Lögberg - 06.07.1933, Page 7

Lögberg - 06.07.1933, Page 7
LöGBERG, FIMTUDAGINN 6. JÚLÍ, 1933 Bls. 7 ŒFIMINNING Séra Hjörtur J. Leó (Framh. frá 1. bls.) en að okkur hafi liöiö mætavel við námið. Eg hefi ekki unað mér bet- ur við skólanám annarsstaðar. Og veit eg ekki betur, en að Hjörtur bæri skólanum svipaðan vitnisburð. Hann kunni þar auðsjáanlega vel við sig og náði aftur sinni frjálsu og eðlilegu lífsgleði, eftir að hann var einu sinni búinn að átta sig á straumhvörfunum þar. Skólavistin sjálf átti drjúgan þátt í þessu. Sambúðin var frjálsleg og heimamannleg, meö kennurum og nemendum, eins og áður var að vik- ið. Alís engin tilraun var gjörð, svo að við vissum, til að gefa skólan- um guðrækilegan ólundarsvip, eða leggja óeðlileg og þvingandi höft á nemendurna. Þeim var vitaskuld ætlað að iðka námið af trúmensku og svíkjast ekki burt frá kenslutím- um eða guðræknisiðkunum; samt var engin dómharka sýnd, þó eitt- hvað ofurlítiö væri brugðið út af þvi. En að öðru leyti réðu menn sjálfir ferðum sínum og athöfnum; störfuðu eða léttu sér upp, eins og þeim þóknaðist. Og það kom sjald- an fyrir, að illa væri farið með þessa tiltrú, aem þeim var auðsýnd; að minsta kosti bar mjqg lítið á slíku. Og eg er viss um það, hð til eru mentastofnanir kirkjulegar í landi þessu, sem ekki væri hægt að gefa samskonar vitnisburS, nema með afföllum. Andinn, sem réði í þessum skóla, var sann-lúterskur, og mun það hafa ráðið miklu um heimilisbraginn þar. Lúterska kirkjan hér vestan hafs hefir oft verið sökuð um of' mikinn strangleik í trúarkenningum og fast- heldni við fornar venjur í tilbeiðsl- unni. Hvað sem um það má segja, þá er svo mikið víst, að í siðalær- dómnum hefir hún oftast verið heil- brigð og öfgalaus, og haft það fram yfir ýmsar deildir aðrar i kristn- inni. Enginn má heldur skilja orS mín svo, sem guðfræði skólans hafi ver- ið óaðgengileg eða strembin í heild sinni. Það var öðru nær. Við fund- um þar heilmikið, sem var hugnæmt og aðlaðandi, bæði í almennri kristnisögu, í “praktískum” krist- indómsfræðúm — Sem allmikil á- hezla var lögð á í skólanum— og jafnvel í sjálfri “dogmatíkinni” lútersku. Hvað sem segja má um einstök atriði þeirrar fræði, þá verSur því ekki með sanni neitað, finst mér, að í meginmálinu beri hún vott um rækilega hugsun og sanna trúarreynslu. Og kenslan var yfirleitt mæta- góð. Eg hefi þegar minst á ljúf- lyndi Gerberdipgs. En um Weidner er það að segja, að þó hann þætti í aðra röndina nokkuð kreddufastur, sérkennilegur og stór í skapi, þá var heilmikið í hann spunnið, og ekki vantaði tilþrifin, skörp og lífræn, i kenslunni hjá honum. Þegar hann hafði veitt nemendum þungar ákúr- ur fyrir sljóleik eða vánkunnáttu, þá var hann vanur að segja rétt á eftir: Don’t get discouragcd—“Lát- ið ekki hugfallast.’ Hann sagðist biðja GuS um það fyrir okkur alla, að við yrðum aldrei ríkir. Auður- inn gæti verið sæmilega góður fyrir suma leikmenn, en hreint ekki fyrir presta. Engan kennimann kvaðst hann hafa þekt, sem ekki hefði stór- tapað við að komast í efni.— Skýring Weidners á uppruna Hebreabréfsins var á þessa leið: “Efnið er Páls,” sagði hann, en framsetningin er eins ólík postul- anum eins og mest getur verið. Það hefir sjálfsagt upphaflega ver- ið prédikun, sem Páll hefir flutt fyrir GySingum hvað eftir annað. Svo segir hann einn góðan veður- dag við Timóteus: ‘Heyrðu, þú hefir ekkert að gera; það er bezt þú skrifir niður þessa ræðu, sem^eg er búinn að flytja svo oft — um æðsta prests embættið og fórnfær- ingarnar. Þú manst efnið. Við skulum búa til úr henni opið sendi- bréf til hebreskra manna í einhverj- um söfnuðinum.’ ” Sumir höfðu sérstakt gaman af þessari skýringu; því að sú saga gekk um Weidner sjálfan, að á síS- ari árum hefði hann komist af með tvær prédikanir, og flutt þær til skiftis á ferðum sínum. Ekki veit eg um sönnur á því; en allir geta séð, að kenslan er ekki líflaus, þeg- ar svona er haldið á efni. Ekki þótti okkur minst í það var- ið, að ,mega kynnast ritum nýja testamentisins á frummálinu. Eg hafði stundað grisku áður, í háskól- anum, en Hjörtur ekki. Doktor Weidner fékk mér það verk, að hjálpa nokkrum nýsveinum við griskunámið, þeim sem ekki kunnu neitt í málinu. Það var hörS vinna. En Hjörtur var einn af þeim læri- sveinum, og fanst mér það bæta heil- mikið úr skák. Ekki get eg eigin- lega sagt, að eg kendi honum grísku. Við lásum í samlögum auðvelda kafla i nýja testamentinu gríska, og skýrði eg fyrir honum beygingar og önnur undirstöðuatriði smám sam- an, eftir því sem þörf gjörðist, og á skömmum tíma var hann farinn að lesa frumritin sér til uppbygging- ar. Við höfðum báðir mikla nautn og mikið gagn af þeim lestri; það var eins og nýju Ijósi væri brugðið yfir margan ritningarstaS og alt efnið fengi nýjan svip og lífskraft, þegar við fórum að kynnast mál- færi frumkristninnar i þessum heilögu ritum. Frjálsræði í skólanum held*eg að við höfum notað all-sómasainlega, landarnir, sem þar vorum. Við héld- um hópinn að nokkru leyti, án þess þó að einangrast; fórum eftir eigin venjum og hentugleikum í flestu, og ræddum okkar á milli margt af því, sem upp kom í kenslunni. Við Hjörtur gripum hvað eftir annað til þess ráðsins, þegar eitthvað kom á daginn, sem erfitt var. Þá var það viðkvæðiS alla jafna: “yið skulum koma út og tala um þetta.” Fórum við þá í hressilegar gönguferðir inn eftir Clark stræti, eða út með Michigan vatni, eða suður í lysti- garðinn víðfræga, Lincoln Park, og ræddum um trúarefnin fram og aft- ur, eða kenningaratriðin. Eg býst við, að gamli Weidner hefði ekki verið sem ánægðastur með sumt af þvi, er upp kom hjá okkur í sam- ræðunum; og því síður hefði það fengið lof hjá nýmælamönnum. En hvað um það; við fórum okkar eigiri ferða óhindraðir og höfðum held eg ósegjanlega mikið gagn af því. Rökin hjá okkur og úrlausn- irnar höfðu víst ekki mikið gildi stundum, nema rétt fyrir augna- blikið. En trúin sjálf fékk ein- hverja endurnæringu viS þessar ferðir og samræður. Hún var fersk eins og vorgróður í hjörtum beggja, og varpaði nýjum unaðsblæ yfir náttúruna, mannlifið, og allan um- heiminn. Við höfðum þétta báðir á tilfinningunni. Þótt Hjörtur aðhyltist lúterskan kristindóm í meginmáli, þá varð hann aldrei verulega sterkur á kenninga-svellinu. Honum fanst guðfræði kirkju vorrar óþarflega nákvæm, og margbrotin, og helzt til mikið af henni látið. Hélt hann sér þvi mikið að doktor Gerberding, sem lagði mesta stund á aS kynna okkur starfsaman og lifandi krist- indóm. Gerberding fór stundum með stúdenta suður í borgina, til að sýna þeim kristilega starfsemi hjá öðrum kirkjudeildum. Skólabræður okkar innlendir urðu að kannast við það, að þarna væri mikið um góð og blessuð tilþrif hjá ólþtersku fólki—“en lúterska kirkjan hefir guðfræðina,” bættu þeir oftast við: —“We have the doctrine!” “Ó-já,” sagði Hjörtur, “þaS er eins og stúlka hafi altaf sama djásn- ið sér til þróss og réttlætingar, hverju sem fram vindur; bendi sí- felt á hattinn sinn og segi: ‘Sjáið bara hvað það er fallegt, sem eg hefi á höfðinu!’ ”— Margs er að minnast frá þessari skólavist, að sjálfsögðu, sem gaman væri að rifja upp fyrir sér. Eg vil nú klykkja út með því að segja frá einu atviki. Það var nálægt jólum fyrra veturinn, að efnt var til söng- samkomu niðri í borginni. Gríðar- mikill og þaulæfður söngflokkur, sem Apollo Cluh nefndist, átti að syngja þar óratóríið nafnfræga The Messiah eftir Handel. Fórum við þrír til að hlusta á þann söng, Run- ólfur Fjeldsted, Hjörtur og eg. Ekki er að orðlengja það, að listin var hjartnæm og hrífandi hjá söng- flokki þessu. Mér sýndist eg sjá tár í augum Fjeldsteds þegar eg leit til hans einu sinni eða tvisvar. Og á leiðinn heim vorum við báðir eins og í sjöunda himni yfir þessari kvöldstund. “Já,” ,sagði Hjörtur, “stundin var góð—ágæt stund. Eg reiknaði tvö dæmi í calculus á með- an þeir voru með þennan söng.” Satt er það, Hjörtur var fremur ósöngvinn bg kannaðist hann hrein- lega við þann misbrest hjá sér. En hann var líka glettinn, og hafði gam- an af að “ganga fram af” mönnum í orði. Kemur hvorttveggja í ljós hjá honum í þessu tilsvari, finst mér. En honum var sönglistin alls ekki svo leið, eins og hann lét stund- um í veðri vaka. Eg vissi til þess, að hann gat orðið verulega hrifinn af sönglagi, ef honum líkaði ljóðið, sem sungið var. Sumir menn hafa meiri mætur á sönglist en skáldskap. Þeir verða þá fyrst hrifnir af ljóð- um, þegar þau eru sett við hrífandi sönglag og sungin af snild. Þetta var á hinn veginn fyrir Hirti. Skáldskapur var líf hans og yndi, en honum var minna gefið um músík. En eg þóttist taka eftir því að fagurt kvæði, sem sungið var, túlkaði stundum sönginn fyrir hon- um, svo að hann hafði nautn af hvorutveggja.— Vorið 1909 lauk Hjörtur námi á prestaskólanum og var hann í apríl- mánuði vigður til prests í kirkju sankti Páls safnaðar í Minneota. Séra Björn B. Jónsson, sem þá var forseti kirkjufélagsins, framkvæmdi vígsluna. Tók svo séra Hjörtur við þjónustu prestakallsins í íslenzku nýlendunum norður af Church- bridge og suðvestur af Gerald í .Saskatchewan. Þeim söfnuðum þjónaði hann í þrjú ár. (Meira) Undrabarn Oft heyrir maður getið um undra- börn, sem skara fram úr jafnöldrum sínum, og oftast nær er það þá á sviði hljómlistarinnar. Nýjasta undrabarnið er 9 ára gömul ensk telpa, sem heitir Sheila Mossman. Þegar hún var þriggja ára að aldri gat hún leikið á píanó mörg lög, sem hún hafði lært utan að. Þeg- ar hún var sex ára gömul byrjaði hún á því að semja lög. Og nú ný- lega hélt hún hljómleika í hinu enska “Musikkonservatorium” og vöktu þeir svo mikla athygli og aðdáun, að forstjórarnir spáðu henni því að innan fárra ára mundi hún verða orðin heimsfræg. —Lesb. Búðarþjónn var að afgreiða aldraða frú, sem reifst út af verð- inu á silkibút. Kaupmanni gramdist hvað honum fórst klaufalega að sannfæra konuna og kallaði á hann afsíðis til þess að leiðbeina honum: —Þér eruð asni; nú skal eg sýna yður hvernig maður á að haga sér þegar þannig stendur á.