Ætli
að þú verðir ekki lúpulegri þá!
. Svartur varð kyrlátari eftir þessa áminn-
ingu. Hann draup höfði og gat engu orði upp
komið.
—Það væri strax mikil bót ef við hefðum
almennilega smalastúlku til þess að gæta okk-
ar, sagði Reyður.—En stelpan, sem gætir okk-
ar púna, hefir ekki vit fyrir túskilding. Nei,
hún Kata, sem var hérna í fyrra, það var al-
mennileg stúlka! En liún týndist í skóginum,
því er nú ver og miður. Eg liugsa að tröllin
hafi rænt henni.
—Já, sögðu hinar kýrnar og andvörpuðu,
bara að hún Kata væri bérna til þess að
bjarga okkur. En eins og nú stendur á, er úti
um okkur allar!
Það var hörmulegt að heyra hvað kýrnar
báru sig illa.
Alt í einu datt alt í dúnalogn. Lítil, grá-
klædd vera, með rauða húfiu á höfði, smeygði
sér inn um dyrnar. Þetta var búálfurinn.
—Það gengur mikið á hér í nótt, sagði hann.
Af hverju stafa öll þessi ólæti, með leyfi að
spyrja?
Reyður sagði honum þá með tárin í aug-
unum, að nú væri úti um þær allar, því að
stóieflis björn hefðist við í skóginum.
—Nú, er það ekki alvarlegra, sagði liann.—
Æ'tli að maður hafi ekki einhver ráð.
Að svo mæltu tók hann litla krukku upp úr
vasa sínum og bar síðan einhverskonar
smyrsl á hornin á Svarti.
—Nú þarftu ekki annað en að rispa björn-
inn ofurlítið með hornunum, sagði búálfur-
inn, þá fellur hann niður steindauður. Þessi
smyrsl erfði eg eftir langömmu mína, og þau
eru sterkasta eitur, sem til er í heiminum!
Nú getið þið allar verið rólegar úr þessu. Ef
þið mætið biminum á morgun, þá verður
Svartur ekki lengi að koma lionum fyrir katt-
amef! ^ |||'|
Síðan fór búálfurinn og nú varð kyrt í fjós-
inu. Kýrnar fóiu allar að sofa, því að nú
voru þær ekki liræddar lengur.
Daginn eftir voru kýrnar reknar up]> í skóg-
inn að vanda. Ekki leið á löngu, áður en
björninn kom, og var hann ógurlegur á að líta.
Hann öskraði svo há'tt, að trén í skóginum
skulfu og kálfamir urðu svo máttlausir í
knjánum af hræðslu, að þeir duttu allir á haus-
inn. Hann froðufeldi af bræði og eldur brann
úr augum hans. Hann réðst óðar á Svart.
Nú liófst ógurlegur bardagi! Báðir liöm-
uðust svo að moldin fauk fjöllunum hærra.
Bjöminn sló og Svartur stangaði svo að und-
ir tók í skóginum. En ekki leið á lömgu, áður
en Svarti tókst að reka bæði homin í brjóst
bjarnarins. Féll þá björninn steindauður til
jarðar.
En livað haldið þið að þá hafi komið fyrir.
“ Alt í einu rís stúlka upp úr dauðum bjarnar-
skrokknum! Og þetta var engin önnur en
hún Kata smalastúlka.
—Þakka þér fyrir Svartur minn! lirópaði
hún. Ólukkans tröllið brá mér í bjamarham
og nevddi mig til að drepa skepnur. En nú
hefir þú leysit mig úr álögum!
Sólin ljómaði og fuglarnir sungu, og kýmar
og kálfarnir slógu hring um Kötu og Svart
og dönsuðu af fögnuði.
—Fálkinn.
PROFCSSIONAL CARDS fS-
A .1. .A. A A A L A,
DR. B. J. BRANDSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone 21 834 — Office tímar 2-3
Heimili 776 VICTOR ST.
