Lögberg - 13.04.1933, Blaðsíða 1
46. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 13.APRÍL 1933
Ur vöndu að ráða
Hon. George S- Henry, forsætis-
ráðherra i Ontario, er í töluvert ó-
þægilegum kringumstæðum rétt sem
stendur, og ekki bara hann sjálfur
heldur líka allur hinn f jölt;ienni og
öflugi íhaldsflokkur í Ontario. Lít-
ur út fyrir að Mr. Henry hafi sjálf-
ur haft töluverða hagsmuni af gerð-
um stjórnarinnar í Ontario, þar sem
hanrt sjálfur skipað forsæti. Ekki
er þó þar með sagt, að hann sé sek-
ur um nokkurn fjárdrátt. Svo leið-
is var, að hann hafði keypt hluti i
raforkufyrirtæki fyrir $25,000. Fór
svo hér eiris og oft endranær, að
f élagið lenti í f járþröng og gat ekki
borgað arð af hlutafénu og hlutirn-
ir féllu niður úr öllu valdi. Leitaði
þá félagið á náðir fylkisstjórnarinn-
ar og varð sú niðurstaðan, að fylkið
tók við eignum félagsins og urðu
hlutir þess þá miklu meira virði. Er
sagt aö Mr. Henry hafi þar grætt
aftur $14,000 af því fé, sem hann
var búinn að tapa á þessum hluta-
kaupum sinum. Afsökun forsætis-
ráðherráns er óneitanlega einkenni-
leg, en hún er sú, að þegar stjórnin
tók yfir eignir félagsins, þá hafi
hann ekkert inunað eftir því, að
haiin átti þarna sjálfur tuttugú og
fimm þúsund dali. Þetta þykir ekki
beinlínis trúleg saga, enda þótt Mr.
Henry sé auðugur maður. Auðugu
mennirnir muna vanalega rétt eins
vel eftir skildingunum sínum eins
og hinir, sem fátækari eru. Nú þyk-
ir það fjarri öllu lagi, að ráðherrar
hafi persónulegan hagnað af nokkru
því, sem stjórnin gerir. Þykir mörg-
um st;m hér sé ekki nema einn kost-
ur fyrir höndurn fyrir Mr. Henry,
sá að segja áf sér, en hann mun
mjög ófús að gera það. Kemur þetta
alt sér heldur illa fyrir ihaldsflokk-
inn í Ontario, þvi þar líður nú að
fylkiskosninguni og því ekki hentug-
ur tími að fá nýjan leiðtoga. Einnig
taliö víst að þetta verði óspart not-
að gegn flokknum við kosningarn-
ar. ---------
Churchill höfnin
Nú sem stendur lítur út fyrir að
eitthvað meiri siglingar verði til
Churchill á þessu ári, heldur en í
fyrra, kannske svo sem helmingi
meiri. Venjuleg hafnargjöld verða
nú þau skip að greiða, sem þar
koma. Það, sem nú virðist
helzt standa því í vegi, að siglingar
aukist þangað mikið, er það að á-
byrgðargjöld á skipum og flutningi
eru enn alt of há, ósanngjarnlega há,
miklu hærri heldur en til Montreal
eða Vancouver. Er það nú alment
talið ósanngjarnt og ástæðulaust,,
því siglingar séu í raun og veru ekki
þættumeiri til Churchill, heldur en
til Montreal. Hér er verkefni fyrir
sambandstjórnina, að færa þetta í
lag. Hún gerir það kannske, en lík-
urnar til þess þykja ekki sérlega
sterkar. ------------
Þriggja ára fangelsi
A. R. Ross, sá, sem kærður var
fyrir að hafa stolið $14,279.85 af fé
Manitobaháskólans, hefir nú játað
glæp sinn og hefir verið dæmdur til
K'ggja ára fangavistar i Stony
Mountain fangelsinu. Lögmaður
hans, C. Tupper, fór fram á það við
dómarann, R. M. Noble, að Ross
fengi vægan dóm. Færði hann hon-
um ýniislegt til málsbóta, en það
helzt, að hann hefði aldrei ætlað sér
að stela, heldur taka traustataki á
peningum, sem hann hafði undir
hendi, en ávalt ætlað að skila þeim
aftur. Hann hefði ætlað að græða
á þeim á veðreiðum, en það hefði
farið svo, að hann hefði altaf tapað
meiru og meiru. Aðrar ástæður
virðast lítilfjörlegar, svo sem þær,
að laun hans hafi verið færð niður
úr $4,500 ofan í $3,600 á ári. Bók-
haldari ætti að geta lifað sæmilegu
Hfi á $300 á mánuði.j
Alþingishátíðargjöf frá
Canada
Styrktarsjóður íslenzkra háskóla-
stúdenta
Forsætisrá&herrann í Kanada R.
