Lögberg - 22.09.1932, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. S0PTEMBER 1932.
Bl.a 7
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
hjá
THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HKNIiY AVEX EAST. - - vVlNNIPKG. MAN
Yard Offlre: 6th Floor. lu«nk of Hamilton Chamher>
Lárviðarskáldið
John Masefield
Eftir Richard Beck.
Nýlega urðu konungqskifti í
Bragahöll Englendinga. Robert
Bridges, sem um langt skeið hafði
skipað lárvíðarskálds-sessinn með
sæmd, féll að velli snemma 1
apríl 1930. Að sjálfsögðu varð tíð-
rætt um það, hver kjörinn myndi
til að fylla hinn auða konungs-
sess. Ýmsir voru nefndir til, því
að Englendingar eiga mörg ágæt-
isskáld, sem vel hefði setið bekk-
inn. En ríkisstjórnin, sem ræður
vali skáldjöfursins, þótt Eglakon-
ungur útnefni hann, krýndi John
Masefield lárviðarsveignum. Er
það dómur langflestra, að hann
hafi bæði viturlega og réttlátlega
kjörinn verið.
Masefiel hefir tekist það, sem
næsta sjaldgæft er, — að verða
hvorttveggjta í senn, skáld lærðu
stéttanna og alþýðunnar. Ljóð
hans tala jafnt til allra hugsandi
manna, hvar sem er í þjóðfélags-
stiganum. En það er til marks um
óvenjulega lýðhylli hans, að 80,000
eintök hafa selst af heildarútgáfu
þeirri af kvæðum hans, sem prent-
uð var fyrir nokkrum árum
(1923)). Þá átti það einkar vel
við að verkalýðsstjórnin skyldi
hefja þann manninn til lárviðar-
skáldstignar, sem nefndur hefir
verið — og langt frá að ófyrir-
synju — “skáld lýðræðisins”, og
verið hefir, eins og ljóð hans sýna
bezt, dyggur málsvari lítilmagn-
ans.
Lárviðarskáldstignin er gömul
í garði á Englandi. Að því er
næst verður komist, var John
Dryden (1681—1700) fyrstur
sæmdur því virðingarnafni með
koungsbréfi. Síðan hefir jafnan
skipað Verið opinberlega “lárvið-
arskáld” Englands. Fjarri fer að
hæfustu mennirnir hafi ávalt val-
ist í sessinn, en þó eru sum merk-
ustu skáld Englendinga að fornu
og nýju í þeim hóp: Edmund Spen-
ser, William Wordsworth og AI-
fred Tennyson, auk hinna fyr-
töldu. Hefir það þótt, og þykir
enn, hinn mesti heiður, að verða
lárviðarskáld. En þar fylgdi áð-
ur fyrri böggull skammrifi. Það
var lengi sjálfsögð skylda lárvið-
arskáldsins að yrkja kvæði við há-
tíðleg tækifæri, en þær kvaðir eru
nú úr sögunni og skáldið alger-
lega frjálst verka sinna. En fýr á
tíð hlaut skáldið einnig að brag-
arlaunum árlega tunnu af dýr-
indisvíni, að líkindum til sálar-
hressingar. Þessi gamli siður er
nú Iagður niður, og fær skáldkon-
ungurinn í staðinn 27 sterlings-
pund úr ríkissjóði á ári hverju.
Ekki alls fyrir löngu mintist
fréttaritari einn á víntunnuna áð-
urnefndu við Masefield, en skáld-
ið er bindindismaður. Svaraði
hann því, að kátlegt myndi að sjá
menn velta víntunnu upp á Boar’s
Hill (Galtarhól), en svo heitir|
bústaður Masefields í nánd við
Oxford.
Glettin eru atvikin. Fyrir þrjá-
tíu og fimm árum síðan var Mase-
field réttur og sléttur veitinga-
þjónn í drykkjukrá í New York.
Nú skipar hann virðingarsess
mestan meðal enskra skálda.
II.