Phone 27 122
Winnipeg, Manitoba
DR. L. A. SIGURDSON H. A. BERGMAN, K.C.
216-220 Medical Arts Bldg. tslenzkur lögfrœOingur
Phone 21834 Skrifstofa: Room 811 McArthur
Office tímar 2-4 Building, Portage Ave.
Heimlli: 104 HOME ST. P.O. Box 1656
Phone 72 409 PHONES 95 052 og 39 043
DR.O. B. BJORNSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone 21 834 — Office tímar 2-3
Heimili 764 VICTOR ST.
Phone 27 586
Winnipeg, Manitoba
Drs. H. R. & H. W.
TWEED
Tannlæknar
406 TORONTO GENERAL
TRUST BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 26 545 WINNIPEG
W. J. LINDAL, K.C. og
BJORN STEFANSSON
tslenzkir lögfrœOingar
325 MAIN ST. (á ööru gölfi)
Talsimi 97 621
Hafa einnig skrifstofur aö Lundar
og Gimli og er þar aö hitta fyrsta
miðvikudag I hverjum mánuði.
DR. B. H. OLSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone 21 834 — Office timar 3-5
Heimili: 6 ST. JAMES PLACE
Winnipeg, Manitoba
DR. J. STEFANSSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone 21.834
Stundar augna, eyrna, nef og
kverka sjúkdöma.—Er að hitta
kl. 10-12 f. h. of 2-5 e. h.
Heimili: 638 McMILLAN AVE.
Talsími 42 691
Dr. P. H. T. Thorlakson
205 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phones 21 213—21 144
Heimili 403 675
Winnipeg, Man.
DR. A. BLONDAL
602 Medical Arts Building
Stundar sérstaklega kvenna og
barna sjúkdöma. Er að hitta
frá kl. 10-12 f. h. og 3-5 e. h.
Office Phone 22 296
Heimili: 806 VICTOR ST.
Slmi 28 180
Dr. A. B. Ingimundson
Tannlœknir
602 MEDICAL ARTS. BLDG.
Slmi 22 296 Heimilis 46 054
DR. A. V. JOHNSON
tslenzkur Tannlœknir
212 CURRY BLDG., WINNIPEG
Gegnt pósthúsinu
Slmi 96 210 Heimilis 33 328
A. S. BARDAL
848 SHERBROOKE ST.
Selur llkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaður sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
Skrifstofu talslmi: 86 607
Heimilis talsími 501 662
A. C. JOHNSON
907 Confederation Life Bldg.
Winnipeg
Annast um fasteignir manna.
Tekur áð sér að ávaxta sparifé
fölks. Selur eldsábyrgð og bif-
reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir-
spurnum svarað samstundis.
Skrifst.s. 96 757—Heimas. 33 328
J. T. THORSON, K.C.
tslenzkur lögfrœOingur
Skrifst. 411 I’ARIS BUILDING
Phone 96 933
J. RAGNAR JOHNSON
BA... LL.B., LL.M. (Harv).
íslenzkur lögmaOur
Ste. 1 BARTELLA CRT.
Heimaslmi 71 753
G. S. THORVALDSON
B A, LL.B.
LögfrœOingur
Skrifst.: 702 CONFEDERATION
LIFE BUILDING
Main St., gegnt City Hall
Phone 97 024
E. G. Baldwinson, LL.B.
tslenzkur lögfrœOingur
808 PARIS BLDG., WINNIPEG
Residence Office
Phone 24 206 Phone 96 635
Dr. S. J. Johannesson G. W. MAGNUSSON J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
stundar lækningar og yfirsetur Nuddlœknir 601 PARIS BLDG., WINNIPEG •
Til viðtals kl. 11 f. h. til 4 e. h. 41 FURBY STREET Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
og frá kl. 6-8 að kveldinu Phone 36 137 vega peningalSn og eldsábyrgð af
öllu tagi.
532 SHERBURN ST.-SImi 30 877 Símið og semjtð um samtalstlma Phone 94 221