B. Bennett hefir tilkynt ríkisstjórn-
inni, að kanadiska stjórnin hafi á-
ákveðið að stofna sjóð að upphæð
$25,000 í tilefni af Alþingishátíð-
inni 1930 og verSi vöxtum sjóðsins
varið til styrktar íslenzkum náms-
mönnum, er vilja ljúka námi við
kanadiska háskóla.
Hefir forsætisráðherra Kanada
jafnframt skýrt frá að upphæð, er
samsvari 5% ársvöxtum af nefnd-
um höfuðstól, verði til ráðstöfunar
handa námsmönnum þegar á næsta
háskólaári og er óskað tillaga frá
íslandi um veitingu þeirrar upphæð-
ar.
Ríkisstjórnin hefir þakkað hina
veglegu gjöf og undirbýr nú stofn-
skrá fyrir sjóðinn.
—Mbl.
Menn eru börn
J. F. McKinley dómari frá Ot-
tawa fluti fyrir nokkrum dögum
ræðu í Marlborough hotel í Winni-
peg. Hann var að tala við giftar
konur. Fórust honum meðal ann-
ars orð þessu lík, þó þýðingin kúnni
að vera dálítið lausleg:
Allir menn eru börn. Því stærri
og sterkari sem xþeir eru, því meiri
börn eru þeir. Mæður þeirra fóru
með þá eins og börn og þér verðið
að halda því áfram.
Hver maður vill láta sér finnast,
að konan sín se minni máttar en
hann og verði að styðjast við sig, og
hann er dálítið úpp með sér af þeim
hæfileikum sinum, að hafa mátt til
að vernda konuna. Svo hvort sem
yður er nú nokkur stoð i honum,
ellegar ekki, þá lofið þér honum að
halda að svo sé. Honum líður þá
betur.
Haldið þér yður frá skrifstofu
hans. • ;, .
Látið ekki afbrýðissemi yðar gera
yður að njósnara, sem vakír yfir
hverri hreyfingu, án þess hann viti
það.
Verið ekki símaplága. Símið ekki
bóndanum, hvert sinn, sem eitthvert
smáræði kemur fyrir urigbarnið, eða
yður •vefður sundurorða við vinnu-
konuna. Takið ekki á móti honum
með tárin í augunum á kveldin, þó
hann kunni að hafa vérið eitthvað
höstugur þegar þér hringduð til
hans þann daginn. Getur vei verið
að einmitt þá haíi einhver veriö
inni hjá honum, og hann hafi verið
rétt að því kominn að fullgera við
hann mikilsvarðandi kaupsamninga.
Verið ekki altaf að síma til hans
og biðja hann að kaupa þetta eða
hitt á heimleiðinni.
Verið glaðlegar við hann, þegar
hann kemur heim til yðar á kveldin,
eins og þér voruð áður en þér gift-
ust. Berið ekki fram þá næstum
ógnandi afsökun, að þér hafið eng-
an frið haft fyrir börnunum allan
daginn. Þér verðið að rnuna það,
að bóndi yðar sér ekki nema betri
hliðina á kvenfólkinu allan daginn.
Látið hann skilja, að yður þyki
bara vænt um að hann komi heim
með vini sína og teljið ekki eftir að
gera þeim eitthvað gott. Ef hann
segir yður að hann geti ekki lcomið
heim, því hann verði að hafa máltið
með vini sínurn niðri í bæ, þá segið
þér honum að koma heim með þenn-
an vin sinn. Honum þykir vænt um
það.
Látið ekki börnin bola honum frá
sér vegna yðar tilfinninga. Gott
hjónaband er grundvallað á sameig-
inlegri virðingu hjónanna hvort fyr-
ir öðru og þegar virðingin fer út
um framdyrnar, þá fer ástin út um
bakdyrnar.
Manitoba-þingið
Af því, sem þar gerðist vikuna
sem leið, er ekki margt að segja.
Þar gerðist ofboð lítið, sem nokkra
verulega þýðingu hefir, eða í frá-
sögur sé færandi. Það Væri þó
kannske helst það, að þingmennirn-
ir tóku sig til einn daginn og færðu
sín eigin laun niður um 7%, eða úr
$1800 á ári ofan í $1674 á ári.