John Masefield er lögfræðings-
sonur, fæddur 1. júní 1874 í Led-
bury á Vestur^Englandi. Ungur
misti hann foreldra sína og ólst
upp hjá frænku sinni í nefndum
bæ og þar gekk hann í barna-
skóla. Honum brann snemma æf-
intýraþrá í blóði, og voru honum
því innisetur illa að skapi; þótti
honum stórum betra að fara í
gönguferðir um nærliggjandi
skóga og kanna þar ókunnuga
stigu. Á fei-mingaraldri var hann
ráðinn káetudrengur á kaupskip,
og næstu þrjú árin var hann stöð-
ugt í förum. Kyntist hann í sjón
og reynd fjarskyldum þjóðum og
löndum og varð þaulkunnugur
sjómönum og sjómensku. Marg-
breytt reynsla þessara ára var
honum ágætur skóli, og þaðan er
honum lcominn efniviðurinn í
mörg snildarkvæði hans og fjölda
sagna hans.
Masefield tók snemma ástfóstri
við skáldskapinn. Að eigin sögn
fór hann að yrkja drengur að
aldri. Eigi mun því ofmælt, að
það hafi frá æsku verið löngun
hans og markmið að gerast rit-
höfundur. Saddur á sjóferðum
gekk hann af skipi í New York í
apríl 1895, blásnauður að kalla.
Hafði hann nú ofan af fyrir sér
með ýmiskonar lausavinnu; var
um tíma, sem fyr er vikið að,
veitigamaður í vínkrá einni, al-
kunnri á þeirri tíð; og síðan vann
hann í tvö ár í gólfdúkaverk-
smiðju. Var það venja hans á
föstudegi hverjum, er var borg-
unardagur í verksmiðjunni, að
kaupa ódýra kvæðabók og lesa
hana um helgina, sem í hönd fór.
Dag nokkurn keypti hann eitt af
ritum Chaucers skálds (c. 1340—
1400), og olli lestur þess straum-
hvörfum í andlegu Iífi hans. Opn-
aðist Masefield nú, eins og hann
sjálfur segir, “ný veröld furðu og
yndis”. Honum skildist göfgi og
gildi skáldskapar. Las hann nú af
kappi rit margra annara höfuð-
skáldanna ensku og orti í anda
þeirra. Skáldið í honum var glað-
vaknað. Næsta ár (1897) hélt
hann til Englands og settist að í
Lundúnum, og vann nú eingöngu
að blaðamensku og ritstörfum.
Fyrsta bók Masefields, Salt
Water Ballas, kom út 1902. Hún
vakti nokkra athygli á höfundin-
I um, kom honum í kynni við suma
helztu skáldbræður hans ensku-
mælandi, og nú nýtur hún hvað
mestrar lýðhylli allra rita hans.
Árið eftir gaf hann út aðra
kvæðabók, Ballads. Næstu árin
ritaði hann margt skáldsagna.
Einna merkust þeirra er Multitude
and Solitude (1909)i, frumleg og
falleg. Af leikritum hans frá þess-
um árum er The Tragedy of Nan
(1909) lang merkust. Bók hans
um William Shakespeare (1911),
er einnig mjög eftirtektarverð,
prýðileg að rithætti, og bregður
þar víða fyrir leiftrum skáldlegr-
ar djúpskygni.
En ritfrægð Masefields hóst eig-
inlega með útkomu ljóðsögunnar
The Everlasting Mercy í tímarit-
inu The English Review (1911);
flaug hún út, og var nú nafn höf-
undarins á hvers manns vörum.
Fá skáldrit hafa slíka sigurför
farið. Aflaði hún og ljóðsögurn-
ar þrjár, sem fylgdu í kjölfar
hennar — The Widow in Bye
Street (1923), Dauber (1912X The
Daffodil Fields (1913), — skáld-
inu heimsfrægðar. Ný stjarna og
björt var upp runnin á enskum
bókmentahimni.
