Lögberg - 05.10.1933, Síða 3

Lögberg - 05.10.1933, Síða 3
Bls. 3 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. OKTÓBER, 1933 —...— -....— -------■--........•=? JÖLAGESTUR smásaga eftir sr. Þórð Tómasson I. Það er komið rökkur á aðfangadag jóla. Bngi og akrar eru hulin hvítum jólasnjó. Og enn snjóar jafnt og þétt. Maður nokkur er á ferð. Hann gengur veginn, sem liggur úr kaupstaðnum upp í .sveitina. Hann er grannvaxinn og unglegur, klæddur slitnum, skjóllitlum fötum, þrátt fyr- ir vetrarkuldann. Svipur hans ber vott um þunglyndi og vorileysi og það lítur ekki út fyrir að erindi hans sé annað en að vera einsamall og ein- mana í snjónum og myrkrinu, og síðan, ef til vill, að leita sér næturskjóls í útihúsi á ein- hverjum bóndabænum. —- Vinsnauður maður og frændafár, munaðarlaus heimilisleysingi, sem flýr mennina og forðast bústaði þeirra. Alstaðar var nú verið að taka á móti jól- unum. Jafnvel á heimilislausra hælinu inni í bænum. Þangað lögðu nú leiðir sínar fjöldi manna, sem að jafnaði höfðust við á götum úti, af því að þeir áttu hvergi heima. Og þess vegna hafði hann flúið burt. Hann gat ekki liugsað til að lialda jólin sín þar, ekki af því að hann þættist betri en þeir, þeir höfðu verið félagar hans svo mánuðum skifti, og margir þeirra voru reglusamir menn. En jólanóttin —! Minningarnar urðu of lifandi, söknuður- inn of sár. Jólin heima í litla bænum hennar mömmu. Nú er það alt liðið. Mamma ligg- um við hliðina á pabba í stóra kirkjugarðinum inni í höfuðstaðnum. Hann átti engin syst- kini, enga ættingja, sem hann þekti, eða hirti um. Alveg umkomulaus í heiminum. Aldrei hefir honum verið það jafn þungbært og nú. Þess vegna leitar hann burt frá mönnunum og hátíðarhaldi þeirra, út í snæviþakta str jál- bygða sveit. Það er hugarhæ^gð í því — og svalandi að ganga í snjónum, þrátt fyrir gegn- drepa föt og votar fætur. Nú er farið að kveikja á bóndabæjunum og í húsum meðfram veginum. Ljósin fyrir innan ráðurnar þýða heimili og vini, sem halda hópinn. Kirkjuklukkum er hringt. Það þýðir hátíð. En hann hraðar göngu sinni því meir. Burt, lengra, alla leið þangað, sem engin hús sjást, ekkert sést annað en hvít-- klædd jörðin, þögnin og myrkrið, sem bráð- lega vefur alt og hylur með dimmum nætur- lijúp. Smámsaman færist kyrð inn í liuga hans. Þreyttur er hann og magnþrota. Líkami hans dofnar og hann fer að finna minna til þreytunnar og sársaukans. Hann hægir á göngunni, líkt og hann sé farinn að ganga í svefni. Hann er stadur á takmörkum vöku og svefns, þar sem draumarnir fæðast. Snjór- inn heldur áfram að falla til jarðar. Dúnlétt- ur, mjallhvítur leggur hann þykka ábreiðu undir fætur unga mannsins, sem gengur á- fram, hægt,, liljóðlaust, ósjálfrátt. Það er orðið svo notalegt í snjódrífunni. Minningarnar eru vaknaðar og orðnar að lif- andi verum. Þær flytja hann á fornar slóðir, —heim í litla bæinn til hennar mömmu. Þar er aðfangadagskvöld jóla, alveg eins og þegar iiann var heima, og mamma rétti honum jólagjafirnar brosandi, og horfði svo á hann með ástúðarsvip í augunum, og beið þess að hann skoðaði í böggulinn. — Minning- arnar eru hlýjar—svo undur notalegar og hlýjar—draumurinn fagur og ljúfur—úti í snjónum og vetrarauðninni. II. Alt í einu verður liann þess var, að ein- hver gengur við hliðina á lionum. Það er orðið svo dimt að hann greinir ekki andlits- drættina, en röddin er skær og ungleg: “Gott kvöld, félagi, og gleðileg jól!” Hann svarar engu. Nú langar hann ekk- ert til að skrafa. “Eigum við að verða samferða!” spyr hinn. “Hvert ertu að fara?” Hann steinþegir enn. “Kannske þú eigir engan samastað?” Það var eitthvað í hljóm raddarinnar, sem