Lögberg - 22.09.1932, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. SEPTEMBER 1932.
Bls. 5
fremur eygður, 1 raftala, um 2.3
að þverm. og 0.7 að þykt, og 1
græn glertala, með hvítum rönd-
um um 1.2 cm. að þverm. og 0.6
að þykt. Hafa þessar tölur, leif-
ar af fullkomnara steinsörvi,
verið í bandi um hálsinn. Af
beinunum má sjá, að maðurinn
hefir verið lágur vexti, og grann-
ur, að líkindum; langleggurinn er
43.3 cm. að lengd. Tennurnar eru
all-slitnar, en óskemdar. Virðist
maðurinn kunna að hafa verið
um sextugt, er hann dó. Höfuð-
kúpan ber vott um, að hann hef-
ir verið langhöfði. Hún er ein-
kennilega þykk upp af nefbein-
inu og er þar sem hnúður á.
Dysin er eflaust frá heiðni,
sennilega ofanverðri 10. öld. Hún
virðist aldrei hafa verið nálægt
neinum bæ og kann maðurinn að
hafa verið veginn þar sem hann
var dysjaður, en raunar er alt ó-
víst um það, og hver hann hefir
verið.
Beinin, og þeir munir, er fund-
ust hjá þeim, eru komin til Þjóð-
minjasafnsins. — Mgbl. 25. ág.
Sir James Jeans
Enginn náttúrufræðingur, sem
nú er uppi, er eins mikið lesinn
eins og enski stjörnufræðingurinn
Sir James Jeans. bækur hans eru
lesnar í tugum þúsunda af ein-
tökum, stjörnufræðarit hans eru
lesin eins mikið og víðlesnustu
skáldsögur. Hann hefir í ýmsum
ritum sínum vikið að þeim heim-
spekilegu niðurstöðum sem dregn-
ar yrðu af rannsóknum náttúru-
vísindanna. En hann segir í nýj-
ustu ritgerð sinni um þetta efni,
að þegar alt komi til alls, verði
eðli og tilgangur alheimsins ekki
skýrður af eðlisfræðinni einni,
eðlisfræðilegar og vélrænar skýr-
ingar hafi brugðist og þurfi þá
einlægt að grípa til stærðfræði-
legra skýringa til þess að koma
röð og reglu á rannsóknir mánna
og hugmyndir. Hann segir, að til-
raunum manna til þess að skýra
eðli alheimsins megi skifta í þrjú
tímabil. Fyrsta tímabilið er frá
upphafi fram á daga Gelileis og
Newtons, annað tímabilið er frá
þeim og fram í byrjun þessarar
aldar og þriðja tímabilið það sem
af er þessari öld.
Fyrsta tímabilið var tími dul-
rænna skýringa eða andatrúar.
Sá tími fór vilt í því að halda, að
rás náttúrunnar væri stjórnað af
kenjum og ástríðum vera, sem
að meiru eða minnu leyti líktust
manninum sjálfum, af góðum eða
illum öndum, goðum eða gyðjum.
álfum og forynjum. Annað, eða
vélræna tímabilið hófst, þegar
eðlisfræðin fór að fást við rann-
sóknir efnisins, hinnar dauðu
náttúru. Þessi vélræna skoðun á
alheiminum hélst fram undir síð-
ustu aldamót. Samkvæmt henni
var heimurinn settur saman úr
rúmi, tíma, efnislegum líkömum,
orku sem verkaði á þá, og efnis-
legum ljósvaka, sem fylti alt rúm
og gegn um hann barst orkan.
Vísindi tuttugustu aldarinnar
hafa blásið burtu þessum kenn-
ingum. Þeim var blásið burtu af
því að þær gerðu beimsmynd vís-
indanna ótrygga og ruglingslega.
Að vísu hefir tími og rúm ekki
verið blásið algerlega burtu, en
þau hafa hvort um sig mist öll
einstaklingseinkenni sín og verið
blandað saman í nýja kenningu,
sem er ólík hinum báðum, sem sé
rúmtíma (space-time continuum).