Á stríðsárunum var Masefield í
þjónustu Rauða krossins, fyrst á
Frakklandi og síðar á Gallipoli-
skaga. Varð nú nokkurt hlé á
bókmentastarfsemi hans; þó reit
hann tvær styrjaldarlýsingar.
Gallipali (1916)i og The Old Front
Line (1917), sem að ágætum eru
hafðar, einkum hin fyrnefnda.
Mikið liggur eftir hann frá síð-
ari árum: ljóð, leikrit og skáld-
sögur. Reynard the Fox (1919), er
einhver snjallasta Ijóðsaga hans.
Sad Harker (1924) er atkvæða-
mest hinna nýrri skáldsagna
hans. Skemtileg og vel sögð er
einnig skájdsagan Odtaa (1926).
Allra síðustu rit hans, The Wan-
derer of Liverpool (1930) og Min-
nie Maylow’s Story and Other Tal- (
es and Scenes (1931) eru fyllilega
samboðin lárviðarskáldinu, bæði að
efni og listfengi.
Auk lárviðarskáldfctignarinnar j
hefir öðrum virðingum rignt yfir
Masefield. Konunglega Bókmenta-
félagið Brezka sæmdi hann skáld-
skaparverðlaunum sínum 1912 og
kjöri hann heiðursfélaga árið eft-
ir. Þá hafa tveir víðfrægustu há-
skólarnir ensku gert hann að
heiðursdoktor sínum. Nægir þetta
til að sýna, hversu traustum fót-
um frægð hans stendur.
III.
Masefield hefir verið nefndur
“lárviðarskáld hafsins” (the poet
laureate of the sea). Vel myndi
honum sæma það heiti. Hann hef-
ir ort merkileg sævarljóð og sér-
kennileg, sem hefðu trygt honum
virðulegan sess meðal enskra ljóð-
skálda. Þessi ljóð hans er ejnk-
um að finna í kvæðasafninu Salt.
Water Ballads. Flest eru þau í
söguformi, óhefluð en áhrifamik-
II, glöggar myndir úr lifi sjó-
manna. Lýsa þau að jafnaði
stormum eða skipbrotum, eða á
aðra hönd skammvinnum fagnað-
arstundum sjómanna, meðan skip
þeirra liggja í höfn. Þá er flokk-
ur kvæða þessara bygður á söngv-
um þeim, sem sjómenn kyrja við
hin ýmsu st.örf sín á skipsfjöl.
svo sém þegar akkeri er vegið eða
seglum ekið. Og öll eru kvæði
þessi á kjarnmiklu, óprúðu máli
sjómanna, sem Masefield hafði
drukkið í sig á árum þeim, er
hann átti heimili í stafnklefa
"þeirra. Það er því ósvikinn sæv-
arhreimur í þessum kvæðum.
Mun óhætt mega segja, að ekkert
enskra ljóðskálda hafi lýst lífi
sjómanna af jafnmikilli ná-
kvæmni, skilningi og djúpskygni
sem Masefield. Eflaust þykir
sumum nóg um ruddalegt sjó-
mannamál hans og um bersöglar
lýsingar hans; lesandin horfist
hér í augu við sjálfan raunveru-
leikann, en gull er þar með sor-
anum — gnægð fegurðar. í kvæð-
inu “Sea-Fever” (“sævar-hug-
ur” mætti kalla það á íslenzku)
lýsir skáldið fagurlega og kröft-
uglega, svo að bergmálar í hverri
svarelskandi sál, seiðmagn hafs-
ins. Engu ólistrænni eða áhrifa-
minni eru þau kvæði hans, sem
dásama fegurð fjarlægra hafs-
hluta. í ljóð sín um Indlandseyj-
ar og Suður-Ameríku hefir hon-
um tekist að flétta draumhöfga
þann, sem hvílir yfir þessum slóð-
um. “Kvæðin “Spanish Waters” og
“Trade Winds” anda suðrænum
blæ og austrænum.