— Sýo sneri hann sér að konunni: —Já, kæra frú, það er verðið á þessu silki—en við getum ekki selt það ódýrar því að nú er svo lítið framleitt af silki vegna þess að pest hefir komið upp í silkiormunum. Konan ætlaði að hugsa sig um og fór. Daginn eftir sat kaupmaður í skrifstofu sinni og heyrði þá ógur- legan hávaða frammi í búðinni. Hann rýkur fram og sér sömu kon- una og áður. Hún var sótrauð af vonsku og lamdi búðarþjón eins og harðan fisk með regnhlíf sinni, kall- aði hann öllum illum nöfnum og rauk svo á dyr. —í hamingjunnar bænum, hvað á þetta að þýða? spyr kaupmaður. —Eg skil það ekki, svarar búð- armaður. Plún kom til að kaupa bendla og byrjaði eins og í gær, að jagast um verðið, en þegar eg sagði henni að við gætum ekki selt þá ódýarar vegná þess að pest hefði komið upp í bendilormunum—já, þá rauk hún á mig með þessum litla ofstopa. Þann 23. apríl síðastliðinn, and- aðist að heimili sínu í Wynyard, Saskatchewan, öldungurinn Guð- mundur Ólafsson, á sjötugasta og sjöunda aldursári. Hann var fædd- ur haustið 1857, á Ærlæk í Axar- firði, í Norður-Þingeyjarsýslu; for- eldrar hans voru þau hjónin Ólafur Gabríelsson Ketilssonar, og Sólveig Eiríksdóttir Sigvaldasonar frá Hafrafellstungu í Axarfirði. Ólafur faðir Guðmundar heitins og Bót- hildar móður Valdimars Ásmunds- sonar ritstjóra “Fjallkonunnar” voru systkinabörn, og jafn skyldir Ólafi í föðurætt voru þeir valin- kunnu bænda-öldungar Jón Jóa- kimsson á Þverá í Laxárdal í Suð- ur-Þingeyjarsýslu, faðir Benedikts á Auðnum, föður Unnar, skáldkon- unnar alkunnu, og Jakob Hálfdán- arson á Gfímsstöðum við Mývatn, seinna kaupfélagsstjóri á Húsavík á Tjörnesi, og merkisbóndinn Ketill Sigurðsson í Miklagarði í Eyjafirði. Systir Ólafs föður Guðmundar var Ólöf Gabríelsdóttir kona Sigurgeirs Jónssonar frá Reykjahlíð við Mý- vatn, móðir frú Valgerðar konu séra Magnúsar Josephssonar Skaptasonar læknis á Hnaus- um í Húnavatnssýslu. Móðir Ólafs Gabríelssonar var Ólöf 111- ugadóttir, systir Jóns Illugasonar, afa Jóns J. \ opna i Winnipeg. Þessi þéttgróni ættbaðmur hefir fest rætur sínar djúpt í mörgum þeim mestu og beztu menningarframför- um, sem þrjár norðursýslur föður- landsins okkar hafa komið á fót, og verið formenn þeirra um lengri eða skemri tíma. Móðurætt Guðmundar, áður- nefnd Sólveig Eiriksdóttir bónda í Hafrafellstungu í Axarfirði, Sig- valdasonar Eiríkssonar Styrbjörns- sonar sterka í Múlasýslum. Þess er getið í annálum, að Eiríkur Styr- björnsson hafi fóstrað upp 19 mun- aðarlaus börn á sinn eiginn kostnað. Átti þó stóran barnahóp sjálfur. Þetta barnauppfóstur Eiríks Styr- björnssonar bónda á Ketilsstöðum i Jökulsárhlíð í Norður-Múlasýslu, er talið meö fádæmum i sögu lands- ins. Eiríkur Styrbjörnsson dó 8. desember 1809, 91 árs að aldri. Síðasta daginn sem hann lifði, gaf hann fátæklingi krónu, svo hann endaði vel æfina, eins og hann æ- tíð ástundaði að gera gott og út- býta þeim fátæku af brauði sínu. Sigvaldi sonur hans bjó síðast í Hafrafellstungu, og var faðir Ei- nks bónda þar. Gunnlaugs bónda í Skógum í Axarfirði, Guðmundar bónda á Áslaugarstöðum í Vopna- firði og Soffíu konu Sigurðar prests Grímssonar á Helgastöðum í Reykjadal. Synir Gunnlaugs voru Langloka Hrygg er mín lund, hrærist hjarta þreytt. Aðeins getur einveran unað mér veitt. Seint þvi eg gleymi er saklaust barn eg var. Hugurinn á sveimi með hendingar. Margt gott eg geymi um gamlar minningar. Nú er komin önnur