kom honum til að svara í lágum róm: “Nei. ” “Komdu þá heim með mér. Það er skamt héðan.” “Nei, þakka þér fyrir.” “Það verður tekið vel á móti þér. For- eldrum mínum þykir vænt um ef þú kemur. ’ ’ “Þau þekkja mig ekkert.” “Það gjörir ekkert til.” “Nei, eg vil það ekki. Láttu mig vera!” Þá er lögð liönd á axlir honum: “Þú mátt ekki láta svona. Mið langar svo f jarska mikið að þú komir heim með mér. Att þú ekki foreldra sjálfur?” “Nei.” “Eru þau dáin—bæði?” “Já.” * “Þá skaltu einmitt koma með mér. Þá saknar þín enginn. Alla langar heim um jólin. Þá má enginn vera einmana úti.” Þeir gengu þegjandi um hríð. ‘ ‘ ‘ Segðu mér annars eitthvað um foreldra þína. Þótti þér ekki ósköp vænt um þau !” Pabbi dó þegar eg var lítill. ” “ En mama þín?” “Hvort mér þótti vænt um hana móður mína—!” “Já, auðvitað hefir þér þótt vænt um hana. Og henni um þig. Segðu mér eitthvað um hana 0g jólin ykkar. Hann svaraði engu. En gráturinn sat um hann. “Það hlýtur að vera sárt að missa hana móður sína. En það hlýtur einnig að vera afar sárt fyrir foreldra að missa börnin sín. Bf það værir nú þú sjálfur, sem værir dáinn, og hún mamma þín saknaði þín um jólin. Sárara væri það þó. Nú er hún heima hjá Guði—og heldur þar jól.” Ungi maðurinn leit þegjandi til sam- ferðamannsins. “Af hverju þegirðu? Trúirðu ekki á Guð ? ’ ’ “Eg liefi lítið orðið var við Guð.” Það var beiskja í rómnum. “Þetta máttu ekki segja! Trúði móðir þín ekki á Guðf” “Jú,” svaraði hann ofur hægt. “Þarna sérðu það.” “Hversvegna tók hann þá mömmu frá mér ? Maður verður ekki mikið var við Guð, þegar aðseturstaðurinn er á heimilislausra hælum og svo úti á þjóðveginum. ’ ’ “Guð er einnig hjá þeim, ef þeir vilja sjálfir liafa hann með sér. Honum þykir engu síður vænt um þá menn. ’ ’ ‘ ‘ Hvað veist þú um það ? ’ ’ “Eg veit það, og það er einmitt það sem jólin sýna okkur.” ‘ ‘ Þú prédikar dável, þykir mér! ’ ’ “Eg segi einungis sannleikann. ” Þeir voru komnir í liliðargötu. Ókunni maðurinn tók um herðar unga mannsins og leiddi liann með sér. Hann fylgdi honum eftir eins og í leiðslu; hann var örþreyttur og vissi tæplegá hvar hann var staddur. Spölkorn frá veginum var lítið, afskekt hús. Það logaði ljós í tveim gluggum, öðrum megin við inngöngudyrnar. Ókunni maður- inn leit inn um gluggana. Ljósið féll í andlit hans,—það var sviphreint, unglegt andlit; yfir því hvíldi sálrænn, bjartur blær, sem lieilög alvara var fólgin í. Augun fyltust af tárum. Svo fór hann að inugöngudyrunum og lauk upp. Ljósrák lagði fram í fordyrið, um rifu fyrir ofan hurðina. Hann drap að dyrum. III. Gömlu hjónunum í litla húsinu liafði verið örðug jólatilhugsunin. Þau höfðu þó ekki nefnt það hvort við annað. Það hefði ekki orðið til annars en að ýfa upp sárið. En eftir því sem desemberdagarnir liðu, því erfiðara varð þeim lífið. Nú áttu þau ekki von á “drengnum sínum” heim í'rá skólanum. Son- urinn, sem mörg jól í röð kom heim í jólaleyf- inu, og flutti með sér æskuyndi og þrótt, sem lífgaði upp litla heimilið þeirra. Og öll indælu jólin, alt í frá barnæsku hans, þegar liann horfði í fyrsta skifti á tendrað ljós á jólatré, og barnsaugun ljómuðu af lireinni gleði. Og eftir að liann sjálfur skildi þýðingu jólanna til í'ulls, og gat sungið af lijarta blessaða gömlu jólasálmana með foreldrum sínum. Já, iþau höfðu sannarlega lialdið sameig'inlega heilög' jól í litlu stofunum. Jólin og jólabarn- ið höfðu dvalið í hjörtum þeirra. En nú------! Nú áttu þau ekki von á neinum syni,— aldrei framar. Dag einn um haustið, höfðu þau fengið símskeyti um að koma tafarlaust til bæjarins, sonur þeirra hefði veikst skyndi- lega. Og þau komu nógu snemma til