Auk sævarkvæðanna hefir Mase-
field ort önnur fögur ljóð og efn-
ismikil. Eitthvert hið allra feg-
ursta þeirra og kjarnmesta, er
“Consecration” (Helgun), inn-
gangskvæðið í Salt Water Ball-
ads. Það er “trúarjátning”
skáldsins, þrungin mælsku, til-
finningahita og heilagri vandlæt-
ingu. ' Hann hefir eigi valið sér
það hlutskiftið að vegsama í ljóð-
um prinza og preláta, hershöfð-
ingja og konunga. óbreyttur liðs-
maðurinn — vegfarandinn —
maðurinn, sem eigi fær risið und-
ir byrði sinni, — sjómaðurinn,
— kyndarinn, þessir og þeirra
líkar eru hans menn. Hans er að
yrkja um hina hungruðu, höltu
og blindu — olnbogabörn lífsins;
já, um afhrök jarðar, “the dust
and scum of the earth”. Þeirra
sögur kýs hann að segja. Þeir
erfiða í sveita síns andlitis, en
aðrir uppskera löngum ávextina,
hrósið og þakkirnar. Masefield
er djarfmæltur málsvari slíkra og
forvígismaður. Ríkur mannkær-
leiki er undiraldan í mörgum
kvæðum hans. Hann vegsamar líf
og störf hinna lítilsvirtu, hvort
sem er á landi eða sæ.
Þessa gætir meðal annars 1 af-
bragðskvæði hans “August 1914”,
ort um þær mundir, sem styrjöld-
in mikla skall á. Hér er eigi
brugðið upp mynd hryllilegra
blóðsúthellinga. Eigi þrumar hér
heldur raust þungrar ákæru. Að
anda, efni og búningi minnir
(kvæði þetta á hinn víðfræga
“Kirkjureit” eftir Gray (“The
Elegy Wri tten in a Country
Churchyard”, smbr. þýðingu Ein-
ars skálds Benediktssonar, Hrann-
ir, bls. 150—156)v Masefield lýs-
ir hér friðsælu sumarkveldi í
sveit á Englandi, í allri þess þög-,
ulu fegurð. En ósjálfrátt renna
upp fyrir hugarsjónum lesandans'
hroðasýnirnar yfir á meginlandi
Evrópu. Fyrir það verður lýsing|
skáldsins á friði kveldsins ogj
dýrð þess enn þá áhrifameiri, og
tilhugsunin um stríðsbölin enn
ömurlegri. En yfir hljóðum ökr-
unum sér hann svífa anda löngu
liðina sveitamanna, sem lögðu alt
í sölurnar fyrir ættjörð sína, rétt
eins og lýðhollir bændurnir ensku
hverfa nú (þ. e. þegar kvæðið va’r
ort) á brott frá átthögum sínum
og ástvinum, þegar skyldan kall-
ar.
Eigi er það heldur tilviljun ein,
að Masefield sækir hér yrkisefni
sitt í enskt sveitalíf. Hann var
sveitapiltur áður en hann gerðist
sjómaður. Og þá sætir það engri
furðu, að þrjár hinar merkustu
ljóðsagna hans lýsa ensku sveita-
lífi, þó að The Daffodil Fields
gerist að nokkru leyti í Argentínu.
Og í Ijóðsöfnum hans, að undan-
teknum Salt Water Ballads, er
margt sveitakfæða.
í kvæðinu “London Town” lýsir
hann því, hve heitt hann langar
úr borgarþrengslunum og rykinu
heim í sveitina sína hjartfólgnu í
vestri — “my land of heart’s de-
sire”. Þar á hann heima. Öll
ferðalögin — og útþrá og æfintýra
ólgar í mörgum kvæðum hans —
hafa ekki slitið þau bönd, sem
tengja hann við æskustöðvarnar,
heldur miklu fremur treyst þau.
Það er ein af gömlu sögunum
eilíf-nýju.