Sumir þingmennirnir vildu ganga
miklu lengra ög lækka þingmanna-
launin um 50%, eða ofan í $900 á
ári. En það fékk litla áheyrn. John
Queen og hans félagar voru nijög á
móti þessari launaiækkun, eins og
allri annari launalækkun. Munu nú
fáir eða engir þingmenn í Canada
hafa lægri laun, heldur en þing-
mennirnir í Manitoba.
Men’s Club
Fundi þeim, sem karlaklúbbur
Fyrsta lúterska safnaðar hafði á-
kveðið að halda hinn 4. þ. m. var
frestað vegna þess, að ýmsir aðrir
fundir og samkomur voru þetta
sama kvöld. Frestaði því karla-
klúbburinn sínum fundi til að hliðra
til fyrir öðrum. En nú verður fund-
urinn haldinn með sama hætti og á-
kveðið var áður, á þriðjudagskveld-
ið í næstu viku, hinn 18. þ.m., kl.
8.15, í fundarsal Fyrstu lútersþu
kirkju. Þetta er ársfundur klúbbs-
ins og hinn síðasti, þangað til næsta
haust, Er vonast eftir að þar verði
tnargir menn samdnkomrtir. Forseti
klúbbsins, Dr. Thorlaksson, flytur
erindi og mun hann ætla sér að tala
um framtíð kirkju vorrar. Inngang-
ur ekki seldur, en samskot tekin tú
að mæta kostnaðinum við samkomu-
haldið.
Ætlar til Washington
Roosevelt hefir boðið Ramsay
MacDonald, forsætisráðherra Breta,
að koma til Washington, og eiga þar
tal við sig um Stríðsskuldirnar fyrst
og fremst, og um ýms fleiri málefni,
sem varða Bandaríkin og Bretland.
Hefir Mr. MacDonald þegið þetta
boð og segja fréttir frá London að
hann muni Ieggja af stað til Wash-
ington á laugardaginn í þessari viku.
Haldið er að Frakkar og ítalir muni
líka senda menn til Washington til
að tala við forsetann um stríðs-
skuldirnar jafnframt Mr. Mac-
Donald. Það er jafnvel haldið að
Mr. Bennett muni fara til Washirtg-
ton um sömu mundir til að leggja
þar líka orð í belg.
Bátur ferst
Fjórir menn drukkna
R’vík. 8. marz.
I fyrrinótt réru bátar í Grinda-
vík, og fórst einn bátanna þaðan í
gærdag, er skipverjar voru að draga
línuna. Var báturinn þá staddur
. all langt undan landi. Telja menn
líklegast, að brotsjór hafi riðið yfir
bátinn og fært hann í kaf eÖa
hvolft honum. Skipverjum tókst
þó að rétta bátinn við og komast
upp i hann. Maraði hann nú lengi
í hálfu kafi, en loks bar að opinn
vélbát, “Hafurbjörn,” form. Guð-
jón Klemensson. Voru þá 4 af
þeim fimm, sem í bátnum voru,
druknaðir, og hafa lík þeirra senni-
lega verið í bátnum. En um leið
og sá maðurinn, er á lífi var,
bjargaðist upp i “Hafurbjörn,” náð-
ist eitt líkið. Rak nú bátana sund-
ur, en ógerlegt var fyrir “Hafur-
björn” að leggja að hinum bátnum
aftur, vegna veðurs. Sá, sem bjarg-
aðist, var frá Reyðarfirði, en þeir,
sem druknuðu, voru:
1. Guðmundur Erlendsson, form.,
Grindavík, kvæntur, átti tvö
börn. Lík hans náðist.
2. Sæmundur Jónsson, Grindavik,
ókvæntur. (
3. Magnús Tómasson, frá Gegnis-
hólum í flóa, og
4. Gunnar Jónsson, úr Steingríms-
firði.—Vísir.
Mishepnuð tilraun
Um klukkan eitt á laugardaginn
réðust tveir menn á mann, sem vinn-
ur í tekjuskattsskrifstofunni, sem
er i þinghússbyggingunni hér í
Winnipeg. Hafði hann farið út úr
skrifstofunni og inn í annað her-
bergi þar skamt frá, þar sem menn
geta þvegið sér. Voru þar tveir
menn fyrir og skaut annar þeirra á
hann, en misti hans, en hinn barði
hann í höfuðið með skammbyssu og
særði hann mikið. Er þó haldið að
maðurinn muni verða jafngóður.