öld, öllu breyta timans völd. Líður undir æfikvöld. Eg er þreyttur. Lundin köld; því mörg hefir skollið skúr á mig í heimi. Bróður byrgir leiði. Fer að rofa fyrir nýrri heiði? Stundir áfram streyma hratt, styttist mótgangs kífið. Seinast koma launin fyrir lífið Dagarnir dvina; daprast lífsins fjör. Glötuð æfi mæðir lundu mína. Eg var þó í anda frjáls, engin snara mér um háls. En allir mega æsku sinni týna. Meðan hrærist hjartablóð, hlýir geislar skína— unaðsblítt um æskudaga mína. Hugurinn reykar hér og þar, Sigurður í Ærlækjarseli og Björn i Skógum. Af þessu ættbergi var GuSmund- ur heitinn Ólafsson kominn og lýsti það sér glögt í dagfari hans og mörgum góðum mannkostum að' hann var enginn ættleri. í fyrstu æsku misti hann móður sína, en ólst upp með föður sínum og stjúp- móður sinni, seinni konu föður hans, Álfheiði Einarsdóttur. Um tvitugsaldur fór hann í vinnu- mensku til séra Vigfúsar Sigurðs- sonar prófasts á Sauðanesi á Langa- nesi og víðar þar í sveit og Þistil- firðinum var hann vinnumaður. Allstaðar þar sem hann var, hlaut hann hrós húsbænda sinna fyrir trúskap sinn, jafnt í orðum sem verkum. Árið 1885 giftist hann Kristínu Jónsdóttur frá Hvammi í Þistilfirði, hún var af merku bænda fólki þar í sveit. Sumarið 1887 fluttu þau til þessa lands og bjuggu fyrstu 12 árin í bænum Grafton, N. Dak, fluttu þaðan 1899 til Win- nipeg, Man., og bjuggu þar í 18 ár. Voru um nokkur ár í Winnipegosis, en seinustu æfiárin voru þau í Wyn- yard, Saskatchewan. Þau eignuðust 3 börn tvær dætur, sem komust til fullorðins ára: Kristínu Soffíu, konu Jóhanns Methúsalemssonar bónda við Mountain, N. Dakota, hún dáin fyrir nokkrum árum og Jó- hönnu Sólveigu, konu Helga Jóns- sonar bróður Guðmundar Kamban. Helgi dáinn fyrir mörgum árum. Ekkja hans lifir í Wynyard og hefir um mörg ár stundað músík kenslu. Þriðja barn þeirra Guðmundar og konu hans var drengur sem hét Jó- hannes, hann dó í fyrstu æsku. Al- systkini Guðmundar, sem komust til fullorðins ára eru öll dáin nema (Ólöf kona Finnboga Hjálmarsson- ar í Winnipegosis, Man. Eftir að hann kom til þessa lands, vann hann mest að ýmsri daglaunavinnu og var sjaldan iðjulaus; mattist víst ekki oft um kaupgjald við verkveitendur sina, þó vinnulaunin væru ekki sem ríflegust. Skilcli það mörgum betur að iðjusemi og starfsemi færa jafn- an brauð í bú. Heimilisfaðir var hann ágætur, hóglyndur, orðvar og dagfarsprúður; gestrisin voru þau hjónin og veittu öllum sem heim- sóttu þau af innileik og alúð, enda áttu þau jafnan vinsældum að mæta hjá þeim, sem þau kyntust. Síðustu ár æfinnar var Guðmundur heitinn blindur, en bar þ'ann kross með þol- inmæði og undirgefni. Kona hans lést síðastliðið ár og var þess getið þá í Lögbergi. Vertu sæll, góði vinur, orðstír þinn sem góðs manns deyr ekki hjá samtíð- þinni, þó þú sért liðinn. Sofðu í Guðsfriði! horfið er það sem áður var; siglir út á andans mar, með æskuvon i svefni. Sækir þangað seim í drottins nafni. Eg vil kveða’ og yrkja ljóð ef óðar- gyðjan leyfir. Guð er sá sem hörpustrengi hreyfir. Kveða vildi eg kraftaljóð, knýja’ úr mínum strengjum hljóð; syngja kjark og kraft í þjóð, svo kvöl ei lengur dafni. Því er bezt eg böli og kviða hafni. Sárt er það, að sjá ei neinn sólargeisla skina. Enda þannig æfigöngu sína. Það er grátlegt gæfu sinni að týna. Hristi eg af mér hugarkvöl herði á strengjum