Masefield er framúrskarandi
ljóðhagur, og kvæði hans eru
einkar fjölbreytt að bragarhátt-
um. Hann hefir ort fjölda af
sonnettum. Þær eru þrungnan
djúpri íhygli og á köflum há-
skáldlegar, en jafnast þó eigi við
beztu ljóð hans undir öðrum brag-
arháttum. En í sonnettunum kem-
ur greinilega fram hin mikla feg-
urðarást hans — eitt helzta ein-
kenni hans. Hann lofsyngur feg-
urð láðs og lagar, fegurð lífsins,
þótt hana sé að finna sem gim-
stein í sorpinu. Og ekki gleymir
hann fegurð konunnar. Hann hef-
ir ort einhver hin þýðustu — Ijóð-
rænustu — ástakvæði, sem kveð-
in hafa verið á enska tungu á síð-
ari árum.
Á nú við að ræða nokkru nánar
Ijóðsögurnar fjórar, sem öfluðu
Masefield lýðhylli og skáldfrægð-
ar á skömmum tíma, og fyr voru
taldar.
The Everlasting Mercy segir frá
trúarlegu afturhvarfi Saul Kane,
sem var óregluseggur úr hófi
fram, trúleysingi, og veiðiþjófur
ofan i kaupið. Hann lendir í ill-
deilum við annan veiðiþjóf, sem
hann hafði beitt órétti, og bíður
hærra hlut, þegar andstæðingur
hans meiðist. Eftir sigurvinning
þenna, drekkur Saul frá sér vitið
á þorpsknæpunni. Að lokum ryðst
hann út úr kránni, rífur utan af
sér öl fötin og gengur berserks-
gang um götur bæjarins. Hann
hringir eldsvoða-klukkunum, lem-
ur utan húsin og æpir svo að alt
ætlar niður að keyra. Fá menn
eigi fest hendur á honum, og í dög-
un kemur hann aftur á knæpuna.
Sefur hann nú um stund, en óðar
og hann vaknar, leggur hann í
aðra herferð um bæinn. Hann
mætir þorpsprestinum á förnum
vegi og verður undir í orðasennu
við hann. Rennur nú af Saul
versta víman við útivistina. Og
svallið hefir eigi kæft að fullu
guðsdómsneistann í brjósti hans.
Aftur er för hans heitið á knæp-
una; á leiðini þangað sýnir hann
vinarhót drenghnokka einum, sem
móðirin hafði skilið eftir úti á
stræti. En Saul fær þær einar
þakkir, að móðir drengsins eys
yfir hann blóðugum skömmunum,
kallar hann ‘bæjarsmán” og þar
fram eftir götunum. Heggur það
nærri Saul, því að hann var barn-
Þróttur œskunnar
Dr. Magnus Hirschfeld, hinn heimsfrægi sérfræðingur I kynfræði
og forstöðumaður Institute for Sexual Science i Berlín á pýskalandi,
hefir framleitt
TITUS-PEARLS
til að hjálpa miljónum manna og kvenna, sem hafa verið að tapa
sinum likamlegu kröftum. Við mikla reynslu og nána athugun hefir
hann komist að því að veiklun eitlanna leiðir af sér ýmsan sjúkleika,
svo sem blóöþrýsting, eykur kalkið um of í œðunum og gerir mann
örmagna eftir miltla áreynslu. Veldur svima, magnleysi og tauga-
veiklun o. s. frv.
Alt þetta læknast með Titus-Pearls. Dr. Hirschfeld hefir reynt það
við fjölda manna á lækningastofnuninni í Berlín.
L. S. (stjórnar embættismaður, 60 ára gamall, giftur) kvartaði um
magnleysi, svima og skjálfta. Hann varð þreyttur af allri áreynslu.