þess, að geta setið sitt hvorum megin við rúmið hans, og lialdið í hendur hans, á meðan hann háði seinustu baráttuna. Einka barnið þeirra. Goði, duglegi drengurinn þeirra. Það kemur margt óskiljanlega erfitt fyrir mennina, þeir skilja það ekki, en hljóta þó að beygja sig fyr- ir kaldri raunverunni. Leiðið, með legstein- inum, sem var nafnið hans, var innsigli þess. Það varð svo hljótt hjá. gömlu hjónunum. Þau fundu það livort um sig, að ef þau ætluðu að fara að tala um það, þá mundi gráturinn yfir- buga þau. Og nú voru jólin komin svo nærri. Þau höfðu ekkert minst. á jólin. Án þess að tala um það, höfðu þau orðið samferða út í kirkjugarðinn, og prýtt leiðið hans með greni- við og nýjum blómsveig'. Og mamma hafði sett umgjörð úr greni utan um stækkuðu myndina af honum. Hún hékk á stofuþilinu. Þau höfðu ekki sagt neitt. En þá fór pabbi að gráta. Og nú var komið aðfangadagskvöld. Það hafði hvorki verið bakað eða steikt til jól- anna, .Jins og vant var*. Ofurlítið jólatré hafði mamma samt sem áður fengið sér. En það stóð úti í stofuhorni án skrauts og ljósa.— Og þó var það svo, að þegar kirkjuklukk- uhljómarnir búrust til liennar, þá vöknuðu | jólahugsanir hjá henni. Hún fann að þau íiöfðu ekki tekið við revnslunni á réttan hátt. Þau urðu að veita jólunum rétta viðtöku. Hún varð að reyna að gjöra stofuna ofurlítið jólalega, einnig ve,gna hans pabba. Hann rölti um húsið svo þreytulegur og þunglynd- ur, þó hann bæri harm sinn í liljóði. Andlitið var orðið torkennilegt og ellilegt. Jólavers, sem hún hafði lengi kunnað, hljómaði í sífellu í liuga hennar: Burt, hrygð úr öllum hjörtum nú, kom heilög gleði, svo í trú vér Jesúm faðmað fáum, og elskan heit af lijartans rót þeim liimingesti.taki mót með lofsöngs hljómi háum. Hún kveikti ljós og fór að ieggja á borðið. Hún lagði á borðið fyrir þrjá, alveg eins og þegar sonurinn var hjá þeim. En þá þc^di pabbi ekki meira. Hann settist í legubekk- inn og huldi andlitið í höndum sér. Hún fór til hans og settist hjá honum. “Vinur minn,” sagði hún. “Mér fanst eg ætti að hafa það svona í kvöld. Það er eins og við ættum von á honum. Hann á að vita, að við munum eftir honum. Það er ekki víst að hann sé svo langt í burtu frá okkur. Guð leyfir honum víst að líta til okkar í leyni. Hann hlakkaði æfinlega svo mikið til jólanna heima. ” Hún þagnaði alt í einu og hlustaði. “Mér heyrist vera gengið um fyrir utan húsið, 1 sömu svifum var drepið að dyrum. Húsbóndinn stúð upp til þess að opna dyrn- IV. Það stóð ungur maður fyrir framan hurðina. Slitin fötin hans voru hvít af snjó. Þegar ljósið skein framan í hann, var eins og hann hrykki upp af dvala. Hann litaðist ura, líkt og hann væri að leita einlivers. En hann var einsamall. tJtidyrahurðin á bak við hann var opin. Hann leit út um gættina. En þar var ekkert að sjá. Hann stóð kyr í sömu sporum, vandræðalegur í bragði og mælti ekki orð frá vörum. “Gjörðu svo vel og komdu inn fyrir,” sag'ði gamli maðurinn. “Eg veit ekki hvernig þessu er varið -----en við vorum held eg tveir,” sagði hann loksins. “Það var sonur ykkar, sem bauð mér að koma lieim með sér. En nú er hann liorfinn. ” ‘ ‘ Sonur okkar, ’ ’ sögðu gömlu hjónin bæði í einu. “ Já, hann gekk fram á mig á leiðinni, og vildi endilega láta mig koma heim með sér.” Gömlu hjónin störðu bæði á hann þrumu- lostin. Var ungi maðurinn áð leika á þau á þennan hátt—á sjálfa jólanóttina! Það var óhugsandi að svo illa innrættur maður væri til. Og hann leit ekki út fyrir að hafa vond- an mann að geyma, þessi aumingja piltur; hann var svipgóður og prúðmannlegur, þótt hann væri afar vesaldarlegur. Gamla konan lagði hendina vingjarnlega á handlegg hans og sagði: ‘ ‘ Við skulum koma inn fyrir og reyna að vita hvernig í þessu liggur. ’ ’ Unga mannimnn varð þegar í stað star- sýnt á stækkuðu myndina á þilinu. “Þetta er nú mynd af syni okkar. Hann dó í haust sem leið. Þektuð þér hann kann- ske?” spurði gamla konan. “Dáinn! Það sem var hann, sem fylgdi mér hingað heim!