Ef vísindin hefðu haldið áfram
með hinar gömlu aðferðir sínar,
hefðu þau næst getað reynt að
draga upp hlutræna mynd af
þessari einingu. En þau fóru alt
aðra leið. Þau fóru nú eftir alda-
mótin, aðallega fyrir áhrif frá
Poincaré, Einstein og Heisenberg,
að sjá það, að eina viðeigandi
rannsóknarefni þeirra voru áhrif
þau, er efnisheimurinn hafði á
huga okkar. í þessum efnum
komst því á samræmi milli vís-
inda og heimspeki, ekki af því að
vísindin hefðu neina sérstaka til-
hneigingu til þess að hallast að
hugspeki, heldur af því, að hugs-
unin um það, að til væru hlutir,
sem ekki væri unt að skynja, lenti
i ómögulegum ógöngum. Sir James
Jeans nefnir dæmi: 1 blindri trú
sinni á vélgengi alheimsins gerðu
vísndi 19. aldarinnar ráð fyrir
því, að rafmagnsbylgjur (t. d. við
útvarp)i gætu ekki breiðst út, svo
skiljanlegt yrði, nema gert væri
ráð fyrir ljósvaka, sem þær
hreyfðust í. Nú hafa vísindin
ekki getað sýnt nein áhrif þessa
Ijósvaka á skynjun okkar og Hafa
blátt áfram afnumið ljósvakann,
slept honum úr hugmyndakerfi
sínu og með því getað fengið full-
nægjandi skýringar á fyrirbrigð-
inu, sem um er að ræða.
Nú líta vísindin á fyrirbrigði
efnisheimsins á stærðfræðilegan
hátt, sumpart til þess að geta
skýrt þau sem beZt og sumpart
vegna þess, að annar hlutlaus skoð-
unarháttur er ekki til. Skáldið
getur séð skáldskap í alheimin-
um, listamaðurinn list, siðfræð-
ingurinn tilgang, en þetta eru
persónuleg sjónarmið og ekki að-
al einkenni á heiminum, fremur
en litur og ilmur eru aðal-
einæenni á einstökum hlutum1
hans. í hinu stærðfræðilega sjón-
armiði á eðli alheimsins kemur,
að áliti Sir James, ekki til mála
nein óvissa vegna mats á góðu og
illu, fögru og ljótu. En aðalat-
riðið er samt ekki það, að vísind-
in hafa stungið af stokki öllu
nema hinu mreina, stærðfræði-
lega sjónarmiði, aðalatriðið var|
hitt, að vísindin voru neydd til þess
af beinhörðum staðreyndum nátt-
úrunnar sjálfrar. Þau hafa líka
orðið að losa sig við hverja eðlis-
frægiskenningua af annari, unz
ekkert varð eftir nema röð af at-
burðum í fervídd rúmtímans. —-
Lögrétta.
Vígsla
Siglufjarðarkirkju
Frá íslandi
Siglufirði mánudag 29. ág.
Eins og til stóð fór vígsla hlnn-
ar nýju kirkju hér fram klukkan
2 á sunnudaginn. Hófst hún með
því, að klukkum gömlu kirkjunnar
var hringt og síðan gengu biskup
og átta prestvígðir menn ásamt
honum með gripi gömlu kirkjunn-
ar til hinnar nýju kirkju.
Biskup vígði kirkjuna og síðan
hélt séra Bjarni Þorsteinsson
guðsþjónustu. Var kirkjan troð-
full af fólki. Hún tekur um 600
| manns í sæti, en talið var að 900
væri þar inni, en þó mundi hitt
fleira, sem úti fyrir stóð, og ekki
komst inn.
Að vígslu lokinni var haldið
samsæti og voru þar mikil ræðu-
höld.
Kirkjan hefir kostað rúmlega
hundrað þúsundir króna, en þó
vantar enn nokkuð á það, að hún
sé fullger. — Mgbl.
Reykjavk, 28. ágúst.
Undanfarna viku hefir verið
eindregin sunnanátt um land alt,
með úrkomum á Suður- og Vest-
urlandi. Þurkar hafa verið góðir
á Norður- og einkum Austurlandi.
Hlýindi um land alt.
Aðfaranótt 20. ágúst var hita-
stig um frostmark víða hér sunn-
Akureyrarkaupstaður
70 ára.
Akureyri, 28. ágúst.