Varð seinn að hugsa og átti erfitt með það. Heilsa hans hafði verið
veik i 6 ár og blóðþrýstingur of mikill. Hann var látinn taka 2 Titus-
Pearls þrisvar á dag. Tveim vikum seinna var heilsufar hans sem hér
segir: Heilsan betri; meira fjör; sviminn minni; orkan meiri. Eftir
að haldið hafði verið áfram enn í tvær vikur, var magnleysið horfið
og þreytan. Hann var orðinn öruggur og léttlyndur. Blóðþrýstingur-
inn var horfinn og nú, sextugur að aldri, var hann búinn að fá eins
mikla krafta og eins mikinn kjark, eins og þegar hann var upp á sitt
hið besta.
Byrjaðu strax á því að verða aftur ungur! Strax i dag! Innan
tveggja vikna kennir þú hinnar nýju orku í sjálfum þér. Sendu 55.00
(peninga í ábyrgðarbréfi eða póstávisun) fyrir tveggja vikna lækn-
ingatilraun.
Skrifið eftir bœklingi C.O.D. pantanir teknar giMar.
Gerið svo vel að fylla inn þennan miða:
TEUTONIA IMPORT & EXPORT SERVICE CO., DPT. 16187
211 Fourth Avenue, New York City, N. Y.
Gentlemen: Please forward to the following address.Boxes
Titus-Pearls, for which I enclose $.
My name is.....................City.,
My address is..................State..
góður. Um kveldið reynir hann
að drekkja hugarangri sínu á
knæpunni, en þá verður ungfrú
Bourne á vegi hans, kvekarastúlk-
an,-sem kemur á drykkjukrána á
hverju kveldi til þess að leiða
drykkjurútana til betri vegar meðj
kristilegum fortölum. Þegar hún
fer að telja um fyrir Saul, svar-
ar hann móðgunum einum, en vin-
gjarnleg svör henar vekja sam-
vizku hans og leiða til þess, að
hann verður sér meðvitandi sekt-
ar sinnar. Lýkur svo kvæðinu.
að hann snýr baki við öllu svalli
og illgerðum og ræðst í bænda-
vinnu, nýr og betri maður.
Ljóðsaga þessi er hin áhrifa-
mesta, þó að skáldinu fatist sum-|
staðar listatökin. Honum er svo
ant um að vera trúr virkileikan-j
i
um, að frásögnina skortir á köfl-
um listfengi og fegurð; ljóðlín-
urnar verða þá bæði of óheflaðar
og hversdagslegar. En víða í kvæð-
inu sameinar skáldið raunsæjar
lýsingar og háfleygan skáldskap.
Snildarlegt og fagurt er samræm-
ið milli sálarástands Sauls og um-
hverfis hans í kvæðislok. Það er
morgun í sál hans, þar sem hann
heldur leiðar sinnar eftir þjóð-
veginum, og samtímis rís sólin
úr móðunni í austri og boðar nýj-
an og bjartan dag. Hvaðanæfa
berast raddir hins hækkandi dags.
Gnýrinn af plóg, sem klýfur
jörðina, beyrist úr fjarlægð, og
fyrsti lævirkinn svífur syngjandi
móti himni. Fagnaðarsögngurinn
í sál Sauls blandast fagurlega
gleðiröddum sins vaknandi lífs á
hauðri og hafi. Og Masefield
nægir ekki að segja sögu Sauls.
Hann skygnist djúpt í sálarlíf
hans og gerir lesandann hluthafa
í baráttu þeirri, sem Saul á í áður
en hann vinnur sigur á sjálfum
sér. Hér má einnig benda á það,
að persónunum í merkisritum
Masefields er löngum svo trúlega
lýst, hvað málfar snertir og önn-
ur eigindi, að þær klæðast holdi
og blóði virkileikans fyrir sjón-
um lesandans, þær eru örsjaldan
dauður bókstafur. — Loks er það
eftirtektarvert um ljóðsögu þá, er
um ræðir, að bragarhátturinn
feldur vel að efninu, hann er
hrynjandi og magni þrunginn,
eins og við á í fjörugri frásögn.
Frh.
PRENTUNAR
þá lítið inn eða
skrifið til
ntie Columbia Press Limited
sem mun fullnægja
þörfum yðar