—En það er ómögulegt! Þetta hlýtur alt að vera draumur— lofið þið mér að fará út aftur.” “ Nei, ” sagði gamla konan og tárin runnu ofan kinnarnar. “Við skulum reyna að kom- ast að einhverri niðurstöðu.” Sólskin Sérstök deild í blaðinu Fyrrr börn og unglinga ^ PROFESSIONAL CARDS ^ 1 DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834 — Offlce tlmar 2-3 Heimili 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnlpeg, Manltoba CARLTON ELECTRIC PHONE 80 753 641 SARGENT Raf-aðgerðir af öllum tegundum, ásamt vlrlagningu. Raf-stór yðar “disconnected'’ ÓKEYPIS. Alt Verk Abyrgst H. A. BERGMAN, K.C. talenekur löofrœtHngur Skrifstofa: Room 811 McArthur Buildlng, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 048 DR. T. CREENBERG Dentist Hours 10 a.m. to 9 p.m. PHONES: Office 36 196 Res. 51 455 Ste. 4 Norinan Apts. 814 Sargent Ave., Winnipeg Drs. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUST BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 646 WINNIPEG W. J. LINDAL, K.C. og BJORN STEFANSSON tslenzkir löofrceöinoar 326 MAIN ST. (& ÖOru gólfl) Talslml 97 621 Hafa einnlg skrifstofur aO Lundar og Gimli og er þar aO hitta fyrsta miOvikudag I hverjum m&nuOL DR. B. H. OLSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham ogr Kennedy Sts. Phone 21 834—Office timar 4.30-6 Heimili: 6 ST. JAMES PLACB3 Winnlpeg, Manltoba Dr. A. B. Ingimundson Tannkrknir 602 MEDICAL ARTS. BLDG. Slmi 22 296 Helmilis 46 064 J. T. THORSON, K.C. tslenekur löofrœöingur 801 Great West Perm. Bldg. Phone 92 755 DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Talsími 26 688 Stundar augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma.—Er aO hitta kl. 2.30 til 5.30 e. h. HeimiU: 638 McMILLAN AVE. Talslml 42 691 DR. A. V. JOHNSON lalenekur Tannlœkntr 212 CURRY BLDG., WINNIPEG Gegnt pösthúsinu Slml 9 6 210 Heimilis 33 328 I J. RAGNAR JOHNSON B.A., LL.B., LL.M. (Harr). . islenzkur lögmaöur 405 DEVON COURT Phone 21 459 Dr. P. H.T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sta. Phones 21 213—21 144 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 571 A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður s& bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarCa og legsteina. Skrifstofu taisimi: 86 607 Heimilis talsími 501 662 G. S. THORVALDSON B A„ LL.B. Lögfrœöinour Skrifst.: 702 CONFEDERATION LIFE BUILDING Main St„ gegnt City Hall Phone 97 024 DR. A. BLONDAL 602 Medical Arts Building Stundar sérstaklega kvenna og barna sjúkdóma. Er a5 hltt* frá kl. 10-12 f. h. og 3-5 e. h. Office Phone 22 296 Heimili: 806 VlCTOR ST. Simi 28 180 A. C. JOHNSON 907 Confederation Life Bldg. Winnipeg Annast um fasteignir manna. Tekur aC sér aö ávaxta sparifé fölks. Selur elds&byrgC og bif- reiCa ábyrgOir. Skriflegum fyrir- spurnum svaraO samstundis. Skrifst.s. 96 757—Heimas. 33 328 E. G. Baldwinson, LL.B. ttlenzkur lögfrœöinour Residence Phone 24 206 729 SHERBROOKE ST. Dr. S. J. Johannesson ViBtalstlmi 3—5 e. h. 632 SHERBUEN ST.-Simi 30 8T7 G. W. MAGNUSSON Nuddlasknir 41 FURBY STREET Phone 36187 SimlC og semjlC um samtalstlma J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEO Fasteignasalar. Lelgja hús. Ut- vega peningal&n og elds&byrgO ai Nlu tagi. 1 ttone 34 221

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.