Akureyrarkaupstaður á 70 ára
afmæli á mánudaginn. Akureyri
fékk kaupstaðarréttindi með kon-
I unglegri reglugerð 29. ágúst 1862.
Fyrsta bæjarstjórn var kosin 31.
anlands, og sá talsvert á kartölu-
.... marz vorið eftir og var hún skipuð
grasi í þeim gorðum, sem ílla _ . _
liggja fyrir næturfrostum.
Greiðlega gengur með sölu og
lútflutning fiskbirgðanna, segir
sölusamband fiskframleiðenda. —
5 mönnum, auk bæjarfógeta. Voru
fimm verzlanir á Akureyri fyrir 70
árum og allar danskar, tvær veit-
ingaknæpur og nýbygð kirkja, sú
Tvö fiskitökuskip að leggja frá S^ma’ _bærinn ^á, enn við að
landi, og verið að hlaða þrjú.
CANADIAN
PACIFIC
Til gamla landsins
Ódýrar, fljótar og þægilegar ferðir
MEÐ
Canadian Pacific Steamships
Vikulegar ferðir frá Montreal beint til Glasgow. Ný og stór
eimskip með björtum og vfðum farrýmum. Gott fæði. Kurteys
umgengni. Söngur, leikir og margar aðrar skemtanir.
Þriðja folkks skipsrúm til Reykjavíkur, aðra leið, $98.50
fram og til baka .......... .................$167.00
ViSS útvegum vegabréf og önnur skírteini. Landsvistarleyfi fyrir konur,
smábörn og unnustur einnig útveguð.
Peningar sendir hvert sem vera skal. Leitið upplýsinga hjá næsta
umboðsmanni, eða skrifið á íslenzku til:—
W. C. CASEY, Steamshíp General Agent
372 MAIN ST., Winnipeg, Man.
búð var hér og danskur lyfsali.
Embættismenn voru: Sýslumaður
og bæjarfógeti Stefán Thoraren-
sen, héraðslæknir Jón Finsen,
sóknarprestur Daníel Halldórsson,
en hann var búsettur á Hrafna-
gili. Amtmaðurinn, Pétur Haf-
stein, sat á Möðruvöllum. íbúar
Akureyrar voru þá 286, en eru nú
fjórum þúsundum fleiri. Tekjur
fyrsta fjárhagsárið voru 644 rík-
isdalir og 30 skildingar, eða um
1330 krónur. Árið 1931 námu þær
654 þúsundum kr. — Mgbl.
HELLURISTUR A ROGALANDI.
í sumar hefir stud. mag. Eva
Nissen verið að rannsaka hellu-
ristur á Rogalandi. Byrjaði hún
þar sem heitir Eysti-Ámuey og
þar er svo mikið af helluristum,
að hún hefir ekki getað rannsak-
að þær allar í sumar. — Alls hef-
ir hún fundið þar um 1000 mynd-
búa, en engan spítala og engan
Engin breyting er þó á 'vertCfrh barnaskóla átti bærinn þá. Prent-
því sem verið hefir, stórfiskur smiðJa var á staðnum og eitt blað
sunnlenzkur í 75 kr. skpd., en var geflð út °* var ritstjóri þess
norðlenzkur í 80—85 kr. LabriiBjorn Jonsson hinn eldri. Lyfja- ir höggnar á stein, og hafa sum-
seldur á tæpl. 60 kr. skpd. og ^ ■■■ 1 -...... =
pressaður smáfiskur rumlega 30
au. pr. kg.
ar slíkar myndir aldrei fundist
fyr. Auk óteljandi skipsmynda,
hefir hún fundið tvær myndir af
öxum, eina mynd af grefi og mynd
af hesti. Á einum stað fann hún
tvær þykkar hellur—fórnarsteina.
Voru á annari 150 ristur, en 70 á
hinni.
Mest þótti þó í það varið, að
þarna fann hún stærstu hellu-
ristumynd af skipi, sem fundist
hefir á Norðurlöndum. Er skips-
myndin 5.70 metrar á lengd og
2.70 metrar á hæð um framstafn.
Yfir skipinu er sólmynd og alt um
kring það eru myndir af nær 20
öðrum skipum. Engar manna-
myndir eru á þessu stóra skipi,
en það er búið vel og stafnarnir
mjög einkennilegir í laginu. —
Mgbl.