Sá, sem fyrir þessu skakkafalli varð
heitir John Sangster og hefir unnið
nokkur ár á tekjuskattsskrifstof-
unni. Vafalaust höfðu þessir tveir
menn það í huga, að ræna þarna
peningum, en þeim hepnaðist það
ekki í þetta sinn, en þeim hepnaðist
að komast burt án þess nokkur hefði
hendur í hári þeirra.
PÁSKASÁLMUR
Bftir Grundtvig
Þýddur af séra Valdemar Briem
Planta’ á leiðið lilju bjarta, María hjá gröf stóð grátin,
lífsins rnark á dauðans ból. gægðist hún í steinþró inn.
Gegnum myrkrið grafar svarta . Drottin sinn hún syrgði látinn,
glóa blómin hýr mót sól. sá þó tóman legstaðinn.
’ Hvert eitt blað, á gröf er grær, Morgunsólin hýr og hrein
guðs er engils vængur skær. hennar gegnum tárin skein.
Dauðaklukkur dimmt ei hringja, þar í gröf, er hvílt hann hefur,
dýrðarljóð guðs englar syngja. hár sig engijl ljósi vefur.
Sólin huldist svörtum mökkva, Opnast leiðin, lúðrar hijóma,
sonar guðs er blóð út rann. líka heyrist drottins raust
Gröfin ljómar, dimman dökkva gegnum dauðra grafir óma,
dreifist burt, er upprís.hann. grafir láti herfang laust.
Syngi drottni sérhver þjóð Herrann eigi hrópar nú:
sigur-páskamorgunljóð. “Hvar ert, Adam, falinn þú?”
Jesús uppreis, Jesús lifi'r, Herrans raustin hljómar blíða:
Jesús ríkir himnum yfir. “Hér er frelsari’ allra lýða.”
Sjálfur drottinn lifsins lifir,
losnuð eru dauðans bönd;
grafir hafinn er hann yfir;
oss hans blessi líknarhönd.
Vöknum nú af værðarblund
vors um fagra morgunstund;
og með sigursálmi glöðum
1 svifi’ upp önd á vængjum hröðum
I
NÚMER 15
KIRKJAN
PÁSKAVIKAN í FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU
Miðvikudag, kl 8 síðdegis:
Sameiginleg föstu-guðsþjónusta safnaðanna þriggja,
Fyrsta lúterska safnaðar, Ensk-lúterska safnaðarins og
norska safnaðarins lúterska. Fer fram á ensku. Þrír
prestar taka þátt i guðsþjónustunni.
Skírdag, kl. 8 síðdegis: •
Altarisgöngu-guðsþjónusta (íslenzk).
Föstudaginn langa, kl. 7 síðdegis:
Guðsþjónusta, með tilhlýðilegum helgisöngvum (íslenzk)
Séra Rúnólfur Marteinsson prédikar.
Páskadag:
1. Hátiðar-guðsþjónusta (ensk), kl. 11 f. h. Yngri
söngflokkurinn.
2. Hátíðar-guðsþjónusta (íslenzk), kl. 7 e. h.—Eldri
söngflokkurinn. .
"Hversu vndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna”
Frá Islandi
Reykjavík 19. marz.
Síðastliðna viku (sem var 17.
vetrarvikan) hefir verið óslitin A-
og NA-veðrátta hér á landi.—Lægð-
ir hafa farið austur fyrir sunnan
land í stefnu á Bretlandseyjar, en
hins vegar verið mikil loftþrýsting
um N-Grænland.
Fyrra helming vikunnar var aust-
anáttin hlý og rigndi þá talsvert
sunnanlands, en um miðja vikuna
lögðust kaldír norðaustrænir loft-
straumar frá íshafinu yfir landið
og fylgdi þeim 4—8 st. frost. Norð-
an lands hefir verið hrið síðustu tvo
dagana og allmikill snjór kominn
þar. Sunan lands er snjólítið mjög
á láglendi, en talsverður snjór til
f jalla.
í Reykjavík varð hlýjast á mánu-
daginn, nærri 6 stiga hiti, en kald-
ast 5.3 st. frost á fimtudaginn. Úr-
koma hefir verið 2.7 m.m.
Frá útgerðinni er fátt að frétta,
nema framhaldandi hlaðafla í ver-
stöðvum sunnan og vestanlands.
Hefir verðið á fiski þeim, sem seld-
ur hefir verið upp á síðkastið svign-
að heldur undan svo mikilli fram-
leiðslu, þar sem samfara er mikill
afli í Noregi.