snjöllum. Nú skal líka bjóða byrginn öllum. Því er bezt að herða upp hug, hefja sál á andans flug, sýna hreysti’ og sannan dug, syngj’ á hörpur snjallar; áður en dimmur dauðinn burt mig kallar. —Syrtir að haustið. Sól á lofti hnígur. “Allir dagar eiga kvöld.” Æfin burtu flýgur. Svona líður ár og öld, alt í djúpið sígur. Röðull þó af rökkri dauðans stígur. Valur. —Lesb. Slæmt bragð í munni Pað bendir aðeins á eitthvað a£ aðal- llffærunum er ekki í góðu lagi. Melt- ingin er kannske ekki góð og matar- lystin ekki heldur, né hægöirnar, melt- ingarfærin máttlaus og svefninn óvær o. s. frv. Alt þetta bendir á aS þú þurf- ir gott heilsulyf. Nuöa-Tone er meCal, sem lyfjafræóin hefir fundið upp og bætir það heilsufar, sem að ofan er lýst. NUGA-TONE veitir heilsubót á ótrúlega stuttum tíma. Láttu ekki sjálfum þér, né þinum líða illa. Farðu til lyfsalans og hjá honum færðu mán- aðarforða fyrir einn dollar. Nuga-Tone er selt með fullri ábyrgð. Eftir tuttugu daga er peningunum skilað aftur, ef þú ert ekki ánægður. En kýrnar drápust (úr norsku blaði) 1. Maður nokkur átti að hirða um kúabú, sem var hlutafélags eign. 2. Kýrnar stóðu á básunum og bauluðu ákaft, því þær voru svang- ar og vildu fá fæðu. 3. Þá mjólkaði maðurinn kýrn- ar og gaf þeim mjólkina að drekka. 4. Það saddi sultinn í bráðina— og kýrnar skoðuðu manninn hina góðu forsjón og bjargvætt sinn. 5. Þær héldu að þær væru nærð- ar á mjólk hlutafélagsins. 6. En kýrnar urðu margari dag frá degi. 7. Það varð að auka mjólkur- skamtinn og maðurinn varð að þrautpína mjólkina úr kúnum. 8., En þær mjólkuðu minna dag frá degi. 9. Og endirinn varð sá að allar kýrnar drápust. 10. Manninum var það óskiljan- legt hvernig á þessum ósköpum gæti staðið. 11. En öllum öörum er það ljóst, að slíkur maður hlýtur að vera bandvitlaus. Eftirmáli:— Útifyrir voru grænir og grösugir hagar, en þau gæði voru látin ónot- færð.— 1. Nokkrir stj órnmálamenn höfðu ráðsmensku þjóðfélags með höndum í nafni ríkisins. 2. Það voru krepputímar og fólk- ið sendi kvartanir sínar til forráða- manna rikisins, það vildi fá kreppu- hjálp handa atvinnuvegunum, styrk- veitingar og hlunnindi. 3. Og forráðamenn ríkisins lögðu nýja skatta á þjóðina og fengu fólk- inu peningana er þannig fengust, sem hjálp úr kreppunni. 4. ÞaS létti undir í bráðina og fólkið skoðaði þessa forráðamenn ríkisins hina góðu forsjón og bjarg- vætti sína. 5. Það hélt að það lifði á pening- um ríkisins. 6. En fólkið varð fátækara dag frá degi. 7. Það varð að auka styrkveiting- arnar og ríkið varð að þrautpína þegnana í skattgreiðslum til þess að það tækist. 8. En gjaldþolið varð minna með ári hverju. 9. Og endirinn varð sá, að þjóð- félagið varð öreiga. 10. Stjórnmálamönnunum var það óskiljanlegt, hvernig á þessum ósköpum gæti staðið. 11. Hvað eigum við að segja um slika stjórnmálamenn? Eftirmáli:— Vinnuafl var nægilegt og landið hafði gnægð gæða að bjóða, en sem látin voru ónotfærð. —íslendingur. Nýlega hefir Junker-verksmiðjan hleypt af stokkunum stærstu land- flugvél, sem til er í heimi. Er númer hennar D 2500 og hefir hún fjóra hreyfla. Flugvél þessi var skírð á T’empelhofer-flugvellinum með mikilli viðhöfn og hlaut nafn- ið “Hindenburg yfirhershöfðingi.” Forsetinn var sjálfur viðstaddur, en Göring flugmálaráðherra skíröi flugvélina. F. H.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.