Mr. Björn Thorsteinsson frá
Otto, Man., var í borginn1 á þriðju-
daginn.
Herpinótaskip hafa aflað tals
vert nú undanfarið. Hefir bor-j
ist svo mikið af síld til ríkisverk-.
smiðjunni á Siglufirði, að húnj
hefr ekki getað tekið við meiru í
bili. Útflutningur síldar frá veiði-
stöðvum gengur fremur greiðleiga. I
Hve mikið er óselt af síld er ekki;
fengið yfirlit yfir, en kunnugir
telja það minna en undanfarin ár.
Fréttamaður blaðsins á Siglufirði
segir að þar sé fullyrt að Þjóðverj-
ar þrefaldi nú innflutningstoll
sinn á síld, frá 3 mörkum á tunnu
í 9. Sala til Þýzkalands sögð hætt
—Mgbl.
verkátæði í Winnipeg
Western Sausage Mfg.Co.
Nýjar byggingar — Nýjustu og fullkommjptu áhöld, og kæliaoferðir
Félagið leggur sérátaklega fyrir sig að búa til
^HI f II ft M H P P A M |1” Sausage (allar tegundir) — Wieners,
UI A IVI U 1$ U DP A lw U Bologna, Cooked, Snioked and Pickled
Meats, og sérstaklega ætlað kjötsölubúðum í Winnipeg og Manitoba.
Allar vörur vorar eru daglega tilbúnar úr nýju efni,
sem átjórnar eft'rlitsmaður heíir skoðað og samþykt
Undir persónulegu eftirliti Mr. Robert Trotnow, sem hefir 34 ára reynslu í Sausage
gerð, og sem hefir í mörg ár, og þangað til fyrir skömmu, verið í sambandi við Mani-
toba Sausage Co.
Heimboð!
Almenningi er boðið að skoða vort nýja verkstæði hvenær
sem er, og sjá hvernig “Diamond Brand” er tilbúið eftir
hinum fullkomnustu heilbrigðisreglum og hreinlætis.
933 Notre Dame Ave., við Arlington—Verkstæði og Skrifstofa—Sími 27 742
Manitoba Power Commission
aðstoðar bœndur til að
setja inn Raf-eldavélar
Til þess aÖ livetja viðskiftamenn Provincial Hydro, út nm sveitir Manitoba,
til að nota rafeldavélar býður THE POWER COMMISSION að greiða
liverjum mannl $22.50 upp í innsetningarkostnaðinn, livar sem er út um sveitir
Manitoba. Þessi upphæð er ætlast til að borg’i sem svarar helmingi kostnaðar
við innsetninguna á sveitabæjum.
Kaupið rafeldavél hjá kaupmanni yðar, eða hverjum sem þér viljið, og
látið setja liana inn á heimili yðar. Takið hjá verzlunarmanninum, sem setur
inn vélina, reikning yfir allan innsetningarkostnaðinn; látið svo næsta umboðs-
mann THE POWER COMMISSION, yfirlíta verkið, og ef hann er ánægður,
þá staðfestir liann reikninginn. Sendið síðan reikninginn til The Manitoba
Power Commission í Winnipeg og verður þá sá hluti, sem Commissionin greið-
ir, .sendur viðskiftamanni eða verzlunarmanni eftir samkomulagi þeirra.
Hið nýja verð, sem gengið hefir í gildi um næstum því alt fylkið, á rafafli,
ætti að gera mönnum hægra að nota rafeldastór á heimilunum, og Commis-
sionin er þess fullvi&s, að liver húsráðandi muni meta þá viðleitni, að færa
þeim þau hlunnindi og þægindi, sem borgarbúar njóta, með því að borga stór-
an hluta af innsetningar kostnaði eldavélarinnar.
Ef þér óskið eftir einhverjum upplýsing-
wn um hið nýja rafverð eða innsetningu á
nýjum raftœkjum og áhöldum, þá veitir
sveitarskrifari yðar yður þau með ánœgju
eða The Manitoba Power Commjssion.
Manitoba Power Commission
146 Notre Dame Avenue Eaát « « Winnipeg