Þ. 15. marz var aflinn hér á landi
orðinn 15,800 tonn. Var hann á
sama tíma í fyrra 9,100 tonn og í
hitteðfyrra 5,600 tonn. í Noregi
hefir verið saltað 9,000 tonnuin
meira í ár en í fyrra.
í dag sest búnaðarþing á rökstóla.
Er vonandi að þeir menn, sem þar
koma saman, geti fundið holl ráð
og stefnumið ný fyrir landbúnað-
inn. Því varla verður annað sagt,
en heldur dökkni útlitið um erlenda
sölu búnaðarafurða þeirra, er vér
hingað til höfum haft á boðstólum.
Forsætisráðherra skýrði frá því í
þingræðu, er útvarpað var um dag-
inn, að Norðmenn teldu að þeir
gætu kjötfætt sig sjálfir á næstu ár-
um, enda mun sauðfé þeirra hafa
fjölgað um 300,000 og nautgripir
um 100,000 eða um það bil á fám
árum.
Og um horfur á leyfi til freS-
kjötssölu í Englandi verður ekkert
sagt enn, riema það, að frændþjóð-
um vorum gengur erfiðlega í samn-
ingunum við Breta,.
—Mbl.
Mentaskólanum á Akureyri lokað
Á Akureyri breiðist inflúensan
óðfluga út. Fjörutíu nemendur í
Mentaskólanum hafa veikst, og hafa
fengið háan hita. Út af -þessu var
kenslu hætt í skólanum í gær, og
hefst hún varla aftur fyr en á mánu-
dag.
I Keflavík geisar infiúensa lika,
en er sögð væg þar, og menn liggi
ekki nema 2—3 daga í henni.
Mbl. 10. marz.
Slys á togara
“Arinbjörn hersir” missir mann.
Togarinn “Arinbjörn hersir” fór
liéðan snemrna í gærmorgun, en
þegar hann var rétt kominn út fyr-
ir hafnarmynnið var saknað annars
kyndarans, Kjartans Vigfússonar og
mun hann hafa fallið fyrir borð og
drukknað.—Sást hann skömmu áð-
ur ganga aftur á skipið.
—Skipið sneri aftur og skipstjór-
inn tilkynti lögreglunni slysið, og
hélt því næst á veiðar.
Kjartan átti heima á Óðinsgötu
24, var 37 ára að aldri og lætur
eftir sig konu og fjögur börn.
Mbl. 10. marz.
Tollur á fiski í Þýskalandi
Nýir innflutningstollar á fiski
gengu í gildi 6. rnarz í Þiýskalandi.
Ný síld er enn tollfrjáls, og toll-
ur á saltsíld óbreyttur, Rm. 9.00
(kr. 14.00) per tunnu.
Tollur á nýjum fiski verður Rm.
10.00 (kr. 15.50) per 100 kg. og á
frystum fiski Rm. 15.00 (kr. 23.25)
Mbl.
Guðmundur G. Bárðarson pró-
fessor og kennari við Mentáskólann
lést 13. marz kl. 4 eftir langa van-
heilsu. Lagðist hann rúmfastur í
ágúst í sumar sem leið og steig
aldrei á fætur eftir það.
Með honum er. fallinn í valinn
einn af merkilegustu náttúrufræð-
ingum íslands.
Útflutningur landbúnaðarafurða í
janúar og febrúar nam samtals 96,-
940 krónum. Mest kvað að útflutn-
ingi á freðkjöti, 27,660 kr. (fyrir
63,095 kg. eða um 44 aura kg., en
verðið var á sama tima í fyrra um
79 aurar kg.). Af ull hafa verið
flutt út 33,518 kg. og fengist fyrir
hana 26,370 kr., eða um 78 aura kg.
en i fyrra var verðið rúm króna.
Rotuð skinn liafa verið flutt út fyr-
ir 19.360 kr. (11.470 kg.) og er
verðið lítið eitt hærra á þeim, en
árið áður. 2121 saltaðar gærur hafa
verið fluttar út og fyrir þær hafa
fengist 2,760 krónur.—Af prjónlesi
voru flutt út 945 kg., en 2201 kg. í
fyrra. Af æðardún voru flutt út
148 kg. og fengust fyrir það 4,460
kr. eða tæpár 30 krónur fyrir kg.,
en í fyrra var verðið 34 krónur.
Mbl.
Ólöf Sigurðárdóttir skáldkona frá
hlöðurn, andaðist í Elliheimilinu
Grund í gær klukkan 4, eftir lang-
varandi vanheilsu.
Mbl. 24. marz.